Tíminn - 11.12.1920, Síða 1
TIMINN
am sextiu blöð á ári
kostar tiu krónur ár-
gangurinn.
AFGREIÐSLA
blaðsins er hjá Gnð-
geiri Jónssgni, Hverfis-
götu 54. Sími 286.
IV. &r.
Rey&javík, 11. desember 1920.
49, blað.
Skín og skuggi.
Memi eru farnir að skifta árun-
um frá ófriðarbyrjun og þangað
til nú í þrjú tímabil: Ófriðartíma-
• bilið í fjögur ár, byltinga eða
glundroðatímabilið í tvö ár, og nú
sé viðreisnartimabilið að hefjast,
með nokkurn veginn fullri vissu.
Menn vonuðu það að viðreisn-
artímabilið hæfist þegar og friður
yrði saminn. Reynslan gerði þá
von að engu. Árin tvö sem liðið
hafa frá vopnahlénu hafa að
sumu leyti orðið Norðurálfunni enn
erfiðari en sjálf stríðsárin.
Af mörgu vilja menn ráða það
að viðreisnartímabilið sé hafið.
Vesturhluti álfunnar hefir horfið
frá því ráði að halda áfram ófriðn-
um við Rússa og friðarsamleg við-
skifti að hefjast við þá. írsku
vandræðin og flækjan á Balkan-
skaga eru mál sem eru innan
smserri takmarka. Rfkin hafa ráðið
fram úr vandamálunum um að koma
hermönnunum fyrir. Þau eru að
komast á fastan grundvöll um að
koma skipulagi á fjármálin, a. m.
k. mörg þeirra. Rað er að færast
í áttina að skipulag komist á versl-
unina, óheilbrigt að vísu^ð mörgu
leyti, en þó í áttina að vera skipu-
lag. En mest er vert um það að
byltingahugurinn er að sefast. Þótt
verkföllin séu ' enn mörg og harla
erfið viðfangs þá eru þau orðin
innan þrengri takmárka og það
tekst nálega altat að ná samkomu-
lagi, sem báðir aðilar una, í bili
a. m. k. Rað virðist ótvirætt, að
þeir verði æ fleiri og fleiri sem
skilji það, að nú þurfi fyrst og
fremst að vinna, til þess að reisa
rústirnar.
Viðreisnartimabilið er hafið, í
bili a. m. k. Framtíðin sker úr
hvort einungis er um að ræða stutt
skin milli skúra, eða árdagsskin
langs dags.
En skuggalaust er þetta skin
ekki. Samfara þessari birtu í lofti
ber og á öðru — og sagan sýnir,
að þar er um skugga að ræða sem
fylgt hefir flestum miklum styrjöld-
um.
Það. eru mörg og alveg ótvíræð
merki þess, að afturhaldinn og
yfirdrotnunarstefnunni er að vaxa
fylgi hjá þjóðunum og það hefir
hingað til reynst óuinflýjanlegt að
ávextir þeirra stefna hafa verið
nýir ófriðir og hörmungar.
Okkur er tamast aö líta fyrst
til frænda okkar á Norðurlöndum.
Rað er eftirlektavert að í þeim
löndum öllum eru hægrimennirnir,
afturhaldsmennirnir sterkari á þing-
unum, en þeir hafa lengi verið,
sennilega síðan þessi öld hófst.
Að visu ráða hinir frjáslyndu vinstriS
menn miklu um stjórn landanna,
en þeir verða að taka meira tillit
til hægrimannanna, en þurft hefir
um langa hríð.
Á Þýskalandi gengur stefuan enn
ákveðnara i sömu átt. Keisarasinn-
arnir eru lýðveldinu þýska hæltu-
legri en nokkru sinni. Vitandi vel um
vald sitt, láta þeir miklu meir til
sín taka en áður. Og þeir fara ekki
dult með það um hvaða farvegu
þeir vilji leiða þjóðina.
Frjálslyndi flokkurinn enski er
að miklu leyti horfinn úr sögunni.
Irska málið setur dökkan blett á
ensku þjóðina, sem orðlögðust var
fyrir kunnáttu sína að stjórna
öðrum. Annars er meir óráðið um
hug al»ennings á Englandi, en á
meginlandinu, þvi að kosningar
eru þar löngu um garð gengnar.
Á Frakklandi er veldi afturhalds-
ins greinilegast í Norðarálfunni.
Hefir þess svo nýlega verið getið
í blaðinu að óþarfi er að endur
taka.
En allra greinilegasta mynd
yfirdrotnunar og afturhaldsskugg-
ans getur að líta í Bandarikjunum
i Vesturheimi. Harmleikurinn, ferill
Wilsons forseta, er það hið átakan-
lega dæmi. Og sennilega er það
sá þáttur í sögu nútímans, sem
seinni kynslóðir munu mest um
tala.
Wilson var fulllrúi hugsjónanna
sem ótal margir bundu við stríðið.
Og það virtist blasa við að honum
myndi auðnast að leysa af hendi
meira og göfngra hlutverk en flest-
um dauðlegum mönnum.
En Bandaríkjaþjóðin tók í
taumana. Rétt áður en hann fór
á friðarfundinn sýndi þjóðin það
að hún bar ekki þroika til að
skilja og veita fylgi forseta sínum.
Hún sendi andstæðinga hans fjöl-
mennari á þingið. Hún sýndi það
að hann hafði ekki þjóðina að
baki sér, um að koma hugsjónun-
um í framkvæmd. Hún sló vopnin úr
hendi honum. Hún sendi hann
máttarvana á friðarþingið.
Og Bandaríkjaþjóðin harðnaði
æ í forherðingu skilningsleysisins.
Eigin flokkur Wilsons vildi ekki við
hann kannast nema að litlu. Flokk-
urinn þorði ekki að styðja mann
til forsetatignar sem Wilson stæði
nærri. Og þrátt fyrir þessa varúð-
arreglu beið flokkurinn hinn mesta
ósigur, af þvi, fyrst og fremst, að
hann var þó bendlaður við Wilson.
Saga Wilsons í Bandaríkjunum
er úti, að fullu og öllu. En eftir-
tíminn mun telja Wilson mestan
núlifandi manna og dæma kyn-
slóðina eftir framkomunni.
t Bandaríkjunum, ríkasta og
voldugasta riki heimsins núverandi
ríkir hin svartasta afturhaldsstefna,
kúgunarstefna og fjárdráttar. Það
hlýtur að hafa hin ónmræðilega
skaðlegustu áhrif.
Framtíð samvinnunnar
á íslandi.
i.
Síðustu missirin hafa gert ís-
lensku þjóðinni þungt fyrir fæti.
Verðhækkunin hefir verið óeðlileg,
og það svo, að nú risa hvorki
einstakir menn eða landið undir
allra sjálfsögðustu framkvæmdun-
um. Það er svo dýrt að lifa á ís-
landi, að þjóðin getur ekki bygt
sér hús, vegi, skóla eða brýr,
Jatnvel tæplega aflað sér klæðnaðar
eða vista, eins og venja var til
áður. Ofan á verðhækkunina bæt-
ist svo vont árferði, fádæma harð-
indi um vetur, en óþurkar og gras-
leysi á sumrum. Fjármálin lenda
í öngþveiti. Samkepni og brall hefir
lamað svo aðal-bankann, að liann
getur ekki leyst af hendi sum hin
sjálfsögðustu verk, eins og peninga-
flulning milli landa. Og ofan á þetta
bætist svo óhagstætt gengi, sem
hækkar svo helstu innflutnings-
vörurnar um helming, samhliða
því, að aðal-framleiðsluvörur lands-
ins seljast dræmt, eða verða að
engu, eins og t. d. sumt af út-
flutnings-síldinni.
Ástandið er ekki glæsilegt. Landið
er erfitt, fólkið fátt. Gömul niður-
níðsla að baki. Mikið af hinum
svoköllnðu framförum líkast spila-
borgum barna, sem hrynja ef við
er koiHÍð.
II.
Einn af þeim fáu þáttum í is-
lensku lífi, sem eflt hafa varan-
lega og alhliða framför í landinu
á síðári árum, er samvinnustefnan.
Hún hefir aukið fjárhagslegt sjálf-
stæði þúsunda heimila í landinu.
f*ó er meira vert um hilt, að hún
hefir verið stærsta uppeldisstofnun
landsins. Hún hefir tengt saman
einstaklingana í stórum bygðar-
lögum, og síðan bygðarlögin sjálf.
Samband islenskra samvinnufélaga
nær nú yfir meginhluta landsins,
frá miðri Rangárvallasýslu, yfir
Skaftafellssýslur báðar, því nær alt
Austur- og Norðurland og Strandir.
Á Vestfjörðuin eru að myndast
sambandsfélög hér og þar. Dala-
sýsla er öll komin með og Snæ-
fellsnes á leiðinni. Borgarfjarðar-
héraðið og vesturhluti Suðurlág-
lendisins eru einu stóru sveita-
héruðin, sem ekki hafa enn komið
inn í þennan alls-herjarfélagsskáp,
þó að undirbúningur sé nokknr á
báðum stöðunum.
Og hvert er svo gagnið að þess-
um samtökum? Því er fljót-svarað,
Félögin eru að glíma við tvo verstu
erfðaféndur íslensku þjóðarinnar:
dýra og óhentuga verslunarhœtti
annarsvegar en sundrung og einrœn-
ingsskap til hinnar handar. Fólkið
sjálft tekur í sínar hendur innkaup
og sölu varanna, í stað þess að
hlíta dýrri og misheppilegri forsjá
milliliðanna. Hvert hérað velur
menn til að standa fyrir fram-
kvæmdunum heima fyrir. Og me^
sama hætti velja félagsdeildirnar
sér yfirstjórn, sem sér um málin
út á við: Innkaupin frá útlöndum
og sölu íslenskra afurða. »
Fjárhagshagnaðurinn að slíkum
samtökum er furðu-mikill. Venju-
lega spara menn sér um 25#/o af
verslunar-útgjöldum, þar sem vel
stjórnað samvinnufélag tekur við
af einliliða kaupmanna-verslun.
En þegar samkephi félagsins hefir
haft áhrif um stund, eru kaup-,
inenn að öllum jafnaði ekki nema
kringum 10% hærri. Vitaskuld
stendur ekki nærri alt af á þessum
tölum. Stundum er verðmunurinn
meiri eða minni. En þetta er meðal-
talið.
Meginhlutinn af árstekjum al-
mennings hverfur jafn-hratt inn í
hringiðu veaslunarinnar. Að spara
10—25% á versluninni er sama
og að spara mönnum frá tíunda
til fjórða hluta af striti þeirra.
Hvort það er tilvinnandi verður
hver maður að dæma um fyrir sig.
Þetta er fjárhagshliðin. Hún
er merkileg. En hún ein saman
myndi þó ekki hafa gert samvinn-
una að þeim aflþætti í framþróun
samtíðarinnar, ef eigi hefðu fylgt
fleiri kostir.
Það skal taka það fram undir
eins, að það eru margir menn í
öllum löndum, og líka á íslandi,
sem ekki sjá neitt nýtilegt í sam-
vinnunni, nema fjárhagshliðina.
En því er svo undarlega varið,
að þeim mönnum verður æfinlega
lítið ágengt. Félög, sem er stýrt i
þeim anda, vaxa lítið, gera lítið
gagn. Jafnvel græða lítið. Senni-
lega er það af því, að þeir sem
vinna í þeim anda misnota sam-
vinauna, hafa hnuplað dýru sverði,
sem þeir kunna ekki með að fara,
nema helst að vinna sér tjón.
Þvert á móti er sú raunin á, að
samvinnan blómgast aldrei nema
þar sem hún er borin fram af
víðsýnum hugsjónamönnum. Braut-
ryðéndur hreyfingarinnar voru blá-
fátækir, hungraðir verkamenn í
óglæsilegum iðnaðarbæ á Englandi.
En fátæktin og hungrið var ekki
fjötur um fælur þeirra. Þeir voru
í heilt ár að draga saman tæpar
tuttugu krónur á mann í félags-
hlut. Meira orkuðu þeir ekki. En
nú, eftir tæp 80 ár, eiga arftakar
þeirra, samvinnufélögin ensku, slór-
kostleg verslunarhús, dreifð um
alt landið, marga tugi verksmiðja,
þar sem tugir þúsunda vinna að
ótal iðnaðar-starfsemi og útbú í
mörgum öðruin löndum. Skip,
banka, bókasöfn, prentsmiðjur,
blöð og bókaúlgerð, hvíldar-heiinili,
skemtistöðvar og seiuast en ekki
síst: Sjóði, svo að hin miklu fyrir-
tæki félaganna þurfa lítið til ann-
ara að sækja um fjármagn handa
fyrirtækjum sinum. Þetta er stór-
fengiiegur árangur. En svo stór-
huga og víðsýnir voru hinir blá-
snauðu vefarar, sem ruddu braut-
ina, að enn hafa félögin engu komið
í ftamkvæmd, sem ekki var tekið
fram í stefuuskrá upphafsmann-
anna. Og enn þá hefir ekki verið
komið i framkvæmd nema auð-
veldari hlutanum af dagskrá þeirra.
Þeir settu markið hátt, af því að
þeir voru auðugir af andlegu verð-
mæti, þó að peninga ættu þeir
næstum enga.
III.
Reynslan hefir orðið hin sama
hér á laudi. Þröngsýnir og smá-
sálarlegir menn hafa ætlað að ger-
ast samvinnumenn. En árangurinn
hefir orðið lítill. Enginn eldur hefir
kviknað fyrir aðgerðir þeirra. Þeir
hafa enga vakið með dæmi sínu.
Þeir hafa litið á unnið nema að
sýna hvernig ekki á að vinna.
Þeir menn, sem stofnuðu til
hinnar fyrstu lífvænlegu samvinnu
hér á landi vorú hugsjónamenn,
verðugir starfsbræður fátæku vef-
aranna í Rockdale. Að þeim stofni
hefir Sainbandið búið. Þröngsýnu
mennirnir hafa ypt öxlum yfir
þeirri viðleitni, að brúa yfir öræfin
sem skilja íslensku bj'gðarlögin,
með frjálsum samtökum. Þeir hafa
gert lítið úr ávinningnum við að
sameina mikinn hluta þjóðarinnar
undir eitt merki. Þeir hafa látið
sér fátt um finnast, er Sambandið
bjujaði að gefa út fræðirit urn þessi
mál, og sendi fyrirlestramann hring-
ferð um landið til að vekja áhuga
og fræða menn. Hvorugt var gróða-
fyrirtæki í venjulegum skilningi.
Ávextirnir komu ekki strax í ljós,
og urðu mest til hagnaðar alt öðr-
um mönnum en þeim, sem lögðu
fram fé og fyrirhöfn til þess eins,
að þoka hugsjóninni nær veruleik-
anum. Ef allir hefðu látið sér nægja
að hugsa um hvað þeim sjálfum
væri gott, og að auka ekki útgjöld
með umhyggju fyrir náunganum,
þá hefði samvinnan verið eitthvað
öðruvísi en nú er. Þá hefðu verið
til nokkur dreifð og kyrkingsleg
félög, flækt í neli innlendra og
erlendra brallara.
Það er alveg nauðsynlegt fyrir
alla, sem að einhverju leyti starfa
að samvinnu, eða verða fyrir á-
hrifum hennar, að skilja þau ein-
földu sannindi, að þessi hrejrfing
nýtur sín ekki, verður tó,mt hálf-
verk og brotasilfur, þar sem fyrst
og fremst er hugsað um fjárgróð-
ann. »Þrífist aldrei silfur þitt né
þú sjálfur«, sagði Pétur við Símon
þann, er kaupa vildi náðarmeðulin
fyrir fé. Svo fer enn í dag, þeim
er svo hyggja.
IV.
íslensk samvinna befir eitt sér-
einkenni, sem er mjög fátítt í öðr-
um löndum. Félög þau flest, sem
mynda Sambandið, eru bæði kaup-
og sölufélög, og svo er Sambandið
sjálft. Með þeim hætti fullnægir
sama skipulagið neytendum og
framleiðendum. Hjá frændþjóðum
okkar á Norðurlöndum er þessu
gagn-ólíkt háttað. Heildsölur kaup-
félaganna kaupa inn vörur fyrir
félögin. En þær selja ekkert fyrir
þau. Það gera aðrar heildsölur,
sem eingöngu hafa það verk með
höndum. Erlendis er ekki laust
við, að kenni sumstaðar kala milli
framleiðenda og neytanda. Það er
baráttan um peningana og lífs-
þægindin, sem eiga að fylgja þeim.
Samkepnin skapar ófrið og vand-
ræði. Þeir sem ættu að vera bræð-
ur, berast á banaspjótum.
Skipulag íslenska Sambandsins
er að þessu leyti fullkomnara. Það
er ekki spurt um hvort félagsmað-
urinn sé neytandi eða framleið-
andi. Ef hann kemur með einlæg-
um hug, er framkvæmt fyrir hann
erfitt verk, á réltlálum grundvelli.
Enn er ekki komin nema lílil
byrjun. Sjávarmenn og verkamenn
í sjóþorpunum útiloka sig enn að
mestu frá hlunninduin samvinn-
unnar. En Sambandið hefir ákveð-
ið stefnulinurnar vel og traustlega.
Og þeim verður vafalaust fylgt á
ókomnum árum. Iíostir þessa fyrir-
koinulags en auðsæir. Mesti vand-
inn á íslandi er að fá sameiginteg
átölc. Landshættirnir tvístra. Gömul
^ynfylgja hka, að landinn vill vera
sjálfum sér nógur eins og tröll
Ibsens. Við nána athugun mun
greinagóðum mönnum skiljast, hve
mikla þýðingu það hefir, ef sam-
vinnustefnunni tekst hér á Iandi
að þoka saman fólkinu í hinum
dreifðu bygðum, sveit og sjávar-
síðu, bændum, verkamönnum og
embættismönnum. Venjulega eru
þessir menn þversum í götunni
hverir fyrir öðrum, eða halda a. m.
k. að þeir séu það og eigi að vera
það. Þessvegna er svo lítið varan-
lega starfið eftir meir en þúsund
ára dvöl í landinu.
V.
Verkefnin eru nógu mörg fyrir
landa, þó að þeir taki á saman.
Verslunarmálið er komið hálfa Ieið,
eða hér um bil það. Sambandsfé-
lögin fá flestar vörur sínar í sinni
eigin verslun, og Sambandið selur
allar framleiðsluvörur félagsmanna.
En sjómenn, verkamenn og fólk í
kauptúnunum er að mestu utan
við hreyfinguna. Það fórnar en á
altari milliliðanna frá fjórða til
tíunda hluta af striti sínu. Fyr eða
seinna nær vakningin lika til þess-
ara manna og þá verða innkaup
bæjarbúa og fiskverslunin líka
rekin af samvinnufélögum.
En þetta er bara ein hliðin. Hér
á landi fást ekki nema lítil og ó-
hentug lán út á fasteignir, hús og
jarðir. Þessvegna er kyrstaðan.
Þessvegna halda túnin áfram að
vera þýfð, þessvegna streymir rækt-
arvatnið fram hjá skrælnuðum
engjunum. Þessvegna eru húskjmni
flestra íslendinga óholl óg óhentug.
IFramUald á i, síðu.]