Tíminn - 23.04.1921, Blaðsíða 1

Tíminn - 23.04.1921, Blaðsíða 1
V. ár. Fjárlögin, jnngið og stjórnin. það ætti að vera á vitorði allra manna, að íslenska ríkið á nú við meiri fjárhagserfiðleika að stríða en nokkru sinni áður. pað ætti að vera á vitorði allra manna, að efnahagur íslenskra framleiðenda yfirleitt, er erfiðari en nokkru sinni áðr, og horfurn- ar um rekstur atvinnuveganna versna enn, heldur en batna. pað ætti að vera á vitorði allra manna, að hvert af öðru og hvert i öðru stærri spyrjast gjaldþrot kaupsýslumannanna í Reykjavík. pað ætti að vera á vitorði allra manna, að samkvæmt upplýsing- um Iiagstofunnar, minka tolltekj- ur íslenska ríkisins stórkostlega og óðtfluga. Allra helst ætti þetta að vera á vitorði hinna íslensku alþingis- manna — og miklu fleira, sem gefur alvarlegar áminningar um gætni í fjármálunum. En ef dæma á þingið eftir regl- unni: af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá — þá skyldi maður ætla að það lokaði eyrunum fyrir öllum hinum alvarlegu röddum, en opnaði þau til fulls fyrir nálega öllum þeim óteljandi fjárbeiðnum, sem til þess berast. Fjáraukalögin, eins og neðri deild alþingis gekk frá þeim, eru hinn háværi vottur þessara um- mæla. Ein miljón og nálega tvö hundruð þúsund króna viðbótar- fjárveitingar og mikið af þeim slíkar, að sumpart eru alveg ó- nauðsynlegar, sumpart eiga alveg skilmálalaust að bíða, undir nú- verandi kringumstæðum. Um alt land munu menn standa undrandi gagnvart þessum tíðind- um og spyrja hvað valdi. — pað veldur annarsvegar, að þótt í þinginu séu allmargir menn, sem hafa opin augu fyrir voðan- um, þá vantar þá alveg samtök, og þá vantar samkvæmni. Marg- ir þeirra eru flæktir við sumar ó- þörfu fjárveitingarnar og hlaupa þannig í skörðin, einn hér, annar þar, og eru þannig allir meðsekir. Væri ábyrgðaitilfinningin nægi- lega vakandi, ættu sparnaðar- mennirnir á þinginu beinlínis að bindast félagsskap um að skila nú fjárlögum, sem hæfa þessum al- vörutímum, að skera miskunnar- laust niður alla þá mörgu liði á fjárlögunum sem þola bið. peir ættu að horfast alvarlega í augu við þann sannleika, að fari fjár- aukalögin og fjárlögin gegnum þingið í nokkuð svipaðri mynd og nú lítur út fyrir, þá eru lagðar á herðar gjaldendum landsins miklu þyngri byrðar, en nokkrar líkur eru til að þeir geti borið. pá blas- ir ekki annað við en annað tveggja: að rikissjóðurinn verði að hætta útborgunum á miðju ári, eða hann verði að grípa til ráðs hinna gjaldþrota landa, að láta stimpla nýja og nýja pappírspen- inga. pessari áskorun um bein sam- tök um að skera niður miskunnar- laust þá liði fjárlaganna, sem þola bið, vill Tíminn beina til sparnað- armannanna á þingi. Við hina þýðir ekki að tala. Og það mun enginn efast um að þjóðin stend- ur nálega óskift að baki þeirri kröfu. — pað veldur hinsvegar þessum aðfönnn þingsins, að landsstjórn- in virðist, a. m. k. í heild sinni, litlu alvarlegar hugsandi um fjár- hagsástandið. Sumpart er stjórnin, og þá sér- staklega forsætisráðherrann, al- gerlega samsek mestu fjáreyðslu- mönnunum. En hitt er aðalatriðið, að stjórn- in virðist alls ekki sjá, að það hvílir á henni mikil skylda að hafa vit fyrir þinginu, er það stefnir út á þessa gálausu braut. Einn hinna gætnustu þing- manna sagði nýlega við ritstjóra þessa blaðs eitthvað á þessa leið: „pótt ekki væri annað, þá er það ærin sök á hendur stjórninni, að hún þolir þ'inginu það að afgreiða slík fjáraukalög“. Stjórninni hlýtur að vera það kunnara en þinginu, hver vá er fyrir dyrum. pessvegna er það tvímælalaus skylda stjórnarinnar — hvort sem það verður nú endanlega þessi stjórn sem nú situr, eða önnur — að setja þinginu beinlínis stólinn fyrir dymar, að krefjast þess af þinginu, að afgreiða ekki fjárlög og fjáraukalög nema með ein- hverjum hámarks-tekjuhalla, og meir að segja með heimild fyrir stjómina til þess að borga ekki út ýmislegt sem veitt verður, ef enn syrtir í lofti. ----o--- Þingstörfin. pingið hefir nú setið óslitið í ná- lega tíu vikur. Hvaðnæfa koma spurningarnar: Hvað hefir þing- ið gert, En það verður fátt um svör. pað er óhætt að flytjá þeim háttvirtu þau tíðindi, að um alt land ríkir hin megnasta óánægja yfir því, hversu lengi þingið er búið að sitja og hversu lítið það hefir enn gert. pegar þingið var búið að sitja í níu vikur, þá fyrst komu breyt- ingartillögumar yið fjárlögin frá íjárveitinganefnd neðri deildar. Og þó hefir nefndin nú ekki nema eitt ár til meðferðar, síðan þing er háð á hverju ári. petta dæmalausa seinlæti fjár- veitnganefndarinnar er ein ástæð- an þess, hversu slælega þingstörf- in hafa gengið. Aðrir hafa beðið eftir fjárveitinganefndinni. pví að allir vita, að þingi verður ekki slitið fyr en fjárlögin verða af- greidd. Vilja margir benda á þá ástæðu fyrir þessu slælega starfi nefnd- arinnar, að 5 — fimm — nefndar- mannanna eru Reykvíkingar — því að sannarlega má ^ fara að telja Magnús Pétursson Reykvík- ing úr þessu. — - Landsstjórnina verður að krefja til reikninsgskapar um aðra á- stæðuna fyrir því, að þingstörfin hafa gengið svo slælega. Bankamálin og fjárhagsvand- ræðin, eru þau málin, sem þinginu ber fyrst og fremst að fjalla um. Ein æðsta skylda stjórnarinnar var að undirbúa þau mál fyrir þingið. pá skyldu rækti stjórnin ekki. pað hefir tafið þingið óum- ræðilega mikið og gert því stór- um erfiðara fyrir um afgreiðslu málsins. Peningamálanefndin hef- ir orðið að verja æmum tíma í það að afla sér þeirra skilríkja, sem stjórnin átti að leggja upp í Reykjavík, 23. april 1921 hendur þingsins. Og enn er ekkert komið frá þeirri nefnd. — En það verður að leita dýpra til þess að finna aðalástæðuna fyrir hinum slælega unnu þingstörfum. pjóðin er óánægð yfir þinginu. En þjóðin hittir þar sjálfa sig fyrir. pjóðin kaus þingið — sem reynist svo illstarfhætt. Hið ill- starfhæfa þing hefir skipað ill- starfhæfa stjóm. Óánægja þjóðarinnar yfir þing- inu er í rauninni ekkert annað en óánægja hennar yfir sjálfri sér. pjóðin er sinnar eigin ógæfu smiður. Ilt þing og ill stjórn er árangur- inn af því, að þjóðin lét villa sér sýn við kosningarnar síðustu. Hún glaptist á flokksleysingj- um Morgunblaðsmannanna og kaus margsundurlynda menn á þing sitt — menn sem ekki geta unnið saman — menn sem ekki geta skipað stjórn eða stutt — menn sem ekki geta hrist af sér stjórn sem þeir í raun og veru em allir óánægðir með — menn sem virðast ekki vilja leggja það í söl- urnar fyrir ættjörðina að láta öll aukaatriði fyrir því víkja, að bjargast úr yfirvofandi hættu. ----o----- Ferðapístlar og hugleiðingar eftir Jón Á. Guðmundsson. L í Englandi leitaði eg fyrir méi- með markað fyrir gráðaostinn ís- lenska. Hafði nokkur sýnishorn þangað. En þar er hann tiltölu- lega lítið notaður og markaðsverð auk þess ekki hátt. Að vísu sæmi- legt meðan pundið stóð sem allra hæst, en annars lægra en á Norð- urlöndum. Eg tók því aðalsýnishomin til Danmerkur og Noregs. í Kaup- mannahöfn sýndi eg nokkmm ostakaupmönnum ostinn og leist þeim hann eins góður og hinar al- gengustu tegundir af egta Roque- fort-osti, sem seldar em á Norð- urlöndum. Um miðjan desember var franski osturinn í mjög háu-verði þar, en síðan hefir hann fallið nokkuð, eins og aðrar ostategund- ir. En þó hlutfallslega minna. Að vísu voru sýnishorn þessi úr- val af ostum mínum frá síðast- liðnu sumri, en vonandi er, að hægt verði eftirleiðis að fá megn- ið af ostinum álíka gott. Og þegar íslenski gráðaosturinn kynnist á erlendum markaði, getum við vænst sama verðs og fæst fyrir þann franska á Norðurlöndum. En allra besta tegundin af Roque- fort-ostinum er næstum eingöngu seld í París, London og New York, og kemur því ekki til samkeþni hér. Danskur blaðamaður, sem fékk sýnishorn af gráðaostinum, bauðst að skrifa lof um hann í danskt blað, en sökum þess að ekkert var fyrirliggjandi af ostin- um til sölu, var það algerlega þýð- ingarlaust nú, og því betra að bíða með það þangað til að eitt- hvað verður til að selja. Danskir og norskir ostafræðing- ar hældu ostinum einnig mikið. par á meðal próf. Böggild við.bún- aðarháskólann í Kaupmannahöfn og próf. Stören við búnaðarháskól- ann á Ási í Noregi. | I „Tidskrift for Landbruks- ökonomy" í mars þ. á. er fyrirlest- ur eftir prófessor Dr. phil. Orla Jensen. Hann segir þar frá, að Danir hafi með góðum árangri bú- ið til Roquefortosta úr kúamjólk, og svo bætir hann við: „pað er einnig vert athugunar, hvort vér ættum ekki að leggja okkur frek- ar eftir sauðamjólkur Roquefort- osti. í þessu sambandi á eg þó frekar við ísland en Danmörku. par er fjöldi af sauðfénaði og lág- ur meðalhiti, sem einmitt er heppi- legt fyrír Roquefortostinn. Um- hverfið kringum Roquefort var einu sinni fátækasta héraðið á Frakklandi, en nú er það af Roque- fort-ostagerðinni eitt af ríkustu héruðunum þar. Ef sú sama saga gæti endurtekið sig á íslandi, væri það sannarlega vert að leggja eitt- hvað í sölurnar fyrir það málefni. Eg vil þessvegna leggja til að það verði tekið til alvarlegrar athug- unar. ^ I sama hefti má og sjá umsögn próf. Böggilds um ostatilraunir mínar. II. Rétt fyrir stríðið og einkum á stríðsárunum gerðu nokkur af dönsku ostabúunum tilraunir með að búa til Roquefortost úr kúamjólk. Hjá mörgum mishepn- aðist gerðin svo, að þau hættu aft- ur. En seinna tóku önnur bú að reyna á ný, þegar einstaka búum hafði tekist sæmilega. Talið er að rúmlega 30 ostabú hafi reynt að búa til Roquefortost í Danmörku, en sem stendur eru þau mikið færri. Vandræði stríðsáranna drógu mjög úr kröfum á gæðum ostanna, svo að alt seldist. Og fram undir síðustu áramót voru jafnvel lökustu ostarnir seldir háu vei’ði til pýskalands. En síðan hef- ir eftirspurnin minkað svo stór- kostlega, að einungis bestu ostarn- ir eru seljanlegir með sæmilegu verði. í janúar h'ættu því mörg af þessum búum að búa til Roque- fort-ost. Öll þessi ostabú eru eign ein- stakra manna eða fárra herra- setra. Samvinnumjólkurbúin hafa ekki hætt sér inn á þá braut. pess vegna var það dálitlum erfið- leikum bundið að komast inn á ostabúin til að læra þar. En með því skilyrði að lofa að kenna eng- um í Danmörku þær aðferðir, sem eg kynni að læra, fékk eg að dvelja dálítið á flestum þeim búum, sem eg óskaði eftir. Hver um sig þyk- ist hafa fundið bestu aðferðina og vilja þess vegna alls ekki að keppinautarnir komist að leynd- ardómum þeirra. Einstaka bú hafa sölusamband og samvinnu sín á milli. Eg var alls tæpar 4 vikur í Dan- mörku. Á þeim tíma dvaldi eg með- al annars á 4 ostabúum: 1 á Sjá- landi, 2 á Fjóni og 1 á Langalandi. Á búum þessum var búinn til Roquefort-ostur og Gouda-ostur. Auk þess kom eg á mjólkurskól- ana á Dalum á Fjóni og Ladelund á Jótlandi. Mjólkurbúin í Danmörku eru rekin í svo stórum stýl, að óhugs- andi er fyrir okkur að taka þau beint til fyrirmyndar. Allar vélar eru þaj knúnar með gufuafli og gufa notuð til upphitunar á mjólk- inni. í Roquefort-ostagerðinni standa Danir ekki á háu stigi og hafa talsvert mismunandi aðferð- 16. blað ir. Allar eru þær þó mjög frá- brugðnar því, sem eg hefi notað við gráðaostagerðina hér. Og eiga hér alls ekki við. Eg get því ekki sagt, að eg hafi lært neitt á því sviði, sem eg get beint notað und- ir íslenskum skilyrðum. En aftur á móti hefi eg auðgast af hug- myndum, sem með tilraunum geta leitt mig á heppilegri brautir. prátt fyrir það, þó þessi kúamjólk- ur Roquefort-ostur standi þeim ís- lqnska að baki. Gerlar og sveppir þeir, sem um- breyta mjólkinni, eru svo næmir fyrir að breyta eðli sínu, með breyttum lífsskilyrðum, að ekki er ábyggilegt að sömu aðferðir í ostagerð dugi í tveimur löndum með mismunandi loftslagi og ef til vill mismunandi mjólk. pað verð- ur því altaf að byrja með tilraun- um að einhverju leyti. En því vandasamari sem ostagerðin er, því brýnni þörf er á ábyggilegum og nákvæmum tilraunum. III. I Noregi var mér tekið tveim höndum, og engin fyrirstaða að komast þar inn á ostabúin og fá þar allar þær upplýsingar, sem eg óskaði. Umsjónarmaður mjólkur- búanna og forstjóri ostatilraun- anna, sem báðir eru búsettir í Kristjaníu, sömdu handa mér ferðaáætlun og gáfu mér allar þær leiðbeiningar og meðmæli, sem eg þurfti á að halda. Eg fór þar fyrst upp á Heið- mörkina og var þar um tíma á mjólkurskóla. Lagði þar aðallega stund á mysu- og Gouda-ostagerð. Fyrir nokkrum árum byrjuðu Norðmenn að sjóða mysuost í þyntu andrúmslofti. pannig að mysan sauð við 60—70° C. Að vísu var þetta mikill sparnaður á hita, en aftur svo mikil eyðsla í krafti, að spamaðurinn varð lít- ill. Og það sem verra var, að ost- urinn varð mikið bragðminni og verri. pessi aðferð er því alveg lögð niður. Á stærri búunum er alstaðar notuð gufa til að sjóða niður ost- inn, en sumstaðar er ennþá soðið í gömlu mysupottunum. Frá Heiðmörkinni ferðaðist eg upp Guðbrandsdalinn til að kynna mér Guðbrandsdals-ostinn eða Geitmysuostinn, og jafnframt fyr- h’komulag á nokkmm smábúum, sem þar eru í dalnum. Alls dvaldi eg þar á 7 ostabúum, bæði stórum og smáum. Seinna ferðaðist eg svo til Landbúnaðarháskólans í Ási og var þar meðal annars á mjólkurbúi skólans. Á suðurland- inu dvaldi eg á þremur ostabúum og lagði mig mest eftir Sveitser- osti (Emmenthaler) og Gouda- osti. Báðar þessar tegundir eru viðurkendai’ að vera þar betri en í Danmörku, enda hafa Norðmenn heldur betri mjólk, einkum að sumrinu. Loks var eg svo á einu mjólkurbúi í Kristjaníu. Alls var eg þannig á 13 ostabúum í Noregi. pað minsta hafði mjólkurmagn rúmlega 100,000 lítra yfir árið, en það stærsta tæpar 19 miljónir lítra. ----o---- pingið situr a. m. k. fram í miðjan maímánuð. Hefir verið á- kveðið að Sterling biði þingmann- anna á. m. k. þangað til, enda mun skipið hafa lítið að ffytja. — Umræður um fjárlögin standa yf- ir þá er þetta er ritað. ----o----

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.