Tíminn - 04.03.1922, Síða 3
T 1 M I N N
33
var þess getið að þetta mundi
mega til sanns vegar færa, ef mið-
að væri við rétttrúnaðarstefnuna,
sem telja mundi sig höfuðból lif-
andi kristindóms. Og til þess að
•glöggva menn á því, í hverju þessi
beina andstaða væri fólgin, var
reynt að gefa ofurlítið ágrip af
trúarlegu útsýni guðspekinnar
annarsvegar og rétttrúnaðarins
hinsvegar.
Hr. S. Á. G. virðist vera ofboð
óánægður með þenna samanburð,
enda þótt hann geri litla tiiraun
til að hagga honum. Og hann
kemur með sínar skýringar um
það í hverju andstaðan sé fólgin:
Hún er „fremur öllu öðru“ fólgin
í því að guðspeki stefnan „hafn-
ar friðþægingu og guðdómi Jesú
Krists frá Nazaret", segir hann.
það mun rétt vera, að flestir
guðspekinemar hafna friðþæging-
unni, eins og hún hefir venjulega
verið skilin. Hitt er aftur alrangt,
að þeir hafni guðdómi Krists.
þeir halda einmitt mjög fram
guðdómi hans. En þeir hyggja að
fleiri séu guðssynir en Kristur.
þeir líta svo á, að eitthvað af
guðdómi sá í hverjum einasta
manni. Og þar mun skilja með
þeim og rétttrúnaðarmönnum.
Auðsjáanlega þykist þó hr. S.
Á. G. reka aðal smiðshöggið á
með þessum undirstrikuðu orð-
um: „Sannkristnir menn eiga
frelsara, guðspekinemar vænta
fræðara, það er munurinn mikli í
fám orðum“.
Hvort er sem mér sýnist að
rétttrúnaðarhrokinn skjóti hér
upp snjáldrinu? Og rétt á undan
lætur ritstjórinn hylla undir
hjálpræðiseinokunina gömlu.
Guðspekinemum geðjast ekki
að þeirri einokun. þeim finst rétt-
læti og umhyggju Alföður mis-
boðið með þeirri hugsun, að hann
hafi aðeins einu sinni sent frels-
ara í heiminn, sem miklum hluta
mannkynsins var þó ókleyft að
njóta góðs af. Að þeirra dómi hef-
ir skaparinn margsinnis sent
mönnum frelsara og mun gera
það margoft enn. þrátt fyrir það
sem að er í heimi hér, hyggja
þeir þó að alt sé í höndum óum-
ræðilegs kærleika, sem stýri öllu
til æðri fullkomnunar með afli og
snild, sem ekki skeikar. Og hér
munar einmitt mestu frá skoðun-
um innra trúboðsins og rétttrún-
aðarstefnunnar, sem gengur sí
og æ með lífið í lúkunum út af
því að Alfaðir sé að missa tök-
in og a,lt rambi á helvítis barmi.
Auðvitað viðurkenna guðspeki-
nemar að sannkristnir menn eigi
frelsara. En það eiga líka
Brahma- og Búddha-trúarmenn
og allir helstu trúflokkar. Meira
að segja: hver einasti maður á
sinn frelsara, sem fyr eða síðar
styður hann upp á efsta tindinn.
það er því ekkert sérkenni á
kristnum mönnum að þeir eiga
frelsara. Og ekki heldur neitt ein-
kenni á stefnu guðspekinema, að
þeir vænti fræðara. það er félag-
ið „Stjarnan í austri“, sem hefir
boðað komu mannkynsfræðara
innan skamrns. Guðspekifélagið
eða guðspekinemar í heild sinni
hafa aldrei látið neitt uppi í því
efni. Margir þeirra láta boðskap
„Stjörnufélagsins“ liggja alveg
milli hluta. Og til munu þeir, sem
eru honum fremur andvígir. Rit-
stjórinn reynist því heldur sein-
heppinn með samanburð sinn. —
það sem hér hefir verið sagt
um álit og trúarskoðanir guð-
spekinema, á að mestu við hér-
lenda félagsmenn, þá er mér eru
kunnugir. Um aðra get eg ekkert
fullyrt. Guðspekifélagið hefir
aldrei átt neinar trúarj átningar,
og allir sem í það ganga eru ger-
samlega sjálfráðir um trúarskoð-
anir sínar. það er engin trygging
fyrir að þeir hafi neitt annað
sameiginlegt um andleg mál, en
samúðina með stefnuskrá fé-
lagsins. þeirri samúð sinni lýsa
þeir yfir, er þeir ganga í félagið,
og engu öðru. Og þegar dæma á
um stefnu félagsins, verður fyrst
og fremst að miða við stefnu-
skrána. Og það var einmitt gert í
fyrri grein minni.
Eigi að síður kann eitthvað upp
úr því að hafast að rætt sé um
ólíkar trúarskoðanir innra trú-
boðsins o g guðspekistefnunnar.
En samt hygg eg að farsælla
mundi fyrir málefni andmælanda
míns, að fremur væri haldið á
lofti hinu, sem stefnunum er
sameiginlegt.
27. febrúar 1922.
Jakob Kristinsson.
-----o-----
Barnafræðslan.
það er opinbert leyndarmál, að
komið hefir til mála í einni nefnd
þingsins eða tveimur annaðhvort
að fella niður styrkinn til barna-
skóla í landinu, eða skilja einar
100 þús. kr. eftir af 350 þús., og
gangi þær einkum til kaupstaða-
skólanna, sem engum mun þó
detta í hug að hægt sé að leggja
niður, þó menn vilji koma þeim
að sem mestu leyti yfir á bæjar-
félögin. Mér hefir verið tjáð, að
þetta hafi engum andmælum
mætt í þeirri nefnd, þar sem það
kom fyrst til orða, og verið allvel
undir tekið af mörgum þing-
mönnum, þó fæstir muni nú fast-
ráðnir í hvað gera skuli. þess
skal þó getið, að mentamálanefnd
á hér ekki hlut að máli.
þetta kemur mjög á óvart, því
það fer fjarri því, að nokkur
undirbúningur hafi verið á þessu.
Hefir mikið verið gert á síðari
tínium til að bæta skilyrði barna-
fræðslunnar, en varla orð heyrst
um, að leggja hana niður. Flest-
um mun hafa skilist, að ekki
myndi koma til mála að afnema
það barnafræðslufyrirkomulag,
sem staðið hefir hér á landi síð-
ustu áratugina. Ber og ótvírætt
að skilja hin nýju lög um barna-
kennaralaun svo. Yar þar og stig-
ið hið heppilegasta spor að færa
nokkuð af kostnaði til b'arna-
fræðslu yfir á ríkissjóð. það kem-
ur ekki heldur til af uppeldisá-
huga, að ráðist er nú að barna-
fræðslustyrknum, heldur af sparn-
aðarástæðum.
það er sparnaðurinn sem ligg-
ur bak við. Sparnaður virðist nú
vera lausnarorð þingsins. Við því
er ekkert að segja. þjóðfélagið
er í fjárþröng. En þegar aðal-
bjargráðið verður að leggja nið-
ur barnafræðsluna, þá mun mörg-
um bregða í brún. Væri ekki
heppilegra að byrja einhversstað-
ar annarsstaðar ? þessar 350 þús.
kr., sem fara til barnfræðslunn-
ar, vaxa mönnum í augum. Sum-
um finst þær fara út yfir allan
þjófabálk. En gáið að: útgjöld ber
ekki eingöngu að meta eftir fjár-
hæðinni, heldur og eftir því, hve
margir njóta. þessa styrks nýtur
alþjóð. Ef honum er jafnað nið-
ur, koma tæpar 50 kr. á barn,
sem nýtur kenslu. það mun ekki
vera leit á kenslu, er ríkið heldur
uppi, sem mun vera þjóðinni 50—
100 sinnum dýrari á hvern nem-
anda, og telja fáir eftir. Má
barnakenslan vera lítils virði, ef
byrja skal sparnaðinn á henni.
Tillögumenn munu að vísu ekki
vilja afnema eða banna alla
barnafræðslu í landinu, heldur
svífur fyrir þeim í þoku gamalt
fyrirkomulag, sem rás viðburð-
anna og breytingar á þjóðhátt-
um hefir fyrir löngu neytt þjóð-
ina til að hvarfla frá, en það er
heimilisfræðslan. það er fagurt
orð, og þess myndu allir helst
óska, að á hverju heimili væri ein-
hver, sem hefði tíma og kunn-
áttu til að annast barnafræðsluna.
En því er ekki að fagna. það eru
aðeins efnaheimilin, sem hefðu
getu til þess, og myndi þeim það
þó dýrara en núverandi fyrir-
komulag. Ef ástandið væri eins
. og heimilisfræðslupostularnir vilja
halda fram, þá myndu fræðslulög
aldrei hafa orðið til í þessu landi,
engin kennarastjett, enginn kenn-
araskóli. þessar staðreyndir mót-
mæla svo ákveðið, að það þarf
ekki frekar vitnanna við. Menn
mála ástandið eins.og það var áð-
ur en þjóðin tók fræðslumálin að
sér með alt of skærum litum. það
er fjarlægðin sem veldur frægðar-
Ijómanum. Oftast finst mér eg
hafi heyrt hjá gömlu mönnunum
kvart og kvein yfir allri heimil-
isfræðslu í þeirra ungdæmi. þetta
er hin sanna mynd af ástandinu,
og væri vert að draga hana ein-
hverntíma skýrar upp, svo að
glansmyndirnar hyrfu úr sögunni.
Gamla heimilisfræðslan var aldrei
nein paradís, og voru skilyrði
hennar þó ólíkt betri áður, með-
an vinnukraftar voru nógir til
sveita og kostuðu ekki annað en
matinn. Við erum engir fallnir
englar. í þessu efni er Eden fram-
undan. þess ber og vel að gæta,
að heimilisfræðsla er ekki lögð
niður í landinu. Henni er enn hald-
ið að hálfu leyti. Heimilin eiga að
kenná áð stafa og draga til stafs.
Og þar sem kennara nýtur ekki
nema 8—12 vikur að vetrinum,
hvílir mikil fræðsluskylda á heim-
ilunum, svo mikil, að meiri er
þeirn ekki ætlandi.
Enn virðist það vera hugsun
sumra, að afnema barnafræðsluna
en Styrkja betur unglingafræðsl-
una í þess stað, Sé þessi hreyf-
ing fyrir einhverjum sprottin af
áhuga á uppeldismálum, þá ber
skyida til að útvega sömu fjár-
hæð til annarar uppeldisstarfsemi.
En það hygg eg myndi verða örð-
ugt, því rót hreyfingarinnar er
blindur sparnaður og önnur ekki.
það er og hvorki staður eða stund
til að bera fram unglingafræðslu-
hugmyndir sínar í sambandi við
þessa sparnaðaftillögu að fella
nú þegar burtu að minsta kosti
i/4 miljón af styrk til fræðslu-
mála. því vitanlegt er, að slíkri
umhverfing er ekki hægt að koma
á nú að hverfa frá bamafræðslu
og taka í þess stað upp unglinga-
fræðslu eina. Til þess vantar hús,
kennara, og eg veit ekki hvað og
hvað. Slík hreyfing tæki áratug,
og mætti síst hverfa að því ráði
hugsunar- og undirbúningslaust,
en eins og kunnugt er, hafa post-
ular þessarar hugmyndar ekki
virt hana þess að rita um hana
eða aæða, eða koma af stað nokk-
urri rannsókn eða breytingu í
þessa átt, og eru þeir þó einir
allra Evrópubúa um að láta sér
detta slíkt í hug. Á þetta tal verð-
ur því að líta hjá flestum sem
afsökun vondrar samvisku, og er
illa til fallið að orða þessa stefnu
í sambandi við sparnað, þar sem
unglingafræðslan þó kostar þjóð-
ina vinnu unglinganna, auk hins
opinbera styrks til hennar, en
tfmi barnanna er verðlaus.
En er nú svo gott sem þetta sé
nokkur sparnaður? Ekki eykst
framleiðsla í landinu við það, að
barnafræðsla sé niður feld og ekki
réttir það hag okkar gagnvart út-
löndum. Eða hugsum okk-
ur að sparnaðarmennirnir séu
nú ekki meiri spamaðarmenn en
það, að þeir vilji ekki spara sjálfa
fræðslustarfsemina, heldur flytja
kostnaðinn af ríkissjóði yfir á
sveitar- og bæjarfélögin og halda
sömu barnafræðslu sem nú er.
Einkennilegt bjargráð þetta að
flytja til útgjöldin úr einum stað
í annan, af einum liðnum á hinn,
og ef þetta væri bjargráð, þá væri
það ekki nema mannsverk að
reisa við fjárhag þjóðarinnar.
það þyrfti ekki annað en að færa
öll útgjöld yfir á sveitar- og bæj-
arfélög, en láta ríkissjóð halda
cekjunum. Annars öfunda eg
þingmenn ekki af því, er þeir
koma heim í sveit sína af þessu
þingi með nokkuð af útgjöldum
ríkissjóðs, þó ekki væri nema
fræðslustyrkinn, ef ekki fylgdi
með neitt af þeim rétti, sem rík-
ið hefir til að leggja á skatta og
tolla.
Eg get ekki trúað því á
neinn þingmann, að hann vilji,
þegar á á að herða draga úr
fræðsluskyldunni, þó sparnaðar-
hugmyndin geti leitt menn langt
í fyrstu hrifningunni. Jafngóð
fræðsla og, börn nú njóti verður
aldrei ódýrari þó ríkissjóður
kippi að sér hendinni og alt verði
gefið laust. Nei, hitt mun sann-
ara, að það fyrirkomulag, sem
nú er á barnafræðslu, sé sparn-
aðarfyrirkomulag. Fræðslulögin
eru samtök þjóðarinnar til að fá
sem besta og þó ódýrasta fræðslu
fyrir börn sín. Frestun fræðslu-
laga og afnám fræðslustyrks væri
því hinn hjákátlegasti sparnaður.
það væri að spara sparnaðarráð-
stafanir. Og þó þjóðin eyddi jafn-
miklu eða meira fé eftir en áður
til barnafræðslunnar, þá myndi á-
rangurinn verða minni. þar sem
hver hokrar fyrir sig og samtök-
in eru engin, er alt dýrara. Og eng
inn þarf að halda, að heimilin
gætu annast alla barnafræðsluna.
Menn þyrfti að fá til þeirra
starfa eins og annara og borga
þeim. Mennirnir yrðu aðeins óhæf-
ari til starfsins og dýrari sveitun-
um en áður, þar sem landssjóðs-
styrkinn vantaði — því það veit
eg, að meginið af hinum duglegri
kennurum mundi ekki láta bjóða
sér slíka meðferð. það gefst hver
upp á því starfi, sem er vanþakk-
að og illa launað, og kveði þingið
nú upp þann dóm yfir barnakenn-
ururn, að starf þeirra sé fánýtt og
meir til spillingar en bóta, þá veit
eg að ekki mun standa lengur á
þeim að hverfa að einhverju þarf-
ara. þó mun engin von um að
þeir hverfi inn í hina nýju vín-
kaupmannastétt, er út lítur fyrir
1. A8 skipin koma stundum mörg saman frá útlönd-
um til sömu hafnar, en síðan líða langir tímar svo, að
skipalaust er á sömu leiöum.
2. Að farrými vantar til mannflutninga, einkum með
ströndum fram, þannig að á að giska 80% af íslending-
um sem ferðast á annað borð með skipum, verða að
nota lestina, sem ekki er einu sinni boðleg skepnum,
livað þá mönnum.
, 3. Að millilandaskip, strandferðaskip og flóabátar eru
eign ýmsra manna og félaga, og sérstakt flutningsgjald
með hverju skipi. Margar af hinum svo kölluðu lakari
höfnum verða þessvegna að borga þrefalt flutnings-
gjald, og hafa þar að auki alt of fáar skipaviðkomur.
Samgöngurnar íslensku eru þá í stuttu máli sem
hér segir: Vegarspottar um sum helstu bygðarlögin og
nokkuð af nauðsynlegum brúm. En engin allsherjarþjóð-
braut tengir saman vegakerfi hinna lielstu héraða. Milli
bæja er óviða vagnfært, nema á Suðurláglendinu, þar
sem mest hefir verið lagt af aðalvegum. Póstar fara
sem næst einu sinni í mánuði, og alt þeirra ferðalag er
með fullkomnum miðaldablæ. Skipaferðir eru nokkrar,
en skipulagslausar að kalla má. Afar illa séð fyrir mann-
flutningi með ströndum fram, þannig að lestin er aðal-
farkostur þjóðarinnar.
þegar stefnt verður að verulegum umbótum í sam-
göngunum, er ali undir því komið, að láta gott skipu-
lag bæta úr og vega upp á móti erfiðleikum, sem stafa
af fámenninu og stærð landsins. Dýr samkepni, sem get-
ur verið skaðlítil í ríku landi, sem hefir af miklu að
taka, er alveg óviðeigandi, þar sem eins er ástatt og
á íslandi, að þjóðinni dauðliggur á góðum samgöngum,
en getur illa risið undir kostnaðinum. Hér má engu
kasta á glæ.
Af tveim ástæðum eru og verða skipin undirstaða
allra samgönguendurbóta á íslandi. í fyrsta lagi af því,
að landið er eyja, og þarf mikið saman við aðrar þjóðir
að sælda. í öðru lagi af því, að bygðarlög landsins öll
bin helstu horfa fram að sjónum. Vegurinn milli hér-
aða á Islandi er eftir sjónum, fyrst og fremst með alla •
þungavöru, og að nokkru leyti með mannflutninga.
þessvegna er óhjákvæmilegt, vegna allrar þjóðarinnar, að
koma skipulagi á siglingarnar, og taka síðan til óspiltra'-
málanna með samgöngubætur á landi.
Umbót í siglingum íslendinga hlýtur að snerta mikið
Eimskipafélagið. það liefir verið reist með alþjóðar-
samtölcum, ekki einungis hér á landi, heldur og af lönd-
um vestan hafs. Langflestir hluthafarnir lögðu féð fram
til að styrkja þjóðþrifafyrirtæki, en ekki til að fá háa
vexti eða gróða, .sem venjulega er þó aðalhvöt þeirra,
sem leggja peninga i lilutafélög. Eimskipafélagið helir
gert mikið ýágn, en það hefði getað gert enn meira,
ef valdið í félaginu hefði ekki smatt og smátt dregist
úr höndum hinna mörgu smáu hluthafa og til nokk-
urra stærri hluthafa, einkum kaupmanna,' sein samtök
hafa um að komast í stjórn þess. Eitt vandræðamál hefir
komið upp í sögu félagsins, þegar a. m. k. tveir menn
úr stjórn þess ætluðu að bola Vestur-Islendingum út úr
félaginu og eignast hluti þeirra. það varð að vísu ekki.
En þetta atvik sýndi þó, hvar veila var í félagsmyndun-
inni. Samkepnisforkólfarnir ætluðu að bæla undir sig
fyrirtæki, sem átti að vera alþjóð manna til hagsmuna,
en ekki einstökum mönnum. ,
Tveir menn, Páll Jónsson i Einarsnesi og Jónas þor-
bergsson ritstjóri á Ákureyri hafa með tillögum sínum
um siglingamálið beint því í nýtt horf. Skal nú leitast
við að skýra stuttlega frá straumbreytingu, sem hér er
um að ræða.
Einískipafélagið á þrju góð skip, hefir traustan fram-
kvæmdarstjóra, og einstöku áhugasama menn i stjórn.
það hefir gert mikið gagn. En það hefir hikað á miðri
leið, og 'er að verða meir og meir að sjálfstæðu gróða-
fyrirtæki. það kaupir ekki strandferðaskip, og ekki flóa-
báta. það gengst ekki fyrir stórhuga og nauðsynlegum
breýtingum á starfssviði þess. Og þetta kemur af því,
að peningar en ekki menn greiða atkvæði um málin á
félagsfundum. Og peningarnir hafa engan áhuga eða
skilning á þjóðþrifamálum.
En Eimskipafélagið er þó sá stofn, sem þarf að
styrkja og bæta, en ekki fella. það á að eflast svo að
það bæti úr flutningaþörf landsmanna að mestu leyti,
bæði að því er snertir strandferðir og hinar nauðsynleg-
ustu ferðir miili íslands og útlanda. Fyrst á að auka
félagið með þvi að leggja inn í það landssjóðsskipin
þrjú. Bæta síðan við einu strandferðaskipi, og flóabátum
eftir þörf. Félagið haldi áfram að vcra*hlutafélag, en
landið eigi 50—55% af hlutafénu, og hafi þannig meiri
hluta atkvæða á félagsfundum og í stjórn þess.
Sama flutningsgjald sé að mestu leyti, þótt vörum
sé umskipað úr millilandaskipum í stranferðaskip og
flóabáta, að viðbættum óhjákvæmilegum kostnaði við um-
skipun og geymslu. Rannsakað sé gaumgæfilega, að hve
miklu leyti millilandaskipin eiga að koma á hinar minni
hafnir, eða þar á að nota flóabáta. þegar yfirstjórn út-
gerðarinnar sér að auka þarf við skipastólinn vegna ein-
hvers héraðs, verða íbúarnir á þeim stað að leggja fram
alt að helming skipsverðsins. Hitt leggur landið til, en
ekki fyr en sá landshluti, sem hlut á að máli, hefir
sýnt trú sina i verkinu og lagt fram fé til fyrirtækisins
í réttum hlutföllum. Með þessu skipulagi má stækka
Eimskipafélagið og bæta þáð, svo að það nái sínum upp
runalega tilgangi. það lieldur áfram að vera hlutafélg.
en verður í framkvæmdinni laust við lielstu ágallana,
sem loða vilja við þann félagsskap.
-----o-----