Tíminn - 17.02.1923, Qupperneq 4
6
T 1 M 1 N N
Notið að eins íslenskar vörur.
Kaupið að eins íslenskar vörur.
Hafið þér séð nýju dúkana frá Klæðasmiðjunni Álafoss?
Þeir eru bæði til notkunar í fatnað, dyratjöld, útsaumsdúka
o. m. fl. til prýðis á íslensku heimili.
WGT Islenskir dúkar klæða Islendinga best.
Klæðasmiðjan iliiifossj p. t. Reykjavik.
Tóm steinolíuíöt
utan af landi kaupum vér á 8 krónur hingað komin, gegn greiðslu
við móttöku (með póstkröfu).
Hér í bænum kaupum vér fötin sama verði, sækjum þau til selj-
anda og greiðum andvirðið samstundis. Hringið í síma 262.
H.f. Hrogti & Lýsí,
Reykjavík.
Til taupfélag'a!
H.f. Smjövlíkisgepðin í Reykjavík er stofnuð í
þeim tilgangi, að koma hér á smjörlíkisframlciðslu, sem geti fyllilega
jafnast á við samskonar iðn erlendis, bæði hvað gæði og verð snertir.
Eflið íslenskan iðnað.
Biðjið um íslenska smjörlíkið.
Odýrustu l| bestu
olíumar eru:
Hvítasunna, Mjölnír, Gasolía,
Bensín, BP nr. 1,
á tunnum og dunkum.
liiðjið æííð um olíu á stáltnnmim scm er lirein-
ust, aflmest og rýrnar ekki við geymsluna.
Landsverslunin.
Sambandið 28. júlí, að viðstödd-
um fulltrúum nær allra Sam-
bandsfélaganna og með þeirra
samþykki.
þegar félagið byrjar verslun
sína 1. júní, þá á það hús, lóðir,
verslun, áhöld og vörur upp á kr.
164 þús. (hafði keypt vörur af
öðrum en þ. D. fyrir rúml. 8
þús.), og hafa þá félagsmenn
sjálfir greitt upp í það 63 þús.
Skuldir á eignum félagsins við
aðra en félagsmenn eru þá um
101 þús. Á þessum eignum hvíldi
áður lán við banka um 104 þús.
Svo í raun og veru sýnist þessi
bændaverslun ekki standa mikið
ver út á við heldur en kaup-
mannaverslunin áður, og þótt það
megi játa, að við sýslubúar hér
séum fátækir, þá gæti maður trú-
að, að verslunarfyrirtæki einstakl-
inga, hafi, ekki öll verið reist á
tiaustara grundvelli. Og úr því
að við erum æði mikið bendlaðir
við verslunarólagið, og erum tald-
ir ómagar, eða þá a. m. k. vænt-
anleg byrði á öðrum félögum,
verður að fara ofui'lítið nánar út
í þetta.
1 þeim 4 hreppum sýslunnar,
sem félagið nær yfir, eru um 60
sj álfseignabændur, og eru fast-
eignir þeirra, samkv. hinni nýju
fasteignabók, metnai- á kr. 261,-
500. Fráleitt hvíla á eignum þess-
um meira en 30 þús. kr. við banka
og ríkissjóð, eru þá eftir óveð-
bundnar fasteignir fyrir rúml. 230
þús., og þó að búpeningur sé rýr
hér, er hann þó upp á nokkur
þúsund kr., þar sem afurðir þær,
sem félagið hefir haft til útflutn-
ings þetta ár, eins og verðið er
nú lágt orðið, verða væntanlega
upp á 140—150 þús. kr. að frá-
dregnum flutningskostnaði til út-
landa. J>að skal játað, að hér var
í fyrra hið mesta óáran, megn
vorharðindi, veikindi í fénaði og
aflaleysi, hnignaði þá hag félags-
manna sumra og félagsins í heild,
en við vonum að fyrir skárra ár-
ferði í ár, og meðfram fyrir
sparaað félagsmanna — án þess
þó að fólk hafi liðið nokkra neyð
— muni nú þegar eitthvað úr
rakna fyrir félaginu. Og enn sem
komið er verður ekki sannað, að
ábatavænlegra hefði verið að
versla með ísl. vörur við kaup-
menn, því að í ár a. m. k. er ull
og fl. ísl. vörur í mun hærra verði
hjá félaginu, heldur en kaupmenn
á Austurlandi gáfu í sumar og
vonandi verða haustvörur ekki í
lægra verði en hjá kaupmönnum,
og ef nokkur hagnaður verður á
útl. vöranni, þá rennur hann til
félagsmanna.
Eftir lýsingu höf. á þessu fé-
lagi er eðlilegt, að hinum öðrum
félögum, sem eru í Sambandinu,
standi stuggur af því, það er ein-
mitt tekið sem sérstaklega áber-
andi dæmi um ógætni Sambands-
ins, og útlit fyrir, að það eigi að
vera að nokkra hliðstætt dæmi
við Ólafsvíkurfélagið sáluga.
Við höfum nú hér að framan
sýnt fram á, hvernig sakir stóðu
þegar Sambandið lánaði því vör-
ur fyrst. Og enn sem komið er
hefir það ekki orðið neinn baggi
á öðrum félögum, sem betur fer.
Annars þótti mörgum vinum og
kunningjum hr. B. Kr. hér í
sýslu það leitt, að hann í ákafa
sínum í að koma Sambandinu fyn
ir kattarnef, skyldi þurfa að grípa
til þess að gera hag félags vors
tortryggilegan og aumari en hann
þó var. þeir höfðu víst margir
vænst þess, að hann í síðustu
lög færi að blanda okkui' inn í
þetta deilumál á þann hátt.
Að öðru leyti er það ekki ætlun
okkar að hella olíu í þann eld sem
bæklingurinn hefir óneitanlega
kveikt í landinu.
Fyrir hönd Kaupfél. A.-Skaftf.
porleifur Jónsson, Hólum.
Sigurður Jónsson, Stafafelli.
----o----
Fréttír.
Prentun í prentsmiðjunum
hófst loks aftur í fyrradag eftir
hálfs annars mánaðar vinnu-
teppu. það var atvinnumálaráð-
herrann sem gekk í milli og kom
sættunum á. Urðu úrslit deilunn-
ar þau að farinn var meðalveg-
urinn milli krafanna af beggja
hálfu.
íslandsbanki. Um síðustu mán-
aðarnót lét Tofte bankastjóri af
bankastjórn og fór þegar af landi
burt. Fer ekki hjá því að ein-
hverjum verði á að segja hið
fornkveðna: „Far vel Frans og
kom aldrei aftur til fslands“.
Oddur Hermannsson skrifstofu-
stjóri og Jens B. Waage banka-
bókari hafa verið settir til að
gegna hinum lausu embættum.
Margir stjórnmálafundir hafa
verið háðir hér í bænum undan-
farið. Lángmest hafa umræðurn-
ar snúist um íslandsbanka. Hefir
„frelsishetjan" frá Vogi fengið
að heyra sitt af hverju í þeim
umræðum.
Ármannsglíman var háð í Iðn-
aðarmannahúsinu hinn 1. þ. m.
eins og undanfarið. Keppendur
voru í færra lagi, en þeii' gerðu
sér far um að glíma vel. Magnús
Sigurðsson frá Drumboddsstöðum
í Biskupstungum vann skjöldinn.
Eggert Kristjánsson Hnappdæl-
ingur og Óskar þórðarson frá
Söndum í Dýrafirði skiftu með
sér öðrum og þriðju verðlaun-
um og Óskar hlaut ennfremur
verðlaun fyrir fegurðarglímu. —
Hvar eru höfuðstaðarbúarnir?
Niðurjöfnunarnefnd Reykjavík-
ur hefir nú verið lögð niður. í
stað hennar annast nú fimm
menn niðurjöfnun útsvaranna og
hafa þeir aðgang að skattskýrsl-
unum. Fjórir eru kjörnir af bæj-
arstjórn, en skattstjóri er sjálf-
kjörinn formaður nefndarinnar.
ísfisksala togaranna til Eng-
lands hefir gengið ágætlega vel
undanfarið.
Alþingi var sett í fyrradag en
þingstörf byrja ekki fyr en á
mánudag. Nálega helmingur
þingmanna var á Goðafossi, sem
kom ekki til bæjarins fyr en í
gær.
Stjórn Sambands samvinnufé-
laganna er nú öll komin til bæj-
arins til fundar. Komu þeir að
norðan með Goðafossi Sigurður
Kristinsson kaupfélagsstjóri á
Akureyri, Ingólfur B j arnason
kaupfélagsstjóri og alþingismaður
í Fjósatungu og Jón bóndi Jóns-
son í Stóradal. Guðbrandur Magn-
ússon kaupfélagsstjóri í Hall-
geirsey var nýkominn áður. þá
koma þeir með Botníu í byrjun
næstu viku framkvæmdastjórar
Sambandsins ytra: Oddur Rafnar
og Guðmundur Vilhjálmsson. —
Að norðan komu ennfremur með
Goðafossi Sigurður Bjarklind
kaupfélagsstjóri á Húsavík, þór-
ólfur bóndi Sigurðsson í Baldurs-
heimi, Jónas þorbergsson ritstjóri
á Akureyri og Hallgrímur þor-
bergsson bóndi á Halldórsstöðum
í Laxárdal.
Einar þorkelssoin skrifstofu-
stjóri Alþingis hefir fengið lausn
frá embætti. Jón Sigurðsson frá
Kallaðarnesi hefir gegnt því em-
bætti undanfarið og nú fengið
veitingu.
Maanalát. I síðastliðnum mán-
uði lést á Akureyri Ilenrik
Schiöth, áður póstafgreiðslumað-
ur og bankagjaldkeri. Iíann og
kona hans, sem látin er fyrir
stuttu, fluttust til Akureyrar ár-
ið 1868, og hafa dvalist þar ávalt
síðan. Öfluðu þau hjón sér ágætra
vinsælda og virðingar. Anna kona
Klemensar Jónssonar atvinnu-
málaráðherra er yngst bai'na
þeirra. — Hinn 9. þ. m. lést
Andrés Fjeldsteð augnlæknir hér
í bænum eftir þunga legu. Ilann
var maður á beöta aldri, bróðir
Lárusar Fj eldsteð hæstaréttar-
málaflutningsmanns og 'Sigurðar
bónda Fjeldsteð í Ferjukoti. And-
rés Fjeldsteð átti miklum vinsæld-
um og virðingu að fagna hjá
stéttarbræðrum sínum og er að
honum. mikill mannskaði. — Hinn
29. f. m. lést hér í bænunr ekkju-
frú þórhildur Tómasdóttir, á
heimili dóttur sinnar, frú Álfheið-
ar Briem ekkju Páls amtmanns.
Hún var ekkja Helga lektors
Háldánarsonar og dóttir síra
Tómasar Sæmundssonar. Jón
biskup Helgason er nú einn á lífi
scna hennar. Frú þórhildur hafði
verið afbragðskona.
Próf eru nýafstaðin við háskól-
ann. Guðfræðingar hafa orðið
þessir: þ. E. þormar frá Geita-
gerði II. einkunn betri 77 stig,
Ingólfur þorvaldsson II. einkunn
lakari 58 stig og Ragnar Ófeigs-
son frá Fellsmúla I. einkunn
1271 /3 stig. — Læknisprófi hafa
lokið þessir: Skúli V. Guðjónsson
I. einkunn 182J4 stig, Steingrím-
ur E. Eyfjörð I. einkunn 179 stig
og Valtýr Albertsson I. einkunn
1922/3 stig. — Lögfræðingar eru
oi'ðnir þessir: Stefán Stefánsson
frá Fagráskógi II. einkunn betri
104V3 stig og Kristinn Ólafsson
1. einkunn 124 stig.
Páll Isólfsson hélt kirkjuhljóm-
leik nýlega við hina sömu snild
og áður og nú er hann að Ijúka
við að æfa stóran söngflokk.
Verða þeir hljómleikar í næstu
viku og munu verða fjölbreytt-
ari en áður hafa tíðkast hér.
Síra Eiríkur Albertsson á Ilesti
hefir flutt undanfarið og flytui'
enn fyrirlestra í Nýja Bíó um
kirkju og skólamál. Segir eink-
urn frá kirkju og skólamálum í
Svíþjóð og ber fram tillögur um
skipun þeirra mála hér.
Samningar hafa ekki tekist
cnn milli sjómanna og útgerðar-
manna um vinnukaupið þetta ár.
Esja. Nýja strandfei'ðaskipinu
hefir nú verið gefið nafnið
„Esja“, og er það gott nafn. þór-
ólfur Bech, sem verið hefir skip-
stjóri á Borg, verðui' skipstjóri á
Esju. Ásgeir Jónasson frá Hraun-
túni tekur við skipstjórn á Borg.
Hallgrímskvei'. Úrval úr ljóð-
um Hallgríms Péturssonar. Safn-
að hefir og búið undir prentun
Magnús Jónsson. — Kostnaðarm.
Steindór Gunnarsson.
það er ekki oft, sem út kemnr
úrval úr ljóðum hinna eldri
skálda, og ætti þó ekki að gefa út
ljóðmæli eldi'i skáldanna öðruvísi
fyrir almenning. það er nóg með
eina útgáfu þar sem alt er tínt
til, sem skáldunum hefir einhvern-
tíma orðið á vörum. Ein undan-
tekning er þó frá þessari reglu.
Ein einasta! Og það eru Passíu-
sálmar Hallgríms Péturssonar.
þeir hafa jafnan verið og munu
jafnan verða gefnir út í heilu
lagi. það er þó engin goðgá, sem
gert er í safni þessu, að draga
út vers úr Passíusálmunum og
birta þau með öðru úrvali úr ljóð-
um Hallgríms. það getur þvert
á móti hænt margan mann að
Passíusálmunum. þeir verða engu
að síður gefnir út hér eftir eins
og hingað til í heilu lagi. Og á
hvei'ju hemili. Annax's er mörg-
Jörðin Bryééjur
í Austur-Landeyjahreppi fæst til
ábúðar í næstkomandi fardögum.
Tún jarðarinnar gefur í meðal-
ári af sér 150 hesta, en útheys-
skapur er 900—1000 hestar. öll
hús á jöi'ðinni eru hin vönduð-
ustu. Semja ber um kaup á hús-
um og byggingu jarðai'innar við
imdirritaðann.
Bi’yggjum, 20. jan. 1923.
Tyi'fingur Bjömsson.
Jörð til kaups.
Hálf jöi’ðin Húsar í Ásahreppi
í Rangárvallasýslu, 12 hundi’. að
fornu mati, fæst til kaups og
ábúðar í næstu fardögum. Jöi’ð-
inni er vel í sveit komið, hæg að
öllu leyti og stendur mjög til bóta.
þeir er vilja sinna þessu, snúi
sér til Filippusar Vilhjálmssonar
í Vindási á Rangái’völlum.
þakkarávai’p.
I tilefni af tjóni því, er við
urðum fyrir í haust, að geymslu-
hús okkar brann, ásamt munum
þeim mestöllum, er þar vora
geymdir, hafa ýmsir sýnt hlut-
tekningu og rétt okkur hjálpar-
hönd.
Sérstaklega ber að geta Guðm.
hreppstjóra þoi’varðssonar, Sand-
vílc, og heimilisfólks hans, sem
— ásamt annari hjálp — tókst
með snarræði og dugnaði að
verja íbúðaihúsið fyrir eldinum.
Sömuleiðis veittu nágrannar okk-
ar, heimilisfólkið að Stekkum,
ýmsa hjálpsemi og fégjöf.
þá skal getið iSigurðar fyrv.
sýslumanns Ólafssonai', Kaldaðar-
nesi, sem brá skjótt við til hjálp-
ar með höfðinglegri gjöf. Síðast
cn ekki síst ber að minnast
Filippusar bónda Björnssonar,
Stokkseyrarseli, móður hans og
bróður, fyrir rausnarlega hjálp-
semi. —
Öllum þeim, sem þegar eru
taldir, ásamt hinum, sem ekki eru
nafngreindir, flytjum við hér með
alúðarþakkir, með bestu óskum.
Stóru-Sandvík, 20. des. 1922.
Sigríður Kr. Jóhannsdóttir.
Hannes Magnússon.
Nonni er kominn heim.
um ókunnugt um önnur ljóð Hall-
gríms og kemur kverið því í góð-
ar þarfir. Hann hefir margt fleira
gott gert en Passíusálmana, sem
ekki má gleymast. Nafn safnand-
ans er þvi til tryggingar, að vel
sé valið, og er kverið þakkavert.
Aukablöð verða gefin út af
Tímanum smátt og smátt til þess
að vinna upp það, sem fallið hefir
úr vegna prentvinnuteppunnar.
Jarðarför Hallgríms Kristins-
sonai' fer fram næstkomandi mið-
vikudag. Síra þorsteinn Briem á
Akranesi talar heima en Harald-
ur Níelsson prófessor í kirkjunni.
Norrænupróf. Fyrsta norrænu-
prófið við háskólann okkar hefir
staðið yfir undanfarið og verður
lokið í dag. Tveir kandídatar
taka prófið: Pétur Sigurðsson
sonur Sigurðar fangavarðar og
Vilhjálmur þ. Gíslason sonur
þorsteins Gíslasonar ritstjóra.
Vatnsveitan. Áætlað er að hin
nýja aukning vatnsveitunnar í
Reykjavík muni kosta 694 þús.
krónur.
þingmenn eru nú allir komnir
til bæjarins.
Ritstjóri:
Tryggvi þórhallsson
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðjan Acta.