Tíminn - 12.05.1923, Blaðsíða 4

Tíminn - 12.05.1923, Blaðsíða 4
50 T í M I N N Riiisiigar og firnesiioar! í vor þurfið þið ekki að fara lengra en til mín eftir nauðsynjum ykkar. Um miðjan júní fæ eg skip til Eyrar- bakka með allar venjulegar matvörutegundir. Sömuleiðis fæ eg um það leyti flestar tegundir af smávöru, þakjárn, gaddavír, norsk vagnhjól og fjölbreytt úrval af vefnaðar- vöru. Verðið verður það besta sem völ verður á. Egill Gr. Thorarensen Sigíúnum. MT Reiðtýgi, hnakkar (frá 40 kr.), söðlar, aktýgi (og alt tilh.), hnakk- og söðulvirki (járnuð og ójárnuð), beislisstengur (járn, stál og nýsilfur), taumalásar, hringjur allskonar, til söðla- og aktýgjasmíðis. Allskonar ólar svo sem: ístaðsólar, töskuólar, svipuólar, burðarólar, fótólar, beislistaumar, höfuðleður, hesthúsmúlar, gjarðir, reiðar, axla- bönd (úr leðri), glímubelti o. fi. Þverbakstöskur, liandtöskur, hnakk- töskur, skólatöskur, verkfæratöskur. Seðlaveski fleiri teg. mjög ódýr, merkjageymar. Leður fi. teg. svo sem: gult söðlaleðux', svart aktýgja- leður, sólaleður (danskir kjarnar), vatnsleður (danskt), sauðskinn fleiri teg., svínaskinn, fordekkleður, þunt leður (með svínleðursgerð), litskinn (Saffian), leðurlíking (bíladúkur) mjög góð tegund, bókbandsskinn fi. teg. Plyds: grænt, rautt, brúnt, mislitt, miklu úr að velja og mjög ódýrt, bindigarn 2 teg. (sóffafjaðrir og möbluborði væntanlegt mjög bráðlega), stopp (Blaar) og „Krölhaar“, Hessian fi. teg., dýnustrigi, tjaldastrigi, óbleyjað ljereft, íborinn dúkur mjög sterkur, einnig dúka- áburður (Bonevax), vélreimar (drifreimar), vélreimaleður (maskínuteygt). Ennfremur: Keyri, mikið úrval og ódýr, silfui-búnar svipur fleiri teg. rósettur á beisli. Naglamaskinur o. fl. Aðgerðir fljótt og vel af hendl leystar. Sérlega vandaðir erfiðisvagnar ásamt aktýgjum eeljast mjög ódýrt. NB. Vagnarnir eru til sýnis hjá hr. kaupmanni Ámunda Árnasyni. Pantanir afgreiddar fljótt og nákvæmlega urn land alt. Sími 646. Söðlasmíöabúðin Frh. af 1. síðu. fyrir „dótið“ að reyna að fela sig bak við neitun um að greiða at- kvæði. Hversvegna greiddu þeir ekki atkvæði með E. E., ef þeir voru á móti S. E., eða með dagskrá þ. J., ef þeir voni hlutlausir? Auð- vitað þögðu þeir af því þeir vildu lýsa trausti, ef þeir hefðu þorað. þessvegna afneituðu þeir S. E. og Bjai’na á þennan hátt, eftir alla samvinnuna í vetur. þeir halda S. E. í í’aun og veru eins og stór- bændur í fornöld höfðu stundum útlaga og seka menn. þeir halda hann á laun, en halda hann þó. Við atkvæðagreiðsluna voru Morgun- blaðsmenn ærið daufir í dálkinn og vesaldarlegir í röddinni, enda hiógu áheyrendur á pöllunum dátt að úrræðaleysi þeirra. Jón Magn- ússon þoldi ekki spott þeirra, með því að hann mun hafa fundið, að það var helst til verðskuldað, og bað forseta að hasta á pallgesti. En þeir höfðu sína ákveðnu skoð- un um S. E., Jón og alt hans fylgd- arlið, og við það sat. X. Alþingi. þegar bankamálið kom loks á dagskrá, hafði Einar á Eyrarlandi i’ækilega fi-amsögu. Skýrði hann málið alt, hversu vandræði íslands- banka á umliðnum 3 árum hefðu lamað viðskiftalíf landsins, valdið miklu um fall krónunnar, og enn væri bankinn ekki fær um að starfa, svo sem vera þyrfti, fyrir atvinnuvegina. þjóðin ætti nú stór- niikið lánsfé inni í bankanum. Hún vildi sem lánardrottinn vita glögg- lega um aðaldrætti 1 fjármálum bankans, og einkum um trygging- una fyrir enska láninu, sem sagt var að væri Rvíkurvíxlar mest- megnis. þá kom Kvaran með vörn fyrir hluthafana, grófyrta, vesald- arlega ræðu. Sagði maður, sem - þekt hefir vel til í þinginu síðustu 25 árin, að það væri óþinglegasta ræða, sem haldin hefði verið á þingi allan þann tíma. Einar á Eyrarlandi las upp úr ræðunni Sleipnir. Símnefni: „Sleipnir" heila runu af illyrðum eftir á, og þótti sem lítið mundi um rök, þar sem grípa þyrfti til þvílíks létt- metis. Útvatnaður útdráttur úr ræðunni hefir komið í Mogga. Auðséð vai’, að Kvaran var ösku- reiður. Einar á Eyi’arlandi mælti um ræðu Kvarans: „Eg er undrandi yfir því, að svo gamall þm. sem hv. 2. þm. S.-M. (S. H. K.) er, skuli leyfa sér að viðhafa slík ókvæðisorð og þau, er hann kom með í ræðu sinni, eða vilja vera þektur fyrir slíkt. Eg skal lesa upp fáein af þeim, er eg skrifaði hjá mér. (S. H. K.: þau koma í þingtíðindunum! J. J.: þau koma þar þá bara tvisvar til prýðis! S. H. K.: Ættu þau ekki að koma þar þrisvar? J. J.: þau koma í þriðja sinn í sögunni!). Hér eru þá fáein málblóm, sem hann beindi að okkur tillögumönnum: „Árásir, flónska, ofsóknir, ill- kvitni, rógur, níðingsverk, glæpir, svívirðingar. En þó að hann kalli okkur flm. flón og heimskingja, þá eru það engin rök. (S. H. K.: Ætlaði ekki að gera það!). Ef það hefir ekki verið meining þm. að koma með rök í málinu, þá er ræða hans líka skiljanlegri“. þessi stutti kafli sýnir muninn á aðferð þeirra þm., sem vildu að þjóðin fengi vitneskju um hag síns stóra skuldunautar, bankans, og hinna, sem vildu fá peninga og ábyrgðir til handa þessari láns- stofnun, en ekki leyfa trúnaðar- mönnum þjóðarinnar að kynna sér hag fyrirtækisins. I. H. B. hafði flutt tillögu um að þingnefndin skyldi rannsaka veðin fyrir enska láninu, en ekki aðstöðu bankans til landssjóðs. Mælti hún nokkur orð fyrir tillög- unni, en tók hana síðan aftur. J. J. hélt þá ræðu samtals 1 3 klukku- tíma, á tveim fundum. Rakti hann þar sögu bankans frá því Gyðing- arnir komu fyrst með sín fögru boð til þingsins 1899, og fram á þetta þing. Sannaði með því, hversu hluthafamir hefðu altaf haft býsna marga íslendinga, og þá ekki altaf hina umkomuminstu, dansandi í ósýnilegu töfrabandi. Hlutverk þjóðarinnar væri að Smásöluverð á íóbaki má ekki yera hærra en liér segir: "V" ixxd.lin.ga.ir: Capstan 10 stk. pakkinn kr. 0,75 Elephant 10 — — — 0,50 Lucana 10 — — _ 0,65 Westminster A. A ÍO — — — 1,00 ChiefWhip 10 — — — 0,65 Utan Reykjavíkur má verðið vera því hærra, senx nemur flutn- ingskostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó ekki yfir 2%. Xja.xxd.s'vei'slxxxx. Til kaupfélaga! H.f. Smjörlikisgerðin i Reykjavik er stofnuð í þeim tilgangi, að koma hér á smjörlíkisframleiðslu, sem geti fyllilega jafnast á við samskonar iðn erlendis, bæði hvað gæði og verð snertir. Eflið íslenskan iðnað. Biðjið um íslenska smjörlíkið. breyta þessu. Láta þjóðarhags- munina ráða öllu um stjórn bank- ans, en ekki dutlunga hluthaf- anna. Ræðan mun vera ein hin lengsta, sem haldin hefir verið á Alþingi. En áheyrendur voru þó minna þreyttir en að hlusta á 10 mínútna efnislausar ræður hjá Halldóri Snæfellingalækni. Áheyr- endur fylgdu með mikilli athygli þessum einkennilegu skuggamynd um á tjaldinu, sem ræðumaður brá fyrir sjónir þeirra úr sögu bank- ans og þjóðai'innar. Ræðan var að vísu löng, en þar hafa þeir menn mestu um valdið, sem á aldarfjórð- ungi hafa hrúgað saman jafn- miklum axarsköftum eins og hinir íslensku vinir hluthafanna. Ræða J. J. mun birtast hér í blaðinu, og verður því ekki sagt nánar hér frá efni hennar, nema það eitt, að Kvaran hafði í sinni fyrri ræðu farið hinum hörðustu orðum urn alla þá, sem vildu rannsaka banka. þótti a)lir slíkir menn liinir mestu \ii)sjc!sgripir. þá minti J. J. karl- ii.: á það, a! hann hefði staðið mjög framarlega í þeim þing- flokki, sem rak Tryggva Gunnars- son og gæslustjórana úr Lands- bankanum 1909. Kvaran ætlaði að skrökva sig út úr klípunni, og telja sér þá rannsókn óviðkom- andi. En þá las J. J. upp klausu úr blaði Kvarans, Norðurlandi, frá des. 1909, þar sem karlhróið fór hinum loflegustu orðum um brott- reksturinn og bankarannsóknina. Ennfremur las hann upp úr þing- ræðum Kvarans frá 1911, þar sem talað var um „hátíðisdaga“ og „tyllidaga“, þegar bankarannsókn- in var sett 1909, og Tryggvi rekinn. 1 fyrstu var auðséð, að Kvaran ætlaði að þræta, en er hann sá, að skrifuð gögn voru fyrir hendi viðvíkjandi fortíð hans, sem hann sjálfur hafði stimplað með ókvæðisorðum, seig hann niður í stólinn. Feginn myndi hann hafa viljað fela sögu þriggja sinna skástu ára undir stólnum. Jón Magnússon hélt alllanga en mjög sundurlausa ræðu. Kvartaði undan því, að hann hefði oi’ðið fyrir hörðum dómum í einu blað- inu, en játaði að sér hefði aukist fylgi við það annarsstaðar (þ. e. hjá óþörfu milliliðunum, andbann- ingum etc). Ekki virtist hann skilja það, að andstaðan gegn hon- um er ekki gegn manninum, heldur verkum hans í þjónustu þjóðfé- lagsins. Hann játaði að hafa ráð- ið Claessen með háu laununum, og varði skýrslu Bjama. Öll var ræð- an í þessum tón. B. Kr. vildi reyna að þvo af sér minningar um að- gerðir hans við stofnun Islands- banka, en það reyndist með öllu ókleift. Sig. Eggerz hélt langa tölu í klökkum líkræðutón. Fór hann lítt yfir sögu, er skýra skyldi frá aðgerðaleysi hans við yfirstjórn Islandsbanka. Um tvö atriði játaði hann á sig að hafa farið eftir ráðum eða bæn þess bankastjórans, sem hluthafamir hafa ráðið (E. Cl.). Fyrst að hreyfa ekki við Tofte eða Hann- esi meðan E. Cl. var í sinni löngu leit eftir peningum erlendis. Og í öðru lagi að skipa ekki fasta bankastjóra meðan hann vai’ í sinni seinni siglingu. Tofte hefði orðið að fá sína miklu peninga til að spilla ekki áliti íslandsbanka hjá Prívatbankanum danska, sem hefði mætur á Tofte. Hart þótti S. E. að minst skyldi vera á 120 þús. kr. sjóðþurðina í íslands- banka í vetur, sem aldrei var rannsökuð. Vildi telja alt umtal af því tægi árás á móður þess manns, sem formlega ber ábyrgð á tap- inu. J. J. skaut þá inn í: „Átti Glúckstadt móður?“ Sá dómsmála- ráðherrann að tilfinningarnar voni að bera hann yfir í heim þess „kómiska“, og lét þann þráð nið- ur falla. J. J. hafði spurt hann um, hvoi't nokkuð væri hæft í því, að hann vanrækti þjóðinni til stór- skaða, að skipa fasta menn í Is- landsbanka, af því hann ætlaði að geyma sér annað embættið. Hefði góður borgari í bænum sagt, að slíkt atferli landsstjórnarinnar væri helst sambærilegt við það, þegar forsetar í Mexíkó fara í langt ferðalag með landssjóðinn í vasanum. Eggerz þverneitaði að svara, eða að fortaka, að þessi væri tilgangurinn. Er hann í álíka miklum vandræðum að svara þessu atriði, eins og Bjarni, þegar minst er á skýrsluna. Seinni daginn, þegar Islands- bankamálið var til umræðu, var fundi ekki slitið fyr en kl. 3 um nóttina. Er þingheimur kom út, var veður milt og blítt, og dags- rönd í austi'i. þótti sem líka væri dögun að hefjast í fjármálunum. B. Kr. hafði reynt að sanna, að þingmálafundir bæru alls ekki með sér, að þjóðin vildi vita um fjár- hag Islandsbanka. Sigurður á Ysta felli mótmælti þessu kröftuglega. Rakti hann þingmálafundagerðir hringinn í kring um land og sann- aði, að þjóðin hefir einmitt með ótvíræðum orðum krafist vitneskju um hag bankans. J. M. hafði sagt, að enginn í Framsókn hefði neitt vit á bankamálum, og enginn í fjárhagsnefndinni. Sig. Jónsson benti Jóni á, að hvað sem Fram- sókn liði, myndi honum hafa orð- ið mismæli viðvíkjandi þeim Kvar- an ogB. Kr., sem báðir eru í fjár- hagsnefnd. Jóni þótti þetta slæmt og reyndi að draga saman seglin. Fjármark mitt er: Hangfjöður fr. hægrá, sneitt fr. vinstra. Guðmundur Eiríkssou, Þvei’holtum, Álftaneshr.,Mýrasýslu. Umboðsmenn vantar oss í hvorjum hreppi og kaupstaS landsins. Fyrir utan það, að vér bjóðum óvenjulega góð kjör, getum vér full- vissað hvern þann, er gerast vill um- boðsmaður vor, um það, að hér getur verið um verulegar aukatekjur að ræða, því vér þorum að fullyrða, að engar bækur hafa selst betur síðast- liðið ár, en bækur vorar. þeir, sem vilja sinna þessu, geri svo vel að skrifa strax. Virðingarfylst, „SÖGUÚTGÁFAN“, Rvík. Játaði, að fyrst og fremst væri lík- lega einn Framsóknarmaður í Nd. sem hefði vit á bankamálum. þar að auki fór Jón mjög lofsamlegum orðum um bankaþekkingu Bjöms. Síðast í umræðunum hélt Guðm. í Ási meinfyndna og fjöruga ræðu. Dró þar saman í stuttu máli verstu meinlokur Kvarans, B. Kr. og Jóns Magnússonar, og dró dár að klúryrðum þeirra og röksemda- skorti. Halldór Steinsson fór eitt sinn úr forsetastól til að verja framkomu sína á lokaða fundin- um, er hann stýrði flótta Mogga- manna, og drátt þann, er bersýni- lega hafði orðið á því að fá rann- sóknarmálið á dagskrá. En öll var sú frammistaða Pílatusarþvottur. Einn Fi’amsóknaixnanna tók fram, að geðæsing, illyrði og reiði þeirra, sem vildu halda frá þjóðinni vitn- eskju um hag bankans, bæri vott um vonda samvisku. Út af fyrir sig væri það gott, og betra en for- herðing hjartans. Ef til vill gæti hin innri rödd orðið svo sterk, að áhrif yrðu sýnileg til bóta í breytn- inni. Dagskrá Kvarans, um að eyða málinu, var fyrst borin upp. Sögðu 8 já við henni, þeir S. E., J. M., B. Kr., Halldór, Ingibjörg, Hjörtur, Kvai'an og Jóh. Seyðfirð- ingur. En nei sögðu: Guðm. í Ási, Karl Einarsson, Guðm. Guðf., Ein- ar á Eyi-arlandi, Sigurður í Ýsta- felli og Jónas frá Hriflu. Mogga- dótið hafði að vísu unnið sigur um stund. En mikið myndu helstu menn þess flokks hafa viljað gefa til að þurfa ekki að opna hug og hjarta fyrir þjóðinni, eins og þeir voru neyddir til að gera við þess- ar umræður. Kjósendur fá að at- huga í haust,hve vel þeir hafa far- ið með það pund, sem þjóðin hefir falið þeim til ávöxtunar. * Alþingi verður væntanlega slit- ið á mánudaginn kemur. Margir þingmenn, austan og norðan, fói’u með Esjunni í gærkvöldi. Prestskosningai’. Ingólfur þor- valdsson cand. theol. hefir verið kosinn prestur að Stað í Kinn með 107 af 120 atkv. Síra Jón N. Jó- hannesson hefir verið kosinn prest ux að Breiðabólsstað á Skógar- strönd með 54 af 68 atkvæðum. Gestir í bænum. Bjöm kaupfé- lagsstjóri Kristjánsson á Kópa- skeri,Guðmundur kaupfélagsstjóri Vilhjálmsson á þórshöfn, Halldór kaupfélagsstjóri Ásgrímsson í Borgarfirði eystra og Sigurður kaupfélagsstjóri Vilhjálmsson á Seyðisfirði, komu austan með Esju um daginn og fóru aftur í gærkvöldi. Slysfarir. Tveir menn druknuðu nýlega á Breiðafirði. Annar var sonur Ólafs bónda Bergsteinsson- ar á Hvallátrum, en hinn var fóst- ursonur hans. Ritstjóri: Tryggvi þórhallsson. Laufási. Síxni 91. Prentsmiðja Aeta h/f.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.