Tíminn - 04.08.1923, Page 4
Kjöttunnur,
alt til beykisiðnar, smjörkvartél o. s. frv. frá stærstu beykissmiðju i
Danmörku.
L. Jacobsen,
Köbenhavn Valby.
Höfum í mörg ár selt tunnur til Sambandsins og margra kaup-
manna.
Þvottaefnið „Nix
er best og ódýrast.
Hefir alstaðar, þar sem það hefir verið notað,
hlotið einróma lof.
44
Sambandið annast um pantanir.
Brúnn hestur,
fremur lítill, heflr tapast frá Brúsastöðum í Þingvallasveit, kringum
12. júlí, merktur á síðu HÁ, skilist gegn ómakslaunum til
Haraldar Árnasonar,
kaupm., Reykjavík.
Til kaupfélaga!
H.f. Smjörlikisgepðin í Reykjavík er stofnuð í
þeim tilgangi, að koma hér á smjörlíkisframleiðslu, sem geti fyllilega
jafnast á við samskonar iðn erlendis, bæði hvað gæði og verð snertir.
Eflið íslenskan iðnað.
Biðjið um íslenska smjörlíkið.
Smásöluverð á tóbaki
má ekki yera hærra en hér segir:
N7~ indlar:
Cervantes.................................50 stk. kassi á kr. 24,00
Portaga.................................. 50 — — - — 23,75
Amistad.................................. 50 — — - — 23,75
Phönix.................................. 50 — r----21,00
Crown.................................... 50 — — - — 20,75
Utan Reykjavíkur má verðið vera því hærra, sem nemur flutn-
ingskostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó ekki yfir 2%.
Landsverslun.
Auk þess var tekið mikið af
ólöglegu áfengi í Lagaríoss, að
nokkru eign biytans.
Síðan 22. þ. m. hafa nokkrir ver-
ið kærðir, og verður síðar skýrt frá
nöfnum þeirra og dómum, ásamt
dómum í málum þessum.
Síðastl. þriðjudag var gerð
áfengisleit í tveim norskum sel-
veiðaskipum og fundust í öðru
skipinu 10 fl. Whisky, en í hinu 16
fl. af Genever og 92 fl. Whisky.
Við rannsóknina í málum Sveins
og Laugavegsapóteks kom það í
ljós, að Sveinn hefir nú í nokkum
tíma sent 5 potta brúsa til Ágúst-
ar Ármanns, sem er afgreiðslu-
maður lyfjabúðarinnar um alt
áfengi, ásamt 116 krónum, en fékk
hann aftur fyltan með spritti. Hef-
ir hann á þennan hátt keypt af hon
um að minsta kosti 90 lítra, eftir
því sem sannast hefir, og er talið
að hagnaður Sveins á verslun þess-
ari nemi alls 1200 krónum. Sölu-
verð lyfjabúðanna á spritti er 16
kr. lítrinn, og er það hæsta útsölu-
verð, en Sveinn gaf 23 kr. frekar
fyrir hvern lítra. Söluverð Ágústar
á lítrum þessum er um 720 kr.
fram yfir hæsta útsöluverð á lög-
legu áfengi. Ekki hefir hann tapað
á viðskiftunum. Lyfsalinn, Stefán
Thorarensen, segist ekkert vita af
þessu. — Ojæja, ekki er nú eftir-
litið mikið.
Jafnframt þessu hefir það kom-
ið í ljós, að svo virðist sem tæplega
3000 lítrar af spritti hafa „lekið
niður“ í lyfjabúðinni á Laugavegi
síðan á nýári, eða lyfsalinn getur
ekki gert grein fyrir, að hann hafi
selt þá á löglegan hátt. Ef þeir
hafa „lekið“ á samskonar hátt og
Íítrarnir sem hann Sveinn fékk, þá
hafa drykkjurútar b'æjarins greitt
fyrir lekann um 40 þús. kr. fram
yfir útsöluverð áfengisverslunar-
innar til lyfsalanna.
„Templar".
1. Allir vita það. það er öllum lands-
lýð kunnugt hvað muni verða umtals-
efnið undir þessari fyrirsögn. það eru
ekki til nema ein fjáraukalög s'to
geta fengið þetta viðurnefni. það eru
fjáraukalögin sem sýna ráðsmensku
ráðherranná Jóns Magnússonai' og
Magnúsar Guðmundssonar á þjóðar-
búinu síðustu tvö árin sem þeir sátu
að völdum: árin 1920 og 1921. Snemma
á árinu 1922 var þeim steypt af stóli.
E.nda var það fyrst á því þingi sem al-
þjóð fékk fulla vitneskju um ráðs-
menskuna. þangað til hafði þess ver
ið vandlega gætt að fela hana sem
best.
2. Löng ritdeila. Fjáraukalögin
miklu komu eins og þruma yfir þing-
ið 1922. það væri rangt að segja: „eins
og þruma úr heiðskíru lofti'1, því að
sannarlega var stjórnmálaloftið hvorki
hreint né hressandi í kringum J. M.
og M. G. Fáir munu hafa búist við
góðu, aðrir en þeir nauðafáu, sem trúa
á íjármálahæfileika M. G. En fáir
munu hafa búist við svo geysilega
miklum reksturshalla á þjóðarbúinu,
sem raun gaf vitni með fjáraukalög-
unum, sem lesendum Tímans mun í
fersku minni. Ritstjóri Tímans taldi
sér slcylt að taka slíkt mál til opin-
berrar athugunar. í fjórum blöðum
Tímans (3.—6.) hirtust greinar um
málið. Síðasta greinin kom út 17.
mars. Meir en tveim mánuðum síðar
(26. maí) hóf M. G. að svara greinum
þessum opinberlega. Svarið kom út í
fjórum blöðum, sem samtals í dálk-
um eru að lengd 912 — níu hundruð
og tólf — sentímetrar, eða eftir gömlu
lengdarmáli um það hil fjórir og liálf-
ur faðmur. Ef til vill er eg eini mað-
urinn á íslandi sem hefi enst til að
lesa allan þennan langa lestur — auk
höfundarins og prentarans. Eg hlaut
að telja það skyldu mina að gera það.
— Svari sínu lauk M. G. 15. júní. það
er það eina sem líkt verður um okk-
ur M. G. í þessari löngu ritdeilu, að
vegna ferðalaga minna og annara
anna hefir dregist fyrir mér að liefja
svarið, þó ekki sé i eins langan tíma
og hann „gekk með“.
3. Svara vert eða eltki. M. G. segir í
uppliafi greinar sinnar meðal annars:
„Gæti eg látið vera að svara þessum
árásum, ef þingtíðindin kæmust út til
almennings mjög bráðlega". Slík
hreystiyrði eru algeng og ekki síst i
þeirra munni, sem eru í vanda staddir.
M. G. gat beðið með svarið í meir en
tvo mánuði. þingtíðindin eru sem óð-
ast að koma út. þau eru því ekkert
annað en fyrirsláttur þessi ummæli.
það er beinlínis hlægilegt lijá M. G.
að byrja með slíkum ummælum og
rita svo á eftir einhverja allra lengstu
varnargrein sem rituð hefir verið á ís-
landi. — Eg ætla að byrja með því að
lýsa yfir því gagnstæða. það gleður
mig að fá tækifæri til að svara M. G.
aftur hinum langa lestri hans. Eg get
þá aftur komið að efni, sem þjóðinni
er mjög nauðsynlegt að rætt sé ræki-
lega: meðferð valdhafanna á fé þjóð-
arinnar. Mér er kærkomið að fá enn
tækifæri til að rökstyðja það álit mitt,
að þó að M. G. sé ýmsum hæfileikum
búinn, þá væri það mikið óráð að fela
honum aftur yfirstjórn fjármálanna.
4. Kvartað sáran. Næsta atriði í inn-
gangi M. G. er það, að hann kvartar
sáran undan því að hafa ekki fengið
rúm fyrir svargrein sína í Tímanum.
Ilann segist aldrei hafa heyrt slíks
getið fyr. Eg hefi fyr svarað M. G. með
liinum alkunnu orðum: „þér hafið
Móse og spámennina", þ. e.: M. G.
verður að nota sín eigin málgögn fyr-
ir langar svargreinar til Tímans. Tím-
inn er ekki gefinn út fyrir M. G. það
er blátt áfram frekja af M. G. að œtl-
ast til þess, að Tíminn birti fyrir hann
þessa ógurlega löngu svargrein. Venju-
legur ofanmálsdálkur í Tímanum er
um það bil 30 sentímetrar. Svargrein
hans hefði orðið 30 ofanmálsdálkar í
Tímanum. Sjálfur talar M. G. mjög
mikið um hve pappir og prentun sé
dýrt. M. G. verður að fyrirgefa, en Tím-
inn álítur að hvorki sé M. G. svo mik-
ill aumingi fjárhagslega eða pólitiskt,
að hann geti ekki komið greinum sín-
um á framfæri sjálfur, og enn síður
einliver Jón Sigui'ðsson, sem allar dyr
eigi að standa opnar. Tíminn sér ekk-
ert eftir þvi, sérstaklega með fjárauka-
lögin miklu í baksýn, þó að M. G. verði
„að hlæða“ dálítið fyrir að koma þess-
ari löngu svargrcin á prent. Fyrir M.
G. lætur Tíminn sér ekki „blæða" í svo
stórum stíl. Fyrir sparnaðar sakir
prentar Tíminn þessa árétting mína
með smæsta letri.
5. Ekkl í Morgunblaðinu. Áður en eg
sný mér að sjálfu efninu, verð eg enn
að geta eins eftirtektaverðs atriðis. M.
G. birtir svargrein sína ekki í Morgun-
blaðinu. Tveim mánuðum eftir að
grein minni var lokið, byrjar hann að
gefa út sérstakt kosningablað fyrir
sjálfan sig og birtir hana þar. Nú er
það alkunnugt, hver sambúðin var
milli M. G. og Morgunblaðsins alla tið
þangað til fjáraukalögin miklu voru
lögð fyrir alþingi síðasta. Morgunblað-
ið varði allar gerðir M. G., lofaði hann
og studdi á allan hátt. Og M. G. hlúði
að Morgunblaðsmönnunum eftir bestu
getu. Hann gerðist t. d. aðalumboðs-
maður fyrir lista Morgunblaðsins við
landkjörið í fyrra. það getur ekki ver-
ið nema um eitt af tvennu að ræða til
þess að skilja þetta fyrirbrigði:Annað-
hvort er það Morgunblaðið sem
skammast sín fyrir M. G. og vildi ekki
birta þessa svargrein hans, eða það
er M. G. sem skammast sín fyrir
Morgunblaðið og vildi ekki láta það
flytja greinina. — Fyrri tilgátan gæti
vel lcomið til greina. Morgunblaðið
hafði að vísu stutt M. G. þangað til
fjáraukalögin miklu urðu kunn. En þá
hafi því þótt skörin færast svo upp 1
bekkinn, að ekki væri fært að verja
manninn lengur. þessvegna hafi það
færst undan að birta greinina. Vitan-
lega væri það mest góðgirni i garð
Morgunblaðsins að aðhyllast þessa tii-
gátu. Og blaðið myndi fá samúð
margra manna, væri þetta rétt til get-
ið. En því miður verður Tíminn að ef-
ast um að tilgátan sé rétt. Morgunblað-
ið hefir bæði fyr og síðar barist fyrir
a. m. k. nálega eins vondum málstað.
— þá er síðari tilgátan, að M. G. hafi
ekki viljað láta Morgunblaðið birta
svargreinina. Sé hún rétt, þá ber þetta
vott um mjög vanþakklátt geð hjá M.
G. og sýnirdjóslega heimilisástandið á
„kærleiksheimili" andstæðinga Tím-
ans. því að það er alveg víst, að Morg-
unbiaðið hafði árum saman gert fylli-
lega það sem í þess valdi stóð til að
verja M. G. og gerðir hans, og það
stundum með meðölum sem menn
ekki grípa til fyr en sérstaklega mik-
ið er talið liggja við. Uún er því næsta
ótrúleg þessi tilgáta líka. — En ein-
hver er ástæðan. M. G. er talinn svo
féfastur maður á eigið fé, að telja má
víst að liann hafi ekki farið að ráðast
í svo afarkostnaðarsamt fyrirtæki sem
það er að gefa út kosningablað fyrir
sjálfan sig, nema lionum hafi fundist
til þess brýn þörf. Sá kostnaður mun
velta á mörgum þúsundum króna. —
þetta atriði er svo merkilegt, að ekki
má ganga fram hjá þvi. það getur ekki
verið nema um aðrahvora ástæðuna að
ræða. En hvor þeirra sem tekin er, er
mjög óþægileg fyrir báða aðila, fjár-
málaráðherrann fyrverandi og blaðið
sem studdi hann árum saman. Tim-
inn veiður að leggja það á vald les-
enda sinna að skera úr, hvor ástæð-
una þeir telja sennilegri. Frh.
Tr. p.
-----o....
Von er að þeir séu hræddir.
Eitt af kosningablöðum Morgun-
blaðsins segir eftirfarandi sögu: 1
vikunni sem leið sendi Sambandið
út mikið af hrossum. Meðan hross-
in biðu útskipunar á hafnarbakk-
anum kom að þeim fælni. Fengu
gæslumennirnir ekki ráðið við. All-
stór hrossahópur hljóp frá þeim.
Maður nokkur varð á vegi þessara
tryltu hrossa og lenti undir þeim.
En þegar hrossahópurinn var kom-
inn ofan af honum og þó að fjög-
ur hófaför sæust á andliti hans,
reis hann upp, dustaði af sér rykið
og tók í nefið, eins og ekkert hefði
í skorist. Blaðið segist hafa það
eftir sér ákveðnum manni, að þessi
maður, sem varð undir hrossunum
hafi verið Tryggvi þórhallsson,
ritstjóri Tímans. — Von er að þeir
séu hræddir Morgunblaðsmennirn-
ir. Svona eru þeir harðir í hom að
taka, Tímamenn, að þó að riðið sé
yfir þá, og þó að mörg hófaför sjá-
ist á andlitinu, þá láta þeir sér
hvergi bregða. það er ekki að
undra þó að þeir séu rólegir þrátt
fyrir naggið og nartið í Morgun-
blaðinu og kosningaútgáfum þess.
— Svona verður að leggja út af
þessari kosningabrellu. Seinheppi-
leg er hún þessi aðferð Morgun-
blaðsmannanna að búa til hreysti-
sögur um mótstöðumennina. því
að vitanlega er því eins varið með
þessa sögu og með flest annað sem
kosningablöð Morgunblaðsins
UnglíngaskóU
Ásgríms Maguússonar Reykjavík.
Eins og auglýst var í 19. tbl.
Tímans starfar skóli þessi með
sama fyrii’komulagi og áður. Sér-
lega lientugur kenslutími og góðir
kennarar. Leitið upplýsinga lijá
undirrituðum forstöðumanni skól-
ans.
ísleifur Jónsson,
Bergstaðastræti 3. — Reykjavík.
Happadrætti
Landsspítalasjóðs íslands 1923.
Þessar tölur voru dregnar út 1.
ágúst þ. á.:
1. Legubekkur með áklæði . 152
2. Saumavél..........1489
2. Armstjakar. . . . . . 5550
4. Farseðill með E.s. ,,Esja“
(hringferð).... 5997
5. Peningar 100 kr. . . . 4390
6. Kaffiáhöld...... 3886
Handhafar þessara talna vitji
nfunanna til Hólmfríðar Þorláks-
dóttur, Bergstaðastræti 3 Reykja-
vík.
segja, að hún er ósannindi frá upp-
liafi til enda. Hún er venjuleg
Marðarsaga. Af þessum útfluttu
hrossum hafði ritstjóri Tímans
ekkert annað en óblandna ánægju.
Annarsvegar yfir því að það voru
bændurnir sjálfir sem fluttu hross-
in út, án nokkurrar aðstoðar kaup-
manna, og hinsvegar yfir því, að
bændumir fengu 35—40 kr. hærra
fyrir þessi hross en kaupmennimir
höfðu borgað fyrir hross stuttu
áður.
----o----
Harding Bandaríkjaforseti er ný
dáinn. Hefir Coolinge varaforseti
tekið við stjórnarstörfum.
Látinn er á Akureyri 1. þessa
mánaðar Eggert Laxdal kaupmað-
ur, einn af elstu borgurum Akur-
eyrarbæjar. Hann var fæddur 8.
febrúar 1846.
Tíðarfarið. Tíðin leikur nú við
okkur Sunnlendinga meir og betur
en verið hefir í mörg ár. Gras-
spretta alveg óvenjulega góð og alt
þurkast eftir hendinni. En af Norð-
urlandi eru aðrar fréttir. 1 gær átti
ritstjóri Tímans símtal við merk-
an bónda í Húnavatnssýslu. Hann
hafði fengið eina 50 hesta í hlöðu.
Öll hin heyin liggja undir skemd-
um. Algengasta veðurfarið undan-
farið, 4 gráðu hiti á morgnana, 6
gráður um miðjan daginn og súld-
arveður allan sólarhringinn.
Karl Finnbogason skólastjóri
býður sig fram við kosningamar í
haust á Seyðisfirði af hálfu sam-
vinnumanna.
Búist er við að Benedikt Sveins-
son verði einn í kjöri í Norður-
þingeyjarsýslu í haust.
Hrossaútflutningur. Enn sendi
Sambandið út töluvert af hrossum
með íslandi um miðja vikuna.
Einar H. Kvaran rithöfundur og
stórtemplar sækir fjölmennan
bannmannafund í Kaupmannahöfn
af hálfu stórstúku íslands og flyt-
ur þar erindi.
Síra Bjarni Jónsson dómkirkju-
prestur er nýkominn til bæjarins
úr utanför.
25 ára afmæli átti Lauganes-
spítali nýlega.
Nýtt hefti af Tímariti lögfræð-
inga og hagfræðinga er nýkomið
út. Aðalgrein ritsins er eftir
Sveinbjöm Jónsson lögfræðing og
fjallar um frelsishegningar og að-
búð fanga í ýmsum löndum.
Ritstjóri: Trj'ggvi þórhalisson.
Laufási. Sími 91.
Prtmtsmiðja Acta h/f.