Tíminn - 11.08.1923, Page 4
102
T 1 M I N N
Námsskeið fyrír eftírlítsmenn
eftirlits- og fóðurbirgðafélaga verður haldið í Reykjavík frá 21. okt.
til 2. desember.
Búnaðarfélagið veitir þeim mönnum styrk, sem sendir eru af
eftirlits- og fóðurbirgðafélögum eða lireppmn, þar sem verið er að
stofna slík félög,
Umsóknir sendist á skrifstofu vora.
Búnaðarfélag íslands.
NB. Hentugust ferð hingað er með Esju í okt. og Goðafossi í des.
héðan.
Orðsending
til kaupmanna og kaupfélaga.
Vér leyfum oss hérmeð að vekja athygli yðar á því, að vér höf-
um fyrirliggjandi töluverðar birgðir af islenskum niðursuðuvörum
frá niðursuðuverkgmiðju vorri, svo sem:
Kjöt beinlaust í 1 kgr. dósum. Kæfu í 1 kgr. dósum,
--------Í V, — - - í v. - -
og Fiskbollur í 1 kgr. dósum.
Vörugæðin standast allan samanburð. Gerið svo vel að spyrja um
verð hjá oss áður en þér festið kaup á erlendri niðursuðu. Vörurnar
sendar út um land gegn eftirkröfu.
Styðjið innlenda framleiðslu.
Virðingarfyllst.
Sláturfélag Suðurlands.
HAVNEMOLLEN
Kaupmannahöfn
mælir með sínu alviðurkenda rúgmj öli og hveiti.
Meiri vöruéæði ófáanleg.
S. I. S. slsziftir ©in.g'ön.g-a. "við olc'kiULr.
Seljum og mörgum öðrum íslenskum verslunum.
Smásöluverð á tóbaki
má ekki vera hærra en liér segir:
”V" ixxd_la.i?:
Carnen...................................50 stk. kassi á kr. 19,60
Phoenix A................................50 — — - — 16,25
Phoenix B................................50 — — - — 18,50
Phoenix C................................50 — — - — 19,75
Utan Reykjavíkur má verðið vera því hærra, sem nemur flutn-
ingskostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó ekki yfir 2°/0.
La.ncisvex'slTJ.xx.
Kjöttunnur,
alt til beykisiðnar, smjörkvartél o. s. frv. frá stærstu beykissmiðju í
Ðanmörku.
L. Jacobsen,
Köbenhavn Valby.
Höfum í mörg ár selt tunnur til Sambandsins og margra kaup-
manna.
hafði fengið hjá hinum liörundsbjarta
keisara í Liberiu, um leið og keisarinn
fékk honum sverðið og spottann. Hans
Framúrskarandi heit létu nú æðsta
mann hinnar lútersku, bannfærðu
uppreistarkirkju standa við hásætið og
benda fulltrúum stórveldanna að
koma. Talaði kardínálinn af framúr-
skarandi lítillæti og þó djúphygni, við
hvern þeirra. Við Axel Tulinius mint-
ist hann á það, sem sem sendiherra
Portúgals hefir sagt við eitt danskt
blað, að verslun Portúgalla hafi stór-
um aukist hér, einkum allar tegundir
af sprútti, síðan Axel tók við völdun-
um. þótti Axel lofið gott, því að hann
hefir lítið fengið af því siðan hann
fékk eftirlaun sem sýslumaður, til að
bæta upp þau 30 þús., sem hann ann-
ars hefir í tekjur og laun. Við Ólaf
Proppé talaði kardínálinn um það,
hvort Landsverslunin myndi hafa olíu
frá Mexico, og taldi Proppé það vera
— fyrir sitt tilstilli. Við Pál talaði
kardínálinn ýmist um liinar svörtu
brúðir í Liberiu eða Fordbílana, sem
hann sagðist taka fram yfir allar bif-
reiðar. Jafnvel bíll apótekarans, sem
væri keyptur fyrir hálfar tekjurnar af
veikindunum á Bergstaðastíg, kæmist
ist ekki í hálfkvisti við Fordana. þótti
Páli lofið gott, sem von var, þar sem
ekki þurfti að leggja „merði“ til papp-
ir undir það. Að lokum kom ræðismað-
ur Nikulásar II. Rússakeisara. Sagði
hann, að nú væri von um, að hann
gæti tekið hér til óspiltra málanna að
vinna fyrir keisarann; hefði hann í því
skyni látið Stein Emilsson fá þrjár
auglýsingar í pésa Bjöms, enda hefði
hann nú algerlega flæmt landsins
eina Gýðing, Natan, úr firmanu Natan
og Olsen, suður fyrir Miðjarðarlínu.
Taldi hann Stein afarkröftugan, enda
stæði Gyðingum hvarvetna um heim
mikill stuggur af veldi hans. Síðan
kom hver stórhöfðinginn af öðrum, og
voru skifti þeirra og tal alt til dýrð-
ar hinu „bundna“ fullveldi. Hans
Framúrskarandi heit rétti hverjum af
hinum tignu gestum hægri höndina, og
skyldu þeir kyssa á hringinn mikla.
En Guðm. Sveinbjömsson, endurskoð-
andi í áfengisverslun ríkisins, hafði
gleymt að skila til Sigurðar að allir
ættu að kyssa á hringinn. Urðu nú að
þessu einu veisluspjöllin, því að hinir
herklæddu útsendarar stórveldanna
gripu í hönd kardínálans og heilsuðu,
lítið grunandi, að einmitt svona má
kyssa þá, sem aldrei mega kyssa sjálf-
ir. Að lokum stóð Páll upp og árnaði
landinu og fullveldi þess allra heilla.
Sagði hann að Liberiukeisari fylgdist
vel með öllu liér, og þætti gott í hvert
skifti sem Fordarnir yrðu ofan á
Whitebílum Garðars. Væri hér engin
vöntun nema það, að hafa ekki Jón
Magnússon við hendina, bæði til að
þakka kardínálanum fyrir rigningam-
ar og til að láta Hans Framúrskarandi
heit skera úr, hvort danski stórkross-
inn eða Lazarus væri fínni.
Kaupandi BJarma.
-----O----
Frh. af 1. síðu.
og sú, sem knýr bóndann til að
óska eftir háu verði fyrir kjöt og
gærur, og síldarstúlkuna til að von-
ast eftir háu kaupi á Siglufirði.
það er barátta stéttanna um brauð
ið. Eitt ofboð saklaust mál kom til
umræðu í sameinuðu þingi í vetur,
sem sýnir afstöðu M. P. í embætta-
málum. það átti að demba alóhæf-
um manni sem lækni í Reykhóla-
hérað. Allir þingmenn vissu hvað
til stóð. Við Hákon í Haga komum
með þingsályktun, sem trygði lág-
marksöryggi borgaranna gagn-
vart veitingarvaldinu og mishæf-
um umsækjendum. Kjósendur í
hverju læknishéraði áttu að hafa
rétt til, samkvæmt tillögunni, að
mæla með þeim hæfasta af um-
sækjendum og móti þeim óhæfustu
og landsstjórnin að vera skyld til
að taka það til greina. Hver sann-
gjarn maður, sem leit á embættis-
mennina eins og þjóna þjóðfélags-
ins, hlaut að vera með þessu. En
hver sem leit fyrst og fremst á
hagsmuni starfsmannanna, jafnt
þeirra hæfu sem óhæfu, hlaut að
vera á móti henni. Magnús Pét-
ursson var aðalverjandi embætta-
stefnunnar í þessari misskyldu
i mynd. Og eg held að eg geri hon-
^um ekki rangt til, þótt eg segi, að
hann hafi jafnan á þingi tekið í
sama streng. Hann er ákveðinn
varnarmaður embættisvaldsins,
eins og sr. Tryggvi er óhvikull for-
mælandi bændastefnunnar.
3. t Skólabreytingin á Akureyri.
Framsóknarflokkurinn allur og
nokkrir menn aðrir fylgdu eftir
megni fram þeirri kröfu að skól-
inn á Akureyri yrði gerður að sex
bekkja mentaskóla, í stað þess að
hann er nú 5 bekkja gagnfræða-
skóli. Að sama skapi, eða jafnvel
meira, hefði þá mátt minka skól-
ann í Reykjavík. par verða nú 3
efri bekkirnir þrískiftir í vetur,
það eru níu alls, og nemendur mik-
ið á þriðja hundrað. Hefir skólinn
vaxið með risaskrefum á síðustu
árum, upp úr sínum gömlu fötum,
án þess að þingið og stjórnin hafi
tekið eftir, og er þó kostnaðurinn
orðinn mikill, og óhjákvæmilegt að
bæta við dýrum byggingum í ná-
inni framtíð, nema ef þessi breyt-
ing nær fram að ganga. þó er hitt
verra, að Reykjavík er orðin svo
dýr bær, að fátækum námsmönn-
um, sem ekki eiga foreldra í
Reykjavík, er eiginlega ókleyft að
stunda þar nám í mörg ár. Af
þessu leiðir, að Reykjavík fyllir
embættaskólana og embættin, að
viðbættum einstöku efnamanna-
sonum úr öðrum landshlutum.
Samkvæmt þessu verða önnur at-
riði, heldur en gáfur og manndóm-
ur, sem ráða því, hverjir veljast í
hin opinberu störf hér á landi.
Efnalitlu, gáfuðu piltunum úr
sveitunum, sem hingað til hafa ver
ið úrvalið í mentamannastétt
landsins, er bolað frá tækifærum
til að nema, vegna dýrtíðar í Rvík.
Á Akureyri er til ágætt skóla-
hús með 5 bekkjum. þurfti ekki að
bæta við nema einum. þar er
heimavist fyrir 40—50 nemendur,
og heppilegt húsrúm fyrir sam-
mötuneyti. Á Akureyri er nú ekki
dýrara að búa, í heimavist, en svo
að hver hraustur piltur getur
staðið straum af vetrardvöl, með
sumarkaupi sínu, með lítilli eða
engri viðbót. Með því að fækka
bekkjum í Rvík, og bæta einum við
á Akureyri, verður mögulegt að
gefa hinum fótæku en þroskuðu
efnispiltum, sem fæðast utan
Reykjavíkur, tækifæri til að búa
sig undir háskólanám.
Kaupmannaflokkurinn var ná-
lega óskiftur móti þessu frv. Rvík
er þung á metunum hjá þeim, en
hagsmunir sveitanna léttir. Magn-
ús Pétursson var einn af þeim, sem
gekk hér á móti sjálfsögðum rétti
hinna dreifðu bygða út um landið.
4. Áfengismálið. þar eru skift-
ar skoðanir milli þeirra sem vilja
halda áfenginu sem mest í skefjum
og hinna, sem vilja gefa því laus-
an tauminn. Magnús Pétursson
veitti bannlögunum eitt dýpsta
sárið með læknabrennivíninu. Mér
er ókunnugt um, að hann hafi mis-
notað leyfið sjálfur. En fáeinir aðr-
ir læknar hafa gert það, þjóðinni
til óbætanlegs tjóns og minkunar.
Skoðanir ritstjóra Tímans viðvíkj-
andi áfengismálinu, munu vera
allri þjóðinni kunnugar. Andstað-
an milli hans og M. P. í því máli
er svo glögg, sem framast getur
verið.
Eg álít ekki, að hr. Magnús Pét-
ursson hafi valið óheppilegri leið-
ina í öllum þessum málum (og þau
eru aðeins tekin sem sýnishorn)
sökum skorts á greind eða þekk-
ingu. Heldur ekki af illum vilja.
Hann hefir eins og rétt er og eðli-
legt farið eftir sannfæringu sinni.
það sannar ekki að hann sé óhæf-
ur til að sitja á þingi. En það sann-
ar, að hann er ekki eðlilegur full-
trúi fyrir bænda- og samvinnu-
kjördæmi, eins og Strandasýslu.
I öllum þessum málum hefði ver-
ið eðlilegra að fulltrúi Stranda-
manna fylgdi Framsóknarmönn-
um. þar er líklega enginn bóndi í
allri sýslunni, sem hefir hag aí
öllu því fargani, sem ólagið á hlut-
hafastjórn íslandsbanka hefir leitt
yfir landið: Uppgjöfum til spekú-
lanta, verðfalli á ísl. krónu, aukinni
dýrtíð, hækkandi vöxtum o. s. frv.
Sennilega er heldur enginn bóndí
eða bóndakona í sýslunni, sem hef-
ir hag af því að hægt sé að útiloka
þá umsækjendur frá embætti, sem
hlutaðeigandi héraðsbúar vilja
helst fá. Enn óskiljanlegra er, að
hérað eins og Strandir, sem fóstra
upp mjög marga gáfaða og nám-
hneigða menn, óski eftir að slíkum
mönnum sé gerð illfær gatan að
langri skólagöngu og embætta-
námi. Og eitthvað svipað mun
mega segja um baráttuna gegn
misnotkun áfengis.
Sannleikurinn er sá, að í stjórn-
málalífinu hér á landi eru þeir sr.
Tryggvi og Magnús Pétursson
traustir málsvarar hvor fyrir sinn
flokk. Annar trúir á og vill vinna
að framgangi bændastéttarinnar
og bændamenningar. Hinn er fylgj-
andi stefnu hinna svokölluðu fé-
sýslumanna í bæjum og kröfu
harðra embættismanna. Ef sr.
Tryggvi verður þingmaður
Strandamanna næstu 4 ár, er það
af því, að meiri hluti bændanna
þar sannfærast um það, sem er, að
hann er þeirra skoðanabróðir og
heppilegur málsvari. Ef Magnús
nær kosningu enn, er það fyrir
persónulegan kunningsskap og vel-
vild frá því hann var þar læknir,
þrátt fyrir það, þótt skoðanir
hans séu ekki í samræmi við skoð-
anir og hagsmuni héraðsbúa. Ef
Magnús Pétursson skildi jafnvel
eðli sitt og lundarfar eins og sr.
Tryggvi, ætti hann að leita sér
kjósenda þar sem hann hefði fast-
an flokk öruggra skoðanabræðra.
það þyrfti að vera kjördæmi, þar
sem embættismenn og sýslunar-
menn landsins væru fjölmennir og
áhrifamiklir. Ennfremur mætti
gæta allmikið fésýslumanna, eins
og þeirra, sem Islandsbanki hefir
hingað til skift við aðallega. það er
enginn vafi á, að slík kjördæmi eru
til, og vantar meira að segja fram-
bjóðendur af þessu tægi nú sem
1 óskilum í Deildartungu er
brúnn hestur fullorðinn. Mark: biti
aftan hægra, fjöður aftan vinstra
og bleik-blesóttur hestur ungur.
Mark: sneitt aftan hægraogsýlt
vinstra.
stendur. Svo verður væntanlega
einnig framvegis. þeir fáu kaup-
menn, sem til eru í Strandasýslu
og persónulegir kunningjar lækn-
isins þar geta því skynsamlega bú-
ist við að hann geti starfað fyrir
sína stefnu á þinginu, fyr eða síð-
ar, þótt hann hætti að vera fulltrúi
samvinnubændanna í Stranda-
sýslu. J. J.
---o---
Yfir landamærin.
Kaupmenn í Reykjavík sumir eru
þrautleiðir orðnir á pésagerð M.
Guðm., en viðurkenna þó að hann eigi
skilið pappírinn fyrir „viðleitnina".
Mbl. heldur að einn Framsóknar-
maður hafi getað svæft alt Moggadót-
ið á Akureyri með þvi að lýsa hvern-
ig samkepnismenn hafa hrjáð landið.
þessi lýsing ætti þá að hafa haft sömu
áhrif eins og hinn nafnkunni hljóð-
færasláttur í suðrænni goðasögu, sem
svæfði heilan dýragarð.
Rangt er það hjá blaði hér í bænum
að vilja hafa Magnús sýslumann
Sunnmýlinga af Mogga. Maðurinn er
búinn að hreiðra sig þar í skjóli Sam-
einuðu verslananna.Hver annar myndi
vilja fóstbræðralag við Sig. Kvaran?
Sig. Kvaran þykir mjög gjarn á
hreystisögur. Sendi í fyrra fréttaskeyti
frá þinginu til Eskifjarðar. Við flesta
atburði var hnýtt orðunum: „Fyrir
mitt tilstilli". Einn af andstæðingum
Sig. sendi honum þá eitt sinn svohljóð-
andi skeyti, undirritað með skírnar-
nafni: „Kær kveðja frá Eskfirðingum.
þökkum yðar tilstilli.Meðul lækka stór
um í verði á Eskifirði, fyrir mitt til-
stilli". Kvaran þótti grána gamanið, ef
andstæðingur hans einn hinn helsti
væri farinn að lækka söluverð i lyfja-
húð iians. Og alt skeytið þótti honum
spélegt. Eftir það komu engin skeyti
til Eskfirðinga, „fyrir tilstilli" Sig-
urðar.
B. Kr. er sá eini af þingmönnum
Mbl.flokksins sem nú þorir að kannast
við blaðið fyrir kosningar. Skrifar
liann í það undir nafninu „sveitamað-
ur“ samtal um samábyrgðina, sem er
nákvæmlega jafnviturlégt eins og sam-
töl þau, sem hann bjó til um gjald-
keramálið í Landið forðum.
Steinn einkaritari Björns lýsti ný-
lega við einn mann Gyðingahættunni.
Gyðingar ættu nú 80% af öllum auði
lieimsins. En menningin væri öll
geymd hjá þeim, sem eiga 20%. Gyð-
ingar vilja ólmir ná í þetta litla sem
eftir er og drepa með þvi menning-
una. Steinn skoðar nú hlutverk sitt og
Björns að verja þennan fimtapart móti
ásóknum Gyðinga. Skyldi verslunin
V. B. K. vera hrædd við veldi Natans?
Ekki iiefir enn komið skýring um
það, hvort B. Kr. ætlar að láta Stein
útrýma minningunni um Krist úr
heiminum. Hann var þó víst Gyð-
ingui'.
B. Kr. er auðsjáanlega illa við það,
að forstjóri Sambandsins skyldi, með-
an hann lá banaleguna, ítreka þá ósk
sína, að B. Kr. yrði látinn standa við
níðrit sitt um Sambandið fyrir dómi.
Og Björn leyfir sér þá ósvinnu, að
halda því fram, að liann viti betur
hvað Hallgrímur Kristinsson talaði við
þá, sem stunduðu liann síðustu dag-
ana, heldur en þeir. Alt er eftir þessu
íijá Birni. Verður minst á skrif hans
síðar.
-----o-----
Ritstjóri Tímans brá sér vestur
á Snæfellsnes um miðja vikuna.
Kemur aftur heim um miðja næstu
viku.
Morten Hansen skólastjóri er ný-
látinn. Hann dó úr taugaveiki.
Ritstjóri: Trjrg^vi frórhidl—oa.
Laufási. Sími 91.
PreaiUmifija Aata h/1