Tíminn - 25.08.1923, Page 4
110
T 1 M 1 N N
Auglýsing
um iarkennarastöður.
.Það kunngerist hérmeð, að farkennarar verða á komanda hausti
hvergi skipaðir, nema í þeim fræðsluhéruðum, sem hafa fullnægjandi
skólahús, heldur verða þeir enn settir. Fræðslunefndir skulu hafa sent
tillögur um setningu í stbðurnar til fræðslumálastjóra fyrir 15. sept.
næstkomandi.
í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 11. ágúst 1923.
Síg. Eggerz.
Big-f. M. Johnsen.
Smásöluverð á tóbaki
má ekki yera hærra en liér segir:
"V" ixxdlsLr:
Torpedo ...............50 stk. kassi á kr. 20,75
Naseo Princossas.......50 — — - — 20,75
Americana..............50 — — - — 13,80
Nasco..................50 — — - — 13,25
La Diosa...............50 — — - — 11,00
Utan Reykjavíkur má verðið vera því liærra, sem nemur flutn-
ingskostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó ekki yfir 2%.
Landsverslun.
Ráðskonustaða
við fyrirhugað mötuneyti 50—60 námsmanna í Reykjavík, er tekur til
starfa um miðjan október, er laus til umsóknar. Umsóknir sendist,
fyrir 10. september, til Ásgeirs Ásgeirssonar kennara í Laufási, sem
veitir nánari upplýsingar.
Til kaupfélaga!
H.f. Smjörlikisgerðin í Reykjavík er stofriuð í
þeim tilgangi, að koma hér á smjörlíkisframleiðslu, sem geti fyllilega
jafnast á við samskonar iðn erlendis, bæði hvað gæði og verð snertir.
Eflið íslenskan iðnað.
Biðjið um, Smára‘- smj örlíkið.
Leidavþing.
Eg undirritaöur boða hér með til leiðarþings fyrir kjósendur í Árnes-
yýslu að Ölfusárbrú sunnudaginn 9. sept. næstlcomandi. Annað fyrir kjósend-
ur í Rangárvallasýslu sunnudaginn 16. sept., að Stórólfslivoli, og hið þriðja
fyrir kjósendur í Vestur-Skaftafellssýslu sunnudaginn 23. sept., í Vík í Mýrdal.
Fundirnir hefjast kl. 12 á hádegi.
Á þessa fundi leyfi eg mér að bjóða sér i lagi fyrverandi þingmönnum
j>essara kjördæma. Ennfremur nokkrum öðrum mönnum, sem í blöðunum
eða öðruvísi hafa verið taldir liklegir sem frambjóðendur í þessum kjördæm-
um við kosningarnar nú i haust. Að Ölfusá: sr. Gísli Skúlason á Hrauni, sr.
lngimar .Tónsson á Mosfelli, Jörundur Brynjólfsson bóndi í Skálholti, Magnús
Torfason sýslumaður og Sigurður Sigurðsson ráðunautur. Að Stórólfshvoli:
sr. Eggert Pálsson á Breiðabólsstað, Einar Jónsson bóndi á Geldingalæk,
Guðbrandur Magnússon kaupfélagsstjóra i Hallgeirsey, Guðmundur bóndi Er-
lendsson á Núpi, Guðmundur bóndi porbjarnarson á Hofi og Skúli Tlioraren-
sen bóndi á Móeiðarhvoli. Á fundinn i Vík: Jón Kjartansson málfærslumaður
í Reykjavík.
Reykjavík 25. ágúst 1923.
Jónas Jónsson, frá Hrifiu,
5. landskjörinn þingmaður.
Frh. af 1. «ÍOu.
vér komumst að raun um að þeir
hafi gott af þeim, verði drengir að
betri og ekki eins gjamir á að
pretta Indíána þá skulum vér aftur
taka upp þessi mál.
Bróðir! þú hefir nú heyrt svar
vort við ræðu þinni. Fleira höfum
vér ekki að segja að sinni. Vér
munum nú rétta þér höndina að
skilnaði og vonum að hinn mikli
andi haldi vernd sinni yfir þér á
leiðinni, svo þú náir heill á húfi
heim til vina þinna.
Á. Á. þýddi.
;---C---
Stórbruni
í Birtingaholti.
Aðfaranótt hins 18. þessa mán-
aðar varð stórbruni í Birtingaholti
í Árnessýslu. Brunnu á stuttum
tíma fjögur hús sambygð: hlaða,
fjós, haughús og skemma. Voru í
fjósinu 14 nautgripir, brunnu 8
inni, en 6 björguðust út um haug-
húsið. Er vafalaust að reykur en
ekki bruni hefir orðið kúnum að
bana sem inni brunnu, því að þess
sáust merki að þær höfðu legið
óhreyfðar á básum sínum. Og tveir
af sex nautgripunum sem út kom-
ust lifandi, höfðu fengið lungun
svo eyðilögð af reyk, að þeim var
slátrað. I hlöðunni voru um 500
hestar af heyi. Tókst að bjarga
mestu af því, en giskað á að um
100 hestar hafi skemst og brunn-
ið. Grjót og torfveggur hlífði þvi
að íbúðarhúsið brann ekki líka.
Engin slys eða meiðsli urðu á fólki
við brunavömina. Líklegast er tal-
ið að upptök eldsins stafi af því að
neisti hafi falist í ösku sem borin
var í flórinn.
Húsin voru vátrygð í vátrygging-
arfélagi sveitarinnar. En þau voru
lágt vátrygð, enda gömul virðing
á þeim. Er áætlað að beina tjónið
nemi um 10 þús. kr.
Víða að af landinu munu hinu
rr erka Birtingaholtsheimili berast
hluttekningarkveðjur vegna þessa
sorglega atburðar.
o-
Frh.
VoriS 1921. Vorið 1921 er eitthvert
merkilegasta og um leið sorglegasta
tímabil, sem liðið hefir yfir þetta land.
Nýafstaðið var síðasta þingið sem þeir
sátu J. M. og M. G. Hafði afgreitt ein
gálausustu fjárlögin sem afgreidd hafa
verið frá alþingi íslendinga. Hafði
kastað innflutningshöftunum fyrir
bcrð. í augum útlendra þjóða var ís-
land álitið gjaldþrota, eða við það, því
að fjárkreppa íslandsbanka stóð þá
sem allra hæst og getuleysið að yfir-
færa peninga til útlanda. J. M. fór þá
ti: Danmerkur til þess að taka lán.
Iiann kom heim aftur með bogið bak.
Hann hafði fengið hryggbrot eða svo
harða kosti, að ekki var við lítandi. Og
loks bættist Spánarmálið ofan á alt
annað. Ekki annað fyrirsjáanlegt en
að aðalframleiðsluvara landsins yrði
óseljanleg. Aldrei hefir útlitið verið
svo svart um afkomu íslands í þeirra
manna minnum, sem nú lifa. — En J.
M. og M. G. voru ekki að hugsa um hið
alvarlega ástand þjóðarinnar. Athafnir
þeirra benda a. m. k. i alt aðra átt.
þessa sömu daga voru þeir að stofna
til iburðarmikils veislufagnaðar, sem
þjóðinni var langt um efni fram að
láta í té slíkan. Enda var sá viðbún-
aður allur þvert á móti vilja hins tigna
gests sem hingað ætlaði að koma —
konungsins þessa fátækasta konungs-
ríkis Norðurálfunnar. Honum var það
ljósara en stjórnendum landsins
hversu illa fór á þessu, samtímis því
sem þjóðin stóð á öndinni og beið úr-
slitanna hvort hún myndi fá fé til að
kaupa fyrir brýnustu lifsnauðsynjar
og hvort hún gæti selt helstu afurðirn-
ar. J. M. og M. G. voru samtaka um
þetta, en þriðji ráðherrann, Pétur
heitinn Jónsson á Gautlöfidum, hafði
ekki skap til að vera viðstaddur. Hann
fór í sína síðustu kynnisför til átthag-
anna norður í þingeyjarsýslu og
dvaldist þar meðan þeir skemtu sér
J. M. og M. G.
„Meue tekel“. Vitanlega lá fyrir
heimild þingsins fyrir fjárveitingu til
konungskomunnar. Og M. G. afsakar
sig vitanlega með því. En er það gild
afsökun fyrir framferði hans og J. M.
á þessu minnisverða ári? Er nokkur
afsökun til fyrir þeirri gengdarlausu
eyðslu, krossaregni og prjáli, sem þá
var tiðkaö af hálfu landsins? það var
ekki eitt heldur alt, sem hvatti til að
v'ðtökumar yrðu fyrst og fremst hlý-
legar og virðulegar, en ekki iburðar-
miklar og af yfirlæti gerðar. það er
alkunnugt um öll lönd konungs vors,
að hann og drotning hans eru með af-
brigðum frásneydd eyðslu og íburði.
Við mörg tækifæri hefir hann látið
slíkt beinlínis koma fram opinberlega.
Hvernig átti lika ísland, strjálbygð-
asta land álfunnar, með 100 þús. íbúa,
að ætla sér að fagna erlendum þjóð-
höfðingja með veislum og íburði? —
Hinsvegar hið alvarlega ástand lands-
ins, sem um er rætt hér að framan.
Undir slíkum kringumstæðum skal
manninn reyna. þeir urðu þá endan-
lega vegnir og léttvægir fundnir J. M.
og M. G. Hver einasti alvarlega hugs-
andi maður i landinu hlaut að for-
dæma framferði þeirra, og var það
þó mest á móti slcapi þess manns, er
tilefnið var látinn gefa. — „Mene tekel"
var skráð yfir veisluborðum þeirra,
þetta síðasta vor sem þeim var trúað
fyrir fjármálum íslendinga. þeir hafa
verið margir, sem líkt hafa þeim
veislufagnaði við hina fornfrægu
veislu Belsasars í Babýlon, þá er
óvígur óvinaherinn beið við borgar-
hliðin. Margsinnis hefir Reykjavík
verið kölluð Rabýlon íslands. Hún
hefir aldrei verðskuldað nafnið eins
og vorið 1921. þegar hin allra mesta
alvara er á ferðum, fer verst á „glaðri
iðju, gullinveig og dýrum mat“. Komi
hann með „vottorð" fjármálaráðherr-
ann sem lét borga þetta með alþjóðar-
fé. Skjóti hann sér á bak við þingið
og þvoi hendur sínar Pílatusarþvottin-
um. það kemur fyrir ekki. þetta verð-
ur aldrei . af honum þvegið. Eins og
önnur Lady Macbeth verður hann að
því til æfiloka að þvo hendurnar.
„Myrk og þögul“ standa merkiri „Mene
tekel" skráð á höfði þeirra fyrir þá
vansæmd sem þeir gerðu íslensku
þjóðinni vorið 1921.
Frh. Tr. p.
-----O-----
B. Kr. lettar að gulli.
ii.
3. B. Kr. segir að Tímarit kaupfélag-
anna eigi að sjálfsögðu að halda sér
utan við stjórnmál. Hvaðan kemur
honum leyfi og myndugleiki til að
segja fyrir hvað „sjálfsagt" sé viðvikj-
andi Tímariti kaupfélaganna? Ekki á
hann neitt i því, eða yfir þvi að segja.
Og er ekki sjálfsagt fyrir samvinnu-
menn að verja sig gegn árásurn and-
st.æðinganna jafnt á landsmála sem
verslunarsviðinu? Elstu samvinnufé-
iög heimsins, þau í Bretlandi, hafa af
sömu ástæðu farið að taka þátt í lands-
inálabaráttunni. þau sáu, að annars
notuðu kaupmennirnir þjóðfélagsvald-
ið móti samvinnumönnunum. B. Kr.
ætti líka að segja „Cooperative News“
hvaða viðfangsefni það ætti að fást við.
4. B. Kr. segir, að framan af árum
hafi enginn amast við kaupfélögunum,
ekki einu sinni kaupmenn. þetta er
svo óskammfeilin staðhæfing, að varla
yrði búist við jafnmiklum ósannindum
frá B. Kr. Veit maðurinn ekkert um
ofsókn þórðar kaupm. á Húsavík gegn
Kaupfélagi þingeyinga, þar sem til-
ætlunin var að brjóta félagið á bak
aftur með hungurkúgun? Veit liann
ekki, að ein af ástæðunum til þess, að
Tímarit ísl. samvinnufélaga var stofn-
að, var einmitt sú, að blöðin voru ná-
lega öll, nema Fjalllconan, lokuð fyrir
kaupfélagsmönnum? Kaupmenn kúg-
uðu þau þannig með auglýsingavald-
inu og öðru. Að síðustu ætti B. Kr. að
minnast á alla þá úlfúð og ósannindi,
sem beitt var gegn hinum alþekta og
valinkunna ræðismanni Dana i New-
ciistle, Zöllner, af því að liann var um-
boðsmaður kaupfélaganna. B. Kr. tók
töluverðan þátt í árásunum á þá, en
þeir Pétur á Gautlöndum og Jón í
Múla kváðu Björn þá í kútinn, svo að
hann hreyfði sig ekki í möfg ár áeftir.
Nei. Fjandskapurinn gegn kaupfélög-
unurn hefir verið og er mikill frá liálfu
kaupmanna. Má sanna þetta með
dæmum úr verslunarsögu íslands, eða
hverrar annarar þjóðar, þar sem sam-
vinnunnar gætir verulega. Enda kem-
ur það beriega fram i grein B. Kr., að
hann álítur kaupmenn eiga neytend-
urna, liklega eitthvað með svipuðum
liætti og bóndinn á sauði, sem hann
klippir einu sinni á ári til að fá reifið.
5. B. Kr. er reiður yfir því, að eg liefi
eltki álitið heppilegt að taka gamla
kaupmenn til að stýra félögunum. Hon
um finst, að úr því að félögin svifti
kaupmenn „löglegri" atvinnu, þá eigi
að sjá fyrir þeim. B. Kr. hefir tekist
að fá þingið til að trúa þessu, að því
er hann sjálfan snertir. þess vegna fær
liann sín „öreiga“iaun. Ef þessari
kenningu væri beitt víðar, kæmi upp
úr ltafinu, að Landsbankinn ætti nú
að ala önn fyrir tveim nafnkendum
gæðingum B. Kr„ kaupmönnum i
Rvík, sem nú eru orðnir gjaldþrota.
II. Kr. lánaði þessum mönnum fé
landsins og landsmanna. þeir hafa
ekki getað rekið atvinnu sína þrátt
fyrir tiltrú B. Kr. og gengið frá skuld-
unuin. Björn mun vilja, að Lands-
bankinn sjái fyrir þessum mönnum
nú, úr því að borgararnir þurfa áð
sjá fyrir þeim kaupmanni, sem ékki
fær nóga „veltu" til að lifa af, sökum
þess, að fólk vill heldur versla við
kaupfélag í grendinni. B. Kr. ætti að
nota umboð sitt fyrir Gullbringusýslu
til að koma með frumvarp sem trygg-
ir framtíð allra gjaldþrota, óvinsælla
og ómögulegra kaupmanna. þessi elli-
tryggingarhugmynd B. Kr. er líkleg til
VETURVIST.
Tveir (eða 3) piltar, lielst menta-
skólamenn, geta fengið (í félagi) vet-
urvist á góðu heimili hér i miðbæn-
um. Stofa gegn suðri, 4X4 metrar, með
svefnherbergi 3,5X2,5 m„ fataklefa og
sérstöku fordyri, með rafljósi, hita,
hirðingu og húsbúnaði, nema rúmföt-
um. Verð 80—90 kr. á mánuði. Fæði hjá
húsráðendum, gott og óbreytt, með því
verði, sem i bænum gerist. Nánari fyr-
irspurnum má beina til ritstj. Tímans.
að halda minningu hans lengur á lofti
heldur en þótt gert væri af honum
líkneski úr „Svinhólakoparnum", eins
og Mbl. stakk upp á. Viðvílcjandi því,
hve heppilegt sé fyrir kaupfélög að fá
gainla kaupmenn til forstöðu, hefi eg
fært rök, sem elcki hafa verið hrakin.
Til skilningsauka má geta sér til, hve
skemtilegur kaupfélagsstjóri B. Kr.
myndi hafa verið, eftir að hann með
skinriaversluninni var búinn að þroska
hjá sér þá „einlægni“ í garð þess versl-
unarfyrirkomulags, sem skrif hans eru
vottur um.
----o-----
Eftirtektavert bandalag. Magn-
ús Gíslason sýslumaður Sunn-
Mýlinga var hér á ferð nýlega og
mun ráðinn til framboðs þar í
sýslu. Telur Alþýðublaðið hann hik
laust socialista og ekki er því mót-
mælt af Morgunblaðinu. Nú er það
alkunnugt, að þeir munu berjast
hlið við hlið við kosningarnar
Magnús sýslumaður og Sigurður
Kvaran, móti frambjóðendum
Framsóknarflokksins: Sveini Ól-
afssyni frá Firði og Ingvari Pálma-
syni frá Nesstekk í Norðfirði. Mun
mörgum þykja þetta bandalag
Morg-unblaðsins og Alþýðublaðsins
næsta einkennilegt. — það fer ekki
rétt vel á því hjá Morgunblaðinu að
vera að reyna að sverta Framsókn-
arflokkinn fyrir „óleyfilega sam-
búð“ við socialistana, en stofna svo
sjálft til beinharðs bandalags við
þá móti frambjóðendum Fram-
sóknarflokksins. Eru þau af þessu
auðsén heilindin hjá blaði þessu.
Ullartollur. Ritdeila er háð um
þessar mundir um steinolíueinka-
söluna milli Lárusar Jóhannesson-
ar skrifstofustjóra Kaupmanna-
ráðsins og Héðins Valdimarssonar
skrifstofustj óra landsverslunar.
Inn í þá deilu blandast umræður
um ástæðuna til þess að tollur á ís-
lenskri ull er hærri nú en var í
fyrra í Bandaríkjunum. Gefur Lár-
us 1 skyn, að ástæðan geti verið
steinolíueinkasalan, því að stjórn
Bandaríkjanna styðji Standard Oil,
sem nú hefir mist viðskifti hér á
landi. Héðinn neitar því, að þetta
geti verið ástæðan. Segir að ís-
lenska ullin hafi lent í öðrum toll-
flokki vegna þess að það hafi kom-
ið í ljós að hún hafi verið notuð til
annars en búist var við í fyrstu. —
Tíminn getur ekki skorið úr þess-
ari deilu. En hann vill beina þeirri
eindregnu áskoiun til landsstjórn-
arinnar, að rannsakað sé til fulls
hvernig standi á þessari tollhækk-
un eða breytingu á tollflokkun ull-
arinnar. þar sem mikið af ullinni
hefir undanfarið farið til Banda-
ríkjanna, hlýtur þetta að lækka
verðið. Og jafnframt þarf að at-
huga, hvort nokkuð væri hægt að
gera af íslands hálfu til að kippa
þessu í lag.
Larsen Ledet hinn alkunni for-
ystumaður Dana í bann- og bind-
indismálinu er væntanlegur hing-
að til bæjarins von bráðar. Mun
hann flytja hér fyrirlestra um það
mál. Er gleðilegt að eiga hingað
von á slíkum gesti.
Manntjón. Síðastliðinn mánudag
fórst bátur frá Skálum á Langa-
nesi. Voru 4 menn á bátnum og
druknuðu allir.
Ritatjóri: Tryggvi þórhaílseoo.
Laufási. Sími 91.
Prentamiðja Á«ta h/f.