Tíminn - 12.01.1924, Blaðsíða 3
T 1 M I N N
7
Yfirlýsing.
Af venjulegum velvildarhug til mín og umhyggju fyrir tímanlegri
velferð þjóðarinnar, hefir „Tíminnu fleirum sinnuin látið þess getið
fyrir munn sinna föllnu engla, að bændur „fyrir norðan“ séu óánægðir
og óvinveittir mér útaf því, að þeir hafi selt mér of ódýra hesta á
síðastliðnu sumri.
Án þess að eg hafi orðið þess var úr annari átt, heldur þvert á
móti ánægju yfir því, hve keppinautar mínir voru örir á fé á þeim
tímum og slóðum, er eg keypti hesta, gefur þetta mér tilefni til að
lýsa þvi yfir, að eg mun leitast við að gera bændurnar ánægðari og
vinveittari mér næsta sumar. Eg mun ekki þreytast að leita eftir betri
og víðtækari markaði fyrir hross og aðrar afurðir bænda, og mun eg
eftirleiðis, eins og að undanförnu, staðgreiða með peningum, það verð
sem um semst. En skyldu einhverjir fremur óska eftir greiðslu að
öllu- eða einhverju leyti í vörum, tímaritum, vikublöðum og þvílíku,
skal það útvegað af betra tagi, að minsta kosti 10 til 20°/0 undir
venjulegu kaupfélagaverði, eða liestarnir að sama skapi betur borgaðir
á „Tímau-vísu.
Garðar Gíslason.
---o----
Jafnframt því, að biðja hjermeð öll dagblöð og vikublöð landsins
að birta ofanritaða yfirlýsingu einu sinni, vænti eg þess, að „Tíminnu
geri svo vel að birta hana í þremur næstu tölublöðum, af sérstökum
áhuga fyrir málefninu, og treysti jeg honum til að gera mér nógu
liáan reikning fyrir kostnaðinum, svo eígendurnir þurfi ekki að naga
sig opinberlega í handarbökin. G. G.
inni, ái' eftir ár. Kaupfélögin hafa
hvcrt í sínu liéraði beitt sér fyrir að
minka eyðsluna. pess vegna standa
kaupfélagshéruðin nú best efnalega.
Kn kaupmannastéttin liefir sótt á að
flytja inn sem allra mest. í hennar
taumi hafa dansað flestir þeir, sem
Mbl. telur sína menn, þar á meðal
„eyðsluklóin mikla" með marðar-
tennurnar. Hann og lians lið hefir flú-
ið af hólminum, þegar þjóðinni reið
mest á. Hvað hefir Mbl. eða þess þing-
menn gert til að hindra óþarfan inn-
flutning? Ekkert. pess vegna eiga
þeir nú að játa sekt sína. peir bei'a
ábyrgð á hinum lióflausa innflutningi,
verðfalli krónunnar, og skuldabasli
landsins og landssjóðs. peir bæta nú
fráleitt fyrir sér með öðru en því, að
skifta um aðferð, og vinna í vetur að
þvi, aö framkvæma stefnu samvinnu-
bænda í innflutningsmálinu.
, \
Sparisjóðux Eyrarbakka.
Svo sem kunnugt er hafa samlcepn-
ismenn á Eyrarbakka komið stærsta
sparisjóð landsins í hið mesta öng-
þveiti. Nefnd, sem rannsakaði hag
lians, komst að þeirri niðurstöðu, að
varasjóður og 15% af innstæðunum
væri tapað. Vitanlega verður tapið
meira, ef sjóðurinn liggur lengi „dauð-
ur“ eins og nú. Sjóðurinn þrautreyndi
að fá lán iijá báðurn bönkunum, en
hvorugur þeirra vildi hjálpa honum,
eins og hag hans er komið. Nefndin,
sem innstæðueigendur kusu, hefir
komist að bráðabirgða samkomulagi
við stjórnina og Landsbankann. Bank-
inn vill tryggja innstæðueigendum
70% af lilutafénu og taka við útistand-
andi skuldum lians. Stjórnin leggur til
að landið ábyrgist næstu 10%, en að
innieigendur tapi 20%, ef tapið verður
það eða meira. Sparisjóðurinn hefir
liingað til lialdið uppi útgerðinni
eystra, og hefir veð i bátum og eign-
um útvegsbændanna. Meðan ekki er
útkljáð um sparisjóðinn, geta þessir
menn enga lijálp fengið, og hallæri
vofir yfir. Við borð lá, að samkomulag
fengist um að bjarga málinu fyrir hér-
aðið austanfjalls, á ofannefndum
grundvelli. pað varð þó ekki, fyrir til-
stilli þeirra manna, sem upprunalega
settu sparisjóðinn í vanda. Bíður mál-
ið nú þings.
Hallærið í Hafnarfirði.
Fiskiveiðalöggjöf sú, sem stjórn J.
M. undirbjó og kom gegnum þingið, er
nú að koma Hafnfirðingum á vonar-
völ. Stjórninni barst nýlega bænar-
skjal, undirritað af 800 manns í þorp-
klæði. Eg hefi nefnilega orðið
nokkra reynslu í því, hvernig
börnin koma frá kennurunum. Hér
eru yfirleitt góðir kennarar, og
kver kent í öllum skólum hér, nema
einum. En þar er kend barna-
biblía og hún kend alveg eins og
biblíusögur. Mér hefir því fund-
ist, að bömin þaðan hafi aðeins
vitað meira í biblíusögum en hin,
en hinsvegar farið á mis við trú-
fræði- og siðfræðikenslu kversins.
Vitanlega má um það deila, hvort
fermingarundirbúningurinn eigi að
vera með nokkrum trúfræðikeim,
en þar finst mér, að börnin verði
að fá einhverja nasasjón. Af þeim
útlendu kverum, sem eg hefi séð,
er þar alstaðar eitthvað í þá átt,
jafnvel hjá Únítörum (Savage). En
kennarastéttin er yfirleitt ekki svo
skipuð, að henni sé felandi kristin-
dómsfræðslan án þess, að kver eða
leiðarvísir fylgi með; því að marg-
ir kennarar hafa engan áhuga fyr-
ir þeim málum, þó að heiðarlegar
undantekningar séu til. Best væri,
að heimilin og prestarnir ættu ein-
göngu við kristindómsfræðsluna,
en það er víða ómögulegt vegna
vegalengdar.
Eg vildi því fá nýtt kver, stutt
og aðgengilegt, þar sem prestinum
væri gefið lítt takmarkað svigrúm
til eigin áhrifa á börnin, en biblían
væri aðal-grundvöllurinn.
Sálmabókina þarf vitanlega alla
að endurskoða. J>ar er áreiðanlega
helmingur sálmanna, sem aldrei er
notaður. Enda vantar þar svo
mikið af sálmum, sem þyrftu að
inu, um að breyta þessari löggjöf á
þann veg, að útlend skip mættu leggja
þar upp afla sinn. M. Guðmundsson
bar frv. frain. En auðvitað reyna þeir
félagar að koma ábyrgðinni eins og
endranær yfir á þann manninn í
stjórninni, sem dáinn er. Upptök frv.
eru þau, aö Ásgeir Pétursson og ein-
hverjir sildarverkunarmenn á Siglu-
firði, sem taldir eru starfa í þjónustu
síldarliringsins sænska, vildu bæta að-
stöðu sína með þessari löggjöf. Alt
var þetta búið í búning föðurlandsást-
arinnar. Við umræður málsins lítur út
fyrir að Mbl.menn vilji ekki hjálpa
Hafnfirðingum, lieldui' láta hallæri
eyða bænum, loka kjötmarkaðinum í
Noregi fyrir islenskum bændum, og
setja markað togaranna i Englandi i
liættu. Einn Framsóknarþingmaður,
nýkosinn, sagði, er liann varð var
þessarar kynlegu mótstöðu, að það liti
út fyrir, að sumir vildu ekki trúa, að
nein hætta væri á ferðum, nema ef
sendar væru beinagrindur af þrem
hordauðum mönnum, eins og fylgi-
skjöl með umsókninni. — Annars er
það skrítið, að um allar kosningar er
Mbl. og dilkar þess uppfull með hróka-
ræður um, að Framsókn vilji sliga og
eyðileggja sjávarútveginn. En þegar á
reynir og eittlivað er gert af viti fyrir
útveginn, þá verður Framsókn að
beita sér fyrir því. Svo var það með
steinoliuna, „pór“ i Vestmannaeyjum
og- landhelgisvarnirnar. Og þannig
virðist það vera með liallæriö í Hafn-
arfirði. Mbl.liðið sýnist ekki muna eft-
ir þörfum útvegsins, nema vikurnar
fyrir kosningar. Einn Mbl.maðui' hef-
ir nýlega verið að gera gys að ein-
stöku Framsóknarmönnum fyrir að
hafa trúað Magnúsi Guðmundssyni, er
hann lagði þennan „óburð“ fyrir
þingið. Mbl. hefir oft haft minna til
síns máls. pað er ekki ráðlegt fyrir
neinn að trúa þeim manni í stjórn-
málum, sem hefir sett tolltekjur lands-
in sem frekari trycjgingu lijá erlendum
Gyðingum, í viðbót við almenna
ábyrgð landsins. M. Guðm. hafði átt
einn góðkunningja í Hafnarfirði, sem
M. otaði fram við að koma fiskiveiða-
löggjöfinni á. Nú er sá maður svo að-
kreptur í Hafnarfirði, fyrir þessar
sakir, að hann kemur ekki á mann-
fundi. Er honum nú ljóst, á hvílíka
glapstigu hann hefir verið teygður af
þeim, sem liann treysti.
Póstkröfur.
Óskilvísi með blaðgjöld hefir lengi
brunnið hér við. Mikið þróast við það,
að ýmsir stjórnmálaspekulantar hafa
vera. T. d. er eg oft í standandi
vandræðum með sálma á eftir pré-
dikun, og guðspjallssálmar margir
eru sérlega lélegir. Verst er, að
„viðbætirinn" (150 sálmar) gat
ekkert bætt úr þörfinni, þótt ein-
stöku sálmur sé þar góður. En
fjöldi sálma, ágætra, er til hingað
og þangað, óprentað og prentað,
sem safna þyrfti saman. Og sum-
ir gömlu sálmarnir, sem nú eru í
bókinni breyttir (lagaðir!), hafa
verið stórskemdir. En ekki er
víst, að auðvelt sé að fá nú útgefna
endurskoðaða og aukna sálmabók;
líklega mætti það andmælum frá
ýmsum, og fjárhagurinn hjálpaði
þeim.
Prédikunartextar Helgisiðabók-
arinnar eru víða óþægilegir, t. d.
sunnudagana yfir hásumarið, hér
um bil tómar kraftaverkasögur,
en vantar marga texta, sem frekar
væru notaðir, svo sem bæði úr
bréfunum og Gml. Testam. Sjálf-
sagt hefir Iielgisiðabókin verið
stór endurbót frá því, sem áður
var, en þó er margt í henni almenn-
ingi jafnóskiljanlegt og áður. T. d.
veit eg, að útdeilingarorðin eru fá-
um skiljanlegri nú en þau voru í
gömlu handbókinni, en ef til vill
ekki eins hneykslanleg.
Sömuleiðis er ræða sú, sem les-
in er við jarðarfarir, þegar ekki er
kirkjuræða, mjög leiðinlegur lest-
ur, og þreytandi að hlusta á svo
samanþ j appaðar ritningargreinir,
sem illa eiga saman. Eiga ekki Eng-
lendingar gott greftrunar-ritual ?
Mig minnir það.
gefið út dægurflugublöð, dreift þeim
út yfir landið nokkra mánuði og svo
liætt. Nú er að koma meiri festa í
blaðaútgáfuna. pegar myndast ákveðn-
ir flokkar, skapast móthygð og fylgi
við blöðin. í fyrra gerði þingið kleift
að innheimta póstkröfur á liverri bréf-
hirðingarstöð. pað var fyrst og fremst
gert til að létta blöðunum innheimt-
una hjá þeim, sem vildu vera skila-
menn. Fyrir nokkrum árum reyndi
Lögrétta póstkröfuaðferðina. Gekk
víða vel, en sumstaðar illa. Menn mis-
skildu þetta og firtust við blaðið, a. m.
k. um stund. Nú eru öll blöð byrjuð að
nota póstkröfuna, nema þau, sem eru
dægurflugur og gefin eins og flugrit
B. Kr. En það eru blöðin, sem eiga að
skaða þá, sem gjöfina þiggja. Engir
nema betlilúkur óska að láta gefa sér
blöð fremur en mat. Skilamenn vita,
að blöðin kosta fé eins og önnur fram-
leiðsla. Skilamennirnir mega fagna
því, að geta borgað blöðin, sem þeir
vilja lcaupa, á næstu bréfhirðingar-
stöð. **
Annars er í þessum efnum víða
pottur brotinn og örðugt að finna
þann gullna meðalveg, sem allir
geta sameinað sig um. Fólkið sjálft
er á þessum tímum trúhneigt og
hugsandi, líklega meir en nokkuru
sinni áður. Kirkjusókn er víst að
batna víðast um land, þar sem á
annað borð er messað, og altaris-
göngum fremur fjölgar og mundi
fjölga meir, ef nokkuð verulegt
væri fyrir þær gert af prestanna
hálfu. Fórnfýsi fólksins og vinátta
í garð kirknanna er víða mjög mik-
il, hvort sem það er yfirgangandi
alda meiri menningar og alvarlegri
hugsunar, eða yfirlæti. Hér eru til
dæmis, sérstaklega í kaupstaðnum
og raunar í öllum söfnuðum mínum
engin takmörk fyrir því, hve menn
vilja skreyta kirkjurnar og gera
þær sem best úr garði. Kirkjusókn
hefir verið um 30% af söfnuðum
við hverja messu. par af kaupstað-
urinn langhæstur.
En þó nú svo sé, þá er yfirleitt
yfir mjög sundurleitan hóp að líta
þegar í kirkjuna er komið.
„Bjarma“-fólk er hér varla til, að-
ventistar fáeinir, spíritistar marg-
ir, og thesofar til, eða fólk, sem les-
ið hefir nokkuð af ritum þeirra.
Margir eru og þeir, sem þykjast
vera nýguðfræðingar eða frjáls-
lyndir; ýmsir þeirra eru menn, sem
myndað hafa sér einhverja yfir-
borðsskoðun í niðurrifsáttina, og
þá helst í þýskum anda......Við
þá kemur mér ekki alt af saman.
Hjá þeim kennir of mikillar efnis-
hyggju. Eitt sinn hneykslaði eg
Noregur og ísland
Nýkomið símskeyti hermir, að
norsku „málmennirnir" — sem
vilja gera sveitamálið norska að
ríkismáli, en það er miklu skyldara
íslensku en bókmálið norska, sem
hingað til hefir verið almennast
notað — hafi á ársþingi sínu skor-
að á stjórnina að stuðla að and-
legri og efnalegri samvinnu milli
Noregs annarsvegar og Færeyja og
Islands hinsvegar. Er því bætt við
í skeytinu að búist sé við að vinstri
manna flokkurinn norski taki þetta
atriði á kosningastefnuskrá sína.
Ekki er að efa hvert er tilefni
þessarar áskorunar. Annarsvegar
er það hin nýja stefna, sem sjálf-
stæðisbarátta Færeyinga hefir tek-
ið, en foringi þeirra í sjálfstæðis-
baráttunni, Jóannes Patursson
kongsbóndi hefir mjög ferðast um
Noreg nýlega, til þess að leita
trausts Norðmanna.
einmitt þá frjálslyndu, af því að
eg lagði áherslu á fortilverukenn-
inguna eftir Jóh. 1. og Filipp. 2,
5—11. pað fanst sumum of gam-
aldags og of „orthodoxt“.
Messuformið hjá okkur þarf
breytingar við. pað þarf að vera
tilkomumeira. Eg veit til þess, hve
margir eru stórhrifnir af að koma
í kathólsku kirkjuna einmitt vegna
þess. Og vitanlega er áhuginn hjá
fólki fyrir að skreyta kirkjurnar
mikið af þorsta eftir meiri hátíð-
leik í sjálfri guðsþjónustunni...
Hvað snertir friðþægingarkenn-
inguna og útskúfunarkenninguna
gömlu, þá eiga þær nú ekkert at-
hvarf í hugum fólksins. Enda er
svo hægt að sýna fram á „satis-
factio vicaria“ frá annari og feg-
urri hlið en Anselms. pað gjörir t.
d. Ragas ljómandi vel í prédikun
sinni á föstudag langa: „Stedfor-
trædende Lidelse“, og prófessor
Bang í „Om Forsoningen i Krist-
us“. — Fólkið getur einmitt svo
vel skilið friðþægingarlögmálið.
Útskúfunarkenningin r er svo
ókristileg, að fólk er vaxið upp úr
henni, jafnvel „Bjarmi“.
Og það, sem mest var út á yngri
prestana sett um tíma, að þeir lok-
uðu Helvíti og settu ekkert í stað-
inn, og sviftu því fólkið allri
ábyrgðartilfinningu, það heyrist
ekki nú. Til þess hefir meðal ann-
ars hjálpað grein Einars H. Kvar-
an í Morgni, sem hét, að því er mig
minnir: Myrkrið fyrir utan.
Líklega hefir sjaldan, eða ekki
síðan á siðbótatímum, verið meiri
Hinsvegar er tilefnið það, sem
milli hefir farið íslendinga og Norð
manna um kjöttollsmálið.
Er það augljóst, að áskorun
þessi er með einlægum og góðum
huga gerð í okkar garð íslendinga,
endu munu íslandsvinirnir norsku
flestir vera í hóp „málmannanna".
pessum tíðindum mun því al-
ment fagnað hér á landi og munu
talin góður fyrirboði samninganna
sem Islendingar a. m. k. munu
sækja fast að takist meðan þingin
sitja bæði, norska og íslenska
næstu mánuðina.
Og fátt væri öllum þorra íslend-
inga kærkomnara en að andleg og
efnaleg samvinna gæti verið sem
best milli landanna.
-----o----
Morgunblaðið. Sú fregn gengur
staflaust um bæinn, að kaupmenn-
irnir sem eiga Morgunblaðið, hafi
ákveðið að láta porstein Gíslason
fara frá ritstjórninni. Kunnugt er
að það hefir lengi verið í ráði, þótt
ekki hafi orðið úr fyr. Slitnar þá
vafalaust sambandið sem verið
hefir milli Morgunblaðsins og
Lögréttu, því þorsteinn mun enn
vera eigandi hennar og gefur þá
sjálfsagt út sjálfstæða. Er giskað
á, að kosningablað Magnúsar Guð-
mundssonar verði þá hin opinbera
bændaútgáfa Morgunbl. Ófrétt er
um hver verði nýi maðurinn sem
kaupmenn taki á mála við Morg-
unblaðsritstj órnina. Búast sumir
við að verði Árni frá Höfðahólum,
enda er hann ritfærastur í hópn-
um og ódeigastur til harðræðanna,
en af öðrum er það borið til baka.
Aðrir tala um einhvern danskan
pilt, sem verið hefir hér við versl-
un, og er það talið helst að skapi
hinna dönsku eigenda blaðsins, en
óvíst að þeir þori það. Loks giska
sumir á að hinn nýkosni þingmað-
ur Vestur-Skaftfellinga eigi að
taka þetta að sér, og því hafi af-
setning þorsteins dregist svo lengi,
að ekki þótti víglegt að frambjóð-
andi í bændakjördæmi væri orðinn
ritstjóri Morgunblaðsins.
Frost eru svo mikil nú í Dan-
mörku, að sjór er lagður í Eyrar-
sundi og langar leiðir norður í
Kattegat. Hafa ísbrjótarnir hingað
til getað haldið skipaleiðinni opinni,
með mikilli vinnu, en viðbúið er að
takist ekki lengur, haldist frostið.
vandi að vera prestur en nú. En
það hlýtur að fara að rofa til inn-
an skamms, úr þeim glundroða,sem
nú er; fólkið þarf bara tíma til að
átta sig og prestarnir að þora að
tala hver við annan um ágreinings-
málin. Hingað til hefir það ekki
mátt á Synodus, en líklega er það
góðsviti í þá átt, að þér fenguð að
tala þar síðast. — Eg vil skjóta
því hér að, af því að mér er um
það kunnugt, að sá fyrirlestur yð-
ar (prentaður í Eimreiðinni) hef-
ir vakið geysilega eftirtekt hér. ..
pá er eitt enn, sem vantar. pað
eru góðar hugvekjur. Sunnudaga-
postillur eru nógar til, og talsvert
notaðar, t. d. „Árin og eilífðin"
mikið hér. En daglegir húslestrar
eru að falla niður, og það mest fyr-
ir bókarleysi. Nefnd á að vera að
starfa að því að koma á prestahug-
vekjum. Hún er búin að sitja tvö
ár í vor — og hefir ekkert verulegt
aðhafst. pað, sem er að hinni háu
kirkjustjórn, er það, að henni hætt-
ir nokkuð til að horfa á það, sem
fjærst er, en gleyma því, sem
næst liggur........Munduð þér
ekki geta komið hingað einhvem
tíma og annaðhvort prédikað eða
helst haldið hér fyrirlestur? pað
veit eg, að marga langar til.
----o-----
Bæjarstjómarkosningar eru ný-
lega afstaðnar á Isafirði og Seyð-
isfirði. Á báðum stöðum sigmðu nú
þeir flokkar, sem undir urðu við
Alþingiskosningarnar.