Tíminn - 12.01.1924, Qupperneq 4
8
TlMINN
Gjöf Jóns Sigurðssonar
Samkvæmt reglum um „G-jöf Jóns Sigurðssonar“, skal hér með
skorað á alla þá, er vilja vinna verðlaun úr téðum sjóði fyrir vel
samin vísindaleg rit, viðvíkjandi sögu landsins og bókmentum, lögum
þess, stjórn eða framförum, að senda slík rit fyrir lok desem-
bermánaðar 1924 til undirritaðrar nefndar, sem kosin var á
alþingi 1923, til þess að gera að álitum, hvort höfundar ritanna séu
verðlauna verðir fyrir þau eftir tilgangi gjafarinnar.
Ritgerðir þær, sem sendar verða í því skyni að vinna verðlaun,
eiga að vera nafnlausar, en auðkendar með einhverri einkunn. Nafn
höfundarins á að fylgja í lokuðu bréíi með sömu einkunn, sem rit-
gerðin hefir.
Reykjavík, 9. janúar 1924.
Hannes Þorsteinsson. Jón Þorkelsson.
Sig'urður Nordal.
, Kaupið
íslenskar vörur!
Hrein®. Blautsápa
Hreini Stangasápa
Hreini Handsápur
Hreini Ke rti
Hrein£ Skósverta
HreinE Gólfáburður
Styðjið íslenskan
iðnað!
Framh. af 1. síðu.
langmest hafi þó óánægjan orðið þeg-
ar landið tók að sér steinoliuverslun-
ina. þetta eru forsendurnar. Síðan er
mest áhersla lögð á að afnema olíu-
verslunina og um það höfð sterk orð.
I endalokin koma svo fáein orð um
tóbakið, en sýnilega fylgir þar ekki
hugur máii. Sú áskorun er svo sem
fyrir siðasakir. En þar gleymist vínið
alveg, eins og ekkert væri í vegi með
það. Og þó er það fyrst í inngangs-
harmagrátinum. Um annað „verslun-
arólag" er ekki talað, alveg eins og
þetta væri eina viðskiftaböl almenn-
ings. Ekki t. d. minst á gengishrunið,
sem tekur nærri helming af hverri
krónu úr vasa hvers neytanda í land-
inu.
Hver hefir hag af að senda slíkt
hréf? Ekki víndrykkjumenn eða vín-
kaupmenn. þar er gefist upp. Tóbaks-
kaupmenn, sem vildu græða meir en
Landsverslun leyfir. það gæti verið.
En ekki eru kröfur þeirra aðalatriði.
Nei, það er steinolían, sem sendir bréf-
ið og biður sér liðs. Hver gæti haft hag
af breyttri steinolíuverslun hér? Ame-
riski hringurinn og þeir íslendingar,
sem gengið hafa í þjónustu hans.
Hinir eiginlegu bréfritarar eru þá er-
lendu gróðamennimir, sem á undan-
förnum ámm hafa selt olíu hér svo
dýrt, að þeir hafa, fram að þessu, ekki
átt sér nokkum málsvara i þinginu.
þeir sem gerast svo djarfir að vilja
ráðleggja íslensku þjóðinni, em auð-
menn í Ameríku og Danmörku, sem
gert hafa sitt til að koma vélbátaút-
vegnum í fjárhagslega örðugleika. það
verður gaman að sjá nöfn íslending-
anna, sem rita undir slíkt skjal.
2. það er ósatt, að óhug slægi á hugs-
andi menn landsins, þegar Alþingi
samþykti að hafa landsverslun með
áfengi og tóbak.
Varla mun nokkur maður, nema
brennivínssalarnir gömlu, liafa óskað
eftir almennri vínsölu. Með tóbakinu
voru, auk samvinnumannanna, marg-
ir kaupmannasinnar, af því þeir furidu,
að tekjur þurfti í landssjóð. Margar
erlendar þjóðir hafa einkasölu á tó-
baki, og láta kaupmenn það yfirleitt
hlutlaust. Sérstakur hagnaður fyrir
ísland að landsverslun með tóbak er
það, að miklu minna fé er bundið í
birgðum en áður var. þegar lands-
verslun byrjaði, sést, að þó víða væri
matvæla- og saltlítið, þá var hver
verslunarhola full af tóbaki og nógar
skuldir erlendis. Á þvílíku prangi féll
krónan og alt íslenskt verðmæti.
3. þá ætlar útlendi gróðahringurinn
að feta í fótspor forsetans mikla með
allsherjar mótmælum gegn lands-
verslun, af því danska verslunin hér
var að mörgu leyti óhagstæð. En að
líkja saman einokunarverslun Dana
á 17. og 18. öld og landsverslun ís-
lendinga á 20. öld, er svo mikið sögu-
legt gat, að það gera engir nema al-
ómentuðustu vesalingar þjóðarinnar,
eða spiltir menn, móti betri vitund.
Hvað var einokun Dana? þá hafði er-
lend þjóð alræðisvald yfir verslun ís-
lands, með þvi viðurkenda augnamiði
að láta gróðann lenda í Danmörku,
annaðhvort í ríkissjóði eða hjá gróða-
íélögum danskra manna. Höfuðein-
kenna einokunar Dana voru þessi:
a. íslendingar réðu engu um versl-
unarhættina. En fáeinir voru leppar
Dana.
b. Valdið yfir versluninni var er-
lendis.
e. Gróðinn rann allur úr landi.
d. Almenningur á íslandi var rétt-
laus gagnvart versluninni, og hataði
og fyrirleit hina erlendu kúgara, og þó
einkum íslensku leppana.
Samt má gera mun á tveim þáttum
í einokunarsögunni. þegar stjórn Dan-
merkur, þótt útlend væri og ókunnug,
rak verslunina, var hún langtum mild-
ari heldur en félög einstakra manna.
það voru dönsku gróðahringarnir, sem
sýndu hér mesta grimd og komu orð-
inu sérstaklega á verslunina og
kveiktu almenna óvild hjá íslending-
um móti erlendri verslunarkúgun.
Hvað er Landsverslun íslands nú?
Fyrirtæki sem þing í lýðfrjálsu landi
samþykkir að stofna til að hjálpa borg-
urum landsins í atvinnurekstri sin-
um. Borgaramir sjálfir ráða öllu um
fyrirkomulag verslunarinnar. Hún er
til vegna þeirra og undir eftirliti
þeirra gegnum þing og stjórn. Lands-
verslun Islands er jafn ólík verslun
Dana hér á 17. og 18. öld, eins og
stjómarfar Islands er nú ólíkt þáver-
andi stjórnarformi. þá var íslands í
framkvæmdinni réttlaust handbendi
erlendrar og ókunnugrar þjóðar. Nú
hefir þjóðin rétt til að stjórna sér sjálf,
ef hún hefir vit og manndóm til.
Iivernig var verslunin með steinolíu
áður en landið byrjaði með verslun
þjóðarinnar?
Að nafninu til var sú verslun frjáls.
En i verki var það fullkomin einokun.
Félag í fjarlægu landi hafði bæði tögl
og hagldir. það var ekki lögbundin
einokun eins og á 17. og 18. öld, heldur
hin fjármunalega einokun hringanna
á 20. öld. Einkenni steinolíuverslunar-
innar vom alveg hin sömu og fyr:
a. íslendingar réðu engu um versl-
unarhættina. En fáeinir landar voru þó
leppar útlendu eigendanna.
b. Valdið yfir versluninni var er-
lendis.
c. Gróðinn rann úr landi, nema það
lítilræði, sem lepparnir fengu, sumt
handa sér, og sumt máske til „verð-
launa" innanlands.
d. Almenningur á íslandi var um
verðlagið áhrifalaus og réttlaus. Og til-
finning almennings gagnvart hinum
erlendu gróðamönnum var almenn
óbeit og fordæming á verslunarlagi
þeirra. þessi óbeit er svo sterk, að
jafnvel kaupmenn á Alþingi, eins og
B. Kr., hafa átt samleið með öðrum
boi’gurum landsins í að hnekkja valdi
þessarar útlendu verslunar.
4. Ef þjóðinni væri alvara, að vera
sjálfstæð í raun og veru, þá er lands-
verslun með steinolíu, eins og nú hag-
ar til, hið mesta sjálfstæðismál. Nú út-
vegar landið útvegsmönnum olíuna
með því verði, sem lægst er á heims-
markaðinum á hvei’jum tíma. Og land-
ið skiftir við það eina framleiðslufélag
ei’lendis, sem er takmarkað í gróða-
fýkn sinni af eftirliti neytenda i stóru,
mentuðu landi. Ef landið sleppir
olíunni, er það sama og að ofurselja
valdið yfir versluninni og sjávarút-
vegi íslendinga i liendur áhyi’gðai’-
lausi’a, erlendra gróðamanna. Að
sleppa oliuversluninni nú, væri að
sanna það, að ísland gæti ekki verið
fullvalda nema á pappírnum. þá væri
sannað, svo að ekki yrði á móti mælt,
að meiri hluti borgaranna væri á svip-
uðu manndómsstigi og heldri menn í
Sviþjóð á „frelsisöldinni", sem þágu
til skiftis hlunnindi frá forráðamönn-
um eilendra stórvelda, og vantaði
seinast ekki hársbreidd, að þeir kæmu
þjóð sinni undir erlent vald, þegar
gi’iman var feld af framferði þeirra.
5. það er með öllu villandi, að telja
það sönnun móti landsverslun með
olíu, þótt heimildin væri gefin á
striðsárunum. Undirbúningurinn var
langur. 1912 lýsir í’áðheri’ann, Kr.
Jónsson, yfir, að eitt af því, sem þá
mæli með landseinkasölu, sé það, að
Standard Oil hafi í raun og vei-u ein-
okað olíuna hér á landi. þá um sumai’-
ið lxafði ameríski hringurinn hækkað
olíuna tilefnislaust um 5 krónur á
tunnu á einum degi. þótti það imkið
þá. Síðan vaknaði almennur áhugi að
bola Standard Oil úr landi. Fiskifélag-
ið reyndi að keppa, mikið fyrir for-
göngu Tr. Gunnarssonar. þá setti
hringurinn verðið niður fyrir innkaups
verð Fiskifélagsins, og það tapaði á
samkepninni. þá sannfærðist þingið
um, að landið eitt gæti reist rönd við.
En jafnframt var tekið fram, að ekki
skyldi nota heimildina meðan hætta
stóð af stríðinu. Eftir stríðið var verð-
ið á oliunni orðið óbærilegt fyrir vél-
bátaútgerðina. Landsverslun byrjaði
þá að keppa, og lækkaði vei’ðið hvað
eftir annað. Forráðamenn erlenda fé-
lagsins létu hvað eftir annað í ljós
megna gremju yfir lækkunum Lands-
verslunar, og undrun yfir hinu lága
verði.
6. þegar einkasölufrv. kom fram
1917, talaði B. Kr. fyi-st fyrir því. Tók
beinlínis fi’am, að landsverslun með
olíu ætti að standa lengi. Alls enginn
maður í þinginu tók svari ameríska
hringsins. Enginn maður í hvorugri
deild greiddi atkvæði á móti því. Öðr-
um þeim manni, sem hrundið hafði af
stað frv., Ben. Sveinssyni, fórust þann-
ig orð um ástandið með oliuverslun-
ina: „Vér höfum lent í einokunarklóm
og félagið, sem fyrir nokkru tók að sér
steinolíuverslunina og kallar sig „ís-
lenskt steinoliufélag", er eitthvei’t hið
illræmdasta félag, sem þekst hefir hér
um undanfarin ár, enda er ekki góðs
af von, þar sem félag þetta er ham-
skiftingur af D. D. P. A. og afspringur
af rót hins alræmda einokunarfélags
Rockefellers. Félagið setur mönnum
afarkosti, skuldbindur menn með
skriflegum skuldbindingum til þess að
versla ekki annarsstaðar, án þess að
setja nokkra tryggingu fyrir því, að
geta haft næga steinolíu, bregst meira
að segja algerlega að birgja landið að
olíu, þegar allra verst gegnir; félagið
lætur sér nægja að auglýsa, að það
eigi von á skipum þá og þegar, og var-
ar menn við að kaupa olíu annarsstað-
ar, en oft hafa þessi skip alls ekki kom-
ið og jafnvel sannast, að sumar þess-
ar auglýsingar voru blekkingar einar
til þess að aftra framkvæmdum ann-
ara að útvega vöruna“. Alþt. 1917, B.
738.
Og enn segir Benedikt Sveinsson um
þetta mál: „Hér er aðeins um það að
ræða að ná landinu úr einokunarklóm
hins illræmda danska svíðingafélags,
sem að vísu er nú farið að kalla sig
íslenskt, en er að engu íslenskara en
áður, þótt það hafi fengið hér nokk-
ura „leppa“, til þess að koma okurklón-
um betur fyrir.
Býst eg við, að einokun þessai’i verði
ekki hrundið, nema með þvi móti að
krókur komi á móti bragði, svo að
landsverslun komi í staðinn".
Alþt. B. II, 267 — 1916—17.
Loks má minna á ummæli Bjama
Jónssonar frá Vogi. Hann segir svo:
„Hvað viðvíkur grundvallarskoðuninni
um landsverslun, þá er eg ekki að
fullu sannfærður um, að rétt sé að
landið taki að sér alla verslun. Vil eg
þó ekkert af taka. En um hitt geta all-
ir verið sammála,....að þegar ein-
hvcr vara er einokuð af félagi, eða
einstökum mönnum, þá sé sjálfsagt, að
landið taki til sinna ráða, og hrífi
verslunina úr þeim okurklóm og kúg-
unar. Hér eru eigi önnur ráð, fyrst
allir eru sammála um, að hér sé ein-
okun, og kaupmannastétt landsins er
ekki sjálfstæðari en svo, að hún skrif-
ar með blóði sínu undir skuldbindingu
um að kaupa hvergi olíu, nema hjá
þessum kúgara og einokara. Fyrir því
tel eg það heppilegustu leiðina, að
landið taki að sér olíuversl. þegar
í stað“. Alþt. B. II, 269 — 16—17.
7. Svona var nú frelsið með olíu-
verslunina, þegar einkasalan var sam-
þykt. Nú biðlar Rockefeller til íslensku
sjómannanna og biður þá að gefa sér
meðmæli til þingsins. Og þau megin-
rök, sem knýja hann til framkvæmda
í þessu máli, er hin rótgróna óbeit
hans og Standard Oil á allri verslun-
areinokun og óeðlilegum verslunai’-
gróða, og í öðru lagi sérstök umhyggja
fyrir sjálfstæði íslands og lxinu dýr-
keypta fullveldi þjóðarinnar. J. J.
----0---—
Afmæliskveðja
á 40 ára afmæli Góðtemplararegl-
unnar.
pess ber að geta sem gert er.
pað má ekki minna vera en að hún
fái að koma fyrir almennings sjón-
ir um land alt kveðjan sem Páll
Stefánsson heildsali frá pverá
sendi Góðtemplarareglunni á 40
ára afmæli hennar.
Tilefnið það, að á þessum afmæl-
isdegi efndi Reglan til almenns
fagnaðar, sem lauslega er skýrt frá
í öðrum stað í blaðinu. Fram-
kvæmdanefnd hátíðahaldsins fór
þess á leit við kaupmenn bæjarins
að þeir lokuðu búðum sínum þessa
tilefnis vegna, og margir urðu við
þeirri beiðni. Sagði nefndin frá
þessu í dagblöðunum.
En Páll Stefánsson brást við á
sína vísu. Síðari hluta dagsins
sendi hann út fregnmiða um bæ-
inn, með mjög feitri yfirskrift, og
var hann borinn víða. Fer hann
hér á eftir með ummerkjum höf-
undar:
Eg loka ekki.
í Morgunblaðinu í dag 9. jan.
stendur tilkynning — eða þann
skilning legg eg í það — frá Gutt-
um, um að þeim þóknist að halda
þ. 10. þ. m. hátíðlegt goodtempl-
araskrall, — líklegast sem aðra
dýrtíðarráðstöfun — með kirkju-
göngu og viðeigandi gauragangi, í
40 ára minningu Goodtemplarafé-
lagsskaparins hér á landi, og í til-
efni þar af skora þeir á kaupmenn
að loka búðum sínum. En þar sem
þessi skrallsamkoma gutta er
kaupmannastéttinni alveg óvið-
komandi þá vonast eg til að þeir
sýni það í verkinu og láti sig hana
engu skifta, og hafi búðir sínar
opnar þann dag, eins og venja er
til. Enda er mér ekki kunnugt um
að kaupmannastéttin sem slík hafi
nokkra ástæðu til að sýna guttafé-
laginu nokkra hluttekningu frekar
en þjóðin í heild, því af öllum fé-
lagsskap sem á þessu landi hefir
stofnaður verið hafi enginn félags-
skapur verið þjóðfélagi voru til
jafnmikillar ógæfu, sem good-
templarafélagsskapurinn, enginn
Jbrð til sölu.
Jörðin Hellir í Ásahreppi í
Rangárvallasýslu fæst til kaups og
ábúðar frá næstu fardögum.
Á jörðinni er íbúðarhús 10X12,
hlöður sem taka 800 hesta, fjár-
hús sem taka 200 fjár, og hesthús
fyrir 40 hross, fjós fyrir 8 naut-
gripi. Öll eru húsin jámvarin.
Slægja er öll í Safamýri, og má
heyja alt að 2000 hestum.
Semja ber við Ingólf Sigurðsson,
Helli.
annar félagsskapur hefir komið
jafnmikilli ringulreið á þjóðfélags-
skipulag vort fyr en nú samvinnu-
kommunista-bolsevisma félagsskap
urinn og má svo heita að good-
templarafélagsskapurinn hafi ver-
ið forgengill fyrir þeirri þrenningu
og undirbúið þjóðarjarðveginn
fyrir þessari niðurdrepsstefnu.
P. Stefánsson
frá þverá.
Mun Páil telja sig hafa gert
kaupmannastéttinni „sem slíkri“
mikinn sóma með afmæliskveðju
þessari, enda stappar nærri að
hann telji sig tala í umboði hennar.
Iiún mun verða, afmæliskveðja
þessi, óbrotagjam minnisvarði yf-
ir hinum orðvara og sanngjarna
stillingamanni, heildsalanum frá
þverá.
Dómur sögunnar verður sjálf-
sagt sá, að miklu meira nytjaverk
liggi eftir umboðsmann Fords, fyr-
ir tekjur þær, sem hann hefir haft
af bifreiðasölu í landin, en eftir
fjörutíu ára bindindisstarfsemi
Góðtemplarareglunnar og allra
þeirra manna, er þar hafa starfað.
Eða hvað segir almenningur um
það, og kaupmannastéttin „sem
slík“ sérstaklega?
Gott væri líka gæti Páll gefið
nánari upplýsingar um kirkjr göng-
ur með „viðeigandi gauragangi“.
----o-----
40 ára afmæli átti Góðtemplara-
reglan í fyrradag. Var fyrsta stúk-
an stofnuð á Akureyri 10. janúar
1884. Mikið og ágætt starf liggur
eftir þann félagsskap. Mest varð
útbreiðsla hans um það leyti sem
atkvæðagreiðslan fór fram um
bannlögin, en dofnaði mjög fyrstu
bannárin og þótt dálítið meira fjör
hafi færst í starfið aftur, er ekki
enn komið á það lag aftur sem
skyldi. það liggur og ekki í láginni
að töluverður ágreiningur er í
sjálfum herbúðum Templara um
það, hvernig Reglan eigi að hegða
sér undir hinum breyttu kringum-
stæðum. — I tilefni dagsins stofn-
uðu Templarar til mikilla hátíða-
halda í bænum, skrúðgöngu, fyrir-
lestrahalds, guðsþjónustu og
mannfagnaðar. Voru margar búð-
ir lokaðar og hátíðabragur á bæn-
um, enda var veður hið besta sem
lengi hafði verið.
Enn um hrossaverslun. Garðar
Gíslason lætur halda því fram, að
liann hafi gefið 100 kr. meira fyr-
ir hest en Sambandið. Eigi hann
við hæsta verðið, sem hann gaf á
úrvalshestum sex vetra og lægsta
verð Sambandsins á úrkasts þre-
vetra tryppi, má þetta til sanns
vegar færa. En er þá frásögnin
ekki dálítið villandi ?
Sigurður Nordal prófessor flutti
erindi í Nýja Bíó á sunnudaginn
var og leiddi líkur að því að Völu-
Steinn, sonur puríðar sundafyllis,
er land nam í Bolungarvík, væri
höfundur Völuspár. Var það af-
bragðs vel samið erindi og merki-
legt og mun Tíminn segja nánar
frá þeim tíðindum síðar.
Ágætlega gengur ísfiskssala tog-
aranna enn á Englandi.
Ritstjóri: Tryggvi þórhallsson.
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðjan Acta h/f.