Tíminn - 31.05.1924, Side 1
<§>JaCb£eri
0$ afgtetfcslmúa&ur Cimans «
5igurgeir ^rifcrifsfon,
Samban&sfyástnu, Seffjaoif.
^feteifcsía
Íimaní er i Sambanöííjúíirai.
©ptn baglega 9—\2 f. íp
Sími V)6.
YIIL ár.
Reykjayík 31. maí 1924
22. blað
Sekur al sjálfs dómi.
Formaður Ihaldsflokksins kveður upp
dóminn um íhaldsmennina.
Hver á að dæma?
íhaldsflokkur var stofnaður á
Alþingi síðasta. Landsstjórnin er
Ihaldsstjórn. íhaldsflokkurinn er
fjölmennastur þingflokkanna.
Ihaldsflokkar eru til í öllum lönd-
um sem hafa þingræðisstjórn. Vit-
anlega þýddi nafngjöfin íslenska
íhaldsflokksins það, að hann ætlar
sér að fara að dæmi erlendra íhalds
flokka. íhaldsflokkurinn íslenski
hefir með nafninu sagt sig í lög
við þá.
Fer það að líkindum að almenn-
ing á íslandi varðar það mjög að fá
sem sannastar og réttastar upplýs-
ingar um eðli og einkenni slíks
flokks og flokka.
þjóðin á ekki að ganga þess dul-
in á hverju hún á von. þjóðin á
heimting á að fá að vita hvers eðl-
is þeir stjórnmálamenn eru, sem
fara með völdin í landinu.
Vitanlega er það skylda blaðanna
að láta slíkar upplýsingar í té. En
þá ríður á að það sé gert án þess
að máli sé hallað.
Nú gæti Tíminn flutt slíka lýs-
ingu frá eigin brjósti. En vera
mætti, þótt fullkomlega rangt væri,
að einhverjar skæðar tungur
segðu, að sú lýsing væri hlutdræg
og legðu því ekki trúnað á.
Enn gæti Tíminn flutt dóm út-
lendra stjórnmálamanna um íhalds
flokka og Ihaldsstefnu. Tala þeirra
ummæla er „legíó“. Mætti fá um-
mæli hinna allra frægustu þjóð-
skörunga. En enn gæti svo farið,
að menn væru tregir að trúa um-
mælunum, því að útlendur maður
færi með.
þessvegna verður nú hvorug
þessi leið farin um að fræða ís-
lenskan almenning um eðli og ein-
kenni íhaldsflokka.
Dæmt í eigin sök.
Vill svo vel til, að hvorki þarf
að leita í hóp útlendinga né and-
stæðinga íhaldsmanna hér, um að
fá skýran og ákveðinn dóm um
íhaldið.
Dómarann skal sækja í eigin
herbúðir Ihaldsmannanna.
Sjálfur formaður Ihaldsflokks
ins íslenska, Jón þorláksson f jár-
málaráðherra, skal leiddur sem
vitni í málinu.
Engum lifandi manni getur einu
sinni dottið í hug að Jón þorláks-
son halli á Ihaldsf lokkana er hann
dæmir þá.
Miklu fremur mætti ætla að
hann væri vilhallur undir íhalds-
stefnuna.
Ef það verður sýnt aftur á móti,
að hann, jafnvel hann, sjálfur for-
maður íhaldsflokksins, kveði upp
þungan áfellisdóm um íhaldsflokk-
ana, þá verður þeim dómi með
engu móti hrundið. þá munu allir
trúa.
Fyrir sextán árum.
Kosningarnar 1908 eru einhverj-
ar harðsóttustu kosningar sem
háðar hafa verið á Islandi. Undir-
búningur var langur og mikill
af hálfu beggja flokkanna sem
háðu þann hildarleik. Meðal ann-
ars samdi Landvarnarflokkurinn
stutta og ákveðna stefnuskrá sem
birt var í einu blaði hér í bænum
18. febr. 1908.
Út af þessari stefnuskrá komst
Jón þorláksson út á þá braut að
dæma alment um eðli og einkenni
Ihaldsflokka.
Hann flutti ræðu í stjórnmálafé-
laginu Fram 27. febr. þ. á. Ræðan
er birt í 9.—11. tölublaði Lögréttu
þ. á. par á allur almenningur nú
aðgang að þessari merkilegu ræðu
Jón þorláksson segir svo frá, að
síðari liðurinn í stefnuskrá Land-
varnarmanna hljóði þannig:
„Vér víljum styðja gætilega fjár
málastefnu, halda sparlega á landsfé
og steypa ekki landinu í skuldir.*)
Nánari útlistun á þessu er sú, að það
er „vegna þess, að flestir sjálfstæðis-
vegir verða jafnan lokaðir skuldugum
og háðum fátæklingum". (Lögrétta 9.
tbl. 1908).
þessi orð stefnuskrárinnai', svo
nauðalík orðum og hugsun stefnu-
skrár íhaldsflokksins nú, eni það,
sem gefa Jóni þorlákssyni tilefnið
til að kveða upp dóminn um íhalds-
flokkana.
Dómur Jóns þorlákssonar um
Ihaldsflokkana.
Dómur sá birtist í framhaldi
ræðunnar í 10. tbl. Lögréttu 1908
og fer hér á eftir orði til orðs:
„Eins og skýringarklausan („vegna
þess að flestir sjálfstæðisvegir verða
jafnan lokaðir skuldugum og háðum
fátæklingum") bendir til, er í þessum
lið tekin fram sú stefna í innanlands-
málum, sem stjórn Landvarnarflokks-
ins álítur þjóðinni vænlegasta til
sjálfstæðis. Og nafnið á þeirri stefnu
er ekki fortundið, því að hún á sér
marga formælendur í öllum þing-
stjórnarlöndum, þótt enginn hafi viljað
við hana kannast hér til þessa. þeir,
sem þessari stefnu fylgja í öðrum lönd-
um, kalla sjálfa sig íhaldsmenn, en
eru löngum nefndir af mótstöðumönn-
um sínum afturhaldsmenn.
íhaldsmenn semja í öllum löndum
stefnuskrár sínar þannig, að þær
gangi sem best í augu almennings, því
að á þvi veltur fylgið. þessvegna segja
þeir ekki: Við viljum enga nýja vegi,
ekki talsíma, ekki jámbrautir, ekki
hafnir, kærum okkur ekki um al-
þýðuskóla o. s. frv.; ef þeir segðu
þetta, fengju þeir sem sé lítið fylgi.
þeir segja aðeins sem svo: Við viljum
fara sparlega með landsfé, við viljum
styðja gætilega fjármálastefnu, við
viljum ekki hleypa okkur í skuldir.
þeir vita það ofur vel, að ef þeir geta
passað, að þjóðin komist ekki í lands-
sjóðinn, þá fær þjóðin hvorki alþýðu-
skóla, hafnir, járnbrautir eða annað
slíkt, sem hún telur sig þui'fa, en þeir,
íl.aldsmennirnir, halda, að hún geti án
vcrið. það eru venjulega hinir efnaðri
borgarar í hverju þjóðfélagi, sem fylla
ílialdsflokkinn; þeir erú ánægðir með
sinn liag, og finna þessvegna ekki, að
þörf sé breytinga eða bóta á hag þjóð-
arinnar, og vilja ekki láta heimta af
sér skatta í því skyni. Framfara- og
umbótaflokkana skipa aftur þeir efna-
litlu, sená finna að þjóðfélagið þarf að
gera margt og mikið til þess að bæta
lífsskilyrði alþýðunnar; sömu stefnu
fylgja og þeir meðal efnaðx’i manna,
sem einblína ekki á sína eigin pyngju,
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við fráfall og
jarðarför Jóns Gíslasonar bónda á Eystri-Loftsstöðum í Gaulverjabæjar-
hreppi. Ekkja og fósturbörn.
$ear?
ELEPHANT
CIGARETTES_.
Mest reyktar. Fást allsstaðar.
Smáseluverð 55 aura pakkinu.
THOMAS BEÁR & SONS, LTD.,
LONDON.
▼
J
♦
♦
♦
♦
♦
*) Allar leturbreytingar hér og síðar
í hinum tilvitnuðu orðum J. þ. eru
gerðar af honum sjálfum. Tr. þ.
lieldur hafa hag þjóðarinnar í heild
sinni fyrir augum“.
Síðar í ræðunni segir J. þ, enn:
„þetta er eyrnamark reglulegs aftur-
lialdsflokks, hverju nafni sem hann
kýs að nefna sig, vantrú á landinu, að
það svari arði, ef synir þess vilja kosta
upp á að hlynna að því, og vantrú á
þjóðinni, að hún sé fær um að nota
sér þær lyftistengur á leiðinni til hag-
sældar og sjálfstæðis, sem aflmestar
hafa reynst annarsstaðar".
Ekki myrkur í máli.
J>að er mikill kostur á formanni
íhaldsflokksins, Jóni Jiorlákssyni,
að hann talar og ritar venjulega
skýrt og ákveðið. Svo er og í þetta
sinn. Sannarlega er hann ekki
myrkur *' máli, þegar hann dæmir
íhaldið. Og þetta var á hans bestu
árum, meðan hann fylgdi hinum
djarfhuga framsóknarmanni Hann
esi Hafstein — sennilega eindregn-
asta andstæðingi íhaldsins í hóp
íslenskra stjórnmálamanna síðustu
mannsaldrana, að Jóni Sigurðssyni
einum undanteknum.
Tíminn getur fullkomlega sam-
þykt þennan áfellisdóm formanns
íhaldsflokksins, J. p., um íhalds-
stefnuna og íhaldsflokkana.
Og þegar dómurinn kemur frá
sjálfum J. p., hlýtur allur almenn-
ingur á íslandi að taka dóminn
gildan.
Nokkur áhersluatriði.
Til enn frekari skýringar þykir
rétt að taka upp nokkur áherslu-
atriði úr þessum dómi Jóns þor-
lakssonar um Ihaldsflokkana og
Ihaldsmenn, til þess að almenning-
ur eigi enn hægra um vik að átta
sig á dóminum.
Ætti og engum að vera kærara
en sjálfum íhaldsmönnum að
heyra sem glegsta þá lýsingu, sem
þeirra eigin formaður ber fram.
1. Fyrst er eftirtektaverð sú tak-
markalausa fyrirlitning sem J. p.
ber í brjósti til íhaldsmanna al-
ment og hvar sem þeir eru. Hann
kallar þá afturhaldsmenn. Hann
gefur fyllilega í skyn, að þeir þori
alls ekki að koma til dyranna eins
og þeir séu klæddir.
það leikur ekki á tveim tungum,
að J. þ. þóttist gera andstæðingum
sínum Landvarnarmönnum hinn
allra versta bjamargreiða er hann
gat bendlað þá við íhald. Verra og
háðulegra nafn gat hann ekki valið
þeim.
2. J. þ. gefur í skyn, að íhalds-
mönnum sjálfum sé fullljóst, hve
stefna þeirra sé ill og óvinsæl.
„þessvegna segja þeir ekki“, segir
J. þ. 0. s. frv. Orðið „segja“ hefir
hann með breyttu letri. Meiningin
er sú, að íhaldsmenn fari með vís-
vitandi blekkingar, er þeir tala við
kjósendur landsins. „Ef þeir
segðu“ 0. s. frv. þ. e.: það sem þeir
meina, bætir J. þ. við, til enn frek-
ari áherslu.
3. þá er merkileg sú yfirlýsing
formanns íhaldsflokksins, að „þeir,
íhaldsmennirnir, halda, að hún (þ.
e. þjóðin) geti án verið“ hinna
nauðsynlegustu framfara, síma,
alþýðuskóla, hafna, nýrra vega 0.
s. frv. Honum tekst sannarlega
upp, formanni Ihaldsflokksins, er
hann lýsir því, hve skaðleg þessi
kenning sé. Tíminn er honum al-
veg sammála.
4. Enn harðnar dómurinn. J. þ.
segir, að efnamenn séu einkum í
íhaldsflokkunum. „þeir eru ánægð-
ir með sinn hag“ o. s. frv., segir J.
þ. og hefir orðið „sinn“ með
breyttu letri. Hann er skýr maður
formaður íhaldsflokksins. Aðdrótt-
un hans til íhaldsmanna er alveg
ljós og ákveðin. Eintóm eigingirn-
in gengur þeim til og ekkert ann-
að. þeir „finna þessvegna ekki, að
þörf sé breytinga eða bóta á hag
þjóðarinnar“ 0. s. frv. þyngri
áfellisdómur hefir aldrei verið
kveðinn upp um íhaldsmenn en
þessi dómur formanns íhalds-
manna. Hvílíkur hugsunarháttur!
Hvílík siðferðismeðvitund, rétt-
lætistilfinning og bróðurkærleiki!
Einkunnarorðin eru þessi: Sjálfur
leið þú sjálfan þig og engan ann-
an. En hvert á að áfrýja dómi sem
sjálfur formaður Ihaldsflokksins
kveður upp um Ihaldsmennina ?
5. Hversvegna er hugsunarhátt-
ur Ihaldsmanna svona? J. þ. svar-
ar þeirri spurningu mjög skýrt og
afdráttarlaust. þeir „vilja ekki láta
heimta af sér skatta í því skyni“,
segir J. p. Hann á kollgátuna.
Efnamennirnir í Ihaldsflokkunum
láta stjórnmálaflokka sína og
landsstjórnir gæta þess að þeir,
ríku mennirnir, þurfi sem minsta
skatta að bera. Fátæku mennirnir
eiga að gera það. það er gleðileg
tilhugsun fyrir íslenskan almenn-
ing, er nú situr hér Ihaldsstjóm og
formaður íhaldsflokksins er fjár-
málaráðherra, og segir svo hrein-
skilnislega frá innræti Ihalds-
manna.
6. Hinsvegar lýsir J. þ. andstæð-
ingum íhaldsmanna, sem þá al-
ment má kalla Framsóknarmenn.
I þeim flokki eru fyrst og fremst
hinir efnaminni menn og þvínæst
líka „þeir meðal efnaðri manna,
sem einblína ekki á eigin pyngju,
heldur hafa hag þjóðarinnar í heild
sinni fyrir augum“. ótrúlegt er
það, en þetta em þó eigin orð Jóns
þorlákssonar, formanns Ihalds-
flokksins, um andstæðinga Ihalds-
manna. Tíminn leyfir sér að þakka
formanni Ihaldsflokksins alveg
sérstaklega fyrir þessi ummæli.
Eitthvað er hann göfugri hugsun-
arhátturinn sem ríkir hjá andstæð-
ingum Ihaldsflokkanna! þar er
„ekki einblínt á eigin pyngju“!
Nei! þar hafa menn „hag þjóðar-
innar í heild sinni fyrir augum“.
I íhaldinu er aftur á móti ein-
göngu hugsað um eigin hag en ekki
hag þjóðarinnar. þannig hljóðar
afdráttarlaus játning og eigin orð
formanns íhaldsflokksins. Tíminn
endurtekur þakklætið til Jóns þor-
lákssonar. Skjall hefði þetta þótt
ef einhver Framsóknarflokksmað-
ur hefði haft þessi ummæli, En
það er alt öðru máli að gegna þeg-
ar þau koma frá andstæðingi, frá
sjálfum foringja andstæðinganna.
7. Loks koma síðustu tilfærðu
ummælin um „eyrnamark reglu-
legs afturhaldsflokks". Alveg er
hún takmarkalaus fyrirlitningin á
íhaldinu, sem liggur í þessum orð-
um Jóns þorlákssonar. Enda er
ekki að undra þótt svo sé.
„Vantrú á landinu", „að það
svari arði, ef synir þess vilja kosta
upp á að hlynna að því“, og .,van-
trú á þjóðinni", veldur skoðunar-
hætti íhaldsmanna. Og vitanlegt
er, að það, að ala slíka vantrú á
íöðurlandi og þjóð í brjósti sínu, er
mesta dauðasynd sem einstakur
stjórnmálamaður eða stjórnmála-
flokkur getur framið. það er alveg
rétt hjá formanni íhaldsflokksins
að þetta er einmitt „eyrnamark
reglulegs afturhaldsflokks". Af
þessu höfuðeinkenni dæma þeir
menn dauðadóminn um íhalds-
stefnuna, sem elska land sitt og
þjóð og hafa trú á framtíðinni. Án
þeirrar trúar ætti enginn maður að
fást við opinber mál. þá trú hafði
Jón þorláksson fyrir sextán árum
og því féll dómur hans svo ákveð-
inn. Hvernig ætlar Jón þorláksson
formaður Ihaldsflokksins að svara
þessum almenna dómi um Ihalds-
menn og íhaldsstefnuna, sem Jón
þorláksson kvað upp fyrir sextán
árum?
Fár gengur sekur af sjálfs dómi.
Var svo að orði kveðið í upphafi
þessarar greinar, að það væri
skylda blaðanna að veita almenn-
ingi upplýsingar um stjórnmála-
flokkana. En mikið lægi við að ekki
væri máli hallað.
Tíminn þykist nú hafa, í bili,
gert skyldu sína í þessu efni um
íhaldsflokkinn.
Ekki með því að kveða upp dóm
frá eigin brjósti.
Ekki með því að leita langt út
í lönd að vitni.
Heldur með því að láta sjálfan
foringja íhaldsmanna tala.
þessa mynd af íhaldsstefnunni
þarf íslenska þjóðn að þekkja.
þannig er hann hugsunarháttur
Ihaldsmannanna. þannig er rétt-
lætistilfinning þeirra. Slík er van-
trú þeirra á þjóð og föðurlandi.
þetta er framundan fyrir ís-
lensku þjóðina ef hún áfram fel-
ur íhaldsmönnum stjóm mála
sinna.
Guðmundur góði sagði það forð-
um við Kolbein Tumason, að „fár
gengur sekur af sjálfs dómi“.
Einsdæmin eru verst. Formað-
ur íhaldsflokksins hefir dæmt
íhaldsflokkana og íhaldsstefnuna.
Hvar er sá maður sem vill halda
því fram að Jón þorláksson ekki
gangi sekur af sjálfs dómi?