Tíminn - 26.07.1924, Side 4
118
T 1 M I N N
Ibúðarhús ásamt verslun^rbúð
á ágætum stað í Vestmannaeyjum er til sölu nú þegar. Sanngjarnt
yerð og góðir borgunarskilmálar. — Allar uánari upplýwingar getur
Þórhallur Sæmundsson, cand. jur., Vestmannaeyjum.
Höskuldur Baldvinsson,
rafmagnsverkfr., Reykjavík,
leysir af hendi verkfræðistörf: mælir fyrir og gerir áætlanir um raf-
stöðvar á sveitabæjum og í kaupstöðum, sér um byggingu og útvegar
Vesturgötu 18. efni og vélar, ef óskað er. Sími 534.
P.WJacobsen&Sðn
Timburverslun.
Símnefni. G-ranfuru. Carl Lundsgade
Stofnað 1824. Köbenhavn.
Afgreiðum frá Kaupmannahöfn bæði stórar og litlar pantanir og
heila skipsfarma frá Svídjóð. — Sís og umboðssalar annast pantanir.
Eik og efni í þilfar til skipa.
Þrekraun.
hér á landi voru vötn öll full af
fiskum, meðan enginn selur var
skotinn. Maðuriim veldur mestri
truflun í náttúruríkinu,'þegar hami
rænir, en ræktar ekki.
Höf. minnist á skógana. Jurta-
gróður er nú minni en hann var í
fornöld, þegar landið var vaxið
viði milii fjalls og fjöru, að því er
Ari prestur segir þorgilsson
Landsmenn hafa látið víða greip-
ar sópa um skóglendið. það er ekki
fyr en á seinni árum, að mönnum
tók að skiljast, að skógurinn ætti
rétt á sér.
Guðm. Davíðsson brýnir það
fyrir mönnum, að hallast á sveif
með náttúrunui, og vinna að rækt-
un, en hverfa frá rányrkju. Rækt-
un leiðir af sér blessun og blómg-
un. En ávextir rányrkju eru bölv
un og tortíming. þetta kemur til
af því, að náttúran er sem sigur
verk, þar sem ekki verður tekið
eitt hjól, hversu lítið sem það kann
að vera, svo að ekki komist rugi-
ingur á starfsemi hennar. Raskist
starfsemi hennar, er og hag manns
ins hætta búin. Höf. hyggur, að
hér mætti rækta miklu fleiri teg-
undir dýra, enda er það líklegt.
Veiðiskapur allur hefir verið
rányrkja. Sá er munur á sjávar-
útveg og landbúnaði, að þeir er
stunda landbúnað, eru að miklu
ieyti í samvinnu við lífið, — nátt-
úruna, en hinir, er stunda sjávar-
útveg, hafa í raun og veru lagst í
víking og herja á ríki náttúrunn-
ar. þeir drepa, er gera lítið eða
ekkert til þess að greiða fyrir líf-
mu. Eiskimiðin hafa verið nægta-
brunnur, en margur kvíðir því, að
hann verði upp ausinn, þar sem
bæði innlend og erlend skip sækja
miðin. Og nú er ungviðið drepið
með botnvörpunum, svo að ekki
verður tölu á komið. „Eina ráðið“,
segir höf., „til að bjarga fiskimið-
unum, er ekki það, að verja þau
með púðri og blýi, eða bægja möim-
um með sektum frá ólöglegri veiði,
heldur hitt, að rækta fiskinn, —
klekja honum út í þar til gerðum
klaktækjum". Hann segir svo á
öðrum stað: „Eins og jarðyrkju-
maðurinn sáir fræinu í jarðveginn
og uppsker jarðarávöxt, sáir fisk-
ræktarmaðurinn hrognunum í haf-
ið og uppsker fiska“.......„Oft
hefir því verið haldið fram, að jafn
réttlátt væri að styrkja sjávarút-
veginn af opinberu fé eins og land-
búnaðinn. Hér er þó ólíku samaa
að jafna. Landbúnaðurinn byggist
á ræktun landsins, — eða á að
minsta kosti að byggjast á henni.
— en sjávarútvegurinn hefir bygst
á því, að ræna íiskinum úr hafinu.
Ekkert vafamál er, að sjávarútveg-
urinn á rétt til fjárframlaga úr
ríkissjóði, þegar hann fer að rækta
hafið, — starfa að fiskræktinni, —
en ekki á meðan hann rænir það“.
Margt er ekki aðeins vel sagt í
riti þessu, heldur jafnframt vitur-
lega og verður vonandi til þess að
að vekja marga, til þess að hugss
um ræktun til lands og sjávar og
hyggja af rányrkju. En fram-
kvæmdir gerast ekki ört og búast
má við því, að ekki verði farið að
starfa að fiskirækt á næstu árum.
En fyrst er að hugsa um hlutina
Ritgerð þessi er einstök í sinni
röð og ætti hver maður að lesa
hana. Merkur maður vestanhafs
sagði í bréfi, að hún væri einhver
hin be§ta og þarfasta hugvekja, et
hann hefði lesið á íslensku. Segir
hann, að ef hann hefði átt að ráða
yfir verðlaunasjóði, myndi hann
hafa lagt það til, að verðlauna
þessa ritgerð, enda mun margt
verðlaunað nú á dögum, er síður
skyldi.
Sig. Kristófer Pétursson.
--------o----
í grasgarði Valtýs.
----- Frh.
Eitt af því, sem mikið ber á í
þessum skrifum Valtýs (Pólitísk
verslun) og víðar í ritstjórnargrein
um Mogga, er fálmið í Jónas Jóns-
son frá Hriflu og þá menn, sem
Valtýr kallar Tímaklíku. Vegna
síns fyrra kunnugleika í þessum
herbúðum væri æskilegt að Valtýr
vildi, almenningi til fróðleiks, tala
ofurlítið ljósar um Tímaklíkuna, t.
d. nefna helstu menn, sem í henni
eru og hafa verið og sem eru án efa
að hans dómi og húsbænda hans,
þjóðinni hættulegir. Gæti hana
þar ef til vill fengið blómsveig að
verðlaunum, sem ekki væri úr
„fjólum“ einum. Myndi ekki minni
greiði goldinn fyrir það afreksver.í
hans, að draga þessa menn fram í
dagsbirtuna og opinbera alt þeirra
athæfi.
Bæði í áðurnefndu skrifi Valtýs
og í þvínær hverju einasta tölublaði
af málgögnum kaupmanna, hefii.
J. J. stöðugt verið svívirtur und-
anfarin ár. Er vafasamt að nokkur
maður hérlendur, þó náð hafi sjö-
tugsaldri, hafi verið skammaður
meira af andstæðingum sínum alla
æfina, en búið er að skamma J. J.
nú, þegar hann er rúmlega hálf-
fertugur. Má máske undan skilja
Björn heitinn dónsson og Hannes
Hafstein ráðherra. í þessu er fólg-
in mikii viðurkenning á hæfileik-
um J. J. og nytsemi starfa hans
fyrir alinenning.
það er kunnugt að íhaldsliðið
hérna í Reykjavík og í öðrum sjó-
þorpum landsins er ekki mjög út-
ausandi á eigið fé. í því liði eru líka
aðallega kaupmenn útlendir og inn-
lendir og nokkrir steingerðir
Reykjavíkurembættismenn. pó hei
ir óttinn við Jónas orðið ágimd-
inni yfirsterkari í sálum þessara
manna. Og af því þeir hafa þó haft
vit á því, að það eru blöðin, sem
mest áhrif hafa í öllum opinberum
málum, hafa þeir óspart ausið fé í
blaðafyrirtæki sín og látið labba-
kúta sína fylla dálkana með níði
um Jónas, flokksbræður hans, og
þá sérstaklega kaupfélögin og
Sambandið.
Nafn Jónasar er í blöðum kaup-
manna ófrávíkjanlega tengt við
kaupfélögin og Sambandið, og það
með réttu. Hann átti mikinn þátt í
stofnun Sambandsins í þess núver-
andi mynd, með Hallgrími Krist -
inssyni og Pétri Jónssyni. Enn-
fremur vann hann að stofnun Sam-
vinnuskólans, og hin núgildandi
samvinnulög eru að mestu verk J.
J. og Ólafs Briem frá Álfgeirs-
völlum. Hann hefir og gert meira
að því, að útbreiða þekkingu á
samvinnumálum meðal almennings
í ræðu og riti, en nokkur samtíðar-
manna hans. Hér er aðeins lauslega
drepið á störf J. J. fyrir samvinnu-
málin, en þó væntanlega nægilega
ljóst til þess að almenningur geti
skilið, af hvaða toga stórkaup ■
mannahatrið á Jónasi er spunnið
þeir óttuðust ekki kaupfélögin svo
mjög á meðan þau voru sundruð,
því þau voru yfirleitt góðir við-
skiftamenn. En þegar þau stofn-
uðu sína eigin heildsölu, Samband-
ið, þá sáu stórkaupmennirnir hér
í Reykjavík, útlendir og innlendir,
að lækka myndi í aski sínum, og
fyrir það varð að refsa samvinnu-
mönnum, og þá fyrst og fremst
þeim, sem mest höfðu beitt sér fyr-
ir stofnun Sambandsins.
En stórkaupmannaliðið hefir i
blöðum sínum gengið lengra í
skrifum sínum um Jónas en ætla
mætti, og reyndar með því borið á
hann lof gegn vilja sínum. þeir
hafa líka eignað J. J. allar verslur.
arframkvæmdir Sambandsins, og
hefir hann þó vitanlega aldrei haft
nein afskifti af þeim störfum. Vit-
anlega kenna stórkaupmannablöð ■
in J. J. einkum það af verslunar
starfsemi Sambandsins, sem þau
kalla „axarsköft“ og öðrum slíkum
nöfnum, en það hlýtur þá að leiða
af sjálfu sér, að hann verður líka
að gera það af þessum störfum
sem vel er gert.
Að dómi þessara „leigðu penna“
stórkaupmannanna eru störf J. J.
fyrir kaupfélögin unnin eingöngu í
eiginhagsmunaskyni til þess aö
geta fengið atvinnu hjá Samband-
inu. þessi skýring er kaupmensku
lýðnum og vikapiltum þsirra nær
tæk og því eðlhegt, að þeir beiti
henni fyrir. En þegar á það er lit-
ið, að J. J. ber úr býtum fyrir stör í
sín hjá Sambandinu minni laun en
margir af þjónum stórkaupmanna
hér í Reykjavík fyrir algeng versl ■
unarstörf, þá mun erfitt að telja
mönnum trú um það, að J. J. vinni
fyrir samvinnufélögin vegna pen-
inganna, sem hann ber úr býtum.
Væri svo, myndi hann hafa leitað
fyrir sér þar sem meiri er févonin,
því þó að valið á núverandi rit-
stjórum danska Mogga bendi á „að
holdið sé í hærra prís“ en mannvii.
og hæfileikar hjá íhaldsliðinu
hérna í Reykjavík, þá er ekki ólík-
lega til getið, að J. J. hefði getað
fengið störf sín fult eins vel borg
uð og nú, ef hann hefði gert sig
falan á sama markaði og Valtýr.
Meira.
----o----
Jón Ófeigsson Mentaskólakenn-
ari fór utan með Gullfossi síðasc.
ætlar að dveljast ytra í vetur tii
þess að kynna sér skólamál.
Vínverslunin. Landsstjórnin hef
ir nú falið Hannesi Thorarensen
forstöðu Reykjavíkurútsölu vín-
verslunarinnar. Lætur Hannes þá
af forstöðu Sláturfélags Suður-
lands, sem hann hefir stjórnað frá
upphafi, og notið óskoraðs trausts.
Mun Tíminn ekki að því finna, og
síður en svo, að svo valinkunnur
maður fær þetta starf í hendur. —
En skipulagið mun vera það, að
launin fyrir að reka þessa versluu
eru miðuð við hundraðsgjald af
umsetningu. Með þeim hætti er
beinlínis undir það ýtt að sem mest
verði selt af víninu. það er áreið
anlega þvert á móti vilja íslensku
þjóðarinnar og verður að máli
þessu síðar vikið hér í blaðinu.
þriðjudaginn 15. þ. m. var Stef-
án sonur Ólafs bónda í Kalmans-
tungu með öðrum mönnum uppi við
Surtshellir, að loka honum, eftir
tillögum fornmenjavarðar, svo að
ekki væru eyðilögð með öllu þau
vegsummerki, sem þar sjást enn
eftir Hellismenn. Hafa ýmsir ferða
menn farið hörðum höndum um
þau og þá ýmsu prýði, sem nátt-
úran hefir skreytt hellinn með. —
Bar Stefán sementspoka á bakinu
fram á eystri barm Drápsgjárinn-
ar og ætlaði að láta hann síga þar
niður. En er hann kom á brúnina,
bilaði hún og féll hann með pok-
ann í fanginu niður í gjána, um 4
mannhæðir. Kom hann niður á
stórgrýti, en kastaðist fram á
hjarnfönn, er þar var. Brotnaði
hann ekki, það er séð varð, en
reyndist mikið, einkum í baki og
á hægri fæti. Var þá um tvent að
velja fyrir Stefán, annaðhvort að
ganga nokkurn veg eftir hellinum
yfir mjög stórgrýtta urð, að hægri
uppgöngu, eða klífa bergið aftur,
og þann kostinn tók hann. Fylgd-
arlaust reið hann heim með litlum
hvíldum, og svo bar hann sig vel
næsta dag, sem ekkert hefði í skor-
ist. — Vonandi nær hann sér eftir
þessa raun.
Er það mikið gleðiefni, að ís-
lenskar sveitir eigi ennþá slík karl-
menni í fórum sínum.
20. júlí 1924.
Th. A.
----o----
Látinn er á Kjörseyri við Hrúta
fjörð fræðimaðurinn Finnur Jóns-
son, 82 ára að aldri, valinkunnur
sæmdarmaður. Verður hans nánai
getið.
Nýtrúlofuð eru Sigríður Hall-
grímsdóttir Níelssonar frá Gríms-
stöðum og Lúðvík Guðmundsson
stud. theol.
Stúdentasjóð stofnuðu nýju stú-
dentarnir í vor. Kom Lúðvík Guð-
mundsson, hinn ötuli forstöðumað-
ur Stúdentagarðsins, á fund þeirra
á þingvöllum og var þar tekin sú
ákvörðun að stofna sjóð til styrkt-
ar Stúdentagarðinum. Er það aðal-
tilgangur sjóðsins. En síðar er hon-
um ætlað að styrkja stúdenta til
náms og efla samvinnu íslenskra
háskólaborgara. Verður það þó
vart fyr en Stúdentagarðurinn er
upp kominn. Vonast er eftir að all-
ir íslenskir stúdentar muni greiða
árgjöld til sjóðsins, 5 kr. þeir, sem
eru yngri en 10 ára stúdentar, en
eldri stúdentar nokkuð hærra til-
lag. Verða það töluverðar tekjur
fyrir sjóðinn ef þær vonir rætast.
Gert er ráð fyrir, að reglugerð fyr-
ir sjóðinn verði staðfest í haust og
taki hann þá til starfa.
Ameríkumennirnir sem eru á
leiðinni í bát frá Noregi, um Fær-
eyjar, Island og Grænland til Ame-
ríku, eru komnir hingað til bæjar-
ins.
Kennaraembætti við Eiðaskóla,
sem losnaði við brottför Benedikts
H.f. Jón Sigmundsson & Co.
Trúlofunar-
hringarnir
þjóðkunnu, úrval af
steinhringum, skúf-
hólkum og
svuntuspennum,
margt fleira. Sent
með póstkröfu útumland,ef óskað er.
Jón Sigmundsson gullsmiður.
Sími 383. — Laugaveg 8.
Þrjár kensiubakur,
Bókafélagið gefur út fyrir haust-
ið:
Jónas Jónsson: Islandssaga, 3
útgáfa, með myndum af skipum,
vopnum, húsum, mönnum og stöð-
um, sem viðkemur fornaldarsög-
unni.
Jónas Jónsson: Dýrafræði 2.
heíti. Lýsing af flestum íslenskum
fuglum og lifnaðarháttum þeirra,
og þeim erlendum fuglum, sem
þektir eni til muna í íslenskum
bókum. Með mörgum myndum.
Nýju skólaljóðin. Úrval af þeim
íslenskum ljóðum, frumsömdum og
þýddum, sem unglingar hafa ver-
ið og eru mest hrifnir af. Með
myndum af helstu skáldunum.
Tapast hetir hestur,
rauður að lit, ljós í tagl og fax.
Mark: Blaðstýft fr. hægra og biti
aftan. Sýlt vinstra og lögg aftan
(ógreinilegt).
Sá sem verður hestsins var, ec
vinsaml. beðinn að gera einhverj-
um okkar aðvart.
Bjarni Ásgeirsson, Reykjum Mos-
fellssveit. Egill Thorarensen, Sig-
túnum. Magnús Kjaran,Reykjavík.
^ H.
Eftir
Sigurð Sigurðsson frá Arnarholfi
2. útgáfa, aukin.
Bóksalar snúi sér til Jóns Sighvats-
sonar bóksala í Vestmannaeyjum.
Samvinnuskólinn.
Kenslugreinar: Islenska, danska,
sænska, enska, og fyric þá sem
þess óska sérstaklega, byrjunarat-
riði þýsku og frönsku. Almennur
reikningur, verslunarreikningur,
skrift, vélritun, bókfærsla, verslun-
arsaga, verslunarréttur, sam-
vinnusaga, hagfræði, félagsfræði,
og fyrir þá sem þess óska, fyrir-
lestrar í bókmentasögu og lista-
sögu.
Blöndals, er auglýst til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til ágústloka
Flotadeild frá Bandaríkjunum
verður á sveimi milli íslands, Skot-
lands og Grænlands um það leyti
sem flugmennirnir verða á ferð-
inni.
Sigurður Kristinsson forstjóri
Sambands íslenskra samvinnufé ■
laga fór utan um miðja síðastliðna
viku og dvelst þar um hríð,
Skjöldur, Ihaldsmannablaðið í
Vestmannaeyjum, er hætt að koma
út. — Farið hefir fé betra.
Lík Ólafíu Jóhannesdóttur var
flutt heim frá Noregi og jarðsett
síðastliðinn laugardag að viðstöddu
fjölmenni.
Sfldveiðin er byrjuð fyrir norð
an og er þegar mikil orðin.
Ritstjóri: Tryggvi þórhallsson.
Prentsmiðjan Acta.