Tíminn - 06.09.1924, Blaðsíða 1
©íaíM’eri
09 afgrctí>slur*’aður Cimans er
Sigurgeir ^riðrifsfon,
Sambanðs^úsinu, HeYfjapíf.
^fgteiíteía
í i m a n s er i Sambanðsfjúsinu
®pin baglega 9—12 f. 4.
Simi 496.
VIII. ár.
Reykjavík 6. september 1924
36. blað
Utan úr heimi.
Olympisku leikainii-.
Olympisku leikarnir eru háðir
fjórða hvert ár, síðast í Antwerp-
en í Belgíu. Nú í París. Komu þar
fulltrúar frá flestum þjóðum
heims nema pjóðverjum, Rússum
og íslenaingum. Er þó sín ástæðan
með hverja þessara þriggja. þjóð-
verjar fá ekki og vilja ekki vera
með í leik við höfuðóvini sína
Frakka. Rússar fá ekki að koma,
af því að ráðstjórnin vill ekki við-
urkenna skuldir keisaradæmisins
gagnvart frönskum borgurum. En
Islendingar eru ekki með, af því
við erum of fáir og veikir til að
taka þátt í þessum kappleik, og af
því aö íþróttalíí okkar er enn á
bernskustigi og mjög vanrækt, svo
að óhugsandi er að við getum á
nokkurn hátt, að svo stöddu, með
von um sigur og sæmd tekið þátt 1
slíkri aflraun. Óvíst er að við get-
um það nokkurntíma.En að minsta
kosti er það óhugsandi, fyr en
íþróttirnar hefðu verið ræktar og
ræktaðar með miklu meiri áhuga
og skilningi heldur en gert hefir
verið hingað til.
Við leikina í París hafa þrjár
þjóðir hlotið mesta frægð og vinn-
inga. það eru Finnlendingar,
Bandaríkjamenn og Bretar. Um
tvær hinar síðarnefndu þjóðii’ má
segja að sigurinn hafi verið gefinn
fyrirfram. Bretar og Bandaríkja-
menn eru stórþjóðir, og í báðum
löndunum hafa allskonar íþróttir
lengi verið stundaðar með hinu
mesta kappi og áhuga. Öðru máli
er að gegna með Finnlendinga.
þeir eru smáþjóð, svo að segja
frá útkjálka heimsins. peir hafa í
nálega heila öld verið kúgaðir
grimmilega af erlendri þjóð. Samt
eru það nú Finnar og íþróttamenn
þeirra, sem mest umtal og aðdáun
hafa vakið í þessu mikla heims-
kappmóti í París. Raunar hafa
Ameríkumenn flesta vinninga af
öllum, og það var raunar vitað fyr-
irfram að svo hlyti að fara. þeir
hafa af miklu að taka. þar eru
ótöluleg íþróttafélög. Við háskól-
ana, og þeir eru margir, eru íþrótt-
ir stundaðar af geysimiklu kappi.
þar að auki leikur grunur á, að
Ameríkumenn eyði miklu fé til að
þrautæfa sína helstu íþróttamenn,
og að þeir þurfi enga aðra atvinnu
að stunda. það er raunar lögbrot,
því að slíkir menn eru atvinnu-
menn og hafa ekki að réttum lög-
um leyfi til kapprauna við áhuga-
menn.
Sigrar Finnanna hafa vakið
langmesta eftirtekt. Eitt íþrótta-
blaðið sagði, að Ameríkumenn
hefðu unnið sína sigra eins og aðr-
ir dauðlegir menn, í svita síns
andlitis, oft með litlum mun og
eftir harða baráttu. En Finnarnir
sigruðu einkum í hlaupum, með
líkum hætti og Gunnar á Hlíðar-
enda og Kári Sölmundarson.þeirra
afrek báru langt af öðrum. Og
þeirra sigrar voru unnir svo létti-
lega, eins og þyrftu þeir varla að
beita nema hálfri orku. Finskur
maður, Stenros, vann Maraþons-
hlaupið, og þykir það jafnan ein-
hver mesta frægð meðal Olympíu-
manna. En þó hafa aðrir tveir
Finnar, sem unnu styttri hlaup,
Ritola og Nunni, vakið enn meiri
aðdáun. þegar Nurmi vann tvö
hin erfiðustu hlaup sama daginn
með örlitlu millibili, þóttu það svo
mikil tíðindi í París, að borgarbú-
ar hálfgleymdu hinum merkilegu
fundum Herriots og Mae Donalds,
sem einmitt gerðust um sama
leyti.
Olympíusigrar nú á dögum eru
ekki tilviljun. Engin þjóð sigrar
þar, nema íþróttalíf hennar standi
á háu stigi. En íþróttahfið er ekki
einangrað. það er einn þáttur í
þ j óðaruppeldinu.
Tvær þjóðir hafa komið á í land-
inu algerðu vínbanni og getað hald-
ið því. það eru Bandaríkjamenn og
Finnlendingar. Sennilega er náið
samband milli blómgunar íþrótta-
lífsins í þessum löndum og útrým-
ing hins mesta deyfðar- og spill-
ingarmeðals, sem heimurinn hefir
þekt. Ekki þannig, að vínbannið í
þessum lönaum hafi nú þegar haft
sýnileg áhrif á þjóðarorkuna, held-
ur hitt, að áhuginn að bæta kyn-
stofninn veldur í báðum löndunum
sigri yfir áfenginu, og sigrum á
Olympíuvöllum.
Fyrir rúmum hundrað árum
hrifsuðu Rússar Finnland undir
sig með rétti hins sterkara, til að
kúga hinn máttarminni. Rússar
þrælkuðu þjóðina sem mest þeir
máttu, beittu ofríki og kúgun á
öllum sviðum. þá var það, að bestu
menn Finna sögðu: Okkar eina líf-
og framtíðarvon liggur í bættu
uppeldi alþýðunnar. Finnar unnu
síðan með óvenjulegri festu og
áhuga að því að bæta alþýðument-
unina á öllum sviðum, bæta skól-
ana, bóklegu kensluna, verklegu
kensluna og íþróttimar. Maður
sem kynti sér finska barnaskóla
fyrir nokkrum árum, sagði, að
börnin í Finnlandi læsu í skólunum
þar ættjarðarsögu, sem væri á
stærð við biblíuna. Og ekki stóð
vinnukenslan og íþróttalífið að
baki bóknáminu. Ávextirnir urðu
eins og hinir forsjálu uppeldis-
frömuðir höfðu búist við. Finska
þjóðin var ódrepandi, af því hún
var gagnmentuð. Kúgun rússnesku
keisaranna bugaði ekki Finna. Og
þegar keisaravaldið hrundi í rúst-
ir, þá rétti hin mentaða þjóð við
og byrjaði líf sitt, sem frjáls og
sterk þjóð. Síðan hefir áfengisböl-
inu verið útrýmt, og þjóðin ekki
látið kúgast af erlendum hótun-
um. Og nú í sumar hefir heillar
aldar ræktun fólksins í Finnlandi
kastað óvenjulegum ljóma yfir
nafn landsins. En sigur Finna í
Olympíuleikjunum er aðeins eðli-
leg afleiðing þess, sem á undan er
gengið í landinu í nálega heila öld.
Á garðyrkjusýningunni voru
mörg og fögur blóm, sérstaklega
útiblóm vaxin í görðum bæjarbúa.
Sýndu þau glögt, hve mikla alúð
ýmsir blómavinir leggja við garða
sína. Sérstaka aðdáun vakti ein
planta, bláklukka (Campanula
Medium), einhver hin skrautleg-
asta planta, sem hér hefir sést.
Verður hún tveggja ára og blómg-
ast seinna árið. En fjöldamörg
önnru blóm mætti nefna, sem
höfðu náð ágætum þroska, enda
hefir sumarið verið hagstætt fyrir
þau. Alls voru þama 78 tegundir
úti- og inniblóma.
Af matjurtum voru 22 tegundir,
sumar sjaldgæfar hér, t. d. grænar
ertur, ofanjarðar rófur og gulræt-
ur. Blómkálhöfuð voru þar stór-
falleg. 4 afbrigði af næpum og 8
afbrigði af gulrófum frá gróðrar-
stöðinni. Mjög mikið sýndust ís-
lensku gulrófurnar skara fram úr
hinum afbrigðunum, hvað þroska
og fegurð snerti. Höfuðsalat var
þar einnig og blöðrukál, grænkál,
hreðkur, pétursselja og ýmislegt
fleira. Einnig var þar skalottulauk-
ur allvel þroskaður, frá Reykjum
í Mosfellssveit. En einna mesta
eftirtekt vöktu 18 afbrigði af kart-
öflum frá gróðrarstöðinni í Rvík.
Var þar sýndur samanburður á af-
brigðunum, tilraunir gerðar til
þess að fá upplýsingar um bráð-
þroska þeirra. Var það mjög fróð-
legt að sjá, og mörg afbrigðin af-
bragðsvel sprottin. Afbrigðatilraun
þessi var tekin upp 15. ágúst, en
kartöflurnar settar 20. maí. Auð-
vitað verða þau afbrigði, sem best
: . ræktuð í stó .
þess að hægt verði að gera þau
sem algengust.
Hið ísl. garðyrkjufélag gekst
fyrir sýningunni, og á það þakkir
skilið fyrir; sýningin var áþreif-
anlegan vott' um, hve góðan árang-
ur er hægt að fá í garðyrkjunni,
þegar áhugi og kunnátta fylgjast
að. Sýninguna sóttu rúmlega 500
gestir þessa tvo daga sem hún var
opin, og eru það rúmlega 21/2% af
bæjarbúum, en miklu fleiri hefðu
átt að sjá hana, því hún var vel
þess verð. En líklegt er að sýning-
ar á garðávöxtum og blómum verði
haldnar á ári hverju framvegis.
Kirkjan.
II.
það er ekki langt um liðið síð-
an ísland var stiftamt í hinu
danska ríki. Nú er það sjálfstætt
ríki. pað má svo að orði kveða, að
íslenska kirkjan hafi um langan
aldur verið talin dönsk annexía, þó
aldrei væri svo í ráun og veru. ts-
lenskir prestar unnu eið að játn-
ingarritum hinnar dönsku kirkju,
er þeir voru vígðir, og höfuð-
klerkar íslenskir þorðu fátt að
taka sér fyrir hendur, sem ekki
var danskt fordæmi fyrir. En það
er hin mesta nauðsyn, að sama
breyting verði á um kirkjuna, sem
þegar er orðin um ríkið. Sjálf-
stæðisbaráttu íslensku kirkjunnar
er enn ekki lokið. En þar er sig-
urinn vís, því ekki er við nein ytri
máttarvöld að eiga, heldur við
misskilning vor sjálfra og rangar
hugmyndir. Vér eigum að hætta
að stritast við að koma kirkjunni
á danskan búning. íslenskur bún-
ingur fer Fjallkonunni best, og
kirkjan, sem er brúðir Krists,
sómir sér betur með íslensku
skauti en útlendum fjaðra-
hatti. Danmörk er þéttbýlt lág-
lendi, en Island strjálbygt hálendi.
það, sem ólíkt er í skapferli þjóð-
anna, svarar til þess, sem er ólíkt
í landslagi og landsháttum. 1
fyrsta árgangi Fjölnis eru þau um-
mæli höfð eftir dönskum guðfræð-
ingi, er hann mælir í ásökunar-
róm, að íslendingar þykist enn þá
af að líkjast landinu, sem þeir
byggj a, — „eins og vera byrjar“
bæta Fjölnismenn við. í trúarefn-
um höfum vér eftir því einu að
keppa að vera íslenskir og kristn-
ir. í því er sjálfstæðisbarátta
hinnar íslensku kirkju fólgin.
íslensk kirkja hefir hagskýrsl-
urnar á móti sér. En á þeim er
jafnan bygður hinn harði dómur
um íslenskt trúarlíf. En hagfræð-
in togar ekki á miklu dýpi. Hún
fær í vörpuna messuföll og funda-
fjölda, offur og altarisgöngur,
góðgerðafélög, fæðingar, ferming-
ar og annað þessháttar. En í djúp
sálarlífsins kastar hagfræðin ald-
rei vörpu sinni. Mælgi getur hún
mælt í klukkustundum, en hvers
virði það er, sem sagt er, er ekki
á hennar valdi að meta. það er
því fjarri öllum sanni að dæma
trúarþroska eftir tölum hag-
skýrslnanna og kærleiksþel þjóð-
arinnar eftir því, hversu margir
það eru, sem kaupa aðra til að
fremja kristileg kærleiksverk fyr-
ir sína hönd.
Fundahöld eru hér fátíð, miðað
við hin þéttbýlu lönd, þar sem lít-
ið er lesið en mikið talað. En það
vita hagskýrslurnar ekki, að ekki
er alt guðs orð, þó munninn freyði
eins og á skeiðmæddum hesti, eins
og meistari Jón kemst að orði.
Strjálbýlið dregur úr fundafjölda,
en ekki úr trú og hugsun. Strjál-
býlið gerir menn þögula. Islending-
ar hafa jafnan undrast lausmælgi
útlendinga. „Rausaði hún þá alt a:
högum sínui^, svo sem dönskum ct
títt“, stendur í þjóðsögunum um
danska stúlku, sem kom út til ís-
lands. það er þjóðareinkenni, að
oss er tregt um að tala um einka-
mál og trúarefni í margra manna
viðurvist. Má telja það bæði kost
og löst, en tíðast er það, að þögn
einverunnar býr yfir meiru verð-
mæti en margmælgi þéttbýlisins.
I strjálbýlinu lýsir innrætið^sér
betur í athöfnum en í orði. Gestir
og gangandi þiggja góðan viður-
gerning, vosklæði eru dregin af
mönnum og það hið besta, sem til
er á heimilniu, borið fram. Munað-
arlaus börn eru tekin í fóstur og
alin önn fyrir gamalmennum, sem
unnið hafa heimilinu, eftir að þau
eru ófær til vinnu. Er slíkt ekki
síður kristilegt, þó ekki sé hrópað:
hósíanna um leið og vosklæðin eru
dregin af ferðamanninum. En hag-
skýrslunum er fákunnugt um
þessa hluti. þær myndu taka betur
eftir, ef bömin færu á barnahæli
og gamalmennin á gamalmenna-
hæli. þá myndu stórar tölur tala
hátt um skipulagsbundna kær-
leiksstarfsemi á Islandi. það er
eins og neyðarúrræði þéttbýlisins
ein megi teljast til afreka kristi-
legrar kirkju. En það sem kemst í
hagskýrslurnar, hefir þráfaldlega
sín laun út tekið. Meistarinn met-
ur það mest, sem talað er og unn-
ið í leyndum. (Frh.)
----0--
Tvær systur.
Nýlega er komin út kvæðabók
eftir systurnar Herdísi og Ólínu
Andrésdætur,, merkileg bók fyrir
margra hluta sakir. Hálfsjötugar
koma systurnar fram fyrir al-
menningssjónir. þá fyrst verður
það kunnugt, að þær eru í tölu
góðskálda. það þarf að leita til
Vatnsenda-Rósu og Ólafar frá
Hlöðum til að finna þeirra jafn-
ingja. Um Svíþjóð hefir verið
verið sagh að hún sé ágætust af
piparkerlingum sínum, Ellen Key
og Selmu Lagerlöf o. fl. Á sama
hátt má segja um ísland, að það
sé ágætast af alþýðumenning
sinni, því það er ágæt menning,
sem getur af sér líkar alþýðubók-
mentir sem kvæði þessara tveggja
systra. Hér býr aðallinn meðal al-
þýðunnar og leynist fram á sjö-
tugsaldur og stundum lengur, því
margt af því, sem best er í þjóð-
inni, hefir aldrei verið fært í let-
ur og dáið með hinum óþektu og
yfirlætislausu alþýðumönnum, sem
í rauninni voru aðalbornir.
Eg hefi heyrt menn undrast
það, að ómentaðar alþýðukonur
skuli geta kveðið eins vel og þess-
ar systur. þær eru að vísu hvorki
sigldar né skólagengnar, en óment-
aðar eru þær þar fyrir ekki. þær
hafa hlotið það uppeldi, sem Is-
land hefir veitt svo mörgum börn-
um sínum. þær eru vel ættaðar,
náfrænkur síra Matthíasar og ald-
ar upp á Breiðafirði þegar fífill
hans var fegurstur. það þarf eng-
an að undra þó Breiðafjarðareyjar
ali upp skáld. Fuglinn vekur fjör-
ið og öldurnar orðsnild, sjóferð-
irnar áræði og örlæti, en landbú-
skapurinn festu bóndans. það er
breiðfirskt víðsýni í kvæðum systr
anna og karlmenska þeirrar sveit-
ar, þar sem konurnar kunna að
róa. Breiðfirðingavísur Ólínu
gætu verið ortar af duglegum for-
manni.
Breiða- fyrst í firðinum
fékk ég vist á bátunum
hjá aflaþyrstum, þrekmiklum
þrauta og lista fonnönnum.
öllum stundum starfsamar,
styrkum mundum konumar,
ýttu á sundin áramar,
öxluðu og bundu sáturnar.
Herdís tekur líking af sjóvolk-
inu og kveður:
þegar ég eygði engin lönd
og ekkert fann mér skýli,
þá hefir drottins hjálparhönd
haldið bát á kili.
þú, sem elskar alla menn
og allra greiðir veginn,
lofaðu mér að lenda senn
við landið hinum megin.
þær systur hafa átt við örðug
lífskjör að búa. En okið hefir orð-
Framh. á 4. síðu.