Tíminn - 11.10.1924, Blaðsíða 4
162
T I M I N N
Verðlækkun.
ÁÞessum bókum er sðluverð lækkað, sem
hér segir:
Ben. G-röndal: Dagrún.1,50
Sveinbj. Björnsson: Hillingar (ljóðmæli) . 2,00
Valur: Dagrúnir.......2,00
do. Brot...........
Hulda: Syngi syngi svanir mínir . .
do. Tvær sögur.......4,00
do. Æskuástir........2,50
Jónas Guðlaugsson: Sólrún og biðlar hennar 6,00
Theódór Friðriksson Útlagar.6,00
Sig. Heiðdal: Hrannaslóð.7,00
Bókaverslun Arinbj. Sveinbjarnarsonar.
HAVNEMÖLLEN
KAUPMANNAH0FN
mælir með sínu alviðurkenda rúgmjöli og hveiti.
Meiri vörugæði ófáanleg.
Áður Nú
kr. a. kr. a.
1,50 0,75
2,00 1,00
2,00 1,00
2,00 1,00
2,00 1,00
4,00 3,00
2,50 2,00
6,00 4,00
6,00 4,00
7,00 5,00
avj/ Cu^
Biðjið um
Capsfan,
Navy Cuf
Medium
reyktóbak.
Verð kr. 4,60 dósin, V4 pimd
Prjónanámskeið.
Eins og undanfarin ár, verður hér í Reykjavík haldið námskeið
fyrir þá, er eiga Claes & Plenje prjónavélar, eða hafa í hyggju að
eignast þær. Byrjar 1. nóvember. Kenslukona frú Valgerður Gísla-
dóttir frá Mosfelli.
Hverjum nemanda er ætluð 100 tíma kensla. Leggur hann sér
sjálfur til efni, en á það sem hann framleiðir. Kenslugjald kr. 50,00.
Allar nánari upplýsingar gefur
Il.f. Jón Sigmundsson & Co.
<xrœoaazxxp | ® ? 11_
og alt til
upphluts
sérl. ódýrt.
Skúfhólkar
úr gulli og silfri.
Sent með póstkröfu út
um land, ef óskað er.
Jón Sigmundsson gullsmiður.
Sími 383. — Laugaveg 8.
Bækur bókafélagsins
fást:
I Borgarnesi í Kaupfélagi Borg-
firðinga og hjá Vigfúsi Guðmunds-
syni.
Austanfjalls hjá Birni Sigur-
björnssyni, gjaldkera á Selfossi og
í Kaupfélagi Hallgeirseyjar.
Frímerki,
íslensk, notuð, kaupir ætíð
Helgi Helgason,
Óðinsgötu 2. Reykjavík.
S.X.S. slciftir eiixg-öxxg-TJL -við oikzIcxLr.
Seljum og mörgum öðrum íslenskum verslunum.
áJ
Bækur.
Jónas Jónsson: Dýrafræði. Ann-
að hefti.
1 fyrra kom út fyrsta heftið af
þessari kenslubók um spendýrin.
En þetta hefti er um fuglana. Er
sagt á hálfri til þremur blaðsíðum
hið merkasta um lifnaðarhætti
hvers fugls. Frásögnin er hpur og
ljós og máhð gott. Fjöldi mynda
íylgir og eru myndiinar hinar
bestu, sem komið hafa í íslenskri
bamakenslubók. það vill brenna
við hér á landi, að iha sé vandað
th mynda, og er því þakkarvert
þegar út af bregður. Hefti þetta
um fuglana mun án efa verða sér-
lega vinsælt. Náttúrufræðin er th
þess fallin að böm hafi gaman af,
en því hefir hingað til ekki verið
að fagna, að kostur væri á heppi-
legri kenslubók. En J.J. hefir með
bókum sínum ráðið bót á því og
er þess að vænta að allir skólar
taki náttúmfræði hans með þökk-
um. það má engan skóla henda, að
ekki sé notuð besta bókin, sem völ
er á, þegar ekki er um að vhlast.
Harry Blomberg: Blandt Vulkan-
er och varma Kallor. Islandska
Strövtág.
Sænska skáldið Harry Blomberg
var á ferð hér í fyrra og hefir nú
gefið út ferðasögu sína. Bókin er
um tvö hundmð síður og hefir frá
mörgu að segja. Er yfirleitt rétt
með farið og engar ýkjur. Er það
því þakkarverðara þar sem höfund
ur er skáld og hefir ekki komið
hingað áður. Einstaka villa hefir
þó slæðst inn, svo sem: síra Ein-
ar fyrir: síra Eggert. En það er
ekki orð á slíku gerandi. Ferðasag-
an um Norðurland er yfirleitt
betri en Suðurlandus-lýsingin,
enda var höfundur lengur á Norð-
urlandi og naut þar betri fylgdar.
Höf. ber landi og þjóð vel söguna,
einkum þó landinu, og lýsir betur
íslenskri náttúrufegruð en vér eig-
um að venjast í erlendum ferða-
bókum. Víða innan um ferðasög-
una em kaflar um sögu landsins,
skólamál, fjárhag o. fl. Höf. hefir
fundið skýrt til kvíðans, sem í
fyrra gagntók landsmenn út af
fjárhag landsins, en telur það ljós
í myrkrunum, að helmingur lands-
manna séu samvinnumenn. Mikið
finst honum um ljóðást íslend-
inga og segir, „að gott sé að vera
skáld á íslandi“. Aðfinsiumar eru
hinar sömu og vér oft fáum að
heyra, að kirkjur séu notaðar sem
skemmur eða þurkloft og víðast
hvar þraut að ganga öma sinna þó
úr nógum stöðum sé að velja. Bók
Engströms um Island var að
mestu skop og glens og víða vill-
andi, en bók þessa Svía er skrifuð
í fullri alvöm og víðast af réttum
skilningi, en báðum háir það, að
þeir eru ekki nógu kunnugir máli
landsins og menningu til að skrifa
fyrir fslendinga, en þakkarvert
það sem Blomberg segir Svíum af
góðum hug. Blomberg virðist og
þrá að komast aftur til íslands;
er það bestur vottur um góðan hug
hans. Slíkir gestir em góðir. —
Sigurður Sigurðsson: Ljóð. 2.
útg.
Ljóð Sigurðar frá Amarholti
hafa náð mikilli hylli. þau eru þýð
og ljóðræn. það era ljóð en ekki
kvæði. þau era ekki stórskorin,
heldur broshýr og einhver dular-
ljómi í augunum. það kannast
flestir við bestu kvæðin, svo ekki
þarf að minnast þeirra nánar:
Lundinn helga, Hjörsey, Lágnætti,
Hrefna o. fl. Nokkram kvæðum er
bætt við, en þau jafnast ekki á við
hin bestu af gömlu kvæðunum. það
var þegar í upphafi auðvitað að
koma mundi önnur útgáfa af Ijóð-
um Sigurðar, og mun engan
undra, þó ekki verði langt að bíða
hinnar þriðju. Á.
----o----
Síld.
„Fagur fiskur í sjó“.
Síldin lifir í miljónatali um úthöf-
in. Stundum kemur hún í stórum torf-
um upp að löndunum. Gráðugar afla-
klær ausa henni þá upp úr sjónum og
flytja til lands. þar biða hervæddii
karlar og konur í vígamóði eins og
„hvita hersveitin" og stýfa hausa af
bolum. Blóðið streymir og hreistrið
glitrar í öllum regnbogans litum.
Síldin er smávaxin og lætur lítið yfir
sér. En hún er spegilfögur og freist-
andi eins og nýslegin spesía. þess
vegna fór svona fyrir Garðari. En þó
liturinn sé fagur, virðist hann ekki
einhlítur til að vekja hinar göfgan
kendir í sálum mannanna. Kjarval
málar aldrei síld. Og Kvaran yrkir
bara um þorsk. Nei, skáldin yrkja um
kríur og nashyrninga, náhveli og
kyrkislöngur, en aldrei um síld.
Bjarni skrifar vísindi um marhnúta
og karfa, kola og hákarla, en aldrei
um síld. það er eins og listir og vís-
indi hafi gert þennan fagra fisk út-
lægan um gervöll ríki sín. Jafvel þórð-
ur i Svartárkoti skrifar aldrei um sild.
En sildin lifir sínu lífi samt. Hún ei
sem sé pólitiskari en allir aðrir fisk-
ar, ef svo mætti að orði komast. Ein-
stakir menn og heilir flokkar manna
eiga henni alla sína pólitisku tilveru
að þakka. Bændadeild Morgunblaðsins
hefði aldrei verið nefnd sem pólitisk
ur flokkur, ef þórarinn, Hjörtur, Otte-
sen og Guðjón hefðu ekki lent í síld-
inni.
Og það var síldin, sem bjargaði
Magnúsi G. Skúmið í horninu hjá Jóni
var að vefa sig utan um pólitiska til-
veru Magnúsar og hann var að hverfa
í gleymskunnar djúp eins og niður-
setukerling norður i Svínadal. En nú
er nafn hans á hvers manns vörum og
Ijómann af Krossanessíldinni leggur
um land alt. Og „Mörður", þessi líf-
„vörður" ráðherrans, er orðinn hreistr
aður líka. Nú eru það ekki moldugir
sveitakarlar í Skagafirði, eða guðs-
menn í Borgarfirði, sem blása lifandi
anda í nasir lif-„varðarins“, heldur
eintómir síldarsérfræðingar. Jón Ól-
afsson og Ólafur Thors leggja til pen-
ingana og þá „faglegu" síldarþekk-
ingu, en Guðjón leggur til gott bænda-
„rigti“ og þá pólitisku síldarþekkingu,
ef svo mætti að orði komast. Magnús
og „minsti" Jón eru matsveinarnir og
„kokka“ úr síldinni kosningarétti
handa kjósendum sínum í Skagafirði,
en Valtýr leggur til blómaskrautið á
borðið ókeypis. Hákon.
-----0-----
Hljómleikar. þriðjudagskvöld
síðastliðið héldu þau hljómleik
saman í Nýja Bíó, ungfrú Jóhanne
Stockmarr og Páll Isólfsson. Mun
óhætt að fullyrða að aldrei hefir
heyrst fyr á Islandi fullkomnari
samleikur á píanó. Ánægjulegt er
það fyrir okkur íslendinga að
eiga slíkan snilling sem Páll er ís-
ólfsson, sem hvenær sem er getur
sest á bekk með hinum bestu
píanóleikurum annara landa, er
þeir koma hingað. — Bændurnir í
Húnavatnssýslu buðu Páli ísólfs-
syni á fund sinn, til þess að fá að
hlýða á list hans, og vafálaust fara
ýms önnur héröð að dæmi þeirra.
En þegar haldnir eru í Nýja Bíó
svo ágætir og fullkomnir hljóm-
leikar sem þessir, þá láta höfuð-
staðarbúarnir marga stóla standa
auða. það er ekki gott til af-
spurnar.
Páll J. Árdal skáld frá Akureyri
dvaldist hér í bænum um hríð und-
anfarið. Var að leita sér lækninga
við augnveiki og fékk góðan bata.
Hann er nú farinn heim aftur.
Látin er síðastliðinn mánudag, á
heimili sínu á Seyðisfirði, frú Sig-
ríður þorsteinsdóttir, ekkja Skafta
Jósefssonar ritstjóra. Frú Sigríður
var ein hinna þjóðkunnu Háls-
systra, dóttir síra þorsteins Páls-
sonar á Hálsi í Fnjóskadal og Val-
gerðar Jónsdóttur konu hans.
Lifði hún lengst systranna. Hall-
dóra kona Tryggva Gunnarssonar
dó fyrst, Hólmfríður kona síra
Arnljóts á Sauðanesi næst, en Val-
gerður kona síra Gunnars á Sval-
barði lifði þeirra lengst. Er nú
síra Jón þorsteinsson á Möðru-
vallaklaustri einn á lífi þeirra gáf-
uðu systkina. — Frú Sigríður var
ágæt kona, er vann traust, virð-
ingu og ást allra þeirra er henni
kyntust. Af börnum hennar og
Skafta er þorsteinn póstmeistari á
Seyðisfirði látinn, en á lífi eru
Ingibjörg kennari á Seyðisfirði og
Halldór símstjóri.
Guðmundur Finnbogason pró-
fessor hefir verið skipaður lands-
bókavörður frá 1. þ. m., en Jón
Jacobson fengið lausn frá því em-
bætti. Legst þá niður af sjálfu sér
prófessorsembættið í hagnýtri sál-
arfræði.
Talið er víst, að farist hafi
mótorkútterinn Rask frá Isafirði.
Hefir ekkert til skipsins spurst í
hálfan mánuð. Voru á skipinu 15
menn.
Skólarair. Aðsókn mun vera í
mesta lagi að skólunum í haust.
Er háskólinn var settur höfðu 29
nýir stúdentar innritað sig: 9 í
guðfræðideild, 10 í læknadeild, 7 í
heimspekisdeild og 3 í lagadeild.
Ný yfirhjúknuiarkona er komin
að Vífilsstaðahælinu, Magðalena
Guðjónsdóttir, sem undanfarið
hefir veitt forstöðu hjálparstöð
Líknar hér í bænum. Er hún
fyrsta íslenska yfirhjúkrunarkon-
an á Vífilsstöðum. Ungfrú
Warncke, sem áður gegndi starf-
inu, og um var ritað töluvert á
sinni tíð, er horfin heim til Dan-
merkur.
Hjónaband. Miðvikudag síðast-
liðinn voru gefin saman í dóm-
kirkjunni Guðmundur Vilhjálms-
son framkvæmdastjóri Sambands
íslenskra samvinnufélaga í Eng-
landi og Kristín dóttir Thor
Jensens útgerðarmanns. Ungu
hjónin fóru til Englands með
Gullfossi í gærkvöldi. Tíminn ósk-
ar þeim gæfu og gengis.
Ein merkasta timburverslun
Dana, P.W. Jacobsen & Sön, á 100
ára afmæli í dag. Hún hefir haft
mikil viðskifti á Islandi, fjöldi
bændabýla um alt ísland er reist-
ur að nokkru a. m. k. úr timbri frá
henni, því að kaupfélögm hafa um
Sendiðpantaniryðar
á gleraugum og öllum viðgerð-
um til F. A. Thiele, Lauga-
veg 2, Reykjavík, ef þér viljið
vera vissir um nákvæma af-
greiðslu.
Gleraugna sérverslun er yð-
ur trygging fyrir því.
Sími 1566.
Komandí ár.
Bókin kostar kr. 3,50. Fæst í ná-
lega öllum kaupfélögum og hjá Ár-
sæli. Valtýr hefir mælt með bók-
inni fyrir dönsku húsbændurna.
áratugi við hana skift og viðskift-
in reynst hin áreiðanlegsutu.
Mjög vandað minningarrit hefir
verið gefið út þessa tilefnis.
Slys. Vélbáturinn Elín úr Hafn-
arfirði var á leið suður frá Siglu-
firði um síðustu mánaðamót.
Hrepti stórviðri við Hom, tók út
einn mann, Böðvar Sigurðsson,
ókvæntan mann ungan héðan úr
bænum.
Látinn er í Kaupmannahöfn
stúd. polyt. Magnús Kristinsson
prófasts Daníelssonar. Hann var
24 ára að aldri, efnismaður mesti.
Berklar urðu honum að bana.
Slys, Síðastliðinn laugardag
hrapði maður í klettum fyrir ofan
Seyðisfjörð og beið bana. Hann
hét Sigurður Gunnarsson og var
frá Dvergasteini.
Skopleikur Guðbrands Jónsson-
ar, „Tíminn og Eilífðin“ hefir nú
verið leikinn nokkurum sinnum.
Ýmislegar góðar hugmyndir era í
leiknum, en ekki nógu vel notaðar.
Leikendur leika margir ágætlega.
Sextugsafmæli átti í gær frú
Camilla Bjarnarson,dóttir Stefáns
sýslumanns Bjarnarsonar. Dvelur
hún nú hér í bænum hjá bömum
sínum. Frú Camilla er fyrsti ís-
lenski kvenstúdentinn og hefir
mikið starfað fyrir opinber mál,
einkum árin sem hún dvaldist á
ísafirði.
Vetlingatök, alveg sérstaklega
klaufaleg, eru á tilraun danska
Mogga um að verja landsstjómina
í Krossanessmálinu. Verður að því
vikið síðar.
Ritstjóri: Tryggvi þórhallsston.
Prentsmiðjan Acta,