Tíminn - 21.02.1925, Síða 4

Tíminn - 21.02.1925, Síða 4
32 T 1 M I N N megn vanskil hafi verið á blaðasend- ingum þeim, er sendar hafa verið gegn um bréfhirðinguna á Kirkjuhœjar- klaustri á Síðu. Með liverri póstíei’ð koma blöðin „ísafold" og „Vörður" endursend, og það þiátt fyrir að sumir af móttakend- um hafa beðið um blaðið. Eg tel mikl er likur íyrir þvi, að blöðin séu end- ursend frá bréfhirðingunni sjálfri og tel nauðsynlegt að rannsakað verði þessar endursendingar og annað, sem virðist atliugavert við þessa bréfhirð- ingu. Eg skai geta þess, að eg hefi beð- ið póstafgreiðlsuna i Vik, að halda eft- ir þeim blöðum, sem eru endursend að austan, og mun eg síðar fá nákvœmai'i skýrslu um þær sendingar, hvort þær eru endursendar frá móttakanda. Eg skal þó taka það fram, að Ólafur Hali- dórsson hefir tjáð mér i síma, að önn- ur blaðasending sú, með áskrifuðu klámi og Ijótum orðum, sem kom end- ursent að austan .með síðasta pósti, og getið ur em i bréfi Ólafs, hafi ekki ver ið endursend af móttakandanum, sem var Vigfús Jónsson bóndi á Geirlandi. Vottorð írá Stefáni þorlákssyni á Arnardrangi fylgir hér með. Virðingarfyllst Jón Kjartansson. Til póststjórnarinnar á íslandi. Eg undirritaður lýsi hér með yi'ir þvi, að eg hefi ekki endursent blaðið „ísafold" með þessari póstferð (í júlí) né gert ráðstöfun til að það yrði end- ursent, enda hefi eg ætlað mér að kaupa það; ennfremur vottast að blað ið „Vörður“ og „ísaf." hafa ekki komið reglulega til min, og ekki fengið þau blöð tvær siðustu póstferðir. p. t. Vík, 8. júlí 1924 Stefán þorláksson. Vottorð: Nr. 1. Að gefnu tilefni lýsum vér undir- ritaðir þvi hér með yfir, að vér liöfum aldrei orðið þess varir að nokkur van- skil hafi átt sér stað, á nokkru því, sem vér höfum fengið sent með póst- inum gegn um bréfhirðinguna á Kirkjubæjarklaustri, þvert á móti höf- um vér ávalt þreifað á þvi, að þar er hin besta regla á öllu er að bréfhirð- ingunni lýtur og póstsendingum það- an. í þessu sambandi skal þess getið að vér liöfum beðið. bréfhirðinguna að senda ekki heim til vor önnur blöð en þau er vér höfum gerst kaupendur að og höfum vér um leið skýrt henni frá hver þau eru. þau blöð sem endur- send liafa verið með vorum nöfnum frá greindri bréfhirðingu, laafa þvi ver ið endursend eftir beiðni vorri. Leíðvalia og Iíirkjubæjarhreppum í nóvember 1924 Páll Sigurðsson þykkvabæ, Páll Guð- yhrandsson Hæðargerði, Bjarni Run- ólfsson Hólmi, Runólfur Bjarnason Hólmi, Einar Bjarnason Hólmi, Helgi Jónsson Seglbúðum, Hávarður Jóns- son Króki, Páll Jónsson Steinsmýri, Bjarnfríður Jóh. Ingimundsson Steins- mýri, Davið Ólafsson Steinsmýri Ein- ar þorsteinsson Steinsmýri, Vigfús Ólafsson Nýjabæ, Jón Jónsson Hunku bökkum, Sigurður Auðunsson Eystri- Tungu, Kristmundur Ó. Guðmundsson Ytri-Tungu, Auðunn Auðunnsson Ás- garði, Jón Einarsson Kárstöðum, Ei- ríkur þorgeirsson Efri-Vik, Dagbjartur Sveinsson Syðri-Vík, þórarinn Auð- unnsson Fagurhlið, Sigurður Runólfs- son Hraunkoti, þórarinn Helgason þyltkvabæ, Friðrik Kristófersson Neðri Mörk, Einar Jónsson Mörk, Bjarni Ein- arsson Heiði, Oddur Bjarnason Nýja- bæ, Jón Jónsson Efri-Mörk, Jóhann Sigurðsson Kirkjubæj.klaustri, Sveinn Sveinsson Steinsmýri. Mér er kunnugt um að faðir minn h.eitinn Magnús þórarinsson í Hátún- um bað bréfhirðinguna að endursenda öll önnur hlöð en þau sem hann hafði beðið um, Júlíana Magnúsdóttir. Ath. Við nánari athugun sé eg að eitthvað lítið vantar mig i blöð þau sem eg kaupi en af hvaða ástæðum er mér ókunnugt. Bjami Runólfsson Hólmi. Nr. 2. Yfirlýsing sú, sem eg undirskrifaði i Vík 8. júli s. 1. var alls ekki látin af hendi af mér í þeim tilgangi, að hún yrði notuð sem kæruefni á bréfhirð- inguna á Kirkjubæjarklaustri, en sem raun hefir á orðið. Sjálfur hefði eg alt eins vel getað snúið mér til hennar og mundi það eins vel hafa dugað til þess að eg fengi blöðin heim til min, að svo miklu leyti sem bréfhirðingin gat við ráðið, enda er langt frá, að eg hafi meint með yfirlýsingu þessari, að t)réfiiirðingin iiafi viljandi endursent ]>löð til mín án míns vilja. þess er getið í umræddri yfirlýsingu að blöðin „Vörður" og „ísafold" hafi ekki komið til mín í tveim síðustu póstferðum, en við þetta er það að at- huga, að þetta er ekki rétt hvað „ísa- fold" snertir, því við nánari athugun hef eg fengið liana með góðum skil- um, nema í eitt skifti. Ekki ber að skoða þetta sem ádeiluefni á bréfhirð- inguna á Kirkjubæjarklaustri, vanskil in gátu auðveldlega stafað annarstað- ar frá, t. d. hefi eg sjálfur verið við- staddur á Kirkjubæjarklaustri þegar pósturinn hefir komið og var sjónar- vottur að því að umrædd blöð komu ekki með póstinum í það skifti. Eg vil í þessu sambandi, og að gefnu tilefni, lýsa því hér með yfir, að eg hefi ekki annað en alt það besta að segja um þá menn, sem með bréfhirð- ingun á Kirkjubæjarklaustri og auka- póstana þaðan fara og vil því ekki hafa orðið til þess, að drótta að þeim neinu því, er til óhlutvendni mætti telja. Lárus og syni hans hefi eg aldrei reynt að neinu slíku. Arnardrangi 22. óv. 1924. Stefán þorláksson. Nr. 3. Mér hefir verið skýrt frá þvi af bréf- hirðingunni á Kirkjubæjarklaustri að eg sé talinn einn þeirra manna sem kvartað hafi undan vanskilum á blöð- unum „Verði" og „ísafold" og eg muni hafa undirskrifað eittlivað á þá leið, að blöð þessi hafi verið endursend án minnar vitundar. það sem eg veit eða man réttast þessu rnálefni viðkomandl er þetta: Eg hefi aldrei kvartað undan þessum umræddu vanskilum frá þess- ari bréfhirðingu, en í október í haust var eg á ferð i Vik og var þá beðinn að koma til viðtals við Gísla sýslu- mann Sveinsson og var það erindi hans við mig, eitthvað á þá leið, að spyrja mig um hvort eg fengi blöðin ,;Vörð“ og „Isafold" og sýna mér jafn- framt miða með nokkrum nöfnum á og þar á meðal mínu, er eg veit ekki hvaðan hefii' verið fengið og mun eg hafa vottað að eg hafi ekki skrifað á það blað. þá i svipin mundi eg ekki eftir, að eg hafði beðið bréflúrðing- una að endursenda „Vörð" og aftur- kalla eg því hér með það er í þessu umrædda Víkurblaði stendur, hvað „Verði" við kemur. Hvað „ísafold við kemur, þá liefi eg fengið hana með sæmilegum skilum og hefi eg aldrei meina að hún hafi verið endursend af bréfhirðingunni á Kirkjubæjarklaustri an mins vilja, að yfirlögðu ráði. þó eg að lítt athuguðu máli í fljót- l eitum hafi undirskrifað hjá sýslu- manni eitthvað sem honum sýndist vert að nota sem ákæruefni á bréfhirð- iriguna á Kirkjubæjarklaustri, þá var það aldrei mín ætlun, enda hefði það verið órétt og ómaklegt af mér að gera slíkt. Ytri-Dalbæ 21. nóvember 1924 Páll Jónsson. Nr. 4. Með því að mér er kunnugt að nafn rnitt hafi verið notað til árásar á bréf- hirðinguna á Kirkjubæjarklaustri, þannig að „ísafold" hafi verið endur- send þaðan frá mér sem viðtakanda, án minnar vitundar, skal þessa getið: þegar póstur kom frá Rvík að Kirkjubæjarklaustri í vor fyrst eftir að „ísafold" kom út og var send út und- ir ritstjórn Jóns Kjartanssonar og Val- týs Stefánssonar var eg þar staddur. Fæ eg þar meðai annars „ísafold". Eg segi þá við bréfhirðinguna: Hér fæ eg senda „isafold". í þetta sinn veiti eg henni móttöku. Af þessu gat bréfhirð- ingin ekki annað skilið en sjálfsagt væri að endursenda blaðið, síðar datt mér til hugar að kaupa blaðið og lét verslun Halldórs Jónssonar í Vík vita um“ það því hún ætlaði að innheimta andvirði þess. Nú fæ eg ekki blaðið nokkrar póstferðir, tel víst út af fyr- refndum ummælum að það sé endur- |j sent. Hafði eg því hugsað mér að láta j bréfhirðinguna á Kirkjubæjarklaustri vita um þetta, en dregist. Fæ þá bréf : írá Olafi .1. Halldórssyni í Vík þar sem hann tjáir mér m. fl. að ísafold komi endursend frá Klaustri og spyr mig hvort eg ætli ekki að halda áfram að kaupa hana. Eg svara honum að eg ætli mér það en bréfhirðingunni á Kbkl. hafi verið það ókunnugt. Að þessu athuguðu hefi eg enga ástæðu til að kvarta undan neinum vanskilum frá nefndri bréfhirðingu og að þvi er eg best veit, veit eg ekki til annars en hún sé áreiðanleg i alla staði gagnvart hennar skyldum. Finn eg mig þvi knúðan til að mótmæla að nafn mitt sé að ástæðulausu notað til árásar á fyrnefnda bréfhirðingu að neinu leyti. Steinsmýri 1. des. 1924. Bjarni Ásgr. Eyjólfsson. Nr. 5. Eg undirritaður Sigfús H. Vigfússon a Geirlandi lýsi þvi iiér með yfir, að eg skýrði bréfhirðingunni á Iíirkjubæj arklaustri frá þvi snemma á siðast- iiðnu sumri, að blaðið „ísafold" sem sent var föður mínum ætti ekki að senda heim til hans, þvi hann hefði aldrei beðið um blaðið og ætlaði sér ekki að kaupa það. Blaðið átti því að endursendast beint frá bréfhirðing- unni. Geirlandi 30. nóv. 1924 Sigfús H. Vigíússon. Eg lýsi þvi hér með yfir að Sigfús sonur minn hafði fulla heimild til að gera frumanskráða ráðstöfun, blaðinu „ísafold" viðkomandi. Geirlandi 30 nóv. 1924 Vigfús Jónsson. Nr. 6. Eg undirrilaður lýsi því hér með yfir að gefnu tilefni, að eg hefi venju- lega fengið allar blaðasendingar mín- ar og annað það eg til veit að mér heíir verið sent, með góðum skilum með aukapóstinum frá Kirkjubæjai'- kiaustri. Aðeins hefir það komið fyrir að í blöðin liefir vantað, t. d. á næst- liðnu sumri kom „Vörður" eigi með einni póstferð (4. blað) og sömuleiðis eigi öll „ísafold", svo og ekki Timinn með síðasta pósti. Einnig hefir það komið fyrir að sendingar til mín hafa borist til Prestbakka og þaðan með ferðum til mín. Holti 23. nóv. 1924 Björn Runólfsson. Nr. 7. Að gefnu tilefni lýsi eg undirritaður því hér með yfir að eg bað bréfhirð- inguna á Kirkjubæjarklaustri siðast- liðið vor að endursenda blaðið „ísa- fold', og einnig skal það tekið hér fram að eg lét mér alveg standa á sama livort blaðið „Vörður" kom til min, hafði aldrei beðið um það, og ætl- aði ekki að gerast kaupandi þess, en hvort eg hefi beðið bréfhirðinguna á Kirkjubæjarklaustri að endursenda það, eða sent henni orð um það, man eg ekki með vissu. En það er víst að eg hefi aldrei kvartað undan vanskil- um á blaðasendingum eða öðru frá bréfhirðingunni, og hefi enga ástæðu til þess. Eystri-Dalbæ 24. nóv. 1924 Auðunn pórarinsson. Nr. 8. Að gefnu tilefni lýsi eg þvi hér með yfir að eg hefi aldrei orðið var við að nein vanskil liafi átt sér stað á nokkru því sem ,eg hefi fengið sent með póst- inum gegnum bréfhirðinguna á Kirkjubæjarklaustri. Eg hef þess í stað séð fram á, að þar er hin besta regla á öllu, er að bréfhirðingunni lýtur og póstsendingum þaðan, sem eg hefi viljað fá til mín heim. Hrauni 26. nóv. 1924 Bjarni Bjama.(son) Bréfhirðingm á Kirkjubæjarklaustri. Kirkjubæjarkl. 2. des. 1924. Eg hefi meðtekið bréf frá póststjórn- inni dags. 21. okt, með þremur fylgi- skjölum og skal hér með leitast við að svara því og kærum þeim er fylgiskjöl in hafa inni að halda. Eins og eg skýrði aðalpóstmeistara frá siðast er eg var á ferð i Rvik álit eg að eg hafi ekki getað svarað ákær- um þessum fyr en nú að eg fekk þær greinilega i hendur. Símskeytið frá 9. ágúst er svo ógreinilegt, sem sjá má af þvi sjálfu, er eg legg hér með— að eg gat-ekki séð að eg gæti svarað svo, að að nokkru liði kæmi. Auk þess sem simskeytið er ógreinilegt er það stilað á póstafgreiðsluna á Kirkju- bæjarklaustri. — en ekki bréfhirð- inguna — svo eg var eins vel á að átt væri við póstafgreiðsluna á Prest- bakka og hefði líklega verið réttara að senda skeytið þangað ti1 umsagnar. Póstafgreiðslan á Prb. nouir sem sé stimpla frá Kbkl. Eg vissi ekki — og veit ekki enn — að nokkuð er umræddar kærur haía inni að halda liafi átt sér stað hér á Kirkjubæjarklaustri. Nú hefi eg tekið það ráðið sem mér linst að liljóti að hafa mest að segja í þessu kærumáli, sem sé það, að láta sem flesta af mönnum þeim, sem nota j eiga bréfhirðinguna hér, svara sjálfa, má best sjá á live miklum rökum kær- urnar eru, sem póststj. haía borist. 1 umdæmi bréfhirðingarinnar eru sem næst 40 búendur að liúsmönnum meðtöldum. Af þessum 40 búendum hafa 30 vottað á blað er fylgir merkt nr. 1. Sjö af búendunum hafa skrifað blöðin 2—8. þar á meðal þeir menn sem umræddar kœrui' greina frá að hafi kvartað. Yfirlýsingar þessara manna bera það með sér að þeir hafa ekki kvartað undan bréfhirðingunni hér, heldur hafa Vikurmenn, sýslu- maður og Ólafur Halldórsson og ef til vill fleiri, gert sér far um að nota þá sem ástæðu til að kæra bréfliirðing- una hér. það -sem þessir Vikurmenn hafa fengið umrædda menn héðan til að undirskrifa virðist ekki ætla að reynast þeim traust undirstaða til liinnar lúalegu árásar á mig. Til þriggja búenda hér í hreppnum hefi eg ekki náð. þykir of mikil fyrirhöfn að senda til þeirra; enda sést ekki á kærum þessum að nokkuð sé athuga- vert við þá; ekki sjáanlegt að þeir hafi þótt nothæfir til að liafa stuðn- ing aí til árásanna. Mér verður nú fyrir að spyrja: Hverj ir hafa orðið fyrir hinum „megnu van- skilum" á blaðasendingum sem gegn um bréfhirðinguna hafa farið? það er’ þegar sannað ineð vottorðum þeirra manna sjálfra sem nota eiga bréfhirð- inguna að ekki eru það þeir, sem fyr- ir þessum megnu vanskilu hafa orðið. Jeg held, að sé um vanskil á póstsend- ingmuum að ræða hér nærlendis, eigi aðrir meiri sök á því en bréfhirðingin hér. T. d. i síðustu póstferð tók póst- afgreiðslan á Prestbakka yfir 100 blaðasendingar úr póstinum sem allar voru komnar of langt. Mikið af þess- um blöðum átti heima hér i bréfhirð- ingarumdæminu og nokkuð í Skaftár- tungu, Meðallandi, Álftaveri og Mýr- dal. Hvað hefði verið sagt um þetta af þeim Vikverjum, ef bréfhirðingin hér hefði sýnt af sér slíka óvandvirkni? Af þessum ástæðum er það, sem Björn hreppstjóri í Holti fær stundum eitthvað af blöðum frá Prestbakka, samber vottorð hans, er hér fylgir. Bréfhirðingin hér ræður ekki við það, þó blöð fari frá einum og öðrum frarrihjá, í þeim umlrúðum sem hún á engan aðgang að. það hefir oft komið fyrir að mín eigin blöð hafa ekki kom ið hingað. Líkt þessu mun víða eiga sér stað á landinu að eitthvað af blöð- um fer annað en vera á, en svo mikið sem það er hér var greint mun fá- titt. þetta hefi eg og aðrir ekki viljað gera að kæruatriði, heldur beiðast lögunar á þessu við afgreiðsluna sjálfa í Vík, enda hefir það hjálp- að stundum. Eigi dettur mér til hug- ar að fríkenna bréfhirðinguna hér frá því að hana geti ekki hent það, að blöð fari annað en þau eiga að fara, enda mun svo vera að eitthvað hafi slæðst óviljandi til Víkur á síðastliðnu sumri með endursendu blöðunum, en litið mun það vera, þó hátt sé hrópað með það. Slikt mætti liklega gera flest um bréfhirðingum og póstafgreiðslum. Eg sé á kæru Jóns Kjartanssonar, að liann „telur nauðsynlegt, að rannsak- aðar verði þessar endursendingar og annað sem virðist athugavert við þessa bréfhirðingu." Ordsending’. þeir sem hafa fengið áskrifta- lista að bókinni Mullersæfingar, eru vinsamlega beðnir að senda þá útfylta við f^rsta-tækifæri. Bókin kemur út um miðjan mars. Jón þorsteinsson, Mullerskólinn Reykjavík. Mér væri þetta síst á mðti skapi; þvert á móti er full ástæða fyrir mig að-krefjast þessa, svo framt, að póst- stjórnin álítur að gögn þau sem eg legg nú fram til andsvars kærum þess- um ekki fullnægjandi til þess að sýna fram á, að eg er haíður hér fyrir rangri sök. það má láta þess getið hér, þó það sé raunar óþarft, að 'eg get ekki skilið livað annað J. K. virðist atliugavert við bréíhirðinguna hér en endursend- ingarnar. Honum átti þó að vera kunn- ugt um, að aðalpóstmeistari atliugaði það er honum heíir fundist þörf á hér á siðastliðnu sumri, og að hann taldi alt í góðu lagi. þetta athugaverða hlýt ur þá að liafa gerst síðan i sumar, þvi ekki má gera ráð fyrir að J.K. telji það öð engu, sem aðalpóstmeistari gerir í yfirlitsferðum sinum í þessu efni. í kæru Ólafs Halldórssonar er með- al annars kvartað undan „klámi“ og ljótum orðum utan á blaðaströngum. Um þetta er bréfhirðingunni ekki kunnugt; veit ekki hver eða hverjir eru þess valdandi. Trúað gæti eg þeim er þessar ofsóknir hefja, að skrifa slíkt sjálfir, eða fá aðra til þess, og i.enna svo bréfhirðingunni hér um. það er eigi meira en annað, sem fram < r komið frá þessum mönnum á sið- ustu timuin. Ólafur telur einnig að ekki geti gengið lengur að liafa bréfhirðinguna á Kirkjubæjarklaustri. Áður en hann gjörði sér svona mikið far um að at- huga hvernig bréfhirðingin á Kirkju- bæjarklaustri er starfrækt og taka á sig það ómak að senda hverja kæruna af annari (líklega að áeggjan sér verri inanns þar í Vík — fyrir hönd manna hér i bréfhirðingarumdæminu, án beiðni þeirra eða samþykkis, — hcfði honum verið eins þarft, og eins heiðarlegt, að líta nær sér; gæta þess, að ekki vœru eins miklar misfellur á blaðasendingum frá póstafgreiðslunni i Vík, eins og bent hefir varið á hér að framan, að átt liafi sér stað, og það á sama tíma sem hann er að senda kærur á bréfh. hér, út af margfalt minni ástæðum. þeir sem búa í gler- húsi, ættu að gæta þess, að láta ekki liafa sig til að kasta grjóti á aðra. þegar eg var siðast á ferð í Reykja- vík lét aðalpóstmeistari þess getið við mig, að hann liafi áætlað að auka- póstarnir hættu að ganga héðan vegna kæranna sem fram voru komn- ar. Um leið lét hann þess einnig get- ið, að ef eg ósannaði þenna áburð á bréfhirðinguna, þá mætti breyta áætl- un þessari. Eg þykist nú hafa fært sönnur á, að nær alt sem á bréfhirð- inguna hefir verið borið, eru ósann- indi; það er því sanngirniskrafa mín, að engin breyting verði gjörð á auka- póstunum héðan. Ef ekki er fært að trúa mér fyrir aukapóstunum, þá er ólíklegt að fært sé að trúa mér fyrir bréfhirðingunni heldur. Verði aukapóstarnir ekki látnir ganga héðan eftir áramótin, er áreið- anlegt, að hér í sveit ris megn óá- nægja yfir breytingunni. Virðingarfyllst. Lárus Helgasoú. Til póststjórnarinnar á Islandi. -----O---- Aðalsteinn Kristinsson fram- kvæmdastjóri S. I. S. er nýkominn heim úr utanför. Embætti. Héraðslæknisembætt- ið í Vestmannaeyjum er auglýst laust til umsóknar. Umsóknar- frestur er til 1. apríl. prjú prestaköll eru auglýst laus til umsóknar; Bergsstaðir, Skútu- staðir og Hofteigur. Ritstjóri: Tryggvi pórhallsson. Prentsmiðjan Acta.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.