Tíminn - 07.03.1925, Side 2

Tíminn - 07.03.1925, Side 2
40 T I M I N W Sm.á'Sdliivei'd má ekki vera hærra á eftirtöldum tóbakstegundum, en hér segir: ZE^ey-IkrtóJosiIs:: Golden Bell frá J. Gruno......................Kr. 18.70 pr. 1 kg. Feinr. Shag — sama.............................— 16.40 — 1 — Louisiana frá C. W. Obel........................— 16.70 — 1 — Moss Rose — sama ..............................— 15.80 — 1 — Islandsk Flag frá Chr. Augustinus...............— 16.40 — 1 — Engelsk Flag — sama — 16.70 — 1 — Dills Best (»/, & Vi) frá United States Co. . . — 13.80 — 1 lbs. Central Union V2 — sama . . — 10.05 — 1 — Utan Reykjavíkur má verðið vera því hærra, sem nemur flutn- ingskostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó ekki yfir 2°/0. Ziandsverslun Zslands. Laus sta'da.. Bæjarstjórastaðan á Akureyri er laus frá 1. júlí þessa árs að telja. Umsóknarfrestur til 1. maí næstkomandi. Stöðuna veitir bæjarstjórn Akureyrar til þriggja ára í senn. Frekari upplýsingar gefur undirrituð nefnd úr bæjarstjórninni. Akureyri, 11. febrúar 1925. r Ragnar Olafsson, Ingimar Eydal, J. Karlsson. Búnaflurinn 09 mannfæflin í sveitunuxn. ------ Niðurl. 4. Fjölga kúnum. Með aukinni ræktun og býlafjölgun verður að leggja áherslu á nautgriparæktina og fjölga nautgripunum, en fækka hrossunum. Meir að segja eiga bændur í mörgum sveitum þessa lands að byrja strax á þessu. Til þess þurfa þeir ekki að taka lán. Nautgripum getur fjölgað fljót- lega, ef menn aðeins vilja hefj- ast þar handa. það mundi einnig flýta fyrir ræktuninni. En um leið og kúpeningnum er fjölgað og yrkingin eykst, verður óhjákvæmilegt að fækka hrossun- um. Enda er alment álitið, að það sje enginn búhnykkur að eiga fleiri hesta en til heimilisnota, reiðar og áburðar. Mundi þá og meðferðin á þeim verða betri. 5. Rafmagnsveitur. Að koma á fót rafmagnsveitum í sveitum, til ljósa, suðu og híbýlahitunar, er eitt af því allra þýðingarmesta sem gert verður fyrir búnaðinn. Rafveitumálið er því hvoru- tveggja, stórmál og nauðsynja- mál. En hér er ekki tækifæri til að ræða það mál að þessu sinni. það eitt má fullyrða, að hitun og lýsing með rafmagni, mundi blátt áfram umskapa sveitabúskapinn og sveitalífið á margan hátt. Með- al annars mundi slík breyting gera sveitaheimilin vistlegri og auka þrifnað og þægindi. VIII. Hér hefir nú verið vikið að því með nokkrum orðum, hvað helst þurfi að gera til þess að tryggja það, að unglingarnir, sem nú eru að alast upp og eru þegar upp- komnir, ílengist heima í sveitun- um en flytji ekki í burtu. En það er fleira er nefna mætti í þessu sambandi og styðja mundi að þessu, þar á meðal stofnun skóla i sveitum, öflugur ungmennafé- lagsskapur, aukin samvinna og meiri félagsskapur o. s. frv. Jónas skólastjóri Jónsson frá Ilriflu skrifaði hér um árið grein í „Skinfaxa“ (V. ár., 6. tbl.), þar sem hann sýnir fram á, að skóla- hald í sveit kosti minna, einkum fyrir nemendurna en skólar í kaup stað. í Skólablaðinu gamla víkur hann einnig að þessu, í sambandi við kennaraskólann, og stingur Erindi lagt fyrir Búnaðarþing frá Halldóri Vilhjálmssyni skólastjóra og Sigurði Sigurðssyni búnaðar- málastjóra. Eins og kunnugt er skulu búin við bændaskólana rekin þannig, að þau geti veitt alt að 10 nemend- um verklega tilsögn minst 6 vikna tíma á ári. þetta ákvæði sýnir að löggjafarvaldið hefir haft opin augun fyrir nauðsyn verklegs bún aðarnáms, jafnhliða hinu bóklega námi. Enda mun eigi um það deilt, að hin bóklega fræðsla, sem bún- aðarskólar vorir veita, getur því aðeins komið að tilætluðum not- um, að næg verkleg þekking sé á öllum helstu störfum, er snerta búnað vorn. Og það er alls ekki nægilegt að menn kunni þær vinnuaðferðir, sem nú eru alment notaðar, heldur verður að kenna þær aðferðir, sem - reynslan og vísindin hafa sýnt, að best geti að gagni komið við þau fram- leiðsluskilyrði, sem vér störfum undir. Fáum þjóðum, sem lifa á land- búnaði, mun jafn nauðsynlegt og oss, að fá aukna verklega ment- un 1 jarðræktar- og öðrum bún- aðarstörfum. Sem dæmi má nefna að fæstir af þeim, sem búnaðar- skólana sækja, kunna að setja hesta fyrir fjórhjólaðan vagn, hvað þá að þeir kunni að stýra upp á því, að hann sé fluttur upp í sveit. Hvað sem nú kostnaðarhliðinni líður — og er hún þó ekkert óverulegt atriði í þessu máli — þá er hitt víst, að kaupstaðaskól- arnir hafa átt sinn þátt í því að draga fólkið úr sveitunum. Að þessu leyti hafa hinir mörgu skól- ar í kaupstöðum verkað í öfuga átt við það, sem þeim hefði borið að gera. — Gagnfræðaskólann á Akureyri hefði aldrei átt að flytja frá Möðruvöllum, og kennaraskól- inn átti að vera í sveit. En nú er of seint að byrgja brunninn, því barnið er dottið ofan í. Um flutning á skólum úr kaupstöðum, mun naumast verða að ræða að sinni, úr því sem kom- ið er. En þá er hins að gæta að bæta þar ekki við fleirum. Al- þýðuskóla, sem hér eftir kunna að verða stofnaðir, á að reisa í sveiturn landsins. Á eg hér eink- um við unglingaskóla, lýðskóla, húsmæðraskóla o. s. frv. En það er áríðandi, að skólarnir séu sett- ir þar, sem telja má, að þeim sé vel í sveit komið. þeir ættu helst að vera nálægt miðbiki hér- aðsins, sem þeir eru reistir í. þá verða þeir eða geta orðið eins- konar miðstöð menningar og manndóms. Á skólunum má þá halda stutt námskeið „fyrir fólk- ið“ um eitt eða annað. þar eiga menn að geta komið saman til funda, og rætt sín áhugamál og skemt sér. Ungmennafélögin geta og gert mikið ef þau leggjast á eitt um það að hafa áhrif á yngri kyn- slóðina og innræta henni áhuga og virðingu fyrir allri sveitavinnu og sveitabúskap. En nú munu einhverjir segja sem svo, að þetta sem rætt hefir verið um hér á undan, að gera þurfi, verði ekki framkvæmt með tvær hendur tómar. það er hverju orði sannara. Hefir og nokkuð verið vikið að því áður. — En fyrst er nú að reyna að hafa áhrif á þjóðina í þessu efni, svo að henni skiljist, hvað hér er um sð ræða. „Grunaða kvæðið er hugsunar- hátturinn“. þessvegna þarf að byrja á því að laga hugsunarhátt- inn og koma bændum og alþjóð í skilning um það, að með því að bæta jarðirnar og efla sveitabú- skapinn, er verið að tryggja til- venirétt þjóðarinnar í landinu. honum. Nær því engir kunna að nota plóg, herfi eða önnur þau jarðyrkjuverkfæri, sem talið er sjálfsagt að hver 16 vetra ung- lingur erlendis geti stjói’nað jafn auðveldlega og vér orfinu og hríf- unni. Eða hversu mörg munu þau býli, hér á landi, sem ekki þekkja jafn sjálffsögð heyvinnuáhöld og heyýtan og kvíslin eru. Áhöld sem sáralítið kosta, en spara tímann og minka erfiði -að miklum mun. Sviplík dæmi mætti telja lengi, en þess gerist ekki þörf, til þess að sýna hvílíkt feikna haf verk- legrar vankunnáttu og framtaks- leysis vér verðum að brúa, ef nokkur von á að verða til þess að landbúnaðurinn haldist í hendur við aðra atvinnuvegi á framsókn- arbrautinni, en dragist ekki aftur úr, eins og of oft hefir átt sér stað. Ef vér játum, að verkleg van- þekking sé einhver erfiðasti „þrándur í Götu“ búnaðarfram- kvæmdanna hér hjá oss, þá virð- ist liggja beint við að athuga, hvort það sem gert hefir verið, muni verða nóg til að kenna ís- lenskum bændalýð hinar hag- kvæmustu vinnuaðferðir, og not- kun þeirra verkfæra og véla, sem að gagni geta komið við hin marg breyttu og vandasömu búnaðar- störf, sem stöðugt krefjast úr- lausnar bóndans á öllum tímum árs. Eins og áður er getið, er með núverandi skipulagi búnaðarkensl- það er þungamiðja þessa máls. Úm lán til búnaðarins, til jarða- bóta, húsabóta o. s. frv. hefir mik- ið verið rætt að undanfömu. Tíminn hefir hvað eftir annað fiutt skorinorðar greinar um það mál. — Gera má nú ráð fyrir, að á Alþingi í vetur verði sett á fót lánsstofnun fyrir búnaðinn. En hann þarf mikils með, ef vel á að vera, og getur því ekki gert sig ánægðan með nein „pappírs- lög“ í þessu efni. það er nú best að bíða og sjá hvað þingið gerir í vetur. En jafnvel þótt stofnað yrði til búnaðarlána á einn eða annan hátt, þá er það ekki fullnægjandi. Jafnframt verður að leyta annara ráða til að afla búnaðinum fjár -eða vinnuafls, svo að jarðabótum, rafmagnsveitum og fleim sem þarf að gera, miði áfram. Og ráðið er: pegnskylduvinna. Ef að þjóðin þekkir sinn vitj- unartíma og skilur sitt hlutverk, þá hlýtur hún að fallast á að þegnskylduvinna vei’ði lögleidd í einni eða annari mynd. það er óhjákvæmileg lífsnauðsyn þessari unnar, gert ráð fyrir að nemend- ur bændaskólanna eigi kost á 6 vikna vornámsskeiði til verklegs náms. Vér þorum að fullyrða, að þessi tími er alt of stuttur til þess að hægt sé með nokkurri sann- girni að búast við, að verulegur árangur sjáist af því námi. Fyrir það fyrsta er 6 vikur svo stutt- ur tími, að ómögulegt er að vænta að nemendurnir fái sæmilega þekkingu og æfingu á áður lítt þektum eða óþektum störfum og vinnuaðferðum. í öðru lagi eru flestir þeir, sem slík námsskeið sækja gersamlega ófróðir í grund- vallaratriðum vinnuaðferðanna; en það köllum vér í þessu sam- bandi störf eins og: Að geta lagt aktýgi á hest, og geta spent hesta fyrir flest algeng jarðyrkju- verkfæri, og geta gert greinar- mun á hinum helstu jarðyrkju- verkfterum o. m. fl. þessi grund- vallaratriði, sem reynslan hefir kent þeim, er við slíka kenslu hafa fengist, að fæstir kunna, eru jafn nauðsynleg undirstöðuatriði undir verklegt nám og að þekkja gildi talna er undirstaða alls stærðfræðisnáms. það má því telj- ast gott, ef hin einföldustu grund- vallaratriði verklegrar þekkingar hafa orðið hinum minst undir- búnu nemendum ljós; þeir, sem betur voru undirbúnir hafa kom- ist nokkru lengra, misjafnlega eftir efnum og ástæðum. En of fáir hafa náð því takmarki, sem námið stefnir að og það er: Að þjóð. Og eg er sannfærður um það, að þegar fram í sækti, mundi þetta reynast, undantekningarlít- ið, bæði réttlátur og léttbær skatt ur. — En þegnskylduvinnufyrir- komulagið þarf að sníða við okk- ar hæfi að öllu leyti. Á síðasta þingi var flutt tillaga um að fela stjórninni að skipa nefnd til að rannsaka þegnskyldu- vinnumálið og búa það undir næsta þing. Nefndin átti að starfa kauplaust. Tillagan var vit- urleg. Flutningsmenn létu henni fylgja frumvarp til laga, um heimild til að taka upp þegn- skylduvinnu og er margt í frum- varpinu rétt athugað og fram- tekið. — En ekki er tími til þess nú, að fara þar út í einstök atriði. Efri deild Alþingis vanst ekki tími til að afgreiða tillöguna, eða „stakk henni undir stól“. — En þótt hún næði ekki fram að ganga í þetta sinni, hlýtur hún að verða tekin upp aftur á þinginu í vetur, og á hverju þingi eftir- leiðis meðan ekki vinst, uns sig- ur er fenginn. Með þegnskylduvinnu verður nemendurnir verði færir um, að náminu loknu, að verða braut- ryðjendur verklegra framfara hver í sínu bygðarlagi. það er því skoðun vor, að með núverandi fyrirkomulagi fáum vér aldrei nógu' marga verkfróða menn; og það er áreiðanlega sprottið af skilningsleysi almenn- ings, á þessu máli, að búast við mönnum eftir 6 vikna nám, sem séu færir um að vinna og stjóma hinum vandamestu jarðyrkjustörf um. s Vér getum ekki látið vera að drepa á það, að oss virðist nú vera að gerast þeir atburðir í búnaðarmálum vorum, sem krefj- ist aukinnar verklegrar sérfræðis- mentunar. Viljum vér í því sam- bandi minna á, að á næstu árum mun ríkissjóður auka fjárfram- lóg sín til aukinnar ræktunar og annara búnaðarframfara, að nokkru leyti með lánum og að Bokkru leyti með styrkveitingum. það mun öllum Ijóst hvílík nauð- syn það er, að þessu fé sé varið sem heppilegast. Fyrst að það sé lagt í þau fyrirtæki, sem fyrstan og mestan arð gefa, og í öðru lagi, að verkin séu framkvæmd rétti- lega, unnin með hagsýni og dugn- aði og sé stjórnað af mönnum, sem næga sérþekkingu hafa til brunns að bera á því sviði. En þá menn eigum vér ekki nógu marga til nú sem stendur; vér verðum því að ala þá upp, og vér sjáum ekki aðra leið heppilegri en auka fljótast og farsælast að rækta landið og byggja. Ritað í ígripum um Mörsugu 1925. Sigurður Sigurðsson, ráðunautur. ----o-- Athug’asemd við „Krossanessmálið enn“. Herra ritstjóri! I greininni „Krossanessmálið enn“ í „Tímanum“, sem út kom 28. febr. svarar hr. Stangeland spumingu yðar um það, hvort það hefði verið verksmiðjan, sem átti frumkvæði að því, að eftir- litsmaður mælitækjanna kom í Krossanes, á þessa leið: „það mun ekki hafa verið. Eg (Stange- land) mun hafa verið einn hinn fyrsti, eða fyrstur, sem bað eftir- litsmanninn að rannsaka mæli- kerin. Eftirlitsmaðurinn mun hafa verið þarna á eftirlitsferð“. Vegna þess að þetta svar verð- ur varla öðruvísi skilið en að það sé fyrir beiðni hr. Stangelands eða annara hlutaðeigenda, að mæli keröldin í Krossanesi voru athug- uð af eftirlitsmanni Löggilding- arstofunnar, vil eg við þetta svar gera þá athugasemd, að þegar al- þingi síðastliðinn vetur samþykti að leggja niður Löggildingarstof- una, fanst mér rétt að bera það undir atvinnumálaráðuneytið, hvort hið almenna eftirlit með mælitækjum og vogaráhöldum skyldi verða framkvæmt síðastlið- ið sumar. Fyrri hluta maímánað- ar átti eg tal um þetta við at- vinnumálaráðherrann og eg gat þess þá, að ein af ástæðunum, sem gerðu það æskilegt í minum augum, að eftirlitinu væri haldið áfram, væri sú, að við fyrsta eft- irlitið hefðu síldarmálin á Norður- landi eigi verið athuguð, og eg vildi, að þau væru rannsökuð, með an Löggildingarstofan væri við líði, því að óvíst væri, að nokkurt verulegt eftirlit yrði haft með þeim, eftir að Löggildingarstofan væri undir lok liðin. það var þá ákveðið, að eftirlit- ið skyldi halda áfram sumarið 1924, og eg ákvað þá þegar (í maí), að ferðum eftirlitsmanns skyldi haga þannig, að hann kæmi snemma á síldveiðatímanum til Eyjafjarðar. Eftirlitið með síldar- verklegu kensluna að miklum mun frá því sem nú er, að hún verði gerð svo fullkomin, að þeir sem hafi notið hennar, samfara hinni bóklegu kenslu bændaskólanna, geti orðið verklegir leiðtogar, hver á sínum stað, bæði hvað verk- stjórn og undirbúning minni ný- yrkjufyrirtækja snertir. Vér efumst ekki um, að ef þessu verður ekki sint, en alt lát- ið reka á reiðanum með sama hætti og að undanfömu, þá muni það verða til stórtjóns fyrir land- búnað vom. Jarðyrkjuverk vor bera svo víða augljós merki vankunnáttu og þekkingarleysis á framkvæmd þeirra starfa sem unnin hafa ver- ið, að vér megum ekki horfa að- gerðalausir á það lengur. því meira fé, sem lagt verður í bún- aðarframkvæmdir, því fleii’i verða mistökin, nema byrgt verði fyrir þann leka með auknu námi. Og gæti þá svo farið, að vér sæjum um seinan, að vér, vegna van- kunnáttu, við aukna rækt og aðrar búnaðarframfarir, hefðum kastað krónunni, en sparað eyrir- inn, er vér ekki vildum verja nokkram þús. kr. til aukinnar verklegrar þekkingar. Samkvæmt framanskráðu leyf- um vér oss því að koma fram með eftirfylgjandi tillögur um fyrir- komulag verklega námsins við bændaskólana. Samkvæmt eðli málsins er eðli- legast að taka það í tveim liðum:

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.