Tíminn - 14.03.1925, Blaðsíða 3
T I M I N N
51
h a 1 £ sti a* i*!
32 litir
Heimalitur.
40 ára reynsla
Litar og hreiusar ull, lérett, silki og baðrnullarföt betur og
ódýrara en nokkur annar litur! Gerir gömul föt sem ný!
Shalimar
fæst í pölckum á
20 gr. til 160 gr. og
60 gr. til 500 gr. •
Leiðarvísir á íslensku!
Shalimar
litar íslenska ull
allra lita best!
Leiðarvísir á íslensku!
Shalimarlit og Shalimarfægilög framleiða
Johs, Vormbaum & Söliiie, Diisseldopf.
Stofnsett 1885.
Munið að þýsk litagerð stendur öllum öðrum framar.
Notið Shalimar!
Shalimarlitur og Shalimarfægilögur fæst í umboðs- og heild-
sölu hjá aðalumboðsmönnum firmans á íslandi
Sturlaugur Jónsson & Co.
Sími 1267. Pósthússtræti 7. Símn.: ,,Stuiiaugur“.
Grjalddagi Tímans
er í Ryík 15. mars og 1. okt., en annarst. 15. júní.
Þeir 1500 af kaupendum Tímans, sem fyrstir greiða andvirði
yfirstandandi árgangs, fá í kaupbæti Endurminuingar Tryggva Gunn-
arssonar.
eftir 1. júlí 1924, og til þeirra
sem á að vinna, ef öll skilríki eru
fyrir hendi. Sé lán veitt til fram-
kvæmda sem óunnar eru, útborg-
ast helmingur lánsins, en hinn
iielmingurinn þá verkinu er lokið.
Umsóknir um lánin stílist til
Landsbankans, en sendist Búnað-
arfélagi Islands til umsagnar, og
kemur það þeim svo áleiðis til
Landsbankans.
þetta eru aðalatriðin í reglu-
gerð þessari, sem geta verið til
leiðbeiningar þeim er um lán
sækja.
S. Sigurðsson,
búnaðarmálastjóri.
----o----
Frá útlöndum.
Knútur Berlín, sem kunnur er
aí ritum sínum og tillögum í ts-
lands garð frá tíð sjálfstæðisbar-
áttunnar, ritar grein um það að
kostnaðurinn sem Danmörk hafi
af íslandi sé altof mikill. Sendi-
herra Dana hér segir hann að
kosti 100 þús. kr. Hann leggur til
að sendiherraembættið sé lagt
niður og einhverjum dönskum
manni, búsettum í Reykjavík,
verði falið að gegna störfum hans.
Ennfremur að seldur verði sendi-
herrabústaðurinn, sem hafi kost-
að 350 þús. kr.
-— Náttúrufræðingur norskur,
sem' dvelst á Spitsbergen, segir
frá því að síðustu árin hafi ísa-
lög þar norður frá farið minkandi
jafnt og þétt. Meðalhiti Golf-
traumsins hafi líka verið 3—4
gráðum heitari síðustu 3 árin,
en þá er Friðþjófur Nansen mældi
hann fyrir 12—14 árum síðan.
— Kunnugir segja að ekki hafi
það komið til af neinni dygð eða
stillingu að ekki varð úr styrjöld
milli Grikkja og Tyrkja út af
burtrekstri „patríarkans“ úr
Miklagarði. Ástæðan hafi verið
sú ein að Grikkir eru enn svo
gersamlega lamaðir eftir síðustu
styrjaldir og innanlandsóeyrðir að
þeir treystu sér alls ekki til þess
að hefja nú nýja styrjöld.
— Frá ýmsum fulltrúum versl-
unarstéttarinnar, víða um lönd,
hafa komið fram tillögur um ým-
islegar breytingar á tímatalinu.
T. d. ætti árið altaf að byrja á
sunnudegi og yrði þá gamlársdag-
ur, venjulega, nafnlaus og utan-
fyrir komið, að námssveinum sé
skift í tvo flokka, og vinni flokk-
arnir á víxl einn mánuð að hey-
vinnu. Með þessu fyrirkomulagi
vinnum vér, að hver nemandi fær
betur tækifæri til þess að kynn-
ast hinum ýmsu heyvinnuáhöld-
um, og fær meiri leikni í að nota
þau. Vinna nemendanna notast
einnig betur, þegar nokkur hluti
þeirra verður við heyskap allan
sláttartímann.
Nemendurnir skulu fá nokkra
æfingu í að fara með sláttuvél,
rakstrarvél og önnur stærri hey-
vinnuáhöld; þá skal þeim og kend
notkun smærri heyvinnuáhalda, s.
s. heyýtu, kvísla o. fl. þeir skulu
fá tækifæri til að kynnast notkun
„rakstrarkonu“ og hvernig það
áhald geti komið að bestum not-
um. Nemendurnir skulu fá verk-
lega æfingu og tilsögn í votheys-
gerð.
Að öðru leyti skulu þeir vinna
að öllum algengum heyskapar-
störfum.
Um staflið D. Hér teljum vér
ýms störf, sem ekki geta talist til
aðalstafliðanna. Vér höfum áætl-
að 2—4 vikur til þeirra starfa, en
það verður að vera að mestu leyti
á valdi kennarans hvaða störf
verða unnin og hvað langur tími
veltu, og ýmsar fleiri voru tillög-
ur þessar. Skipaði alþjóðasam-
bandið nefnd í málið, er hélt fund
í Sviss í síðastliðnum mánuði.
Sóttu fundinn fulltrúar frá páfa,
erkibiskupi í Kantaraborg, kirkj-
um Ameríku, Norðurlanda o. fl.
o. fl. Varð lítt úr samkomulagi,
en mest var þó andstaðan frá
fulltrúa Gyðinga, vegna hvíldar-
dagsins þeirra. það eina sem jafn-
vel er talið líklegt að hafist upp
úr fundi þessum er það, að pásk-
arnir verði ef til vill ákveðnir
þannig, að páskadagur verði jafn-
an annar sunnudagur í apríl.
— Lengi hefir það orð legið
á að Skotum þætti gott í staup-
inu og einkum væru þeir fyrir
Whisky. Á stríðsárunum var lagð
ur mjög hár skattur á Whisky og
þykir hinum þyrstu Skotum nú
þungt að búa undir honum. Bár-
ust Churchill fjármálaráðherra
nýlega áskoranir frá 150 þúsund
Skotum um að lækka tollinn. Er
það á að giska sjöundi hver full-
orðinn Skoti sem ritað hefir und-
ir, ef ekki eru sumar undirskrift-
irnar falsaðar. En ekki er það
talið grunlaust, því að veitinga-
mennimir og bruggararnir hafa
gengist fyrir undirskriftunum.
— Færeyingar eru að stofna
hjá sér nýtt hvalveiðafélag.
— Áætlað er að útgjöld breska
ríkisins til flotans í ár verði 4—5
miljónum sterlingpunda hærri en
árið sem leið. Ennfremur er áætl-
að að flugherinn kosti 2 milj.
sterlingpunda meira en í fyrra.
Hefir enska ríkið nú alls 54 her-
flugvéladeildir, þar af 8 í vestur
Asíu, 6 á Indlandi og 4 á Egypta-
landi. Heima fyrir eru deildirnar
18. Eru nú í flughernum enska
36 þúsundir manna.
— Ýmislegt bendir á að staðið
geti fyrir dyrum að þýskaland og
Austurríki sameinist. Er algengt
að heyra þýska stjórnmálamenn
tala um að landamerkjamúrarnir
hrynji þar í milli.
— Sven Hedin, hinn frægi land
könnuður Svía,varð sextugur 19.f.
m. Ritaði hann mikla blaðagrein
á afmælisdaginn og hvatti landa
sína til meiri vígbúnaðar, eink-
um vegna þeirrar hættu sem
þeim væri búin af Rússum. Hann
sagði um Alþjóðasambandið, að
það væri mesta fjarstæðan sem
mannkynssagan enn hefði þekt.
— Rætt var nýlega í enska
þinginu frumvarp um að konur
fer til þeirra. þó viljum vér taka
fram:
a) Island er skóglaust land en
þarf að leggja stórfé í girðingar,
því er nauðsynlegt að fá aðra
stólpa en tréstólpa. Steyptir stólp-
ar ættu að geta orðið ódýrari, ef
hver bóndi gæti steypt þá heima
hjá sér að vetrinum. því virðist
oss sjálfsagt, að nemendurnir fái
að læra slíkt.
Einnig væri þarft, ef þeir gætu
fengið nokkra tilsögn og æfingu
i að steypa steina til húsabygg-
inga.
b) Ef ræktun með grasfræsán-
ingu fer í vöxt er nauðsynlegt að
fleiri en nú kunni að greina helstu
fóðurgrösin og frætegundir
þeirra. Slíkt ætti því að kenna á
námsskeiðum þessum.
c) Nemendurnir skulu fá
nokkra æfingu í, að gera sjálf-
stæðar hallamælingar, og á þann
hátt fá leikni í að ákveða legu
skurða og flóðgarða.
Um tölulið 6. Upphæð styrks
við námið höfum vér að nokkru
miðað við námskostnað við bænda
skólana. Hann mun nú nálægt kr.
400.00 yfir veturinn. Ef nemend-
urnir fá kr. 300.00 í styrk yfir
námsskeiðstímann, ætti engum að
vera ókleift að afla sér þeirra
100 kr., sem ávantar til að styrk-
fengju atkvæðisrétt frá 21 árs
aldri, eins og karlar hafa nú, en
nú fá þær ekki kosningarrétt fyr
en þær erú 31 árs. Tók þá til
máls kona úr flokki jafnaðar-
manna og mælti meðal annars á
þessa leið: „Ein aðalástæðan gegn
þessari lagabreytingu er sú, að
ungu konurnar myndu gefa at-
kvæði sitt þeim frambjóðandan-
um sem þeim þætti laglegastur.
En þegar eg lít í kringum mig
hér í þingsalnum þori eg að full-
yrða, að háttvirtir þingmenn
þurfa ekki að vera hræddir um
sig þessa vegna“. — En þrátt fyr-
ir þessi vel meintu ummæli feldu
hinir háttvirtu þetta laganýmæli.
— Einn af helstu leiðtogum
verkamannanna norsku, Ole Lían,
er nýlega látinn. Lengi reyndi
hann að hindra klofning þann er
urinn hrökkvi fyrir vetrarkostn-
aðinum.
II. Fjárhagshliðin.
Aukning verknámsins, sam-
kvæmt framanskráðum tillögum,
hefir að sjálfsögðu nokkurn kostn
aðarauka í för með sér. Rekstur
skólabúanna verður að standa í
svo nánu sambandi við verknám-
ið, að ekki verður komist hjá að
drepa á núverandi rekstursfyrir-
komulag þeirra í þessu sambandi.
það hefir oltið á ýmsu með
rekstur skólabúanna. Á tímabili
oru þau rekin á kostnað ríkis-
sjóðs, sá búskapur bar sig altaf
illa og að lokum fór svo að menn
uppgáfust á þessum ríkisrekstri,
og gáfu búin á leigu til einstakra
manna, sem oftast hafa verið
skólastjórar bændaskólanna. þeir,
sem fengu búin á leigu, voru ein-
ráðir um rekstur þeirra, að öðru
leyti en því, að búin skyldu rekin
þannig að alt að 10 nemendur
gætu stundað þar verklegt nám.
Hér skal eigi lagður dómur á
það hvor aðferðin sé heppilegri til
almenningsheilla. En aðeins skal
bent á eitt atriði í þessu máli, og
það er, að þær raddir gerast stöð-
ugt háværari, sem krefjast að
komið sé á fót tilraunabúum, þar
sem gerðar væni jöfnum höndum
búpenings- og j arðræktartilraun-
varð innaii socialistaflokksins en
loks lenti hann algerlega með
kommunistunum, sem og urðu
langsamlega í meiri hluta.
— Rúmlega fimmtíu verkamenn
týndu lífi við námuslys skamt frá
New York. Eins og oftast voru
það eitraðar gastegundir sem
urðu þeim að líftjóni.
— Víðar en í Bandaríkj unum
er þrengt að innflytj endum. Ný-
lega komu til Ástralíu mörg
hundruð grískra og suður-slaf-
neskra verkamanna, sem ætluðu
að leita sér þar atvinnu og setj-
ast þar að. Nálega allir urðu að
hverfa heim aftur.
— Finskur maður, Tunnberg
að nafni, vann titilinn að heita:
heimsmeistari á skautum. Kept
var í Oslo seint í fyrra mánuði og
þykir Norðmönnum súrt í brotið.
ir, slík tilraunastarfsemi hefði
allmikla þýðingu fyrir verknám-
íð. Slíka tilraunastarfsemi væri
aðeins hægt að hefja í stórum
stýl, svo framarlega sem búin
væru rekin á kostnað ríkissjóðs.
Vitanlega mundi slík tilrauna-
starfræksla hafa aukin útgjöld í
för með sér. Vér getum ekki kom-
ið meira inn á þetta atriði hér, en
því minnumst vér á þetta í þessu
sambandi, að ef þetta fyrirkomu-
lag væri tekið upp mundi eðlileg-
ast að kostnaður sá, sem af verk-
náminu leiddi, væri greiddur af
því fé, sem ætlað væri til reksturs
búsins, vinnan kæmi svo búinu og
jörðinni til góða. þó vér setjum
engar ákveðnar tillögur fram um
þetta mál, leyfum vér oss að
leiða athygli réttra hlutaðeig-
anda að þessu atriði, þegar samn-
ingar fara næst fram um rekst-
ur skólabúanna.
Meðan búin eru rekin með sama
fyrirkomulagi og nú leyfum vér
oss að gera eftirfarandi tillögur
um fjárframlög til verknámsins:
1. Kostnaðai-áætlun.
Yfir 4.5—5 mánaða verknáms-
skeið með 10 nemendum:
Styrkur til 10 nemenda 300/00
=..................kr. 3000.00
Kaup kennara.........— 2000.00
— Svíar eiga nú 2618 verslun-
arskip sem bera samtals I1/3
miljón smálesta.
— þjóðverji sá, Arenstein, er
smíða lét hið mikla Zeppelins-
loltfar, er flaug yfir Atlantshafið
í fyrra, við svo mikinn orðstýr,
ætlar nú að smíða annað loftfar,
af líkri gerð, en miklu stærra.
það á að vera 5 milj. teningsfet
að rúmmáli og vélarnar eiga að
hafa 4000 hestöfl. það á að geta
flogið frá Lundúnum til New
York og til baka aftur á 2 sólar-
hringum.
— Hið mikla eldfjall í Mexíkó,
Popocatepetl, hóf að gjósa rétt
fyrir síðustu mánaðamót, og er
séð þegar að gosið verður mikið.
öskufallið er þegar orðið svo mik-
ið að fjöldi þorpa í grendinni eru
eyðilögð og menn flýja hús sín
og lendur þúsundum saman.
— Kúrdar búa syðst 0g aust-
ast í Tyrkjalöndum í Asíu og hafa
lengi haft óspektarorð á sér. Er
þar nú hafin uppreisn gegn Au-
gorastj órninni og er talið að ensk-
ir fyrirliðar rói undir. Hafa Tyrk-
ir áður valdið óróa í þeim lönd-
um Englendinga, þar sem Mú-
hameðstrúarmenn búa, viljað ger-
ast forystuþjóð trúbræðra sinna í
öllum löndum. Nú gjalda Englend-
ingar í sömu mynt innan landa-
mæra Tyrklands. Á Augorastjórn-
in erfitt um vik að bæla niður
uppreisnina, því að snjór er fall-
inn töluverður suður þar og gerir
erfið ferðalög með hergögn og
lið. Er síðast fréttist höfðu
Kurdar kosið til konungs yfir sig
son Abduls Hamids fyrverandi
Tyrkjasoldans.
— þýskur herfræðingur lýsir
því nýlega í blaði hversu flugvél-
ar og loftför muni fá orkað miklu
í næstu styrjöld. Segir að nú eigi
Frakkar nokkrar herflugvélar sem
íljúgi 450 kílómetra á klukkutíma
og geti því á tveim tímum flogið
frá landamærum Frakklands til
Bcrlínar. Geti hver flutt 50 gríð-
arstórar sprengjur, er hver sé
nógu öflug til að gereyða tals-
verðum borgarhluta. Nokkur þús-
und slíkra flugvéla geti með öllu
hindrað liðsdrátt þjóðverja til
landamæranna og unnið miklu
meira tjón á fáum dögum en áður
hafi þekst í langri styrjöld. Séu
yfirburðir Frakka í loftheraaði
svo yfirgnæfandi að hefndarstríð
af hálfu þýskalands sé óhugs-
andi.
Fræ, áburður o. fl. til
tilraunanna ca. ... — 500.00
Samtals kr. 5500.00
Auk þessa: Fæði, þjónusta,
verkfæri, hestavinna 0. fl., sem
nemendurnir þurfa yfiri náms-
skeiðstímann.
2. Kostnaður þessi greiðist
þannig:
Skólastjóri eða aðrir þeir sem
búin hafa á leigu, veiti nemend-
unum endurgj aldslaust:
a) Fæði og þjónustu.
b) Nægileg verkfæri til afnota.
c) Hestavinnu eftir þörfum.
d.) Kr. 100.00 sem kaup fyrir
tímann.
Ríkissjóður greiði:
Kr. 200.00 pr. nemanda, sem
styrk.
Fyrir 10 nemendur . kr. 2000.00
Kaup kennara........— 2000.00
Fræ og áburð til til-
raunanna, Cement í
stólpa-og steina. . — 500.00
Útgjöld ríkissjóðs alls kr. 4500.00
----0-----
Skákþing Islendinga hefst í
Reykjavík 4. apríl næstkomandi.
Kept verður í þrem flokkum.