Tíminn - 11.04.1925, Qupperneq 1
Cðfaíbferi
og, afgrei6slutr,a6ur Eimans er
Sigurgetr ^ri&rifsfon,
Sambanösljúsinu, Reyfjauíf-
^ýcjreifcsía
C i rtt a n s er í Sanibanbsfyásbtu
®pin bagle^a 9—(2 f. fy.
Simi 496.
IX. ár.
Keykjavík 11. apríl 1925
19. blað
Dr. Helgi Jónsson.
Nú er fallinn í valinn einn helsti
maðurinn í fámennum hóp ís-
lenskra náttúrufræðinga, dr. Helgi
Jónsson. Veiktist hann hastarlega
af botnlanga- og lífhimnubólgu og
dó eftir stutta legu. Magnús í
Vallanesi og Bjami frá Vogi voru
eldri bræður hans. Magnús gerð-
ist fésýslumaður, Bjarni hneigð-
ist að landsmálum, en dr. Helgi
beitti öllu afli sínu í þágu nátt-
úruvísindanna. þar var hugur
hans allur frá æskuárum og fram
til síðustu stundar. Helgi lagði
stund á grasafræði við Khafnar-
háskóla, bjó síðan nokkur ár í
Danmörku og- giftist danskri
konu. En hugur hans var allur á
því að vinna að rannsóknum ís~
lenskrar náttúru. Hann fluttist
hingað heim, kendi við ýmsa skóla
á vetrum, en hafði ekki fast starf
við neinn þeirra fyr en 1920. Á
sumrin ferðaðist hann víða um
landið til rannsókna eftir því sem
fjárhagurinn frekast leyfði. Hafði
hann oftast nokkurn rannsókna-
styrk frá Alþingi en of lítinn þó,
og stundum frá erlendum sjóð-
um. Á vetrum vann hann úr efni
því er hann safnaði á sumrin, og
ritaði um rannsóknir sínar, aðal-
lega á erlendum málum. Dr. Helgi
átti mikinn þátt í ágætu ritverki
um gróður Islands, sem gefið hef-
ir verið út á ensku, og mun það
lengi halda á lofti nafni hans.
þeim sem þektu dr. Helga Jóns-
son verulega, þótti mest koma til
trúmensku hans við lífsstarf sitt.
þar var hann allur og heill. Eng-
in villuljós gátu lokkað hug hans
og áhuga frá höfuðtakmarki æf-
innar: Rannsóknum íslenskrar
náttúru. Stórhugur hans og
óeigingirni kom best fram í því,
að síðustu ár æfinnar eyddi hann
miklum tíma, sem þó var honum
dýrmætur, til að tryggja það, að
á komandi árum yrði greiðari
gata íslenskra nátturufræðinga
heldur en verið hefir hingað til
alt frá dögum Sveins Pálssonar,
sem varð að stunda sjóróðra við
Faxaflóa, jafnhliða læknisstörf-
um og vísindamenslcu.
Fyrir nokkrum árum var stofn-
aður hér á landi minningarsjóður
um hinn fyrsta mikla náttúrufræð
ing á íslandi, Eggert Ólafsson.
Tilgangurinn með sjóð þann er
að með tíð og tíma verði hann
hálf eða heil miljón og að fyrir
vextina megi árlega gera ítarleg-
ar náttúrufræðisrannsóknir hér á
landi. Dr. Helgi mun ekki hafa
verið upphafsmaður þessarar hug-
myndar, en án hans hefði hún
orðið máttvana ósk. En dr. Helgi
sá alveg réttilega, að með slíkum
sjóði mátti tryggja framtíð ís-
lenskra náttúruvísinda. Sjálfur
gat hann aldrei haft nema fyrir-
höfnina af þeirri baráttu. Nú mun
sjóðurinn vera orðinn tæp 20 þús.
og má eingöngu þakka vöxt hans
dæmafárri elju og atorku dr.
Helga.
Næsta ár er tveggja alda af-
mæli Eggerts Ólafssonar. þó hafði
dr. Helgi ætlast til að gefið yrði
út merkilegt minningarrit um
þennan höfuðskörung þj óðarinn-
ar. Við fráfall Helga er meir en
tvísýnt um að úr því verði. En
þá væri vel minst og maklega
teggja góðra manna og mikillar
bugsjónar, er báðir börðust fyrir,
ef Alþingi veitti á tveggja alda
afmæli Eggerts Ólafssonar, í
fyrsta skifti fasta fj árveitingu í
þann sjóð, sem dr. Helgi Jónsson
hefir efnt til, og með honum
reynt að tryggja framtíð ís-
l<yrskra náttúruvísinda. J. J.
---0----
Mý emlbætti.
Fátt mun þjóðin þykjast full-
vissari um en það að embættis-
mennirnir séu ofmargir, en ekki
offáir á landi hér. Og einkum
mun allur þorri almennings hafa
beinlínis talið það sjálfsagða
skyldu landsstjórnarinnar að
stofna til embættafækkunar í sam
bandi við þá endurskoðun launa-
laganna sem nú á að fara fram á
Alþingi, sem og vikið er að á
öðrum stað í blaðinu.
En það er nú eitthvað annað
uppi á teningnum hjá lands-
stjórninni.
í stað ebmættafækkunar koma
frá stjórninni tillögur um stór-
felda fjölgun embættismanna.
Má fyrst nefna frumvarpið um
að gera kvennaskólann í Reykja-
vík að ríkisskóla. því samfara átti
að stofna 4 ný embætti. Fylgdi
allur íhaldsflokkurinn í efrideild
stjórninni að því máli.
þá leggur stjórnin til að stofna
að nýju og lögfesta dósentsem-
bætti við háskólann, sem feld var
fjáiveiting til á síðasta þingi.
Enn ber stjórnin fram frum-
varp um að stofna og lögfesta
fiskifulltrúaembætti suður á
Spáni, og á sá embættismaður að
hafa tugi þúsunda króna í laun
frá landinu og bönkunum. Virð-
ist sem nægilegt væri að ráða
mann til stutts tíma fyrst um
sinn, því að enginn veit hver
breyting kann að verða á um fisk-
markaðinn.
Loks lagði forsætisráðherra
hina mestu áherslu á það við 2.
umræðu fjárlaganna í neðrideild
að aftur væri skipaður sendiherra
í Kaupmannahöfn og veittar væru
til hans margir tugir þúsunda
króna árlega.
Hefðu fáir trúað í fyrra, ef
einhver hefði sagt að á þessu
þingi kæmu fram slíkar tillögur.
En sjón er nú sögu ríkari.
Og þessi landsstjórn, sem þess-
ar tillögur ber fram, telur sig
hafa það helst á stefnuskrá sinni
að rétta við fjárhag landsins!
Hvílík býsn!
Samhliða leggur hún til að rýra
tekjur landsins stórkostlega á
þessu yfirstandandi ári, þar sem
hún vill breyta tekjuskattslögun-
um á þá leið að stórgróðamenn-
irnir sleppi með miklu minni tekju
skatt af hinum miklu tekjum hins
óminnilega góðæris síðasta, en
lög nú standa til.
Er hægt að hugsa sér öllu verri
vetlingatök um fjármálastjóm?
Er yfirleitt hægt að hugsa sér
sýndar öllu greinilegri lifandi
rayndir af því hvemig ekki á að
rétta við fjárhag landsins?
-----0----
Kæliskipsmálið.
Tillögur fjárveitinganefndar um
kæliskipsmálið, sem birtaa’ voru í
síðasta blaði sem era í fullu sam-
ræmi við tillögur minnihluta kæli-
skipsnefndarinnar, vom samþykt-
ar í einu hljóði í neðri deild.
þingið hefir nú staðið í tvo
mánuði fulla og fyrst á þriðjudag-
inn var voru fjárlögin afgreidd
frá neðri deild. En um hin önnur
stóru mál, sem fyrir þinginu
liggja, er það að segja, að mörg
liggja enn hjá nefndunum og eiga
langt í land.
Ástæðan til þessarar seinu af-
greiðslu málanna á Alþingi er sú
að málin vom alveg óvenjulega
illa undirbúin af landsstjómar-
innar hendi, og landsstjómin hef-
ir tafið tíma þingsins stórkost-
lega með því að leggja fyrir þing-
ið svo fáránleg fmmvörp, sem
engin tiltök voru að láta ganga
fram, en sem hafa tafið stórlega.
Nægir að nefna nokkur dæmi
þessu til staðfestu.
Fjárlögin komu þannig undir-
búin að fjárveitinganefnd lagði
til í einu hljóði, og samþykt var
af neðri deild, sömuleiðis í einu
hljóði, að hækka tekjuáætlun um
nálega eina miljón króna og er
áætlunin þó enn vafalaust með
allra varlegasta móti. Jafnframt
þurfti nefndin að bæta inn á
frumvarpið ótal liðum alveg sjálf-
sögðum, sem enginn ágreiningur
gat orðið um að þar ættu að vera.
Launamál embættismanna hlaut
stjórnin að leggja fyrir þingið, og
stjórninni hlýtur að vera kunn-
ugt að alþjóðarkrafan er sú að
fækka embættum, um leið og
launalögin em endurskoðuð. Und-
irbúningur stjórnarinnar er sá að
framlengja launalögin gömlu —
með þeirri einu breytingu að
hlynna verulega að hinum hæst-
launuðu. Getur sá undirbúningur
ekki aumlegri verið.
Landsbankafrumvarp lá fyrir
síðasta þingi og var stjórninni fal-
ið að undirbúa endanlega. Undir-
búningnum er þannig varið,- að
engar líkur eru til að málið geti
gengið fram. Sá maðui’, úr sjálf-
um hóp stuðningsmanna stjórn-
arinnar, sem haft hefir á hendi
bankastjórastörf, verður að beit-
ast gegn framgangi málsins.
Ræktunarsjóðurinn var þannig
undirbúinn af stjórnarinnar hendi
að ótal nýjum atriðum varð að
bæta inn í fmmvarp hennar.
Varalögreglufrumvarpið var með
svo óskaplegum frágangi fram-
borið, að annað eins mun ekki
hafa sést á íslandi. Mun ekki of-
mælt að jafnvel mörgum ein-
dregnustu fylgismönnum stjómar
innar hafi hrosið hugur við, enda
lagði eng-inn stjórninni liðsyrði í
hinum löngu umræðum um það
mál. Vitanlegá eru ekki minstu
líkur til að mál gangi fram, sem
borið er fram með slíkum vand-
ræða frágangi.
þá eru ótalin enn hin mörgu
frumvörp sem þingið hefir bein-
línis þegar orðið að fella fyrir
stjórninni og hafa einnig orðið til
þess fylgismenn hennar. Má þar
fyrst nefna hina fráleitu hækkun
á nefskattinum til prests og
kirkju, frumvarpið um að gera
berklakostnaðinn að nefskatti,
barnakennara-frumvarpið og frum
varpið um að gera kvennaskólann
1 Reykjavík að ríkisskóla.
Dag eftir dag hafa umræður
um þessi vanhugsuðu og illa und-
irbúnu mál tafið þingfundina.
Viku eftir viku hefir það tafið
fyrir nefndunum að bæta úr þeim
vansmíðum á frumvörpunum sem
stafa af undirbúningsleysinu.
það er dýrt fyrir fátækt land
að hafa yfir sér slika stjóm.
Og svo kenna stjórnarblöðin
þinginu um slæm vinnubrögð!
----0----
Higmilslíi fjárlaoanna
frá neðri deild.
Getið er á öðrum stað í blaðinu
afgreiðslu fjárlaganna frá lands-
stjórnarinnar hendi.Neðri deild af
greiddi fjárlögin aðfaranótt mið-
vikudags, með á fjórða hundrað
þúsund króna tekjuhalla.
Er þar að vísu ekki um endan-
lega afgreiðslu að ræða, en þó
munu það margir mæla að ekki
horfi nú til j afngætilegrar af-
greiðslu sem varð á síðasta þingi,
og er full ástæða til að hvetja
þingmenn til alvarlegrar athug-
unar um að vera ekki um of
bjartsýnir, þó að góðæri væri síð-
asta ár.
Langstærstu upphæðirnar sem
veittar eru, eru: Endurgreiðsla
600 þús. kr. til landhelgissjóðs,
þar sem ráðið er að kaupa strand
varnaskip á næsta ári og þeirri
ráðstöfun samfara kemur stór nýr
útgjaldaliður á fjárlögin til út-
gerðar þess skips. Til þess að
reisa landspítalann voru áætlaðar
100 þús. kr., enda kom það fram
í ræðu fjármálaráðherra að verið
gæti að landsstjórnin hæfi það
verk á næsta ári þó að ekki væri
veitt fé til á fjárlögum og var
þá sjálfsagt að vera ekki að
blekkja sjálfan sig með að hafa
slíka upphæð utan fjárlaga. Enn
má nefna 75 þús. kr. til heilsuhæl-
is á Norðurlandi, sem Norðlend-
ingar hafa hafið samskot til svo
stórmyndarlega. Og loks eru 56
þús. kr. til Eiðaskóla.
Auk igreiðslunnar til landhelgis-
sjóðs bar f járveitinganefnd fram
hækkunartillögur, sem samþyktar
urðu, sem námu rúmlega 380
|)ús. kr.
Af hækkunartillögum sem sam-
þykki náðu, voru Sjálfstæðismenn
aðalflutningsmenn tillaga er námu
rúmlega 114 þús. kr., íhaldsmenn
fengu tillögur samþyktar, er þeir
voru aðalflutningsmenn að, er
námu rúmlega 104 þús. kr. og
Framkóknarmenn voru aðalflutn-
ingsmenn samþyktra hækkunar-
tillaga er námu tæpum 80 þús. kr.
Eiga nú þeir vísu .öldungar í
efri deild að taka við og klappa
um betur.
-----o----
Nýjar kosningar.
1 ______
Stjórnarfarið í landi hér er að
verða með öllu óþolandi.
Frumvörp stjórnarinnar eru
feld á Alþingi hvert af öðru.
Undirbúningsleysi málanna tef-
ur þingstörfin von úr viti.
Á einu atkvæði utanflokks-
rnanns hangir stjórnin — og þó
ekki nema í bili.
í eigin sök verða ráðherrarnir
að fella úrslitadóma.
par sem islíkt ástand stendur
lengi fer ekki hjá að allskonar
ósómi verði því samfara. Hafa
merki þess þegar sést ljóslega
á þessu þingi.
Frumvarpið um að gera Kvenna
skólann í Relkjavík að ríkisskóla
er vitanlega flutt einungis til þess
að þóknast einum flokksmannin-
um.
Nú á að hafa annan góðan með
því að bjóða bæjarfélagi Vest-
mannaeyja eyjarnar til kaups
fyrir rúman þriðjung fasteigna-
mats.
Sendiherrann ætlar stjórnin og
flokkur hennar að setja inn á fjár
lögin í efri deild — að því er
fullyrt er — til þess að þóknast
Bjarna frá Vogi, sem er lífakker-
ið í neðri deild.
þannig mætti lengi telja.
þetta er hið versta stjórnarfar
nálega sem hægt er að hugsa sér,
að þurfa að vera að þægja ein-
stökum styðjendum með fríð-
indum.
Svo veik stjóm og riðandi er
versta stjóm sem hægt er að
hafa.
Engin festa um afgreiðslu fjár-
laga. Hrossakaup í allar áttir.
Hafi Iandsstjórnin nokki-a sóma
tilfinningu ætti hún að rjúfa þing
og láta nýjar kosningar fara
fram.
Sterk stjórn er höfuðnauðsyn,
eins og nú standa sakir. En eng-
in stjórn hefir haft veikari að-
stöðu en sú er nú situr.
Hafi stjórnin trú á málstað
sínum á henni að vera Ijúft að fá
yfir sig dóm þjóðarinnar með
nýjum kosningum.
----0----
Góu-þula.
Góu-bylur gaddinn skefur,
gluggunum frostið lokað hefur. —
Feiknstafi það gráa grefur
og greinar öfugt, rúður á. —
öll er sveitin orpin snjá.
Hvergi útúr kólgu rofar,
kafalds-mökkva stormur hrofar
fyrir sólu, fjöllum ofar
fer hann geyst um lönd og sjá,
herjar sólar-ylinn á. —
þó mannskæður þorri væri,
þó hann víkings eðli bæri,
sat hann ei um sérhvert færi
sólskininu að níðast á.
Átti þíðu yl í hjarta,
óska-stundir, daga bjarta,
rökkrinu burt hann rýmdi svarta
ruddi brautir vorsins þrá.
Góðviðrinu Góa spilti
gekk á seiðhjall, veðrin trylti,
loftið kulda-kyngi fylti
hvergi geisla á jörðu sá.
Skaflana hlóð hún ofaná. —
Góa er ímynd illrar stjómar
auðnu ríkis sem að fómar
fýsnsr sinna altari’ á.
Stjórnar, sem með heimsku
og hroka
hyggur að hún muni loka
frelsið úti, en er að þokast
ofan í móti, grafar til —
gleymskunnar í græna hyl.
Sem þó á mála Mörð og Loka
og marga fleiri taki,
fellur senn með fordæming á baki.
(Dagur). þulur.
-----0---
Leikhússtjóri Adam Poulsen
kom hingað til bæjarins með
„íslandi“ síðast, á vegum Dansk-
íslenska félagsins. Hann er fræg-
ur leikari og orðlagður upplestr-
armaður. Mun hann skemta bæj-
arbúum með list sinni og leika 1
hlutverk í leikriti eftir H. Drach-
mann. ætlar hann að hafa 6 upp-
lestrarkvöld og lesa úrvalskafla úr
bókmentum Dana.