Tíminn - 13.06.1925, Blaðsíða 1
(^jaíbtei
oq afareiðí’íin'aðui íEiman? n
Sigurgeir ^ r i & r t f s i e-n,
Sambonbðbúsiuu KevfíaHf
IX. Ar.
Jterkjavík 13. jóní 1925
30 blað
Cimaní er í Satnbanösífúðinu
<Ðpin ðaglega 9—{2 f. b
Sfrmi 4%
Aðalfimdur
Sambands íslenskra Samyiimufélaga.
Fundurinn var settur 6. þ. m.
kl. 9 árdegis í húsi S. 1 S. hér í
bænum og slitið að kvöldi 10.
Sigurður Bjarklind kaupfélags-
stjóri á Húsavík, varaformaður
Sambandsins setti fundinn. Mint-
it hann Ólafs Briems, hins ný-
látna formanns Sambandsins með
hlýjum hug' og vel völdum orðum
og þakkaði vel unnið starf hans.
Hlýddu fundarmen á ræðu hans
standandi.
Var síðan kosin þriggja manna
nefnd til þess að rannsaka kjör-
bréf fulltrúa. Að 1 oknu starfi
hennar, og síðar á fundinum, er
fleiri bættust við, voru kjörbréf
tekin gild. Voru fulltrúar þessir:
Jóhann Jóhannsson útbússtjóri
Dalvík Eyjafirði, Valdimar Páls-
son bóndi Möðruvöllum Eyjafirði,
Jónas þorbergsson ritstjóri Akur-
eyri, Stefán Kristjánsson skógar-
vöi’ður Vöglum S.ping., Sigurður
Bjarklind kaupfélagsstjóri á
Húsavík, Benedikt Bjarnarson
skólastjóri á Húsavík, Sigurður
Jónssön bóndi Arnarvatni S.þing.,
Björn Kristjánsson kaupfélags-
stjóri Kópaskeri, Jóhannes Árna-
son bóndi á Gunnarstöðum N.-
þing., Ólafur Metúsalemsson
kaupfélagsstjóri Vopnafirði, Hall-
dór Ásgrímsson kaupfélagsstjóri
Borgarfirði eystra, Stefán Bald-
vinsson bóndi Stakkahlíð N.Múl.,
Björn Hallsssön bóndi Rangá
N.MúL, þórhallur Sigtryggsson
kaupfélagsstjóri Berufirði, Jón
Ivarsson kaupfélagsstjóri Höfn í
Hornafirði, Lárus Helgason bóndi
Kirkjubæjarklaustri, síra Jakob
Ó. Lárusson Holti undir Eyjafjöll-
um, ísleifur Högnason kaup-
félagssstjóri í Vestma,nnaeyj-
um, Stefán Diðriksson kaupfélags-
stjóri Minni-Borg Árn., Haraldur
Guðmundsson kaupfélagsstjóri
Rvík, Sigurjón Ólafsson af-
greiðslumaður Rvík, Jón Sigurðs-
son bóndi Snæf., Sigurður Stein-
þórsson kaupfélagsstjóri Stykkis-
hólmi Bjarni Jensson bóndi Ás-
garði Dal., Benedikt Magnússon
kaupfélagsstjóri Tjaldanesi Dal.,
Jón Ólafsson kaupfélagsstjóri
Svarfhóli Barð., Kristinn Guð-
laugsson bóndi Núpi Dýrafirði,
Júlíus Rósenkransson kaupfélags-
stjóri Flateyri önundarfirði, Ket-
ill Guðmundsson kaupfélagsstjóri
ísafirði, Jónatan Benediktsson
kaupfélagsstjóri Hólmavík, Hann-
es Jónsson kaupfélagsstjóri
Hvammstanga, Guðmundur Rós-
mundsson bóndi Urriðaá Hún.,
Runólfur Björnsson bóndi Kornsá
Hún., Jónas B. Bjarnason bóndi
Litladal Hún., Jón Jónsson bóndi
Stóradal Hún., Björn Árnason
bóndi Syðriey Hún., síra Sigfús
Jónsson kaupfélagsstjóri Sauðár-
króki, Albert Kristjánsson bóndi
Páfastöðum Skag., síra Amór
Árnason Hvammi Skag., Jón Kon-
ráðsson bóndi Bæ Skag., Her-
mann Jónsson bóndi Ystamóti
Skag. — Enn sóttu fundinn
stjórnarnefndarmenn: Guðbrand-
ur Magnússon kaupfélagsstjóri í
Hallgeirsey, þorsteinn Jónsson
káupfélagsstjóri á Reyðarfirði og
varamaður Tryggvi þórhallsson,
og loks Sigurður Kristinsson for-
stjóri, Aðalsteinn Kristinsson og
Jón Árnason framkvæmdast.iórar,
Jón Guðmundsson og Metúsalem
Stefánsson ráðunautuf, endur-
skoðendur og Jónas Jónsson alþm.
og skólastjóri Samvinnuskólans. ^
— Ýmsir gestir úr Reykjavík og
aðkomnir, sátu og fundinn.
Fundarstjóri var kosinn Sig-
urður Bjarklind, með lófataki.
Varafundarstjóri Jón Jónsson í
Stóradal og skrifarar Jónas B.
Bjarnason og Jón ívarsson.
því næst voru nefndir kosnar
til að athuga reikninga S. I. S.
og ferðakostnaðarreikninga full-
trúa.
Aðalsteinn Kristinsson fram-
kvæmdastjóri flutti ítarlegt er-
indi um innkaup á útlendum vör-
um síðastliðið ár. Var ræðan þökk
uð með lófataki. — Ýmsar fyrir-
spurnir komu fram sem fram-
kvæmdastjóri svaraði. Urðu síð-
an nokkrar umræður út af skýrsl-
unni og' voru þessar tillögur sam-
þyktar, báðár i einu hljóði.
Frá síra Arnóri Árnasyni:
„Um leið og aðalfundur S. I. S.
endurnýjar áskorun frá aðalfundi
fyrra árs um það að deildir Sam-
bandsins leggi stund á innflutning
á ómöluðum kornvörum og mölun
innanlands, vill fundurinn leggja
áherslu á það að menn leggi stund
á að nota vind eða vatnsafl þar
sem kostur er“.
Frá Runólfi Björnssyni: „Fund
urinn æskir eftir að S. I. S. rann-
saki hvort ekki væri hagkvæmt
að flytja framvegis inn að ein-
hverju leyti sósaða girðinga-
staura“.
Jón Árnason framkvæmdastjóri
hóf umræður um útflutning á
kældu og frystu kjöti, mintist á
ýms atriði því viðvíkjandi og
stakk pp á að nefnd yrði kosin
til að athuga málið. Urðu nokkr-
ar umræður um málið og var
minnihluta milliþinganefndarinn-
ar í kæliskipsmálinu þakkað starf
hennar. því næst var 7 manna
nefnd kosin í málið.
Jónas Jónsson skólastjóri flutti
erindi um Tímarit samvinnufélag-
anna, sem nú væri fyrirhugað að
eftirleiðis héti: Samvinnan. Gat
hann þess að tilætlunin væri að
gera það fjölbreyttara að efni en
hingað til, sem ætti að gera það
víðlesnara. — þá talaði hann einn-
ig um starfrækslu Samvinnuskól-
ans á síðasta vetri er hafði geng-
ið vel að öllu leyti. Taldi nauð-
synlegt að þeim nemendum er
þess óskuðu, gæfist kostur á
framhaldsnámi, einkum í tungu-
málum og félagsfræði. — 1 sam-
bandi við þetta benti hann á að
æskilegt væri að samvinnufélög-
in eignuðust smámsaman sam-
vinnubókasafn í líkingu við bóka-
safn það sem Kaupfélag þingey-
inga hefir stofnað. Fundarstjóri
þakkaði ræðuna í nafni fundar-
ins.
Jón Árnason framkvæmda-
stjóri gaf skýrslu um útflutning
og sölu íslenskra afurða á liðnu
ári. Rakti hann greinilega sölu
hinna einstöku vörutegunda, bæði
að magni og verði. Var ræðan
þökkuð með lófataki. Út af
skýrslunni komu fram nokkrar
fyrirspurnir sem framkvæmda-
stjóri svaraði og urðu því næst
um skýrsluna nokkrar umræður.
RYennaskólinn á Blönduósi.
Kensla hefst á skólanum hinn 15. október í haust og stendur til
14. mat í vor.
Kent er: Hússtjórn, vefnaður, alskonar kvenfatasaumur og önnur
handavinna og karlmannafatasaumur í sérstakri deild. I bóklegu er
aðaláhersla lögð á islensku, reikning og náttúrufræði.
Inntökuskilyrði á skólann eru þessi:
a. Að umsækjandi sé ekki yngri en 14 ára; undanþágu má þó
veita, ef sérstök atvik mæla með.
b. Að hann hafi engan næman sjúkdóm.
c. Að hann liafi vottorð um góða hegðun.
d. Að helmingur af skólagjaldi og fæðisgjaldi sé greitt við inn-
töku, og ábyrgð sett fyrir eftirstöðvum.
e. Að umsækjandi sanni með vottorði, að liann liafi tekið fulln-
aðarpróf samkvæmt fræðslulögum, ella gangi undir inntöku-
próf þegar hann kemur í skólann. — Skólagjald er 75 kr. um
námstímann.
Nemendur hafa liaft matarfélag og skólinn sér um allar nauð-
synjar.
Skólinn leggur námsmeyjum til rúmstæði með dýnum og púðum.
Annan sængurfatnað verða þær að leggja sér til.
Umsóknir um inntöku á skólann sendist formanni skólastjórnar-
innar, alþm. Þórarni Jónssyni á Hjaltabakka, fyrir miðjan september
n. k.
— Síra Arnór Árnason hreyfði
því að æskilegt væri að fá fljót-
ari reikningsskil frá Sambandinu
yfir innlendar vörur en stundum
væri og svaraði framkvæmda-
stjóri því að reikningsskil gætu
fyrst komið er varan væri seld.
— Hannes Jónsson benti á að
æskilegt væri að útveguð yrðu
félögunum ílát til blóðkælingar
og hornaklippur. — Albert Krist-
jánsson hreyfði því hvort ekki
mundi unt að gera kindahorn og
annan úrgang að einhverju verð-
mæti. — Jón Ólafsson óskaði at-
hugunar um hvort nokkurt verð-
mæti mundi vera í álftafjöðrum.
— Síra Arnór Árnason óskaði að
þær deildir Sambandsins senf
sláturhús reka kappkostuðu að
koma sér upp safnþróm fyrir gor
og annan úrgang frá sláturhús-
unum. — í sambandi við þetta
urðu nokkrar umræður um stimpl
un á kjöti. Var samþykt í einu
hljóði svohljóðandi tillaga frá
Tryggva þórhallssyni: „Fundur-
inn lætur í ljós óánægju yfir því
hversu framkvæmd eru núgildandi
ákvæði um kjötstimplun, því að
mörg dæmi eru til að kastað er
höndum til verksins, en hinsveg-
ar tekið allhátt gjald fyrir. Fel-
ur fundurinn stjórn S. 1. S. að
bera fram tillögur um bætt skipu-
lag í þessu efni, án þess að draga
úr réttmætum kröfum um eftir-
lit“. — Nokkrar fleiri athuganir
komu fram um innlendar afurðir
og rekstur sláturhúsanna.
Jón Árnason framkvæmda-
stjóri gaf skýrslu um gærurotun
og garnahreinsun sem farið hefir
fram undir stjórn Sambandsins,
og fjárhag hvorttveggja. Væri nú
fyrirhugað að Sambandið ræki
sjálft framvegis garnahreinsunar-
stöðina og reisti hús til þeirra
hluta. Jafnframt lagði hann fram
frumvarp til reglugerðar fyrir
verksmiðjur S. í. S. Var frum-
varpið lesið upp í heild og eftir
nokkrar umræður var þriggja
manna nefnd falið að athuga það.
Samkvæmt tillögu nefndarinnai’
var reglugerðin samþykt síðar á
fundinum — en oflangt mál er
að rekja hana á þessum stað.
Sigurður Kristinsson forstjóri
lagði fram og las upp reksturs-
reikning Sambandsins fyrir árið
1924 og efnahagsreikning þess
við síðustu árslok. Hann skýrði
reikningana lið fyrir lið og sýndi
fram á að ástæður Sambandsins
og einstakra deilda þess hefðú
stórbatnað á árinu og gæti talist
ágætar. Að síðustu mintist hann
í einkar vel hugsaðri ræðu hins
nýlátna ’ formanns Sambandsins,
ólafs Briems, og þakkaði störí
hans í þágu samvinnunnar og
hvatti fundarmenn til samheldni
og' framkvæmda. Ræða forstjór-
ans var þökkuð með lófataki.
þá voru lesnar upp athugasemd-
ir endurskoðenda við reikning-
ana og lýsti forstjóri því yfir að
þær væru viðurkendar réttmæt-
ar og þegar teknar til greina.
Framsögumaður reikninga-
nefndar, Sigurður Jónsson á Arn-
arvatni, lýsti áliti nefndarinnai’
um hag og horfur S. í. S. Taldi
nefndin að orðið hefði mikil og
ánægjuleg breyting á hag Sam-
bandsins og deilda þess á síðasta
ári og lagði fram svofelda álykt-
un til samþyktar: „Fundurinn
lýsir yfir því að hann telur nið-
urstöðu á rekstursreikningi S. 1.
S. um næstliðið ár mjög góða og
glæsilega og að hagur sambands-
félaganna yfirleitt hafi batnað
framar vonum. þakkar fundur-
inn stjórn og starfsmönnum S. 1.
S. vel unnið starf. Jafnframt lýs-
ir fundurinn yfir að hann felst á
aðgerðir S. I. S. í einstökum
skuldamálum og' treystir því að
stjórn og starfsmenn beiti fram-
vegis eigi síður en að undanförnu,
varúð, festu og lægni í viðskiftum
við þær deildir, sem tæpast
standa fjárhagslega“. — Tillaga
þessi var samþykt í einu hljóði.
Reikningarnir voru því næst sam-
þyktir í heild sinni í einu hljóði.
Jónas þorbergsson ritstjóri
skýrði frá því að síðasti aðalfund-
ur Kaupfélags Eyfirðinga hefði
sent forstjóra S. I. S. svolátandi
símskeyti: „Aðalfundur K. E. A.
lætur í ljós ánægju sína yfir
rekstri S. í. S. á liðnu ári og
þakkar því viðskiftin. Jafnframt
árnar fundurinn forstjóra S. í.
S. allra heilla“.
Runólfur Björnsson á Kornsá
hóf máls um styrlc þann er S.
í. S. hefir veitt samvinnublöðun-
um síðasta ár og las upp fundar-
ályktun frá Kaupfélagi Húnvetn-
inga sem taldi styrk til samvinnu-
blaðanna sjálfsagðan og rétt-
mætan.
þá skýrði forstjóri frá hag
Minningarsjóðs Hallgríms Krist-
inssonar og var hann við síðustu
áramót orðinn kr. 13732,50.
Nokkrar fyrirspurnir og frekari
umræður urðu út af skýrslu for-
stjóra.
Forstjóri lagði fram tillögur
sínar og stjórnarinnar um skift-
ingu ársarðsins og vora þær sam-
þyktar í einu hljóði.
Valdimar Pálsson bar fram til-
lögu um breytingu á 5 gr. sam-
þykta Sanmbandsins, um tölu full-
trúa á aðalfund. Síra Arnór Árna-
son vildi breyta sömu grein að
því er við kemur ferðakostnaði
fulltrúa. Eftir nokkrar umræður
var nefnd kosin í málið, er síðar
bar fram álit sitt, en tillögurnai
náðu ekki samþykki að þessu
sinni.
Nefndin í kæliskips- og frysti-
húsamálinu bar fram álit sitt og
tillögur. Framsögumaður var þor-
steinn Jónsson. Voru tillögur
nefndarinnar samþyktar í einu
hljóði svolátandi:
„Fundurinn skorar á Sambands-
stjórnina að beitast eftir megni
fyrir því að tilraunum með út-
flutning á frosnu og kældu kjöti
verði haldið áfram í svo stórum
stýl sem ástæður um frystingu á
kjöti heimila og sem að öðru
leyti þykir ráðlegt“.
„Fundurinn telur nauðsyn á að
koma upp frystihúsum til að
frysta í kjöt til útflutnings úr að-
alkjötútflutningshéröðum lands-
ins. Telur hann þó rétt að ekki
sé hrapað svo að framkvæmdum
að málið bíði við það hnekki og
leggur í því efni megináherslu á
að landsmenn eignist skip til þess-
ara kjötútílutninga jafnhliða og
fyrstu frystihúsin eru reist“.
„Fundurinn telur þetta mál
þannig vaxið að rétt sé og sjálf-
sagt að samvinnufélögin í land-
inu hafi framkvæmdirnar með
höndum, felur , því fundurinn
stjórn og framkvæmdastjórn
Sambandsins að leggja ráð á hvar
haganlegast sé að reisa frystihús-
in og hversu örar framkvæmdir
séu hafðar á byggingu þeirra“.
„Sambandsfélögin tryggi að Vs
tjón það sem kann að leiða af
byggingu og rekstri 1—2 fyrstu
frystihúsanna sem einstök sam-
bandsfélög reisa, en þó því að-
eins að skilyrðin fyrir ábyrgð
hlutaðeigandi sýslunefnda á rík-
issjóðslánum séu með þeim hætti
að stjórn Sambandsins telji fé-
lögunum þau ekki skaðleg og nái
þessi ábyrgð Sambandsins aðeins
til framleiðslu félagsmanna í hlut-
aðeigandi sambandsfélagi, enda
hafi Sambandið fyrir sitt leyti
samþykt skilyrði þau er sýslu-
nefnd hefir sett fyrir ábyrgð
sinni fyrir ríkissjóðsláninu“.
„Fundunnn felur Sambands-
stjórninni að skora á ríkisstjóm-
ina að undirbiia sem fyrst kaup
á hæfilegu kæliskipi til flutninga
á frosnu kjöti:
a. með því að leita tilboða um
nýsmíði á kæliskipi,
b. með því að leita tilboða um
gamalt skip,
c. með því að taka upp í
næsta fjárlagafrumvarp ríflega
fjárveitingu í þessu skyni og sé
þessum undirbúningi lokið fyrir
næsta þing“.
Tillögur voru bornar fram frá
tveim sambandsdeildum um tak-
mörkun á styrk til samvinnu-
blaðanna. Urðu miklar umræður
um málið sem allar hnigu í þá
Frh. á 4. síðu.