Tíminn - 13.06.1925, Qupperneq 4
110
TlMINN
Líftryggingafél. ANDVAKA h.f.
Osló — Noregi
Xsla.3n.c5Lsc5L©±lc5Lin.
Allar tegundir líftrygginga. — Pljót og refja-
laus viðskifti! — Reynslan er ólýgnust:
ísafirði 28/8 ’24. - Jeg kvitta með bréfi þessu fyrir greiðslu
5000, - króna líftryggingar N. N. sál. frá Isafirði. Greiðsla
trygg'ingarfjársins gekk fljótt og greiðlega, og var að öllu leyti
fullnægjandi. . . . (Undirskrift. — Frumritið til sýnis).
Læknir félagsins í Reykjavík er Sœmundur próf. Bjamhjeðinsson.
Lögfræðis-ráðunautur Björn Þórðarson, hæstaréttarritari.
Forstjóri: H e 1 g i Valtýsson,
Pósthólf 533 — Reykjaríb — Heima: Grundarstíg 15 — Sími 1250
Á.Y. Þeir sem panta tryggingar skriflega sendi forstjóra umsókn og
l&ti getiö alduri lins.
Frh. af 1. síSu.
átt að styrkja beri blöðin. Að
lokum kom fram rökstudd dag-
skrá frá Jóni Ivarssyni. Um dag-
skrá þessa var óskað nafnakalls.
— Dagskráin var svohljóðandi:
„þar sem stjórn Sambandsins hef-
ir bæði um þetta mál sem önnur
jafnan farið vel og hyggilega með
allar heimildir aðalfundar telur
fundurinn ekki ástæðu til að hlut-
ast frekar til um styrk til sam-
vinnublaðanna og tekur því fyrir
næsta mál á dagskrá". — Fór at-
kvæðagreiðsla fram með nafna-
kalli þannig að 32 sögðu já, 5
greiddu ekki atkvæði, en 3 voru
fjarstaddir. Dagskráin þannig
samþykt með 32 samhljóða at-
kvæðum.
pá flutti Lárus Helgason svo-
látandi tillögu: „Að gefnu tilefni
vottar fundurinn ritstjórum sam-
vinnublaðanna og öðrum þeim
sem mest hafa í þau skrifað sitt
fylsta þakklæti og lýsir um leið
sínu fylsta trausti á þeim“. Var
tillaga þessi samþykt með öllum
þorra atkvæða gegn einu.
Samkvæmt áskorun kaupfélags
Skagfirðinga hreyfðu fulltrúar
þess því að Sambandsstjórnin
vildi beita sér fyrir að breyta
„solidarisku“ ábyrgðinni félag-
anna innan Sambandsins í tak-
markaða ábyrgð. Málið var all-
mikið rætt og kom að lokum fram
þessi dagskrá frá Jóni Jónssyni í
Stóradal: „Með því að fundurinn
lítur svo á að ekki sé tími til
kominn að takmarka ábyrgð fé-
laganna gagnvart S. I. S. og hann
hinsvegar er mótfallinn takmörk-
un hennar innan einstakra kaup-
félaga, er tekið fyrir næsta mál
á dagskrá!1. — Var dagskrá þessi
samþykt með 28 samhljóða at-
kvæðum. —
„Brædur munu berjast“.
Aðalfundur Sláturfélags Suður-
lands er háður þessa dagana hér
í bænum og verður til að rifja
upp merkilegt mál.
Fyrir fáum árum stóðu bænd-
ur austanfjalls og bændur í Mýra
og Borgarfjarðarsýslum saman í
Sláturfélagi Suðurlands. — Ýmsra
hluta vegna þótti sú sambúð ekki
gefast vel og var því slitið og
var í rauninni ekkert til þess að
segja.
En hitt má ekki eiga sér stað
til lengdar, sem tíðkast hefir und-
anfarin árin síðustu að samvinnu-
félög bændanna: Sláturfélag Suð-
urlands og Sláturfélag Borgfirð-
inga heyi harðsnúna samkepni á
Reykiavíkurmarkaðinum.
Hafi einhver sársauki valdið
fyrst eftir skilnaðinn, hjá öðrum
hvorum eða báðum, sem gerði erf-
iða samvinnu, þá hlýtur nú að
vera gróið um heilt.
Bændur í báðum þessum héröð-
um, sem sitja að Reykjavíkur-
markaðinum, hafa stórtjón af
þessu samvinnuleysi.
Fyrir næstu haustkauptíð ættu
forystumenn bænda í báðum þess-
um félögum að taka höndum
saman til samvinnu í þessu efni.
Svo mjög sem nú er sjáanlegt
að harðna muni kaupkröfur til
bænda og samkepnin yfirleitt frá
hinum sívaxandi sjávarútvegi,
því meir án'ðandi er það bænd-
um að spilla ekki möguleikum
sínum til að fá sæmilegt verð
fyrir afurðir sínar.
Leiðarþing var háð í Borgarnesi
í gær. Hófst stundu eftir hádegi
og stóð til miðnættis með stuttu
fundarhléi. Fundurinn var vel
sóttur, um 100 manns, er flest var
og fór að öllu skipulega fram.
Var Jóhann bóndi Magnússon á
Hamri fundarstjóri, skörulegur
og réttlátur. Pétur þórðarson al-
þingismaður setti fundinn og hóf
umræður með langri rækilegri
ræðu. Rakti hann þingsöguna og
Formaður Sambandsins til
tveggja ára var kosinn Ingólfur
Bjarnarson alþingismaður í Fjósa
tungu.
Tveir meðstjórnendur til
þriggja ára voru kosnir: þor-
steinn Jónsson kaupfélagsstjóri á
Reyðarfirði og Sigurður Bjark-
lind kaupfélagsstjóri á Húsavík.
Varaformaður til eins árs var
kosinn síra þorsteinn Briem
prestur á Akranesi
Varameðstjórnendur til eins árs
voru kosnir: Tryggvi þórhalls-
son ritstjóri og Sigurður Jóns-
son bóndi á Amarvatni.
Endurskoðandi til tveggja ára
var kosinn Jón Guðmundsson frá
Gufudal og varaendurskoðandi til
tveggja ára Sigurgeir Friðriks-
son afgreiðslumaður.
Ferðakostnaðarnefnd hafði ekki
lokið störfum sínum, en fundurinn
fól henni að úrskurða reikninga
fulltrúanna í samráði við for-
stjóra.
Eftir að fundi hafði verið slit-
ið, að kvöldi 10. þ. m. komu
fundarmenn saman í fundarsaln-
um og skemtu sér sameiginlega
við ræðuhöld og söng til miðnætt-
is. Fór sú samkoma vel og ánægju
lega fram, eins og fundurinn all-
ur. Munu það flestir mæla að
þessi Sambandsfundur hafi verið
einn hinn allra ánægjulegasti fyr-
ir allra hluta sakir og víst er það
að aldrei hefir fylking samvinnu-
manna staðið fastar saman en
nú. Erfiðleikar harðinda- og
kreppuáranna urðu að vísu mikl-
ir, en á þeim er sigur unninn.
Með meiri bjartsýni og djörfung
en nokkru sinni áður hefja ís-
lenskir bændur og samvinnumenn
starfið að nýju.
<x~»~hii i Q-ini r'i
skýrði frá úrslitum mála. þvínæst
tók Jónas Jónsson alþm. til máls
og flutti einnig langa og rækilega
ræðu um þingmálin og kom víða
við. Var gerður besti rómur að
ræðum þessum. Síðan hófust al-
mennar umræður. Fjöldi héraðs-
manna tók til máls og tók ein-
dregið í sti'eng með Framsóknar-
mönnum. Má nefna þessa: Teit
bónda Símonarson á Grímarsstöð-
um, Iiervald skólastjóra Bjöms-
son í Borgarnesi, Steingrím Stein-
þórsson kennara á Hvanneyri,
Vigfús Guðmundsson gestgjafa í
Borgarnesi, Böðvar kennara Jóns-
son á Brennu í Lundareykjadal
Pál Blöndal bónda í Stafholtsey
auk frummælanda og margra
fleiri. En einir þrír Borgnesingar
mæltu Ihaldsstefnunni bót: lækn-
irinn og tveir smákaupmenn. Fór
fundurinn að öllu hið besta fram
og verður nánar frá hen”m sagt
síðar.
Klemens Jónsson fyrv. ráðherra
og frú hans fóru utan með Gull-
fossi í gærkvöld.
Landi okkar Thomas H. John-
son ráðherra fyrverandi í Mani-
tobafylki var kjörinn til þess að
koma fram af hálfu Kanada við
hátíðahöld mikil sem Norðmenn
halda vestra í minningu þess að
100 ár eru liðin frá því að bygð
Norðmanna hófst vestur þar.
Glímumönnunum íslensku, sem
gista Noreg um þessar mundir,
er hvarvetna vel fagnað í Nor-
egi. Á leiðinni til Noregs komu
þeir við í Færeyjum og sýndu
glímur í þórshöfn. Hélt Jóhannes
Patursson ræðu fyrir minni þeirra
og íslands eftir sýninguna.
Háskólaráðið hefir ákveðið að
heita 5000 kr. verðlaunum fyrir
æfisögu Jóns forseta Sigurðs-
sonar. Má hún vera alt að 33
ai'kir að lengd. Ritið á að koma
út árið 1930.
Sigurður Sigurðsson búnaðar-
málastjóri fer norður með Esju í
kvöld. Situr aðalfund Ræktunar-
félags Norðurlands og Búnaðarfé-
lags Islands, á Blönduósi 22. og
23. þ. m. og ferðast því næst um
Vestfirði.
Danski Moggi gat þess síðast-
liðinn þriðjudag að fulltrúar sam-
vinnumanna á aðalfundi Sam-
bandsins myndu „splundrast“ út
af heimild þeirri sem Sambands-
stjórninni var veitt í fyrra til
þess að styrkja samvinnublöðin.
— Að kvöldi sama dags samþykti
aðalfundurinn, með nafnakalli,
mótatkvæðalaust, að fela Sam-
bandsstjórninni aftur sama vald-
ið til að styrkja samvinnublöðin.
— Er danski Moggi úr sögunni
um mál þetta síðan.
Morgunblaðið segir frá ferð-
um Jónasar alþingismanns á þessa
leið:
„Jónas frá Hriflu hefir boðað
til fundar með flokksbræðrum
sínum í Borgarnesi í dag. Heyrst
hefir að hann ætli að halda fleiri
samskonar fundi — vestur í
Stykkishólmi og Dölum og e. t. v.
víða á Norðurlandi. Fari Jónas
sem víðast, því alstaðar þar sem
hann kemur eflir hann mátt og
gengi íhaldsflokksins. þau áhrif
hefir Jónas.“
En sama morguninn sem Morg-
unblaðið flytur þessa klausu hér
í Reykjavík, eru fest upp sím-
skeyti í kaupmannabúðunum í
Borgarnesi sem biðja afsökunar
á því, að því miður hafi íhalds-
flokkurinn ekki haft neinn mann
til þess að senda á móti Jónasi á
þessa fundi hans. Virðist mönnum
þetta heyra undir vafasamar
politiskar milliskriftir.
Jónas Jónsson alþingismaður
fór með Suðurlandi til Borgarness
í fyrradag. Ætlar að ferðast um
Vestur- og Norðurland og halda
stjórnmálafundi.
-----o----
Frá úílöndum.
Búist er við að norska stjórnin
stofni til nýrrar alþjóðaratkvæða-
greiðslu um bannmálið er fari
fram einhverntíma á árinu 1926.
— Verslunarráðherra Banda-
ríkjanna gaf nýlega yfirlit yfir
lán þau sem Bandaríkin hafa veitt
öðrum löndum. Hafa þau aukist
um 1000 miljónir dollara árið sem
leið. Alls eiga Bandaríkin 9000
miljónir dollara hjá öðrum ríkj-
um og eru tvímælalaust stærsti
skuldareigandi í heimi. „
— þýskir stóriðjuhöldar hafa
keypt allmikið af norsku vatsafli
og stofna til mjög aukins iðnaðar
í Noregi.
— Mikil pólitísk barátta stend-
ur fyrir dyrum á þýskalandi um
verndartolla. Er búist við að
stjórnin beri fram frumvarp um
allháa verndartolla á korni og
ýmsum iðnaðarvörum, til styrkt-
ar landbúnaði og stóriðjuhöldum.
Eins og nærri má geta rísa jafn-
aðarmenn mjög öndverðir gegn
þessari stefnu.
— Konur hafa fengið kosninga-
rétt til sveita- og bæjastjórna í
Ítalíu.
— Italska stjórnin hefir bann-
að frímúrararegluna og eru öll
frímúrarafélög lögð niður um
endilangt landið. Voru lög um
þetta samþykt í einu hljóði á
þingi íitala.
— Landvarnanefnd sænska
þingsins hefir lagt fram álit sitt.
Er gert ráð fyrir nálega 60 milj-
ón króna útgjöldum árlega til
landhersins, 32^ milj. kr. til sjó-
hersins og 6 milj. kr. til loft-
hernaðar.
— Enrskur bílstjóri ók nýlega
3138 kílómetra á 24 klukkutím-
um og er það heimsmet.
— Stórkostlegir skógarbrunar
urðu á Norður-þýskalandi seint í
síðastl. mánuði. Er tjónið metið
15 milj. gullmarka.
— Eftir síðustu kosningar í
Belgíu var afstaðan í þinginu sú
að tveir aðalflokkarnir, katólskir
og jafnaðarmenn, voru nálega
jafnfjölmennur, en flokkur frjáls-
lyndra mjög fámennur. Stóð nú
í mesta stímabraki að mynda
stjórn. Reyndu báðir aðalflokk-
arnir, hvor fyrir sig, en ekki gat
úr orðið. Loks endaði með því að
þeir slogu sér saman og mynduðu
sameiginlega stjórn. Er forsætis-
ráðherrann katólskur íhaldsmað-
ur, en utanríkisráðherrann er for-
ingi jafnaðarmanna.
— Engar nýar fregnir koma
af Roald Amundsen síðan hann
hóf heimsskautsflugið frá Sval-
barði 21. f. m. Er farinn af stað
leiðangur frá Noregi til hjálpar.
— Danir framleiddu árið sem
leið 1051 milj. sigarettur sem
kostuðu rúml. 14 milj. kr. Hefir
sú tóbaksnotkun farið stórkost-
lega í vöxt síðustu árin. Vindlar
voru framleiddir 411 milj., sem
kostuðu rúmlega 46 milj. kr. Alls
framleiddu Danir tóbak fyrir 75
milj. kr. árið sem leið.
— Efri málstofan enska, lá-
varðarnir, hafa felt, með 80 atkv.
gegn 78 að veita konum rétt til
að sitja í málstofunni. Samkvæmt
enskum lögum hefðu 22 konur
fengið sæti í málstofunni ef frum-
varpið hefði náð samþykki.
— Áttatíu þingmenn báðu um
orðið 'fyrsta daginn sem hermálin
komu til umræðu í neðri mál-
stofu sænska þingsins.
— Enn urðu stórkostlegir jarð-
skjálftar í Japan seint í síðast-
liðnum mánuði. Urðu þeir mestir
á vesturströnd landsins og mest
tjónið næst sjónum, því að víða
gekk sjóbylgja á land. Fjöldi
þorpa hrundi og brann, brýr
hrundu o. s. frv. Á annað þúsund
manna týndu lífi.
— Seint í síðastliðnum mánuði
fór sendinefnd merkra kirkju-
manna enskra til Belgíu á fund
hins merka kardinála Merciers.
Vakti þetta mikið umtal og var
lagt út svo sem einhver samdrátt-
ur væri á milli katólsku kirkjunn-
ar biskupakirkjunnar ensku. Hef-
ir slíkt áður komið til tals og vák-
ið bæði samúð og megna mót-
spyrnu. Um mánaðamótin hvarf
sendinefndin enska heim og hefir
ekkert frést opinberlega um er-
indislok, en um líkt leyti fór
Mercier til Rómaborgar og er það
svo lagt út sem hann sé milli-
göngumaður milli páfa og erki-
biskupsins í Kantaraborg.
— Fregnir frá Rússlandi segja
að ráðstjórnin hafi í hyggju að
koma í peninga skartgiipum keis-
araættarinnar. Eigi sendinefnd
að fara til Bandaríkjanna á næst-
unni með keisarakórónuna og
H.f. Jón Sigmundsson & Co.
Svuntuspennur
Skúfhólkar,
Upphlutsmillur og
og alt til upphluts.
Trúlofunarhringarnir
þjóðkunnu. Mikið af steinhringum.
Sent með póstkröfu út um land
ef óskað er.
Jón Sigmundsson gullsmiður.
Sími 383. — Laugaveg 8.
9ey-grímui>. Verð kr. 4.50.
Sportvöruhús Reykjavíkur.
Haustrígningar
hinn skemtilegi og fyndni gaman-
leikur, sem skemt hefir Reykvík-
ingum í allan vetur, eru nú komn-
ar út á góðan pappír. Fást hjá
nær öllum bóksölum iandsins.
Austanfjalls fást þær hjá þor-
steini Jónssyni á Hrafntóftum.
Jarðir til sölu.
Jarðirnar Skarð og Vaðstakks-
heiði sem liggja á milli Sands og
Ólafsvíkur á Snæfellsnesi eru til
sölu. Upplýsingar í síma 287.
INNILEGA þakka eg öllum
þeim nemendum mínum og sveit-
ungum, er glöddu mig og heiðr-
uðu núna á sumardaginn, í til-
efni af 15 ára kenslustarfi mínu
við bamaskólann hér í Vatnsdal.
Brúsastöðum 7. maí 1925.
Kristján Sigurðsson,
kennari.
veldissprotann, en hvorttveggja
er virt á 300 miljónir gullrúbla.
Einhver frægasti demant í heimi
er í veldissprotanum. Kórónan var
smíðuð þá er Katrín önnur var
krýnd.
— Englendingar hafa náð af
mararbotni ellefu þýskum víg-
drekum, sem sökt var forðum í
Scapa Flow.
— Voldugt flugfélag enskt hef-
ir lagt fyrir lofthernaðarráðuneyt-
ið ráðagerðir um fastar flugferðir
milli Lundúna og New York og
þaðan til San Francisco. Er gert
ráð fyrir að flugið yfir Atlants-
haf til New York taki 46 tíma, en
alt flugið frá Lundúnum til San
Francisco 4 daga. Nota á flugvélar
sem geta sest á sjó. En til öryggis
á að koma fyrir fljótandi flug-
stöðvum víðsvegar um hafið og
þaðan eiga flugvélarnar að geta
bætt við sig bensíni á leiðinni.
Flugstöðvar þessar eiga að vera
800 fet á lengd og 120 fet á
breidd. þó eiga flugvélarnar ekki
að lenda á sjálfum flugstöðvun-
um, nema í aftökum, heldur við
hlið þeirra. Halda fræðimenn að
ekkert verulegt sé því til hindr-
unar að þetta geti komist í fram-
kvæmd. Fargjaldið er áætlað 125
sterlingspund.
— Töluverðar orðahnippingar
hafa orðið í franska þinginu út af
Marokkóstríðinu. Halda kommún-
istar því fram að yfirdrotnunar-
stefna ein valdi, hafi Frakkar átt
upptökin og verið sé að kúga sak-
lausa íbúa landsins. Segja þeir að
íhaldsstjórninni, sem áður sat,
hafi ráðið því að þannig vai’ haf-
in styrjöldin, en frjálslynda
stjórnin sem nú situr, fari að
öllu í sömu spor. Mjög litla áheyrn
fær þessi árás kommúnista hjá
öðrum flokkum. Painlevé forsætis-
ráðherra hefir lýst yfir að frjáls-
lynda stjórnin geti að öllu fallist
á framkvæmdir fyrri stjórnar og
herstjórnarinnar í Marrokkó.
Ritstjóri: Tryggvl þórhallsson.
Prentsrniðjan Acta.