Tíminn - 20.06.1925, Qupperneq 1
j&fiftíbfeti
09 afgreiðsíur'aöur Cimans «
Siguraeir ^riðrifsfo n.
Sambanbstnisinu, KevfjaDÍf
,2\fgrctbsía
í ímans cr t Sambanösipisinu
baakija 9—12 f. b
r>ínti 49»>
IX. ár.
Reykjarík 20. júní 1925
31 blað
Lfftryggingafél. ANDVAKA h.f.
Osló — Noregi
y
Isla.xx<d.sc5L©ildLixi.
Mest útbreiðsla! Best viðskifti! Fljótust af-
greiðsla! Reynslan er ólýgnust!
Vestmannaeyjum, 28/3. -’25. - „Það vottast hér með að llf-
tryg-gingarfél. „Ajrdvaka11 hefir reynst okkur ágætlega i viðskift-
um, og efnt loforij sín við okkur að öllu leyti, með greiðslu á
Uftryggingum tveggja sona olckar“.
(Undirskrift. — Frumritið til sýnis).
Læknir félagsins í Reykjavík er Sœmundur próf. Bjamhjeðinsson.
Lögfræðis-ráðunautur Björn Þórðarson, kæstaréttarritari.
Forstjóri: H e 1 g i V altýsson,
Fósthólf 533 — Roykjavík — Heima: Grundarstíg 15 — Sími 1250
Harmoníum frá J8. M. Haugen á Lauvstad í Noregi
eru viðurkend fyrir gæði; hljómfegurð og vandaðan frágang. — Hljóð-
færin eru mjög ódýr eftir gæðnm. Svara öllum fyrirspurnum og sendi
verðlista þeim er þess ógka.
Sérstaklega vil eg benda prestum og kennurum á harmoníum
með ferföldu hljóði- -(verö ca. 1000 kr.), sem er sérstaklega smíðað
fyrir minni kirkjur og skóla. — Umboðsmaður á íslandi Sæmundur
Einarsson, Þórsgötu 2, sími 732, beima kt. 1—3 og 8—9 síðdegis.
t
Jóq Jacobson
fyiverandi landsbókavörður and-
aðist 18. þ. m., eftir langa van-
heilsu, nær hálfsjötugur. Hann,
las forntungurnar um nokkur ár
við Hafnarháskóla, en lauk ekki
prófi og gerðist bóndi á Víðimýri
í Skagafirði 1890. Hann var al-
þingismaður Skagfirðinga 1891—
1899 og Húnvetninga 1903—1907.
í Skagafirði gengdi Jón mörgum
trúnaðarstörfum. Ilann var einn
af stofnendum Kaupfélags Skag-
firðinga, og -formaður þess um
hríð, og síðar í Reykjavík um
mörg áv fulltrúi umboðsmanns
kaupfélaganna L. Zöllners. Bú-
skapur lét Jóni vel, og í opinber-
um málum þótti hann ötull og
hygginn, en nokkuð íhaldssamui’,
einkum í fjármálum. IJann var
lengi einn af áhrifamestu mönnum
fjárlaganefndar Alþingis. I stjórn
málum var hann ákveðinn Heima-
stjórnarmaður.
Árið 1895 varð Jón aðstoðar-
bókavörður við Landsbókasafnið,
og fluttist til Reykjavikur árið
eftir og bjó þar sem -eftir var æf-
innar. 1906 varð hann landsbóka-
vörður, og gegndi því embætti
þangað til á síðasta hausti, en
harm fékk lausn vegna heilsu-
brests.
I bókavarðartíð Jóns urðu stór-
feldar breytingar á safninu.
Mesta breytingin var bygging
Safnahússins, mun Jón hafa átt
frumkvæði að því, að ráðist var
í það stórræði. Bókasafnið jókst
mjög á árum Jóns, og bókhald
hans og fjárreiður voru jafnan í
ágætu lagi.
Jón var hinn gerfilegasti mað-
ur og karlmenni til burða. Hann
var ágætur ræðumaður og skrif-
aði slétt og fallegt mál. Eftir
Jón liggja ýmsar ritgerðir í blöð-
um og tímaritum, ennfremur rit-
aukaskrá Landsbókasafnsins 1906
—1917 og Minningarrit Lands-
bókasafns 1818—1918, mikið
verk og vandað. Nokkrar útlend-
ar bækur þýddi Jón einnig á ís-
lensku, svo sem: Einfalt líf og
Manndáð eftir franska heimspek-
inginn Wagner. þýðingar hans
voru einkar vel af hendi leystar.
Jón var kvæntur Kristínu Páls-
dóttur Vídalíns alþingismanns.
Mestu merkiskonu. Lifir hún
mann sinn ásamt einni uppkom-
inni dóttur.
-o-
þann 13. þ. m. var leiðarþing
háð að Görðum í Kolbeinsstaða-
hreppi að tilhlutun Jónasar alþm.
Jónssonar. Rakti hann í langri og
greinilegri ræðu úrslit og með-
ferð þingmála síðasta þings.
Fundurinn var vel sóttur og
tójiu til máls af hálfu Framsókn-
armanna þessir bændur: þórður
hreppstjóri Gíslason Mýrdal,
Guðm. bóndi Illugason Görðum,
og Magnús oddviti Jónsson
Snórrastöðum. Áuk þess töluðu
tveir utanhéraðsmenn.
Af hálfu íhaldsmanna kom eng-
inn fram og fór fundurinn vel
fram og skipulega.
Fundaxmaður.
-----o----
Hsstaréttardémurinn
í máli Sambands ísl. samvinnu-
félaga gegn Birni Kristjánssyni.
Á rniðvikudaginn var, feldi
hæstiréttur dóm í máli Sambands-
ins gegn Birni Kristjánssyni.
Mál þetta er þannig tilkomið,
að haustið 1922 gaf B. Kr. út
bækling eftir sig er hann nefndi
„Verslunarólagið“. Var þá hin
mesta versfunaróáran í iandinu
og flest kaupsýslu- og útgerðar-
fyrirtæki á mjög völtum fótum.
Samband kaupfélaga og annara
samvinnufélaga í landinu hafði
þá fyrir nokkrum árum flutt að-
alstöðvar sínar til Reykjavíkur
og mun ekki ofmælt, að það hafi
verið allsár þyrnir í augum
flestra heildsala hér og þeirra
manna annara, sem fela vilja
kaupmönnum alla forsjá almenn-
ings í verslunarmálum.
þó flest eldri kaupfélög lands-
ins, sem voru í Sambandinu, væru
allvel efnuð og Sambandið þess-
vegna að því leyti bygt á mjög
traustum fjárhagslegum grund-
velli, þá var það líka vitanlegt, að
Sambandið sjálft hafði ekki á
fyrstu starfsárum sínum haft að-
stöðu til að safna miklum eign-
um. Og þegar samfara þessu
dundi yfir landið sú mesta versl-
unaróáran, sem komið hefir hér
undanfarna áratugi, var tíminn
einkarvel til þess fallinn að hefja
árás á þennan un'ga félagsskap og
koma honum á kné.
Bæklingur B. Kr. var veiga-
mesti þátturinn í þessum árás-
um. Nafnið, „Verslunarólagið",
benti reyndar til, að hér væri
gert að umræðuefni hverskonar
misfellur í íslensku viðskiftalífi,
en bæklingurinn var ekkert ann-
að en illvíg árás á samvinnufé-
lagsskapinn og sérstakle'ga Sam-
bandið. Allur bæklingurinn var
skrifaður af .hinni megnustu læ-
vísi, reynt að forðast ákveðin
skammaryrði, en dylgjað um alls-
konar óreiðu og fáráðlingshátt,
bæði hjá Sambandinu og starfs-
mönnum þess. Mun ihöfundurinn
hafa gert ráð fyrir að á þessum
vandræðatímum væru hugir
mahna einkar vel móttækilegir
fyrir rógburð og tortryggni, og
þar sem samvinnufélagsskapur-
inn byggist að mjög miklu leyti
á gagnkvæmu trausti félags-
manna, hlaut það að vera stór
sigur fyrir andstæðinga félag-
anna, ef hægt væri að breiða út
dylgjur um félagsskapinn sem
vakið gætu tortrygni og úlfúð
sem víðast, enda var bæklingur
B. Kr. sendur ókeypis út um alt
land. En jafnframt þessum aðal-
tilgangi sínum, varð höf. að haga
svo orðum, að ekki yrði á þeim
haft, ef til kasta dómstólanna
kæmi að dæma um þau, og mun
hann hafa notið aðstoðar lögfræð-
ings, eins eða fleiri, í þessu efni.
Fljótlega eftir útkomu bækl-
ingsins gaf Sambandsstjórnin út
svar -í sérstöku hefti af Tímariti
samvinnufélaganna. Svarið skrif-
uðu þeir Páll Jónsson bóndi í
Einarsnesi og Jónas þorbergsson
ritstjóri. Svaraði svo B. Kr. aft-
ur með nýjum bæklingi, sem út
kom nokkru síðar.
Höf. náði tilgangi sínum að
nokkru leyti. Um bækling hans
urðu hinar illvígustu blaðadeilur,
og tortrygnin magnaðist gegn
samvinnufélagsskapnum, og of-
sóknir andstæðinganna á hendur
félagsskapnum og einstökum for-
ystumönnum hans hafa verið
miklu hamramari síðan bækling-
urinn kom út. Fyrir stjórn Sam-
bandsins var þetta talsvert vand-
meðfarið mál. Eins og svai' það,
er hún gaf út, ber með sér, vildi
hún forðast illindi í lengstu lög,
að svo miklu leyti sem það gat
talist Sambandinu skaðlaust. En
eftir því sem deilumar hörðnuðu
og ýmsar afleiðingar níðbæklings-
ins komu betur í ljós, sá stjórn-
in að við svo búið mátti ekki
standa. Væri hér ekki tekið mann-
lega á móti, mátti gang-a að því
vísu, að hver óvalinn þorpari
teldi sér hættulaust að skrifa, eða
láta skrifa, níð um félögún og
Sambandið í dagblöð og flugrit,
sem dreift yrði út meðal almenn-
mgs, og gæti gert félagsskapn-
um hið mesta tjón. það varð því
að ráði að B. Kr. var stefnt fyrir
sáttanefnd og er sáttakæran gefin
út 3 apr. 1923. Ekki varð af sætt-
um og vai' málinu því vísað 'til
aðgerða dómstólanna.
þann 7. ág. 1924 var dómur
kveðinn upp í undirrétti. Eru
nokkur ummæli stefnda dæmd
dauð og ómerk en hvorki dæmt
í sektir né skaðabætur. Málinu
var áfrýjað til Hæstaréttar. Var
dómur uppkveðinn 17. júní og
hljóðar svo:
„Máli þessu hefir verið skotið
til hæstaréttar af hálfu beggja
aðila.
í ummælum þeim í riti gagn-
áfrýjanda, Verslunai'ólagið, bls.
47, sem átalin eru, er komist svo
að orði:
„Og vel má búast við, að þeir
menn setji öll járn í eldinn til
þess að halda við ástandinu sem
er, sem búnir eru að búa svo vel
í haginn fyrir sig við kaupfélags-
menskuna, að þeir njóti nú sumir
sennilega hæstu launa allra
manna í landinu, t. d. við Sam-
bandið“.
í þessum orðum felst aðdróttun
um, að starfsmenn Sambandsins,
ótiltekið hverjir, kunni ef til vill
að misbeita stöðu sinni í eigin-
hagsmunaskyni. Samskonar að-
dróttun felst einnig í þessum um-
mælum á bls. 18 í Svari áfrýj-
anda til Tímarits íslenskra sam-
vinnufélaga, er einnig hafa verið
átalin:
„En um þetta hafa nútíðarfor-
kólfarnir ekki hugsað, þeir virð-
ast hugsa aðeins um það, að
troða sér sjálfum fram með oln-
bogaskotum og steyttum hnef-
um. Dæmin eru líka deginum
ljósari“.
IJvorttveggja þessi ummæli eru
meiðandi fyrir menn þá, er þeim
er bent að. Ber því að ómerkja
þau og láta gagnáfrýj anda sæta
sektum fyrir þau samkvæmt 219.
gr. hegningarlaganna.
Sömuleiðis eru átalin þessi um-
mæli á bls. 55 í ritinu Verslunar-
ólagið:
„þessi reikningsaðferð, sem
Landsverslunin hefir notað, þarf
ekki að vera gerð í sviksamleg-
um tilgangi, og fráleitt er að svo
sje hér, en hún getur þó fætt af
sér sviksemi annara. Aðrir geta
auðveldlega bygt uppgerð sína á
reikningi Landsverslunarinnar, og
þannig falið skipaupphæðir í bili,
er reikningurinn er gerður upp,
og flutt þær yfir á næsta ár. Sjóð-
þurð má t. d. auðveldlega fela á
þennan hátt. Og það má gera það
í stærri og minni stíl. það má
fjölga viðskiftamönnum, sem eru
svo góðsamir að kvitta skuld 31.
des., þótt hún sé ekki greidd fyr
en árið eftir. Og eftir þessu og
öðru af líku tagi verður að líta,
ekki einungis hjá Sambandinu,
heldur og hjá kaupfélögum, sem
versla beint við Landsverslunina,
eða aðra, sem haga kunna reikn-
ingsfærslunni á líkan hátt“.
í ummælum þessum felast
dylgjur um að aðaláfrýj andi muni
ef til vill nota til blekkingar slíka
reikningsfærslu viðskiftamanna
sinna, sem lýst er næst á undan
hjá Landsverslun. Ber að ómerkja
þessi ummæli og láta gagnáfrýj-
anda sæta sektum fyrir þau saxn-
kvæmt 219. gr. hegningarlag-
anna.
Ennfremur þykir rétt að
ómerkja þau af hinum átöldu um-
mælum, er hér fara á eftir, og
sem flest voru ómerkt í hinum
áfrýjaða dómi:
í ritinu Verslunarólagið bls. 37:
„tryggum huliðshjálmi virðist
varpað yfir viðskifti þess“.
í Svari gagnáfrýjanda á bls.
14:
„Stefnir ekki starfsemi Sam-
bandsins okkar einmitt í þveröf-
uga átt, að gera menn ófrjálsa
og háða“.
Á bls. 18 í sama riti:
„því hvernig innheimtu skuld-
anna er miskunarlaust beitt, eft-
ir að búið er að leiða menn út
í skuldaógæfuna".
Á bls. 24 í sama riti:
„því að það hefir ekki aðeins
steypt kaupfélögunum í skulda-
fjötra og hættu“.
Orðið „felur“ á bls. 30, og orð-
in „í pukri“ á bls. 37 í sama
riti.
Að öðru leyti verður, eftir því
sem málið hefir verið flutt í
Iíæstarétti, og samkvæmt for-
sendum hins áfrýjaða dóms, er
fallist verður á að mestu leyti,
að telja það rétt að undirdómur-
inn eigi ómerkti fleiri af hinum
átöldu ummælum né lét gagn-
áfrýjanda sæta refsingu fyrir þau.
í tilefni af flutningi málsins í
hæstarétti athugast, að ekki hef-
ir verið stefnt í málinu til á-
byrgðar samkv. 222. gr. hegning-
arlaganna, og kemur hún þegar
af þeirri ástæðu ekki til greina
í málinu.
það hefir ekki verið sannað eða
gert sennilegt, að hin átöldu um-
mæli hafi bakað áfrýjanda tjón,
og verður skaðabótakrafan því
ekki tekin til greina. Sekt sú, er
gagnáfrýj anda ber að greiða
ákveðst 100 krónur í ríkissjóð,
ella sæti hann einföldu fangelsi í
10 daga.
Málskostnaður í undirrétti
falli niður, en gagnáfrýjanda ber
að greiða aðaláfrýjanda 200 kr.
upp í málskostnað í hæstarétti.
því dæmist rétt vera:
Framantalin ummæli eiga að
vera dauð og ómerk.
Gagnáfrýj andi Björn Kristjáns-
son greiði 100 króna sekt í ríkis-
sjóð, en sæti 10 daga emföldu
fangelsi, ef sektin ekki er greidd
á réttum tíma.
Málskostnaður í héraði falli
niður, en gagnáfrýjandi greiði
aðaláfrýjanda, ýlambandi ís-
lenskra Samvinnufélaga, 200
krónur upp í málskostnað í hæsta-
rétti, að viðlagðri aðför að lög-
um“.
Eins og dómurinn ber með sér
hefir stjórn Sambandsins unnið
málið og fengið stefnda dæmdan
í selct, umrnæli dæmd dauð og
ómerk og hefir hún að því leyti
■ náð tilgangi sínum, þó skaða-
bótakrafan ekki væri tekin til
greina.
Að þessu sinni skal dómur
Ilæstaréttar ekki gerður að um-
ræðuefni, enda er það frekast
verk fyrir lög-fræðinga að gagn-
rýna, að hve miklu leyti gildandi
lög og dómvenjur hér á landi um
traustsspillandi ummæli geta tal-
ist viðunandi og í samræmi við
það sem tíðkast jí helstu menn-
ingarlöndunum. Fyrir þá, sem
áhuga hafa á þessum málum, væri
og fróðlegt að gera samanburð á
þessum dómi og öðrum hliðstæð-
um dómum sem Hæstiréttur hef-
ir dæmt. P.
----o-----
Tryggvi þórhallsson ritstjóri
fór norður á Strandir nú í vik-
unni til fundarhalda, og annast
Hallgrímur Hallgrímsson sagn-
fræðingur ritstjórnina á meðan
hann er fjai*verandi.