Tíminn - 20.06.1925, Page 4
114
TÍMINN
Hiísmæðraskólinn á Isaflrði
tekur til starfa 1. október n. k. Námskeiðin verða tvö, fjórir mánuðir
hvort.
Námsgreinar: Matreiðsla, þvottur, hreingerning herbergja,
næringarefnafræði heilsufræði, útsaumur og baldering.
Heimavist er í skólanum. Mánaðargjöld 90 kr. er borgist
fyrirfram.
Hver nemandi hafi með sér rúmfatnað og allan klæðnað. Jjæknis-
vottorð verður hver nemandi að sýna, við inntöku í skólann.
Umsóknir séu komnar fyrir 14. sept. og stilaðar til Skólanefndar
Húsmæðraskólans, eða til undirritaðrar forstöðukonu, sem gefur allar
nánari upplýsingar.
Ísafirðí 10. maí 1925.
Gyða Magnúsdóttir.
Verslunarskóli íslands
tekur til starfa 1. október n. k. Inntökuskilyrði i fyrstu deild, sem
eru þau sömu og undanfarin ár, eiu þessi:
1. Að þekkja orðflokkana og reglulegar beygingar í íslensku.
2. Að liafa lesið í dönsku einhverja lestrarbókina: Jóns Þórar-
inssonar eða Þorleifs og Bjarna eða Steingríms eða Jóns
Ofeigssonar.
3. Að hafa lesið 50 fyrstu kaflana í Geirsbók eða sem því svarar
í öðru.
í öllum málunum er lieimtað að nemandi þekki orðflokka,
beygingar og kennimyndir (og kyn).
4. Að kunna 4 höfuðgreinar (saml., frádr., margf. og deiling) í
heilum tölum og brotum (og tugabrotum).
5. Gott siðferði.
6. 16 ára aldur minst.
Til upptöku í 2. deild þarf nemandi að hafa lesið það sem lesið
er í fyrstu deild og fæst listi yfir það hjá skólastjóra. Kvölddeild verð-
ur haldin ef næg þátttaka verður.
Skólagjald það sama og áður, kr. 175, dagskólagjald, kr. 105
kvöldskólagjald og greiðist fyrirfram.
Umsóknir eiga að vera skriflegar og sendast skólastjóra eða for-
manni skólanefndar hr. Sighvati bankastjóra Bjarnasyni.
Reykjavík, í júní 1925.
Jón Sivertsen.
Bændur!
Við leyfum okkur að beina athygli yðar, að hinum afar hagkvæinu
kjörum sem við getum boðið yður á allskonar vatnsleidslu—
tælcjum, svo sem: Galv. pípuiu, dælum, vatnshrútum, krönum o.
g. frv. — Vörurnar sendast gegn póstkröfu hvert á land sem er. Not-
færið yður 18 ára reynslu okkar og þekkingu um fyrirkomulag og
uppsetningu á þessum tækjum.
Leitið upplýsinga til okkar urn alt er þér þurfið vitneskju um í
þessu efni. og við munurn svara fyrirspurnum yðar um hæl.
Virðingarfyllst
Helgi Hagnússon & Co
eflir
þessu eina
mnlenda íélagi
þegar þár sjóvátryggið.
Símí 542.
Pósthólf 417 og 574.
Símnefni: Insurance.
Alfa^
Laval
skilvindnr
reynast best
Fantanir annast kaupfé-
lög út um land, og*
Samband ísL samv.íélaéa.
Ofsjónir
Sigurðar frá Kálfafelli.
Sigurður frá Kálfafelli er enn á
ferðinni í Verði með smávegis
olnbogaskotum til mín. Mér finst
lítil þörf á að svara fleipri hans,
en vil þó minnast á fá atriði til
gleggri skilnings á höfundinum.
Ilann segir í grein sinni meðai
annars:
1. að eg hafi haldið fundi til að
þvo hendur mínar út af rit-
deilum við sig.
2. að aðalefni hótunarbréfsins
hafi verið að láta mig vita að
sér væri þökk á, að eg kæmi
á þingmálafund í Lóni.
3. að eg hrósi mér af því, að eg
sé í ábyrgð fyrir Kf. Austur-
Skaftfellinga, að eg þykist
sýna mikla fórnfýsi með því
að vera þar félagsmaður og
að eg telji að mér sé að þakka
vegur félagsins og gengi.
þetta alt, ásamt fleiru, í grein
hans eru ofsjónir, misminni og
missýningar, sem eg tel rétt að
tala vægilega um höf. vegna, en
vil taka fram það, sem hér fer
á eftir.
það hafa engir fundir verið
haldnir í Austur-Skaftafellssýslu
vegna árásar höf. á mig eða grein-
ar kjósanda í A.Skaftaf.sýslu,
venjulegir deildarfundir voru um
garð gengnir í tveim hreppum og
ákveðnir í hinum, áður en árás
S. S. var kunn austur frá, enda
hennar ekki minst nema á einum
fundinum og það á þann hátt,
sem er gagnstæður því er S. S.
hefði óskað. — þetta eru því of-
sjónir hjá honum. S. S. virðist
halda að menn út um land hafi
svo mikið við það sem hann skrif-
ar, að rokið sé til, og almenning-
ur á fund út af því. þó að eg
vilji ekki spilla þeirri ánægju,
sem S. S. efir af því að draga
upp svona myndir af sjálfum sér,
verð eg að segja honum það, að
þetta er eintómur hugarburður
hjá honum. Menn brosa bara á
kostnað höf. að þessum peðringi
ans í blöðunum, kunningjar hans
kenna í brjósti um hann, en vesa-
lings Sigurður telur víst sjálfum
sér trú um að heil héruð eða
jafnvel þjóðin öll hlusti er hann
tekur til máls, og standi á öndinni
út af orðum hans. — „Alt er það
öfugt hjá Pétri“.
þá er það „hótunarbréfið“. S.
S, er auðsjáanlega alveg búinn að
gleyma efni þess, þetta sem hann
nú segir að hafi verið aðalefni
þess er ekki minst á í því, en það
sem eg átti að lesa á milli línanna
var vafalaust það, að honum væri
e k k i þökk á að eg kæmi á
þingm.fundi í Lóni. Bréfið er enn-
þá til og getur verið gott vitni
um eiginleika og innræti höf. —
Eg hef ekki nema ánægju af að
rifja upp minningar frá fundi.
þessum, en eg vil efast um að
S. S. sé það jafnmikil ánægja.
Svo er þriðja atriðið, þetta sem
S. S. segir um mig í sambandi við
Kf. A.Sk., að eg hrósi mér, þykist
sýna fórnfýsi o. s. frv.
Til glöggvunar vil eg rifja upp
það sem eð sagði um þetta efni í
Tímanum 9. maí þ. árs, eg segi
þar: „Eg er í ábyrgð fyrir Kaupf.
A.Skaftf. með öðrum félagsmönn-
um, og tel eg mig hafa jafnfægð-
an skjöld þess vegna, því enginn
hefir enn tapað nokkrum eyri
hjá félaginu“.
það mun erfitt að finna nokk-
uvt sjálfshól í þessum orðum, þau
eru lituð til þess að hnekkja
dylgjum S. S. um, að eg stæði
illa að vígi um ábyrgðir o. fl. og
lesa má í Verði 21. mars síðast-
liðnum.
f grein minni er heldur ekkert
sagt um hag Kf. A.Sk., mér né
öðrum til lofs eða lasts, og alls
ekki minst á að „mér sé nú að
þakka vegur og gengi félagsins“,
eins og Sigurður orðar það. —
Um það getur hver hugsað og
sagt sem honum sýnist mín
vegna. IJöf leggur mér í munn
hitt og annað em eg hefi aldrei
sagt né hugsað og reynir svo að
snúa út úr því. Slíkur málflutn-
ingur hefir aldrei verið talinn lofs-
verður, og öfundlaus er hann af
þeirri aðferð því hún er „verst
fyrir piltinn sjálfan“.
Sigurður frá Kálfafelli berst
við sína eigin uppvakninga og má
mikið vera ef þeir verða honum
ekki að fótakefli fyrr en varir.
S. S. er öðruhvoru að hrósa mér
fyrir reglusemi og dugnað, en
virðist endilega vilja að eg geri
einhverjar athugasemdir við það,
eg sé nú' enga þörf á því fyrir
mig að andmæla þeim lofsyrðum,
en vil þó taka fram að mér er
eins kært að fá last frá honum
og lof. önnur atriði í grein S. S.
nenni eg ekki að fást við, en þau
ásamt því sem minst hefir verið
á, benda til þess að höf. muni þó
„ekki klígja við öllu“, þegar um
það er að ræða að dylgja um ná-
ungann.
Meðferð höf. á orðum mínum í
25. tbl. Tímans bregður skörpu
Ijósi yfir hvernig hann leyfir sér
að fara með orð annara manna, og
hafi hann á þann veg notað hin
útlendu rit, sem hann vitnar til
í pésa sínum, verð eg að telja
pésann næsta lélegan grundvöll.
þetta kom líka í ljós um hið til-
færða erindi eftir Steph. G. Steph
ansson og áður hefir verið bent á.
þessi síðasta grein S. S. sýnir
ágæta mynd af honum, bæði okk-
ur sem þektum hann sæmilega
áður, og einnig hinum sem hefir
skort næga þekkingu á honum,
og’ fyrir þær sakir tel eg grein
hans betur ritaða en óritaða.
Mætti eg svo spyrja hinn „fjöl-
vitra og réttorða samvinnumann"
eftirfarandi spurninga: Hvers
vegna fylgdi Sigurður frá Kálfa-
felli fram samábyrgð í Kf. Aust-
ur-Skaftf. er það var stofnað vet-
urinn 1919—1920?
Hvort á að marka meira .verk
hans 1919 eða orð 1924 að því er
kemur til samábyrgðarinnar?
IJversvegna hefir S. S. ekki enn
sýnt í verkinu hvernig reka skuli
samvinnufél. þannig „að þau séu
öllum þeim til hagsbóta sem í
þeim eru og kunna að verða?
Ilvað leggur hann til skjóls því
skipulagi samvinnunnar sem Pét-
ur Jónsson vildi ekki vera láta,
eins og S. S. var að tala um í
haust að þyrfti-
Að endingu vil eg láta í ljósi,
að vel athugandi væri að gera S.
S. að endurskoðara við allar
póstaafgreiðslur sökum hins mikla
áhuga hans um póstmál er síð-
asti Vörður o. fl. ber vitni um.
Slíkur endurskoðandi þarf að vera
kunnur að því að fara vel með sitt
og annara fé, vera glöggur reikn-
ingsmaður og ekki „hafa freklega
reiknað sér launin“. — Ætli Sig-
urður frá Kálfafelli sameini ekki
alla þessa kosti?
St. í Reykjavík 17. júní 1925.
Jón ívarsson.
----o----
Heimskautsfhigið. Amundsen
og félagar hans komu til Spitz-
bergen 18 þ. m. heilir á húfi. í
næsta mánuði verður sagt frá
ferðinni.
Útlendar fréttir koma í næsta
blaði, sömuleiðis frásögn um
Borgarnesfundinn.
H.f. Jón Sigmundsson & Co.
i og silfri.
pöstkröfu út
ef óskað er.
Jón Sigmundsson gullsmiður.
Sími 383. — Laugaveg 8.
HELOTTE
Aðalumboðsmenn:
Á. ÓLAFSSON & SCHRAM
Simn.: Avo. Simi: 1498
Rif f ilskot nr. 25—20.
Sportvöruhús Reykjavíkur.
Haustrigningar
hinn skemtilegi og fyndni gaman-
leikur, sem skemt hefir Reykvík-
ingum í allan vetur, eru nú komn-
ar út á góðan pappír. Fást hjá
nær öllum bóksölum landsins.
Austanfjalls fást þær hjá þor-
steini Jónssyni á Hrafntóftum.
Fyrirspurn
til skiítaráðandans í þrotabúi Jóns
. Björnssonar & Co. í Borgamesi.
Út af miklu umtali manna á
milli hér í héraðinu um að versl-
unin „Jón Björnsson & Co“ í Borg
arnesi hafi rétt áður en hún fram-
seldi bú sitt til gjaldþrotameð-
ferðar, fært nær allar innieignir
viðskiftamanna sinna í héraðinu
á reikninga ýmsra skuldunauta
sinna (með milliskriftum), og
þannig minkað eignir þrotabús-
ins um nokkra tugi þús. kr., þá
vildi eg leyfa mér að gera þá
fyrirspurn til skiftaráðandans í
nefndu þrotabúi hvort þetta sé
satt, og í öðru lagi, leyfilegt
gagnvart öðrum „kreditorum“
þrotabúsins.
Æskilegt væri að fá þessari
fyrirspurn svarað og það sem
fyrst, ef hægt væri að kveða
þennan orðróm niður, og fyrir-
byggja framvegis allan þvætting
og gétgátur um þetta efni manna
á milli.
Borgfirðingur.
Herra ritstjóri!
þér hafið óskað þess að eg svar-
aði fyrirspurn þessari, er beint er
til. mín, sem setts skiftaráðanda
í þrotabúi firmans Jón Björnsson
& Co.
Eg get ekki eins og sakir
standa neitt um þetta sagt, en
vitanlega er alt sen? að skiftum
búsins lýtur vandlega athugað af
skiftaréttinum og skuldheimtu-
mönnum búsins.
Reykjavík, 20. úní 1925.
St. GunnJaugsson.
-----o----
Hátíðahöld fóru fram í Reykja-
vík 17. og 19. júní, með líkum
hætti og undanfarin ár.
Garðar Gíslason stórkaupmaður
hefir í undirrétti verið dæmdur í
150 króna sekt, eða 10 daga fang-
elsi, og 100 króna málskostnað
fyrir meiðingar í máli er Magnús
bóndi Stefánsson á Flögu höfðaði
gegn honum, og ummælin dæmd
dauð og ómerk.
Ritstjóri: Tryggvl þórhallsson.
Prentnmiðjan Aeta.