Tíminn - 11.09.1926, Page 1

Tíminn - 11.09.1926, Page 1
©Jaíbfert •»$ afgrei6slut»’a&ur Cirrtans cr Sigutfetr Jfttfcítísfon, Samianis^ásitw, Heyffanff. X. ár. Roykjavlk 11. september 15126 ^Xfgrcibðía Cfmans er í 5amíxm&s^á»tnu ð>ptn 6agle§a 9—\Z f. b- 5fmi ^96. 42, blað ■ ■ Á ábyrgð miðstjórnar íhalds- flokksins. Árni Jónsson, Ihaldssiendiherra fyrverandi, heldur áfrana skrifum sínum um landbúnaðarmálin, í málgagni því, sem gefið er út af miðstjórn íhaldsflokksins. Hann reið hart úr hlaði, þegar í fyrstu, er hann hóf að skrif'a. En er á líður, fer haun enn geyst- ara. Stóryrðin í andstæðinganna garð eru orðin álíka mikil og hjá Kr. Alberts-yni. Allri stjórn á pennanum er slept. Aðefns eitt segii- þessi Ihalds- isendih. fyrv. satt í skrifum sín- um: Að aðstöðumunurinn til land- búnaðarmálanna er eitt stærsta ariðið, sem skilur Framsóknar- og íhaldsflokkinn. Mjög . margir íhaldsmanna annara hafa ekki viljað viðurkenna þetta, en hafa leikið þann leik, að þykjast vera með velflestum eða öllum land- búnaðartillögum, sem Framsókn- armenn hafa borið fram. Eru skrif Árna að því leyti mjög góð, að því leyti, að þau fyrirbyggja að íhaldsmenn geti eftirleiðis leik ið þann skollaleik. Á ábyrgð I- haldsflokksins eru þessi ummæli hans birt í flokksblaðinu. Og þau eru hvorki fá né hóg- vær ummælin þessa Ihaldssendi- herra Um stefnu Framsóknar- flokksins í landbúnaðannálunum, bæði einstökum málum og í heild sinni. Hann segir að Framsóknannenn „auglýsi vantrú“ sína á landbún- aðinum „átakanlega", og sýni frá- bært „metnaðarleysi“ fyrir bænd- anna hönd. Ætli þeir sér að ,sjúga metnað og þrótt' úr bændunum og gera þá að „metnaðar- og ábyrgð- arlausum öreigalýð“, sem sé „trú- laus á atvinnuveg sinn og afkomu, berjandi lóminn og nauðandi um styrk frá öðrum“. Og enn segir „sendiherrann“ að Framsóknar- menn fremji „metnaðarmorð“ og komi fram hjá þeim „sama van- traustið, sama gjafapólitíkin, sama smjaðrið og sami yfirdreps- skapurinn“. Ef Árni „sendiherra" hefði rit- að þessi orð annaðhvort t. d. í Harðjaxl eða Storm, eða í ein- hvern pjesa sem hann bæri ábyrgð á sjálfur, þá myndi eng- inn skoða þau annað en ómerk ómagaorð. Og engum myndi detta í hug að svara þeim. En það eru ekki orð Áma eins er hann ritar þau sem ritstjóri fyrir málgagni sem gefið er út af miðstjórn íhaldsflokksins. Þau ber að skoða sem ummæli af hálfu flokksstjórnar íhaldsins. Þau ber að skoða sem opinbera tilkynningu um stefnu og hugs- unarhátt Ihaldsflokksins í land- búnaðarmálunum. Mjög merk stjórnmálatíðindi eru því þessar greinar Áma „sendiherra“ um landbúnaðar- málin og verður þeim hjer á eftir fullur gaumur gefinn. Hver er sá er dæmir svo hart um metnað? Þessi ummæli sem tilfærð eru orðrjett hjer að framan, og þó ekki nærri öll, eru einhver allra hörðustu mnmæli sem sögð hafa verið um pólitíska andstæðinga á Islandi. Þá er það bætist við að „letiilinori". þau eru sögð í umboði miðstjóm- ar þess flokks sem ber ábyrgð á stjórn landsins og eru sögð um þann flokk sem meginhluti bænd- anna á Alþingi skipar og megin- hluti bændastéttarinnar fylgir að máli, þá er það þess vert að þau séu athuguð frá öllum hliðum. Það sem fyrst vei*ður fyrir að athuga er þá vitanlega þetta: Hver er sá maður sem kveður upp svo harðan dóm? Hver er sá maður sem dirfist að setja sig á þann háa hest að telja heilan stjómmálaflokk, bændaflokk, jafnvel sjálft Búnaðarþingið, samkundu bændastéttarinnar, eins og að verður vikið síðar — að telja þessa aðila stofna til „metnaðarmorðs“ hjá bænda- stéttinni — svo að aðeins sé nefnt eitt af ókvæðisorðunum ? Væri þess að vænta að íhalds- flokkurinn veldi til þess einhvem hreinan og flekklausan, einhvern alviðurkendan ágætismann, til að kveða upp slíkan regin áfellis- dóm yfir slíkum aðiljum. Og allra helst væri þess að vænta að sá hefði rétt til að telja sig hafa einhvem metnað sjálfan, sem slíku dómsorði lýkur upp. Maðurinn sem kveður upp dóminn um „metnaðai*morð“ hjá öðrum er Ámi Jónsson, er var kjörinn „sendiherra“ íhalds- stjórnarinnar til Vesturheims, í ullarmálinu. Hann vai* settur til menta, en brast þrótt og metnað til að ljúka námi. Hann hafði ætt og uppeldi til að finna hjá sér hvöt og metnað til að starfa fyrir bændastéttina og hugsjónir samvinnustefnunn- ar sérstaklega. Ekki varð honum þó það fyrir, er hann flosnaði upp frá náminu. Þvert á móti! Hann réðist á mála hjá útlend- um selstöðukaupmönnum. Metn- aður hans var sá að gerast auð- sveipur þjónn darisk-íslensku verslananna, þeirrar stéttar út- lendra kaupmanna sem lengst hafa þjakað þetta land, þeirra manna sem nánustu ættingjar Árna vörðu allri æfi sinni til að brjóta niður. Og metnaðurinn í þeirri undirtyllustöðu Áma, hjá þessum dönsku selstöðukaup- mönnum mun best sjást af því hversu komið er nú fyrir þeirri verslun, sem hann veitti forstöðu fyrir „dönsku mömmu“. Hefú’ Tíminn haft þá ánægju að aug- lýsa þá verslun til sölu. Undir fölsku flaggi, með skoð- anafalsi, komst hann síðan á þing og upp frá þeirri stundu hefir hann verið brjóstmylkingur þess stjórnmálaflokks sem keypti hann, selt honum skoðanii' sínar og látið kúgast til hvers sem er. I alóþörfu embæti situr hann, af íhaldsnáð og tvívegis hefir hann verið sendur utan af íhaldinu við hneisu sem hefst í nýtt veldi við hverja nýja ferð. Þessi er maðurinn sem ber á aðra metnaðarmorð. Þessi er mað- urinn sem ber á aðra að þeir hafi vantrú á heilbrigðum atvinnu- rekstri. Þessi er maðurinn sem dæmir hinn ógurlega þunga dóm um Búnaðarþingið, mikinn hluta bændastéttarinnar og þá menn sem af einlægri sannfæringu og fullri trúmensku vilja vinna fyr- ir málefni landbúnaðarins. Vel hefir íhaldið valið dómarann. Hvar er metnaður hans sjálfs? Mannsins sem svikið hefir hug- sjónir föðurins, lifir á því að selja skoðanir sínar og hefir ekki einungis gei*t sjálfum sér þá höf- uðhneisu með utanferðum sínum, að hafi hann haft nokkurn snefil af samvisku þá hefir hann myrt allan metnað í sér — heldur hefir hann og verið svo ógæfusamur, sem ekki verður nema einn af hverri kynslóð sem betur fer, að hafa sett óafmáanlegan svívirð- ingarblett á þjóð sína. Hvert er málgagnið og flokkur- inn, sem kveður upp hinn þunga dóm? Verður næst fyrir að líta á hverskonar málgagn það er, sem leyfir sér að fella slíkan dóm í landbúnaðarmálunum. Hverjir eru það sem, gefa það málgagn út? Peningana til blaðáútgáfunnar hafa lagt fram kaupmenn og út- gerðarmenn. Fyrir þeirra munn er kveðinn upp hinn þungi dóm- ur um metnaðai’morð hjá bænda- stéttinni og þeim mönnum sem berjast fyrir málefnum hennar. Fróðlegt er að athuga metnað- inn sem þeir aðilar mega ala í brjósti gagnvart bændastéttinni, þegar tekið er tillit til hvernig aðstöðunni er varið gagnvart ríkisstyrk. Nálega alt fjármagn landsins hafa kaupmenn og útgerðarmenn sogað til sín. Hvemig hafa þeir farið með þau stórkostlegu hlunn- indi sem landið hefir veitt þeim í þessu efni? Þeir hafa tapað miljónum króna á miljónir ofan. Þeir hafa sumpart sökt í sjó og sumpart hent út í veður og vind, með ramvitlausum „spekúlatíónum“ og siamviskulausum verslunarfyrir- tækjum ógurlega háum upphæð- um á íslenskan mælikvarða. Þeir hafa borist mikið á, það vantar ekki, þeir hafa þókst hafa mikinn metnað, og til marks um það velt sér í peningum aðra stundina — amrnra peningum. Oftar en einu sinni hefir legið við að þeir settu þjóð sína á hausinn, með flani sínu. Tugum þúsunda króna — áreið- anlega er það ekki ofmælt — hafa þessir menn, meðal annars, kast- að í sjóinn til að halda úti íhalds- blöðum, sem send eru ókeypis um land alt, til að breiða út kenning- ar sem eru skaðlegar fyrir þjóð- ina. Hvílíkur metnaður að verja þannig peningum sem lánsstofn- anirnar hafa trúað þessum mönn- um fyrir! Þetta eru ölmusumennimir sem sökt hafa í sjó miljónum króna af þjóðarauðnum og vai’la svo mikið sem eitt ýlustrá stendur eftir oft, á eyðimörku eyðilegg- ingar þeirra, sem votti um ein- hverja gagnsemi af starfi þessara manna og fjáraustri. Þessdr menn leyfa sjer að láta málgagn sitt kasta hæðiyrðum að bændastéttinni og þeim mönnum, sem bera viðreisn landbúnaðarins fyrir brjósi, tala um ölmusugjatf- ir til bænda og „metnaðarmorð“, ef ríkið á að leggja eitthvað af mörkum til nauðsynlegasta verks- in;s, sem nú er hægt að vinna á ísl&ndi, í verklegum efnum: auk- innar ræktunar og alhliða eflingar landbúnaðarins. Skilið fyrst aftur herskörunum -— borgið fyrst aftur miljónimar mörgu, sem bankarnir hafa tapað á ykkur undanfarið, og alþjóð verður að borga fyrir ykkur, áð- ur en þið farið að nefna aðra ölmusumenn og saka aðra um metnaðarmorð. Hnarreistur getur bóndinn ís- lenski bandað við ykkur hendi. Hann hefir ekki sökt miljónum í sjó, eða hent þeim út í veður og vind. Það sem ríkið hefir lagt fram til styrktar landbúnaðinum hefir það fengið aftur þúsundfalt, í bættum lífsskilyrðum fyrir alda og óborna, í stórum auknum þjóð- arauði, í verðmætum sem ekki glatast meðan Island er ofar At- lants álum. — Það er aðalmálgagn Ihaldsins sem talar um að aðrir vilji gera bændastéttina að ölmsulýð og fremja á þeim metnaðarmorð. En ekki eru liðin nema rúm tvö ár síðan sá sami Ihaldsflokkur vildi stofna til löggjafar sem sannarlega hefði sett þann stimp- il á. Það var á þinginu 1924, sællar minningar, þegar kjöttollssamning urinn var á döfinni. Þegar íhalds- flokkurinn nálega óskiftur taldi það miklu meira um vert að hugsa um síldarútgerðina en land- búnaðinn. Þá var svo stórt litið á „síldarspekúlantana" í íhalds- herbúðunum að vegna ímyndaðra hagsmuna þeirra átti að gera að- alframleiðsluvöru bændanna ó- seljanlega. Og enn heyrist íhalds- jarmurinn yfir að ekki var end- anlega gert. Þá voru sumir íhaldsmenn orðn- svo ráðnir í að slaka ekkert til vegna síldarútgerðarinnar, að þeir voru búnir að semja frumvarp um að sietta ölmusu í bændur, þegar búið væri að gjöra kjötið óseljanlegt. Gjald áttd að leggja á fiskinn til að borga uppbót á hvert kjötpund. Einn sauðspakasi fylgismaður þess frumvarps var Ihaldssendi- hen’ann, sem nú ber á vörunum ummælin um „ölmusulýð“ og „metnaðarmorð“. Hver var þá metnaður hans fyrir bændastétt- arinnar hönd? Hver var þá skiln- ingur íhaldsflokksins á þýðingu landbúnaðarins, er hann mat meira síldarútgerðina? — Þessir eru aðilarnir sem fella hinn ,þunga dóm um Búnaðar- þingið, mikinn hluta bændastétt- arinnar og fulltrúa bænda á Al- þingi. Fyrsta ákæniatriðið: Ræktunar- sjóðurinn. Þá, þegar gjörð hefir verið nokkur grein fyrir dómurunum, ber að líta á ákæruatriðin, sem hinn þungi dómur, kveðinn upp á ábyrgð Ihaldsflokksins, hvílir á. Skemst af að segja eiga allar tillögur sem Framsóknarmenn hafa borið fram til viðreisnar landbúnaðinum, að stefna að því að gera bændur að „ölmusulýð“ og fremja á þeim „metnaðarmorð". En einkum er það þóþrent:Krafan um að bæta lánskjörin í Rækt- unarsjóðinum, frumvarpið um stofnun landnámssjóðsins til að gera mögulegt að fjölga býlum í sveitinni í viðunandi stórum stíl, og frumvarpið um tilbúinn áburð. I fyrri greininni um „hvað skilur“ Framsóknar- og Ihalds- flokkinn er langmest rætt um Ræktunarsj óðinn og ásakanirnar boniar fram um „ölmusuhugsun- arhátt“ og „metnaðarmorð”. Liggur þá fyrir bein játning frá miðstjón íhaldsflokksins nm það að hún álítur að lánskjör þau, sem Ræktunarsjóðurinn nú býður bændum íséu hin allra bestu sem réttlátt sé að heimta og að hún álítur að það væri „ölmusu- háttur“ og „metnaðarmorð“ að fara fram á sanngjamari lánskjör. Er það stórlega gott að þessi játning liggur fyrir fyrir koscn- ingarnar í haust. Getur Ihalds- flokkurinn nú ekki lengur farið í felur með stefnu sína og hugs- unarhátt í þessu efni. Ákæran um ,,ölmusúhátt“ og „metnaðarmorð“ þeirra sem í réttarins mafni krefjast sann- gjamari lánskjara til landbúnað- arins en Ræktunarsjóðurinn býð- ur nú, fellur ekki eingöngu á rit- stjóra Tímans, þó að hann hafi mest um þetta talað og ritað. Hún fellur á Búnaðarþingið, sem látið hefir sömu skoðun í ljós. Hún fell- ur á ótal bændafundi, sem borið hafa fram sömu kröfu. Hún fellur á 13 þingmenn í neðri deild Al- þingis, sem greiddu atkvæði með tillögu sem fór í þessa átt á síð- asta þingi — og einn þeirra var meir að segja Ihaldsmaður — og hún fellur á þingmeirihlutann 1924, sem afgreiddi lögin um stofnun Búnaðarlánadeildar Lands bankans, því að með því skipu- lagi voru bændum boðin betri lánskjör en Ræktunarsjóðurinn býður nú. Allir þessir aðilar, vilja sam- kvæmt dómsúrskurði aðalmál- gagns Ihaldsflokksins, gera bænd- ur að „ölmusumönnum" og fremja á þeim „metnaðannorð“. En af 'hverju stafa háu vext- imir? Þeir stafa fyrst og fremst af miljónatöpum kaupstaðabú- anna? Það þarf háa vexti, sem einnig þurfa að halda&t langa lengi, til þe&s að vinna upp töp sem vafalaust eru nær tuttugu miljónum króna en tíu. Nálega ekki einn eyrir af þess- um miljónatöpum hefir tapast á landbúnaði. Er það þá réttlátt að landbún- aðurinn borgi okurvexti vegna þessara tapa? Nei það er ekki réttlátt. Og það er hundheiðni, þau orð koma af vörum manna sem leigð- ir eru til að blekkja bændastétt- ina, sem falla um að það sé „ölmusuháttur“ og „metnaðar- morð“ og heimta þau vaxtakjör fyrir landbúnaðinn sem eru í samræmi við þá litlu áhættu sem er því samfara að lána landbún- aðinum fé. Og blekkingin verður enn auðsærri er íhaldsflokkurinn með þeirri falskenningu lokar al- veg augunum fyrir því hvað ríkið fær í aðra hönd fyrir það fé sem það fær Ræktunarsjóðnum í hend- ur til að lána bændum. Ræktunarsjóðurinn lánar ekki fé í víxla til jarðarbrasks eða hrossakaupa. Hann lánar ein- göngu til framkvæmda — til að koma í verk varanlegum umbót- um sumpart á húsakynnum til að reisa kynslóðinni sæmilega veru- staði og tryggja heil&u og heil- brigði framtíðarkynslóðarinnar og sumpart til aði gera sjálft land- ið betra, byggilegra, arðvænlegra. Þessar lánveitingar, aláhættu- Frh. á 4. síðu,

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.