Tíminn - 27.11.1926, Qupperneq 4

Tíminn - 27.11.1926, Qupperneq 4
200 TlMlNN Ný bók. Ný bók. 33i, t>i og blaka. Kvæði eftir Jóhannes úr Kötlum, með mynd höfundarins. Verð kr. 5',00 heft og kr. 6,50 bundin. Fæst hjá öllum bóksölum. í aðalátsölu hjá Prentsmiðjunni Acta h.f. Notuð íslensk frímerki kaupir undir- ritaður háu verði. Sendið frímerkin í ábyrgðarbréfi. Greiðsla send jafnskjótt og eg hefi móttekið merkin og athugað þau. Innkaupsverðlisti sendur þeim er þess óska. Bjarni Þóroddsson Urðarstíg 12. Reykjavík. mest þótti við þurfa. Fekst steinhljóð á meðan sagt var frá. En á eftir dundu yfir spum- ingarnar: Hver hefir skrifað þessa bók? Hvar fæst hún? Má eg ekki biðja pabba og mömmu að lofa mjer að kaupa hana? Eg sagði sem var og játti síð- ustu spurningunni. Og þegar leyfi foreldranna fekst, sendi eg pöntun. til Acta, fekk bækumar og úthlutaði þeim með bókhlöðuverði til allra bam- anna. Nokkur hluti þessa æfin- týris var einnig sagður börnun- um í æfingabekk kennaraskólans, áður en það var prentað. Hlaut það einróma lof hjá bömunum. Þetta er hinn merkilegasti dómur, sem nokkur barnabók get- ur fengið. Smekkur barna er frá- bærilega næmur, svo að enginn skyldi leyfa sjer að bjóða þeim, það er þau velgir við. Það sem mestu veldur um þetta er að höf. fylgir bororðunum: Mundu að bamið á að fá að vera bam. Frásögn og efnismeðferð er einkar liðleg og fjörug. Málið er lipurt og létt sem vera ber. Og af því að þetta er æfintýri, fullnægir það ímyndunarafli bamsins. En einnig er þetta dæmisaga, rík af siðbætandi dæm- um, þó laus við væmni og vand- lætingu. Innihald æfintýrisins er bæði góður og gleðilegur boðskapur, er hljóðar svo: Það borgar sig alt af að breyta vel, en hefnir sín að breyta illa. Af þessu á það jafnt erindi til fullorðinna sem bama. Enda mun það engu síður lesið af fullorðn- um. Og vegna alvörunnar, sem býr undir niðri í æfintýrinu, vekur það hugsun og veitir viðfangs- efni. En þannig ber að rita bama- bækur. Það er reynsla þess, er þetta ritar, að auðvelt er að koma inn á hverskonar viðfangsefni, út frá æfintýri þessu, bæði hvað náms- greinum og dagfari viðkemur. Ýmsa galla má sjálfsagt finna á riti þessu. Tel eg það m. a. ókost að efnisyfirlit skuli vanta. Er þægilegt að hafa slíkt á kenslubókum og kenna börnum að nota það. Setningar eins og „mikið var hún falleg“, „mikið væri gaman“ o. s. frv., sem einhverjum þótti miður góðar, er nokkuð sem ekki er orð á gerandi, svo algengt er þetta í mæltu máli. Hitt tel jeg aftur galla, að myrkt er yfir síðasta kafla bók- arinnar, „Dísin“. Er eg ekki viss um að allir renni grun í hvað höf. á þar við. Sumir munu telja ýmsar endur- tekningar í frásögu galla á bók- inni. En slíkt gefur frásögninni sinn æfintýrablæ. Endurtekning- amar eru og nauðsynlegar, þegar skrifað er fyrir böm. Þegar á alt er litið eiga höf. æfintýrisins, málari myndanna og útgefandi, þakkir skilið fyrir bókina. Það mun þykja of frekt að segja, að sem flestir ættu að lesa bók þessa, bæði vaxandi og vaxnir. En það grunar mig, að margan muni fýsa að eiga hana, og þykja hún hentug til tæki- færisgjafa. Og flestum foreldrum og skólum mun reynast erfitt að komast hjá að kaupa hana, ef bömin vita, að hún er til. Enda er hún ódýr. Hingað til hefir hér verið fremur skortur á mönnum, sem kunna að rita fyrir böm. Það gladdi mig mest, er eg las þessa bók, að mér þótti sem hér væri að vaxa upp maður, er gæddur er slíkum gáfum. Má honum koma að góðu haldi, að hann er kennari. Eg hlakka til næstu bókar frá honum. Kennari. ----o----- 1 j BRITTANNIA prjónavélamar eru ódýrastar. Samband isL samvlnnufélaga. Jón Þorl. og krónuhækkunin. Stjómin hefir fundið að hún stendur illa að vígi um þá sæng er hún hefir búið bændum, út- vegsmönnum, verkamönnum, kaupmönnum og embættismönn- um með krónuhækkuninni, en verður með þögn að viðurkenna að raunveruleikinn er þessi. En til að afsaka sig lætur stjómin útlenda blaðið skýra frá því að eg álíti fall krónunnar skaðlegt og hækkun skaðlega. í þessu finnur stjórnin mótsögn. Eftir þessu veit J. Þorl. ekk- ert um hinn eina, alviðurkenda tilgang peninga, þann að vera óbreytanlegur verðmælir. Ef pen- ingar hækka eða lækka svíkja þeir tilgang sinn. Þeir eiga að vera óbreytanlegir, eftir því sem mannlegir hlutir geta verið. Þess vegna eru allir menn í öllum löndum, sem líta óhlut- drægt á gengismálið, jafnt móti öllum leik við að fella eða minka verðmælinn, eins og að stækka hann. Þeir vilja hafa verðmælinn fastan og ósvikulan. Hér á landi féll krónan fyrir brask og óframsýnar fjárreiður margra af helstu stuðningsmönn- um Mbl., jafnvel eigenda þess. Og þegar verst gekk leituðu sum- ir af þeim atvinnurekendum við sjóinn, sem nú hliðra sér mest við að gjalda fé til almennra þarfa, eftir að fella krónuna til að frá bráðabirgðarlétti við fram- leiðsluna. Sú aðferð þeirra að minka krónuna, þ. e. svíkja verð- mælinn, var jafn röng eins og þegar inneigendur geymslufjár vilja nú vegna lítilfjörlegra sér- hagsmuna stækka krónuna, þótt þeir með því leiði eyðileggingu yfir þjóðina í heild sinni. Jón Þorl. tvísté sjálfur er hann ski’if- aði „Lággengi“ var þá að hugsa um að vera með festingu, er hún gæfi meii’i hluta. Aðstaða hans, og hækkunar- og lækkunarmann- anna í flokki hans er í þessu efni jafn ámælisverð. Ósvikin, áhreyf- anleg, áreiðanleg króna, þ. e. eina úrræðið sem sæmilegt er að óska eftir. Og það standa útgef. þessa blaðs alt öðru vísi að vígi, vegna framkomu sinnar í gengis- málinu fyr og síðar, heldur en „spekulantar“ Mbl. J. J. Andar kalt. í blaði því sem gef- ið er út af miðstjóm íhalds- flokksins birtist grein mikil síð- astliðinn laugardag um tekju- skattinn. Meðal margs annars sem þar er á borð borið, er það gefið 1 skyn að mikið muni vera um skattsvik í kauptúnunum og svo er bætt við orðrétt svo „þó að ekki séu eins mikil brögð að skattsvikum þar og til sveita“. Miðstjóm Ihaldsflokksins, sem ábyrgð ber á blaðinu gerir enga athugasemd við þessa ógurlegu aðdróttun, sem bændastéttinni í heild sinni er rétt. Er nú rétt að fara að dæmi Kr. A„ sem blað- inu stýi'ir og tekið hefir grein þessa til birtingar, og skora eg hérmeð á h^ftn að nefna einhver einstök dæmi um það að íslenskir bændur svíki skatt. Heiti hann minni maður ef hann leyfir að birta slíkar glæpaaðdi’óttanir, án þess að geta nefnt einstök dæmi. — Þá er stungið upp á því í greininni og enga athugasemd gerir miðstjóm íhaldsflokksins við það, að hafa „frádrátt vegna bama hærri í kaupstöðunum en úti um landið“. Er gott að þeir bændur „úti um landið“, sem lát- ið hafa glepjast, til að hugsa til fylgis við íhaldsflokkiim finni hinn kalda andgust sem á þá leggur fi'á aðalmálgagni Ihalds- flokksins og vissulega munu þess- ar kenningar báðar, sem nú hafa verið nefndar, talaðar út úr hjarta helstu manna Ihaldsflokks- ins. Tr. Þ. Prentvilla? Ihaldsmenn í Hafn- arfirði hafa stofnað pólitiskt fé- lag. Segir Morgunblaðið að fé- iagið heiti: „Fram“. Giska flest- ir á að um prentvillu sé að ræða og muni félagið raunar heita: „Aftur“, samkvæmt eðli og mál- efnum. — Enn aðrir halda að I- haldsmenn séu orðnir svo hrædd- ir við Ihaldsnafnið að þeir muni vilja sem tíðast afneita því. Búvísindi. Valtýr segir frá því nýlega í Morgunblaðinu að búið sé víðast að taka lambfé á gjöf austanfjalls. Er það eftir öðrum búvísindum hans að ætla að sauð- burður standi yfir í fyrstu vetr- arvikum. Gísli Guðmundsson gerlafræð- ingur er nýkominn heim úr Nor- egsfei’ð sinni, sem áður hefir ver- ið getið um hér í blaðinu. Lætur hann hið besta yfir. Mun Tíminn mjög bi’áðlega flytja frásögn hans um ferðina. Fiönsk söngkona frá Parísar- sönghöllinni, frú Germaine le Senne, er nýkomin hingað til bæjarins og hélt fyrstu hljóm- leika sína í Nýja Bíó í fyrra- kvöld. Era sjaldsénir hér, noi'ð- ur við heimsskaut, franskir listamenn, og er það dugnaður mikill er kona tekst slíka ferð á hendur um hávetur. Jafnframt hefir hún gert landi sínu mikixm sóma með komunni. Frúin er há- mentuð kona í sönglist sinni og um alt göfugur fulltrúi þeirrar þjóðar sem talin er að standa öllum framar í háttprýði. Oddeyrarsalan. Mikið er um það mál talað á Akureyri. Bærinn vildi fá eignina keypta, en þá hleypur einn úr bæjarstjórinni, Ragnar Ólafsson, í kapp við bæ- inn og kaupir eignina í laumi. Er hann alment áfeldur fyrir til- tæki sitt. Heyrst hefir að bæjar- búar vilji taka eignina aftur lög- námi og þá binda sig við fast- eignamatið, til að forðast það að bærinn verði féflettur, því að marga grunar að það sé ætlunin. „Rökvísi“ mun það kaUast, sem fram kemur í aðalmálgagni íhaldsflokksins, út af kosning- unni í Dölum. Af þeirri forsendu, sem opinber varð þegar atkvæð- in voru talin, að frambjóðandi Ihaldsflokksins, besti maðurinn sem flokkurinn gat fengið, fékk ekki einu sinni 20% af greiddum atkvæðum, dregur Kristján Al- bersts-on þá ályktun að næst sé ÍKaldsmaður viss í Dölum! Með þeirri rökfærslu mun hann telja sér mörg kjördæmi viss næst. Þingvallanefndin er nú fyrir nokkru tekin til starfa. I henni eiga nú sæti fimm menn: Ásgeir ísgeirsson (ritari), Jóh. Jóhann- esson (form.), Jónas Jónsson frá Hriflu, Magnús docent og Sigurð- ur Eggerz. Nefndin starfar launa- laust. Aðstoðarmaður hennar er Jón Sigurðsson skrifstofustjóri Alþingis. DÝRAFRÆÐI eftir Jónas Jónsson, þriðja og síð- asta hefti. Verð 2,50. Fæst í Rvík hjá Guðm. Davíðssyni, Arinbirni Sveinbjamarsyni, Þorst. Gísla- syni og Þórami Þorlákssyni en út um land hjá nálega öllum kaup- félögum og nokkrum bóksölum. íslendingahúsið í Osló. Landi í Osló, J. Eyjólfsson ljósmyndari, sem lengi hefir verið þar búsett- ur heíir hafist handa með að safna fé í íslendingaheimili í Osló og orðið vel ágengt, enda notið til þess styrks marga góðra manna þar í landi. Nú hefir nefndin, sem veitir samtökunum forstöðu, gefið út einkar myndar- legt jólahefti. Það heitir Norrön Helg. Fæst hjá öllum bóksölum og kostar kr. 2,50. Af íslending- um rita í þetta hefti Th. Thor- oddsen, Sig. Nordal, Matth. Þórð- arson og Ögm. Sigurðsson. Frá Norðmanna hálfu rita í heftið sumir af þektustu rithöf. þeirra, t. d. Bojer, Paasche og Sigrid Undset. Leikfélagið leikur nú „Tengda- mömmu eftir Kristínu Sigfús- dóttur. Sýndi það sig að bæjar- búum féll ekki leikrit Pirandellos „Sex vemr leita höfundar“. Um síðastliðna helgi fékk Eim- skipafélag Islands skeyti frá Lagarfossi, sem var í Atlants- hafinu á ‘ leið til Englands, þess efnis, að maður hefði horfið af skipinu á laugardagskvöld. Talið er víst að maðurinn hafi með einhverjum hætti fallið útbyrðis. Hann hét Ingólfur Einarsson og var frá Tóftum á Stokkseyri, ókvæntur og á besta aldri. Skipstjórinn á varðbátnum „Trausti“ kærði skipstjóraim á „Júpiter“ fyrir ólöglegar veiðar í Garðssjó í sumar. Réttarrann- sókn hefir staðið yfir í Hafnar- firði núna undanfarið. Kveðst skipstjóri Júpiters ekki hafa ver- ið í landhelgi og fór Þór suður í Garðssjó til þess að mæla þau mið sem Júpiter hafði verið á, og sýna mælingamar að eftir sögusögn skipstjórans á Júpiter hefir skipið verið utan landhelgis- línu, en eftir því sem skipverjar á Trausta segja hefir Júpiter verið fyrir innan línu. Hvorir- tveggja hafa unnið eið að fram- burði sínum og má búast við tals- verðum málarekstri ennþá, áður en endanlegur dómur getur fallið í málinu. Talning landskjörsatkvæða fer fram 2. des. n. k. Munu atkvæð- in úr Norður-Múlasýslu koma með „Esju“ eða „Nonna“, sem eru væntanleg eftir helgina, og eru það síðustu kassarnir að undan- teknum kössunum úr Barða- strandarsýslu, sem „Þór“ kemur með núna einhvern næstu daga. „Við fótskör meistarans“ heit- ir bók, sem gefin var út fyrir nokkram áram og hlaut svo miklar vinsældir, að hún seldist upp á tiltölulega skömmum tíma. Er bókin eftir Alcyone (Krishna- murti), en þýðinguna gerði Jón heitinn Aðils prófessor. Nú hefir bók þessi verið endurprentuð og verður send út um land með BLf. Jód IMIill-Lxr og alt til upphluts sér- lega ódýrt. Skúfhólkar úr gulli og silfri. Sent með póstkröfu út um land, ef óskað er. Jón Sigmundsson gnllsmiðnr. Sími 88S. — Laugaveg 8. Vagnhjól frá Moelven Brug, Moelven. Fyrirliggjandi Samband ísl. samvinnufél. WMGLEYS piparmyntu plötur Ef þjer hafið ekki reynt P. K., þá kaupið tvo pakka. Reynið sjáifur annan og gefið börnunum hinn, þeim þykir þær Ifka góðar. Bæta melting- una, tennurnar — og ef þarf — skapið. Jörðin M j ó a n e s í Þingvallahreppi er til sölu og laus til ábúðar í næstkomandi fardögum. Jörðin er vel hýst og ein af bestu veiðijörðum sunnan- lands. Væntanlegir kaupendur gefi sig fram við undirritaðan eiganda, eða Geir Sigurðsson, Vesturgötu 26 í Reykjavík. Mjóanesi 20. nóv. 1926. Ásmundi Kristjánsson. Aldrei brugðust bækurnar bóndanum upp til dala, þegar við enga aðra vai’ ómaksvert að tala segir Stephan G. (Andvökur IV). Nú er hlé á í blessaðri pólitíkinni, Jón á Ystafelli er kosinn — eða ekki kosinn, við því er þá ekkert að segja héðan af. Nú þurfið þið, „bændur upp til dala“ að fá ykk- ur Menn og mentir til að lesa; ykkur mun ekki bregðast það, að þar fáið þið góða málvini. Látið ritstjóra, sem sinna ekki stór- viðburðum í bókmentalífi þjóðar- innar, eins og útkomu IV. bindis Manna og menta, eiga sína póli- tík, þið lesið Menn og mentir í staðinn! Hjá næsta bóksala við ykkur getið þið fengið verkið. Esju. Mun mörgum þykja vænt um að fá hana fyrir jólin. Stórmerkilegt rit um íslenskar ættir, einkum á miðöldum, hefir Steinn Dofri sent heim, og verður vonandi prentað áður en langt um líður. Varpar hann á mörgum sviðum nýju og merkilegu ljósi yfir miðaldasögu Islands. Ritstjóri: Tryggvi Þórhallsson. Prentsm. Acta.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.