Tíminn - 12.02.1927, Side 1
©jalbfeti
99 afgreiösluma&ur Ctmans er
Hannoeig p o r s t e i n sbó ttir,
Sambanösfyúsinu, KeyíjaDÍf.
^fgteifcsla
Cimans er í Sambanösíjúsinu.
©ptn bagiega 9—J2 f. t)>
Simi flf96.
XI. ár
Reykjavík, 12. febrúar 1927.
7. blaS.
Utan úrheimi.
Eftir fjögur ár.
1 haust 28. okt. voru liðin 4
ár síðan Mussolini og- svartliðar
hans brutust til valda á Italíu.
Voru þá stórkostleg afmæhshá-
tíðahöld um alt landið á afmæli
stjórnarflokksins. Lét Mussolini
lesa upp bréf mikið í öllum helstu
borgum, þar sem talin voru upp
afreksverk byltingamannanna í
svörtu treyjunum. Annars höfðu
þeir einskonar hersýningu á
stríðskröftum sínum, og létu
mikið yfir sér.
Á fjölmarga vegu hefir Musso-
lini reynt að styrkja- vald sibt
með því að látast líkjast Napo-
leon fyrsta og herma eftir ein-
ræðislöggjöf Napoleons þriðja.
Tímatalinu hefir verið breytt,
eins og byltingarmenn Fraikka
gerðu seinast á 18. öld. Hinn nýi
tími byrjar með valdtöku svart-
liða, og nú telja ítalir, að þeir
séu á 5. ári hinnar fyrstu ald-
ar. Á myndum og málverkum
reynir Mussolini að laga svip-
brigðin og hárgreiðslu þannig, að
hann minni á „yfirræðismann"
Frakka fyrir' hundrað árum síð-
an.
Svo sem kunnugt er var Musso-
lini socialisti fram undir þann
tíma, er hann byrjaði að safna
svartliðaflokknum saman, 0g var
ritstjóri fyrir þann flokk. Fyrstu
missirin eftir að hann tók við
völdum gerði hann að nokkru
leyti tilraun til að safna dugandi
mönnum úr öllum flokkum til
valda í landinu. En þegar vitn-
eskjan um Matteottemorðið varð
þjóðinni kunnugt, breyttist öll
stjómarstefna hans. Þá sannað-
ist,að nánustu vinir harðstjórans
voru lægsta tegund glæpamanna,
og að stjómarflokkurinn. vílaði
ekki fyrir sér, að myrða and-
stæðingana í stjómmálum, ef
hentara þótti að öxin og jörðin
geymdi líkama þeirra. Réttar-
íannsóknin yfir morðingjunum
var skrípaleikur einn, og að lok-
um vom helstu forgöngumenn
morðsins náðaðir að tilhlutun
Mussolini. Þegar hér var komið
málum skildu vegir. Allir frjáls-
lyndir og heiðarlegir menn í
landinu neituðu allri samvinnu
um stjómmál við svartliðaflokk-
inn og ýmist drógu sig í hlé frá
opinberri þátttöku í félagslífi
landsins, eða fluttu til annara
landa. Jafnframt þessu þokaðist
Mussolini yst til hægri. Hann sá
að honum var engin öxmur leið'
opin en að kasta sér í fang
svæsnustu íhaldsmanna í landinu,
og að vera þeirra verkfæri. Síð-
an þá hefir verið i landinu meiri
harðstjóm og almenn kúgun
heldur en þekst hefir í Vestur-
löndum síðan á miðöldum.
J. J.
-----0----
Borgarfirði 10. jan. 1927.
„Heldur er mönnum farið að
þykja framkoma þingmánnsins
okkar skrítileg. Hann segist vera
og er bindindismaður, en vinnur
með þeim flokki þar eem allir
drykkjumenn og vínsalar eiga
heima. Hann segist vera með
spamaði í embættiskostnaði en er
í floldii þar sem allflestir starfs-
menn landsins eiga heima. Pétui
segist í sveitunum vera bænda-
sinni, en þó vinnur hann á þingi
móti Framsóknarflokknum, en
með togaraútgerðarmönnum, sem
hafa yfirboðið alla bændur' og
dregið til sín vel flest fólk á
besta aldri úr sveitunum. Eg hefi
frétt af tveim fundum Péturs
fyrir jólin. Á öðrum, uppi í firð-
inum reyndi hann að spilla fyrir
tillögu Steingríms á» Hvanneyri
um að landið styrkti ræktun og
fjölgun heimila, fylgismenn hans
sátu hjá en Framsóknarmenn
greiddu tillögunni atkvæði. Út á
Akranesi hafði Pétur tekið mál-
frelsið af kjósendum sínum, tal-
aði sjálfur langt mál, en leyfði
þeim ekki nema 5 mínútur. Mér
finst þetta benda á, að Pétur sé
farinn að finna að verk hans á
þinginu eru svoleiðis, að hann
hlýtur að vilja að kjósendur hans
séu ekki að spyrja um framkomu
hans, þégar hann er á þinginu“.
---0----
t
Oddur Hermannsson
skrifstofustjóri.
Öllum á óvart barst sú fregn
um bæinn síðastliðinn sunnudag,
að daginn áður hefði Oddur Her-
mannsson látist suður í Kaup-
mannahöfn. Að vísu hafði hann
haft veila iheilsu síðan hann stóð
upp úr „Spönsku veikinni", eft-
ir mjög þunga legu, og hafði nú
dvalist ytra um hríð til að leita
sér lækninga, en síðustu fregnir
af honum gengu allar í þá átt
að iheilsan væri óðum að batna
og að hans væri bráðlega von
heim. „Spánska veikin“ lagði
hann nú aftur í rúmið, veikin
snerist í lungnabólgu og þá var
hann líðið lík eftir sólarhring.
Oddur Hermannsson var fædd-
ur 23. júní 1884, sonur Her-
manns sýslumanns á Velli í
Rangárvallasýslu (d. 1894), Jóns-
sonar verslunarstjóra . á ísafirði
(d. 1827), Jónssonar yngra á
Reykhólum, Magnússonar bónda
í Snóksdal (d. 1752), Jónssonar
prests í Snóksdal, Hannessonar
lögréttumanns í Snóksdal, Egg-
ertssonar lögréttumanns í Snóks-
dal Hanessonar bónda í Snóks-
dal (d. 1615), Bjömssonar, Hann-
essonar hirðstjóra Eggertssonaf,
en Þórunn kona Bjöms, sem
druknaði með manni sínum
1554, var dóttir Daða Guðmunds-
sonar í Snóksdal og Guðrúnar
systur Mai-beins biskups. — Guð-
björg amma Odds heitins, móð-
ir Hermanns sýslumanns var
systir Jóns Hjaltalíns landlæknis',
dóttir Jóns prests Hjaltalíns (d.
1835) á Breiðabólstað á Skógar-
strönd, Oddssonar bónda á Rauð-
ará við Reykjavík (. 1797), Jóns-
sonar Hjaltalíns (d. 1755) sýslu-
manns í Reykjavík. En móðir
Odds var Ingunn Halldórsdóttir
bónda í Álfhólum í Landeyjum,
Þorvaldssonar bónda í Klofa,
Jónssonar, Jónssonar bónda í
Gunnarsholti ömólfssonar. —
Stúdentspi'ófi lauk Oddur 1904,
lagaprófi 1910, hvorttveggja
með fyrstu einkunn, gerðist
brátt síðar aðstoðarmaður í
stjórnarráðinu og starfaði þar
alla æfi síðan, sem skrifstofu-
stjóri atvinnumálaráðuneytisins
síðan 1918. Jafnframt voru hon-
um falin margvísleg þýðingar-
mikil störf: Hann var í viðskifta-
nefndinni 1920, formaður gengis-
nefndarinnai’ frá upphafi, settur
bankastjóri Islandsbanka um
hríð og á síðasta Búnaðarþingi
var hann kosinn í stjóm Búnað-
arfélags íslands með öllum at-
kvæðum. En heilsan entist hon-
um lítt til þess starfs.
Oddur Hennannsson vann
hvers manns traust, sem kynt-
ist honum, og því meir sem
kynning varð meiri. Hann var
réttlátur í úrskurðum sínum og
mjög einarður að fylgja þvi
fram, sem han'n taldi rétt. Hann
var fyrirmyndar embættismaður
að trúmensku, árvekni og vits-
munum. Telst ekki í því last um
aðra, þó að sagt sé, að enginn
hinna föstu starfsmanna í hinu
hvíta húsi á Amarhólstúni hafi
notið jafnmikils traust almenn-
ings og Oddur Hermannsson.
Mjög mikill missir er að slík-
um manni, svo ungum. Þeir era
svo sorglega fáir á okkar fá-
menna landi, sem allur þoirinn
ber traust til og tortryggir ekiki.
En fyrir stjórnarfarið í landinu
og hið opinbera líf er það næsta
áríðandi að þeir séu sem flestir.
Verða þeir ekki margir sem
ganga burt með jíifnfágaðan
skjöld og Oddur Heimannsson,
eftir svo margvísleg og torveld
opinber störf. Fyrir það má ís-
lenska þjóðin tjá honum miklar
þakkir.
Konu sína, Þóra Guðmunds-
dóttur, læknis í Stykkishólmi,
fósturdóttur Jóns Magnússonar
forsætisráðherra, misti Oddur í
„Spönsku veikinni". Þeim varð
ekki barna auðið.
----o-----
Fleiri heimili.
(4) Á síðasta kjörtímabili hafa
Framsóknaimenn utan þings og
innan stöðygt unnið að því, að
gerðar yrðu samhliða margar
ráðstafanir til að stöðva burt-
streymið úr sveitunum. En það
verður með því einu að gera þar
lífvænlegra og skemtilegra en
áður, en aðalskilyrðin eru að tún-
ræktin vaxi, og sjálfstæðum
heimilum fjölgi. Tr. Þ. hefir
tvisvar borið fram frv. sitt um
að landið tryggi bændum tilbúinn
áburð, án verslunargróða milli-
liða, eða flutningskostnaðar til
aðalhafna. I bseði skiftin ihefir í-
• haldið eyðilagt málið. Til að bæta
úr venjulegri lánsþörf bænda bar
sami maður fram frv. um Bún-
aðarlánadeildina. íhaldið eyddi að
mestu framkvæmd þess máls. Þá
skipaði sami maður nefnd þá er
undirbjó ræktunarsjóðslögin, og
og á þingi urðu mikil átök við J.
Þorl. sem var á móti landssjóðs-
framlaginu í sjóðina. Á síðasta
þingi reyndu Tr. Þ. og H. St.
og tryggja Ræktunarsjóði ódýrt
starfsfé í sambandi við seðlaút-
gáfu landsins. Ihaldið eyddi þeirri
tilraun. Jafnhliða þessu hafa
Framsóknarmenn í Ed. 1 tvö ár
barist fyrir byggingar- og land-
námssjóðum, vegna þeirra sem
reisa vildu ný heimili á ræktar-
landi. Að síðustu hefir tímarit-
ið Samvinnan nú í undanfarin tvö
ár flutt vekjandi og fræðandi
greinar um byggingar í sveitum,
er m. a. hafa stefnt að því, að
byggingar í sveitum yrðu hollar,
endingargóðar og í þjóðlegum
»tíl.
„KynbótakartOflur“.
------ Frh.
Allmargir hafa fengið „Ey-
vind“ til útsæðis frá Gróðrar-
stöðinni, svo nú hefur þetta af-
brigði verið reynt víða hér sunn-
anlands og má svo segja að það
hafi aðeins reynst á einn veg,
— prýðilega. Það skarar fram úr
flestum hérlendum afbrigðum
hvað bráðþroska og hreysti snert-
ir og ennfremur hefur uppsker-
an verið laus við smælki —. en
að jafnaði er það mesti ókostur
íslensku afbrigðanna hve margt
og smátt er undir grö§unum.
Virðist mér hnignun afbrigðanna
helst koma í ljós á þann hátt og
ennfremur við að þau verða sein-
þioska. Ilér verður kartöflujurt-
in aldrei fullþroska — það er hún
ekki fyr en hún ber þroskuð
aldin. Þó kartöflumar nái oft
fullri stærð, fá þær þó ekki þann
þroska sem þeim er eðlilegt Þess
vegna hlýtur kartöfluafbrigðun-
um að hnigna fyr, hér en í ná-
g-rannalöndunum, þar sem rækt-
unarskilyrðin eru betri. En þeim
hnignar vitanlega misjafnlega
fljótt, og fer það aðallega eftir
hreysti þeirra. Og þess vegna
ríður á fyrir okkur að hafa hraust
afbrigði, sem ekki láta undan fyr
en í síðustu lög.
Frá ýmsum merkum mönnum
hefi eg fengið fregnir um hvern-
ig „Eyvindur" hefir reynst hjá
þeim, og langar mig að tilfæra
nokkur ummæli þeima hér.
Helgi Ágústsson bóndi á Syðra
seli, Hrunam.hr., kemst svo að
orði: „Síðastl. haust fékk eg hjá
þér svonefndar „Eyvindarkar'-
töflur“ til útsæðis. 8. maí í vor
setti eg þær vel spíraðar í garð-
inn minn ásamt mínu gamla kar-
töflukyni. Um miðjan júlí eða
í'úmum tveim mánuðum seinna
fór eg að ,,gá undii“. Fann eg
þá talsvert af fullstórum útsáðs-
kartöflum. Fyrst í ágúst tók eg
upp gras af handa hófi. Undir
því voru 12 kartöflur talsins, er
vógu 760 gr. Þegar eg svo tók
upp úr garðinum um miðjan sept-
ember var uppskeran afbragðs-
góð, að mér þótti. Kartöflurnar
mjög jafnstórar, en smælld ekki
svo teljandi væri. Lausar voru
þær við kláða, þó óvenju vot-
viðrasamt væri og að öllu leyti
virtust þær heilbrigðar. Er eg vel
ánægður með að fá „Eyvind“ í
stað þeirra sem eg hefi haft.
Gæöamunurinn var sérstaklega í
því fólginn, hvað „Eyvindur“ var
fljótvaxnari og hvað miklu
sraæni og fleiri komu af mínu
gamla kyni“.
Guðmundur Lýðsson bóndi á
Fjalli á Skeiðum skrifar: „Ég
valdi góðan stað í garðinum fyrir
,,Eyvind“ sem eg fékk frá þér.
Tæp 4 pund sem sett vora niður
gáfu 43 pund upp úr garðinum.
Alveg voru þær heilbrigðar, en þó
var töluvert af öðrum kartöflum
hér meira og’ minna sjúkt, með
brúnum dröfnum, sem éta sig inn
í þær og' jafnvel eyðileggja alla
kartöfluna. Mikið væri gott að
eiga þig að með ýtsæði af „Ey-
vindi“ í vor“.
Sæmundur Einarsson bóndi í
Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum
skrifar: „Eyvindarkartöflurnar"
spruttu mjög vel. 150 pund komu
upp undan 12 pundum sem niður
voru sett. En skemdir voru í öðr-
um kartöf'lum á nokkram bæj-
um“.
Sjó- og bruna-
vátryggíngar.
Símar:
Sjótrygging .... 542
Brunatrygging . . 254
Framkvæmdarstjóri . 309
Vátryggið
hjá
íslensku
félagi.
Guðjón Jónsson í Lundi í Vík
í Mýrdal skrifai’: „Minn „Ey-
vindur“ var svo stór, að hér hafa
ekki sést nokkurntíma svoleiðis
kartöflur og frekar margar. Ekki
nærri eins fallegar hjá E. E. eða
J. Þ. en eru samt mjög fallegar
hjá þeim. Kartöflumar vekja
undran hér. Eg hugsa ekki um
annað útsæði en af „Eyvindi“.
Þegar heimakartöflumar vora al-
veg fallnar, þá vora grösin á
„Eyvindi“ græn eins og skógur“.
Frá mjög mörgum öðram stöð-
um hefi eg frétt af „Eyvindi"
og allstaðar hafa þær þótt skara
fram úr öðrum og þess vegna
þori eg nú óhikað að mæla með
þeim til ræktunar hvar sem er
hér á landi. Þó er mér skylt að
geta þess, að langmest reynsla
er fengin sunnanlands. En mér er
einnig kunnugt um að þær hafa
reynst vel bæði fyrir austan og
vestan, svo eg býst við að þær
muni einnig reynast vel þar. Og
eftirtektarvert er það, að lang-
mestar pantanir á útsæði af þessu
kartöfluafbrigði hafa komið úr
þeim sveitum þar sem það hefir
verið reynt. Til dæmis, fyrir 3
árnm síðan fékk Halldór heitinn
Jónsson í Vík í Mýrdal hjá mér
eina skeppu af „Eyvindi“. Hafa
þær gefist prýðilega þar, þó aðr-
ar kartöfiur hafi eyðilagst af
stormum og sýki. Svo að í Vík
hafa menn „séð með eigin aug-
um“ hve vel þetta afbrigði hefur
gefist núna í 3 ár. Þaðan hafa
komið langmestar pantanir. nú í
vetur — verið beðið um rúml. 80
tunnur af útsæði (frá Vík og
Dyrhólahr.). Nl.
Ragnar Ásgeirsson.
--o---
Ihaldinu hefir nú verið hrand-
ið frá fundarstjórn í sameinuðu
þingi og neðri deild. Reynslan
sýnir að þess var full þörf. Á
fundi í efri deild á miðvikudag-
inn úrskurðaði Halldór Steinssen
forseti, að Ihaldsmaðurinn Jónas
Kristjánsson mætti eiga sæti í
þrem nefndum, þó það sé bein-
línis bannað, að nokkur deildar-
maður megi vera í fleiri nefndum
en tveim. Á fundi þessum braut
sá sami forseti þingsköpin alls
þrisvar sinnum og gerði sig að
auki beran að rangsleitni. For-
sætisráðh. varði þessar aðfarir.