Tíminn - 12.02.1927, Síða 4
«8
TIMINK
Landbúnaðarverkfæri
Herkúles heyvinnuvélar
(eláttu-rakstrar- — snúnings- og brýnslu-vólar).
Diskaherfi með framhjólum.
Spaðaherfi (bíldherfi).
FJaðraherfi.
Handverkfæri
alskonar; sænsk af bestu gerð, a. s. skófl-
ur, gaflar, ræsaapaðar, gref og arfasköfur.
og vélar.
Steingálgar.
Forardælur og forarkranar.
Vagnhjól og vagnar (kerrur)
með norsku lagi.
Vélar til heimilisiðnaðar,
svo sem saumavélar, prjónavélar, vefstólar.
Alfa-Laval og Sylvia skilvindur og strokkar.
Hefilbekkir.
Aktýgi og dráttartaugar.
Plógar og herfi fyrir dráttarvélar
o. fl. o. fl.
Samband ísl.
s a m vinnufélaga.
IF’a.ta.d.'ú.lca.r
eru nú viðurkendir að vera fullkomnastir og bestir frá klæða-
verksmiðjunni „Álafoss".
Hvergi fá rnenn meira fyrir sína ull — eða betur unna í Lyppu
— band og dúka — sendið því alla ull yðar til „Álafossu. Þar fáið
þér fljótast, ódýrast og best unna ull yðar.
Þér eflið með því íslenskan iðnað! Verslið við
Klæðaverksmiðjan „Alafoss“.
Sími 404. Afgreiðsla Hafnarstræti 17. Reykjavík.
Alþingi.
Þingsetning. Stundu eftir há-
degi 9. þ. m. gengu þingmenn
til kirkju og hilýddu á ræðu
Bjama Jónssonar dómkirkju-
prests. Síðan var þing sett, en
þá voru fimm þingmerm ókomn-
ir til bæjarins. Þeirra þurfti þó
ekki lengi að bíða því að rúmri
hálfu stundu eftir nón kom
Gullfoss rneð þá að austan. Var
því þingsetningarfundi haldið
áfram kl. 5 e. h.. Eftir að kosn-
íng allra hinna nýkjörnu hafði
verið dæmd gild var gengið til
forsetakosninga. Forseti sam-
einaðs þings var kosinn Magnús
Torfason með hlutkesti milli
hans og Jóhannesar Jóhannesson-
ar. Fengu báðir 21 atkvæði er
kosið hafði verið þrisvar. Vara-
forseti sameinaðs þings var kos-
inn Tryggvi Þórhallsson með 21
atkv., Þórarinn Jónsson fékk 20
atkv. og einn seðill var auður.
Skrifarar í sameinuðu þingi em
éins og áður Ingólfur Bjarnason
og Jón A. Jónsson. Til efri deild-
ar var kosinn Einar Jónsson með
22 atkv., Pétur Þórðarson fékk
19 atkv. — Forseti í neðri deild
var endurkosixm Benedikt Sveins-
son með 15 atkv., Þórarinn Jóns-
son fékk 13 atkv. Varaforsetar:
Þorleifur Jónsson og Sigurjón
Jónsson. í efri deild: forseti
Halldór Steinsson með 8 atkv.,
Guðmundur ólafsson fékk 6 at-
kv. og varaforsetar Jónas Rrist-
jánsson og Ingibjörg H. Bjama-
son. Skrifarar í Nd.: Magnús
Jónsson og Tryggvi Þórhallsson,
í Ed.: Einar Amason og Jóhann
Jósefsson.
Fastanefndir þingsins eru svo
skipaðar:
EFRI DEILD.
Fjárhagsnefnd: Bjöm Krist-
jánsson,, Jóh. Jósefsson, Jón
Baldvinsson, Jónas Jónsson og
Jónas Kxistjánsson.
Fjárveitinganefnd: Einar Áma-
son, Einar Jónsson, Guðm. ólafs-
son, Ingibj. H. Bjamason og
Jóh. Jóhannesson.
Samgöngumálanefnd: Bjöm
Kristjánsson, Einar Árnason,
Einar Jónsson, Jónas Kristjáns-
son og Magnús Kristjánsson.
Landbúnaðamefnd: Einar Jóns-
son, Ingvar Pálmason og Jónas
Kristjánsson. ’
Sjávarútv.nefnd: Bjöm Krist-
jánsson, Jóh. Jósefsson og Jón
Baldvinsson.
Mentamálanefnd: Ingibj. H.
Bjamason, Jóh. Jóhannesson og
Jónas Jónsson.
Allsherjarnefnd: Guðm. ólafs-
son, Jóh. Jóhannesson og Jóh.
Jósefsson.
NEÐRI DEILD.
Fjárhagsnefnd: Bjöm Líndal,
Halldór Stefánsson, Klemens
Jónsson, Jakob Mölíer og Jón A.
Jónsson,.
Fjárveitinganefnd: Ingólfur
Bjamson, Jón Sigurðsson, Magn-
ús Torfason, Pétur Ottesen, Tr.
Þórhallsson, Þorleifur Jónsson og
Þórarinn Jónsson.
Samgöngumálanef nd: Hákon
Kristófersson, Jón ólafsson,
Klemens Jónsson, Pétur Þórðar-
son og Sveinn Ólafsson.
Landbúnaðamefnd: Ámi Jóns-
son, Halldór Stefánsson, Hákon
Kristófersson, Jörundur Bryn-
jólfsson og Pétur Þórðarson.
Sjávarútvegsnefnd: Bemhard
Stefánsson, Héðinn Valdemars-
son, Ólafur Thórs, Sigurjón Jóns-
son og Sveinn ólafsson.
Mentamálanefnd: Ásgeir Ás-
geirsson, Jón Guðnason. Jón
Kjartansson. Bemharð Stefáns-
son og Magnús Jónsson.
Allsherjamefnd: Ámi Jónsson,
Héðinn Valdemarsson, Jón Guðna
son, Jón Kjartansson og Jörund-
ur Brynjólfsson.
Allmiklar breytingar hafa orð-
ið um skipun þingsins. Sitja það
nú 4 menn, er eigi hafa þar áð-
ur verið, Jón Guðnason þm.
Dalamanna, Héðinn Valdemars-
son 4. þm. Reykvíkinga, Jón
ólafsson 3. þm. Reykvíkýiga og
Jónas Kristjánsson 6. landkjör-
inn þm. Magnús Kristjánsson
4. landkjörinn þm. og Einar Jóns-
son 2. þm. Rangæinga áttu auk
þess eigi sæti á þingi í fyrra.
Um flokkaskipun er það að
segja, að Sjálfstæðisfl. hefir mist
2 þingsæti, Framsóknarflokkur-
inn unnið 1 og Jafnaðarmenn 1.
Ihaldsflokkurinn stendur í stað.
Framsóknarmenn em 16, Jafnað-
armenn 2, Sjálfstæðismenn 2,
íhaldsmenn 21, utan flokka 1. —
við kosninu í þmginu hafa
stjómarandstæðingar allir sam-
einast gegn íhaldsflokknum. Hafa
þeir þá helming atkv. í samein-
uðu þingi og meiri hluta í neðri
deild. I efri deild em stjórnar-
liðar fjölmennari.
----o----
Bækur og listir.
Samvinnan — 20. ár, 2. hefti
breytt að efni. Fremst er mynd
af Benedikt á Auðnum, öldungn-
um þjóðkunna, sem manna fróð-
astur er um félagsmál og hefir
þó hafist af sjálfum sér. Fylgja
myndinni nokkur orð um starf-
semi hans. Þá er grein eftir rit-
stjórann, er nefnist: Heima og
erlendis. Flytur ihún margskon-
ar fróðleik um útbreiðslu og á-
rangur samvinnunnar víða um
lönd — jafnvel austur í Asíu.
Er greinin fjörlega rituð og
mun þeim kærkomin, er fylgjast
vilja með samvinnunni sem al-
heimsstefnu. Eftirtektarverð er
árásin á kaupfélögin dönsku,
sem svipar mjög til Verslunar-
ólags B. Kr., og drepið er á
þama. Hallgrímur Hallgrímsson
magister skrifar um þingstjóm,
sem undanfarið hefir birat
smámsaman. Gefst hér tækifæri
til að kynnast sögu þingræðis-
ins, og er slíkt ómaksvert nú á
tímum, þar sem því stjómarfyr-
irkomulagi er ámælt og oft af
litlum skilningi. Þótt eigi væri
annað í heftinu en þessi grein,
ætti það að vera í hvers manns
eigu. Næst er fyrirlestur um
samvinnu Norðurlanda, er rit-
stjóri Samv. flutti í Bergen árið
1924 og vakti þá athygli í Nor-
egi og Danmörku. Telur hann, að
um þrennskonar samvinnu geti
verið að ræða milli norrænna
þjóða, stjómarfarslega, fjiár-
hagslega og andlega, og eigi
andleg samvinna ein rétt á sér.
Leikur að vísu vafi á um! niður-
stöðu þessa, en rök nokkur fær-
ir höf. að máli sínu. Exm er
grein um kaupfélögin, hvað þeim
beri að varast, andstöðu gegn
þeim, iðnaðarfyrirtæki samvinnu-
manna erlendis o. s. frv. Þá eir
framhald greinar um íslenska
húsagerð með myndum af ýms-
um best hýstu sveitaheimilum á
landinu, Grænavatni við Mývatn,
Böggversstöðum í Svarfaðardal,
Vallanesi, Kaupangi. Síðast er
„Aðstaða til skuldanna“, ágæt
grein og orð í tíma töluð. Er
þar bent á þá einu og jafnframt
örfðugu leið, sem sjálfstæðum
mönnum er samboðin iút úr ó-
göngum kreppuáranna. Þrjár
síðustu greinarnar eru eftir rit-
stjórann. Vegna fróðleiks þess,
sem felst í ritinu, á það erindi
til allra, einnig þeixra, sem ekki
taka ákveðna afstöðu 1 þjóð-
málum. G. G.
Ritstjóri Tryggvi Þórhall—on.
Prentam. Acta.