Tíminn - 05.05.1928, Síða 2
TlMINN
Laugavatni. — Mbl. er í öngum
sínum út af þessum úrslitum —
og í ákafa sínum að vega aó
stjórninni rangfærir það um-
mæli Ásgeirs fræðslumálastjóra.
En það vita kunnugir menn, að
Mbl.-mennimir í Reykjavík láta
sér ekki ant um alþýðufræðslu
Sunnlendinga, en afskifti þeirra
af skólamálinu eru til þess eins
ætluð að vekja óvild og sundrung
milli bænda eystra. Er það aðeins
einn þátturinn í dulbúinni við-
leitni þeirra til að hnekkja bænda-
valdinu í landinu.
Mbl. og SheU.
Mbl. heldur áfram Pílatusar-
þvotti sínum á Shell-félaginu. Þó
standa enn óhraktar allar þær
niðurstöður, sem haldið hefir ver-
ið fram hér í blaðinu. Hin langa
grein í Mbl. á þriðjud. var er að
mestu leyti staðlaus rógur um
Magnús Kristjánsson fjármála-
ráðherra. Flugumenska Magnúsar
Guðmundssonar og félaga hans
gagnvart íslenskri löggjöf er jafn-
ljós og áður. Tíminn sér ekki
ástæðu til að fjölyrða um Shell-
félagið, að svo komnu máli, en
telur það best falið forsjá rétt-
vísinnar fyrst um sinn. En á með-
an forráðamenn þess eiga eins
erfiða aðstöðu og nú, væri við-
kunnanlegast, að þeir létu Morg-
unblaðið þegja.
Rökvísi Mbl.
Morgunblaðið staðhæfir, að
Jafnaðarmenn hafi ráðið mestu
um gerðir Framsóknarflokksins á
þingi. Máli sínu til sönnunar!
nefnir blaðið þrjár tillögur (frv.
um saltfiskseinkasölu, tóbaks-
einkasölu og þáltill. um einkasölu
á steinolíu), er Jafnaðarmenn ein-
ir báru fram. En engin þessara
tillagna náði fram að ganga. Þá
þykir Mbl. það ótvírætt sanna
áhrifaleysi stjórnarinnar, að sam-
þykt var frv. hennar um tilbúinn
áburð. Fróðlegt væri að vita,
hvort „misheym“ Valtýs getur
valdið þessari einkennilegu rök-
færslu.
Valtýr óvirðir bændur.
Eftir kosningamar í fyrrasum-
ar hefir Mbl. sífelt brígslað bænd-
um um það, að þeir hafi ekk-
ert vit á opinberum málum, að
þeir láti „teyma“ sig o. s. frv.
Morgunblaðið
og
fjármálin.
II.
1 nýlega útkomnu eintaki af
Mbl., er reynt að færa sönnur á
þær munnlegu rógsögur, sem
samherjar blaðsins hafa dreift
út um land um „15 manna fjölg-
un í stjórnarráðinu" o. s. frv.
Skal sú hliðin líka krufin til
mergjar.
15. Lög og toUgæslumenn. Mbl.
segir stjómina hafa ráðið 8
menn. Einn er í Vestmannaeyjr
um, annar á Austurlandi, þriðji
á Norðurlandi, og nú um stund
hefir maður á Isafirði unnið að
löggæslu þar, þegar skip koma.
Þannig er þá fréttaburður Mbl.
Launin hjá þessum mönnum tel-
ur blaðið 300 á mánuði, en þau
eru lægri á mánuði, svo að nem-
ur mörgum tugum. Úr þrem og
hálfum manni í lausastarfi gerir
Mbl. fastar átta stöður.
Og hvað hefir svo áunnist með
þessum fámenna eftirlitshóp?
Það hefir tekist að þurka að
heita má hinar fljótandi vínbúðir,
mannflutningaskipin, íslensk og
útlend, hér við land. Það hefir
tekist að gerbreyta því skamm-
arlega ástandi, sem íhaldið hélt
við og vildi hafa, að dauðadrukn-
ir farþegar gætu verið slangrandi
í tugatali á hverju skipi með
ströndum fram, eytt fé sínu í
brjálæði og verið landi og þjóð
til stórkostlegrar minkunar. Hve
marga tugi þúsunda þurkun ,
skipanna er búin að spara lands-
Bændur þá, sem sæti eiga á Al-
þingi, kallar það „þingpeð", og
fjölyrðir mjög um, hve ósjálf-
stæðir þeir séu og fylgi slælega
fram málum sínum. En íslenska
bændastéttin, sem geymt hefir
tungu og menningu feðra sinna í
þúsund ár, þarf ekki að roðna
frammi fyrir Valtý Stefánssyni,
þó hann saki hana um ósjálfstæði.
— Sjálfur á hann eitt áhugamál,
sem ætla mætti, að honum væn
hugstætt. Þegar núverandi stjórn
hratt því máli í framkvæmd, lét
I hann kúga sig til að ávíta hana
j fyrir það. Nú lítilsvirðir Valtýr
! bændur — hann, sem er minsta
j „peðið“ á taflborði íslenskra
I stjómmála.
: Ihaldið og vínverslunin.
Mbl. þykist hafa heyrt, að
væntanlegur forstöðumaður vín-
! verslunarinnar eigi að fá 7500 kr.
laun. Merkilegt mætti heita, ef
íhaldsmönnum yxi sú upphæð í
! augum, þó að rétt væri. Hafa
þeir gleymt því, að þeir réðu
sjálfir mann við verslunina með
18. þús. kr. launum?
----o---
Frá útlöndum.
Ný kosningalög eru nú til umræöu
í enska þinginu. Eftir þeim eiga kon-
ur sem karlar að hafa kosningarétt
eftir 21 árs aldur. Nokkur hluti
íhaldsmanna vill miða við 25 ár.
Aldurstakmarkið er annars nokkuð
mismunandi í þingræðislöndum. í
þýskalandi er það t. d. 20 ár, í Noregi,
Svíþjóð og Hollandi 23 ár, í Dan-
mörku 25 ár eins og við kjördæma-
kosningar hér. í Tyrklandi er það,
eftir hinni nýju stjómarskrá, aðeins
18 ár.
- — Ummæli hins mikla ameríska-
iðjuhölds, Henry Fords, um framtið
iðnaðarins í heiminum, hafa vakið
athygli í Englandi. Telur Ford mjög
óliklegt, að Bandaríkin geti kept við
England um markað fyrir iðnaðar-
vörur í Evrópu. Spáir hann góðu um
framtíð ensks iðnaðar, og segir að
England hafi eftir sem áður besta að-
stöðu allra Norðurálfulanda til að
standast samkepni um ódýra fram-
leiðslu. — En iðnrekendur enskir
hafa átt við allmikla örðugleika að
stríða undanfarið og rekstur kola-
námanna gengið treglega. Ford held-
ur því fram, að Englendingar noti úr-
eltar vinnuaðferðir, og eigi þeir nú
að gera tvent í einu: Auka vélanotk-
un og hækka kaup verkamannanna.
Er áður kunn kenning hans um
„hagnaðinn af því, að borga hátt
kaup“. Ýmsir stéttarbræður hans í
Englandi eru nokkuð vantrúaðir á
heilræði hans. „En“, segir eitt frjáls-
lynda blaðið enska nýlega, „annað-
hvort eignumst við á næstu árum
fleiri menn en nú, sem hugsa eins
og Ford, eða þjóðin missir trúna á
mátt einstaklinganna til að full-
nægja kröfum tímans".
— Frönsku kosningunum á sunnu-
daginn var lauk svo, að fylgismenn
Poincaré fengu 375 þingsæti af 612.
Flokkar eru margir í Frakklandi, og
er Poincaré studdur af hinum ihalds-
samari flokkum og miðflokkum.
Heyrst hefir, að stjórnin hafi í hyggju
að festa frankann svo fljótt sem hægt
er í núverandi gengi.
— Friðartillögur þær sem Kellog,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hef-
ir sent stórveldunum, vekja mikla at-
hygli og umræður í blöðum. Er svo
að sjá að Englendingar taki þeim vel,
en Frakkar iila. Hafa áður staðið yfir
sérstakir samningar milli Frakka og
Bandaríkjanna, en virðast nú hafa
farið út um þúfur. Telja.sum frönsku
! blöðin tillögurnar herbragð eitt frá
hendi Republikanaflokksins til að
nota gegn Demokrötum, hinum gömlu
samherjum Wilsons, við forsetakosn-
ingarnar. Svo er sagt að framkoma
Bandarikjastjórninnar hafi vakið
mikla hrifningu heima 'fyrir og þakk-
arávörpum rigni yfir hana fyrir að
hafa rétt stórveldunum hinum'egin
hafsins bróðurhönd.
— Eftirfarandi atburður, sem átti
sér stað um miðjan síðasta mánuð,
gefur dálitla hugmynd um samkomu-
lagið milli Rússa og sumra Vestur-
evrópuþjóðanna: Rússar höfðu sent
rúml. 20 milj. kr. virði í gulli til
Ameríku og er það í rauninni ekkert
nýstárlegt, þvi að ráðstjórnin þarf
öðru hverju að greiða háar fjárupp-
liæðir vestur um haf, til að jafna
verslunarviðskifti sin og Bandaríkj-
anna. En svo merkilega fór, að Ame-
ríkumennirnir neituðu að veita gull-
inu viðtöku. Kendu Rússar það
frönskum undirróðri, því að Frakkar
halda því fram, að þeir hafi átt mik-
ið gull — og þar á meðal það, sem
hér er um að ræða — inni í rúss-
ne^ka ríkisbankanum, þegar bylting-
in hófst, og hafi ráðstjómin ranglega
lagt liald á það. Átti ráðstjómin nú
ekki annars kost en láta flytja þenn-
an dýra varning heim aftur og átti
hann fyrst að fara með þýsku skipi
til Bremen. En skip þetta þurfti að
koma við í franskri höfn á leiðinni,
og óttuðust Rússar, að Frakkar
mundu grípa tækifærið og fullnægja
sjálfir kröfum sínum. Tók þá ráð-
stjórnin það til bragðs að senda
skip í veg fyrir þýska skipið. Beið
það í Ermarsundi milli Englands og
Frakklands og var gullinu umskip-
að að næturlagi fyrir utan landhelgi
Frakklands, í miklum flýti. pykja
Rússar hafa sýnt mikið snarræði i
athöfnum, en Frakkar neita því, að
þeim hafi komið til hugar að róta
við gullinu.
— Einn af elstu meðlimum enska
pailamentisins, Mr. Sidney Webb,
sem nú er að láta af þingmensku,
hefir birt nokkrar athuganir um
parlamentið fyr og síðar. Kemst hann
að raun um, að ásakanir ýmsra
manna í garð þingsins nú á seinni
tímum séu á litlum rökum bygðar.
Er eftirtektarvert, að þær ásakanir,
sem Mr. Webb talar um, eru einmitt
hinar sömu og oft heyrast hér á
landi og þá löngum af munni þeirra
manna, sem ekki eiga kost á að
kynna sér störf þingsins. Mr. Webb
segir, að þingmönnum sé borið á
brýn, að þeir standi fyrirrennurum
sínum að baki að hæfileikum og
háttprýði í framkomu. En hann held-
ur því fram, þvert á móti, að fram-
koma þingipanna sé miklu prúð-
mannlegri nú en fyr á tímum og
nefnir dæmi máli sínu til sönnunar.
Segir hann að Englendingar mundu
nú hlygðast sín fyrir þá þingmenn,
sem hefðu sömu háttsemi og stétt-
arbræður þeirra um 1860. — pá kem-
ur það og í ljós hjá Mr. Webb, að
ræðulengd þingmanna, er mönnum
áhyggjuefni í Englandi ekki síður en
hér.
— Egiptalandsmenn hafa í svip-
inn látið undan kröfum Breta í
þeim deilum, sem undanfarið hafa
staðið yfir milli þjóðanna. Voru
kröfumar um það, að egipska þing-
ið feldi lagafrv. nokkurt, sem þar var
til umræðíT Voru ensk herskip kom-
in á leið austur til áð sýna löggjöf-
unum egipsku, að Bretum væri al-
vara. Ákvað egipska stjórnin þá að
fresta umræðum um frv. fyrst um
sinn og voru herskipin jafnskjótt
kölluð heim aftur. En í ræðu í enska
parlamentinu hefir Chamberlain lýst
yfir því, að enska stjórnin muni
þegar í stað skerast í leikinn á ný,
ef frv. verði aftur tekið til umræðu.
— í Ítalíu hefir verið félagsskapur
Gyðingavina (Amici Israel), sem hef-
ir haft það markmið að snúa Gyð-
ingum tii kristinnar trúar. Nýlega
sneri félag þetta við blaðinu og hóf
árásir á Gyðinga. En af því að í því
er fjöldi katólskra presta og kardin-
ála, hefir páfinn látið þessi stefnu-
hvörf til sín taka og fyrirboðið út-
gáfu flugrita, sem stiluð eru móti
Gyðingum. Segir í tilkynningunni,
að það sé gagnstætt vilja hans og
hinnar heilögu kirkju, að reynt sé
að „vekja hatur til þess kynþáttar,
sem einu sinni var hin útvalda þjóð
guðs“.
----o....
Alþingi
pingsályktanir:
10. pál. um glldi íslenskra peninga.
(Sþ.).
11. pál. um undirbúning ríkisfor-
lags. (Sþ.).
12. pál. um ríkisprentsmiðjn. (Nd.).
13. pál. út af ránum erlendra fiski-
manna í varplöndum og selverum
við strendur landsins. (Nd.).
14. pál. um varnir gegn ránskap
og yfirgangi erlendra flsklmanna bér
við land. (Nd.).
15. pál. um skipun milliþinganefnd-
ar til að rannsaka tolla- og skatta-
löggjöí landsins. (Sþ.).
16. pál. um ellitryggingar. (Nd.).
17. pál. um veðurspár. (Nd.).
18. pál. um endurskoðun laga um
vátrygging sveitabæja. (Nd.).
19. pál. um raforkuveitu til al-
menningsnota. (Nd.).
20. pál. um endurskoðun berkla-
varnalaganna. (Nd.).
21. pál. um útvarp. (Nd.). pessi till.
kom fram undir þinglok og var flutt
af Gunnari Sigurðssyni og Magnúsi
Jónssyni og var áskorun til stjómar-
innar um að sjá svo um, að útvarps-
starfsemi tækist upp aftur sem fyrst.
En útvarpsstöðin hér hefir nýlega
hætt störfum.
22. pál. um vísindarannsóknir i
þágu atvinnuveganna. (Nd.).
23. pál. um vamir gegn gin- og
klaufaveiki. (Nd.). Flm. þessarar till.
voru Jörundur Brynjólfsson og Pétur
Ottesen. Báru þeir hana fram, er frv.
um varnir gegn gin og klaufaveiki
og öðrum alidýrasjúkdómum hafði
náð samþykki með því að ýms-
um þótti þar full skamt farið í
varúðarráðstöfunum. Tillagan er
svohljóðandi: „Neðri deild Alþingis
ályktar að skora á atvinnumálaráð-
herra að láta haldast áfram bann
það gegn innflutningi á mjólkuraf-
urðum og eggjum, er felst í auglýs-
ingum atvinnumálaráðuneytisins 21.
nóv. og 2. des. f. á. og 9. febr. þ. á.,
svo og aðbanna innflutning á káli
og öðru hraðvöxnu grænmeti".
Bréf úr Borgarfirðl.
Efnahagur manna er sæmilegur
hér, þó að margir dragist með erfiða
skuldabagga frá lággengisárunum.
Krónuhækkunin og óhæfilega háir
vextir gera mestu drápsklyfjar úr
skuldum, sem ekkert virtust erfiðar
viðfangs, þegar til þeirra var stofn-
að. Vantar haganlega lánsstofnun,
þar sem bændur geta haft lán sin
án þess að vera sífelt að borga töp
versiunar- og útgerðarlána eins og
mönnum, er hægt að giska á, og
mættu margir samherjar Mbl.
borga landinu drjúgum meira í
skatta, fyrir að pjóðfélagið ver
fjárhag þeirra fyrir sjálfum
þeim.
Þingið var þakklátt núverandi
: stjóm fyrir þessar aðgerðir og
| meiri hlutinn af fylgismönnum
' Mbl. verður að teljast þar til. I
áfengislöggjöf, sem stjómin lét
undirbúa í samstarfi við helstu
menn templara í Reykjavík, og
ekki síst stórtemplar Sigurð
Jónsson skólastjóra, og sem þing-
ið samþykti nálega óbreytt með
! hérumbil öllum atkv. (Hákon og
1 Einar Jónsson beittu sér aðallega
gegn málinu) K er svo um mælt,
að stjómin má skipa löggæslu-
menn þar sem hún telur þurfa. I
stað þess að áfella stjómina fyr-
ir að halda smyglurum og toll-
svikurum niðri, er stjóminni gef-
ið, af öllu Alþingi, og þar á með-
al af nálega öllum Ihaldsmönnum
og einkum af leiðtogum flokks-
ins, ótakmarkað umboð til að
taka menn í þjónustu landsins til
að halda toll- og vínsvikurum í
skefjum. Þessi heimild mun
verða notuð varlega, þótt formið
sé rúmt. M. a. treystir stjómin
á sjálfboðavinnu templara til að
koma að miklu haldi gegn smygl-
un, án vemlegra útgjalda. Á
hinn bóginn verður ekki hjá kom-
ist að auka löggæsluna eitthvað
að sumrinu til, þar sem skipkom-
ur em mestar t. d. á Siglufirði o.
víðar. En þá vinnu verður að meta
eftir niðurstöðu. Takist að halda
launsölu, smyglun og opinberum
drykkjuskap í skefjum mun meira
en áður var og auka tekjur lands-
ins með því að tollar greiðist lög-
um samkvæmt, þá mun svo verða
um dæmt að hið mikla traust sem
Alþingi sýndi núverandi stjóm
hafi verið vel verðskuldað.
16. Tveir einkaritarar í stjóm-
arráðinu með 3000 kr. hvor segir
Mbl. Þetta er tilhæfulaust með
öllu. Ihaldsstjómin hafði bætt við
þrem starfsmönnum í stjómar-
ráðinu þegar hún fór. Skrifstofu-
stjóri í fjármáladeild hefur legið
hættulega veikur síðan um nýjár,
en M. Kr. hefir bætt á sig störf-
um hans, og ekki bætt manni við
í deildina. Aðstoðarkona, vensluð
Jóni Þorl., fór um líkt leyti og
hann og tók forsætisráðherra í
liennar stað mann 2—3 tíma á
dag. Ihaldið hafði árið sem leið
borgað manni 10 þús. kr. úr
landhelgissjóði fyrir að vera
gjaldkeri varðskipanna. Núver-
andi stjóm tók mann í stjómar-
ráðið fyrir 3000 kr. sem gerir
þetta verk, og hefir auk þess, án
sérborgunar, staðið fyrir útboðum
til varðskipanna og landspítalanna
þriggja. Mbl. gerði gys að þessum
spamaði í fyrstu, en rétt er að
segja það íhaldsmönnum í bæn-
um til lofs að þeir þoldu Jóni
og Valtý þó ekki þá glópsku til
lengdar og er»nú alment viður-
kent, að útboð þessi spari landinu
stórfé. T. d. lækkaði útboð á fiski
til spítalanna verðið á nýjum
fiski til sjúkrahúsanna um nálega
helming. Síðan lækkaði alt fisk-
verð í bænum fyrir þessa fram-
kvæmd og hefir það haldist síðan.
Þess vegna fer svo fjarri að rétt
sé um þessa 16 nýju starfs-
menn í stjómarráðinu, að sagan
er öll tilbúningur. Sá eini maður
sem er nýr í stjómarráðinu hefir
ekki þriðjung launa á við það sem
íhaldið borgaði fyrir sömu vinnu
út í bæ, og auk þess sparar sami
maður landinu tugi þúsunda ár-
lega með annari starfsemi í þágu
landsins.
I raun og veru sýnir þetta
dæmi alt málið. Svona er mismun-
urinn á framkvæmdum Fram-
sóknarmanna og íhaldsmanna. Og
svona er málstaður Mbl. yfirleitt.
Hver umbót er í augum Valtýs og
Jóns höfuðsynd. Og til að styðja
þá kenningu, umsnúa þeir í
fréttaburði sínum öllum stað-
reyndum.
17. Spamaðamefnd. Aðalskýrsla
hennar um meginþátt embætta-
eyðslunnar í landinu er nú aðeins
óútkomin. Fá landsmenn þá í
fyrsta sinn sundurliðað yfirlit um
embættakostnaðinn. Mbl. sýnist
vera illa við þetta. Það gerir
nefndarmönnum 6000 kr. kaup
yfir árið, 18 þús. Nú hafa nefnd-
armenn aðeins unnið hálft ár, og
öllum vitanlegt að nefndin starfar
ekki í sumar. Allmikinn hluta
undangengins starfstíma hafa að-
eins verið tveir í nefndinni. I ofan-
álag hefir annar af þeim tveim
mönnum, sem er starfsmaður
landsins ekki tekið nema nokkum
hluta af dagkaupi mest af starfs-
tímanum, og er það í fyrsta sinni
sem embættismaður landsins vinn-
ur í milliþinganefnd og tekið er
tillit til þess um kaupgreiðslu, að
hann hafi starfslaun frá landssj.
Mun mega finna vitnisburð um
gagnstætt framferði, tvöföld og
þreföld laun og aukalaun hjá
mörgum Iháldsmönnum. Sparnað-
amefndin mun ekki verða Fram-
sóknarflokknum til minkunar.
Starf hennar gerir landsmönnum
unt að sjá yfir allan sinn sam-
eiginlega fjárhag og þá um leið
ráð til samfærslu og sparnaðar.
18. Mbl. gerir Bimi presti á
Lvergasteini 4800 kr. um árið
fyrir að undirbúa hagskýrslur um
áfengisútlát. Birni hefir nú tekist
að framkvæma það þrekvirki, sem
þeim einum er hafði karlmensku-
lund hans og þrek var unt að
gera. Nú veit almenningur um
hvernig lækna- og lyfjabúðar-
brennivínið er notað. Það hefir
sannast um sakleysi og myndar-
skap allra hinna helstu lækna, og
um sekt og vesalmensku nokk-
urra. Þeir standa nú dæmdir fyrir
dómstóli almenningsálitsins. Auk
þess hefir starf Bjöms Þorláks-
sonar skapað framkvæmdarvald-
inu aðstöðu til þess að láta dóm-
stólana meta til skaðabóta eitur-
sölu hinna brotlegu lækna. Starf
hans verður aldrei fullmetið, síst
til peninga. Það stendur í öfugu
hlutfalli við þá siðspillingu kunn-
ingskaparins, sem sett hefir
varanlegan blett á heila stétt, þar
sem menn sem í almennri fram-
komu eru heiðarlegir, hafa með
blaðagreinum, og félagslegri yfir-
hylmingu breitt yfir eiturverslun
nokkurra brotlegra félaga sinna.
Það þurfti manndóm hins sterka
manns til að feikja burtu blæj-
unni sem lítilmenska stéttartil-
finningarinnar hafði vafið um
eitursölu brennivínslæknanna.
Stjórnin þarf ekki að standa
Mbl. skil þess hve mikið fé kann
að þurfa að nota til að útrýma
spillingu læknabrennivínsins. Þau
gögn munu lögð fram fyrir rétta