Tíminn - 12.05.1928, Qupperneq 3
TIMINN
§7
Svínafelli í Öræfum, sem fórst í jök-
ulsprungu í Breiðamerkurjökli síð-
astliðið haust, er nú fundið. í sprung-
una hröpuðu auk mannsins 4 hestar
með póstflutningi, og fanst þetta alt
ásamt likinu. Hefir það komið fram
við umrót í jöklinum. Líkið var eigi
mikið skaddað, og hyggja sumir, að
maðurinn hafi eigi dáið þegar af
fallinu. Póstflutningurinn mun vera
lítið skemdur.
Leikhússlóðin ákveðin. 30. f. m., á
77. afmælisdegi Indriða Einarssonar
rithöf., var honum af hendi lands-
stjórnarinnar afhent gjafabréf að lóð
undir væntanlegt þjóðleikhús. Er
lóð sú á milli Landsbókasafnsins og
húss Jóns heit. Magnússonar fyrv.
forsætisráðherra. — Talið er víst að
byrjað verði á byggingu þess á
þessu ári, en vart mun henni lokið
á skemri tima en 6 árum.
Félafl útvarpsnotenda á íslandi var
stofnað hér i bænum 8. þ. m. Ætlar
það að hafa deildir úti um land.
Annað félag útvarpsnotenda var hér
fyrir. í stjóm hins nýja félags eru:
Jakob Möller bankaeftirlitsm. Ágúst
H. Bjamason prófessor, sr. Friðrik
Hallgrímsson, Otto Amar, Jón__ívars,
þorst. þorsteinsson og Gunnar Bach-
mann. Félagið mun ætla að vinna að
því, að útvarpsstarfsemi takist sem
fyrst upp á ný, en hún hefir legið
niðri um nokkurn tíma, af því að
útvarpsfélagið hefir eigi þóst fært um
að halda henni uppi.
Vega- og brúagerð verður á þessu
ári með mesta móti. Verður senni-
iega unnið fyrir um eða yfir 1 milj.
kiónur. ,Til brúargerða verðúr varið
um 300 þús. kr. Er áformað að gera
um 20 nýjar brýr og er Hvítárbrúin
i Borgarfirði þeirra langmest. Er hún
bygð rétt hjá Ferjukoti, og verður
reynt að fullgera hana í haust. Áætl-
aður kostn. er 200 þús. kr.Aðrar helstu
framkvæmdir eru þessar: Norðurár-
dalsvegur í Borgarfirði kemst senni-
lega fram fyrir Sveinatungu í sum-
ar. Verður gerð brú á Sanddalsá. í
Húnavatnssýslu verður haldið áfrarn
nýja veginn fyrir vestan Víðidalsá.
Er þó hæpið að lokið verði í ár við
allan kaflann vestur á svonefndan
Múlaveg, en þaðan er akbraut á
Hvammstanga. í Skagafirði er áform-
að að ljúka við veginn yfir Vallhólm-
inn og verður þá komin akbraut að
nýju brúnni yíir Héraðsvötn á þjóð-
veginum skamt fyrir utan Akra. í
Vallhólminum verða bygðar 2 brýr,
yfir Húseyjarkvísl og Affall. í Eyja-
firði verður unnið að akveginum inn
þelamörk, sem verður fullgerður inn
undir Bægisá. þá verður og lagt kapp
á, að koma Vaðlaheiðarveginum upp
undir Steinsskarð. í Axarfirði verður
fullgerð brúin á Brunná. 1 Hróars-
tungu eystra mun akvegurinn kom-
ast langleiðis að Jökulsá, hjá Foss-
völlum. í Vopnafirði verður byrjað
á akvegi úr kauptúninu inn i Hofs-
árdalinn. Á Fljótsdalshéraði verður
bygð brú yfir Grímsá á Völlum, 50
metra bogabrú úr járnbentri steypu.
Vestur i Hnappadalssýslu verða gerð-
ar brýr á Laxá og 2 smáár og jafn-
framt fullgerður akvegurinn vestur
undir Hjarðarfell. Áformað er að
byrja þegar í þessum mánuði á nýj-
um akvegi til þingvalla úr Mosfells-
dalnum um Gullbringur, norðan Leir-
vogsvatns og þaðan á núverandi
þingvallaveg nokkuð fyrir austan
svonefndar þrívörður nyrst á Mos-
fellsheiði. Er svo til ætlast, að þessi
nýi vegur, sem er um 15 km. verði
fullgerður á næsta ári. Biskups-
tungnavegurinn verður fullgerður
norður fyrir Vatnsleysu. Kemst
hann sennilega að Geysi 1930—31.
Flóaáveituvegarins er getið á öðrum
stað í blaðinu. Af sýsluvegum verður
í ár unnið með langmesta móti. Nema
framlög til þeirra úr ríkissjóði, lík-
lega fram undir 100 þús. kr. samtals.
þýskur vislndamaSur, dr. Lotz,
dvelur nú á Hvanneyri og hefir með
höndum rannsókn hinnar svonefndu
„Hvanneyrarveiki" i sauðfé. Hefir
hann ósamt Halldóri skólastjóra gert
ýmsar tilraunir á sauðfé og marsvín
um. Skepnur, sem drepist hafa lir
vekinni eru krufðar og rannsakaðar
nákvæmlega. þá hafa og farið frarn i
margskonar fóðurtilraunir á sauðfé.
Er tilraunaféð flokkað niður, sumu
geiiö vothey eingöngu, öðru þurliey
og loks reynt hvorttveggja í einu.
Iiingað til hafa margir álitið, að yot-
heysfóðrunin væri orsök veikinnar.
En við tilraunirnar hefir það fé he.lst i
veikst, sem fóðrað er á illa verkuðu i
þurheyi ósamt votheyinu. — Tíminn
væntir, að geta síðar skýrt nónar
frá árangri þessara rannsókna.
í Vestmannaeyjum er nú hafin mik-
il nýræktun, og hefir Sigurður
Sigurðsson nýlega verið þar á ferð
til eftirlits. Eyjamar em ríkiseign.
Frá fornu fari eru þar nál. 50 býli,
sem höfðu jarðarafnot. En alt fram
á síðustu ár hafa þau haft sam-
eiginlegar landsnytjar.í Heimaey voru
fyrir stuttu síðan rúml. 170 nautgrip-
ir, 60 hross og 600 fjár. Nú hefir alt
ræktanlegt land í eynni verið mælt
og skift niður í reiti, sem eru leigð-
ir út með erfðafestu. Fær hvert
hinna gömlu býla 7 hektara, en auk
þess er mælt út land handa 60 nýj-
um býlum, sem hvert fær 1—2 hekt-
ara. Eru blettir þessir leigðir með
því skilyrði, að þeir verði fullrækt-
aðir eftir 5 ár. Eru þeir afgjalda-
lausir þann tíma, en að honum liðn-
um greiða leigjendur 15 kr. eftir
hvern hektara. Vegur hefir verið
lagður frá kauptúninu út á eyna í
gegnum land það, sem brjóta á. Með
því er þeim mönnum, sem blettina
hafa á leigu, gert hægt fyrir, að
koma þangað fiskiúrgangi til áburð-
ar. — Sigurður búnaðarmálastjórí
áætlar að, ef alt ræktanlegt land í
eyjunum yrði gert að túni, mundi
það fóðra alt að 800 kýr. Væri þá
séð fyrir mjólkurþörf kaupstaðarins
fyrst um sinn. — þetta er eyjar-
skeggjum ljóst og ganga nú með
kappi að ræktuninni.
Sigurður Thorlacius kennari frá
Búlandsnesi var meðal farþega á
Esju austur í gærkveldi. Er Sigurð-
| ur á leið til útlanda, til Frakklands
og Sviss og mun dvelja þar í sumar
og e. t. v. lengur. Ætlar hann að
sækja þar háskólanámsskeið.
Leiðrétting. í síðasta tbl. Tímans
féll niður lína 1 Bréfi úr Borgarflrði.
þar átti að standa: „þegar Hvítór-
brúin hjá Ferjukoti er komin, sem
reisa á í sumar, verður akvegur í
mynni Lundareykjadals og Skorra-
dals“. þetta eru lesendur vinsamlega
beðnir að athuga.
-----O- ...
flokkur, sem að þeasu blaði
stendur, eins og lesendum þess
mun kuxmugt.
1 stórútgerðinni hefir stefna
þessi ekkert fylgi haft til þessa
heldur hefir það eftir tillögum.
manna í þeim málum, skifst ein-
göngu á milli einkareksturs og
þjóðnýtingar. Þegar því að sá
gleðilegi atburður gerist, að sjó-
mannastéttin í einum stærsta
kaupstað landsins gerir jafn eft-
irtektaverða tilraun og hér til að
reisa sinn fallna atvinnuveg úr
rústum, á grundvelli samvinn-
unnar, þá hlaut það að verða
samvinnuflokk þingsins bæði
Ijúft'og skylt að ljá þeirri hreyf-
ingu sitt óskifta fylgi.
Síðasta þing var á ýmsan hátt
merkisatburður í sögu samvinnu-
stefnunnar á Islandi.
Þá fór í fyrsta skifti með völd,
stjóm sem mynduð var af sam-
vinnuflokk þingsins. En þar gerð-
ust og atburðir, sem ef til vill
eru engu ómerkari fyrir þá hreyf-
ingu. Annar er sá, sem hér hefir
verið gerður að umræðuefni, og
stendur í sambandi við myndun
Samvinnufélags Isfirðinga. Isa-
fjörður hefir nú um skeið verið
eitthvert sterkasta vígi jafnað-
arstefnuxmar í landinu, þó að
þetta sé í fyrsta skifti að sú
stefna fær sinn fulltrúa þaðan á
löggjafarþingið. Því eftirtektar-
verðara er það, að í fyrsta skifti
er Isfirðingar gera alvarlegar til-
raunir til þess að endurreisa at-
vinnulíf kaupstaðarins, eftir hrun
samkepnisstefnunnar þar, þá
byggja þeir það á grundvellí
samvinnunnar.
Hinn atburðurinn, sem minnast
má á í þessu sambandi, er það,
að þegar að rædd voru lögin um
stofnun síldarmjölsverksmiðj-
unnar, komu fram ákveðnar til-
lögur frá ýmsum helstu fulltrú-
um samkepnisstefnunnar, um það
að stofna og starfrækja verk-
smiðjuna á samvinnugrundvelli.
Þetta er þeim mun gleðilegra fyr-
ir það, að síldar-atvinnuvegurinn
hefir til þessa verið uppáhalds-
leikvöllur hinnar skipulagslaus-
ustu samkepni. Þessir tveir at-
burðir gætu verið fyrirboði þess,
að samvinnustefnan ætti eftir að
sameina hina harðsvíruðu and-
stæðinga til beggja handa um
ýmislegt, sem þá ekki órar fyrir
enn og leiða málefni þjóðarinnar
til betra skipulags og friðgam-
legra en áhorfist stundum.
b.
Eftirmæli
24. mai 1927 andaðist í sjúkraskýl-
inu i Hólmavík, Grímur Benedikts-
son á Kirkjubóli í Tungusveit við
Steingrímsfjörð, eftir fimm vikna
legu þar, af afleiðingum af brjóst-
himnubólgu, er hann lá mjög þungt
í fyrir nokkrum árum. Grímur var
fæddur 29. maí 1865 á Kirkjubóli, for-
eldrar hans voru Benedikt hrepp-
stjóri Jónsson, hreppstjóra á Kleifum
í Gilsfirði Ormssonar. Kona Jóns var
Kristín Eggertsdóttir Ólafssonar
merkisbónda í Hergilsey. Móðir
Gríms var Valgerður Grímsdóttir
hreppstj. ó Kirkjubóli (og konu hans
Guðrúnar) Jónssonor presta Hjálm-
arssonar prests i Tz'öllatungu. Eftir
að íaðir lians dó í árslok 1884, varð
hann fyri'rvinna hjá móður sinni, þar
til hann fór sjólfur að búa vorið
1887, og giftist þó um haustið eftir-
lifandi ekkju sinni Sigríði Guð-
mundsdóttur og þorbjargar Björns-
dóttur, hún ólst upp ó Broddanesi hjá
móðursystur sinni Guðbjörgu Bjöms-
dóttur og manni hennar Jóni Magnús-
syni. Af 12 börnum þeirra hjóna lifa
nú sjö — fimm dætur og tveir synir,
þrjár eru giftar og annar bræðranna,
Benedikt, sem tók við jöi’ðinni af föð-
ur sínum vorið 1925.
það mun mörgum finnast skarð
fyrir skildi, sem kom að Kirkjubóli
við frófall Gríms, því þar var evo
mikii gestrisnin, glaðværðin og al-
úðin, að flestum varð að víkja af
þjóðveginum, sem liggur með túninu
og lzeim að bænum, þó ekki væri alt-
af mikið erindið, því æfinlega var
húsbóndinn reiðubúinn að taka á
móti gestum.
Grimur sál. var skarpgreindur, bók-
hneigður og orðvar um aðra menn,
félagslyndur og frjálslyndur. Hann
var ástríkur og umhyggjusamur fað-
ir og eiginmaður, sem til hinstu
stundar hugsaði um að gera fyrir
sína það, sem hann áleit þeim fyrir
bestu. Geðró sinni og sálarþreki
hjelt hann til síðustu stundar. Eg
hefi svo að segja frá bernsku átt
heima d næstu bæjum við Kirkjuból,
og mér er hugstæð sú eindrægni og
ástúð, sem þar rikti í allri framkomu
milli foreldra og bama. Og það voru
fleiri en. bömin, sem nutu kærleik-
ans og samúðarinnar á Kirkjubóls-
heimilinu. Gamalmennin sem komust
þangað, en þau voru mörg, höfðu því
lóni að fagna, að þurfa ekki að hrekj
ast burt þaðan fyr en likfjalimar
huldu þau, og þau vom flutt til
hinstu hvíldar. Blessuð sje minning
þessa bjartsýna góða manns.
Núgrannakona.
Höfundur eftirmœla þessara er beð-
inn velvirðingar á hve lengi hefir
dregist að birta þau. Ritsj.
-----o-----
Nokkrar vfsur
Eftirfarandi vísur eru eftir konu á
áttræðisaldri, Önnu Sigurðardóttur á
Fjöllum í Kelduhverfi í Norðui^þing-
eyjarsýslu, greinda og hagorða:
Afturolding.
Nú um síðir sveit er fríð,
sumarbliðan fengin,
fönnin þýð, og flúið atríö,
fjöllit prýði um engin.
Gleðitárin vorsins við
vökvast brór á gróðri,
opnar smórinn andlítið
fyr eyglór þára fóðri.
Skúrir brjóta skýjamót,
en skuggi' í gjótu sefur,
þar ljúflings fótur leiö mn grjót
fyr löngu mótað hefur.
Heim það sendir horfna fró,
og hjartans tendrar blýBln,
er geislavendi eópar sjó
sólin endurrisin.
þá er yndi er alda’ og strind
óma fyndnum kvœðum,
geislar á tind en tjöra og lind
taka mynd af hæðum.
ÁttxaOlMlðnrliuv
Lundin döpur, leið og köng,
lífs er nöpur senna,
elliglöpin ærið mörg,
ei má sköpum renna.
Oft var i heimi indœl dvöl,
andanum verk Guðs lýsti.
þar fanst llka blóðugt böl,
er broddum hjartað nÍBti.
----O—.-
Adalfundur
Radiumsjóðs lslands verður haldinn á Ingólfshvoli í Reykjavík
mánudaginn 18. ágúst næstk. kl. 5 e. h.
Dagskrá samkvæmt lögnm sjóðsins, en auk þess munu verða
lagðar fyrir fundinn tillögur til breytinga á lögum sjóðsins.
Stjórain.
er algerlega laust við klór, og
hefir Efnarannsóknarstofa rík-
isins vottað að svo sé. Persil
er notað um heim allan og er
hvarvetna þarfasti þjónn hús-
móðurinnar í að viðhalda
þrifnaði og heilbrigðí og draga
úr erfíði þvottadaganna........
Kaupfélög! Sendid pantanir yöar til S. I. S.
KvenmaSur óskar eftir að kom-
ast á rólegt og gott heimili í
sveit. Vill vinna fyrir uppihald-
inu.
Tilboð merkt 100, sendist afgr.
þessa blaðs.
Passíusálmarnír
á kínversku
Nú er búið að þýða útdrótt úr
Passíusálmum Hallgríms Péturssonar
á kínverska tungu. Býst eg við að
öllum Islendingum þyki það góðar
fréttir.
Kínverskan er mál fjórða hluta
mannkynsins. Engum mun þykja
óviðeigandi, að Passíusálmamir
verði fyrsta íslenska ritið, sem snúið
er á kinversku. þarf ekkl að færa
ástœður fyrir þvi
þýðingu þessa hefir amerÍBkur
maður, prófessor Harry Price, annast
að mestu leyti fyrir tilstilli undir-
ritaðs. Treysti eg Mr. Price manna
best til að inna þetta vandaverk
viðunanlega af hendi. Hann heíir
unnið að þýðingum í Kína í fjöl-
mörg ór og hefir marga mjög vel
íæra kínverska samverkamenn. þarf
ekki að efa, að þýðing hans á Passiu-
Bálmunum er ágæt Mun eg segja
nánar íré henni seinna. — Mr. Price
hefir að mestu leyti fylgt hinni
ágætu ensku þýðingu, prófessore
Pilchers. Stuttur formáli og all-itar-
leg æfisaga sálmaskáldsins á að
fylgja kínversku útgáfunni.
Nú ar ekkert annað eftlr, an að
i koma kinvereka þýðlngn Passlasálm-
j anna út Abyggilegur maður í Han-
j kow hefir tekið að sér að sjá um
1 úlgáfuna í íjarveru undirritaðs. En
i eg hefi lofað að kosta hana að öllu
j leyti. það hefi eg gert í því trausti,
! að landar mínir myndu ekki skorast
: undan að hlaupa undir bagga með
i mér og styrkja útgáfuna fjárbags-
• lega.
j Eg hefi hugs&ð mér að gefa sálm-
ana út i litlu broti, og selja þá svo
eins ódýrt og hægt or, á meðan menn
eru að kynnast þeim, en stækkn svo
útgáfuna, auka hana og vanda
seinna, eftir getu.
Hr. bankaritari Ámi Jóhannsson,
Br&gagötu 31, Reykjavlk, hefir lofað
að t&ka 6 móti fégjöfum til þessa
| fyrirtækís. Fyrsta útgáfan heíi eg
hugsað mér að yrði 2000 eintök; mun
hún kosta hér um bil 1000 kr. Gefins
langar mig til að geta sent mörgum
kristniboöum i Kina sitt eintakið
hverjum. þeim hér á landi, sem
bregðast nú fljótt við og leggja eitt-
hvað af mörkum til útgáfunnar, lofa
eg að senda eitt eintak ókeypis. En
þá veröa menn að láta n&fns sins og
áritunar getið.
Staddur í þrándheimi, 2. apríl 1928.
Ólafur ólafason, krístniboði.
70 ára reynsla
og' vísíngalegar rantisóknlr
tryggja ga;ði kaffibætisins
\VE RO/
enda erghann Iielmsfrægnr
og hefir 9 sinnum hlotlð
gull- ogsilfurmedallur vegna
framúrskarandi gæöa sinna.
Hér á landi hefir reynslau
sannaö að VERO er mibln
betri og drýgri en nokknr
annar kaffibætir.
Notlð að eins YERO,
það inarg borgar sig.
í heildsiilu hjá:
Halldórl Elríkssyui
Hafnarstræti 22 - Reykjavik
Fél. Hvítbekklngur
Aðalfundur á Hvítárbakka 28.
júní kl. 6 e. h.
Stjórnin.
Fjallkonu-
M skó;
svertan
m
Hlf. 1: fnagerð Réþhjainkur.
er
best.
H.f. Jón Sigmundsson & Ca
Áhersla lögö á
ábyggileg viðsldfti.
Millur, svuntu-
spennur og belti
évalt fyrirliggjandi.
Sent með póstkröfu
um alt land.
Jón Signumdsson, gullsmiður
Sími 888 — Laugaveg 8.
“t\. : »