Tíminn - 25.08.1928, Qupperneq 2
IBO
TlMINN
Á víðavangi.
Ferfættur ræðismaður.
Ámi frá Múla gefur í skyn, að
núverandi dómsmálaráðherra hafi
farið að dænai Caligulu, sem gerði
hest sinn að ræðismanni. Dró
Morgunblaðskálfur Sigurðar Egg-
erz um tíma fram lífið á þessari
hugmynd Árna. Eru þeir Ámi og
Sigurður sýnilega gramir við J.
J. fyrir að selja húðarbykkjumar,
sem Jón Þorláksson og Magnús
Guðmundsson létu eftir sig í
stjómarráðinu. En eina íslenska
dæmið um embættisfærslu á fjór-
um fótum er einmitt ræðismenska
Áma frá Múla. Á fundi í Borgar-
nesi haustið 1924 réðu ráðherrar
Ihaldsflokksins sér ekki af ánægju
yfir sendiherra sínum er þeir
höfðu þá nýlega gert út til Vest-
urheims til að létta tolli af ís-
lenskri ull. Ekki voru þeir J. M.
og J. Þ. í minsta vafa um, að
ræðismaður þeirra myndi koma
öllu fram, er þeir vildu, hjá stjóm-
inni í Washington, og vom drjúg-
ir yfir giftu sinni í mannvali.
Aldrei fréttist til ræðismanns
þessa í Ameríku, en frá Khöfn
kom sú saga, að þar væri íhalds-
legáti á fjórum fótum, utan af
íslandi. Þegar betur var að gætt
sást, að þar var komin kempa sú,
sem mest var rómuð í Borgarnesi.
Aldrei komst ferfætlingur þessi
til Ameríku. En dýr varð vera
hans í Khöfn. Fóru þar í haga-
toll fyrir „hest Caligulu“ um 11
þús. kr. á sjö vikum. *
Stúdentagarðurinn.
Mbl. gaf það í skyn um daginn,
að ríkissjómin ætti fyrst og
fremst sök á því, að ekki væri
þegar byrjað á byggingu stú-
dentagarðsins. Þetta er ranghermi
hjá blaðinu eins og flest annað,
sem það segir um „garðinn“.
Byggingamefnd Rvíkur hefir enn
eigi lagt samþykki sitt á upp-
dráttinn að „garðinum" og fyr en
það er fengið er ekki hægt að
byrja á honum.
Falskar tölur.
Mbl. birti á sunnudaginn var
lista yfir fjárupphæðir, sem það
nefndi laun Tryggva Þórhallsson-
ar forsætisráðherra. Mikið af því
fé er alveg rangt að telja forsætis-
ráðherranum til tekna, því að það
er ætlað til greiðslu aukakostnað-
ar, sem starf hans hefir 1 för
með sér. Má þar nefna ferðakostn-
að til útlanda og fé það, sem ætl-
að er til að veita móttöku erlend-
um gestum. Þetta veit Mbl. vel.
Naumast eru ritstjórar þess held-
ur svo fáfróðir, að eigi sé þeim
firnritiútiiiin
Á síðastliðnu ári voru hafin
samtök í Rvík um, að stofna til
nýrrar útgáfu af Islendingasög-
um og öðmm merkustu fornrit-
um íslenskum. Fjársöfnun var
hafin og 5 menn kosnir í nefnd til
að undirbúa málið. Þessir menn
eru: Jón Ásbjömsson hæstarétt-
armálaflutningsmaður, Matthías
Þórðarson fomminjavörður, Ölaf-
ur Lárusson prófessor, Pétur Hall-
dórsson bóksah og Tryggvi Þór-
hallsson forsætisráðherra. Hefir
nefnd þessi annast fjársöfnun og
annan nauðsynlegan undirbúning.
Sótti hún um styrk til þingsins í
vetur. Bar það þann árangur, að
á fjárlögum 1929 vom veittar 5
þús. kr. til útgáfu fyrsta bindis-
ins með því skilyrði að útgáfu-
fyrirtætkið gæti lagt á móti 25
þús. kr. í handbæm fje. Það fje
er nú þegar fengið og verkið haf-
ið. Hefir Sigurður prófessor Nor-
dal verið ráðinn til þess að hafa
aðalumsjón með útgáfunni. Má
óhætt fullyrða að hann sje til
þess starfa manna færastur.
kunnugt um, að forsætisráðherr-
ann er með lögum skyldaður til
að vera formaður í bankaráði Is-
landsbanka og getur því ekki
skorast undan að gegna því auka-
starfi. — Næst má búast við, að
Mbl. telji Jóhannesi bæjarfógeta
til tekna laun allra fulltrúanna á
bæjarfógetaskifstofunni og annan
reksturskostnað við embætti hans.
Hækka þá drjúgum þær tekjur,
sem Jóhannesi voru áætlaðar á
þinginu í vetur.
Árbæjarmálið.
Miðstjórn íhaldsins hefir ekki
þorað að svara spumingunum um
Árbæjarmálið. Hvers vegna þorði
íhaldið ekki að senda það til
hæstaréttar, og af hverju stafaði
óttinn? Til bráðabirgða er nóg að
geta þess að hér var um að ræða
stórfeldasta sauðaþjófnaðarmál,
sem upp hefir komist í mörg ár.
Maðurinn sem í óláninu lenti var
nákominn skjólstæðingur Guxm-
ars Öiaíssonar í Vestmannaeyjum.
Við rannsóknina, þótt lítil væri,
sannaöist að ólánsmaðurinn hafði
stærsta kjötmarkað sixm hjá ein-
um aðalútgefanda Varðar. Þangað
ióru maigar tuimur af kjöti frá
Arbæ ár eítir ár. Og aðalástæðan
sem í játningunni íyrir rétti vax-
geim a þessum stórielda þjóinaði
var sú, aö kindakjöt hefði vantað
tu að íyiia „stóra póntun". Fyrir
siikt ódæði sem þetta hafa aðrir
gæiulitlh mexm verið dæmdir í
ílehi ára betrunarhúsvinnu. En
hér var maðuiimi, sem játaði á
sig sektina dæmdur í nokkurra
uaga tangeisi upp á vatn og
brauö! Aidrei var meiri ástæða
ul að áírýja undirdónh heldur en
þessmn. Aiiir vissu aö hæsth'éttur
hiaut að heimta meiri rannsókn
og dæma síðan langsamiega
harðaii dóm. En þá hefðu iíka
sunhr af helstu mörmum íhalds-
ins orðiö að koma iyrh' rétt og
skýra irá kjötverslun sinni við
Árbæjarheimilið. Þess vegna læt-
ui' miðstjórn íhaldsins M. Guðm.
gera það dæmalausa hneyksli að
áfrýja ekki undirdóminum.
íhaldið hefir heimtað að til
hæstaréttar hefði verið vísað mál-
inu um löggæslu smyglunarbáts-
ins með naglabókmentunum.
íhaldinu er sama þótt ísland yrði
af þeim málgögnum dæmt aum-
asta skrælingjaland. — En þegar
svívii'ðilegt sauðaþjófnaðarmál
kemst upp, þar sem markaðurinn
fyrir þýfið er hjá manni í mið-
stjóm íhaldsins, þá er ekki verið
að ómaka hæstarétt. — En þó að
Ái'bæjarmálið kæmi ekki undir
dóm hæstaréttar fær það væntan-
lega fulla birtingu fyrir dómi al-
menningsálitsins í landinu. *
I bréfi, sem sent var til ýmsra
manna úti um land, dags. 1. des.
1927, hefir útgáfunefndin gert
grein fyrir fyrirkomulagi útgáf-
unnar á þessa leið:
„Fyrir hverju riti verður sam-
inn inngangur, er skýri stöðu þess
í bókmentunum, heimildargildi
þess og listargildi og ýmislegt
annað, sem lesendum má verða til
leiðbeiningar. Einstök atriði verðá
jafnóðum skýrð neðanmáls: vís-
ur, torskilin orð og orðatiltæki,
fornir siðir og menning; athuga-
semdir verða gerðar um söguleg
sannindi og tímatal, vísað í aðrar
heimildir til samanburðar o. s.
frv. Hverri sögu munu fylgja
fleiri eða færri landabréf eftir
þörfum, til skýringar helstu við-
burðum, ennfremur ættartölutöfl-
ur og myndir af sögustöðum,
fomum gripum og húsum.
Ritin verða gefin út 1 jafn-
stórum bindum, h. u. b. 30 arkir
hvert, í heldur stóru 8 blaða broti.
Sérstök alúð verður lögð við að
velja góðan pappír og svipfallegt
letur. Svo er til ætlast, að 2 fyrstu
bindin komi út vorið 1930 en síð-
an 1—2 bindi árlega".
Nú hefir verið gerð nákvæm
áætlun um skiftingu ritanna í
bindi. Verða bindin alls 32. Fer
„Balkan“-ritstjóramir.
Annað blað Vestur-Islendinga
lýsti munnsöfnuði Ihaldsmanna
hér heima um Framsóknanneim
með þeim orðum að slík blaða-
! menska þektist á Balkan og hjá
íslenska íhaldinu. Þetta er harður
dómur, því að Balkanþjóðimar
eru í stjómmálum aumastar,
óþroskaðastar og siðspiltastar af
öllum Evrópuþjóðum. Og þessi
dómur um íhaldsritstjórana kem-
ur frá algerlega óháðum aðila, Is-
lendingi í annari heimsálfu, sem
skilur hvílíkt skrælingjaframferði
íhaldið temur sér.
Ihaldið og gáfumennirnir.
J. J. dómsmálaráðherra hafði
eitt sinn í blaðagrein lýst hve
heimskulega aðferð oddborgarar
Reykjavíkur hefðu haft, er þeir
lokuðu mentaskólanum fyrir gáfu-
mönnum, sem vegna fátæktar
byrja seint nám, eins og t. d. sr.
1 Matthías. Nú segir Mbl. að J. J.
| höggvi í þann knémnn, með því
I að leyfa ekki mentaskólanum að
; hafa útibú út í bæ fyrir brodd-
. borgarabörn Reykjavíkur. Lætur
' Mbl. sem J. J. vilji þar með úti-
! loka gáfaða sveitadrengi frá
I mentaskólanámi. En Mbl. hefir
, það sem fommenn með heppilegu
I orði kallaði „svínsminni", ef það
man ekki að núverandi dómsmála-
ráðherra á mjög veruegan þátt í
því að á næstu árum og væntan-
lega um mjög langa framtíð munu
útskrifast 15—20 gáfaðir sveita-
piltar úr mentaskólanum á Akur-
eyri eftir að hafa haft aðstöðu til
að nema þar með helmingi minni
kostnaði en í Rvík. Sést á þessum
ásökunum hve falsaðar eru rök-
semdir Balkanritstjóranna er þeir
ásaka þann mann sem fremur öðr-
um samtíðarmönnum hefir unnið
að því að opna þroskuðum sveitar-
piltum götu að mentaskólanámi
— ásaka hann fyrir að loka ein-
mitt þeirri leið, sem hann með
ekki lítilli giftu hefir opnað.
n.
Laugavatnsskólinn.
Skólahúsinu miðar vel áfram, og
mun vissa fyrir því að skólinn
geti tekið til starfa á settum tíma.
Mun námfúsu fólki sunnanlands
bregða við hvað kostnað snertir
við að sækja þennan skóla, því alt
bendir til að dvalarkostnaður þar
verði áþekkur og á Laugaskóla
þeirra Þingeyinga, en þar hefir
fæði, húsnæði, ljós, hiti og þjón-
usta vetrarlangt verið um 300
krónur fyrir karlmenn og 250
krónur fyrir stúlkur. Og þá vita
þeir best sem reyna hver blessan
er að því, að eiga kost daglegra
sundiðkana í volgri yfirbygðri
laug. Er það ekki lítilsvert að
röð binda og lauslegt efnisyfirlit
hér á eftir:
1. bindi. Islendingabók, Land-
náma, Eiríks saga rauða, Þor-
finns' saga karlsefnis og Græn-
lendinga þáttur Flateyjarbókar.
2. bindi. Egils saga Skalla-
grímssonar, Gunnlaugs saga orms-
tungu, Gísls þáttur Dlugasonar,
Hænsna-Þóris saga og Bjamar
saga Hítdælakappa.
3. bindi. Eyrbyggja, Halldórs
þáttur Snorrasonar, Laxdæla og
Stúfs saga.
4. bindi. Þorskfirðinga saga,
Gísla saga Súrssonar, Hávarðar
saga Isfirðings, Fóstbræðra saga,
Brands þáttur örva og Auðunar
þáttur vestfirska.
5. bindi. Grettis saga, Kormáks
saga, Hrómundar þáttur halta og
Hrafns þáttur Hrútfirðings.
6. bindi. Bandamanna saga,
Odds þáttur ófeigssonar, Heiðar-
víga saga, Vatnsdæla og Hallfreð-
ar saga.
7. bindi. Svarfdæla, Þorleifs
þáttur jarlsskálds, Valla-Ljóts
saga, Sneglu-Halla þáttur, Glúma,
ögmundar þáttur dytts, Þorvalds
þáttur tasalda, Hreiðars þáttur
heimska og Ljósvetninga saga.
8. bindi. Reykdæla, Þorsteins
saga hvíta, Vopnfirðinga saga,
saman fari hinn 'ytri og innri ylur
í aðbúðinni að æskufólki því sem
ætlað er að sækja slíkar stofn-
anir sem þessar, og þeir sem
gjörst þekkja hinn væntanlega
skólastjóra, séra Jakob Ó. Lárus-
son frá Holti, vita að vel muni
séð fyrir hvorutveggja á hinum
nýja skóla hans.
Fréttir.
Gestir í bænum: Jón ívarsson kaup-
télagsstjóri í Homafirði, Sigtryggur
Vilhjólmsson bóndi á Ytra-Álandi i
pistilfirði.
Hestamannafélag er stofnað vestur í
Dölum og efndi það til kappreiða ný-
lega. Hestamannafélagið „Fákur" í
Rvík gaf verðlaun. Ætlar Fákur að
stuðla að því að slík félög v.erði stofn-
uð i sem flestum héröðum landsins. I
Geíur stjórn Fóks leiðbeiningar og |
svarar íyrirspurnum um ýmislegt,
sem að starfsemi slikra félaga lýtur.
Einnig inun hún hafa í huga að
ieggja íram fé til verðlauna að ein-
iiverju ieyti, málefninu tif styrktar.
Kimskipaiólag Vesturlands var stofn-
aö i). þ. m. Heíir það keypt gufuskip-
ið „Nordiaud", sem nú nefnist „Vestri"
Heimiii félagsins er á Fiateyri við
Onundarfjörð.
Gistihúsið á Ásólísstöðum er nú full-
gert. Er þar rúm fyrir 24 gesti. Bil-
hsrt er upp að Ásólfsstöðum.
iáeleor, þýskt rannsóknaskip, hefir
dvaiiö hér við iand undanfarið, aðai-
iega tii atliugana á loftslagi og veður-
iari. Nú er það íarið til Greeniands.
X>andakotskirkjan verður sennilega
iuiibygð um nœstu áramót V.erður
hún iiin veglegasta og sönn byjar-
prýði.
Brautin heitir nýtt biað, sem kem-
ur út i Rvík. Ritstjórar: Sigurbjörg
poriáksdóttir og Marta Einarsdóttir.
i'regn barst hingað fyrir nokkru
um það að maður einn i Vopnafirði
hefði seit tóiuiivolpa i vor iyrir 1700
ki'. Nú heíir Timinn frétt að hóndi
í Skeggjastaðahreppi i N.-Múlasýslu
iiaíi seit tóíuhvoipa fyrir 1600 kr. Er
það drjúgur fengur.
Pourqois pas, íranskt rannsóknaskip
sem tekið hefir þátt i leitinni að
Amundsen i sumar, kom til Akureyr-
ar iaust iyrir miðjan þennan mánuð.
Leitaði það hafnar til að taka vatn en
liélt siðan til Grænlands.
Prestskosning fór fram í Vatnsfirði
13. þ. m. Umsækjendur voru sr. þor-
steinn Jóhannesson á Stað i Stein-
grimsfirði og Sigurður Haukdal cand.
tiieol. Atkvæði eru enn ótalin.
Prestvígðir voru i dómkirkjunni
hér síðastl. sunnudag guðfræðingam-
ir Knútur Arngrímsson, skipaður prest
ur i Húsavik og pormóður Sigurðsson,
settur prestur að þóroddsstað í Kinn.
Skólahúsið á Laugavatni er nú
komið vel á veg. Er steypunni lokið
og búið að reisa. Tvœr álmumar em
bygðar i sumar og kjallari hinnar
þriðju, en í honum verður sundlaug
fyrst um sinn. Formanni skólanefnd-
ar, Böðvari bónda á Laugavatni, hafa
þegar borist allmargar umsóknir um
skólann. — þegar húsið var reist safn-
aðist fólk úr nágrenninu saman
Gunnars þáttur Þiðrandabana,
Þorsteins þáttur stangarhöggs, öl-
kofra þáttur, Hrafnkels saga,
Droplaugarsona saga, Brand-
krossa þáttur, Þorsteins þáttur
Austfirðings, Gull-Ásu-Þórðar
þáttur, Þorsteins saga Síðu-Halls-
sonar, Egils þáttur Síðu-Hallsson-
ar, Flóamanna saga og Þorsteins
þáttur tjaldstæðings.
9. bindi. Njála.
10. bindi. Kjalnesinga saga, Jök-
uls þáttur Búasonar, Harðar saga
og Hólmverja, Bárðar saga Snæ-
fellsáss, Víglundar saga, Króka-
refs saga og Draumavitranir.
11. bindi. Þórðar saga hreðu,
Finnboga saga, Þorsteins þáttur
uxafótar, Fljótsdæla, Gunnars
þáttur Keldugnúpsfífls, Orms
þáttur Stórólfssonar og Þorsteins
þáttur forvitna.
12. —14. bindi. Sturlunga.
15.—17. bindi. Biskupasögur
(== Biskupasögur Bókmf. I. bindi,
að viðbættum Stefnis þætti Þor-
gilssonar, Svaða þætti og Amórs
kerlingamefs, Þórhalls þætti
knapps, Þiðranda þætti) og Ann-
álar (úrval).
18. bindi. Lög (Úrval úr Grá-
gás, Kristinrétti Árna biskups,
Jónsbók og Réttarbótum).
19. bindi. Sæmundar-Edda.
til gleðskapar. Úr Reykjavfk voru m.
a. viðstaddir mannfagnað þennan
Guðjón Samúelsson húsameistari rík-
isins, Guðm. Hannesson prófessor og
dóttir hans. Luku allir einum munni
um að Laugavatn væri frábært skóla-
setur.
Enskur togari strandaði i vetur hjá
I.eiihöfn á Melrakkasléttu. Var skipið
talið ónýtt og selt á uppboði fvrir lítið
verð. En með aðstoð varðskipanna,
Óðins og þórs, hefir nú tekist að ná
því af grunni. Var farið með það til
Akureyrar og er búist við að hægt
verði að gera við það.
Danski sendiherran, Fontenay, og
frú hans, tóku sér far til út-
landa með Botniu 22. þ. m. og dvelja
erlendis fram á vetur. Skrifstofustjóri í
utanríkisrðuneytinu danska, Holler
að nafni, gegnir sendiherrastörfunum
á meðan.
Kappleikum Vikings og Knattspymu
félags Akureyrar lauk meö sigri Vík-
ings. Vom tveir kappleikar háðir og
sigraði Víkingur í hvorum um sig
með 4 :2.
Slys. Maður úr Rvík, Matthías fs-
leifsson að nafni beið bana af skoti
20. þ. m. Var hann staddur á bæ uppi
á Kjalarnesi og hafði byssu mefi-
ferðis. Var hann staddur einn í her-
bergi, er slysið vildi til. Heyrðu menn
er skotið reið af og hafði það hlaup-
ið í brjóst honum. Lést hann skömmu
siðar.
Jarðboruninni við Laugarnar hér er
haldið áfram. Eykst heita vatnið, eft-
ir því sem lengra kemur niður.
Sigurðar Nordal prófessor lagði af
stað héðan til Englands 21. þ. m.
Dvelur hann ytra fram í nóvember.
í Arnarfirði vestra kviknaði nýlega
i sinu og varð af eldur mikill. Tókst
ekki að slökkva hann fyr en eftir
tvo daga. Orsökin er talin sú að
drengir nokkurir hafi í gáleysi
kveykt í þurrum við.
Sæsíminn hefir verið bilaður und-
anfarna daga og skeyti öll til útlanda
send loftleiðis.
Samvinnufélag ísfirðinga hefir sam-
ið um smiði á 5 mótorskipum við
verksmiðju eina í Svíþjóð. Skipin
verða 40 smál. að stærð hvert með
00 hesta vélum. Kostar hvert þeirra
50 þús. kr. hingað komið. Vélar þær,
sem notaðar verða í skipin eyða mjög
lítilli olíu. pau eiga að verða tilbúin
í siðasta lagi fyrir nóvemberlok n. k.
Jón Leifs kemur hingað til lands í
lok þessa mánaðar til þess að taka
íslensk þjóðlög á hljóðrita fyrir
„Phonogram“-safn ríkisins, í Berlín.
pýska vísindasambandið „Notge-
meinschaft der Deutschen Wissen-
schaft" styrkir hann til ferðarinnar,
en Mentamálaráð íslands veitir Jóni
ókeypis skipsfar og kaupir afste.ypur
af þjóðlögunum. í september gerir
Jón ráð fyrir að ferðast um Norður-
land i þessum erindum, á-skipi um
Vestfirði, en landveg um Húnavatns-,
Skagafjarðar- og þingeyjarsýslur, eft-
ir því sem ástæður leyfa. peir menn
á þessum slóðum, sem kunna þjóðlög,
eða þekkja söngmenn þjófilaga, sér-
staklega tvísöngsmenn, eru beðnir að
veita Jóni Leifs liðveitslu og til-
kynna honum, helst bréflega, til
Reykjavíkur, (box 495), þær upplýs-
ingar, sem að gagni gætu orfiið.
Síldareinkasalan hefir ráðifi Matt-
hías pórðarson fyrv. útgerðarmann i
Keflavik til þess að leitast fyrir um
20. bindi. Snorra-Edda með
nafnaþulum og viðbótum úr ýms-
um Eddu-handritum.
21. —22. bindi. Fomaldar sögur
1.—II. með Yngvars sögu, Helga
pætti Þórissonar, Þorsteins þætti
bæjarmagns og Tóka þætti.
23. bindi. Heimskringla I. bindi
með ýmsum viðbótum og þáttum,
svo sem: köflum úr Ágripi og
Fagurskinnu, ólafs sögum Odds
Snorrasonar og Gunnlaugs Leifs-
sonar, formála og upphafi hinnar
sjálfstæðu (eldri) ólafs sögu
Snorra, Sigurðar þætti slefu, Ind-
riða þætti ilbreiðs, Þorsteins þætti
skelks og Finns þætti Sveins-
sonar.
24. bindi. Heimskringla II. bindi
með viðbótum og þáttum: köflum
úr helgisögunni um ólaf, ólafs
sögu Styrmis fróða, jarteinabók-
um, Indriða þætti og Erlings, ól-
afs þætti Geirstaðaálfs, Rauðúlfs
þætti, Völsa þætti.
25. bindi. Heimskringla III. bindi
með viðbótum og þáttum: köflum
úr Morkinskinnu, Flateyjarbók og
Fagurskinnu, Hemings þætti Ás-
lákssonar og Hákonar þætti ívars-
sonar.
26. bindi. Sverris saga og Bögl-
unga sögur.
27. bindi. Hákonar saga gamla