Tíminn - 02.02.1929, Side 4
26
TlMINN
Munið hin íkýru orð festur-ísleodlngsins Ásmundar Jóhannssonar á síöasta aöalfundl EimskipafélagBÍng:
„Sú króna, sem fer út úr landinu, er kvödd í síðasta sinn“.
Kveðjið þér ekki yöar krónu í síðasta sinn, þar sem þess þarf ekki með
Vátryggid alt, á sjó og landi, bjá Sjóvátryggingarfólagi Islands,
Grleymið ekki
að taka það fram, þegar þið sækið um styrk til verkfærakaupa, að
þið viljið fá Liens plóga frá
Samband ísl. samyinnnfél.
Töðuhesturínn kostar nú um 20 krónur.
Einn pokí af saltpétri kostar lítlu meira.
Það þarf ekki mikinn heyauka til þess að skynsamleg notkun
tilbúins áburðar fáist ríflega endurgreidd. — Athugið og reiknið
hvort þjer getið komist af án þess að nota tilbúinn áburð. Hann
er ódýrari nú en hann var fyrir stríðið.
Samband ísl. samvinnufél.
I heildsölu hjá:
Tóbaksverslun Islands h. f.
Eyvindur enn
I dag er 22. janúar. Úti í garði
grær arfinn nærri því eins og
vorið væri komið. Tré og runnar
eru að byrja að lifna við; bellis
er með hálfútsprungnum blómum
og í dag sá eg 12 starra sitja í
hóp og syngja í reynirunni. Senni-
lega eru þeir frá Færeyjum.
Aldrei hefi eg áður lifað jafnmild-
an vetur, ekki einu sinni neinn
af þeim 10, sem eg dvaldi í Dan-
mörku.
Þessvegna er það nærri því von
þó maður fari að hugsa um vorið
og þau störf, sem því fylgja. Og
því sting eg niður penna, til þess
að benda þeim, sem vilja reyna ný
kartöfluafbrigði, á að panta út-
sæði af þeim í tæka tíð. Nú er
á boðstólum hjá Gróðrarstöðinni
í Reykjavík, útsæði af þeim kar-
töfluafbrigðum sem best hafa
reynst undanfarin ár og sem eg
tel best fallin til ræktunar á landi
hér. Enda þótt margir muni nöfn
þeirra, því svo oft er eg búinn
að staglast á þeim, hér í blaðinu
og víðar, verð eg að endurtaka
þau. Og fyrst ber að nefna fræg-
an „Eyvind“ (Kerrs pink), sem
mér líkar best og sem mér finst
sameina best flesta þá kosti sem
við verðum að krefjast að kar-
töfluafbrigði, sem hér á að rækta,
hafi.
„Stór Skoti“ (Great Scot) er
einnig fyrirtaks kartafla og sum-
ir þeir, sem eitthvað hafa haft út
á „Eyvind“ að setja, hvað bragð
snertir, hafa ekkert við hann að
athuga. Enda er hér um eina
allra bestu matarkartöflu Eng-
lendinga að ræða. Hún er hvít á
litinn og óaðfinnanleg. Hvað
hreystina snertir má segja svipað
um hana og „Eyvind“.
„Blálandskeisari“ (Shetland
Blue) er stórvaxin, aflöng, flöt
kartafla og þykir svo afbragðsgóð
að margir hafa til þess tekið. En
hvað hreysti og þrótt snertir
stendur hann Eyvindi langt að
baki. En bráðþroska er hann.
„Blálandsdrotning" (Edzel Blue)
er ýmsum góðum kostum búin;
fagurlega vaxin, vel eygð og lit-
fögur. Hraust er hún og harð-
gerð í sér en er sjaldnast eins
stórvaxin og fyrnefnd afbrigði.
Á síðastliðnu sumri fékst þessi
uppskera af framantöldum af-
brigðum í samanburðartilraun:
Uppskera af 100 f. m.
Eyvindur...............515 kg.
Stór Skoti............. 472.5 —
Blálandskeisari......... 522 —
Blálandsdrotning .. .. 499 —
Vaxtarrými var 50 cm. milli
raða, en 25 cm. milli plantna í
röðum. Með þvímóti rúmast 800
grös á 100 f. m. — Eg vil geta
þess til fróðleiks að svæðið sem
samanburðartilraunin var á er
767 f. m. og í því vóru alls 6136
kartöflugrös. Útsæðið óg 287 kg.,
en uppskeran varð 3799 kg.
Leiðin til að auka ræktun kar-
taflna í landinu er ekki fyrst og
fremst að stækka garðana, held-
ur að velja hæfustu afbrigðin til
ræktunar og setja skipulegar nið-
ur.
Þó að „Eyvindur" þurfi í raun
og veru ekki meðmæla með leng-
ur, þá birti eg hér kafla úr
tveimur bréfum sem mér hafa
borist nýlega, annað að vestan,
hitt að austan.
Þórarinn Ámason á Miðhúsum
í Reykhólasveit skrifar 29. des.:
„Eg hefi haft Eyvindarkartöfl-
ur í tvö sumur og gefist ágæt-
lega. Þegar eg fluttist hingað frá
Hólum vorið 1926, hafði eg með
mér þaðan útsæði af góðum
stofni að talið var, setti eg það
niður í lítinn garð, en uppskera
af því varð mjg lítil, svo eg hélt
jafnvel að hér myndi ilt til kar-
töfluræktunar. Um veturinn sá eg
svo í Tímanum fyrst getið um
Eyvind og fékk nokkuð af honum
til útsæðis, en setti þó jafnframt
nokkuð niður af stofni þeim, sem
eg hafði fyrir. Það má í fáum
orðum segja, að Eyvindur bar svo
langt af hinu afbrigðinu að eg
tók eingöngu útsæði af honum til
næsta árs. Var nú stækkaður
heimagarðurinn og jafnframt
gerður nýr og varð uppskeran 13-
föld úr honum. Heimagarðurinn
var vel unninn og í hann var sett
7. maí, 45 kg. kartöflur. Þann
10. september var tekið upp úr
honum og urðu það 762 kg. Mesta
þyngd undan einu grasi var 2
kg. — 26 kartöflur (meðalþyngd
96 gr.) en víðast frá 15—20 und-
ir hverju grasi. Byrjað var að
nota kartöflur 25. júlí og voru þá
frá 2—600 gr. undir grasi, ein
kartafla var tekin snemma í á-
gúst og óg hún 300 gr., en
þyngsta kartafla um haustið óg
450 gr.
Öllum hér getst vel að kartöfl-
unum hvað bragðgæði snertir og
þéttleika, en það hefi eg einkum
heyrt þeim fundið til foráttu af
sumum. Aftur á móti þarf að
sjóða þær varlega, svo þær
spryngi ekki við suðuna. Mjög
mikinn kost tel eg það hve lítið
er af smælki í kartöflum þessum
og einkum er uppskeran miklum
mun fljótari en við önnur af-
brigði sem eg hefi reynt, en upp-
skerumagn þó meira.
Mín reynsla á„Eyvindi“ er sú,
að eg hefi enn ekki fengið af-
brigði, sem mér fellur jafn vel
við, þó ekki sé tekið tillit til þess,
hve hraust það kvað vera, en á
það hefir ekki reynt hér enn“.
Síra Jakob Lárusson skóla-
stjóri á Laugarvatni skrifar í
desember:
„Samkvæmt tilmælum þínum
skal eg hérmeð láta í ljós álit
mitt á kartöfluafbrigði því, sem
alment er nefnt „Eyvindur“ og
eg hefi reynt undanfarin 3 ár.
Eg er stórhrifinn af ágæti
þessa afbrigðis. Með hverju ári
sannfærist eg betur um yfirburði
þess yfir öll önnur afbrigði, sem
eg hefi reynt í búskapnum. En
aðdáanlegast er það samt fyrir
það tvent, hvað það er óvénju
fljótvaxið og stórvaxið og hváð
það er hraust.
í Holti og víðar undir Fjöllun-
um hefir um langt skeið haldist
sú venja að byrja eigi að neyta
nýrra kartaflna fyr en með höf-
uðdegi 29. ágúst. En undanfarin
þrjú sumur höfum við byrjað að
neyta „Eyvindar“ að staðaldri
alt að þrem vikum fyr, þótt ekki
hafi þá verið viðlit að taka önnur
afbrigði til neyslu.
Síðastliðið sumar ræktaði eg
mestmegnis Eyvind. Eg þóttist af
undanfarinni reynslu eigi þurfa
eins mikið garðrúm og á meðan
eg hafði aðeins hin gömlu af-
brigði. Séldi eg því V3 hluta
garðanna á leigu. Fór samt svo
sem mig varði, að eg fékk alt að
því eins mikla uppskeru og vana-
lega. Þakka eg það aðallega Ey-
vindi, hvað hann var stórvaxinn
og smælkislaus, og drjúgur upp
úr görðunum. Vöxt hans róma
líka allir undir Fjöllum, sem reynt
hafa, en þeir eru fjölmargir.
Hann er að ná yfirhönd þar á
flestum heimiluni.
Heyrt hefi eg einstöku menn
tala um það, að þeim falli eigi vel
bragð af „Eyvindi“. Eg get ekk-
ert út á það sett. Okkur í Holti
finst hann því betri sem við neyt-
um hans lengur. Og hann þolir
afbragðsvel geymslu.
Með því að útbreiða „Eyvind“
vinnur þú verk fyrir þjóðina, sem
ókleift er að meta til fjár. Ætla
eg að það muni þó eiga eftir að
koma betur í ljós“.
Eg held að eg hafi ekki getið
áður um það á prenti, að eftir
því sem mér hefir virst, þá
skemmist grasið á „Eyvindi"
miklu síður af völdum frosta en
gras ýmsra annara afbrigða. Eg
hefi einnig orðið var við að ýms-
ir aðrir hafa þótst taka eftir því
sama. Nýlega barst mér bréf
austan af landi, frá Stefáni Bald-
vinssyni í Stakkahlíð í Loðmund-
arfirði, og þar segir svo:
„Eg tók eftir því að grasið á
Eyvindarkartöflunum þoldi mikið
betur næturfrost en gras á öllum
öðrum kartöfluafbrigðum, sem eg
íslenska ölið
hefir hlotið einróma
lof allra ne y t e n d a
Fæst í öllum verslun-
um og veitingahúsum
ölgeröin
SkallagTÍm.sson
SMflRA
SDlORLiKi
, IECla.Tj.pféla.gsstjóraj?I
Munið eftir því að haldbest og smjörí líkast er
„Smára“ - smjörlíkí
Sendið því pantanir yðar til:
H.í. Smjörlíkiséerðin, Reykjavík.
TrúJofunarhringar
Sent út um land
gegn póstkröfu.
Jón Sigmundsson, gullsmiður
Sími 383. — Laugaveg 8.
hefi þekt, en þær eru orðnar
nokkuð margar, því auk þess litla
sem eg hefi fengist við kartöflu-
rækt í búskap mínum, hefi eg
unnið við tvær hérlendar tilrauna-
stöðvar og eina erlenda".
Ekki skal eg þó fullyrða neitt
um þettað atriði, en sé þettað
rétt athugað hjá okkur Stefáni,
þá þarf ekki mjög skynuga menn
til þess, að sjá hve verðmætur
þessi eiginleiki Eyvindarkartafln-
anna er hér á íslandi.
Þeir sem ó ska að reyna eitt-
hvað • af fyrnefndum kartöfluaf-
brigðum, verða að gera svo vel að
senda mér pantanir sínar sem
fyrst. Verðið er 30 aurar hvert
kilógr. Menn geta fengið" hvort
sem þeir vilja mikið eða lítið, t.
d. geta þeir sem óska þess, gjarn-
an fengið 10—50 útsæðiskartöflur
í póstböggli. Verður gengið svo
frá þeim, að ekki grandi þeim
frost. Þeir eru orðnir margir hér
sunrianlands, sem hafa fengið
hjá mér fáeinar kartöflur af góð-
um afbrigðum og síðan sjálfir
komið sér upp útsæði af þeirn
stofni. Allir hafa efni á því,
hversu fátækir sem þeir eru. Og
yfirleitt eiga menn ekki að hætta
við sirin gamla kartöflustofn fyr
en þeir hafa gengið úr skugga
um það, — helst hjá sjálfum sér
— að sá stofn sem þeir fá í stað-
inn sé betri. — Pantanir verða
afgreiddar meðan birgðir endast.
Ragnar Ásgeirsson.
Ritstjóri: Jónas Þorbergsson.
Laugaveg 44. Sími 2219.
Prentsmiðjan Acta.
Hvers vegna §*
Nende? p
Vegnaþess, aðþaðerusterk- L,
ustu, ódýrustu, hljómfeg- LJ
urstu og bestu radio-við-
tækin. (V
Hr. veitingam. Jón Bjarna-
son, Vestm eyjum, skrifar
okkur:
' „5-lampa radio-viðtæk- CL
ið, frá H. Mende & Co.
sem ég keypti af yður yj
í haust, reynist allra
tækja best, hér í Vest-
m.eyjum, þótt það sé ca.
270,00 kr. ódýrara en
önnur sambærileg tæki.
Allar helstu útvarps- (?J
stöðvar í Evrópu, og
einnig stöðvar í Ame- gj
ríku, heyrast á hátalar- Cs
anft, sterkar og skýrar
en á örmur tæki, sem j“J
ég þekki. Heyrist alla ó“J
daga, og fram til mið- JJ
nættis: söngur, hljó- r“J
færasláttur, fyrirlestrar
fréttir o. fi. eftir vild.“
Hr. simastjóri Þórh. Gunn- g
laugsson, Vestmannaeyjum ("J
segir: _ |j
„Ég get vottað, að radio- ^’J
móttökutæki þau, frá (®J
H. Mende & Co., sem ^’J
nú eru notuð á „Bio- QjJ
Caféen“ í Vestm-eyjum (jr
eru þau bestu, hvað
styrkleik og hljómfeg-
urð snertir, sem ég hing-
að til hefi reynt.“
Nánari upplýsingar hjá
Jóni Gunnarssyni, á skrif-
stofu Eggerts Kristjánsson-
ar & Co. Reykjavík.
Einkaumboð:
Radioverslun íslands
Reykjavík
■Si