Tíminn - 15.06.1929, Síða 3
TÍMINN
139
þin'gi, hvort fyrir sig samþykt, að
samningur sá, sem felst í þessum
lögum, sé úr gildi feldur".
Hér er beinlínis gert ráð fyrir
því að endurskoðun verði að fara
fram áður samningurinn geti orð-
ið „úr gildi feldur“. Af þessu
verður ljóst að nákvæmlega er
rétt til orða tekið hjá Tímanum.
Um hitt lét Tíminn ósagt, að svo
stöddu, til hverra úrslita endur-
skoðunin myndi leiða, en benti
jafnframt á, að fresturinn væri
dýrmætur tími sem þjóðin yrði að
nota „til þess að vinna sér and-
legt og efnalegt sjálfstæði“, til
þess að vera viðbúinn. Er það í
fullu samræmi við stefnu Fram-
sóknarmanna en í ósamræmi við
stefnu Sig. Eggerz, sem leggur
alt kapp á fleipur og gaspur, en
gerir bandalag við hverskonar öfl
andleg og fjármunaleg, er fjand-
samlegust hafa verið íslensku
sjálfstæði og ágengust til gróða-
bragða á kostnað lands og þjóðar.
Nýtt íhaldsblað,
„Framtíðin“, er byrjuð að koma
út. Ritstjórinn er geðbilaður
vesalingur, sem venjulega er kall-
aður „Napoleon“. Lárus Jóh.
leggur til peningana í útgáfuna
og innblæs geðveiklinginn. Andi
og efni blaðsins er samboðið iút-
gefendunum. Áður voru verstu
skrílblöð Ihaldsins „guðskistuút-
gáfan“ á Akureyri, kvennablað
Ingvars Sigurðssonar, sem Sigur-
björg systir Jóns Þorlákssonar
ritar flest fúkyrðin í, og svo
Stormur Magnúsar. En nú kernst
litli Lárus hærra með Napoleon
sinn. Hinsvegar er erfitt 'að segja
hvar íhaldið nær sínu endanlega
marki í því, sem er ilt og and-
styggilegt í blaðamensku.
A. + B.
Vinnuhælið og siæpingjainir.
I sambandi við fyrirhugaðar
umbætur í hegningarmálunurn
voru að tilhlutun dómsmáJaráð-
herrans borin fram á þingi 1928
og samþykt log um breytingu á
hegningarlögunum, þar sem heim-
ilað er að taka fasta slæpingja,
óreiðumenn og óreglumenn, bjóða
þeim sæmileg^á vinnu, og $f þeir
þekkjast hana ekki, þá að þvinga
þá til vinnu á vinnuhæli ríkisins.
Nú er það kunnara en frá þurfi
að segja, að í landinu eru margii’
skillitlir menn og óreiðusamir,
feður óskilgetinna barna, verk-
lausir óreglumenn, sem ganga um
og svíkja fé út úr almenningi
undir margvíslegu yfirskyni o. fl.
þessháttar þjóðfélagsleg afstyrmi.
— Mæður, sem hafa ratað í þá
ógæfu, að eiga börn með slík-
um mönnum, hafa haft æma
skapraun af árangurslausum til-
raunum að innheimta bai’nsmeð-
lög hjá þeim, enda gerast þeír
margir landshornamenn, svo að
örðugt er að hafa hendur i
hári þeirra. Með stofn-un vinnu
hælisins á Litlahrauni og þessum
breytingum á löggjöfinni hefir
mjög breyst aðstaða þessara
manna. Lögreglustjórinn í Reyikja-
vík ritaði fátækranefnd borgar-
innar nýlega, þar sem hann leit-
aði eftir samvinnu bæjarstjómar-
innai’ um að láta slæpingja og
vanskilamenn slíka sem hér um
ræðir og sem ekki in-tu af hönd-
um borgaralegar skyldur sæta
þvingunarvinnu samkvæmt lögum,
ef þeir ekki bættu ráð sitt.
Stjórnarvöld bæjarins tóku boðinu
þakksamlega. Var síðan saminn
listi yfir alla slæpingja og óreiðu-
menn slíka, er til saka eiga að
svara hér í bænum. Brá þá svo
við, að mennirnir komu sjálfkrafa
hver af öðrum, og gerðu skil. Tím-
inn vill vekja athygli löggæslu-
manna og fátækrastjórna hvar-,
vetna á landinu á þessarí breyttu
aðstöðu, heimildinni til þess að
beita slíkri þvingun, aðstöðunni
til þess vegna vinnuhælisins og
nauðsyninni að hafa hendur í
hári >þeirra manna er þann veg
leitast við að akast undan borg-
aralegum skyldum.
Seigur undir tönninni
ætlar Einar Jónasson fyrram
sýslumaður Barðstrendinga að
reynast. Fyrst tókst honum að
blekkja svo Jón ' Þorláksson og
endurskoðendur hans, að þeir
fundu ekki 140 þús. kr. sjóðþurð-
ina. Þegar svo að Framsóknar-
stjórnin hafði fundið fjársvikin
sett Einar frá embætti gerðist
Mbl. ginningarfífl hans og vildi,
gera han-n að einskonar hetju.
Magnús Kristjánsson stefndi Ein-
ari þegar fyrir hönd ríkissjóðs
um hina miklu skuld. Jóh. bæjar-
fógeti ■ sýndi alla hugsanlega
tregðu og fýlu í að framfylgja
málinu, og var síst að hugsa um
að bæta úr afglöpum íhaldsmanna
í þessu efni. Eyddi Jóhannes
málinu til hálfs. Loks komst
lielmingur svikamálsins fyrir
Hæstarétt og var Einar dæmdur
til að greiða yfir 60 þús. kr., en
um meirihluta skuldarinnar gekk
annað mál, sökum tafanna hjá
Jóh. Jóh. Nú væntu menn að dóm-
ur Hæstaréttar mundi líka ganga
í síðara málinu, svo að landssjóð-
ur gæti sem fyrst fengið skula
sína hjá Einari. En þá kemur sú
frétt frá Hæstarétti, að sökum
megnra, anna geti hann ekki kom-
ist yfir að dæma í síðara fjár-
svikamálinu. Dómurinn þurfi
brátt að taka sumarfrí sitt, fram
til hausts, og- á meðan verði skuld
Einars að bíða. Á hinn bóginn
neitar Einar að viðurkenna dóra
hæstaréttar viðvíkjandi fyrri
hluta skuldarinnar, og skýtur
kröfu ríkissjóðs um fjárnám enn
til Hæstaréttar. En- sbkum anna
og sumarleyfis kemur sú krafa þá
heldur ekki til afgreiðslu fyr en
í haust eða vetur. Má þessi mestj
fjársvikari meðal allra íslenskra
sýslumanna fyr og síðar sannar-
lega vera Ihaldinu og forsjóninni
þakklátur, fyrst Jóni Magnússyni
fyrir að veita honum embættið,
Sig. Eggerz fyrir að láta hann
eftirlitslausan, Jóni Þorl. fyrir að
fimja ekki „skekkjuna“, Mbl. fyrir
hetjudýrkunina, Jóh. Jóh. fyrir
tregðuna að dæma, og forsjóninni
fyrir að leggja í einu á Hæstarétt
taumlaust annríki allan veturinn
og svo frí alt sumarið. Y.
Fýluför Sig. Eggerz í Dali.
Eftir fundimi í Búðardal, þar
sem ’Sig. Eggerz mætti engri
blíðu frá hendi kjósenda sinna,
hóf hann yfirreið um Dali til þess
að halda leiðarþing. Hafði hann
auglýst vandlega leiðarþing á
Staðai’felli og komu 5 kjósendur.
Á næsta fundarstað enginn. Þá
spurði Sigurður uppi 20 vega-
gerðarmenn, sem vofu saman-
komnir á einum stað, fór hann
þangað sem skyndilegast og pré-
dikaði yfir þeim eftir vinnutíma!
Á næstu 2 fundi komu milli 10 og
20 menn. Þá gafst Eggerz upp
og lét af fundahöldum! Munu fá
eða engin dæmi þess, að nokkur
þingmaður hafi farið slíka fýlu-
för til kjósenda sinna, sem hinn
nýbakaði Ihaldsmaður SÍg. Egg-
erz fór að þessu sinni.
„Magnús einskisvirti44.
Morgunbl. 12. þ. m. getur þess,
að á fundi í Sikaftafellssýslu hafi,
af hálfu Ihaldsmanna, farið rit-
stjórarnir Jón Kjartansson og
Árni Jónsson. En blaðið þegir um
það, að Magnús nokkur Storms-
ritstjóri, sem nefndur er einnig
„stauparéttar“-dómari og „bruna-
bótaspilari“ var og með í þeirri
för. Svo rótgróin er andstygð
Ihaldsmanna á þessari vesælustu
fótaþurku þeirra, að blátt bann
er lagt fyrir að nefna harm sjálf-
ann eða málgagn hans á nafn í
Mbl., enda er það aldrei gert.
----o-----
Fhnleikaflokkur kvenna frá Akur-
eyri kom hingað til Reykjavíkur ný-
lega og sýndi listir sínar undir
stjórn Árrnanns Dalmannssonar leik-
fimiskennara. Var flokknum tekið
hér hið besta.
Fréttír.
Frá forsætisráðherra. „Politiken"
liefii’ nýlega flutt viðtal við Tryggva
pórhallsson forsætisráðherra. Hefir
ráðherrann gefið yfirlit um þær stór-
stígu framfarir, sem um þessar
mundir eru að verða í atvinnuvegum
íslendinga, einkum landbúnaði og
góðæri það, sem nú gengur yfir til
lands og sjávar. Af þingmálum síð-
aata þings eru tilgreind Búnaðarbani;-
inn og verðfesting krónunnar. —
„Morgenbladet", aldanska, fer lofsam-
legum orðum um ráðherrann, svo eig’'
eru öll donsk Morgunbl. eins. —
Meðal erinda forsætisi'áðherrans er
uð leita tilboða og gera samning um
byggingu útvarpsstöðvar íslands og
að leita eftir hæfum manni, til þess
að standa íyrir þeirri stofnun sem
a að annast vísindalegar rannsóknir
i þágu atvinnuveganna, eigi sist á
alidýrasjúkdómum á íslandi.
Sambandsþíng U. M. F. í. hefst á
þriðjuduginn kemur (18. júni). pingið
verður háð að þrastarlundi í þrastar-
skógi.
Benedikt G. Waagc, forseti íþrótta
sumbands íslands, varð fert.ugur í
guu'. þaö mun ekki ofmælt að Bene-
dikt Waage sé einhver atkvæðamesti
forvígismaður iþróttamálanna liér ú
landi. Hann ej- fjölhæfur iþróttamað-
urn með brennandi áhuga fyrir fram-
gangi íþróttanna, einlæga og sterka
trú á þroskagildi þeirra.
Sænsku flúgmennirnir, sem fyrr
\ar um getið, að ætluðu að fljúgu
irá Stokkhólmi til New York lögðu
á stað á sunnudaginn var, en urðu
uppiskroppa með bensín og urðu að
setjast á Skaftárós. Voru varðskipin
aðvöruð og héldu þegar á vettvang'.
.Var vélin drégin til Vestmannaeyja.
þaðan flugu Svíarnir siðan og komu
hingað kiukkan rúml. 7y2 á mánu-
dagskvöldið. Var uppi fótur og fit hér
í Reykjavík og hlutu flugmennirnir
mjög virðulegar og alúðlegar viðtök-
ur. I-Iöfðu þeir meðferðis kveðjui':
bréflega frá Rolf Tommesen til for-
sætisráðherra íslands og frá Björg-
vinjarbúum til Reykvíkinga. — Flug-
mennirnir heita Ahrenberg, Flodén og
Ljunglund, vasklegir menn. — Fram-
haldsflug þeirra héðan hefir gengiö
tafsamlega. Hafa þeir tvisvar lagt
af stað, en snúið aftur vegna smá-
bilana. . Hafa og veður ekki Verið
hentug til landtöku við Grænland. En
Flugmennirnir fara sér að engu óðs-
lega, sem rétt er, því tilgangur þeirra,
er að gera jafnframt athuganir um
flugleiðina á þessum slóðum.
Simun av Skarði skólastjóri í Fær-
eyjum er staddur hér í bænum-. Hann
er einn af merkustu mönnum Fær-
eyinga, eldheitur sjálistæðismaður og
mentafrömuður. Harm er mikill þjóð-
ernissinni og íslandsvinur og talar
ísienslcu mætavel. Ungmennafélagið
Veivakandi og ýmsir vinir Simuns
héldu iionunr fagnaðarsamsæti við
kotnu hans hingað. Er gott að hljóta
heimsókn slíkra manna.
Landsmálafundir. íhaldsmenn hoða
til landsmálafunda á þessum stöðunr:
Borgarnesi 24. júní, Akureyri 28. júni,
Grund i Eyjafirði 29., og Sigiufirði
30. Seyðisfii'ði 28., Norðfirði 30. júni,
Eskifirði 2. júlí, Reyðarfirði 3. júli,
Ekkjufelli á Héraði 4. júlí, Fossvöll-
unr 5. júli, þingmúla 6. júlí, Vopna-
firði 7. júli, Eydölum 10. júlí og á
Djúpavogi 11. júlí. Munu einhverjir
verða latgengir frá slætti á fundi
hins nýja „gi'útar“-konungs Jóns þor-
lákssonar.
Marteinn Binarsson kaupnraður hef-
ir' nýlega iokið við að reisa stór-
hýsi á Laugavegi 31 hér í bænunr.
Er sölubúð á tveimur hæðum húss-
ins, en ibúð á þriðju hæö og vöru
geyntsla á fjórðu harð og í kjallara
Sölubúðin er af nýjustu og vönduð
ustu gerð og húsið alt nrjög vandað.
„Attdbýlingarnir“. Leikfélagið sýndi
a fimtudagskvöldið fyrsta leik sinn,
„Andbýlingana" eftir Holstrup, undir
leikforustu hr. Reumerts. Lék hamr
þar sjálfur sem gestur. Leikurinn er
mjög íjörugur gamanleikur og liggur
við að hann sé um of öfgakendur.
Munu álrorfendur ljúka upp einum
munni um það, að leikur Reumerts
lreri langt af flestu því, sem hér hefir
sést, sömutegundar. Er þó talið, að
hæfileikar hans liggi eigi síður á öðr-
úm sviðunr leiklistarinnar. Eigi lók
ungfrú Anna Borg að þessu sinni.
Kardínálaheimsókn. Von er virðu-
legrar heimsólmar hingað til lands
í næsta mánuði, er hingað kemur
Van Rossum kardínáli til þess að
Byggingarefni
„ETERNIT“-þakhella er endingarbesta og ódýrasta þakefnið.
„Eternit“ er búið til úr „Asbest“ og sementi, og verður því
sterkara og seigára með aldrinum.
„Eternit“ þolir best allra þakefna umhleypingasama veðráttu.
„Eternit“ hefir þann stóra kost að vera létt í sér. Þakviðir
* þurfa því ekki að vera sterkari en undir bárujám.
„Eternit“ má leggja á „Lektur“ eingöngu eða borðasúð, án
þess að lista þurfi undir. Vinnait við að leggja „Eternit“ er lítið
meiri en við bárujám.
„Eternit“-báruplötur fást í sþmu stærðum og bárujárn.
„Eternit“-klæðningsplötur fást í 1—3 fermetra stærðum. Besta
efni, sem hægt er að fá til þess að klæða með hús utan, í staðinn
fyrir járn, eins til þess að klæða með fjós og önnur peningshús
innan. „Eternit“ er ágætur einangrari fyrir hita og kulda.
„Eternit'* þarf aldrei að mála, á því er enginn viðhaldskostn-
aður.
„Eternit“ fæst í gráum, bláum og rauðum lit.
„HALMI'F'-veggplötun eru búnar til úr hálmtægjum ásamt
ýmsu rakaverjandi efni. 1 cm. þykt^ „Halmit“ einangrar eins vel
fyrir raka og kulda og 17 cm. þykkur steinsteypuveggur.
„Halmit“-plötur má setja innan á alla veggi, hvort sem heldur
er fast á múr eða á trélista. Plöturnar eru svo sléttar, að það
má líma veggfóður á þær.
„Halmit“-plötur fást í mörgum stærðum og er fljótlegt að
negla þær upp. Auk þess sem „Halmit“ einangrar margfalt bet-
ur fyrir kulda en viðarþiljur, er það ódýrara.
VEGGJAKORK. „Expanko“-Tsolationplader frá A/S „SANO“
er besta einangrunarefnið, sem hægt er að fá.
KORKGÓLF. „Expanko“-Kork-Parket. Korkplötur sem lagðar
erú á gólf í staðinn fyrir „Linoleum“, fást í ýmsum litum og
gerðum. Þessi gólf eru falleg, hlý og endingargóð.
„ULTRA“-gler. Ultrafjólubláu geislamir komast í gegnum
þetta rúðugler. Með því að nota „Ultra“-gler í hús yðar njótið
þér læknandi áhrifa sólarljóssins, jafnt inni sem úti.
Skrifið ef þér óskið eftir sýnishornum og upplýsingum.
Aðalumboðsmaður á íslandi fyrir ofannefndar byggingavörur:
Jón Loftsson
Austurstræti 14. Reykjavík. Sími 1291.
Héraðssamb. Skarphéðiim.
Héradsmót
verður að Þjórsártúni laugardaginn 29. júní n. k. og hefst kl.
1 eftir hádegi.
Kept verður í íslenskri glímu (2 flokkum), 100 og 800 metra
hlaupi, ýnisum stökkum o. fl.
Nokkrir nemendui’ íþróttaskólans í Haukadal sýna fimleika.
Sigurður Greipsson stjórnax.
Ennfremur verða til skemtunar ræðvu’, söngur og dans.
Héraidssýiaing
á heimilisiðnaði verður haldin að Skeggjastöðum í Hraungerðis-
hreppi dagana 27.—30. júní. — Héraðsmótsdaginn verða bílar í
föram milli Skeggjastaða og Þjórsártúns, til hægðarauka fyrir
mótsgestina, sem komast vilja á sýninguna.
-- Héraðsstjómin.
vígja hina nýju íoi'kunnarfögra
kirkju í Laiulakoti. Verða i fylgd
með honum fjórir embættismenn
páfarikisins og kaþólskir biskupar
frá Svíþjóð og Danmörku. Jafnframt
þvi sem kirkjan verður vígð verður
Meulenberg præfekt vígður biskup.
Verður hann þá fyrstur kaþólskur
bislcup á íslandi síðan Jón Arason
leið. Kardinálinn er næstur páf-
nnum að tign innan kaþólsku kirkj-
unnar. Er þetta öðru sinni, sem hann
heimsækir ísland. Fór orð af þvi
viða um heim, er liann var hér síð-
ast á ferð, hversu smekkvíslegar og
alúðlegar hefðu verið viðtökur ís-
lendinga og var liaft við orð, að önn-
ur mótmælendalönd mættu af ís-
landi lau'a í því efni. Er vel farið,
hvað sem trúarskoðunum líður, að
við séum ekki eftirbátar í siðmenn-
ingu, alúð og kurteisi, er svo tigna
gesti ber að garði, sem Van Rossum
kardínála.
Forstjóraskifti verða við Eimskipa-
félag íslands um næstu áramót. Hefir
Emil Nielsen sagt starfinu lausu, en
ráðinn er í hans stað Ólafur Benja-
minsson kaupmaður.
Hefðarf rúr
og meyjar nota altaf hið
ekta austur-
landa
ilmvatn
Furlana.
Útbreitt
um allan
heim.
Þúsundir
kvenna
nota það
+n)HANA
t* eingöngu.
Fæst í smáglösum með
skrúftappa. Verð aðeins 1 kr.
í heildsölu hjá
H.f. Efnagerð Reykjavikur.
Ritstjóri: Jónas Þorbergsson.
Ásvallagötu 11. Sími 2219.
Prentsmiðian Acta.