Tíminn - 10.08.1929, Síða 3

Tíminn - 10.08.1929, Síða 3
TlMINN 177 Heimilisiðnaðarfélag Islands Vefnaðamámsskeið verður haldið í Reykjavík á komanda vetri, frá 5. janúannán. til 5. aprílmán. 1930. Kenslugjald 75 kr., er greiðist fyrirfram. Alt efni til námsskeiðsins fæst á staðnum. Sjö stunda kensla á dag. Kennari Brynhildur Ingvarsdóttir. Umsóknir ber að senda fyr- ir 1. nóv., til formanns félagsins, Guðrúnar Pétursdóttur Skóla- vörðustíg 11 A. Reykjavík. (Sími 345). HAGLABYSSUR ein- og tvíhleyptar Kal. 10, 12, 16 og 20. — Verð frá kr. 45.00. — GECO SPECIAL haglaskot, fjár- skot, púður, högl, hvellhettur o. fl. MAUSER fjárbyssur, Rifflar. — Sportvönihús Reykjavíkur (Einar Bjömsson). Símn.: Sportvöruhús. Box 384. TAPAST HEFIR skolbrúnn reiðhestur vel vakur, styggur, með litla stjörnu í enni, og síðutökum, ættaður frá Breiða- bólstað í Fljótshlíð. Þeir sem yrðu varir við téðan hest, gjöri svo vel að gjöra undirrituðum viðvart sem fyrst. Guðjón Ólafsson, Stóra-Hofi, Gnúpverjahreppi, Árnessýslu. ieiizigu messt. Haustkaupstefnan byrjar: Almennar vbrusýningar 25.-31. ágúst Byggingarvörur 25.-31. - Vefnaðarvörur , 25.-28. - Sportvörur 25.-29. - Allar upplýsingar hjá Leipziger Messamt Leipzig G. I., Markt 4. og Hjalti Björnsson <fc Co, Reykjavík. ið. Og þá gætu allir þeir læknar sem eftir yrðu hjá læknafélags- harðstjórunum fengið hjartaslag og dáið um leið. Hinir óánægðu læknar munu sanna, að þeir gera ekki alla sína félaga ánægða, þótt þeir geri byltingu, að austrænum sið. n. Frá Barðstrendingum. .... Ihaldsflokkurinn virðist hafa ofmetnast af því að hafa fengið liðsmann frá okkur Barð- strendingum um langt skeið, og er engu líkara en að flokkurinn sé farinn að líta á héraðið sem eign sína t. d. eins og stórveldi ný- lendu. Hygst hann að geta lokað héraðinu líkt og Danir Grænlandi. Blaðið Vörður fjandskapast út af því að miðstjóm Framsóknar- flokksins efndi til landsmálafund- ar í héraðinu um sama leyti og slík fundahöld áttu sér stað víðs- vegar úrn land, kallar blaðið þetta flugumensku. Er Ihaldinu ekki nóg af hafa afskifti um hvers- konar venklegar framkvæmdir aðrar en símalagningu, sem þó var dregin þangað til nauðsyn annara héraða þoldi ekki lengur bið, heldur vill það setja sýsluna í einskonar andlegt samgöngu- bann, þar má eigi rökræða um hin mismunandi sjónarmið í landsmál- unum. Þótt okkur sumum Barð- strendingum hafi þótt Hákon Kristófersson hæfilegur þingmað- ur fyrir okkur, þá er það ekki alveg víst að við viljum vinna svo mikið til þess að halda honum í framtíðinni, að við viljum láta setja okkur á bekk með sikrælingj- unum í Grænlandi. (Ur bréfi). Barðstrendingur. Léleg rök. eru það hjá Alþýðublaðinu í gær, að dómsmálaráðherrann muni hafa sett Steinþór Guð- mundsson skólastjóra á Akureyri frá embætti til þess að „blíðka íhaldið“ út af frávikningu manns úr stjórnarráðinu. Slík rök eru Morgunblaðs-leg í mesta lagi. Eða hefir riststjóri Alþbl. reynt' ráð- herrann að svo miklum skorti á hugrekki, að hann fremji slík hermdarverk, sem frávikning bygð á þessháttar ástæðum myndi vera, vegna hræðslu við ritstjóra Morgunblaðsins! Fráleitara rök- þrot er ekki hægt .að hugsa sér og mun Alþbl. gera skólastjóran- um bjarnargreiða með því, að stofna til umræðna um málið. -5- Annars má telja ánægjulegt fyrir Framsókn að sitja fyrir ádeilum, þar sem rökvísi og sanngimi verður svo hnífjöfn frá báðum hliðum. Mbl. bregður ráðherrun- um um hræðslu við Jafnaðarmenn, en Alþbl. bregður þeim um hræðslu við íhaldið. Afleiðingin verður sú, að Framsókn brosir jafnt í bæði munnvik og sikamtar hverjum það, sem honum ber. ---------------- Frétílr. Úr Skaitártungum. Fyrir rúmri viku síðan laust niður aldingu i gaddavírsgirðingu hjá Syðri-Steins- mýri i Meðallandi. Girðingin eyði- lagðist á 30 íaðma svæði, vírþræð- irnir suðust meira og minna saman og kubbuðust sundur að nokkru leyti í örsmáa búta, en staurarnir tvístruðust. Tveim dögum seinna kom önnur elding, sem laust niður svo nærri bænum á Steinsmýri að hann hristist mjög mikið. Grasspretta er með besta móti hér sunnanlands og nýting heyja ágæt. RektorsembættlS við Reykjavíkur- skóia er nú auglýst laust til um- sóknar. Varðskipið pór er nú við dýptar- mælingar á Húnaflóa innanverðum. Vélbátur aðstoðar varðskipið við mæl- ingarnar. Vilhjálmur kardiiráli fór héðan með Gullíossi 27. f. m. Ótölulegur fjöldi iólks var við brottför skipsins, en smámeyjar hvítklæddar færðu kardi- nála blómvendi. Er Gullfoss lagði frá landi lék Lúðrasveit Reykjavík „Ó, guð vors lands“, en kardináli bless- aði yfir lýðinn. Lauk þannig komu þessa tigna gests. Herra Marteinn biskúp í Landakoti öefir gefið íþróttafélagi' Reykjavíkur iiina gömlu kirkju hins kaþólska safnaðai’. Verður hún nú flutt þang- að sem elsta kaþólska kirkjan hefir staðið og útbúinn glímusaiur og bað- kiefar i kjallara. Gjöfin er þó því skilyrði bundin að börn Landakots- skólans fái að nota' liana fyrir leik- fimissal. Kirkjan hefir verið af- iielguð. Ólafur Marteinsson meistari í nor- rænu, fór með „Mercur“ síðast til Noregs. Svo er ráð fyrir gert, að næsta vetur haldi hann fyrirlestra við háskólann i Osló um bókmentir og sögu Islands> Sundfélag Reykjavíkur hefir fengið að gjöf vandaðan kappróðrarbát, frá Hjalta Jónssyni fyrrum skipstjóra. Kristjáu Maynússon heitir ungur listamaður ættaður frá ísafii'ði. Hann fór vestur um haf fyrir rúmum 8 arum og hefir lengst af dvalið í Boston. par hefir liann lokið prófi við listaskóla, eftir 5 ára, nám, en hefir síðan unnið með frægum málurum og liið síðastliðna ár með Mr. Winter, sem er ráðunautur Bandai'íkjastjórn- ar viðvikjandi fögrum listum. Myndir lians hafa hlotið góða dóma á sýn- ingum vestra. Dýpkunarskipið „Uffe“ er farið til Boi’garness og aðstoðar við hafnar- gei’ðina þar. E. V. Gordon prólessor við háskói- ann í Leeds er nýkominn liingað til iands og gerir ráð fyrir að dvelja hér um hríð. Bækur Sögufélagsins eru nýkomnar út. Eru það Landsyfirréttardóma!', og hæstaréttardómar, eitt liefti af Alþingisbókum íslands, tíu arlúr af þjóðsögum Jöns Árnasonar og annað liefti 4. bindis af hinni margfróðu „Blöndu", en bæði hún og þó eink- um þjóðsögur .1. Á. hafa mjög aflað félaginu vinsælda. Saga Reykjavíkur eftir Klemens Jónsson fyrrum ráðherra er komin út. Er það fyrra bindið, nálega 300 blaðsíður og prýtt fjölda mynda. Bæjarsjóður Reykjavíkur kostar út- gáfuna. Norrænn þingmannafundur var haldinn í Osló í sumar. Ásgeir Ás- geirsson sótti fundinn héðan. Var þar ákveðið að næstf þingmanna- fundurinn norræni yrði haldinn í Reykjavík næsta sumai’. Líklega koma um 00 þingmenn og sérstakt skip verður leigt til fararinnar. „Nóva“ rakst á liafísjaka á Húna- íióa 25. júlí, og laskaðist svo að sjór féll'inn í fremra lestarrúm. Var við- húið að skipið myndi sökkva, en þó komst það heilu og höldnu til Isa- fjarðai'. Var þar gert við það til bráðabii'gða. Ásmundur Sveinsson myndhöggvarl og Gunnfríður Jónsdóttir kona hans eru komin hingað til lands. Dv.elja þau nú hjá foreldrum Ásmundar í Eskihólti í Borgarfirði. Mun Á§- mundur ef til vill dvelja hér á landi nsésta vetur. Jónas Jónsson ráðherra tók sér far með Brúarfossi til útlanda á mið- vikudagskvöldið, ásamt konu sinni og dóttur. Meðal erinda hans er það að sitja fund lögjafnaðamefndarinnar. — Með sama skipi tók sér far Magn- ús Torfason sýslumaður. Ritstjóri Tímans kom heim fyrra föstudagskvöld eftir allanga ferð um Vestur- og Norðurland. Norðanlands var hvarvetna gó5 grasspretta og hin nkjósanlegasta he.yskapartíð, það sem at var slætti.-Með þessu blaði tekur ritstjóri Tímans ai'tur við blaðinu og Jvakkar jafnframl Ragnari' Ásgeirssyni \el unnið starf 1 íjarveru sinni. Landsímastjórinn kom á miðviku- dagskvöldið heim úr för sinni austur á Skeiðársand, þar sem unnið hefii verið að því að tengja saman hina nýju símalínu. Hefir enn ekki þótt fært að ijúka því verki, vegna þess að vötn liafa breytt sér mjög á sand- inurn undanfarið. Hafa SkeiðarA, Núpsvötn og fleiri vötn þorrið, en stórmikið vatn fallið í svonefndan Háöldukvísiarfarveg, þar sem eigl hefir vatn fallið um tugi ára. þykir Skeiðarárskriðjökullinn venju fremur úfinn og viðsjárverður og ekki fjarri að búast megi við lilaupi í Skeiðará þá og þegar. En í hlaupum árinnar stenst ekkert er fyrir verður. Mun þvi dragast að lokið verði gerð sím- ans á þessari leið, uns séð verður hvort hlaup verður að þessu sinni eður eigi. í skólum, þar til landsstjómin leigði tvo báta nokkrar vikur í vor, sem leið handa mentaskóla- piltum. Stofnuðu þeir þá þegar róðrarfélag' og urðu nálega hálft annað hundrað. Sóttu þeir íþrótt þessa knálega og sönnuðu með því, ef með hefði þurft, að nem- endur mentaskólans vantaði ekki dug heldur skilyrði til að geta sint íþróttum. Síðastliðinn vetur fór lands- stjórnin fram á, að bærinn gæfi skólanum lóð fyrir leikvöll og bátahús suður við Fossvog. Akur- eyrarkaupstaður hafði þá sér til varanlegs heiðurs, gefið sínum skóla einar 12 dagsláttur af dýr- mætu landi, fyrir leikvelli og ann- að er skólinn þarf með. íhalds- meirihlutinn í bæjarstjórn Rvíkur þverneitaði öllum landgjöfum til mentaskólans, en síðar hefir borg- arstjóri látið vinsamleg orð falla, að ekki myndi standa á lóð undir bátahús við Fossvog. Mun nú reynt í haust eða vetur að koma upp slíku skýli fyrir báta, og hefja síðan róðraræfingar fyrir nemendur, sem hafa til þess rétt- an undirbúning, og vilja sinna því. Má gera sér góðar vonir um að róðrar og knattleikir verði iðkaðir til heilsubóta og hreystiauka héð- an í skólanum. Stjórnin lagði til við síðasta Alþingi, að veittar yrðu 20 þús. kr. til viðgerðar Mentaskólahúss- ins, og er sú viðgerð hafin, en verður tæplega lokið fyr en næsta Menn urðu hissa á tvennu í þessu sambandi. Fyrst að skólinn, elsti, dýrasti, fjölmennasti og áhrifa- ríkasti skóli landsins væri í raun og veru að mörgu leyti í himii mestu niðurlægingu, sökum áhuga- og þekkingarleysis undan- farandi landsstjóma um öll slík mál, og í öðru lagi voru víst margir fundarmenn undrandi yfir því að svo virtist, sem Framsókn- arstjórnin myndi ekki láta sér nægja að leysa flokksmál sitt, að koma upp framhaldskenslu á Akureyri, sem mátti segja að væri bæði hagnaðar- og metnaðarmál mentaðrai- bændastéttar, heldur líka að sinna mentaskólanum í Rvík, og vinna jöfninn höndum að umbót beggja skólanna, með þarfir alls landsins fyrir augum. Einn merkileg upplýsing kom fram á fundi þessum, í ræðu eins af kennurum mentaskólans, sem þá vai’ nýkominn heim úr ferð erlendis og heimsókn til margra mentaslkóla. Kvaðst hann hafa> | heimsótt 25 slíkar stofnanir í næstu löndum. Hefðu 24 verið betur útbúnar en Rvíkurskólinn, en aðeins ein lélegri. Lakara var hitt, að einn af þedm mönnum, sem ætla mætti, að bæri hag skólans fyrir brjósti, gerði á þeim fundi gys að þeim, sem flytja vildu hin blautu vosklæði nem- enda út úr kenslustofunum, eins og annars gerist hjá fólki, sem ekki hefir hin hörmulegustu húsa- kynni. Síðan þá hefir, hægt og hægt, verið unnið að endurbótum við Mentaskólann, og er þó meira ógert enn, sem að líkindum læt- ur, þar sem um svo magnaða van- rækslu var að ræða. Fyrsta um- bótin var að setja loftdælu í skól- tann á efsta loft og dæla með raforku hreinu lofti inn í allar kenslustofur. Vorið 1928 var ekki tekinn nema einskiftur fyrsti bekkur, í stað þess að sá bekkur hafði jafnan hin síðari ár verið tvískiftur og nálega eingöngu nemendur úr Rvík. Með þeim hætti var unt að losna við úti- húsið niðri í bæ og hafa alla nem- endur í skólanum sjálfum. Fyrir kennarana var breyting þessi til bóta. Nú fengu þeir úrvalsbekk til að starfa með, en svo hafði ekki verið ætíð áður, þegar svo að segja hver var tekinn, sem í skól- ann vildi ikoma. Eftir að kenslu lauk vorið 1928 var hafist handa með byrjun á aðgerð í skólanum. Var blaða- mönnum boðið að sjá útlit skól- ans eins og hann þá var. Engir komu frá Ihaldsblöðunum, en full- trúar frá flestum hinum blöðun- um. Var hér í einu sýnt tómlæti íhaldsins um málefni skólans, en um leið hitt, að flokkurinn mun hafa fundið til nokkurrar ábyrgð- ar fyrir vanrækslu undangenginna ára. Á sömu leið fór í vetur, þeg- ar stjórnin bauð þingmönnum einn sunnudagsmorgun upp í Mentaskóla til að sjá hvað ,búið var að laga og hvað eftir væri. Kom þá enginn einasti Ihaldsþing- maður, og ekki heldur Sig. Egg- erz, sem þá var rétt ógenginn í flokk Mbl., en nálega allir aðrir þingmenn. Sumarið 1928 var gert vand- lega við 5 bekki á neðstu hæð skólahússins, og einn bekkur tek- inn til geymslu fyrir vosklæði nemenda og auk þess gert vand- lega við sal náttúrugripasafnsins á 3. hæð. Gólfin á þessum her- bergjum voru dúklögð, en áður voru þau mjög slitin og hnútótt j og erfitt að halda þeim hreinum. Auk þess var salernum og' þvotta- skálum fjölgað samkvæmt því, sem læknir skólans taldi þurfa eftir tölu nemenda. En sú umbót ætlaði ekki að ganga greitt, því að íhaldið í bæjarstjóminni neit- aði um leyfi til að stækka um nokkur teningsfet anddyrið bak við skólann. Vai'ð því að koma þessari hreinlætisumbót fram gegn vilja yfirstjórnar bæjarmál- anna. I vetur var gerð sú nýjung á kenslunni, að náttúrufræðiskenn- ari skólans fékk lánaðar hinar mjög umtöluðu bifreiðar landsins fáeinum sinnum til að geta kom- ist með hópa af nemendum, stund- um heila bekki, út fyrir bæinn, upp að Esju. Austur í ölfus o. s. frv. til að geta gefið nemendum nokkra hugmynd um hvernig náttúran sjálf er skýrð, öðruvísi en með bókum, og inni í stofum. I áframhaldi af því fóru svo tveir af kennurum skólans með þá af nemendum 5. bekkjar, sem höfðu löngun og tíma, austur í Hornafjörð og dvöldu þar 10 daga við ferða- og rannsóknarlíf. Má telja fullvíst, að þeim sið verði haldið áfram og hver nem- andi í mentaskólunum báðum fái einu sinni meðan skóla.vistin varir slíkt tækifæri til að lesa sjálfur nokkrar línur í bók náttúrunnar. Deyfð mikil hefir á undanföm- nm áratugum verið um íþróttalíf í mentaskólanum. Leikfimi tvisvar í viku hefir verið nálega hin eina aðgang að. Er þó helst að sjá, að jafnvel þessi eina íþrótt hafi ver- ið í litlum ihávegum höfð, því að leikfimin hefir hvergi nærri verið vel sótt, og það ekiki að heldur þó að kennarinn hafi í þeim efn- um veiið manna færastur. Er helst svo að sjá sem viðhorf nem- enda til íþrótta hafi alls ekki ver- ið sem skyldi, og verður þar varla öðru um kent en deyfandi aðbúð ]xings og stjórna. Nú í vetur og vor var nemendum, bæði piltum og stúlkum trygður aðgangur að knattspyrau og teimisvöllum við bæinn og skorti þá ekki áhuga hjá æskunni, þegar skilyrðin fengust. Meiri skriður kom þó á aðra íþrótt í skólanum. Það var róður. Sú íþrótt er ein hin algengasta og vinsælasta í mentaskólum erlend- is, en hér var hún með öllu óþekt

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.