Tíminn - 10.08.1929, Blaðsíða 3
TlMINN
177
Heimilisiðnaðarfélag Islands
Vefnaðamámsskeið verður haldið í Reykjavík á komanda
vetri, frá 5. janúannán. til 5. aprílmán. 1930. Kenslugjald 75 kr.,
er greiðist fyrirfram. Alt efni til námsskeiðsins fæst á staðnum.
Sjö stunda kensla á dag.
Kennari Brynhildur Ingvarsdóttir. Umsóknir ber að senda fyr-
ir 1. nóv., til formanns félagsins, Guðrúnar Pétursdóttur Skóla-
vörðustíg 11 A. Reykjavík. (Sími 345).
HAGLABYSSUR
ein- og tvíhleyptar
Kal. 10, 12, 16 og 20.
— Verð frá kr. 45.00. —
GECO SPECIAL haglaskot, fjár-
skot, púður, högl, hvellhettur o. fl.
MAUSER fjárbyssur, Rifflar. —
Sportvönihús Reykjavíkur
(Einar Bjömsson).
Símn.: Sportvöruhús. Box 384.
TAPAST HEFIR
skolbrúnn reiðhestur vel vakur,
styggur, með litla stjörnu í enni,
og síðutökum, ættaður frá Breiða-
bólstað í Fljótshlíð. Þeir sem yrðu
varir við téðan hest, gjöri svo vel
að gjöra undirrituðum viðvart
sem fyrst.
Guðjón Ólafsson,
Stóra-Hofi, Gnúpverjahreppi,
Árnessýslu.
ieiizigu messt.
Haustkaupstefnan byrjar:
Almennar vbrusýningar 25.-31. ágúst
Byggingarvörur 25.-31. -
Vefnaðarvörur , 25.-28. -
Sportvörur 25.-29. -
Allar upplýsingar hjá
Leipziger Messamt
Leipzig G. I., Markt 4.
og
Hjalti Björnsson <fc Co,
Reykjavík.
ið. Og þá gætu allir þeir læknar
sem eftir yrðu hjá læknafélags-
harðstjórunum fengið hjartaslag
og dáið um leið. Hinir óánægðu
læknar munu sanna, að þeir gera
ekki alla sína félaga ánægða, þótt
þeir geri byltingu, að austrænum
sið. n.
Frá Barðstrendingum.
.... Ihaldsflokkurinn virðist
hafa ofmetnast af því að hafa
fengið liðsmann frá okkur Barð-
strendingum um langt skeið, og er
engu líkara en að flokkurinn sé
farinn að líta á héraðið sem eign
sína t. d. eins og stórveldi ný-
lendu. Hygst hann að geta lokað
héraðinu líkt og Danir Grænlandi.
Blaðið Vörður fjandskapast út af
því að miðstjóm Framsóknar-
flokksins efndi til landsmálafund-
ar í héraðinu um sama leyti og
slík fundahöld áttu sér stað víðs-
vegar úrn land, kallar blaðið þetta
flugumensku. Er Ihaldinu ekki
nóg af hafa afskifti um hvers-
konar venklegar framkvæmdir
aðrar en símalagningu, sem þó
var dregin þangað til nauðsyn
annara héraða þoldi ekki lengur
bið, heldur vill það setja sýsluna
í einskonar andlegt samgöngu-
bann, þar má eigi rökræða um hin
mismunandi sjónarmið í landsmál-
unum. Þótt okkur sumum Barð-
strendingum hafi þótt Hákon
Kristófersson hæfilegur þingmað-
ur fyrir okkur, þá er það ekki
alveg víst að við viljum vinna svo
mikið til þess að halda honum í
framtíðinni, að við viljum láta
setja okkur á bekk með sikrælingj-
unum í Grænlandi. (Ur bréfi).
Barðstrendingur.
Léleg rök.
eru það hjá Alþýðublaðinu í
gær, að dómsmálaráðherrann
muni hafa sett Steinþór Guð-
mundsson skólastjóra á Akureyri
frá embætti til þess að „blíðka
íhaldið“ út af frávikningu manns
úr stjórnarráðinu. Slík rök eru
Morgunblaðs-leg í mesta lagi. Eða
hefir riststjóri Alþbl. reynt' ráð-
herrann að svo miklum skorti á
hugrekki, að hann fremji slík
hermdarverk, sem frávikning
bygð á þessháttar ástæðum myndi
vera, vegna hræðslu við ritstjóra
Morgunblaðsins! Fráleitara rök-
þrot er ekki hægt .að hugsa sér
og mun Alþbl. gera skólastjóran-
um bjarnargreiða með því, að
stofna til umræðna um málið. -5-
Annars má telja ánægjulegt fyrir
Framsókn að sitja fyrir ádeilum,
þar sem rökvísi og sanngimi
verður svo hnífjöfn frá báðum
hliðum. Mbl. bregður ráðherrun-
um um hræðslu við Jafnaðarmenn,
en Alþbl. bregður þeim um
hræðslu við íhaldið. Afleiðingin
verður sú, að Framsókn brosir
jafnt í bæði munnvik og sikamtar
hverjum það, sem honum ber.
----------------
Frétílr.
Úr Skaitártungum. Fyrir rúmri
viku síðan laust niður aldingu i
gaddavírsgirðingu hjá Syðri-Steins-
mýri i Meðallandi. Girðingin eyði-
lagðist á 30 íaðma svæði, vírþræð-
irnir suðust meira og minna saman
og kubbuðust sundur að nokkru
leyti í örsmáa búta, en staurarnir
tvístruðust. Tveim dögum seinna kom
önnur elding, sem laust niður svo
nærri bænum á Steinsmýri að hann
hristist mjög mikið.
Grasspretta er með besta móti hér
sunnanlands og nýting heyja ágæt.
RektorsembættlS við Reykjavíkur-
skóia er nú auglýst laust til um-
sóknar.
Varðskipið pór er nú við dýptar-
mælingar á Húnaflóa innanverðum.
Vélbátur aðstoðar varðskipið við mæl-
ingarnar.
Vilhjálmur kardiiráli fór héðan með
Gullíossi 27. f. m. Ótölulegur fjöldi
iólks var við brottför skipsins, en
smámeyjar hvítklæddar færðu kardi-
nála blómvendi. Er Gullfoss lagði frá
landi lék Lúðrasveit Reykjavík „Ó,
guð vors lands“, en kardináli bless-
aði yfir lýðinn. Lauk þannig komu
þessa tigna gests.
Herra Marteinn biskúp í Landakoti
öefir gefið íþróttafélagi' Reykjavíkur
iiina gömlu kirkju hins kaþólska
safnaðai’. Verður hún nú flutt þang-
að sem elsta kaþólska kirkjan hefir
staðið og útbúinn glímusaiur og bað-
kiefar i kjallara. Gjöfin er þó því
skilyrði bundin að börn Landakots-
skólans fái að nota' liana fyrir leik-
fimissal. Kirkjan hefir verið af-
iielguð.
Ólafur Marteinsson meistari í nor-
rænu, fór með „Mercur“ síðast til
Noregs. Svo er ráð fyrir gert, að
næsta vetur haldi hann fyrirlestra við
háskólann i Osló um bókmentir og
sögu Islands>
Sundfélag Reykjavíkur hefir fengið
að gjöf vandaðan kappróðrarbát, frá
Hjalta Jónssyni fyrrum skipstjóra.
Kristjáu Maynússon heitir ungur
listamaður ættaður frá ísafii'ði. Hann
fór vestur um haf fyrir rúmum 8
arum og hefir lengst af dvalið í
Boston. par hefir liann lokið prófi við
listaskóla, eftir 5 ára, nám, en hefir
síðan unnið með frægum málurum og
liið síðastliðna ár með Mr. Winter,
sem er ráðunautur Bandai'íkjastjórn-
ar viðvikjandi fögrum listum. Myndir
lians hafa hlotið góða dóma á sýn-
ingum vestra.
Dýpkunarskipið „Uffe“ er farið til
Boi’garness og aðstoðar við hafnar-
gei’ðina þar.
E. V. Gordon prólessor við háskói-
ann í Leeds er nýkominn liingað til
iands og gerir ráð fyrir að dvelja
hér um hríð.
Bækur Sögufélagsins eru nýkomnar
út. Eru það Landsyfirréttardóma!',
og hæstaréttardómar, eitt liefti af
Alþingisbókum íslands, tíu arlúr af
þjóðsögum Jöns Árnasonar og annað
liefti 4. bindis af hinni margfróðu
„Blöndu", en bæði hún og þó eink-
um þjóðsögur .1. Á. hafa mjög aflað
félaginu vinsælda.
Saga Reykjavíkur eftir Klemens
Jónsson fyrrum ráðherra er komin
út. Er það fyrra bindið, nálega 300
blaðsíður og prýtt fjölda mynda.
Bæjarsjóður Reykjavíkur kostar út-
gáfuna.
Norrænn þingmannafundur var
haldinn í Osló í sumar. Ásgeir Ás-
geirsson sótti fundinn héðan. Var
þar ákveðið að næstf þingmanna-
fundurinn norræni yrði haldinn í
Reykjavík næsta sumai’. Líklega
koma um 00 þingmenn og sérstakt
skip verður leigt til fararinnar.
„Nóva“ rakst á liafísjaka á Húna-
íióa 25. júlí, og laskaðist svo að sjór
féll'inn í fremra lestarrúm. Var við-
húið að skipið myndi sökkva, en þó
komst það heilu og höldnu til Isa-
fjarðai'. Var þar gert við það til
bráðabii'gða.
Ásmundur Sveinsson myndhöggvarl
og Gunnfríður Jónsdóttir kona hans
eru komin hingað til lands. Dv.elja
þau nú hjá foreldrum Ásmundar í
Eskihólti í Borgarfirði. Mun Á§-
mundur ef til vill dvelja hér á landi
nsésta vetur.
Jónas Jónsson ráðherra tók sér far
með Brúarfossi til útlanda á mið-
vikudagskvöldið, ásamt konu sinni og
dóttur. Meðal erinda hans er það að
sitja fund lögjafnaðamefndarinnar.
— Með sama skipi tók sér far Magn-
ús Torfason sýslumaður.
Ritstjóri Tímans kom heim fyrra
föstudagskvöld eftir allanga ferð um
Vestur- og Norðurland. Norðanlands
var hvarvetna gó5 grasspretta og hin
nkjósanlegasta he.yskapartíð, það sem
at var slætti.-Með þessu blaði tekur
ritstjóri Tímans ai'tur við blaðinu og
Jvakkar jafnframl Ragnari' Ásgeirssyni
\el unnið starf 1 íjarveru sinni.
Landsímastjórinn kom á miðviku-
dagskvöldið heim úr för sinni austur
á Skeiðársand, þar sem unnið hefii
verið að því að tengja saman hina
nýju símalínu. Hefir enn ekki þótt
fært að ijúka því verki, vegna þess
að vötn liafa breytt sér mjög á sand-
inurn undanfarið. Hafa SkeiðarA,
Núpsvötn og fleiri vötn þorrið, en
stórmikið vatn fallið í svonefndan
Háöldukvísiarfarveg, þar sem eigl
hefir vatn fallið um tugi ára. þykir
Skeiðarárskriðjökullinn venju fremur
úfinn og viðsjárverður og ekki fjarri
að búast megi við lilaupi í Skeiðará
þá og þegar. En í hlaupum árinnar
stenst ekkert er fyrir verður. Mun
þvi dragast að lokið verði gerð sím-
ans á þessari leið, uns séð verður
hvort hlaup verður að þessu sinni
eður eigi.
í skólum, þar til landsstjómin
leigði tvo báta nokkrar vikur í
vor, sem leið handa mentaskóla-
piltum. Stofnuðu þeir þá þegar
róðrarfélag' og urðu nálega hálft
annað hundrað. Sóttu þeir íþrótt
þessa knálega og sönnuðu með
því, ef með hefði þurft, að nem-
endur mentaskólans vantaði ekki
dug heldur skilyrði til að geta
sint íþróttum.
Síðastliðinn vetur fór lands-
stjórnin fram á, að bærinn gæfi
skólanum lóð fyrir leikvöll og
bátahús suður við Fossvog. Akur-
eyrarkaupstaður hafði þá sér til
varanlegs heiðurs, gefið sínum
skóla einar 12 dagsláttur af dýr-
mætu landi, fyrir leikvelli og ann-
að er skólinn þarf með. íhalds-
meirihlutinn í bæjarstjórn Rvíkur
þverneitaði öllum landgjöfum til
mentaskólans, en síðar hefir borg-
arstjóri látið vinsamleg orð falla,
að ekki myndi standa á lóð undir
bátahús við Fossvog. Mun nú
reynt í haust eða vetur að koma
upp slíku skýli fyrir báta, og
hefja síðan róðraræfingar fyrir
nemendur, sem hafa til þess rétt-
an undirbúning, og vilja sinna því.
Má gera sér góðar vonir um að
róðrar og knattleikir verði iðkaðir
til heilsubóta og hreystiauka héð-
an í skólanum.
Stjórnin lagði til við síðasta
Alþingi, að veittar yrðu 20 þús.
kr. til viðgerðar Mentaskólahúss-
ins, og er sú viðgerð hafin, en
verður tæplega lokið fyr en næsta
Menn urðu hissa á tvennu í þessu
sambandi. Fyrst að skólinn, elsti,
dýrasti, fjölmennasti og áhrifa-
ríkasti skóli landsins væri í raun
og veru að mörgu leyti í himii
mestu niðurlægingu, sökum
áhuga- og þekkingarleysis undan-
farandi landsstjóma um öll slík
mál, og í öðru lagi voru víst
margir fundarmenn undrandi yfir
því að svo virtist, sem Framsókn-
arstjórnin myndi ekki láta sér
nægja að leysa flokksmál sitt, að
koma upp framhaldskenslu á
Akureyri, sem mátti segja að væri
bæði hagnaðar- og metnaðarmál
mentaðrai- bændastéttar, heldur
líka að sinna mentaskólanum í
Rvík, og vinna jöfninn höndum að
umbót beggja skólanna, með
þarfir alls landsins fyrir augum.
Einn merkileg upplýsing kom
fram á fundi þessum, í ræðu eins
af kennurum mentaskólans, sem
þá vai’ nýkominn heim úr ferð
erlendis og heimsókn til margra
mentaslkóla. Kvaðst hann hafa> |
heimsótt 25 slíkar stofnanir í
næstu löndum. Hefðu 24 verið
betur útbúnar en Rvíkurskólinn,
en aðeins ein lélegri. Lakara var
hitt, að einn af þedm mönnum,
sem ætla mætti, að bæri hag
skólans fyrir brjósti, gerði á þeim
fundi gys að þeim, sem flytja
vildu hin blautu vosklæði nem-
enda út úr kenslustofunum, eins
og annars gerist hjá fólki, sem
ekki hefir hin hörmulegustu húsa-
kynni.
Síðan þá hefir, hægt og hægt,
verið unnið að endurbótum við
Mentaskólann, og er þó meira
ógert enn, sem að líkindum læt-
ur, þar sem um svo magnaða van-
rækslu var að ræða. Fyrsta um-
bótin var að setja loftdælu í skól-
tann á efsta loft og dæla með
raforku hreinu lofti inn í allar
kenslustofur. Vorið 1928 var ekki
tekinn nema einskiftur fyrsti
bekkur, í stað þess að sá bekkur
hafði jafnan hin síðari ár verið
tvískiftur og nálega eingöngu
nemendur úr Rvík. Með þeim
hætti var unt að losna við úti-
húsið niðri í bæ og hafa alla nem-
endur í skólanum sjálfum. Fyrir
kennarana var breyting þessi til
bóta. Nú fengu þeir úrvalsbekk til
að starfa með, en svo hafði ekki
verið ætíð áður, þegar svo að
segja hver var tekinn, sem í skól-
ann vildi ikoma.
Eftir að kenslu lauk vorið 1928
var hafist handa með byrjun á
aðgerð í skólanum. Var blaða-
mönnum boðið að sjá útlit skól-
ans eins og hann þá var. Engir
komu frá Ihaldsblöðunum, en full-
trúar frá flestum hinum blöðun-
um. Var hér í einu sýnt tómlæti
íhaldsins um málefni skólans, en
um leið hitt, að flokkurinn mun
hafa fundið til nokkurrar ábyrgð-
ar fyrir vanrækslu undangenginna
ára. Á sömu leið fór í vetur, þeg-
ar stjórnin bauð þingmönnum
einn sunnudagsmorgun upp í
Mentaskóla til að sjá hvað ,búið
var að laga og hvað eftir væri.
Kom þá enginn einasti Ihaldsþing-
maður, og ekki heldur Sig. Egg-
erz, sem þá var rétt ógenginn í
flokk Mbl., en nálega allir aðrir
þingmenn.
Sumarið 1928 var gert vand-
lega við 5 bekki á neðstu hæð
skólahússins, og einn bekkur tek-
inn til geymslu fyrir vosklæði
nemenda og auk þess gert vand-
lega við sal náttúrugripasafnsins
á 3. hæð. Gólfin á þessum her-
bergjum voru dúklögð, en áður
voru þau mjög slitin og hnútótt j
og erfitt að halda þeim hreinum.
Auk þess var salernum og' þvotta-
skálum fjölgað samkvæmt því,
sem læknir skólans taldi þurfa
eftir tölu nemenda. En sú umbót
ætlaði ekki að ganga greitt, því
að íhaldið í bæjarstjóminni neit-
aði um leyfi til að stækka um
nokkur teningsfet anddyrið bak
við skólann. Vai'ð því að koma
þessari hreinlætisumbót fram
gegn vilja yfirstjórnar bæjarmál-
anna.
I vetur var gerð sú nýjung á
kenslunni, að náttúrufræðiskenn-
ari skólans fékk lánaðar hinar
mjög umtöluðu bifreiðar landsins
fáeinum sinnum til að geta kom-
ist með hópa af nemendum, stund-
um heila bekki, út fyrir bæinn,
upp að Esju. Austur í ölfus o. s.
frv. til að geta gefið nemendum
nokkra hugmynd um hvernig
náttúran sjálf er skýrð, öðruvísi
en með bókum, og inni í stofum.
I áframhaldi af því fóru svo
tveir af kennurum skólans með þá
af nemendum 5. bekkjar, sem
höfðu löngun og tíma, austur í
Hornafjörð og dvöldu þar 10
daga við ferða- og rannsóknarlíf.
Má telja fullvíst, að þeim sið
verði haldið áfram og hver nem-
andi í mentaskólunum báðum fái
einu sinni meðan skóla.vistin varir
slíkt tækifæri til að lesa sjálfur
nokkrar línur í bók náttúrunnar.
Deyfð mikil hefir á undanföm-
nm áratugum verið um íþróttalíf
í mentaskólanum. Leikfimi tvisvar
í viku hefir verið nálega hin eina
aðgang að. Er þó helst að sjá, að
jafnvel þessi eina íþrótt hafi ver-
ið í litlum ihávegum höfð, því að
leikfimin hefir hvergi nærri verið
vel sótt, og það ekiki að heldur
þó að kennarinn hafi í þeim efn-
um veiið manna færastur. Er
helst svo að sjá sem viðhorf nem-
enda til íþrótta hafi alls ekki ver-
ið sem skyldi, og verður þar varla
öðru um kent en deyfandi aðbúð
]xings og stjórna. Nú í vetur og
vor var nemendum, bæði piltum
og stúlkum trygður aðgangur að
knattspyrau og teimisvöllum við
bæinn og skorti þá ekki áhuga
hjá æskunni, þegar skilyrðin
fengust.
Meiri skriður kom þó á aðra
íþrótt í skólanum. Það var róður.
Sú íþrótt er ein hin algengasta og
vinsælasta í mentaskólum erlend-
is, en hér var hún með öllu óþekt