Tíminn - 19.10.1929, Qupperneq 3
TfHINN
yðar og- misbrestur á smekkvísi,
sem hvorttveggja vottar um það,
að þér eruð öndverðumegin við
það, sem rétt er í nytjamálum og
að yður hefir brostið viðunandi
uppeldi í mentastofnunum lands-
ins.
Eg tel, að hinn eiginlegi vett-
vangui' fyrir þær umræður um
Mentaskólann og önnur málefni
landsins, sem þjóðina varðar, séu
Alþingi og blöð landsins. 0g eg
skal hér með leyfa mér að benda
yður á, að hvorki þér, né skoð-
anabræður yðar í andstæðinga-
flokki núverandi stjórnar, hafa
gert minstu tilraun að hnekkja
þeim rökum, sem eg hefi borið
fram í blaði mínu um þetta mál.
Meðan svo er háttað, tel eg, aS
eigi bresti varnir af minni hálfu.
Teldi eg yður betur sæma, að
leitast við að hnekkja þeim rók-
um, en að leita fulltingis and-
stæðinga yðar, til þess að fá
hrundið af yður því skoplega
ámæli, sem þér hafið bakað yður
með mishepnuðum samblásturs-
fundi yðar.
Virðingarfylst
Jónas Þorbergsson.
----o---
Á víðavangi.
Mbl. og lögfræðin.
Heldur hefir komið á Jón J£j.
er hann vissi að öll fáryrði hans
út af því að fulltrúar á 1. skrif-
stofu undirrita oft bréf, en ekki
skrifstofustjóri, bitna á Jóni
Magnússyni í gröfinni. Jón M.
tók upp þessa venju, og beint
mælti svo fyrir, að fulltrúar í
stjómardeild þeirri, er harm
stýrði skyldu undirrita, ekki ein-
göngu minni háttar bréf, heldur
einnig merkileg skjöl. Jón Magn-
ússon myndi kýma að sínum
gamla, en lítilfjörlega liðsmanni
fyrverandi þingmanni Skaftfell-
inga, ef hann mætti líta þá laga-
mensku fjólurækt, að skipan sú,
er J. M. kom á í stjórnarráðinu
um störf fulltrúa, væri svo fjar-
stæð, að einfaldar tilkynningar
væru ógildar, af því að fylgt væri
vinnubragðavenju þeirri, er hann
kom á. Að vísu mátti margt
setja út á .J. M., en haxm verð-
skuldar ekki þá móðgun í gröf-
inni, að Jón Kj. fari að kasta
steinum að leiði hans. n.
forráðamenn og umráðamenn
Mentaskólans hafa misskilið æsk-
una, sem í skólann hefir gengið.
Svo sem að sjálfsögðu vantaði
rúmlega helming af hreinlætis-
tækjum skólans, eftir tölu nem-
enda, að því er skólalæknirinn
sagði. Til að bæta úr því, varð
að stækka um 3—4 fermetra
skúr á bak við skólahúsið. Ihalds-
menn í byggingamefnd Rvíkur
neituðu um byggingarleyfi til
þessa stórvirkis, svo að stjórnin
varð að taka til sinna ráða, til
að tryggja allra einföldustu
undirstöðu hreinlætis í skólanum.
Leit helst ,út fyrir að Mbl.-menn
ætluðu að líkja eftir hreystiverki
Kjartans Ólafssonar á Laugum,
er hann varnaði heimafólki þar
í nokkra daga að ganga til sal-
ema.
Syndaregistur Ihaldsins um
meðferð á skólahúsi Menta-
skólans, svo að ekki sé fleira
tekið, yrði seint fulltalið, og skal
því aðeins minst á tvent, bóka-
safnið og heimavistina.
Við suðurgafl Mentaskólans
hefir nú i nálega þrjá manns-
aldra staðið allmyndarlegt stein-
hús. 1 því var á aðalhæð stór
salur, lokaður með járnhurð, tvö
lítil herbergi, sem nemendur
gengu um og gríðarstórt loft yfir
salnuin, sem lærðir sagnfræðing-
ai’ segja að enginn maður muni
hafa komið inn á, síðan Jón Sig-
urðsson forseti var miðaldra
maður.
Uppgangur socialista.
Alþýðubl. gerir sér oft mikinn
mat úr framgangi verkamanna,
en hefir ekki, þó undaiieg’t sje,
sagt frá nýjum sigurvonum. Sú
fregn gengur um bæinn, að
Guðm. Hannesson kennari við há-
skólann sé að draga allmikinn
hluta læknanna inn í félagsskap
socialista. Er talið að Guðm.
þykist nú hafa náð í alla lækna
inn í félagsskap sinn, nema „hálf-
an annan kotungsson“. Félag
Guðm. mun vera bygt eftir kenn-
íngum syndikalista, en þeir ganga
næstir virkilegum Rússabolsum
að harðfylgi og bragðvísi. Her-
ferð Guðm. er stíluð gegn land-
lækni og dómsmálaráðherra, og
mun ekki þykja vel fyrir séð,
nema herstjórnarráð Guðm., en
það er „klíka“ embættislausra
lækna í Rvík, hafi tekið að sér
yfirstjórn allra heilbrigðismála í
landinu. Tilefni þessarar „bylt-
ingar“ er það, að núverandi
dómsmálaráðherra hefir veitt
þrjú læknisembætti: á Seyðis-
firði, í Stykkishólmi og Dölum,
eftir nálega einróma áskorunum
hlutaðeigandi héraðsbúa, en haft
að litlu umþenkingar embættis-
lausra lækna í Rvík um þau efni.
— Syndikalista-hreyfing Guðm.
Hannessonar virðist líkleg til að
verða álitleg viðbót sosialista-
flokknum. Guðm. Hannesson
verður þá fremstur í kröfugöng-
unni að vori, við hlið hinna eldri
forkólfa, Jóns Baldvinssonar,
Héðins, Ólafs og Sigurjóns. x.
íslandsbanki tapar máli.
1 gær kvað hæstiréttur dóm
upp í máli því, sem risið var af
völdum Islandsbanka móti lands-
stjórninni, út af því hvort Is-
landsbanki skyldi geta selt land-
inu gull sitt með gengisgróða.
— Islandsbanki tapaði málinu og
var dæmdur til að greiða máls-
kostnað fyrir báðum réttum.
Eins og á stendur þýðir dómur-
inn það að málsýfing íslands-
banka þykir hafa verið með öllu
tilefnislaus Mál þetta er að mörgu
leyti afarmerkilegt. Islandsbanki-
vill fá gengisgróða af gulli sínu
um leið og það er selt landinu.
En fall íslenskrar krónu er vitan-
lega að langmestu leyti að kenna
óstjórn íslandsbanka fyrst og
fremst í tíð Tofte bankastjóra.
í öðru lagi er þessi heimskulegi
málarekstur til stórháðungar fyr-
Þetta var hin svokallaða bók-
hlaða skólans, veglegasta bóka-
safnsbygging landsins, þegar frá
er talið Landsbókasafnið. Enskur
fræðimaður gaf skólanum fé til
að reisa hús þetta. Og stóri sal-
urinn var hálffullur af bókum,
gefnum landinu og keyptum fyrir
landsins fé.
En aldrei hefir heimska, ment-
unarleysi, og allsherjar roluskap-
ur í hugsun skilið eftir fágætara
eftirmæli í meðferð nokkurs
bókasafns, en þess sem hér um
ræðir. Svo sem að sjálfsögðu
hefir byggingin verið vanhirt, ut-
an og innan, og bókunum komið
fyrir svo ólánlega sem frekast
var unt. En það almerkilegasta
er að þetta mikla bókasafn, hef-
ir frá upphafi ekki verið notað
sem vinnustofa fyrir nemendur
skólans, þar sem hinn mikli auð-
ur safnsins breiddist út fyrir
þeim á námsárunum. Þvert á
móti hefir safninu verið harðlok-
að með sterkri járnhurð. Bæk-
urnar hafa verið gerðar að band-
ingjum, bókasafnið að fangelsi
fyrir bækur — til að verja þær
fyfir þeirri ódæma hættu, að opn-
ast fyrir augum nemenda skól-
ans. Inni í þessu fangelsi hefir
bókaauður skólans legið rykug-
ur í rakaþrungnu lofti. Sárfáir af
nemendum skólans hafa, nema
rétt litið inn í þennan helgidóm.
Og hinir ágætu og umhyggju-
sömu vinir skólans, með gáfu-
höfuðin, eins og M. Jónsson al-
22$
ir þá Sig. Eggerz og Jón Þor-
láksson. E. Claessen er valinn
bankastjóri af hluthöfunum og
má segja að kappsfullur fjár-
gróðamaður gæti í hans sporum
látið sér detta í hug að beita
þessari ósvinnu. En Sig. Egg. og
sá bankastj. er hann hafði skip-
að með sér í bankann, voru þar
í meiri hluta. Þeir áttu að vera
trúnaðarmenn landsins og gæta
þess hagsmuna. Málarekstur þessi
gat ekki komið til greina nema
a. m. k. annar hinna stjórnar-
völdu styddi E. Cl. í þessari ó-
svífni og rangiátu kröfu. Sig.
Egg. er hér sekur um alvarlegt
brot í trúnaðarstöðu. En þegar
málið byrjar er Jón Þorl. for-
maður bankaráðsins. Iiann leyfir
bankanum þessa hlægilegu ráns-
ferð á hendur ríkissjóði. Hann
metur þar meira gróðavon hlut-
hafanna en rétt borgaranna í
landinu. En gleðilegt er það, að
þessu mikla hneykslismáli er þó
lokið á þá lund, að réttarmeð-
vitund borgaranna styður niður-
stöðuna, svo að ekki orkar þar
tvímæli^. En mikið mættu þeir
vinirnir Sigurður og Jón gefa til
þess að hafa ekki skapað sér þá
vansæmd sem mál þetta hlýtur
að baka þeim. B. E.
Feluleikur M. Guðm.
I Verði 14. sept. kveður M.
Guðm. Tímann hafa haldið því
fram, „að þó að félagið (þ. e.
Shell á Islandi) væri löglegt, þá
hefðu útlendingarnir samt yfir-
ráðin í félaginu, af því að þeir
ættu nærri helming hlutafjár-
ins“*). Hinum síðustu, letur-
breyttu ummælum skrökvar M.
Guðm. vísvitandi og frá rótum.
*) Leturbreytingin min. Ritstj.
þingism., dr. A. J., Guðm. Hann-
esson, Dungal, Ágúst o. s. frv.
hafa aldrei uppgötvað, ekki einu
sinni í þessari höfuðsvívirðing
skólans neitt tækifæri til að
koma fram eins og menn með
einhverju viti, eða einhvem
þekkingu skólanum til gagns.
Nú í sumar hefir verið unnið að
því að opna bókafangelsi Menta-
skólans, og eftir fáeinar vikur
munu nemendur og kennarai’
geta farið að nota hina miklu
gjöf hins enska fræðimanns, al-
veg eins og menn með almennum
vitsmunum og þekkingu hefðu
frá upphafi ávaxtað bókasjóðinn.
Rétt er að geta þess Ihaldsmönn-
um í Rvík til verðugs lofs, að
síðan umtal varð um bókasafn
þetta, og síðan þeir sáu að byrj-
að var á viðgerðinni, þá hafa
þeir fyrirorðið sig svo að um
munar fyrir að hafa skilið eftir
handa Framsóknarflokknum svo
auðveldan og áberandi sigur í
umbótastarfinu eins og raun hef-
ir orðið á með bókasafnshús
Mentaskólans. En þetta er líka sá
eini vottur um sómatilfinningu,
sem bólað hefir á úr þeirri átt
í sambandi við umbætur í skól-
anum. Frh.
Signe Líljeqvist, sænska söngkonan
góðkúnna, er nýkomin hingað til
bæjarins. Auglýsti hún söngskemtun
í gærkvöld, en skemtunin fórst fyrir
‘ vegna veikinda söngltonunnar.
J arðirnar
Háls og Laxnes í Kiós
eru til sölu með eða án veiðiréttinda. Tilboð í hvora jörð-
ina fyrir sig eða báðar saman sendist Islandsbanka í Reykja-
vík fyrir 1. nóvember 1929.
SRÁKTÖFL. Verð frá kr. 1,75.
Sportvöruhús Reykjavíkur
Bankastr. 11.
Tíminn hefir aldrei haldið því
fram, að yfirráðin væru, af þess-
um orsökum, í höndum útlend-
inga, heldur vegna þess, 'að skift-
ingu hlutafjárins í félaginu væri
þannig fyrir komið, að útlending-
arnir hefðu 198 atkv. en „íslend-
ingarnii'" 108. — Iiversvegna fer
M. Guðm. hér með vísvitandi ó-
sannindi? Af því að hann vill fela
fyrir lesendum Varðar staðreynd-
ina um skiftingu hlutafjárins og
erl. yfirráðin í félagi því, sem
hann, lögfræðingurinn og fyrver-
andi dómsmálaráðherrann, „var
fenginn“ til að leppa.
----o---
Fréttir.
Sig, Skagfield söng i Nýja Bíó i
gærkvöldi fyrir fullu liúsi. Tókst
söngur hans afburðavel, enda var
honum tekið með þvílikum fögnuði
áheyrenda, að sliks munu alls eng-
in dauni hér í Reykjavík. Mnn eng-
inn áheyrénda hafu farið þess dul-
inn, að Sig. Skagfield er liæfileika-
mestur og giæsilegastur söngvari
okkar íslendinga, að ólöstuðum öðr-
um okkar góðu söngvurum. Hefir
hann og það umfram aðra söngvara
okkar, að hann er enn á framfara-
skeiði. Sig. Skagfield syngur aftur á
morgun kl. 3y2 í Nýja Bíó. Og verð-
ur þá breytt söngskrá. — Emil
Thoroddsen aðstoðar söngvarann og
ferst það prýðilega eins og jafnan
áður.
Alnicnn söngkensla. Nýlega hafa,
að tilhlutun fræðslumálastjórnarinn-
ar, verið gefnar út tvær smábækur
vjðkomandi söngkenslu í skólum. Er
þar fvrst að telja „Handbók söng
konnara". Er þar fyrst fræðileg rit-
górð um söngkénslu og margvíslegar
ieiðbeiningar fyrir kennara um
raddmyndun, öndun, tóntak, sér-
hljóðasetning, framburð, umönnun
raddarinnar, tómnyndun og fleira. —
Hin bókin er „Skólasöngvar" ætluð
til notkunar í barnaskóluin og mun
•*
víðar koma að gagni. Eru þar tví-
lödduð mörg hin helstu lög er liæf-
ust teljast til almenns söngs í skól-
um • og heimahúsum. Er hér um
byrjun að ræða og munu síðar koma
út óframhaldsbækur i þessari grein
að sömu tilhlutun, þannig að kensla
þessi verði færð í kerfi og sniðin
eftir þroskun nemenda. Verk þetta
vinna þeir Aðalsteinn Eiríksson,
r'riðrik Bjarnason, Páll ísólfsson og
þórður Kristleifsson. Mun það vera
unnið af góðri kunnáttu og kost-
gæfni og þurfa bækur þessar að kom-
ast á hvert heimili, oigi síst Sltóla-
söngvarnir, því þeir eru byrjun á
stærra, samfeldu verki í þessari
grein.
Niðursuða. Sláturfélag Suðurlands
hefir nýlega látið reisa mjög mynd-
arlega niðursuðuverksmiðju í sam-
bandi við sláturhús sitt hér i bæn-
uih. Er verksmiðjan tekin til starfa
og verður síðai- getið nánar þess-
arar merku framkvæmdar.
Ráð tannlækna
hljóðar nú:
»Náið húðinni af tönnunum,
svo að þær verði heilbrlgðari og betri*.
'T'ANNHIRÐINGAR hafa tekið stóram
*■ framföram.
Tannlæknavislndln rekja nfl fjölda tann-
kvllla til húðar (kgs). *em myndast á
tönnunum. Rennið tungunni yflr tenn-
umar; þá flnnið þér sllmkent lag.
Nú hafa visindin gert tannpastað Pep-
sodent og þar með fundiö réð til að eyða
að fullu þessari húð. >að losar húðina og
nær henni af. >að inniheldur hvorki
kisil né vikur.
Reynið Pepsodent. Sjáið, hvernlg tenn-
umar hvltna jafnöðum og húðlagið hverf-
ur. Fárra daga notkun færir yður heim
sanninn um mátt þess. Skriflð eftir
ökeypis 10 daga sénlshorni tll: A. H.
Rlise, Afd. 1683» 80 Bredgade 25, EX,
Kaupmannahöfn, 'K.
FÁIÐ TÚPU 1 DAGI
BensAujfKt
Vörumerkl *■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■B
Afburða*tannpasta nútimans.
Hefur meömæll helztu tannlœkna f öllum heimi. 1682
HEYGRlMUR á kr. 4,50
Sportvöruhús Reykjavíkur
Bankastr. 11.
Bogi Ólafsson kennari við Menta-
skólann varð nýlega fimtugur að
aldri. Hefir hann lengi verið auka-
kennari við skólann, rækt starf sitt
af alúð og átt að fagna vinsældum
nemenda og meðkennara sinna. Bogi
kennari var á fimtugsafmælinu
heiðraður með þeim hætti, að
stjórnin veitti honum þann dag
fast embætti við skólann. í annan
stað heiðruðu nemendur skólans
hann með þeim hætti, að þeir gengu
heim til hans og vottuðu honum
samúð sína og þakklæti.
Staka. Guðm. Kamban skáld flutti
nýlega erindi hér í Reykjavík, sem
hann nefndi „Reykjavíkurstúlkan".
Nú hefir Ólafur Friðriksson auglýst
að hann flýtji fyrirlestur á morgun
kl. 3 í Gamla Bíó, sem hann nefnir
„Kamban og kvcnfólkið í Reykja-
vík“. Um þetta hefir „gamansamur
náungi“ kveðið:
Kamban hefir um kvenna-föt
kátlega ræðu undið;
en Ólafur hefir annan flöt
á þeim siðar fundið.
Leiðrétting. Meinlegar prentvillur
slæddust inn í ritfregn um ljóða-
bókina „Iljarðir" í síðasta tbl. Til-
vitnanirhar sem misprentuðust, eru
þannig réttar:
„Vonin helst var handasein
að hirða gull, sem lágu
á söndunum silkibláú1.
Og úr öðru kvæði:
„Tungan ekki treganum náði.
Tómið kalt í stefjunum lá“.
-----o-----