Tíminn - 10.04.1930, Blaðsíða 1
©faíbfct!
afgrct&sluma&ur Cimans er
Hannoeig þorsteinsðótiir,
Sambanðsíjástnu. HrffjapiL
^fgreiböía
Cimans er i Sambanðsíjúsinu.
(Dpin baglega 9—12 f. i).
- £tnri $9«.
XIV. ðr.
Reykjavfik, 10. aprfl 1930.
Fyrsta ræða
Tryggva Þórhallssonar
forsætisráðherra.
Svar til Magn. Guðmundssonar.
jLaugard. 22. marz.
Það er nú í þriðja sinn sem
eg hefi þá ánægju að sitja hér
fyrir áróðri hv. stjómarandstæð-
inga á eldhúsdegi. (Ól. Th.: Það
ætti að vera í síðasta sinn). Eg
efast um, að hv. 2. þm. G.-K.
trúi því sjálfur að svo verði. —
I bæði skiftin hefi eg haft á-
stæðu til þess, þegar eg hefi
hlýtt á ræðu aðalræðumanns
stjórnarandstæðinga, að láta í
ijósi ánægju mína. Og eftir að
eg hefi hlýtt á ræðu hv. 1. þm.
Skagf.*) nú, sé ég, að ég hefi enn
ástæðu til að þakka stjórnarand-
stæðingum fyrir það, hverrdg
þeir hefja árás sína á stjórnina.
Ég skal aðeins rifja það upp,
hve mikla ástæðu ég hafði til að
þakka hv. þm. í hitt eð fyrra. Þá
líkti hann mér við hinn forvitra,
rómverska guð, sem hafði tvær
ásjónur og horfði annari fram í
tímann en hinni aftur til hins
liðna. En í fyrra var hv. 1. þm.
Reykv. kjöriim til að hefja árás-
ina á mig, og hóf hana þá með
því að segja, að stjómin væri að
batna.
Ef htið er í stórum dráttum yf-
ir ræðu hv. 1. þm. Skagf., þá er
það dáhtið eftirtektarvert, að
hann byrjar ekki á því að finna
að stjórninni, nei, það finnst hv.
þm. ekki liggja næst, hann byrj-
ar á því að ráðast á þingið. Hv.
þm. var að tala um, hve lítið lægi
eftir það. Þetta væri 16. þingið,
sem hann sæti og þetta væri
aumasta þingið af þeim öilum.
Svo kom hv. þm. að mér. Og
þá skyldi maður halda, að rauði
þráðurinn í ræðu hv. þm. hefði
verið árás á forsætisráðherraim.
Nei, það var langt um meira árás
á gamla ritstj. Tímans, Tryggva
Þórhallsson, sem hv. þm. verður
svo oft talað um. Þegar hv. þm.
svo löngu síðar fer að ráöast á
ráðherrann, verður hann að rifja
upp eitthvað gamalt til þess. En
ég, fyrir mitt leyti, er mjög
ánægður með hvernig fór um okk-
ar viðskipti og hefi enga ástæðu
til þess að reyna að bæta um það
aftur.
Svo hélt hv. þm. áfram að tala
við ráðherrann og þá var ég að
bíða eftir einhverri nýrri sam-
líkingu hjá honum. Jú, hún kom.
Hv. þm. líkti mér við fálka, þenn-
an göfuga og hrausta fugl, sem
um langt skeið var í skjaldar-
merki Islands. Ég verð einu sinni
enn að þakka hv. þm. fyrir það,
hvemig hann byrjar aðal-árásar-
ræðu sína.
Ég verð að víkja að því, sem
hv. þm. beindi til mín sem rit-
stjóra Tímans. — Af því gamla,
sem hv. þm. nefndi var það, að
ég hefði kallað hv. 3. landsk.
skuldkóng, og ég vil undirstrika
það, að ég skal gjöra það enn
hvar og hvenær sem er, því að
ég álít það verðskuldað nafn. En
það var ekki það, hverjar skuld-
*) Magnúsar GuÖmundssonar.
irnar eru á pappírnum, sem setti
aðal-svipiim á ráðherradóm hv. 3.
landsk., það sem var höfuðsvip-
ui’inn var það, að þegar yfir Is-
land kom eitthvert liið mesta góð- 1
æri og veltiár, sem yfir landið {
hefir komið, þá notar stjórnin !
þaö, með hv. 3. landsk. í broddi I
fylkingar, tii að breyta því góð- !
æri í hið mesta böl, með því að
láta dynja yfir þjóðina hina
mestu gengisiiækkun, sem dæmi
eru til, sem bæði bankar og ein-
stakir atvinnurekendur enn standa
undir með bogin bök, vegna ofur-
þunga hinna ranglátu byrða.
Því næst talaði hv. þm. um það
sem ég hafði sagt um hans eigin
ráðherradóm. Náttúrlega get ég
látið minn dóm koma fram um
það á ný, en ég þarf ekki að vera
að rifja þaö upp aítur, því að eg
get vitnað í annan dóm, dæmdan
af hans eigin flokksmönnum. Hv.
þm. varð fjrh. í fyrsta skipti
þegar hami vai’ð ráðherra. Svo
komst hans fiokkur aftur til
valda, og ég hygg, að engum af
hans flokksmönnum hafi þá dott-
ið í hug’ að gjöra hann að fjár-
málaráðherra, en sá, sem var
g’jörður að fjrh'., var verkfræð-
ingur, sérfræðingur í atvinnumál-
um. En engum kom í kom að
gjöra haim að atvinnumálaráð-
herra, það var álitin jafnmikil
fjarstæða og að gjöra hv. þm.
sjálfan aftur að fjármálaráðherra.
Svo kom hv. þm. aftur að okk-
ai’ gömlu málum og „fjáraukalög-
unum miklu“. Sagðist einu sinni
hafa haft þau með sér, þegar
hann var í þingmálafundarferð og
talaði mikið um þann árarigur,
sem orðið hefði af því. Það er
fróðlegt að tala mikið um það, en
það er ennþá fróðlegra að sjá,
hver árangurinn hefir orðið í
verkinu. Hv. þm. var með þau í
töskunni, þegai’ hann bauð sig
síðast fram í Skagafjarðarsýslu,
og hver varð árangurinn? Hanu
varð sá, að atkvæðum mótstöðu-
manna hans fjölgaði meira en
nokkru sinni áður, um 50—100%,
en hans eigin atkvæðum fækkaði
að sama skapi, það hefir m. ö.
o. aldrei verið komið eins nærri
hv. þm. með hinn póhtíska skurð-
arhníf, eins og einmitt þegar
hann var með fjáraukalögin miklu
í töskunni. Og sami hefir árang-
urinn orðið annarsstaðar út um
land, því að við sjáum hann al-
staðar við síðustu kosningar. Það
er, sem sagt, hinn mesti stjóm-
málaósigur sem nokkur flokkur
hefir beðið síðan árið 1908. Ef
þetta mætti nú skilja sem árang-
ur af bardagaaðferð hv. þm., þá
vildi eg fyrir mitt leyti óska
þess, að hv. 1. þm. Skagf. færi
sem oftast út um byggðir lands-
ins með fjáraukalögin miklu í
töskunni.
Hv. 1. þm. Skagf. vék svo ofur-
lítið að skýrslu, sem hann hefði
gefið á þingi, sem fjmrh; eg
man ekki, hvort það var á bing-
inu 1920 eða 1921 og skýrslu,
sem eg sem settur fjmrh. gaf á
þinginu í fyrra. Um þær skýrsl-
ur er það að segja, að engum er
kunnugra um það en hv. þm.
sjálfum, að þær skýrslur eru ,
samdar af starfsmönnum í fjár-
málaráðuneytinu og verður fjmrh.
mjög að reiða sig á það, sem þeir
starfsmenn gefa upp. Hv. þm.
sagði það, að afstaða okkar um
þetta, hefði nákvæmlega verið sú
sama. En eg vil segja það, að það
er mjög rangt að segja, að okk-
ar aðstaða væri nákvæmlega sú
sama. Hv. þm. var fjmrh. og
hafði ekkert annað starf á hendi,
og átti þess vegna að hafa lagt
aiveg sérstakt starf í það, þegar
þessi skýrsla var samin. Eg
hafði aftur á móti hlaupið til,
þegar Magnús heitimi Kiistjáns-
son dó, og bætt því ofan á önnur
störf, meira að segja sat eg líka
samhliða á búnaðarþingi og gat
þá ekki hjá því farið, að eg yrði
miklu háðari starfsmönnum í
stjórnarráðinu um þessa skýrslu-
gerð. (M. G.: Báðar skýrslurnar
voru réttar.). Það reyndist síðar,
að þær voru hvorugai’ fyllilega
réttar.
Þá vék hv. þm. að því, hvað
þeir stjórnarandstæðingar væri
vel innrættir í minn garð, eg
hefði smíðað vopnin, en þeir vildi
ekki beita þeim, þeir væri svo
meinlausir og saklausir. Hveniig
stendur á þessu? Eg hefi ekki
beðið þá að vera meinlausa. Og
hafi' eg verið grimmur og harð-
ur við þá, því koma þeir ekki líka
með sína grimmd? Ég bið þá
engrar vægðar. Komi þeir bara og
beri þau vopn á mig sem þeir
geta!
Þá vék hv. þm. að sérstöku. at-
riði frá því að eg var ritstjóri
Tímans, sagði, að eg hefði þá vilj-
að leggja skatt á krossa, en vildi
nú ekkert við það fást eða væri
á móti því, eftir að eg hefði
verið krossaður sjálfur. Hv. þm.
getur borið fram frv. um það
efni, og eg lofa hv. þm. því hér
í heyranda hljóði, að eg skal
vera tilbúinn að samþykkja slíkt
frv. hvenær sem er. (M. J.*):
Hversvegna kemur hæstv. ráðh.
ekki með það sjálfur?). Eg hefi
einu sinni borið fram þessháttar
frv., og goldið Torfalögin að því
leyti, en þá var það fellt fyrir
mér, mig minnir af hv. þm. og
flokksbræðrum hans. En eg skal
fylgja því af öllu afli. Svona er
mín afstaða, og hv. stjómarand-
stæðingar geta hagað sér eftir
því; öruggasta atkv. sitt skulu
þeir hafa frá mér. (M. G.: Það
er ekkert að marka, hverju
hæstv. ráðh. lofar). Það er bezt
að láta reynsluna skera úr því.
Svo sagði hv. þm., að eg hefði
lánað kaupmanni einum hér í bæ
300000 kr. úr Brunabótafélagi Is-
lands. Eg verð að segja það, að
þetta var það illgjamasta, sem
kom fram í ræðu hv. þm., og hv.
þm. veit vel, hvemig á þessu
stendur. Það var einn af hans
kunnustu fylgismönnum, sem
lagði til að stjóm Brunabótafé-
lagsins fengi heimild til þess að
gjöra þetta, til þess að reyna að
bjarga allmiklum fjármunum fyr-
ir Brunabótafélag Islands. For-
stjóra Brunabótafélagsins fyr-
verandi mun ekki hafa gengið
annað til en þetta. Ef hv. þm.
því óskar að ræða þetta frekar,
þá getur hann fengið allar upp-
lýsingar um þetta mál hjá þess-
um nánasta samherja sínum.
Þá talaði hv. þm. mikið um
fjós á öðmm bændaskólanum.
Hann talaði aðeins um fjós, en
það er um fjós og hlöðu að ræða.
*) Magnús Jónsson.
Já, „öðrum fórst, en ekki þér“,
því hv. 1. þm. Skagf. á sína sögu
gagnvart bændaskólunum, og ef
við förum að rifja upp, hvaða
fjármuni hv. þm. lét renna úr
ríkissjóði til íbúðarhússins á
Hvanneyri, þá kemur það fram,
að hann lét ríkissjóðinn borga þá
helmingi hærri upphæð en eg
hefi látið ganga til fjóss og hlöðu
þar, og þótt nauðsynlegt sé að
hafa stórt og gott íbúðarhús á
slíkum stað, þá hygg eg þó að
gott fjós og hlaða sé enn nauð-
synlegra fyrir rekstur bænda-
skóla. En hvað snerth- heimildir
fyrir stjórnina til að láta gjöra
þetta, þá er sú saga svo löng,
að hún nær aftur í stjórnartíð
hv. 1. þm. 'Skagf. Það var á þing-
inu 1927, sem erindi kom frá
bændaskólastjóranum á Hvann-
eyri, um að það væri ekkert und-
anfæri, að það yrði að byggja
upp fjósið á Hvanneyri, og fjvn.
Nd. lagði eim'óma til, að á liðinn
Ýmisleg útgjöld væri bætt 9000
kr. í þessu skyni, og að á næsta
ári skyldi koma meira. Þetta var
samþykkt hér í hv. Nd., og þar
sem hv. þm. var að tala um, að
þetta væri mál, sem kæmi mönn-
um mjög á óvart, þá er þó skýrt
og skilmerkilega frá því sagt í
Landsreikningnum, sem nú hefir
verið útbýtt hér, auk þess sem
þessi saga er öllum kunn, sem
sátu í Nd. á Alþingi 1927. En
hv. Ed. feldi þessa fjárveitingu
að því sinni.
I fjárlögunum, sem sett voru
1928, var þetta aftur borið fram
af stjórninni og samþykkt af Al-
þingi og svo var farið að hugsa
um framkvæmdir á verkinu.
Húsameistari ríkisins var sendur
upp eftir meðan stóð yfir þingið
1928. Eg man ekki dagsetning-
una, hvenær hann fór þessa ferð,
en svo mikið er víst, að þegar
hann kom aftur, voru fjárlögin
svo langt komin, að ekki var
hægt að koma breytingatillögum
að.
Af tillögum húsameistara er
það að segja, að hann taldi
„plan“ það, sem verið hafði áð-
ur um það, hvernig fjósið skyldi
verða, með öllu óframkvæman-
legt. Það átti nefnilega að notast
við veggi gamla fjóssins, en hann
taldi það með öllu ógerlegt.
En þá þurfti að leysa málið á
annan hátt.
Við vildum ekki að þarna færi
eins og 1 Reykholti, að fjósið
dytti niður á kýrnar. Eg veit ekki
nema hv. 1. þm. Skagf. hafi vilj-
að það, en okkur þótti það höf-
uðskömm, að láta það koma fyr-
ir á öðrum bændaskóla landsins.
Húsameistari lagði til að reist
yrði nýtt fjós, fyrst ekki var
hægt að nota það gamla. Húsa-
meistari gerði áætlun um kostn-
aðinn í þinglokin 1928. Sú áætl-
un og þessar tillögur hans komu
fyrir fjvn. Nd. rétt í þinglokin.
Fjvn. hafði ekki langan tíma til
stefnu, og eg man ekki, hvort
sérstök samþykkt var gerð um
þetta, en nefndin áleit, að í þessu
efni yrði að fara eftir því, sem
búsameistari legði til.
Það var vitanlega ekki form-
legt að veita úr ríkissjóði þá
upphæð, sem þetta kostaði, en
það var gert í samráði við fjvn.
og farið eftir till. sérfræðings,
húsameistara ríkisins. Á þessum
grundvelli var málið framkvæmt.
Þessi bygging kostaði meira en
áætlað var, eins og oft vill verða,
19. blaS.
og mér þykir ekkert undarlegt
þó að mörgum þm. vaxi þessi
upphæð í augum. Og enginn átti
von á því í upphafi, að þetta yrði
svona dýrt. En eg skal taka það
fram, að mér vex hún ekki mjög
í augum. Hv. þm. sagði, að þarna
heíði verið byggt yfir búfé ein-
staks manns. En hann veit það
vel, sá háttv. þm., að þetta er
elcki rétt nema að litlu. Þó að
ríkið eigi ennþá ekki mjög mik-
ið af fénaði á Hvanneyri, þá er
ætiazt svo til, að það verði ekki
svo framvegis. Hv. Ed. gerir a.
m. k. ráð fyrir því, að í fram-
tíðinni verði rekið myndarlegt
bú á Hvanneyri, sem verði ríkis-
eign.
Eg skal með mestu ánægju
taka á móti ávítum fyrir það, að
eg lét reisa þarna myndai’legt
fjós og hlöðu. Og ef nú stæði svo
á, að þyrfti að taka slíkar á-
kvarðanir, mundi eg snúast alveg
eins við því. (Ó. Th.: Ekki má
nú gleyma fjárveitingunni.). Hv.
þm. mega láta mig sæta ábyrgð-
inni fyrir þetta. Þeir mega koma
og segja: „Þar sem bændaefni
landsins eiga að læra að búa, þar
á fjósið að detta niður á kýrnar“.
liáttv. 1. þm. Skagf. spurði,
hvernig verkinu hefði verið hag-
að, hvort það hefði verið ákvæð-
isviima eða daglaunavinna. Því
get eg ekki svarað nú, eg hefi
engan tíma fengið til að fara og
spyrja húsameistara að því. Hv.
þm. heldur ef til vill, að eg hafi
haft einhverja pretti í frammi
við þetta, en eg skal segja hon-
um það, að húsameistari sá um
þessa byggingu eins og allar aðr-
ar opinberar byggingar og hefir
vafalaust hagað sjer eins um
þessa sem um allar aðrar.
Háttv. þm. sagði, að umhyggja
mín fyrir landbúnaðinum sýndi
sig í þessu. Eg léti reisa svona
stórbyggingu á einum stað fyrir
afarmikið fé, en ríkissjóður væri
lokaður fyrir 8—10 sveitum norð-
ur í Skagafirði, þegar þær vildu
fá styrk ríkisins til að koma upp
raforkuveitu. Eg ætla ekki að
fara langt út í það mál nú, en
aðeins geta þess, að nú er verið
að semja heildarlöggjöf fyrir
raforkuveitur. Þess vegna eiga
einstakar sveitir ekki að hlaupa
fram fyrir, meðan verið er að
koma skipulagi á þetta mál. En
þegar þessi löggjöf er komin, þá
geta Skagfirðingar komizt að
með sínar till. eins og aðrir. En
eg mun jafnan meðan eg er at-
vinnumálaráðherra telja það
skyldu mína, að hlynna alveg
sjerstaklega að bændaskólunum,
sem eg tel einna þýðingarmestu
stofnanir landbúnaðarins.
Þá talaði hv. þm. um Búnaðar-
bankann og það húsnæðisleysi,
sem hann ætti við að búa. Sem
betur fer, eru fyllstu líkur á því,
að það húsnæðisleysi verði ekki
lengi. Og það grunar mig, að ef
eg verð lengi ráðherra, sem eng-
inn veit, að eg muni fremur fá
árásir fyrir það, að hafa fengið
bankanum of veglegt húsnæði en
of lélegt, og til þess hefi eg frem-
ur skap. Eg vil heldur fá átölur
fyrir að vera of rausnarlegur en
of knífinn í því efni.
Háttv, þm. talaði um, að eg
hefði dregið lengi að stofna bank-
ann, en eg hefði ekki dregið að
veita bankastjórastöðumar. En
hvemig er hægt að stofna banka
án þess að skipa bankastjóra?
Bankinn er ekki stofnaður fyr en