Tíminn - 10.04.1930, Síða 1

Tíminn - 10.04.1930, Síða 1
©faíbfct! afgrct&sluma&ur Cimans er Hannoeig þorsteinsðótiir, Sambanðsíjástnu. HrffjapiL ^fgreiböía Cimans er i Sambanðsíjúsinu. (Dpin baglega 9—12 f. i). - £tnri $9«. XIV. ðr. Reykjavfik, 10. aprfl 1930. Fyrsta ræða Tryggva Þórhallssonar forsætisráðherra. Svar til Magn. Guðmundssonar. jLaugard. 22. marz. Það er nú í þriðja sinn sem eg hefi þá ánægju að sitja hér fyrir áróðri hv. stjómarandstæð- inga á eldhúsdegi. (Ól. Th.: Það ætti að vera í síðasta sinn). Eg efast um, að hv. 2. þm. G.-K. trúi því sjálfur að svo verði. — I bæði skiftin hefi eg haft á- stæðu til þess, þegar eg hefi hlýtt á ræðu aðalræðumanns stjórnarandstæðinga, að láta í ijósi ánægju mína. Og eftir að eg hefi hlýtt á ræðu hv. 1. þm. Skagf.*) nú, sé ég, að ég hefi enn ástæðu til að þakka stjórnarand- stæðingum fyrir það, hverrdg þeir hefja árás sína á stjórnina. Ég skal aðeins rifja það upp, hve mikla ástæðu ég hafði til að þakka hv. þm. í hitt eð fyrra. Þá líkti hann mér við hinn forvitra, rómverska guð, sem hafði tvær ásjónur og horfði annari fram í tímann en hinni aftur til hins liðna. En í fyrra var hv. 1. þm. Reykv. kjöriim til að hefja árás- ina á mig, og hóf hana þá með því að segja, að stjómin væri að batna. Ef htið er í stórum dráttum yf- ir ræðu hv. 1. þm. Skagf., þá er það dáhtið eftirtektarvert, að hann byrjar ekki á því að finna að stjórninni, nei, það finnst hv. þm. ekki liggja næst, hann byrj- ar á því að ráðast á þingið. Hv. þm. var að tala um, hve lítið lægi eftir það. Þetta væri 16. þingið, sem hann sæti og þetta væri aumasta þingið af þeim öilum. Svo kom hv. þm. að mér. Og þá skyldi maður halda, að rauði þráðurinn í ræðu hv. þm. hefði verið árás á forsætisráðherraim. Nei, það var langt um meira árás á gamla ritstj. Tímans, Tryggva Þórhallsson, sem hv. þm. verður svo oft talað um. Þegar hv. þm. svo löngu síðar fer að ráöast á ráðherrann, verður hann að rifja upp eitthvað gamalt til þess. En ég, fyrir mitt leyti, er mjög ánægður með hvernig fór um okk- ar viðskipti og hefi enga ástæðu til þess að reyna að bæta um það aftur. Svo hélt hv. þm. áfram að tala við ráðherrann og þá var ég að bíða eftir einhverri nýrri sam- líkingu hjá honum. Jú, hún kom. Hv. þm. líkti mér við fálka, þenn- an göfuga og hrausta fugl, sem um langt skeið var í skjaldar- merki Islands. Ég verð einu sinni enn að þakka hv. þm. fyrir það, hvemig hann byrjar aðal-árásar- ræðu sína. Ég verð að víkja að því, sem hv. þm. beindi til mín sem rit- stjóra Tímans. — Af því gamla, sem hv. þm. nefndi var það, að ég hefði kallað hv. 3. landsk. skuldkóng, og ég vil undirstrika það, að ég skal gjöra það enn hvar og hvenær sem er, því að ég álít það verðskuldað nafn. En það var ekki það, hverjar skuld- *) Magnúsar GuÖmundssonar. irnar eru á pappírnum, sem setti aðal-svipiim á ráðherradóm hv. 3. landsk., það sem var höfuðsvip- ui’inn var það, að þegar yfir Is- land kom eitthvert liið mesta góð- 1 æri og veltiár, sem yfir landið { hefir komið, þá notar stjórnin ! þaö, með hv. 3. landsk. í broddi I fylkingar, tii að breyta því góð- ! æri í hið mesta böl, með því að láta dynja yfir þjóðina hina mestu gengisiiækkun, sem dæmi eru til, sem bæði bankar og ein- stakir atvinnurekendur enn standa undir með bogin bök, vegna ofur- þunga hinna ranglátu byrða. Því næst talaði hv. þm. um það sem ég hafði sagt um hans eigin ráðherradóm. Náttúrlega get ég látið minn dóm koma fram um það á ný, en ég þarf ekki að vera að rifja þaö upp aítur, því að eg get vitnað í annan dóm, dæmdan af hans eigin flokksmönnum. Hv. þm. varð fjrh. í fyrsta skipti þegar hami vai’ð ráðherra. Svo komst hans fiokkur aftur til valda, og ég hygg, að engum af hans flokksmönnum hafi þá dott- ið í hug’ að gjöra hann að fjár- málaráðherra, en sá, sem var g’jörður að fjrh'., var verkfræð- ingur, sérfræðingur í atvinnumál- um. En engum kom í kom að gjöra haim að atvinnumálaráð- herra, það var álitin jafnmikil fjarstæða og að gjöra hv. þm. sjálfan aftur að fjármálaráðherra. Svo kom hv. þm. aftur að okk- ai’ gömlu málum og „fjáraukalög- unum miklu“. Sagðist einu sinni hafa haft þau með sér, þegar hann var í þingmálafundarferð og talaði mikið um þann árarigur, sem orðið hefði af því. Það er fróðlegt að tala mikið um það, en það er ennþá fróðlegra að sjá, hver árangurinn hefir orðið í verkinu. Hv. þm. var með þau í töskunni, þegai’ hann bauð sig síðast fram í Skagafjarðarsýslu, og hver varð árangurinn? Hanu varð sá, að atkvæðum mótstöðu- manna hans fjölgaði meira en nokkru sinni áður, um 50—100%, en hans eigin atkvæðum fækkaði að sama skapi, það hefir m. ö. o. aldrei verið komið eins nærri hv. þm. með hinn póhtíska skurð- arhníf, eins og einmitt þegar hann var með fjáraukalögin miklu í töskunni. Og sami hefir árang- urinn orðið annarsstaðar út um land, því að við sjáum hann al- staðar við síðustu kosningar. Það er, sem sagt, hinn mesti stjóm- málaósigur sem nokkur flokkur hefir beðið síðan árið 1908. Ef þetta mætti nú skilja sem árang- ur af bardagaaðferð hv. þm., þá vildi eg fyrir mitt leyti óska þess, að hv. 1. þm. Skagf. færi sem oftast út um byggðir lands- ins með fjáraukalögin miklu í töskunni. Hv. 1. þm. Skagf. vék svo ofur- lítið að skýrslu, sem hann hefði gefið á þingi, sem fjmrh; eg man ekki, hvort það var á bing- inu 1920 eða 1921 og skýrslu, sem eg sem settur fjmrh. gaf á þinginu í fyrra. Um þær skýrsl- ur er það að segja, að engum er kunnugra um það en hv. þm. sjálfum, að þær skýrslur eru , samdar af starfsmönnum í fjár- málaráðuneytinu og verður fjmrh. mjög að reiða sig á það, sem þeir starfsmenn gefa upp. Hv. þm. sagði það, að afstaða okkar um þetta, hefði nákvæmlega verið sú sama. En eg vil segja það, að það er mjög rangt að segja, að okk- ar aðstaða væri nákvæmlega sú sama. Hv. þm. var fjmrh. og hafði ekkert annað starf á hendi, og átti þess vegna að hafa lagt aiveg sérstakt starf í það, þegar þessi skýrsla var samin. Eg hafði aftur á móti hlaupið til, þegar Magnús heitimi Kiistjáns- son dó, og bætt því ofan á önnur störf, meira að segja sat eg líka samhliða á búnaðarþingi og gat þá ekki hjá því farið, að eg yrði miklu háðari starfsmönnum í stjórnarráðinu um þessa skýrslu- gerð. (M. G.: Báðar skýrslurnar voru réttar.). Það reyndist síðar, að þær voru hvorugai’ fyllilega réttar. Þá vék hv. þm. að því, hvað þeir stjórnarandstæðingar væri vel innrættir í minn garð, eg hefði smíðað vopnin, en þeir vildi ekki beita þeim, þeir væri svo meinlausir og saklausir. Hveniig stendur á þessu? Eg hefi ekki beðið þá að vera meinlausa. Og hafi' eg verið grimmur og harð- ur við þá, því koma þeir ekki líka með sína grimmd? Ég bið þá engrar vægðar. Komi þeir bara og beri þau vopn á mig sem þeir geta! Þá vék hv. þm. að sérstöku. at- riði frá því að eg var ritstjóri Tímans, sagði, að eg hefði þá vilj- að leggja skatt á krossa, en vildi nú ekkert við það fást eða væri á móti því, eftir að eg hefði verið krossaður sjálfur. Hv. þm. getur borið fram frv. um það efni, og eg lofa hv. þm. því hér í heyranda hljóði, að eg skal vera tilbúinn að samþykkja slíkt frv. hvenær sem er. (M. J.*): Hversvegna kemur hæstv. ráðh. ekki með það sjálfur?). Eg hefi einu sinni borið fram þessháttar frv., og goldið Torfalögin að því leyti, en þá var það fellt fyrir mér, mig minnir af hv. þm. og flokksbræðrum hans. En eg skal fylgja því af öllu afli. Svona er mín afstaða, og hv. stjómarand- stæðingar geta hagað sér eftir því; öruggasta atkv. sitt skulu þeir hafa frá mér. (M. G.: Það er ekkert að marka, hverju hæstv. ráðh. lofar). Það er bezt að láta reynsluna skera úr því. Svo sagði hv. þm., að eg hefði lánað kaupmanni einum hér í bæ 300000 kr. úr Brunabótafélagi Is- lands. Eg verð að segja það, að þetta var það illgjamasta, sem kom fram í ræðu hv. þm., og hv. þm. veit vel, hvemig á þessu stendur. Það var einn af hans kunnustu fylgismönnum, sem lagði til að stjóm Brunabótafé- lagsins fengi heimild til þess að gjöra þetta, til þess að reyna að bjarga allmiklum fjármunum fyr- ir Brunabótafélag Islands. For- stjóra Brunabótafélagsins fyr- verandi mun ekki hafa gengið annað til en þetta. Ef hv. þm. því óskar að ræða þetta frekar, þá getur hann fengið allar upp- lýsingar um þetta mál hjá þess- um nánasta samherja sínum. Þá talaði hv. þm. mikið um fjós á öðmm bændaskólanum. Hann talaði aðeins um fjós, en það er um fjós og hlöðu að ræða. *) Magnús Jónsson. Já, „öðrum fórst, en ekki þér“, því hv. 1. þm. Skagf. á sína sögu gagnvart bændaskólunum, og ef við förum að rifja upp, hvaða fjármuni hv. þm. lét renna úr ríkissjóði til íbúðarhússins á Hvanneyri, þá kemur það fram, að hann lét ríkissjóðinn borga þá helmingi hærri upphæð en eg hefi látið ganga til fjóss og hlöðu þar, og þótt nauðsynlegt sé að hafa stórt og gott íbúðarhús á slíkum stað, þá hygg eg þó að gott fjós og hlaða sé enn nauð- synlegra fyrir rekstur bænda- skóla. En hvað snerth- heimildir fyrir stjórnina til að láta gjöra þetta, þá er sú saga svo löng, að hún nær aftur í stjórnartíð hv. 1. þm. 'Skagf. Það var á þing- inu 1927, sem erindi kom frá bændaskólastjóranum á Hvann- eyri, um að það væri ekkert und- anfæri, að það yrði að byggja upp fjósið á Hvanneyri, og fjvn. Nd. lagði eim'óma til, að á liðinn Ýmisleg útgjöld væri bætt 9000 kr. í þessu skyni, og að á næsta ári skyldi koma meira. Þetta var samþykkt hér í hv. Nd., og þar sem hv. þm. var að tala um, að þetta væri mál, sem kæmi mönn- um mjög á óvart, þá er þó skýrt og skilmerkilega frá því sagt í Landsreikningnum, sem nú hefir verið útbýtt hér, auk þess sem þessi saga er öllum kunn, sem sátu í Nd. á Alþingi 1927. En hv. Ed. feldi þessa fjárveitingu að því sinni. I fjárlögunum, sem sett voru 1928, var þetta aftur borið fram af stjórninni og samþykkt af Al- þingi og svo var farið að hugsa um framkvæmdir á verkinu. Húsameistari ríkisins var sendur upp eftir meðan stóð yfir þingið 1928. Eg man ekki dagsetning- una, hvenær hann fór þessa ferð, en svo mikið er víst, að þegar hann kom aftur, voru fjárlögin svo langt komin, að ekki var hægt að koma breytingatillögum að. Af tillögum húsameistara er það að segja, að hann taldi „plan“ það, sem verið hafði áð- ur um það, hvernig fjósið skyldi verða, með öllu óframkvæman- legt. Það átti nefnilega að notast við veggi gamla fjóssins, en hann taldi það með öllu ógerlegt. En þá þurfti að leysa málið á annan hátt. Við vildum ekki að þarna færi eins og 1 Reykholti, að fjósið dytti niður á kýrnar. Eg veit ekki nema hv. 1. þm. Skagf. hafi vilj- að það, en okkur þótti það höf- uðskömm, að láta það koma fyr- ir á öðrum bændaskóla landsins. Húsameistari lagði til að reist yrði nýtt fjós, fyrst ekki var hægt að nota það gamla. Húsa- meistari gerði áætlun um kostn- aðinn í þinglokin 1928. Sú áætl- un og þessar tillögur hans komu fyrir fjvn. Nd. rétt í þinglokin. Fjvn. hafði ekki langan tíma til stefnu, og eg man ekki, hvort sérstök samþykkt var gerð um þetta, en nefndin áleit, að í þessu efni yrði að fara eftir því, sem búsameistari legði til. Það var vitanlega ekki form- legt að veita úr ríkissjóði þá upphæð, sem þetta kostaði, en það var gert í samráði við fjvn. og farið eftir till. sérfræðings, húsameistara ríkisins. Á þessum grundvelli var málið framkvæmt. Þessi bygging kostaði meira en áætlað var, eins og oft vill verða, 19. blaS. og mér þykir ekkert undarlegt þó að mörgum þm. vaxi þessi upphæð í augum. Og enginn átti von á því í upphafi, að þetta yrði svona dýrt. En eg skal taka það fram, að mér vex hún ekki mjög í augum. Hv. þm. sagði, að þarna heíði verið byggt yfir búfé ein- staks manns. En hann veit það vel, sá háttv. þm., að þetta er elcki rétt nema að litlu. Þó að ríkið eigi ennþá ekki mjög mik- ið af fénaði á Hvanneyri, þá er ætiazt svo til, að það verði ekki svo framvegis. Hv. Ed. gerir a. m. k. ráð fyrir því, að í fram- tíðinni verði rekið myndarlegt bú á Hvanneyri, sem verði ríkis- eign. Eg skal með mestu ánægju taka á móti ávítum fyrir það, að eg lét reisa þarna myndai’legt fjós og hlöðu. Og ef nú stæði svo á, að þyrfti að taka slíkar á- kvarðanir, mundi eg snúast alveg eins við því. (Ó. Th.: Ekki má nú gleyma fjárveitingunni.). Hv. þm. mega láta mig sæta ábyrgð- inni fyrir þetta. Þeir mega koma og segja: „Þar sem bændaefni landsins eiga að læra að búa, þar á fjósið að detta niður á kýrnar“. liáttv. 1. þm. Skagf. spurði, hvernig verkinu hefði verið hag- að, hvort það hefði verið ákvæð- isviima eða daglaunavinna. Því get eg ekki svarað nú, eg hefi engan tíma fengið til að fara og spyrja húsameistara að því. Hv. þm. heldur ef til vill, að eg hafi haft einhverja pretti í frammi við þetta, en eg skal segja hon- um það, að húsameistari sá um þessa byggingu eins og allar aðr- ar opinberar byggingar og hefir vafalaust hagað sjer eins um þessa sem um allar aðrar. Háttv. þm. sagði, að umhyggja mín fyrir landbúnaðinum sýndi sig í þessu. Eg léti reisa svona stórbyggingu á einum stað fyrir afarmikið fé, en ríkissjóður væri lokaður fyrir 8—10 sveitum norð- ur í Skagafirði, þegar þær vildu fá styrk ríkisins til að koma upp raforkuveitu. Eg ætla ekki að fara langt út í það mál nú, en aðeins geta þess, að nú er verið að semja heildarlöggjöf fyrir raforkuveitur. Þess vegna eiga einstakar sveitir ekki að hlaupa fram fyrir, meðan verið er að koma skipulagi á þetta mál. En þegar þessi löggjöf er komin, þá geta Skagfirðingar komizt að með sínar till. eins og aðrir. En eg mun jafnan meðan eg er at- vinnumálaráðherra telja það skyldu mína, að hlynna alveg sjerstaklega að bændaskólunum, sem eg tel einna þýðingarmestu stofnanir landbúnaðarins. Þá talaði hv. þm. um Búnaðar- bankann og það húsnæðisleysi, sem hann ætti við að búa. Sem betur fer, eru fyllstu líkur á því, að það húsnæðisleysi verði ekki lengi. Og það grunar mig, að ef eg verð lengi ráðherra, sem eng- inn veit, að eg muni fremur fá árásir fyrir það, að hafa fengið bankanum of veglegt húsnæði en of lélegt, og til þess hefi eg frem- ur skap. Eg vil heldur fá átölur fyrir að vera of rausnarlegur en of knífinn í því efni. Háttv, þm. talaði um, að eg hefði dregið lengi að stofna bank- ann, en eg hefði ekki dregið að veita bankastjórastöðumar. En hvemig er hægt að stofna banka án þess að skipa bankastjóra? Bankinn er ekki stofnaður fyr en

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.