Tíminn - 24.02.1931, Blaðsíða 3

Tíminn - 24.02.1931, Blaðsíða 3
Á víðavangi. Pjandskapur Valtýs g-egn málstað bændanna fær nýjar og- nýjar hliðar. Sonur eins merkasta bónda og áhugamanns norðanlands var settur til rækt- unarmennta og skyldi nema eina af merkustu greinum ræktunar- vísinda. Árangurinn af ítroðn- ingi í treggáfað höfuð Valtýs varð að vísu ekki í hlutfalli við fyrirhöfn og kostnað þjóðarinn- ar. Hitt orkaði þó meiru um vansæmd hans og óbotnandi nið- urlægingu, að maðurinn var fædd- ur svikari og verfeðrungur meiri en dæmi séu til í minnum þeirra manna, sem nú lifa. Eftir að hann hafði villt á sér heimildir í Samvinnuskólanum og á heim- ili velgerðamanns síns, Hallgríms Kristinssonar, sveik hann mál- stað hans, hugsjónir föður síns, uppeldi sitt og þær vonir, sem menn í liði bændastéttarinnar höfðu gert sér um haxm. Tók hann þá saman pjönkur sínar, flutti yfir í herbúðir stórkaup- manna og fjárbraskara Reykja- víkur og tók að ofsækja sam- vinnuhugsjónir Hallgr. Kristins- sonar, gerðist heiftúðarfullur andstæðingur allra ræktunarmála Tryggva Þórhallssonar, ofsóknai’- maður allra alþýðuskóla í sveit- um og hefir síðan hrakyrt og svívirt málstað bændastéttarimi- ar í öllum greinum, eftir því sem hann hefir orkað. — Fátt sýndi betur, hversu Valtý var fjarri skotið úr ætt, ófremd hans og fúlmennsku, en framkoma hans á yfirreiðum um landið í áveituer- indunum sællar minningar. Þegar hann ferðaðist með 18 hesta, þá reiddi hann hroka og stór- mennsku á 10 iiestum að minnsta kosti. Ekki þakkaði hann íyrir mat sinn fremur en rakki, þótt húsmæðurnar tíndu til allt það bezta úr búri sínu handa þess- um oflátung, sem þær hugðu að myndi eiga einhvern þátt 1 að leysa vandræði sveitanna. Þegar Vaitýr vill sýna núverandi fjár- málaráðherra dýpstu fyrirlitn- ingu, minnir hann á, að ráðherr- ann er bóndi á bæ, sem heitir, ekki eingöngu Eyrarland, heidur L i 11 a-Eyrariand. Og þegar hann leitar að samlíkingu þess, sem hann kveðst hafa mesta and- stygð á, þá man hann eftir ullar- kömbum. — Þegar stundir líða fram, mun það verða vísindalegt viðfangsefni mannfræðinga og ættfræðinga, hversu það hefir getað til borið í örlagakeðju til- verunnar, að slík ættarskömm, sem Valtýr Stefánsson hefir kom- ið fram á sjónarsviðið og hversu sá maður, sem að vísu er fædd- ur lítilmenni og hryggileg frændaskömm, hefir getað fallið svo djúpt í klækiskap og óvirð- ingu samtíðar sinnar. Áslákur. - ........ a Sælir eru lítillátir. Þegar yfirlæknar Landsspítal- ans buðu stjórn Landsspítala- sjóðsins, hjúkrunarkonum og blaðamönnum að skoða spítalann eftir að hann var tekinn til starfa, fyrirhtu boðið konur þær allar, er skipa stjórn sjóðsins. Mun slíkt hafa verið gert að undirlagi Ingibjargar H. Bjarna- son. Urðu konumar fyrir ámæli af þessu tiltæki. En Valtýr karl- iim fann vöm í máli þeirra. Kvað hann orsökina hafa verið þá, að ekki var við opnun spítalans sleg- ið upp veizlu til heiðurs konun- um, til þess að þakka þeim opin- berlega. Sælir eru lítillátir. Þeg- ar Akureyringar, Eyfirðingar og nágrannasýslumar lögðu fram yfir Vé milj- kr., til þess að reisa Kristneshæli, þá mun ýmsum þeim, sem þar áttu mikinn hlut að máli lítt eða ekki hafa verið þakkað. Samt sem áður fara margir unnendur stofnunarinnar þangað einskonar pílagrímsferðir, þegar þeir koma til Akureyrar, TÍMINN 41 til þess að kynnast því, hversu stofnuninni vegnar. En I. H. B. og samherjar hennar vilja ekki sjá Landsspítalann, af því ekki voru gerðar sérstakar ráðstafan- ir, til þess að þakka þeim. Virð- ist af skýringum Mbl. mega ráða, að þær meti meira skjallið en sjálfa framkvæmd málsins og er þó ekld líklegt. En ef sú málskýr- ing reynist ekki á rökum byggð eiga konumar þá hönk upp í bakið á Valtý Stefánssyni, sem hefir nú sem jafnan áður verið fundvís é lélegan málstað til þess að verja. Ý. Billy Sunday íhaldsins. Á landsmálafundi í Hafnarfii'ði síðastl. vor gerði Jónas Þorbergs- son útvarpsstjóri skoplegan sam- anburð á tveimur persónum, sem nú eru uppi í veröldinni. Voru það þeir Billy Sunday trúar- bragðaskopleikari og helvítispré- dikari auðvaldsins í Bandaríkjun- um og Ólafur Thors pólitískur skopleikari íhaldsins á Islandi. Billy Sunday er í þjónustu auð- hringanna í Ameríku, til þess að hræða fólk á Helvíti og kvölun- um, ef það efist hið minnsta um blessunarríka handleiðslu fjár- plógsmannanna. Hann er talinn mælskur með afbrigðum og hefir tamið sér ýmsa furðulega til- burði á ræðupallinum. Færir hann sig mjög úr utanhafnarfötum, stingur sér kollhnýs á ræðupalli og skrumskælir sig með fárán- legum hætti. Vekur Billy Sunday á sér mikla athygli af þessum or- sökum og er nafntogaður sem hræsnari og fífl meðal allra skyn- bærra manna. — Engir tveir menn munu vera líkari um lund- arfar, lífstilgang og allt æði held- ur en þeir Billy Sunday og Ólaf- ui’ Thors. Ólafui' ér einskonar ofstækisprédikari íhaldsstefnunn- ar hér á landi og ósvikinn pólit- iskur trúður, sem trúir á leikara- brögð og skrumskælur framan í áheyrendur sína. Árið 1929 gerð- ist hann svo mikið fífl á Hvammstanga, að hann tók að klæða sig úr fötum á ræðupallin- um. óttuðust menn um að hann myndi færa sig svo mjög úr föt- um, að hneyksli yrði að fyrir þá, sem á horfðu. — Skrumskælur Ólafs Thors og skopleikur veldur stundum hlátri, þar sem hann er óþekktur áður. En brosið stirðn- ar fljótt á vörum manna, er bert verður um grunnfærni manns- ins og óheilindi. Og vun Ólaf fer eins og aðra skopleikara, að þeir verða mönnum brátt hvimleiðir, er þeir leika ávalt sama leikinn með sömu tilburðum. — Óheppni Ólafs er sú, að hann lifir og leik- ur skopleiki sína og óheilinda- brögð í þroskaðra umhverfi held- ur en Billy Sunday. Eigi að síður er hann sannnefndur Billy Sun- day íhaldsins hér á landi og nýt- ur svipaðrar virðingar meðal sæmilegra manna eins og helvítr isprédikarinn fyrir vestan haf. Kjósandi. Úr Mýrasýslu. Sagt er að í- haldið sé búið að ákveða fram- bjóðanda hér í sýslu næsta sum- ar. Eigi það að vera Torfi Hjart- arson frá Amarholti. Er það óreyndur ungur maður og ó- þekktur að mestu hér í sýslu, þó að hann sé uppalinn á stóru og góðu heimili, Amarholti. Og ekki em áhrif hans meiri en það á sjálfu heimilinu, Amarholti, að þar hafa undanfarin ár verið 4 ungir menn aðrir en Torfi og tveir af þeim yngri bræður hans, en allir þessir fjórir ungu menn eru a. m. k. svo frjálslyndir, að þeir eru ákveðnir á móti íhald- inu. Þykir mörgum einkennilegt, að dóttursonur Torfa í Ólafsdal, er ber nafn hans, skuli ljá lið sitt höfuðandstæðingum sam- vinnufélagsskaparins í héraðinu og að hann skuli hafa ánetjast afturhaldinu í landinu. — Á síð- I ari hluta 19. aldarinnar var Torfi í Ólafsdal einhver mesti sam- Stmtnn verður nú um stund sendur til reynslu nokkmm mönnum á ýms- um stöðum í landinu, sem eigi hafa keypt blaðið hingað til. Fá þessir menn blaðið ókeypis til loka júlímánaðar, og gefst þannig tækifæri til að kynna sér efni þess. Að þeim tíma loknum er þess vænst, að þeir tilkynni af- greiðslunni, hvort þeir óska að gjörast kaupendur eða eigi. Nýir kaupendur fá í kaupbæti alþingis- hátíðarblaðið, meðan upplag end- ist, svo og aukablaðið, sem kemur út einu sinni í mánuði. Tíminn er nú, að aukablaðinu meðtöldu, tví- mælalaust fjölbreyttasta vikublað landsins og flytur, auk umræðna um þjóðmál, ýmiskonar fróðleik, sögur, bókafregnir, kvæði, yfirlit um heimsviðburði og fréttir inn- lendar og útlendar, auk fjölda mynda. vinnu- og framsóknarmaður hér á landi. Hann var hinn ákveðn- asti andstæðingur þeirra afla, sem íhaldsflokkurinn virðist að- allega samanstanda af og sem dóttursonur hans tekur nú að sér að þjóna. X. Fyrir skömmu síðan samþykkti Alþingi lög um að gjöra saltfisk veðhæfan í því skyni að hjálpa útgerðannönnum til að fá lán til íramleiðslu. Nú hefir Ólafur Thors framið þau fim að kaupa af gjaldþrotamanni í Hafnar- firði fisk, sem veðsettur var bönkunum, og neitar nú að skila fiskinum eða andvirði hans, svo að bankarnir neyðast til að leita réttar síns með málsókn. Ekki þarf að fjölyrða um, hver hætta er á ferðum fyrir útgerðarmenn, ef bankamir hættu að treysta fiskveðunum. „Sjálfstæðir byltingamenn“. Síð- an kommúnistar og íhaldsmenn tóku höndum saman gegn ríkis- stjóminni á Vestmannaeyjafund- inum, virðist hafa dregið til fulls samkomulags milli þessara tveggja flokka, sem spáð er, að enda muni með kosningasamvinnu í sumum kjördæmum. Nýlega ræðst Mbl. harðlega á kennara norðlenzka menntaskólans fyrir að þeir viku kommúnista úr skól- anum í haust. Hingað til hefir Mbl. að mestu þagað um mál þetta, en nú segir það svo: „Brottrekstrarsökin, sem fundin var, er hneykslanleg“. En brott- rekstrarsökin, sem íhaldið telur óframbærilega var sú, að nem- andinn ritaði grein í opinbert tímarit og eggjaði til uppreisnar gegn kennurum skólans. Segir svo í greininni m. a.: „Baráttuformin verða mismunandi. En óhjákvæmilega hljóta þau að skapa andstöðu og uppreisn*) í fræðslu- og uppeldisstofnunum borg- aranna ... þessir starfshópar (þ. e. kommúnistar í skólunum) berjast gegn myndugleikaaðstöðu kennar- ans ...“. „Uppreisn" í skólum ríkisins er ekki lengur athugaverð að dómi Mbl. Pilturinn fyrir norðan var „sjálfstæður byltingarmaður“, segir blaðið ennfremur. „Sjálf- stæðir byltingamenn“ á ef til vill að verða framtíðamafn á hinum nýju stjómmálasamtökum komm- únista og „Sjálfstæðisflokksins“, sem nú munu hafa hlotið hina fyrstu vígslu í „sæluhúsinu“ við Kalkofnsveg. -----o---- Siðan útvarpið hóf starfsemi sína í vetur, hefir meðal annars verið útvarpað af grammófónplötum, bæði danslögum, óperum og öðrum vin- sælum lögum. Hér á landi er ekki kostur að koma upp söngleikahúsi (óperu),en framfarir á sviði grammó- fóntækninnar gjöra mönnum hér fært að heyra heilar óperur frá Berlín, miðstöð hljómlistalífs í Norðurálfu. *) Auðkexmt hér. verður haldið í Laugarvatnsskóla frá 1. maí itil 15. júní n. k. Kennt verður Matreiðsla (jafnframt gerð grein fyrir nær- ingargildi fæðunnar), Iþróttir(sund og leikfimi). Heilsufræði. Matreiðslukennari verður ungfrú Helga Sigurðardóttir (bún- aðarmálastjóra). Kennslugjald er kr. 2.00 á viku fyrir hverja stúlku, húsa- leiga kr. 10—15 fyrir allan tímann og fæði sennilega ekki yfir kr. 1.50 á dag. — Stúlkum er ætlað að hirða herbergi sín og þjóna sér sjálfar. — Rúmföt geta þær, sem óska, fengið lánuð gegn þóknun. jjý' ; Umsóknir sendist undirrituðum, og er vissara að senda þær sem fyrst. Laugarvatni 30. janúar 1931. BJARNI BJARNASON. Trygglð aðeins lijá íslensku fjelagi. Pósthólf: 718 Símnefni: Incuranoe BRUNATRY GGINGAR (húa, innbú, vörur o.fl.). Sfmi 254 SJÓVATRYGGINGAR (skip, vörur, annar flutningur o.fl.). Sími 542 FramkræmdHstjóri: Sími 309 Snúið yður til Sjóvátryggingafjelaés Islands h.f. Eimakipafjelagshúsinu, Reykjavík Hestur, gráskjóttur, hefir tap- ast frá Reykjavík. Sá, sem kynni að verða var við hann, hringi í síma 1515 eða til Dýravemdunar- félagsins í Tungu. Iieiðréttingr Morgunblaðið hefir oft, bæði fyr og síðar, og seinast nú fyrir nokkrum dögum, flutt algerlega tilefnislausar árásir og aðdróttan- ir um kaupfélag, er starfaði um stund hér í bænum og sem ég veitti forstöðu. Tilefni þessara árása frá blaðsins hálfu mun hafa verið að ófrægja tvo menn, er voru í stjóm kaupfélagsins, þá Héðinn Valdemarsson, forstjóra og Jónas Jónsson ráðherra. Árásir þessar hafa jafnan snú- ist um kaup á fiski í Viðey, sem stjóm Jóns Magnússonar seldi þar á uppboði, sem fyrsta flokks fisk og kaupfélagið síðar seldi til utlanda. Tilefni þess að ég varð milligöngumaður um fiskkaup þess handa ensku firma, var ein- göngu það, að bankamir gátu þá, árið 1921, ekki yfirfært peninga fyrir alla, sem þess þurftu, og neituðu að yfirfæra fyrir mig, sem hafði nýja verzlun. Leit ég svo á, að kaupfélagið yrði annað- hvort að hætta innflutningi og þar með störfum, eða geta haft íslenzkan gjaldeyri erlendis. Ég leit á þetta eingöngu sem „yfir- færslu“ á peningum og bar fisk- kaup þessi ekki undir stjóm fé- lagsins, né nokkum félagsmann, fremur en venjuleg dagieg störf. Skipið, sem flutti fiskiim til útlanda, hraktist í hafi um 7 vik- ur og er til Englands kom var fiskurinn orðiim skemmdur. Um líkt leyti skemmdist stór skips- farmur alveg á sama hátt fyrir einum stærsta fiskútflytjanda, sem þá var hér í bænum, og var þeim fiski öllum fleygt í sjóinn ytra. En Morgunblaðið hefir aldrei minnst á þann fisk. Morgunblaðið segir, að Breti einn hafi komið hingað heim út af þessum málum, og að einn úr stjóm kaupfélagsins (J. J.) hafi sýnt honum sérstaka ókurteisi inni á Hótel ísland. Ég hafði með höndum allar framkvæmdir út á við í sambandi við umræddan fisk, og til mín kom aldrei neinn Breti hér á landi út af þeim málum. Þessi nýi þátt- ur í söguburði Mbl. um Kaupfél. Reykjavíkur, er því með öUu til- efnislaus. Jón Kjartansson. ----o——- Misprentast hefir í minningarorð- um um Guðmund á Bjamastöðum í Tímanum nýlega. Á að vera sr. Jón Hjartarson á Gilsbakka, en ekki sr. Hjörtur. ----O-----

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.