Tíminn - 12.09.1931, Qupperneq 3
TÍMINN
208
fengnum tillögum nefndarinnar.
Verði fé eigi nægilegt til að veita
vinnu öllum þeim, sem eigi hafa,
ganga fjöiskyldumenn fyrir öðrum.
Fulltrúi bæjarstjórnar Rvíkur víkur
úr nefndinni, ef um er að ræða at-
vinnubætur í öðru bæjar- eða hrepps-
félagi og það hefir útnefnt fulltrúa
fyrir sína hönd. •— Auglýsing frá
atvinnunefnd birtist í þessu biaði.
Bygging þjóðleikhússins er haldið
áfram í sumar. Er nýbyrjað á verk-
inu, og er það unnið í ákvæðisvinnu.
Var leitað tilboða í að steypa veggi
ofan kjallara (sem áður var byggð-
ur) gengið að tilboði frá sama mann-
inum, sem steypti kjallarann, Korne-
líusi Sigmundssyni.
Vilhjálmur þ. Gíslason mag. art.
hefir verið ráðinn starfsmaður við
útvarpið fyrst um sinn. Flytur hann
yfirlitserindi um nýjungar í erlend-
um bókmenntum og öðrum andiegum
efnum annað hvert kvöld.
Veðrið 1.—11. september. það sem
af er þessum mánuði, hefir há-
þrýstisvæði legið yfir íslandi og
umhverfis það. Veðrátta hefir því
verið mjög stillt þennan tíma, þurr-
viðrasöm en töluvert kaldari en í á-
gústmánuði. Kl. 8 árdegis var hiti
oftast 1—5 st. nyrðra, en 6—8 stig
syðra, og í siðustu viku mun jafn-
vel hafa verið næturfrost á láglendi,
að minnsta kosti norðanlands. Síð-
ustu 3 daga var smálægð yfir ís-
landi og olli hún lítilsháttar rign-
ingu í flestum héröðum landsins. Nú
er útlit fyrir einhverjar breytingar á
veðurfari. Við vesturströnd Græn-
lands er lægð, sem veldur suðlægri
átt og rigningu um Grænland. Önn-
ur minni lægð er skammt frá suð-
vesturströnd íslands, og henni er
samfara hvöss austanátt og rigning
við Suðurland. Norðanlands er veður
þó enn stillt og bjart. — í Reykjavík
var hiti mestur þ. 1., 13. stig, en
minnstur aðfaranótt þ. 5., 2.8 st.
Hermann Hjartarson frá Hlið á
Langanesi hefir i sumar lokið námi
við. Kennaraháskólann i Kaupmanna-
höfn og er nýkominn hingað heim.
Iðunn, XV. árg., 2. hefti, hefir bor-
izt Tímanum. Efni: Járnöld hin
nýja, ritgerð eftir sr. Sigurð Einars-
son, Ragnar E. Kvaran: Slitur um
islenzka höfunda (ritgerð), Halidór
Stefánsson: Liðsauki (saga), G. Geir-
dal: Sólhvörf (kvæði), Arnór Sigur-
jónsson: Harmur (kvæði), Jóhan
Vogt: Gróðinn af nýlendunum (rit-
gerð hagfræðilegs efnis), Jforsteinn
Halldórsson: Dögun (kvæði), Guðm.
G. Hagalín: Um Kristofer Uppdal,
Sigurður Skúlason: Ferðaminningar
og loks bókafregnir.
Nýja bókaverzlun hefir Eggert P.
Briem fyrv. starfsmaður hjá Eim-
skipafél. sett á stofn hér í Reykja-
vík. Er þessi bókabúð nýjung að því
leyti, að þar eru mestmegnis seldar
nýútkomnar erlendar bækur, blöð og
tímarit. Var þörf á að bæta úr þeirri
fábreytni, sem hér hefir verið á
bókamarkaðinum.
Steindór Steindórsson náttúrufræði-
kennari við menntaskólann á Akur-
eyri dvelur sunnanlands í sumar og
vinnur að rannsóknum á gróðri og
gróðrarmöguleikum í Flóaáveitusvæð-
inu. Hefir hann til þess styrk frá
Búnaðarfél. íslands og Menntamála-
ráðinu.
Bruni. Aðfaranótt 3. þ. m. brann í-
búðarhús og brauðgerðarhús Stefáns
Sigurðssonar bakara á Akureyri til
kaldra kola. Fólk komst nauðulega
út. Engu var bjargað af húsmunum.
Verzlunarbækur brunnu og voru þó |
í skáp, sem átti að vera eldtrygg-
ur. Húsmunir vátryggðir.
Hjalti Jónsson framkvæmdastjóri
tekur sæti i bæjarstjóm Reykjavíkm-
í stað Guðmundar sál. Jóliannssonar.
Sr. Oktavius þorláksson, islenzkur
kristniboði, búsettur í Japan, hefir
dvalið hér um tíma ásamt fjölskyidu
sinni. Hann er fæddur i Ameriku og
liefir eigi séð ísland áður. í Reykja-
vik hefir hann flutt fyrirlestra og
sýnt skuggamyndir frá hinu fjarlæga
„landi sólaruppkomunnar", og- þykja
mörgum nýstárlegar. Ekki ætlar fjöl-
skyldan að setjast að hér. Verður
hún í Ameríku í vetur og fer aftur
til Japan næsta sumar.
Misprentast hefir í dag i nokkrum
hluta upplagsins eitt orð í kvæði Jó-
hannesar úr Kötlum. þar stendur í
upphafi síðasta erindis: Vor æska á
að sníða sér eldlegan vagn. Á að
vera: Vor æska á að smíða o. s. frv.
Traustsyfirlýsing til brezku sam-
steypustjómarinnar var samþykkt í
neðri málstofunni 9. þ. m. með 309
gegn 250 atkv. Greiddi verkamanna-
Arásirnar
á Halldór Kiljan Laxness.
Sú fregn hefir borizt hingað til
lands, að Halldór Kiljan Laxness
hafi sætt árásum á Alþingi og að í
ráði hafi verið að svifta hann þeim
rithöfundarstyrk, sem hann hefir
haft um sinn.
Vonanda hafa verðir bókmennta og
lista í höfuðstað landsins þegar í
stað bent Alþingi á, að samþykkt
þvílikrar tiliögu yrði að skilja þann-
ig, að Alþingi kæri sig kollótt, hverju
fram vindur um -bókmenntir lands-
ins. það gæti þó orðið lakara af-
spurnai', ef þessi eini hlutur, sem
íslendingar geta talið sér til gildis
að hafa reynt að halda við á tím-
um hungurs og lægingar, lognast út
af á saðningaröld sjálfstæðisins. Ef
nokkura von má hafa um að svo
verði eigi, þá ,er Halldór Kiljan Lax-
ness ein hinna örfáu trygginga þess,
að hún sé annað en dul og vil. því
að hvað sem segja má um margt í
ritum hans, þá hefir, síðan land
bygðist, enginn íslenzkur maður inn-
an við þrítugsaldur getað lagt fram,
auk alls annars, tvær bækur á borð
við Vefarann mikla og þú vínviður
hreini, til sönnunar um afburðahæfi-
leika sína.
Mér er ókunnugt um, hvaða ástæð-
ui’ hafa verið bornar fram til styrkt-
ar tillögunni. En mörgum hefir fall-
ið miður, að sá höfundur, sem hér
á hlut að máii, hefir aldrei bruggað
lög úi' grösum, sem voru græn í
ungdæmi sjötugra og áttræðra
inanna, og sitt livað, sem hann hef-
ir látið sér um munn fara, hefir
þótt nýstárlegt og gott ef ekki
hneykslanlegt. Hneyksli er ekki nýtt
fyrirbrigði í íslenzkri bókmennta-
sögu. Fyrir tæpum 100 árum var
fólk ákaflega hneykslað á Fjölni
og Jónasi Hallgrímssyni. Fvrir ein-
um mannsaldri þóttu þyrnar þor-
steins Erlingssonar yfirgengilegt
hneyksli. Ég spái engu um það,
hvort Halldór Kiljan Laxness verð-
ur, þegar fram líða stundir, settur á
bekk með þessum mönnum. En dæm-
in sanna, að það er ekki handvíst,
að sá, sem hleypur í herfylking
hinna hneyksluðu, sé þeim megin í
bardaganum, sem sigurs er helzt að
vænta.
Kaupmannahöfn 11. ágúst 1931.
Jón Helgason.
Ath. Grein þessi barst Tímanum
skömmu áður en Alþingi lauk. Til-
laga sú, sem um er rætt, kom ekki
fram á Alþingi, en einstakir þing-
menn munu haía haft undirbúning í
þá átt, þó ekki yrði úr. Eigi að sið-
ur þykir rétt að láta álit þess merka
manns, sem greinina ritar, á um-
ræddum rithöfundi, koma fyrir al-
mennings sjónir. R i t s t j.
flokkurinn svo að segja óskiftur at-
kvæði gegn stjóminni, en með henni
voru Ihaldsflokkurinn og mestur
hluti Frjálslynda flokksins. Mac-
Donald er þannig kominn í algerða
andstöðu við flokk sinn, og almennt
búist við, að stjórnmálaferill hans
sé á enda. Arthur Henderson, sem
var utanríkisráðherra í stjórninni,
sém frá fór, hefir í stað MacDonalds
verið kosinn formaður Verkamanna-
flokksins. Úr lcjördæmi MacDonalds
hefir honum frá .yfirgnæfanda
meirahluta kjósenda borizt áskorun
um að leggja tafarlaust niður þing-
mennsku. — Hliðstætt dæmi gjörð-
ist hér á landi árið 1924, er kjósend-
ur í Vestur-Skaftafellssýslu skoruðu
á Jón Kjartansson að leggja niður
þingmennsku, þegar uppvíst varð
um danska hlutaféð í Morgunblað-
inu!
Ágreiningur er risinn um það,
livort Henderson fyrv. utanríkisráð-
herra Breta, núverandi formaður
Verkamannaflokksins, skuli taka for-
setasæti í afvopnunarnefnd þjóða-
bandalagsins í vetur.Er þvi af sum-
um haldið fram, að hann hafi verið
kosinn forseti nefndarinnar sem ut-
anríkisráðherra Breta og nýi utan-
ríkisráðherrann, Reading lávarður,
eigi nú að koma í hans stað. Hend-
erson sjálfur lítur hinsvegar svo á,
að hann hafi verið kosinn án til-
lits til stöðu sinnar og kveðst munu
taka forsetasæti, ef þjóðabandalagið
felli ekki úrskurð í aðra átt.
Fóðurlýsi
(Þorkalýsi)
til sölu.
Jetyald Jacobsen.
Vesturg. 22. Reykjavík.
Símnefni Jetvald
Frá silfurrefa-buinu á Bjarma-
landi við Reykjavík, geta menn
nú fengið fyrsta flokks refi til und-
aneldis. Eingöngu ljós fyrsta flokks
dýr. öll tilsögn í refarækt veitt
ókeypis.
Fullkomlega samkeppnisfært
verð.
Refabúiö á Bjarmalandi
Sími 392.
Skattamálastefna
Framsóknarflokksins.
Mbl. þykir það undarlegt, að
núverandi stjórn skuli ekki, eftir
ráðuneytisbreytinguna, hafa birt
„stefnuskrá sína“ í þjóðmálum.
Er þetta næsta furðuleg ein-
feldni hjá blaðinu, þar sem
stefnuskrá Framsóknarflokksins
var birt opinberlega fyrir kosn-
ingarnar í vor, en vitanlega er
stefnuskrá' Framsóknarflokks-
ins stefnuskrá þeirrar ríkis-
stjórnar, sem mynduð er af
Framsóknarflokknum.
Úr því að Mbl. hefir orð á því
sérstaklega, að það viti ekki hver
sé stefna stjórnarinnar í skatta-
málum, skal hér því til fróðleiks
vísað til þeirrar stefnuskrár, sem
samþykkt var á flokksþingi
Framsóknarmanna dagana 29.
marz til 9. apríl sl. og birt er í
38. tbl. þessa blaðs. Þar er yfir
því lýst, að stefna flokksins í
skattamálum sé sem hér segir:
„1. Lækka tolla þá, er hvíla á
nauðsynjavörum, en auka beina
skatta:
a. Með því að hækka tekju-
og eignaskatt af háum tekjum og
miklum eignum.
b. Með því að hækka skatt af
erfðafé eftir fjárhæð og fjar-
skyldleika.
c. Með því að hækka skatt af
lóðum og lendum og taka verð-
ihækkunarskatt, ef þær hækka í
verði fyrir sérstakar aðgjörðir
hins opinbera, án tilverknaðar
eigenda.
d. Með því að taka í hendur
ríkisins einkasölu á hátt tolluð-
um munaðarvörum.
2. Létta fátækraframfærzlu af
sveita- og bæjafélögum, með
því að koma á skyldutrygging-
um.“
Þessar upplýsingar ættu Mbl.
að nægja viðvíkjandi stefnu
-stjórnarinnar 1 skattamálum.
Leiðrétting. í greininni „í óbyggð-
um“, sem birtist í 6. aukablaði Tíni-
ans hafa orðið nokkrar prentvillur
og sumsstaðar fallið úr orð, svo sam-
liengi vantar. Var ég fjarverandi
þegar blaðið var prentað og gat því
ekki lesið próförk af greininni. þetta
er það lielzta, er máli skiftir: Á 4.
síðu, 1. dálki stendur .... litlu inn-
ar er allstór valllendisgróðri o. s.
frv., en á að vera: litlu innar er all-
stór spilda vaxin valllendisgróðri.
Neðarlega í sama dálki er .... Sölva-
liraun bert og uppblásið fjárbyrgi,
en á að vera: Sölvahraun bert og
uppblásið, þar er fjárbyrgi er
gangnamenn nota á haustin. Áðum
við þar því ágætis hagi er í botni
byrgjanna o. s. frv. Síðasta máls-
greinin í 3. dálki á að vera svona:
Eru þau afar óvíða, og hvergi í
Norðurálfu nema á íslandi og hvergi
á íslandi nema á þessum slóðum. I
miðjum 4. dálki stendur: vestan við
Laupafell, en á að vera Laufafell.
H. B.
-----O------
Samvinnuskólinn
verður settur fimtudaginn 1, október og
stendur til síðasta apríl. Inntökupróf í yngri
deild fer fram 2. og 3. okt.
Báðar deildir skólans eru nú fullskip-
aðar.
Skólastjórinn.
Námsskeid iyrir eítirlitsmenn nautgriparæktarfé-
laga, verður lialdið í Reykjavík dagana 16. nóvem-
ber til 12. desember.
Þeir, sem sendir eru af nantgriparæktariélögnm,
og ráðnir til þeirra að námsskeiðinu loknu, geta
vænst ferðastyrks og dvalarstyrks, líkt og verið heí-
ir undantarin ár. Nánari upplýsingar geiur Búnaðar-
félag Islands, og þangað sendíst umsóknir hið tyrsta.
Æmglýmmg
Samkvæmt 22. gr. fjárlaga fyrir 1932, XV., 1. lið, hefir at-
vinnunefnd verið skipuð, og samkv. 2. lið nefndrar greinar ber
þeim sveitar- og bæjarstjórnum, sem óska framlags til atvinnu-
bóta, að senda umsókn um það til formanns atvinnunefndar. Um-
sókninni fylgi skilríki fyrir því, að sérstakra ráðstafana sé þörf
vegna atvinnuleysis. Ennfremur nauðsynlegar upplýsingar um
þau verk, sem framkvæma á.
Umsóknir um styrk og tillögur um þau verk, sem vinna á,
séu komnar til nefndarinnar fyrir 15. okt. n. k. í síðasta lagi.
Snemmbær kýr
fæst keypt hér. Má borgast með
hrossum.
Lundi 2. sept. 1931
Sigurður Jónsson
Reykjavíh Sími 249
NiðursuðuTörar yorar:
Kjlit......i 1 kg. og 1/2 kg. dósum
Kcefa ..... 1 - - 1/2 - -
Bayjarabjögu 1 - • 1/2 -
Fiskabollar - 1 - - V* —
Lax 1 - - 1/2 -
hljóta almenningalof
Ef þór hafiö okti royr.t vömr
þessar, þá gjörið það uú. Notið
innlendar vðrur frenaur en erlendar,
með þvi stuðlið þér að þvi, að
íslsndingar verði sjálfum sér uégir.
Pantanir afgreiddar fljótt og
vel hvert á land sem er.
HEaltextrakt
Filsner
Biór
Bayer
Hvítöl.
Ölgerðiu
Ferðamenn,
sem koma til Reykjavíkur, geta
fengið ódýrasta gistingu á Hverf-
isgötu 32.
Brynjúlfs Björnssonar
Hverfisgötu 14
Reykjavík
Bestu og fullkomnustu nýtísku-
tæki og áhöld.
öll tannlæknisverk framkvæmd
eftir nýjustu aðferðum og eins
samviskusamlega og ódýrt og
hægt er.
Sjálfs er höndin
hollust
Kaupið innlenda framleiðalu,
þegar hún. er jafngóð erlendri og
ekki dýrari.
framleiðir:
Kristalsápu, grærusápu, stanga-
sápu, handsápu, raksápu, þvotta-
efni (Hreins hvítt), kerti alls-
konar, skósvertu, skógulu, leður-
feiti, gólfáburð, vagnáburð, fægi-
lög og kreólínsbaðlyf.
Kaupið HREINS vörur.
Þær eru löngu þjóðkunnar og
fást í flestum verzlunum land&ins
H. í. Hreinn
Skúlagötu. Reykjavík. Sími 1825.
Ritstjóri: Gísli Guðmundsson
Ásvallagötu 27 Sími 1245
Prentsmiðjan Acta 1931