Tíminn - 20.08.1932, Side 3
TIMINN
137
sem nú er kominn til ára sinna,
vinni við og stjórni jöfnum höndum,
ræktun og gripahirðingu á emu
stærsta búi landsins, fjárheimtum úti
á landshornum og vísindalegum
rannsóknum á „uppgangi" berkla-
sjúklinga. Slík stjómvizka er heldur
ekki ónýt á krepputíma!
Kommúnistar í Reykjavík
eru byrjaðir að gefa út lítið blað,
sem kvað vera dreift út meðal bænda
víðsvegar um landið. pað, sem Tím-
anum hefir borizt af blaði þessu, er
hógværlega ritað og vanstillingar-
laust, og mjög ólíkt því orðbragði,
sem borið er á borð í blaði flokks-
ins hér í Reykjavík. Munu útgefend-
ur blaðsins hafa grun um það, að
bændum geðjist' ekki að því, að
landsmál séu rökrædd með aðflutt-
um og utanaðlærðum slagorðum, sem
upp eru fundin til að krydda rúðu-
brot í erlendum stórborgum. Tíminn
vill hvetja bændur til að gjalda var-
huga við hinni íslenzku kommúnista-
lireyfingu. Kommúnisminn hér er
ekkert annað en léleg tízka frá ná-
grannalöndunum, sem engin önnur
áhrif getur haft en að vefjast fyrir
heilbrigðri framfaraviðleitni almenn-
ings og vera því fólki til skemmtunar,
sem gaman hefir af hrindingum á
mannamótum. Menn skyldu varast
að halda, að goluþytur sá, sem hér
er um að ræða, eigi nokkuð skylt
við þá stórfelldu atvinnulífsbyltingu,
sem átt hefir sér stað í Rússlandi, og
er eftirtektarverð og lofsverð á marg-
an hátt. Sjálfum kommúnistaforingj-
unum í Rússlandi dettur áreiðanlega
ekki í hug, að slík bylting, sem þar
hefir átt sér stað, muni nokkurntíma
verða t. d. á Norðuríöndum, og það
af þeirri einföldu ástæðu, að margt
aí því, sem Rússsar eru nú að koma
i kring, er þegar búið að framkvæma
í mörgum öðrum' þjóðfélögum, þar
sem lýðræðið er gamalt og þróunin
hefir orðið á annan hátt. Hér A landi
mun allur almenningur þess sinnis,
að þjóðfélagið og lög þess séu hin
bezta vörn smælingjanna, þó gölluð
séu, og að ofbeldi og handafl í stjórn-
málum, gefur hinum sterkustu að-
eins tilefni til að þrengja kosti
þeirra, sem minna máttar eru. þær
breytingar einar verða farsælar, sem
koma með vaxanda viti og skilningi
almennings á því að nota kosningar-
rétt sinn til umbóta á lífskjörum sín-
um.
Maflnús prestakennari
er nú nýkominn heim úr langri
utanför á kostnað háskólans og far-
inn að skrifa í Mbl., í stað Sigurðar
Kristjánssonar frá ísafirði, sem rek-
inn var og nú hefir leitað húsaskjóls
hjá Heimdellingum. Vel mætti
imynda sér, að maður, sem nýkom-
inn er utan úr löndum og sérstak-
lega átti að mæta á háskólaafmæli,
þar sem staddir munu hafa verið
ýmsir merkir menntamenn frá öðr-
um löndum, hefði einhvern menning-
arauka að færa þjóðinni við heim-
komuna. það mætti ætla, að maður
1 slíkri stöðu hefði kynnt sér eitt-
livað af nýjustu framfaraviðleitni
annara þjóða til leiðbeiningar þeim,
sem heima sitja. En nú skýtur svo
skökku við, að jafnskjótt sem M. J.
kemur heim frá samfundunum við
hina erlendu háskólamenn, byrjar
hann á löngum lestri í Mbl., sem
virðist sérstaklega til þess ætlaður að
vekja ótrú á öllum framförum (a.
m. k. í sveitum) og drepa kjark úr
bændum. þrennt er það, sem M. J.
sérstaklega gjörir að umræðuefni:
Búnaðarbankinn (greiddi lika atkv.
móti lögunum, í þinginu), notkun
tilbúins ábprðar, og það sein hann
kallar „menntabusl í laugaskólum".
Mun háskólakennarinn hér eiga við
menntunarviðleitni sveitaunglinganna
í héraðsskólunum, og taka þeir sér
sjálfsagt ekki til, þó að svo „lærður
maður“, líti með nokkurri sjálfsvirð-
ingu á þeirra fátæklegu þelckingu.
Hitt getur guðfræðingurinn sparað
sér, að kenna bændum að bera á tún
sín eða fræða þá um, að útlendi
áburðurinn sé óþarfur af þvi nógur
áburður sé til fyrir. Og víst er það,
að betur hafa bændur hirt um hús-
dýraáburðinn en guðsmaðurinn um
binn andlega áburð á völl þjóð-
kirkjunnar hér á landi.
------o-----
Lík GuSmundar SkarphéSinssonar
fannst á floti í Siglufjarðarhöfn á
sunnudagsmorguninn var (14. þ. m.).
Likið var talsvert skaddað, en þó
þekkjanlegt af fötum o. fl.
Afreksmaðnr
þann 6. ágúst 1907 synti Lárus
Rist iþróttakennari á Akureyri yfir
Eyjafjörð við Oddeyrartanga.
það var einstætt afrek í þá daga.
Og það afrek markar tímamót í sögu
sundíþróttarinnar hér á landi.
Sundmaðurinn kastaði sér í sjóinn
alklæddur. Utan yfir venjulegum
klæðnaði var hann i olíufötum og
vaðstígvélum. Á leiðinni klæddi hann
sig úr öllum fötunum. Hann var 34
mínútur á sundinu.
Núna í mánuðinum voru liðin 25
ár síðan þessi atburður át.ti sér stað.
þann dag og næsta var mikill
mannfagnaður meðal íþróttafóiks
og ungmennafélaga á Akureyri, vina
og samstarfsmanna Lárusar Rists,
eldri og yngri.
Sunnudaginn þann 7. var sýning í
sundlaug bæjarbúa. Sú sýning er
mjög rómuð. En mest tíðindin þóttu
það, er Lárus Rist sjálfur, sem nú
er kominn á sjötta áratug, stakk sér
i laugina, klæddur á sama hátt og
hann var í sjónum við Oddeyri fyrri
25 árum — og týndi utan af sér
fötin spjör fyrir spjör A sundinu eins
og þá.
Um langt skeið var Lárus Rist
fimleikakennari við Gagnfræðaskól-
skólann á Akureyri. Frá þeim árum
á hann marga hlýja hugi, bæði
þeirra sem lærðu af honum að nota
iþróttir likamshreysti sinni til efl-
ingar — og einnig þeirra, sem vil.du
iæra, en gátu ekki, því að af kynn-
ingunni við Lárus Rist. var öllum á-
vinningur.
því þykir öllum nemendum hans
vænt um afrekið fyrir 25 árum og
óska honum langra lífdaga og góðr-
ar heilsu, eins og hann óskaði þeim.
G. G.
----o----
Frá tðnþingiRU
Eftirfarandi tillögur voru m. a.
samþykktar á iðnþinginu á Akureyri
18.—21. júní s. 1.
1. þingið beinir því til iðnaðar-
mannafélaga í landinu, að hvert
þeirra kjósi nefnd til þess að atliuga
möguleika í sínum bæ og umhverfi,
fyrir stofnsetningu nýrra iðnfyrir-
tækja og sendi um það skýrslu til
næsta iðnþings.
2. í því tilefni vil þingið meðai
annars benda á þessar tegundir iðju
og iðnaðar:
Vikurvinnsla.
Eldneytisvinsla.
Kalkvinnsla og sementsgerð.
Lýsis- og oliuvinnsla.
Sútun skinna og leðurs.
Skófatnaðargerð og leðuriðnaður.
Iíaðla og færagerð.
Mottu- og dúkagerð.
Ýms veiðarfæragerð.
Einangrun úr mel og reiðingi.
Töskugerð.
Iíöfuðfatagerð.
Ýmiskonar búsáhaldagerð.
Joðvinnsla og önnur efnavinnsla,
og ennfremur margskonar muni, sem
líkindi eru til, að hægkvæmt sé að
búa til hér á landi, en sem nú eru
keyptir tilbúmr frá útlöndum svo
sem:
Hljóðfærakassa allskonar, regnhlíf
ar„ rafmagnslampa, frystikassa og
skápa, fatasnaga og króka, mynda-
albúm, bökunaráhöld o. fi.
3. þingið beinir þvi til iðnaðar-
manna og iðjuhölda að nauðsyn beri
til að samstarf til aukinnar og hag-
kvæmari framleiðslu eigi: sér stað
um ýmsa iðn og iðju, semúiú þegar
er til í landinu, svo sem: Síldar-
bræðslu, niðursuðu fiskjar, ullar-
vinnslu, skinnaverkun, smjörlíkis-
framleiðslu o. fl.
4. þingið telur mikils um vert, að
komið verði upp raforkuverum til
eflingar iðnaðar og iðju, þar sem
hagkvæm aðstaða er til þess, og að
þau verðmæti, sem finnast hér í
jörðu, verði hagnýtt.
5. þingið leggur álierzlu á, að iðn-
aður og iðja í landinu fái sem fyrst,
sér til eflingar og aðstoðar, lærðan
ráðunaut i efnafræði, og telur rétt-
mætt, að ríkið leggi honurn áhöld
og starfsfé og greiði honum laun líkt
og öðrum ráðunautum í landinu.
6. þingið óskar eftir því, að þeir
menn ,sem áhuga hafa fyrir nýjum
iðn- eða iðjufyrirtækjum í landinu,
setji sig í samband við stjórn iðn-
sambandsins og þá milliþlnganefnd
Póleraðir og átskornir
smíðisgripir
mjög lieppilegir til tækifærisgjafa
fyrirliggjandi í úrvali og fást énn-
fremur smíðaðir eftir pöntun.
Yinnan vönduð. Yerðið lágt.
Öllum ber að styðja innlendan
iðnað og kaupa því einvörðungu
innleudar tækifærisgjafir.
Yald. K. (Tuðmundsson
Sólvallagötu 19.
Atþingis, sem ætlað er að fjalla um
iðnmálin fyrir næsta Alþingi, og
veiti henni upplýsingar og tillögur
um stofnun nýrra iðnfyrirtækja.
A iðnþinginu voru mættir 6 full-
trúar iðnaðarmannafélaga af Akur-
eyri, 11 frá Hafnarfirði, 5 frá Vest-
mannaeyjum, 1 frá Siglufirði og 28
frá Reykjavík.
----o---
Fréttir
Bernharð Stefánsson alþm. kom
hingað til bæjarins í fyrradag.
Úthlutun á styrk úr Snorrasjóði
hefir nú farið fram í annað sinn.
Styrkþegar eru nú þessir: (Mafur
Hansson, stúdent, frá Grund í Sorra-
dal, 100 kr. Árgeir Hjartarson, stú-
dent, frá Arnarholti, 900 kr., Geir
Jónasson, stúdent, frá Akureyri, 900
kr., og fá þeir allir styrkinn til
sagnfræðináms við háskólann í Os-
lo; Ármann Halldórsson, stúdent, frá
Bíldudal, 850 kr. til heimspekináms
við háskólann í Oslo, Barði Guð-
mundsson, meistari, 800 kr. til sagn-
fræðilegra rannsókna í Noregi og
Sigrún Ingólfsdóttir, frá Fjósatungu,
700 kr. tii undirbúningsnáms fyrir
kennslustörf við húsmæðraskóla hér
á landi.
Dánardægur. Hinn 14. júlí s. 1.
andaðist á sjúkrahúsinu á BÍöndósi,
eftir uppslcurð, Kjartan bóndi Ólafs-
son í Kaldrananesi í Strandasýslu.
hann var fæddur 28. des. 1877. Kjart-
an var framúrskarandi dugnaðar- og
forstands búhöldur, og að öllu góðu
kunnur, enda sárt saknað af sveit-
ungum hans og öllum er kynntust
honum nánar. Jarðarför hans fór
fram 23. júlí að Kaldrananesi að við-
stöddu fjölmenni, eftir því sem gjör-
ist til sveita. Hann lætur eftir sig
honu og eina dóttur, uppkomna.
Sveitungi.
Félag ungra Framsóknarmanna
efnir til ferðalags á morgun austur
að Sogsfossum.
Happdrætti iðnsýningarinnar. Dreg-
ið var 31. júli s. 1. þessi númer komu
upp;
1. vinningur (kr. 100,00) nr. 408
2. ---- (kr. 50,00) — 954
3. ---- (kr. 25,00) — 915
Fyrsta vinning hlaut Kristján Krist-
jánsson frá Dýrafirði, 3. vinning frú
Ingibjörg Danívalsdóttir Reykjavík,
en aigandi 2. vinnings hefir elcki gef-
ið sig fram ennþá.
Nýtt háflug. Frá því var skýrt hér
í blaðinu í fyrra, að prófessor frá
Belgiu, að nafni Piccard, hefði þá í
flugbelg komizt hærra í loft upp en
nokkur maður áður eða um 16. þús.
metra. Hafði hann með sér andrúms-
loft í flugbelgnum, og voru þeir fé-
■lagar tveir saman. Nokkrar klukku-
stundir óttuðust menn um afdrif
þeirra, en um síðir tókst þeim að
lenda á skriðjökli í Ölpunum. Núna
i vikunni licfir Piccard endurtekið
tilraun sína, og komst að þessu sinni
500 metrum liærra en í fyrra. Flug-
vél fylgdi honum eftir 4900 metra í
loft upp, en komst. þá ekki lengra.
Að þessu sinni var kona prófessors-
ins með honum og einn maður að
auki.
pýzkaland og þjóðabandalagið.
þýzki ríkiskanslarinn, von Papen,
hefir látið orð falla um það við er-
lenda blaðamenn, að til mála geti
komið, að þýzkaland segi sig úr
Deering rakstrarvélar
með stííum tindum eru bestar.
Samband ísl. samvínnufélaga.
T. W. Bnch
(Zjitasmíðta Buchs)
Tietgensgade 64. Köbenhavn
LITIR TIL HEIMALITUNAii.
Demantssorti, hrafnsvart, kastorsorti, 1 nrisarsorti og
allir litir, fallegir og sterkir.
Mælum með Nuralin-lit, á ull og baðmull og síU i.
TIL HEIMANOTKUNAR:
Gerduft „Fermenta“og „Evolin“ eggjaduft, áfnngis-
lausir ávaxtadropar, soya, matarlitir, „Sun“-skósvert-
an, „ökonom" skósvertan, sjálfvinnandi þvottaefnið
„Persil“, „Henko“-blæsódinn, „Dixin“-sápuduftið,
„Ata“-skúriduftið, kryddvörur, blámi, skilvindaolía
o. fl.
Brúnspónn.
LITYÖRUR:
Anilinlitir, Gatechu, blásteinn, brúnspón&litir.
GLJÁLAKK:
„Unicum“ & gólf og húsgögn. Þomar vel. Ágset tegund.
HOLLENSKT EXPORT KAFFI-SURROGAT:
Bezta tegund, hreint kaffibragð og ilmur.
Fæst alstaðar á íslandi.
mælir með sínu alviðurkennda RÚGMJÖLI og HVEITI.
Meiri vörugæði ófáauíég
S.I.s. slciftir eixDLg-öxxg-u. -vi-S o3c3*ruLr
Seljum og mörgum öðrum íslenzkum veizli num.
þjóðabandalaginu, með því að ekki
liafi verið tekið hæfilegt tillit til
þjóðverja á siðasta alþjóðafundi,
sem haldinn var um takmörkun \’íg-
búnaðar.
Frá írlandi. þegar írska þingið á
s. 1. vori samþykkti að neita að vínna
Bretakonungi hollustueið og viður-
kenna nokkurn hluta þeirra skulda,
sem Englendingar te.ja til hjá írucn,
svöruðu Englendingar með því að
leggja háan innflutningstoll á írskar
vörur, sem þýðir það, að sala írskrar
framleiðslu til Engiands stöðvast al-
gjörlega. Nú geisar hið grimmasta
viðskiptastríð milli landanna. Sið-
ustu fregnir hcrma, að Irar, sem bú-
settir eru í Ameríku, hafi bundizt
/samtökum um að kaupa ekki ensk-
ar vörur og standa þannig við hlið
landa sinna heifna.
Forsetakosningin í Bandarikjunum
í nýkomnu skeyti frá Washington
stendur m. a.: „Mikið er um það
rætt í amerískum blöðum um þess-
ar mundir hve mikið atkvæðamagn
litlu flokkarnir rnuni draga frá að-
aiflokkunum. Sumir þeirra, sem bezt
fylgjast með í þessum málunr og
hafa það að atvinnu að skrifa um
stjórnmálahorfurrrar fyrir fréttablöð-
in, hallast að þeirri skoðun, að
fjöldi óánægðra kjósenda muni að
þessu sinni greiða atkvæði frambjóð-
endum smáflokkanna. Eins og kunn-
ugt er, réði California úrslitum, er
Wilson var kjörinn forseti 1916. Höfðu
Demokratar þó aðeins 3.806 atkvæði
fram yfir Republikana i þessu ríki,
eir þar eð Demokratar höfðu nreira
lrluta kjósendaatkvæða í ríkinu, féklc
franrbjóðandi þeirra öll kjörmanna-
Allt með íslenskuin skipiim!
atkvæðin 13 að tölu. Hefði C. E.
Hughes (frambjóðandi Republikana)
unnið í Californíu, hefði hann ver-
ið kjörinn forseti Bandaríkjanna með
þriggja kjörmanna atkvæða meira-
hluta. Sex smáflokkar hafa þegar til-
kynnt forseta- og varaforsetaefni sín
í kosningunum, jafnaðarnrenn, konr-
múiristai', bannnrenn, bænda og vexk-
lýðsfl. (Farmer-Labour Party). At-
\innulausir uppgjafahermemr munu
ei til vill lrafa frambjóðendur í kjöri.
— Árið 1928 fengu finrm smáflokkar
362.000 atkvæði í forsetakosningunum
af 36.879.000 atkvæða, sem greidd
voru. þá fengu bannmenn aðeins
20.000 atkvæði (Prohibition Party)
En bannmenn greiddu þá almennl
Hoover atkvæði, vegna þess að Al-
fred Smith var andbanningur. Nú
horfir öðru vísi við í bannmáltnu.
Stefnuskrá Republikana fellur bann-
mörmum yfirleitt illa og er alger-
lega óvist, að þeir kjósi Hoover nú.
Sennilega kjósa margir þeirra fram-
bjóðanda bannmannaflokksins. At-
vinnuleysingjar groiða sennilega
margir atkvæði frambjóðendum rót-
tæku flokkanna. —- Hinsvegar nrá
geta þess, að enginn snráflokkanna
hefir þjóðkunnan nrann í kjöri, nem'a
jafnaðarnrenn. Frambjóðandi þeirra
er Nonnan Thomas, og hann hefir
nrikið fylgi rneðal frjálslyndra kjós-
enda“. — Eins og kunnugt er fer
forsetakosningin þannig fram, að
kjósendur velja ákveðna tölu kjör-
dæma, en kjörmennirtrir velja síðan
forsetanrr.
------o- -.—