Tíminn - 04.01.1934, Page 2
2
TlMINN
hluti Framsóknarilokksins er vikinn af
grundvelli bændastefnuxmar og tekur á-
kvarðanir sínar gegn hagsmunum bænda-
stéttarinnar“.
Nei, herra Tryggvi Þórhallsson. Um það
liggur einmitt ekkert íyrir, og mun ekki
liggja fyrir, að Framsóknarflokkurixm sé
„vikixxn af grundvelli“ bændastefnumxar.
Það, sem „liggur fyrir“ er, að Tryggvi
Þórhallsson, sem búixm var að vera „rit-
stjóri flokksins í 10 ár, þingmaður hans í
10 ár og ráðherra hans í 5 ár“, heíir „vikið
af grundvelli" Framsóknarflokksins og snú-
izt á móti stefnu sinnuog samherjum —.
Það var af því, að Framsóknarflokkurinn
vildi fara nákvæmlega sömu leiðina og Tr.
Þ. sjálíur hrósar dönskum Vinstrimönnum
fyrir að hafa farið?
Það var til þess og með þeim árangri, að
samsteypustjórnin og Magnús Guðmunds-
son fær að sitja að völdum fram á næsta
þing eins og fonmaður íhaldsflokksins lýsti
yfir í haust, að hún ætti að gera.
Þessi þrjú dæmi úr grein Tr. Þ. nægja.
Þau sýna, hvernig sá maður þarf að rita,
sem búinn er að yfirgefa samherja sína og
snúast á móti sjálfum sér.
íslenzk stjórnmál.
Framh. af 1. síðu
Fjárhagur Reykjavíkur.
Ibúum höfuðstaðarins finnst skuggalegt
framundan með fjármálin. Tekjuhalli er
stöðugt á rekstri bæjarins, skuldir safnast
vegna óarðgæfrar eyðslu, skipastóllirm geng-
ur úr sér, engin ný skip eru keypt. Næsta
útlitið að reksturshalli bæjarins verði allt að
800 þús. kr. á ári. Þó eru útsvörin svo há,
að boi'gararnir rísa ekki undir þeim og stór-
fé er í vanskilum ár frá ári.
Svona hefir íhaldið stjórnað Reykjavík.
Með vaxandi atvinnuleysi hleðst meira og
meira af fátæki'aframíæri á bæinn. Það er
vitað að framkvæmd fátækramálanna er í
megnasta ólagi. Bænum dettur ekki í hug
að kaupa inn handa þurfalingum sínum með
föstu skipulagi, eins og landið hefir nú um
i’jhin.cL.flsvsís .skip^.VÍU-
ingana, svo að þeir hafi sína „atvinnubót“.
Á nýafstöðnum bæjarstjórnarfundi í
Reykjavík kom í ljós hver er stefnumunur
flokkanna. íhaldið veit, að útvegurinn er að
hrynja í rústir, atvinnuleysið og eymdin í
bænum að aukast. Samt vill það ekkert gera
til að koma fótum undir heilbrigt atvinnu-
líf. Socialistar vilja kaupa nýja togara og
láta bæinn gera út. Það myndi allt of geysi-
áhætta, en ekki sízt ef íhaldsmenn ættu að
íramkvæma, þvílíkt vandaverk fyrir aðra.
Þeim gengur nógu illa, þótt eigin hags-
inunir knýi þá fram.
Fx’amsóknarmenn báru fram þá tillögu að
bærinn ætti sjálíur skip, en lánaði þau til
samvinnuútgerðar. Þar er haldið áfram
sömu braut og M. Kr. lagði fyrstur inn á,
og sem allir flokkar keppast nú um að
fylgja. Landið á vei'ksmiðjuna. Landið vinn-
ur úr hráefninu, en útgerðarmenn fá það
sem inn kernur fyrir vöruna að frádregnum
vinnslukostnaði. Engimi vafi er á að hér
er hin rétta leið í atvinnulífi bæjarins, ef
auka þarf við útgerðina, af því að „athafna-
mennirair“ gefast upp. Þeir sjómenn, sem
vantar vinnu, en fá hvergi skiprúm, munu
finna, að aukinn liðstyrkur Framsóknar-
manna á þingi og í bæjarstjóm er þeirra
bezta hjálp.
Lögreglumálin.
Eftir kommúnistauppþotið 9. nóv. 1932
vildi Ólafur Tliors di'aga saman allt að 600
menn, líkt og Órækja Snorrason fyr á dög-
um. Hugðist Ólafur þurfa þenna liðsafla til
að verja eignir „athafnamannanna“ fyrir
verkamönnum. Ekki varð úr þessu, en stór
liðssveit var á landslaunum í heilt ár og
hefir kostað ríkið um 400 þús. kr. Magn.
Guðm. kom með herfrv. fyrir þingið og
mátti stjórnin samkv. því hafa ótakmark-
aðan her, að liðsafla eða kostnaði. — Ríkið
borgaði allt.
Hermann Jónasson lagði drög að nýju
skipulagi og féllst fulltrúai'áð flokksins hér
í bænum á það og síðar flokksþingið og
þingflokkurinn. Var sú lausn lögfest á Al-
þingi síðastliðið vor, með nokkrum skemmd-
um frá íhaldinu. En aðalatriðinu var bjarg-
aö. Bærinn eykur lögreglu sína þar til tveir
lögregluþjónar koma á hverja 1000 bæjai’-
búa. Ríkið tekur að litlu leyti þátt í kostn-
aðinum, en getur líka haft samsvarandi not
Framh. á 3. síðu.
P. W. JACOBSEN & SÖN
Timburverzlun.
Símnefni: Granfuru.
Stofnað 1824.
Carl Lundsgade
Köbenhavn.
Afgreiðum frá Kaupmannáhöfn bæði stórar og litlar pantanir og
heila skipsfarma frá Svíþjóð. Sís og umboössalar annast pantanir.
:: EIK OG EFNI 1 ÞILFAR TIL SKIPA.
Bændafrömuður
látinn.
Nýlega er prófessor Lars
Frederiksen við Landbúnaðar-
náskólaim í Kaupmannahöfn lát
inn. • Með honum er hniginn í
valixm einn af þekktustu og
bezt metnu forvígismönnum
landbúnaðarins. Lars var fædd-
ur 1883 og því ekki nema
fimmtugur. Faðir hans, Sören
Frederiksen, var skólastjóri við
lýðháskólaim í Stövring á Jót-
landi, og er exm á lífi, kominn
um áttrætt. Við skóla S. Frede-
riksen var fyrst komið á fót
kennslu fyrir samvinnumenn,
og síðar breyttist sú byrjunar-
kennsla í samvinnuskóla Dana.
Lars stundaði nám við Land-
búnaðarháskólann og var þar
skólabróðir Halldórs Vilhjálms-
sonar, skólastjóra á Hvanneyri.
Að afloknu ágætu prófi við
Landbúnaðárháskólann, gerðist
hann starfsmaður við „De
danske Atlantiske Öer“. Þar
kynntist hann Daniel Bruun,
og fyrir þau kynni mun það
einkum hafa verið, að hann
fekk því ráðið, að félag danskra
ferðast um ísland sumarið
1905.
Einn í hópi kandídatanna
var Lars, og hann og Land-
brugskonsulent Sörensen í Lon-
don ferðuðust meira um landið
en allir hinir. Á þessari ferð
sinni kynntist Lars mörgum
íslendingum og kom til með
að þykja vænt um landið og
þjóðina. Þessi kynning hans
varð líka til þess, að undirrit-
aður, sem þá varð einn af þeim
sem hann kynntist, sigldi og
las búfræði, og sama má segja
um nokkra aðra Islendinga,
sem beint fyrir kynni af hon-
um hafa farið til Danmerkur
og stundað búfræðinám.
Vorið 1907 tók Lars að lesa
framhaldsnám í búfjárrækt.
Stundaði han nám sitt bæði í
Englandi, Skotlandi, Ameríku
og Þýzkalandi og var við það
í tvö ár. Þegar hann kom aftur
heim til Danmerkur, varð
hann formaður og ráðunautur
í sambandi józku búnaðarfélag-
anna. Meðan hann var þar,
kom hann því meðal annars til
leiðar, að farið var að sýna ís-
lenzka hesta á aðal búfjársýn-
ingu félaganna, en það studdi
aftur um tíma að sölu hesta í
Danmörku og útbreiddi þekk-
ingu manna á þeim.
Ásamt nokkrum öðrum bún-
aðarfrömuðum Dana, átti Lars
frumkvæði að því, að landbún-
aðarráðið, sem í sitja fulltrú-
ar frá samvinnu- og búnaðar-
félögum bænda, var stofnað,
og varð han fyrsti starfsmaður
þess. Það lenti því í hans hlut
að skipuleggja þar vinnuna,
leggja drög að því á hvern
hátt upplýsinga um markaði í
öðrum löndum væri aflað,
hvemig unnið væri úr þeim
upplýsingum og hvernig þær
væru tilkynntar bændum.
1923- varð Lars prófessor við
Landbúnaðarháskólann og jafn-
framt var honum falið að
hafa umsjón með fóðurtilraun-
um ríkisins með mjólkurkýr.
Kennsluna rækti hann með
prýði og var vinsæll meðal
nemenda sinna sem góður
kennari, er meira leit á nem-
endur sem félaga, en menn,
sem stæðu skör lægra en hann
og sem hann ætti að drottna
yfir og skipa fyrir, en það hef-
ir, því miður, oft orðið þrösk-
uldur, sem staðið hefir í vegi
fyrir góðri samvinnu milli
kennara og nemenda, að kenn-
ararnir hafa litið smáum aug-
um á nemendur. Það var fjarri
Lars, enda varð hann vinsæll
meðal nemenda sinna.
Fóðurtilraunirnar rak hann
með dæmafáum dugnaði og
skapaði með þeim nýja þekk-
ingu á ýmsu er snerti fóðrun
kúnna. Og hann gerði meira
en það. Hann hafði alveg sér-
stakt lag á því að gera niður-
stöður tilrauna sinna að eign
allra bænda, með því að gefa
þær út í litlum pésum og töfl-
um, búnar í svo aðgengilegan
búing, að allir vildu lesa. Með
þessu hefir hann pnnið bænda-
stétt allra Norðurlanda ómetan-
legt gagn.
til Norðurálf unnarT ° ameris’íía
hreyfingin, sem kölluð er
„Boy’s and Girl’s Club“ og
sem við hér á landi mundum
kalla Ungmennavinnufélög.
Þessi félgsskapur útbreidd-
ist töluvert bæði í Svíþjóð og
Danmörku, og í Danmörku
stjórnaði Lars honurp.
1931 varð hann forseti í
Landhusholdningsselskabet.
Lars Frederiksen var starfs-
maður með afbrigðum. Hann
gat varla verið óvinnandi.Hann
var vandvirkur en þó jafnframt
fljótvirkur. Eftir hann liggja
ekki lítil ritverk, þar á meðal
ferðasaga frá för hans hingað
til lands, fleiri gremar um ís-
lenzka hesta o. fl. sem snertir
okkur íslendinga.
Allir bændur Norðurlanda
mega sakna Lars Frederiksen.
Hann var þeim svo mikið, hann
vann svo vel fyrir þá og þeir
höfðu svo mikil nót af verk-
um hans.
En þótt maðurinn deyi, sem
kallað er, þá lifa verkin hans.
Og þegar hægt er að segja, að
þau hafi gert öðrum gagn, og
muni í framtíðinni gera öðrum
gagn og hafi verið unnin þann-
ig, að sá er þau vann hafi auk-
izt að manngildi og andlegu
atgerfi við hvert verk, þá má
með sanni segja, að vel sé lif-
að, að lífinu sé vel varið. Þetta
gerði Lars áreiðaniega. Hann
óx með hverju nýju verkefni
er hann tók sér fyrir. Og af
því að hann gerði það, þá veit
ég að hann enn mun vaxa með
hverju nýju verkefni sem hann
nú tekur fyrir á þeim sviðum
tilverunnar, sem hann starfar
nú á.
Kvæntur var Lars dóttur
Jensen Sönnerrup, er um eitt
skeið var landbúnaðarráðherra
og áttu þau hjón eina dóttur
barna.
Páll Zóphóníasson.
dCCunt og farsceCðar
*
á n$ja ártnu
giotef '2ðorcj
Gleðilegt nýár!
Þökkum viðskiptin á því liðna.
ElMSKlPAFÉLAG ÍSLANDS
4$,
| Gleðilegt nýár!
+8
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Samband fsl. samvinnufélaga $4
«4.
Umsóknír
um styrk
tíl skáida og listamanna
(kr. 5000,00), sem veittur er á fjárlögum
ársins 1934, sendist ritara Menntamálaráðs
Barða Guðmundssyni, Seljaveg 29, fyrir
20. febrúar 1934.
Mér undirrituðum var á síð-
astliðnu hausti dregin hvít
lambgimbur með mínu marki:
Blaðstýft aftan hægra, stýft
og biti aftan vinstra. Þar sem
ég á ekki þetta lamb, getur
réttur eigandi vitjað andvirðis
þess og samið við mig um
markið.
E. Óli Diðriksson,
Eyrarbakka.
Fundur i Vik
Á fjölmennum fundi Fram-
sóknarbænda í Vestur-Skapta-
fellssýslu, sem haldinn var í
Vík í Mýrdal 12. des. s. 1. og
boðaður hafði verið af Lárusi
bónda Helgasyni í Kirkjubæj-
arklaustri, voru einum rómi
samþ. eftirfarandi tillögur:
1. „Fundurinn ályktar, vegna
klofnings þess, sem nú er í
Framsóknarflokknum, að
standa saman einhuga nú sem
fyr í flokknum og gera allt
sem hægt er til að klofning-
urinn geri flokknum sem
minnstan óskunda í héraðinu".
2. „Fundurinn álítur það
réttlætismál, að unnið sé að
því, að jafna þann mismun sem
átt hefir sér stað í kaup-
greiðslu í opinberri vinnu í
hinum ýmsu héruðum lands-
ins“.
Auk þessara tillagna voru
margar aðrar samþykktar.
Samhugur og áhugi fundar-
manna var eindreginn um það,
að vinna að eflingu Framsókn-
arflokksins í kjördæminu og
stuðla að sigri fulltrúa hans í
næstu kosningum.
Síminnog sveitirnar
Nú er komin út ný símaskrá.
í henni eru nú í stafrófsröð
nöfn þeirra bæja, sem sími er
kominn á. Sést þá að þeir eru
yfir 360 eða 16. hver bær í
sveit á landinu. Símastöðvar í
sveit eru um 400 og eru það
því um 760 sveitabýli seni nú
hafa síma um áramótin. Þetta
er gleðilegt tímans tákn um
vaxandi framfarir, þrátt fyrir
kreppu. Fyrir 5 árum síðan,
þegar Framsóknarfglokkurinn
komst til valda, voru bæirnir,
sem höfðu síma, um 100, með
landsímastöðvunum sem þá
voru í sveitunum. Síðan hefir
tala sveitaheimila með síma
sjöfaldast. Og mjög mikið er
þetta að þakka lögunum um
sveitasíma, sem flokkurinn kom
í gegn og þeirri alhliða fram-
kvæmdaöldu, sem farið hefir
yfir landið, og sem sumum
þykir nú að hafi verið nokkuð
háreist og eigi að lækka aftur/
En vildi nú nokkur, sem sím-
ann hefir, missa hann aftur?
P.
»Við skjáinn«
Krumminn á skjánum
— kallar hann inn:
Gefðu mér bita af borði þínu
bóndi góður minn.
(Gömul vísa).
Sr. Eiríkur á Torfastöðum hefir,
að gefnu tilefni beðið þess getið,
að hann hafi ekki bannað kosn-
ingabílum íhaldsflokksins, að
flytja annara flokka menn á kjör-
stað í Biskupstungum 16. júlí sl.