Tíminn - 19.02.1934, Blaðsíða 3
Tf MINN
81
Flokksfundir
f Þingeyjarsýslum.
Fulltrúaráðsfundur
Norður-Þingeyjarsýslu.
Á fundi fulltrúaráðs og fé-.i
lagsstjórnar Framsóknarfélags í
Norðursýslu voru samþykktar j
eftirfarandi tillögur með sam- !
hljóða atkvæðum:
„I. Fundur fulltrúaráðs og
félagsstjórnar Framsóknarfé-
lags Norðursýslu, haldinn að
Garði í Núpasveit 29. janúar
1934, lýsir yfir því áliti sínu,
að hann telur brottvikningu al-
þingismannanna Hannesar
Jónssonar og Jóns Jónssonar úr
Framsóknarflokknum í des. s.
1. hafa verið óumflýjanlega
vegna starfsemi flokksins í
framtíðinni.
II. Fundurinn ákveður að
halda fast við stefnu og starfs-
reglur þær, er samþykktar
voru á síðasta flokksþingi
Framsóknarmanna og lýsir
fullri andstöðu við hinn ný-
stofnaða Bændaflokk. f tilefni
af því, felur fundurinn deildar-
stjórum sínum að safna með-
limum í félagið.
III. Fundurinn lýsir ánægju
sinni á framkomu þingmanns-
ins og viðhorfi til stefnumála
Framsóknai-flokksins og felst
algerlega á þann samstarfs-
grundvöll sem ráðgerður var
af Framsóknar- og Jafnaðar-
mönnum í sainbandi við sam-
komulagstilraunir um stjórnar-
myndun á s. 1. Alþingi.“
Fundarstjóri var Pétur Sig-
geirsson á Oddsstöðum, en
fundarskrifari Sigurður Björns-
son á Grjótnesi.
Framsóknaríélag Norður-
sýslu nær yfir Norður-Þing-
eyjasýslu vestan Öxarfjarðar-
heiðar, þ. e. Presthólahrepp,
Öxarfjarðarhrepp, Fjallahrepp
og Kelduneshrepp.
Aðalfundur fulltrúaráðs
Suður-Þingeyinga.
Fulltrúaráð Framsóknarfél.
Suður-Þingeyinga hélt aðalfund
sinn 11. febrúar að Laugum í
Reykjadal. M. a. samþykkti
fundurinn eftirfarandi ályktun:
„Aðalfundur fulltrúaráðs
Framsóknarfélags Suður-Þing-
eyjarsýslu-kjördæmis lítur svo
á, eftir þeim skýringum, sem
fram hafa komið frá báðum
hliðum, að það hafi verið óhjá-
kvæmilegt að víkja alþingis-
mönnunum Hannesi Jónssyni
og Jóni Jónssyni úr Fi'amsókn-
arflokknum,. enda hafi þeir áð-
ur gefið íullkomið tilefni til
þess. llinsvegar lýsir fundurinn
vonbrigðum sínum út af frá-
hvarfi Tryggva Þórhallssonar
og megnri vanþóknun á ásökun-’
um þeim, sem hann varpar á
Framsóknarflokkinn í vikublað-
inu Framsókn og mótmælir
eindregið öllum tilraunum hins
svokallaða „Bændaflokks“, er
sýnilega leiða eingöngu til þess
að kljúfa stjómmálasamtök
bænda og veikja viðnámsþrótt
þeirra gagnvart andstæðingun-
um. Fundurinn skorar því fast-
lega á alla samherja, sem fyr
og síðar hafa skipað sér undir
merki Framsóknarflokksms og
samvinnufélagsskaparins í land
inu, að láta ekki blekkjast af
slíkum frávillingum, heldur
þjappa sér sem fastast saman
um áhugamál sín fyrir næstu
kosningar og treysta skipulag
flokks síns á öllum sviðum“.
Mættir voru fulltrúar úr
ílestum eða öllum hreppum
Suður-Þingeyjarsýslu, þar á
meðal þingmaður kjördæmisins,
Ingólfur Bjamarson í Fjósa-
tungu.
Tillagan var samþykkt með
atkvæðum allra fundarmanna,
og var um hana enginn ágrein-
ingur.
Borgarastyrjöldin
í Austurríki.
Fi’amh. af 1. síðu.
hafi 1000 af liði jafnaðar-
manna, en 53 af stjórnarliðinu.
I öðrum borgum er talið að
drepnir hafi verið 500 jafnað-
armenn, en sárfáir af liði
stjórnarinar. Fjöldinn allur
hefir særst. Á föstudaginn var
búið að hneppa 2000 jafnaðar-
menn í fangelsi í Vínarborg
einni, en síðan hafa verið stöð-
ugar fangelsanir, bæði þar og
í öðrum borgum Austurríkis.
Herréttir hafa verið stofnaðir
og þegar framkvæmdir nokkrir
líflátsdómar.
Atburðir þessir hafa hlotið
misjafna dóma. Einna harðast
hefir Dollfuss verið áfelldur í
blöðum þýzkra nazista. Verk
þeirra sjálfra lýsa þó ekki við-
bjóð á slíkum aðferðum. En til-
gangurinn er sá, að reyna að
nota gremjuna yfir þessu
blóðbaði st j órnarinnar, til
að efla fylgi nazistanna, sem
nú eru einu nokkurs megandi
stjói’narandstæðingarnir í land-
inu.
Mikllr vatnavextir hafa verið
bæði sunnan- og norðanlands síð-
astliðna viku. Einkum hafa árnar
í Húnaþingi og á Suðurlands-lág-
lendinu verið í mikium vexti og
hefii’ sumstaðar orðið tjón af, á
\egum og síma.
í Frakklandi er nú alit oi’ðið
aftur með kyrrum kjörum. Dou-
mergue, fyrvérandi forseti iiefir
myndað stjórn með stuðningi allra
liokka, nema jafnaðai-manna. —
þingið hefir kosið nefnd til að
rannsaka Staviski-málið.
Samvinnubyggingafélagið. Byrj-
að er nú að grafa fyrir kjöllur-
um sdmvinnuhúsanna. Vinna við
það um 20 manns fyrst í stað, en
munu verða fleiri síðar. Einnig
er verið að grafa fyrir leiðslum
í götur á því svæði, sem húsin
eiga að standa.
Dánardægur. l’veir merkir Norð-
ur-þingeyingar eru nýlátnir. þeir
Siggeir Pétursson bóndi á Odds-
stöðum og Jóhann Baldvinsson
bóndi og vitavörður á Rifi. Báðir
aidraðir menn, og létust af völd-
um illkynjaðrar kvefsóttar, sem
gengið liefir í héraðinu.
Látiun er Ólafur Kr. þórðarson
að Strandseljum. Hafði hann lengi
búið að Strandseljum og var
mesti dugnaðarbóndi.
Nýlátinn er á Syðri-Rauðalæk í
Rangárvallasýslu Ilelgi Jónsson;
háaldraður maður. Hafði verið um
50 ár vinnumaður hjá Runólfi
bónda þar.
Úiflutningur. í janúar voru
fluttar út vörur fyrir 0.041.000 kr.
I sama mánuði í fyrra var út-
flutningur fyrir 2.881.400 kr.
Heimili á landinu töldust alls
20976 á öllu landinu við manntal-
ið 1930. þarna með eru einnig
taldar stofnanir, sem hafa sam-
eiginlegt mötuneyti eins og t. d.
skólar, sjúkrahús o. fl. Slík heim-
ili voru 99 talsins með 1813
manns. Einbýlisfólk, sem taldist
sérstakt heimili voru 618. Eigin-
leg heimili voru því 20.259 með
106.430 manns. Kemur þá 5,3
manns að meðaltali á hvert heim-
ili. Fjölmennust eru heimilin enn-
þá í sveitunum, þar kemur 5,8
manns á heimili, en 4,9 í bæjum.
Ull. Síðastliðið ár hafa verið
flutt út 1.287 þús. kg. af ull og
verðið verið 1383 þús. kr. 1932 var
útflutningurinn 553 þús. kg. og
verðið 497 þús. kr.
Gærur. Síðastliðið ár voru flutt-
ar út saitaðar gærur fyrir 829 þús.
kr. Árið 193? var verðhæðin ekki
nema 419 þús. kr. og var útflutn-
ingsmagnið þó ekki nema litið
eitt minna þá.
Ostur. Árið 1932 var fluttur út
ostur fyrir 3380 kr. Síðastliðið ár
var enginn ostur fluttur út.
KJöt. Árið 1932 voru flutt út 1766
þús. kg. af freðkjöti fyrir 830 þús.
kr. Sama ár voru flutt út 13389 tn.
af saltkjöti fyrir 695 þús. kr. Síð-
astliðið ár hefir freðkjötsútflutn-
Árshátið
s amv innu manna
verður haldin að Hótel Borg, föstudaginn
23. þ. m. og hefst með sameiginlegu borð-
haldi kl. 7V* síðdagis.
Til skemmtunar verður: Ræðuhöld, ein-
söngur (María Markan) og D ANS.
Væntanlegir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að
rita nöfn sin á áskriftalista er liggja frammi á þessum
stöðum:
Kaupfélagi Reykjavíkur, Bankasfræti,
Kaupfélagi Alþýðu, Vitasfig og Bræðraborgarstig
og Hótel Borg.
Undirbúningsnefndin.
Happdrætti Háskóla fsiands
Með því að fá hæsta vinning á sama númer í
hverjum flokki er hægt að vinna á einu ári
185000lo^óx&is.!?
Fjórðungsmiði kostar 1 kr. 50 au. í hverjum
flokki.
Á fjórðungsmiða er hægt að ‘vinna á einu ári
46250 króxiur.
Vinningar eru skatt og útsvarsfrjálsir.
TRYGGIÐ AÐEINS HJÁ HJÁ ÍSLENZKU FÉLAGI
PÓBthðlf:
718.
Simnefni:
Incurance.
BRUNATRYGGINflAE
(hús, innbú, vörur o. fl.). Sími 1700.
SJÓVÁTRYGGINGAR
(skip, vörur, annar flutningur o. fl). Sími 1700.
Framkvæmdarstjóri: Sími 1700.
Snúið yður til
Sjóváiryggingarfélags (slands hf.
Eimskipafélagshúsinu, Reykjavík.
iugurinn verið 1054 þús. kg. og
verðhæðin verið 624 þús. kr. A1
saltkjöti voru fluttar út 6758 tn.
og var verðið fyrir það 479 þús.
kr.
Mismunur innflutnings og út-
flutnings var á árinu 1932 9,8 milj.
króna, sem útflutningur var meiri
en innflutningur, cn nú or útflutn-
ingur aðeins 2,2 milj. kr., meiri.
Talið er að 9 milj. kr. þurfi til
greiðsiu á afborgunum og skuld-
um í útlöndum, svo elcki lítur byr-
lega út með verzlunarjöfnuðinn
hjá okkur á þessu ári.
Hitinn í desember var 5,7° yfir
meðaltal. þetta er iilýjasti desem-
ber, sem komið hefir hér á landi
í 86 ár. Veturinn 1846 var álíka
hlýr og í ár, samkvæmt mæling-
um, sem þá höfðu verið gerðar í
Stykkishólmi.
íþróttaskólinn á Álafossi. Sigur-
jón Pétursson er nú að láta hyggja
skóíahús fyrir íþróttaskóla sinn.
Er það stórt l.eikfimishús, sund-
skáli og íbúð fyrir nemendur. Til-
ætlunin hjá Sigurjóni mun vera
að þarna verði iþróttaskóli, sem
starfi allt árið, en hingeð til hefir
skólinn aðeins starfað á sumnn.
Mörg bréf. Líklega hefir enginn
maður ó síðasta ári fengið eins
mörg hréf og Roosevelt forseti.
Frá því &ð hann tók við fors«ta-
Jörd
við Reykjavík
til sölu.
Lítil útborgun. Hagkvæmir
borgunarskilmálar.
Húsnæðisskrifstofa Reykjavíkur
Aðalstræti 8
störfum í marz og til ársloka fekk
hann lmilj. 620 þús. bréf og 200
þús. símskeyti.
Smjör á ferðinni kringum hnött-
inn. Fyrir nokkru síðan hefir
verið gei’ð merkileg tilraun til að
sýna gæði danska smjörsins og
hversu lengi það getur haldið sér
jafngott. þann 17. októlier í haust
var lítiil trékassi með 3 kg. af
smjöri. sendur á stuð frá Kaup-
mannahöfn og þangað kom liann
89 dögum seinna og liafði þn farið
lii’inginn í kringum jörðina, eða
45.212 km. iunga l.eið. Sérfróðir
menn voru kvaddir til þoss að
úrskurða hvaða breytingum það
hefði tekið og dómur þeirra vur a
þá leið, að það hefði lmldið gæð-
um sínum og væri að öllu lejdi
óskemnn ,
Framh. af 2. síðu.
af þeim orsökum í andlega og- líkamlega
oymd og volæði.
Hinir svokölluðu iðjuhöldar hafa nú og
vafalaust einnig í framtíðinni, ætíð nægi-
legt svigrúm til að slcapa atvinnu. Nú
standa þeir ráðþrota og hundruð og jafn-
vel þúsundir manna vantar atvinnu og
heilsusamleg’ heimili. Vegna þeirra manna
þarf að koma á samvinnuútgerð og sam-
vinnuiðnaði og reisa fleiri verkamannabú-
staði og samvinnuhús. Ef þetta er ekki gert
verður ógrynni fjár fleygt í atvinnubætur
og máske síðar í atvinnuleysisstyrki. Og
samt getur bölvun stéttastríðsins hvílt eins
og martröð á þjóðinni.
Eg álít samvinnuiðjuna geta verið með
þrennu móti. Fyrst, að sambandið eða ein-
stök samvinnufélög eigi iðnfyrirtækin, eins
og t. d. Gefjunni, og er það fullkomnasta
legund samvinnuskipulags. 1 öðru lagi get-
ur hópur einstakra manna átt fyrirtækið og
starfrækt það. Þanig eiga nú n.okkrar skips-
hal'nir togara og línubáta og framleiða á
samvinnuvísu. I þriðja lagi kemur sú sam-
vinna sem M. Kr. stofnaði fyrst til hér,
tneð síldarverksmiðjunni á Siglufiröi. Þá
á ríkið eða bæjarfélög íramleiðslutækið,
sivipið eða verkstæðið, en samvinnustarfs-
Jolkið fær að nota þessi tæki og vinna með
þeim. Á þennan liátt á að útrýma atvinnu-
levsinu, liommúnismanum, nazismanum og
öðrum glapræðum örvinglaðra manna.
A sama hátt á að byggja húsin handa
starfsliði landsins. Enginn dugandi maður
eða kona á að þurfa að vera húsvillt eða
búa í rökum kjallara eða hanabjálkalofti.
Það þarf að nota starfsorkuna, beina henni
að viðfangsefnum sem gagnlegt er að fást
við. Eg- tek dæmi um skilyrðin hér í Rvík.
llér eru vanalega þúsundir manna með hend-
ur í vörum langan tíma úr árinu. Hér eru
líka þúsundir manna sem lifa í heimkynn-
um sem ekki eru mönnum boðleg. Hvað er
dýrast í húsabyggingum ? Vinnan. Og af
hverju hefir þjóðin mest? ónotuðu vinnu-
afli og ónotuðu byggingaefni. Ilvers vegna
hefir forráðamönnum húslausra bæja aldrei
dottið í hug að koma upp verkstæðum þar
sem atvinnulausir menn gætu fengið að
steypa steina í íbúðarhús handa sér? Hvað
væri eðlilegra en að vinna þannig að undir-
búningi nauðsynlegrar húsagerðar, þegar
ekki er um aðra atvinnu að ræða?
En það er bezt að taka það strax fram,
að það er ekki hægt að framkvæma neitt
af þessum nauðsynlegu hlutum af byltingar-
flokkum. Það er ekki heldur hægt að koma
neinu verulegu af þessu í framkvæmd með
venjulegum aðferðum socialista og íhalds-
rnanna, t. d. með því að heimta taxtakaup
af öðrum fyrir vinnu við að lcoma þaki yfir
höfuð þess sem í húsinu á að búa, eða með
því að byggja svo dýrt að fátæklingar geti
ekki búið í þeim húsum, sem ætluð eru
mönnum.
Lausn sú, sem hér er bent á, lausn Fram-
sóknarmanna á fjárhags- og atvinnumálum
þjóðarinnar, fæst ekki með öðru rnóti en því
að hver einstakur maður leggi fram krafta
sína eins og nýlendumaður gerir í landnámi,
og að jijóðíélagið hjálpi með víðsýni en
hófsemi hverjum þeim, senr vill hjálpa sér
sjálfur.
Konpnúnistar bjóða æskunni byltingu, en
meina raunar ekki annað en að herrna eftir
kúgunaróp erlendra þjóða sem lent hafa
í stórum raunum. Nazisminn lofar að liann
vilji gera allt vinnandi fólk að þrælum, sem
starfa fyrir iðjulausa yfirstétt undir eftir-
liti böðla með skammbyssur og gaddakylf-
ur. Socialisminn býður ríkisrekstur sem ekki
ber sig. Ihaldið býður takmörkuð atvinnu-
skilyrði, kjallaraíbúðir, gjafamat í harðind-
um, frá hræsnisfullu fjárgróðafólki, sem
leikur sér að neyð aumingjanna eins og börn
að glingri. Og þegar sérstaklega stendur á
gjafamat fyrir kosningar. Þegar það ekki
nægir, þá atvinnubótavinnu við að höggva
klaka eða þá beinan sveitarstyrk, tekinn út
í uppsprengdum vörum hjá hreinhjörtuðum
íhaldskaupmönnum.
Framsóknarmenn bjóða áframhald á því,
sem þeir hafa byrjað á: samvinnu í verzlun
og iðnaði samvinnu í útgerð og húsabygg-
ingum, þar til hver dugandi maður, sem vill
leggja krafta sína fram til að vinna, hefir
fengið verkefni til starfa allt árið og húsa-
kynni sem hæfa mannlegum verum.
Nú er unga fólksins að dæma um, hvort
það vill þróun, frið, menningu, starf, heim-
ili, frelsi og farsæld, eða eitthvað svipuð
örlög eins og fregnir herma nú frá austur-
rízku þjóðinni.
Unga fólkið svarar að nokkru leyti fyrlr
sig við kosningamar á vori komanda.
J. J.