Tíminn - 12.03.1934, Síða 2
42
TIMINN
leggðum ekki okkar þúsund ára gamla Al-
þingi með stéttareipdrætti. Þingræðið, lýð-
ræðið er nú hvarvetna umsetið af þröng-
sýnum öfga- og ofbeldisstefnum. Þar sem
þjóðþingin klofna í stéttaflokka og alls-
konar sérhagsmunaflokka, reynist þing-
stjómarskipulagið svo veikt, að traustið til
þess brestur og einræðisstefnur brjóta
niður lýðræðið. Þarf eigi annað en benda á
Þýzkaland þessu til sönnunar.
Myndun stétta-þingflokka er að mínu
viti glapræði. Þjóðhollir menn eiga ekki að
veita þvi máli stuðning.
Nú á dögum tíðkast mjög þau breiðu
spjótin, að deila á þingstjórnarskipulagið og
finna því margt til foráttu. Enn hefir þó
eigi verið sýnt með íullum rökum, að annað
þjóðskipuleg væri frjálslegra, þroskavæn-
legra og fullkomnara. Vér, sem undir því
skipulagi búum, eigum að halda því í heiðri,
eigum að þroska það og fullkomna. Stofn-
un stéttaflokks er spor í öfuga átt, og ber
ekki vott um hækkandi pólitískan þroska.
Enginn hinna núverandi þingflokka hér
á. landi er hreinn stéttarflokkur. Nú er ís-
lenzkum bændum ætlað að stíga það spor,
sem aðrar stéttir þjóðfélagsins hafa verið
of þroskaðar til að stíga. Nú er skorað á
þá að stofna stéttarflokk. Svar mitt skal
ekki vera tvírætt: Ég hjálpa ekki til að
vinna slíkt pólitískt óhappaverk.
Létt verk væri að halda áfram og færa
fleiri rök gegn stofnun stéttaflokka. En
ég gjöri ráð íyrir, að þér, sem nú efnið til
nýs flokks, hirðið lítt um andmæli eins
bónda. Ég ætla því að breyta til og Lúla
þeirra raka, sem ætla má að þér véíengið
ekki. Þau eru heimafengin, hjá bændaflokks-
stofnendunum sjálfum.
í Framsókn, 86. tbl. frá 30. des. sl., situr
Dagfinnur við stjórnmálaskjáinn og virðir
fyrir sér „stjórnaríormin“. Um „lýðræðið“
segir hann: „Lýðræðið ber mein í barmi,
og elur þaú sér við brjóst. Aðalmeinið er
hin vaxandi stéttabarátta, sem telja má að
eigi aftur rót sína í hinum óréttláta mun á
æfikjörum þegnanna, eins og lífið sjálft og
stjórnskipulagið úthlutar þeim. . Utan um
stéttahagsmuni eru svo aftur myndaðir
stjórnmálaflokkar, er stefna til tveggja and-
stæðra hliða um yfirráð þjóðmálanna í sín-
ar hendur.
• A þessum megingrundvelli sprettur upp
hm harðvítuga og illvíga barátta á milli
stétta og stjórnmálaflokka. — — — Svo
má heita, að þjóðirnar logi í innbyrðis sund-
urþykkju, stétt á móti stétt-------maður á
móti manni.----------Stéttabaráttan er orð-
in hrein og bein innanlandsstyrjöld — eins-
konar sturlungaöld nútímans“.
Þannig farast Dagfinni orð. Heyrst hefir
aö liann sé einn af stofnendum Bændaflokks-
ins. Samtímis og blað flokksins kveður upp
þann dóm um stéttaflokkana, að þeirra
vegna logi þjóðirnar í innbyrðis sundur-
þykkju og að stéttabaráttan sé orðin hrein
og bein innanlandsstyrjöld, einmitt samtímis
skorið þér stofnendur flokksins bréflega á
bændur landsins að mynda stéttarflokk.
Mikið er örlæti yðar á góðum leiðbeining-
um bændum til handa; virðist það ná því
hámarki að eigi viti hin hægri höndin hvað
sú vinstri gjörir.
Ég hefi héc í stuttu máli skýrt frá hversu
ég lít á stofnun stéttaflokka og afléiðingar
þeirra fyrir þingræðið. En þá ber einnig á
það að líta, hvort nú sé fyrir hendi hér á
landi þær alveg sérstöku ástæður, sem gjöri
óumflýjanlegt fyrir bændur að stofna sér-
floltk — og sem þá um leið réttlæti þær i
aðfarir gagnvart þingræðishugsjóninni. Þér .
teljið að svo sé; en 1 bréfum yðar eru engin
rök færð fyrir þeirri staðhæfingu, aðeins
vitnao í grein Tryggva Þórhallssonar í
Framsókn 15. des. sl. 1 nefndri grein er það
fullyrt, að Framsóknarflokkurinn hafi
brugðist stefnuskrá sinni og svikið „mál-
stað bændanna“. Eigi eru þó færð dæmi, |
er sanni þetta, t. d. frá nýafstöðnu þingi,
enda var ekki við því að búast að þingið j
hefði til meðferðar og afgreiðslu stórmál,
er snerti landbúnaðinn. Það var háð vegna |
sérstaks máls og átti að vera stutt. Ekki er
heldur kunnugt að nein áhugamál Tr. Þ.
snertandi landbúnaðinn hafi á því þingi i
verið felld eða svæfð fyrir honum. Að störf- I
um Framsóknarflokksins á hinum fyrri ;
þingum getur ásökun þessi ekki lotið, svo
ósleitilega var þá unnið að málefnum bænd- !
anna; enda eigi aðrir hælt starfi flokksins
að þeim málum meir en Tr. Þ. Nei, ásökun
þessi miðast við hvorugt þetta. Hún beinist
að þeim samkomulagsgrundvelli til stjómar-
myndunar, sem lagður var á síðasta þingi
Framh. á 4. síðu.
HAVNEM0LLEN
KAUPMANNAKBFN
mælir með sínu alviðurkennda RÚGMJÖLI OG H V E ITI
Meiri vöruéæði ófáanleé
S.I.S. skiptir eingöngu við okkur.
Seljum og mörgum öðrum íslenzkum verzlunumL
P. W. Jacobsen & Son
Timburve!rzlun
Símnefni: Granfuru. Stofnað 1824.
Carl Lundsgade Köbenhavn.
Afgreiðum frá Kaupmannahöfn bæði stórar og litlar pantanir og
heila skipsfarma frá Svíþjóð. — Sís og umboðssalar annast pantanir.
:: :: :: :: EIK OG EFNI 1 ÞILFAR TIL SKIPA. :: :: :: ::
Fóðurbætir
Munið að þér fáið hvergi
betri fóðurbæti en hjá
Samband ísl. samvinnufélaga
Tilbúinn áburður
Munið að nú er tími tilkom-
inn að panta tilbúinn áburð;
látið ekki dragast að senda
pantanir.
r
Aburðarsala rítisins
Flokkssamþykkt
Aðalfundur Framsóknar-
félags Langnesinga.
2. þ. m. var haldinn á Þórs-
höfn aðalfundur Framsóknar-
félags Langnesinga og gerðist
þar meðal annars þetta.
2. mál. Aðstaða Framsóknar-
flokksins til annara flokka.
Eftir allmiklar umræður kom
fram svohljóðandi tíilaga, sem
var samþykkt með öllum
i greiddum atkvæðum gegn einu:
j „Aðalfundur Framsóknarfé-
| lags Langnesinga telur, að mið-
stjórn Framsóknarflokks hafi
tekið rétta aðstöðu til klofns-
ingmannanna Jóns Jonssonar
frá Stóradal og Hannesar Jóns-
sonar, að reka þá úr flokknum,
og telur það ekki hafa gefið
þeim Tryggva Þórhallssyni og
Halldóri Stefánssyni réttmætt
tilefni til þess að segja sig úr
Framsóknarflokknum og stofna
nýján flokk. Og þar sem Fram-
sóknarflokkurinn hefir alltaf
verið og er fyrst og fremst
flokkur bænda, virðist ekki
þörf á öðrum bændaflokki“.
Á fundinum var mættur mik-
ill hluti félagsmanna og tekin
fyrir ýms fleiri mál.
Framsóknarfélag Langnes-
inga nær yfir Norður-Þingeyj-
arsýslu austan öxarfjarðar-
heiðar, þ. e. Sauðaneshrepp og
Svalbarðshrepp.
Aðalfuudnr
Mjólkurbús Flóamanna
var haldinn 26. f. rn. að
Skeggjastöðum í Flóa. Fram-
kvæmdarstjórinn, Karl Jörgen-
sen, lagði fram skýrslu um
rekstur búsins á síðastliðnu
ári. Til búsins voru fluttar tæp-
ar 2 milj. kílógr., eða mjög
svipað og árið áður og fengu
bændur útborgaða 16,6 aura
fyrir kg., miðað við meðalverð.
Meðalfita var 3,64 af hundr-
aði, eða lítið eitt meira en árið
áður. — Úr stjórn gekk Sigur-
grímur Jónsson í Holti og var
endurkosinn. Sömuleiðis var
endurkosinn varamaður hans
Þorgeir Bjarnason á Hærings-
stöðum. Ágúst Helgason var
endurkosinn endurskoðandi, og
sömuleiðis varamaður hans
Árni Árnason í Oddgeirshólum.
— Á fundinum voru sam-
þykktar 2 tillögur svohljóð-
andi:
I. „Með því að vegalagning
á nokkrum stöðum í Flóa
stendur enn í vegi fyrir al-
mennri þátttöku Flóabænda í
Mjólkurbúi Flóamanna, þá skor-
ar fundurinn á vegamálastjóra
og ríkisstjóm, að láta rann-
saka, hvaða viðbótarvegi vant-
ar, svo að allir Flóabændur
geti náð til búsins með sem
líkastri aðstöðu“.
II. „Með því að aðalfundur
Mjólkurbús ílóamanna álítur,
að samgönguteppa, sem verður
á hverjum vetri, vegna snjóa,
á leiðinni mili Suðurlands-
undirlendis og Reykjavíkur, sé
eitt af aðalmeinum þessara
héraða, þá skorar fuhdurinn á
:ríkisstjómina, að láta þegar
á næsta sumri fara að gera þá
samgöngubót milli þessara hér-
aða, sem verði örugg í snjó-
þyngslum á vetrardegi".
Dvö 1
flytur smásögur eftir beztu
höfunda, sagnafróðleik, kvæði,
skrítlur o. m. fl.
Kemur út á hverjum sunnu-
degi. Kostar 9 kr. árgangurinn
en 25 aura heftið í lausasölu.
Pantið þetta skemmtilega
tímarit hjá afgreiðslu Nýja
dagblaðsins.
A víðavanúi.
Skagastrandarhöfn.
Guðm. Ölafsson í Ási beitti
sér fyrir því, með einhuga
stuðningi Framsóknarmanna,
að lög voru samþykkt á Al-
þingi 1929 um hafnargerð á
Skagaströnd. G. ó. gat þá út-
vegað héraðinu lán til að
byrja verkið og framlög úr
ríkissjóði, en þá stóð á ein-
hverjum undirbúningi heima
fyrir. En nú er málið orðið hið
mesta áhugamál héraðsins,
einkum þó Vindhæhnga, sem
vita hve mikla þýðingu höfnin
myndi hafa fyrir héraðið og
sýsluna. Maður var hér á ferð
fyrir hafnamefnd í vetur til að
útvega lán í fyrirtækið. En þá
rak hann sig á, að ríkisstjórn-
in neitar um framlag að sínu
leyti, og situr nú allt við það
sama. En ekki má við svo bú-
ið standa. Höfnin á Skaga-
strönd verður að koma. Þor-
steinn Briem og M. G. hafa
eytt 200 þús. kr. í óþarfa og
ólöglega varalögreglu í sumar
sem leið. Þá höfðu þeir nóga
peninga. En í svo alvarlegu
máh má ekki láta ráða tómt
hugleysi og afturhald. Stjómin
verður að leggja fram féð, og
það í vor.
„Sparnaður“ íhaldsmanna.
Hvar sem íhaldsmaður kem-
ur fram og á að gera grein
fyrir stefnu flokks síns, er
hamrað á því sama — að flokk-
urinn vilji sparnað. Það láist
venjulega að taka það fram, og
menn hafa ekki enn gert sér
nægilega vel grein fyrir því,
að spamaður íhaldsins er fólg-
inn í því, að skera niður og tak-
marka útgjöld til almennings-
þarfa. Hinu er minna skeytt af
íhaldinu, þótt útgjöld til em-
bættismannahalds o. þvíl. séu
há, enda verða íháldsmenn
venjulega fjár aðnjótandi 1
sambandi við slík útgjöld.
Gott dæmi um „sparsemi" í-
haldsins er'fjármálastjórn þess
í Reykjavík. Nýjar fram-
kvæmdir bæjarsjóðs eru sára-
litlar, en borgarstjóranum eru
greiddar í laun 16,800 kr., raf-
magnsstjóranum 22 þús., hafn-
arstjóranum 18 þús., Knúti 10
þús. í eftirlaun o. s. frvi —
Ekkert lát er á aukningu rekstr
arútgjalda bæjarins. Síðan bæj-
arstjómarkosningamar fóru
fram, hafa verið stofnuð 3 ný
embætti við rekstur bæjarins
og launin ekki skorin við nögl.
Svo ætlast íhaldsmenn til
að „spamaðarglamur“ þeirra
sé tekið alvarlega. Aðeins eitt
vilja forkólfar íhaldsins spara
— þeir spara skattaútgjöld sín
með því að lækka framlög af
opinberu fé til almennings-
heilla.
af þeim hafa varla nema tveir |
verið fastir stuðningsmenn í
flokksins. Þorsteinn Briem
sendi um jólaleytið ýmsum
fyrv. sóknarbömum sínum fjöl-
ritað bréf, þar sem hann talar
um að ræða pólitík í „fullri '
hreinskilni“. En flestum finnst 1
það lítil hreinskilni, að þora
ekki að ræða mál opinberlega,
en dreifa út 1 „sendibréfum"
bakmælgi um gamla samherja.
„Einkafyrirtækið"
skipuleggur sig.
Jón Jónsson og Þorst. Briem
hafa ekki unað lengi að vera
án flokksbanda og skipulags.
Nú hafa þeir sent út nýtt um-
burðarbréf, og segjast þeir
ætla að stofna flokksfélög í
hverri sýslu og jafnvel hreppi.
Einn miðstjómarmaður á að
vera fyrir hverja sýslu. Hafa
þessir burtviknu menn tekið
skipulagið eftir Framsóknarfl,,
þar sem þeir voru aldir upp. Að
lokum segja þeir, að meðan
enginn flokkur er myndaður,
þá séu stofnendumir mið-
stjóm! Þess má vænta, að þeir
fái lengi að njóta þeirrar sælu, \
að vera hálaunaðir embættis-
menn í Reykjavík og um leið
sjálfskipuð miðstjóm í bænda-
flokki án bænda!
því að helmingurinn af fylgi
Jóns Baldvinssonar frá 1931
fór yfir á Thor Thors vorið
1933, og var engin sýnileg á-
stæða til nema sú, að trúað
væri á tylliboð smalanna. En
nú reka smalar íhaldsins sig á
það, að Jón Þorl. þorir ekki
annað en auglýsa í Mbl., að
utanbæjarmenn fái ekki at-
vinnu hér. Þá sjá Snæfellingar
og Rangæingar, sem reynt var
að blekkja með atvinnuloforð-
um, hve lítið er að treysta í-
haldinu.
íhaklið klofið.
Alveg nýkomin fregn norðan
úr Húnavatnssýslu hermir, að
Hafsteinn Pétursson bóndi á
Gunnsteinsstöðum í Langadal
hafi lýst yfir því, að hann
muni bjóða sig fram í Austur-
Húnavatnssýslu
Hafsteinn hefir verið einn af
aðaláhrifamönnum íhaldsflokks-
ins í Austur-Húnavatnssýslu
um langt skeið, oft haft hug á
framboði og verið talinn til
þess líklegur. Fyrir síðustu
kosningar fór fram einhvers-
konar prófkosning milli hans
og Jóns á Akri, og varð Haf-
steinn þá undir.
Enginn vafi er á því, að
Hafsteinn dregur til sín tals-
vert mikið af fylgi íhalds-
flokksins í sýslunni. Og sér-
staklega er gengið út frá því,
að þeir íhaldsmenn, sem raun-
ar voru fáir, sem hnigið höfðu
til fylgis við Jón í Stóradal,
muni nú allir fylgja Hafsteini.
Hafsteinn á Gunnsteinsstöð-
um er bróðir Magnúsar Péturs-
sonar bæjarlæknis í Reykjavík.
Or Árnessýslu.
Mbl. er á nálum um að Ár-
nesingar vilji ekki Eirík leng-
ur. Þeim er vorkunn. I þeim
tveim hreppum, þar sem J. J.
var á bændafundum nýlega, er
vitað, að í öðrum hreppnum er
ekki nema einn bóndi, Jón á
Ólafsvöllum Brynjólfsson, sem
er með Mbl. og alls enginn með
litla-íhaldinu. í Hrunamanna-
hreppi var fjölmennur fundur.
Ágúst hreppstjóri í Birtinga-
holti lýsti yfir á fundinum,
að enginn íhaldsmaður væri í
sveitinni, og annar bóndi taldi
það móðgun við sveitina, að
gera ráð fyrir, að þar væri til
íhald. Þótti það vel mælt. Ná- , úr vi}ndu að ráða
lega 500 félagsbundnir Fram- j fyrir ihaldið.
sóknarmenn tóku þátt í próf- | Smalar Jóns ölafssonar og
kosningu um nýársleytið, og i Thor Thors kváðu óspart hafa
sýndi það styrk flokksins. Eng- j lofað, að ungir menn úr Rang-
in félagsdeild hefir verið lögð j árþingi og Snæfellsnesi skyldu
niður. Flokkurinn í héraðinu j fá togaravinnu í vetur, ef þeir
er að vaxa. En fjórir menn j kysu íhaldið. Eitthvað munu
! hafa sagt sig úr félaginu, en . þessar blekkingar hafa dugað,