Tíminn - 28.05.1934, Síða 4
98
T 1 M I N N
„Sannfæringin skipulögð“.
Maður nokkur vestur í Dýrafirði skrifar
nýlega í eitt vikublaðið og lætur þar í'ljós
hræðslu sína við það að „skipulögð“ verði
sannfæring þingmanna. Og á hann þar við
að kjósendurnir eigi ekki að vera að skifta
sér af hvað .þingmaðurinn geri á milli kosn-
inga. Þetta er dálítið útbreidd skoðun hér
og þar, og einkum hjá lítilsigldu fólki.
En aftur á móti mun miklu„almennara litið
svo á að þingmaðurinn sé nokkurskonar
þjónn kjósendanna, sem eigi helzt að ráð-
færa sig við þá og taka tillit til þeirra
vilja. En hætti hann að geta sannfæringar
sinnar vegna starfað samkvæmt vilja kjós-
enda sinna, er réttast fyrir hann að hætta
að fara með umboð þeirra. Skoðun Dýr-
firðingsins og skoðanabræðra hans eru leif-
ar frá þeirri kynslóð, sem var „kúguð
komin í heim og kaghýdd langt fram í
ætt“. Þá var sjálfsagt að lúta með lotn-
ingu þeim, sem hærra voru settir hvað
sem þeir með „sannfæringu“ sinni brutu í
bág við vilja og velferð smælingjanna. En
með vaxandi samtökum „hinna mörgu og
smáu“ skipuleggja þeir smátt og smátt vel-
ferðarmál sín og kjósa sér svo fulltrúa til
að framkvæma þau sér í hag, en ekki ein-
hverjum sérgæðing, sem altaf þarf að vera
að hnitmiða „sannfæringu" sína við það
að hafa sem bezt upp úr henni fyrir sjálf-
an sig.
i.iðskostur „bændavinanna“.
Hreyfing sú, sem kennir sig við bændur,
sýnist eiga dýpri rætur í mölinni en í sveit,
ef dæma á eftir írambjóðendum. Ef flokkað
er eftir atvinnu skiftast þeir þannig:
Yfirmenn banka og lánstofnana 4, starfs-
menn Búnaðarfélags Islands (allir nauðugir)
3, skjólstæðingar Kreppulánasj óðs 5, skjól-
stæðingur Búnaðarfélags íslands 1, bitlinga-
menn 2, atvinnulaus lögfræðingur 1, sýslu-
maður 1, umboðssalar og spekulantar 3,
dyravörður 1, myndarbændur 2 og prest-
ar 2.
Það má merkiiegt. heita hversu bændur
eru lítið á ferli í þesari hreyfingu. Varla
getur slík „stefna“ hafa vaxið við hita
brennandi hugsjóna í jarðvegi sveitanna.
Þar ber mest á hálaunuðum embættismönn-
um, spekulöntum og fólki sem vill koma sér
vel við bankana. Annar myndarbóndinn
var að- dómi Þ. Br. og Tr. Þ. óhæfur í
stjórn Kreppulánasjóðs í héraði. Hinn er
altaf á móti Tr. Þ. á búnaðarþingi. Mikið
af þessum leiðtogum er á slóð Sig. Eggerz
og Jakobs Möllers að þeirra tjaldstað.
Hjálparstarfsemi „bændavinanna“...........
Við landkjör 1922 voru þáverandi íhalds-
menn vonlausir um að koma að tveim mönn-
um, ef heiðarlega væri til úrslitanna barist.
Þá fengu þeir Sigurð búfræðing á lista í-
haldsins næst neðan við Jón Magnússon.
Hahn átti að fiska eftir atkvæðum bænda
— til að bjarga Jóni.
En samtímis studdu íhaldsmenn í laumi
kvenlista Ingibjargar Bjamason. Þeir vissu
að hún yrði þeim eins fylgispök og yfir-
lýstir liðsmenn þeirra. Og íhaldið reiknaði
rétt. Kvenfulltrúinn var þeim einhver fylgi-
spakasti liðsmaðurinn. Hún sinnti þeirra
málum en ekki kvenkjósenda í landinu.
Hvemig fara „bændavinirnir“ nú að?
Nákvæmlega eins og íhaldið 1922. Hverjir
hafa mest líkindi til uppbótarsæta hjá þeim
ef einhver slampast inn í kjördæmi, sem
nú er raunar vonlítið um? Fyrsti og eini
uppbótarmaður þeirra yrði þá vafalaust
efsti maður á lista þeirra í Rvík. Og hver
er hann? Theódór Líndal lögfræðingur,'sem
íhaldið sjálft kaus á eigin lista inn í bæjar-
stjórn Reykjavíkur og síðan þjónaði því
opinberlega til síðustu bæjarstjórnarkosn-
inga. Þá hneigðist hann til nazista, en var
þaðan sendur inn í hjörð „bændavina“. Og
íhaldið skilur vel hvað hér er á seiði. Það
lánar nægilega mörg atkvæði yfir á Líndal
til þess að öruggt sé, að hann fái hæsta tölu
atkvæða af írambj óðendum „bænda/vina'1
og fari inn sem þeirra fyrsti og eini upp-
bótarþingmaður ef þeir falla ekki allir í
kjördæmunum.
Hér er alt gert með ráðnum hug hins
blekkjandi leynimakks.
„Bændavinir“ eru settir til að fiska at-
kvæði og fulltrúa fyrir íhaldið. Uppbótar-
sætið er auðsjáanlega ekki ætlað neinum
þeim frambjóðanda, sem þeir hafa að leik-
soppi í kjördæmunum, heldur hinum yfir-
lýsta íhaldslögíræðingi í Reykjavík, sem
braskararnir kjósa nú að flytja úr bæj-
arstjórn og inn á Alþingi.
Ritstjóri: Gísli Guðmundsson.
Afmæli. Prestaöldungurinn síra
Sigurður Cxunnarsson varð 86 ára
nýlcga. — Föðurbróðir hans var
síra Sigurður Gunnarsson próf. á
Iíallormsstað, er þótti merkismað-
ur á sinni tið. Sigurður er föður-
In'óðir og fóstri Gunnars Gunnars-
V
sonar skálds. Síra Sigurður var
þjónandi juestur frá 1878 til 1915,
og þrisvar var hann kosinn áþing.
Hann var fenginn til þess ásamt
Lárusi Haldórssyni að glíma fyrir
Kristján konung IX. á þingvöllum
árið 1874. Sigurður er hress og
hvikur í spori og hefir borið ald-
\irinn vel.
Landkjörstjórn hélt fund í fyrra-
dag til að úrskurða um landlista
Ilokkanna. Höfðú borizt landlistar
frá öllum flokkum nema nazist-
um. Tveir flokkar, Alþýðuflokkur-
inn og kommúnistar létu fylgja
sínum lista raðaðan lista. Úthlutun
uppbótarþingsæta er þannig hátt-
að, að 1. uppbótarþingmaður
ílokks, or sá frambjóðandi, sem
fengið hefir flest atkvæði af fölln-
um frambjóðendum, 2. uppbótar-
þingmaður sá frambjóðandi, sem
fær hlutfallslega flest greiddra at-
kvæða í kjördæmi, en nær ekki
kosningu, 3. uppbótarþingmaður
verður sá, sem fær næsthæsta at-
kvæðatölu af föllnum frambjóð-
cndum, nema flokkur hafi sent
raðaðan liseta; þá verður það efsti
maður hans. Jón Baldvinsson er
efstur á raðaða lista Alþýðuflokks-
ins og næstur Pétur Jónsson, fram-
bjóðandi flokksins í Skagafirði.
Katla heitir skip, sem Eimskipa-
félag Revkjavíkur hefir keypt og
ú að vera í fiskflutningum til Suð-
urlánda. það er 1650 smálestir að
slærð.
$
I
Klæðaverksmiðjan GEFJUN
Aknreyri
framleiðir beztu innlendu fataefni, sem völ er á. A saumastofu Gefjun-
ar í Reykjavík er saumaður allskonar karlmannafatnaður og frakkar
eftir nýjustu tízku. Drengjaföt og telpukápur eru afgreiddar með mjög
stuttum fyrirvara. Avallt fyrirliggjandi allar stærðir af drengjafötum
og pokabuxum.
G-eQjnnar band og lopar er unnið úr valinni fyrsta flokks norð-
lenzkri vorull. Allar tegundir fyrirliggjandi. Verðið hvergi lægra.
Hvítt band einfalt kr. 2,90 pr. 1/* kg.
— tvinnað — 3,75 n n n
Blágrátt band þrinnað — 3,90 n n n
— '' — tvinnað — 3,75 n n n
Rauðk. — — — 3,75 n n n
Grátt — þrinnað — 3,55 n n n
Mórautt — — — 3,55 n n n
Sauðsv. — — — 3,55 n n n
Svart, litað band — — 4,65 n n n
Mærfatalopar . — 1,65 n n »
Sokkalopar . . — 1,50 n n n
Sjóvettlingalopar , . — 1,25 n n n
Verzlið við Gefjuni, með því gerið þór beztu og hagkvæmustu inn-
kaupin um leið og þér styrkið innl. iðnað.
Tökum ull í skiptnm fyrir vörur.
Vörur sendar gegn póstkröfu um land allt, beint frá verksmiðjunni eða
útsölunni í Reykjavík. 6 E F J Ul, Laugaveg 10, sími 2838.
%%%%%%%%%%%%%%%%%%Wl
\
V átry gging&hlut&lélagid
NTE DÁNSEE AF 1864
Getum
----- ............
selt nokkrar tómar
Líítryggingar - Brunatryggingar
Lægst iðgjöld
T r é t u n n u r
Aðalumboð fyrir ísland:
Vátryggingaskrifstota
Sigfúsar Sighvatssouar
Lækjargata 2, sími 3171
undan víni.
Afengísverzlun ríkisins.
Höfiim enn til:
ðdýrt grasfræ
og góða sáðhafra
Samhand ísi. samvinnufélaga
BEZTU CIGARETTURNAR í 20 stk.
PÖKKUM, SEM KOSTA
kr. 1.10
— ERU
Þessi ágæta cigarettutegund fæst ávalt
í heildsölu hjá
TÓBAKSEINKASÖLU RÍKISINS
Búnar til af
Westminster Tobacco Oompany Ltd.
LONDON.
skilvindurnar eru ætíð
þær bestu og sterkustu,
sem fáanlegar eru Nýj-
asta gerðin er með
algerlega sjálfvirkri
smurningu, og skálar
og skilkarl úr riðfríu
efni.
Samband
.i0l.
samvinnnfélaga.
P. W. Jacobsen & Son
Timburverzlun
Símnefni: Graníuru. Stofnað 1824.
Carl Lundsgade Köbenhavn.
Afgreiðum frá Kaupmannahöín bæði stórar og litiár pantanir og
heila skipsfarma frá Svíþjóð. — Sís og umboðssalar annast pantanir.
: EIK OG EPNI I ÞILFAR TIL SKIPA. :: :: :: ::