Tíminn - 04.09.1934, Blaðsíða 3

Tíminn - 04.09.1934, Blaðsíða 3
T 1 M I N N 153 Nvia Flóra er nú komið á markaðinn og selst nú um land allt. Enn á ný höfum við lækkað verðið stórkostlega. Það er tvöfaldur hagnaður að kaupa nýja Flóra smjörlíkið Það er bezt. Það er ódýrast Húsmæður! Biðjið aðeins um Flóra smjörlíkið. Kaupfólög og kaupmenn! Sendið pantanir yðar til Flóra Akureyri. Nýiar bækur: Sjóterðasögur eftir Sveinbjörn Egilsson, ritstjóra. í þess- ari bók birtir Sveinbjörn nokkur æfintýri frá yngri árum sínum, sem margur mun hafa gaman af að lesa. Gr&nd Hotel íslenzk þýðing eftir Pál Skúlason, prýdd mörgum fallegum myndum. B&rnavers úr F&ssíusálmunum Gefin út að tilhlutun Hallgrímsnefndar. Fást hjá bóksölum um land allt FJandskapur Morgunbl. gegn bandum Það reynir að bera róg á milli samvinnufélaganna. Rógsiðja Mbl. í þá átt, að spilla fyrir skipulagning kjöt- sölunnar heldur áfram. Er það sýnilegt, að íhaldið ætlar að leggja höfuðáherzl- una á það, að reyna að vekja deilur milli samvinnufélagaxma í nágrenni Reykjavíkur ann- arsvegar og samvinnufélag- anna í fjarlægari héröðum hinsvegar, ef takast mætti að eyðileggja á þann hátt aftur það sem nú hefir áunnizt. En bændur landsins hafa það mikilla sameiginlegra hags- muna að gæta, að þeir munu ekki láta leiguþý reykvísks stórkaupmannavalds sundra samtökum sínum. Bændur landsins hafa aldrei átt vináttu að fagna hjá Morg- unblaðsliðinu. En þeir hafa fengið þaðan margar ómildar kveðjur. Þeir hafa verið kall- aðir „þreklaus bændalýður", sem ekki vissi fótum sínum forráð. Þeir hafa verið upp- nefndir „mennirnir með mos- ann í skegginu". Mbl. hefir talað um, að láta Reykjavík hætta að kaupa kjöt og mjólk af Árnesingum og Mýramönn- una. Þá var hún ekki mikil um- hyggjan fyrir sunnlenzku bændunum með rýru dilkana, sem Mbl. skrifar um nú. Og íhaldsblöðin komust svo langt 1931, að skrifa um það, að bezt væri að leggja niður allan landbúnað á íslandi. Jarðrækt- arstyrkinn hafa þau talið eft- ir. Og árum saman er það lát- ið klingja í þeim sömu blöðum, að sveitimar séu ómagi á Reykjavík. Sá sónn er nú víst orðinn flestum bændum lands- ins nokkuð kunnur. Mbl. lætur að lokum í ljós mikinn ótta um það, að kjöt- verðið, sem bændur fá á inn- anlandsmarltaðinum muni verða látið „hækka meir en skattinum nemur“. Muni þá bæði fást verðuppbót á útflutt kjöt og verðhækkun frá því sem áður var fyrir bændur í nágrannasýslunum. Sú verð- hækkun segir blaðið, að muni verða „tilfinnanleg fyrir neyt- endur“ í Reykjavík. Ihaldið er víst ekkert að hugsa um það r.úna, að lága verðið undanfar- in ár hafi verið „tilfinnanlegt“ fyrir bænduma. En það eiga heldur ekki að verða kosning- ar í sveitunum á næsta vori! Þessir (livansr kosta aðeins Góð vara Takifæris verð par sem okkur berast afarmargar fyrirspurmr víðsvegar að af landinu, viðvíkjandi þessum ódýra divan er við seljum, og tölu- verð fyrirhöín er að svara þeim hverjum einstökum, þá viljum við hérmeð tilkynna, að þessi divan, sem við bjóðum yður fyrir aðeins 35 krónur, er með 21 stykki af beztu stálfjöðrum, koparhúðuðum, og ágætis tegund af stórröndóttum sængurdúk, og nýtízku föstum klumpalöppum. Hvað þessi divan kostar annarsstaðar látum við ósagt, en við getum selt hann fyrir þetta lága verð, sökum þess að við kaupum allt efni okkar milliliðalaust, og hjá okkur vinna aðeins beztu fagmenn. Hundruð af þessum divönum erum við búnir að selja, og allir hafa hrósað þeim. Pöntunarsedill | T, Húsgagnaverzlunin við Dóntkirkjuna, Reykjavík Undirritaður óskar að mér verði send ............ stykki divanar, samkvæmt ofanritaðri auglýsingu, á 35 krónur stvkkið, auk sendingarkostn. Umbúðir ókeypis. Nafn Heimili Pantið strus í dag: þvípantanir afgreiðumvið í þeirri röð sem þær berast okkur i hendur, Þenuan divan getið þér eignast fyrir aðeins 35 kr. Húsgagnaverælunin við Dómkirkjuna, Reykjavtkl Nýjar bækur= Bækur þessar hafa komið út í sumar á kostnað „Æskunnar": Landnem&r eftir Fr. Marryat, þýtt hefir Sig. Skúlason, ób. kr. 5,40, innb. kr. 6,50. Arni og Erna eftir Marie Hénckel, þýdd af Margréti Jónsdóttur, innb. kr. 2,50 og 8,00. Hetjan nnga eftir Mrs. Herbert Strang, þýdd af Sig. Skúlasyni mag- ister, innb. kr. 2,25 og kr. 8,00. Silfurturninn ób. kr. 0,75. 1 fyrra kom út á kostnað blaðsins hin heimsfræga saga DAVÍÐ COPPERFIELD eftir Charles Dickens. Barna og unglingaskólar fá sérstök vildarkjör. Gerið fyrirspumir og þeim verður svarað. Aðalútsala hjá barnabl. „Æ S K A N“, Reykjavík. Bækurnar fást hjá bóksölum um land allt. „JUNO“ eldavélar {h vítemaileraðar) eru til prýðis fyrir hvert eldhús. Vel þekkt- ar hér á landi, eftir 13 ára reynslu á meira en tvö þúsund heimilum. Miklar birgðir ávalt fyrirliggjandi af alls- konar ELDFÆRUM, BYGGINGARVÖRUM, VATNSLEIÐSLU- og MIÐSTÖÐVARTÆKJ- UM, HREINLÆTISVÖRUM og RAF- MAGNSVÖRUM. Fljót afgr. á öllum vörum út um land gegn póstkr. Á. EINARSSON & FUNK Reykjavík — Símnefni „Omega‘‘ Dánardægur. 14. f. m. andaðist á Elliheimilinu í Reykjavik, ekkj- an Gunnfríður Tómasdóttir, ættuð frá Skarði í Lundareykjadal, tæpra 71 ára að aldri. Gldborg, hið nýkeypta skip samvinnufél. Grímur i Borgarnesi kom hingað í sl. viku frá Bergen. Skipið er smíöað í Noregi fyrir tveimur árum síðan og er 282 *mó). að stærð. Er það hið vandaðasta og traustasta, enda upphaflega ætlað til Grænlandsveiða. Nú mun það eiga að fara á ísfisk- vedðar. — Er þetta fyrsta fiski- skipið, sem Borgnesingar eignaat. Einn af þrjátiu og níu. í 39 daga hefir aðeins einn sólarhring- ur verið rigningarlaus í Vopna- lirði. Töður eru óhirtar þar enn Til kaupenda Títnans þess er fastlega vænzt að sem allra flestir kuupendur Tímans greiði blaðið i haust, Skoðun einstaka manns er sú, að honum heri ekki skylda til að borga blöð, hafi hann ekki heðið um að senda sér þau í fyrstu. En með því að veita hiöðum athugasemdalaust viðtöku lang- an tíma og endui'senda þau eklti, hafa menn j>ai með gerzt kaupendur og skulda því tví- ínælalaust andvirði þeirra. Verði góð skil i haust á andvirði Tímans, er kaupendum h.eitið þvi, að hlaðið skuli lækka verulega i verði írá næstu áramótum. Skilvísir og áhugasamir menn! Gangizt fyrir því, að Tím- imi sé borgaður sem dlra fyrst. Með því fáið þið íjölbreyttara og ódýrara hlað. Stjórnmálin í ágústmánuði Framh. af 2. síðu. svo ótvíræður leirburður, að það væri ekki viðeig'andi, að þröngva þjóðkirkjumönnum til að nota svo ólistrænt rím að efni við messugerð. En hinsvegar væri mikið af hin- um fegurstu og andríkustu sálmum t. d. frumsömdum og þýddum af Matth. Joch- umssyni, ekki í bókinni. Ef biskup hefði fylgt þessu ráði, og átt þátt í að fá hæfa nienn tií að endurskoða sálmabókina myndi allt hafa farið vel. Söfnuðir landsins hefðu fengið góða sálmabók, og hann hlotið sóma af málinu. Nú hefir slíkt hneyksli gerzt í ]>essum efnum, að óhugsandi er annað en að þing og stjórn verði að bjarga þessu sáhnabókarmáli úr höndum biskups og vina lians, sem ekki eingöngu halda dauðahaldi í hið dauða efni sálmabókarinnar, heldur láta enn í nýjan viðbæti eftir biskup sjálfan og nokkra aðra menn honum jafnhæfa til skáldskapar, og gera í ofanálag þann óvina- fagnað að afbaka og spilla fjölmörgum lista- verkum eftir góðskáld landsins. Sálmabókarmáíið er talandi vottur um hinn andlega vanmátt íhaldsins. Það fékk biskupi til eflingar í þessu máli Knút Arn- grímsson prest frá Húsavík. Hann komst ]>ar að með því að segja verkamönnum að hann væri socialisti, en var raunar nazisti. Síðan glataði hann á skömmum tíma öllu trausti á Iiúsavík, meðal annars fyrir að hafa ort níð um eitt af sóknarbörnum sín- um. Bjóst hann við afsetningu og flúði til Reykjavíkur og var gerður að kennara við íhaldsskólann. Jafnframt var hann settur til a<) velja sálmana með biskupi og að skrifa kosningaávarp til íhaldsmanna í tímarit Magnúsar fyrrum dósents. Sú grein er fræg oi-ðin, því að þar sagði hann landsmönnum frá fyrirætlunum íhaldsins; að ráðagerð tþeirra væri sú, ef þeir næðú völdum, að innleiða þýzka stjórnarhætti í kirkju, skóla, útvarp, kvikmyndahús og leikhús. Tilgang- urinn var sá að drepa allt andlegt og félags- legt frelsi í landinu. Þessi hreinskilni varð íhaldinu nokkuð dýr við kosningamar. En er upp komst um sálmabókarviðbæti bisk- ups sýndi Knútur enn trú sína og ritaði skammir í Mbl. um Jón Helgason og aðra er í nefndinni höfðu verið og vildi hvítþvo sig algerlega; koma sálmunum á þá. Daginn eftir fór Knútur til Þýzkalands að auka frekar en orðið er menntun sína í naz- isma. Ihaldsmönnum þykir sem von er að- ferð Knúts ódrengileg, er hann ræðst að baki þeim, en mjög hafa þeir lofað slíka framkomu, er fyrverandi Framsóknarmenn eiga í hlut. Ekki virðist viðskilnaður íhaldsins betri í fjármálum en um síld, kjöt, mjólk og sálma. Hallinn í ríkisbúskapnum síðan íhaldið kom í stjómina er um 3 miljónir kr. og innflutningur um 8 miljónum meiri en útflutningur á þessu ári. Hefir mikill glund- roði ríkt í gjaldeyris- og verzlunarmálun- um, og er þessi mikli og hættulegi halli á verzluninni fyrst og fremst að kenna áhrif- um Mbl.-manna í þeim efnum. Ekki bætir það úr skák, að eftir samningum þeim, sem fyrverandi stjórn gerði í Madrid, er allt að- hald upphafið gagnvart Spáni. Eins og nú hagar til er hægt að flytja heila skipsfarma af átsúkkulaði og ,,tyggegúmmí“ frá Spáni til íslands og verja íslenzkum gjaldeyri til tið borga þessa vöru, þó að ekki sé gjald- eyrir til fyrir brauð eða lyf. Ritstjóri Eimreiðarinnar lýsti með skáld- legum orðum 1932 hversu stjóm sú, sem lét af völdum fyrir mánuði síðan myndi hjarga hinni brotnu þjóðarskútu. Sennilega hefir hann og fleiri íhaldsmenn orðið fyrir einhverjum vonbrigðum. Og því miður munu þeir eiga eftir að verða fyrir ein- hverjum vonbi'igðum með framgöngu sinna trúnaðarmanna, eftir því sem tímar líða og fleiri gögn birtast um bjargráð tveggja undangenginna ára. J. J.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.