Tíminn - 04.09.1934, Blaðsíða 4
164
T í M I N N
Enn um
Reykjaskóla.
Ég- hefi nýlega drepið á þætti úr sögu
Reykjaskóla, um hin ágætu náttúruskilyrði,
sem skólinn nýtur, um hin góðu húsakynni
og góðu aðstöðu til samgangna og aðsóknar.
Engu að síður hafa þessi góðu skilyrði
ekki notið sín um tvö undanfarin ár og
skólinn var að verða mannlaus. Umbóta-
menn tóku við af kyrstöðumönnum. Og
síðan ég skrifaði umrædda grein hefir út-
varpið flutt þá fregn út um allt land, að
skólanefndin hafi ráðið Jón bónda í Ysta-
felli sem skólastjóra og sr. Jón Guðnason
sem kennara. Væntanlega verður svo síðar
ráðinn íþróttakennari. Mun þá svo veí seð
fyrir þörfum skólans, að enginn skynsam-
leg rök hindri æsku nábúahéraðanna að
sækja skólann.
Þó undarlegt sé er það grunur minn, að
sumstaðar í sveitum landsins verði það
talinn ljóður á ráði hins nýja skólastjóra,
að hann er bóndi en ekki embættismaður.
Þetta er að vísu undarleg kenning, að skóli,
?em fær nemendur nálega eingöngu úr sveit
og nemendur sem flestir geta gert ráð fyrir
að hafa atvinnu í sveit í framtíðinni, hann
eigi að gjalda þess, að hafa einn hinn gáf-
aðasta, víðsýnasta og bezt mennta bónda á
landinu sem skólastjóra.
Er þetta skynsemi eða hleypidómar?
En áður en ég sný mér að því svari, vil
ég minnast með fáum orðum á þennan
bónda og tilvonandi skólastjóra.
Og þó er síður þörf að kynna Jón í
Ystaíelli fyrir æsku landsins, heldur en
ílesta aðra menn í landinu. Hann er sonur
eins hins frægasta bónda, sem uppi var á
landinu á síðasta mannsaldri. Hann hefir
ferðast um landið sem fyrirlesari og fræði-
maður samvinnufélaganna um mörg ár og
kynnzt fólkinu svo að segja í hverri sveit,
og öllum landsháttum. Hann hefir samhliða
einyrkjabúskap ritað hina stærstu og bezt
rituðu lýsingu á landinu, sem skrifuð hefir
verið á íslenzku. Hann hefir ritað fjölmarg-
ar ritgerðir um almenn félagsmál í blöð og
tímarit, og það leikur ekki á tveim tungum,
að hann sé í fremstu röð allra núlifandi
íslendinga sem þróttmikill og glæsilegur rit-
höfundur um þjóðmál og félagsmál.
Þetta vita allir. En hitt vita færri, að Jón
i Ystafelli hefir frá byrjun hins fyrsta hér-
aðsskóla, að Laugum í Þingeyjarsýslu, ver-
ið formaður í skólanefnd, og haft veruleg
áhrif á að móta skipulag skólans. Jón hefir
flestum öðrum mönnum fremur skilið þörf-
ina á slíkum skólum, og hið mikla verkefni
þeirra. Iiann vill að héraðsskólarnir séu
fýrst og fremst stór og góð heimili og að
þessi skólaheimili séu sameign allra hinna
sveitaheimilanna, sem sendu þangað æsku-
menn-
Ég vona, að við nánari athugun stilli fólk
í sveitum sig um að áfella skólanefnd
Reykjaskóla fyrir að fá bónda sem for-
stöðumann skólans. Það getur tæplega náð
nokkurri átt að halda því fram að maður,
sem er alinn upp við lífskjör sveitamanna,
og hefir tekist að framkvæma það, sem' hér-
aðsskólarnir eiga að hjálpa æskunni til að
gera, að sameina mikinn dugnað og elju í
framleiðslubaráttunni við andlega starfsemi
og mikla víðsýn.
Mér er kunnugt um að æska landsins hef-
ir nú í sumár mjög fast leitað eftir inn-
göngu í héraðsskólana, og ég hygg, að víð-
ast hvar sé nú fullskipað, og sumstaðar
sótt í tugatali fram yfir það, sem við má
taka. En Reykir í Hrútafirði hafa nú í tvo
vetur legið í dái, og í sumar hefir skólinn
ekki verið auglýstur fyr en nú. Þar er
þessvegna væntanlega enn rúm fyrir 30—
40 ungmenni. Skilyrðin eru þar jafngóð og
annarsstaðar, bæði um húsakynni, kennslu
og mannval. Þess vegna er óhætt að beina
þangað straum menntafúsra unglinga, fyrst
og fremst úr þeim héröðum, seim eiga skól-
ann, en þá ekki síður mönnum úr öðrurn
héröðum, sem vilja hjálpa til að gera garð-
inn frægan í yngsta héraðsskóla landsins.
J. J.
Ritstjóri: Gísli Guðmundsson.
Prentsmiðjan Acta 1984
Fóðurvörur:
HÆNSNAFÓÐUR:
Hænsnamjöl (varpfóður) JAÐAR . . í 50 kg. sekkjum.
Hænsnakorn JAÐAR..........- 50 — -
Ungamjöl JAÐAR............- 50 — -
Ungagrjón JAÐAR...........- 50 — -
Fóðurblanda S. I. S..........- 75 — -
Do. Ö.................... - 75 — -
Síldarmjöl...................- 100 — -
Maísmjöl.....................- 100 — -
Fóðurrúgmjöl...i.............- 50 — -
Hafrafóðurmjöl...............- 50 — -
Fóðursalt....................- 50 — -
Hafrar.......................- 80 — —*—
Linkökumjöl (kálfamjöl)......- 50 —----
Jarðhnetumjöl................- 90 — -
ATHUGIÐ VERÐ OG GÆÐI.
Samband isl. samvinnufélaga
INDIA TYRES
ERU BEZTU BlLADEKKIN.
Notið India bíladekk og þér verðið ávalt ánægðir.
mmm**
iSUPER TYRES
INDIA SUPER NONSEID:
Beztu bíladekkin, sem völ er á.
INDIA STANDARD:
Betri en öll önnur „standard“
bíladekk.
INDIA STERLING
kaupa þeir, sem viija fá góð en þó
ódýr bíladekk.
Pantanir annast
01.
REYKIÐ
JT. GRIINO’S
ágæta holenzka reyktóbak
VERÐ:
AROMATISCHER SHAG kostar kr. 0,90 i/20 kg.
FEINRIECHENDER SHAG — — 0,95-
Fæst í öllum verzlunum
Girðingarefni
Girðingarnet allar venjulegar gerðir.
Garðanet
Refanet
Hænsnanet
járnstaurar
Vírlykkjur
Samband ísl. samvínnufélaga
IIVEITI MORNING STAR,
MAÍSMJÖL FlNMALAÐ,
MAÍSFLÖGUR SOÐNAR,
M ÍSN j 0. II
Swaœííeld Flour Mills
Leith, Edinburg 6
Eftirtaldar vörur vorar eru alþekktar á Islandi:
m HVEITI HEKLA,
|!
ásamt fleiri kom- og fóðurvörum. — Sendið pantanir yðar til
Samband ísl. samvínnufélaga
T. W. Buch
(Xiitasmidia Bnchs)
Tietgensdage 64. . Köbenhavn B.
LITIR TIL HEIMALITUNAR: v
Demantssorti, hrafnsvart, kastorsorti, Parisarsorti og
allir litir, fallegir og sterkir.
Mælum rrieð Nuralin-lit, á ull og baðmull og silki.
TIL HEIMANOTKUNAR:
Gerduft „Fermenta“ ogog„Evolin“ eggjaduft, áfengis-
lausir ávaxtadropar, soya, matarlitir, „Sun“-skósvert-
an, „ökonom“-skósvertan, sjálfvinnandi þvottaefnið
„Persil“, „Henko“-blæsódinn, „Dixin“-sápuduftið,
„Ata“-skúriduftið, kryddvörur, blámi, skilvinduolía
o. fl.
Brúnspónn.
LITVÖRUR:
Anilinlitir, Catechu, blásteinn, brúnspónslitír.
GLJÁLAKK:
„Unicum“ á gólf og húsgögm. Þornar vel. Ágæt tegund.
HOLLENSKT EXPORT KAFFI-SURROAT:
Bezta tegund, hreint kaffibragð og ilmur.
Fæst allstaðar á Islandi
HAVNEM0LLEN
KAUPMANNAH0FN
mælir með sínu alviðurkennda RÚGMJÖLI OG H V E ITI
Meiri vörugæði ófáanleg
S.I.S. skiptir eingöngu við okkur.
FREYJO k affibætisduftið
— nýtilbúið — inniheldur aðeins ilmandi kaffibæti, ekkert vatn
eða önnur efni til uppfyllingar. Þess vegna er Freyju kaffibætis-
duftið drýgst, heilnæmast og bezt. Og þó er það ódýrara en kafti-
bæti í stöngum.
Notið það bezta, sem unaið er í landinu