Tíminn - 23.10.1934, Page 1
©jaíbbagi
tlatalns «c I. |&at.
■Árflangutinn Cofltac IO Cs>
JRfgtcibsla
»9 tnngclmta i £angaocg 10.
6lad 2353 - Pó.tfeílJ ðöl
47. blaS.
Reykjavík, 23. október 1934.
XVm. árg.
Fiskveiðar og fiskverzlun íslendinga
Alþingi l 6.-22. okt.
Flestir munu hafa búizt við,
að þeir menn, semj tekið hafa
að sér forystu í útgerðarmálum
þjóðarixmar, myndu gera ein-
hverjar víðtækar tillögur um
vandamál þessa atvinnuvegar á
yfirstandandi alvörutímum. —
Síðan samningurinn var gerður
við Spánverja eru liðnir marg-
ir mánuðir, en ekkert hefir ból-
að á neinumi slíkum tillögum.
FramleíSsla 4 síðustu ára.
Islendingar hafa fram að
þessu getað selt alla fiskfram-
leiðslu sína, þótt illt verzlunar-
árferði og sleifarlag á fisk-
verzluninni hafi oft gert það
torvelt.
Siðastliðin fjögur ár hefir
saltfiskframleiðsla landsins til
útflutnings verið sem næst því,
er hér segir, miðað við verkað-
an fisk:
1930 ca. 70 þús. tonn.
1931 — 65 — —
1932 — 70 — —
1933 — 69 — —
Þessi sömu ár hefir verið
fluttur úr ísfiskur sem! hér
segir:
ÁriO tonn krónur
1930 11240 fyrir 3,841 milj.
1931 18738 — 6,295 —
1932 23045 — 4,735 —
1933 12843 — 8,171 —
Á sömtí árum hefir verið
fluttur út freðfiskur sem hér
segir: ÁriO tonn krónur
1930 1273 fyrir 191.732,00
1931 69 — 24.075,00
1932 269 — 68.973,00
1933 432 — 85.580,00
Innflutningstakmarkanir i
Oðrum lðndom.
Allt til skamms tíma voru
engar hömlur lagðar á innflutn.
ing íslenzks fiskjar erlendis.
En árið 1932 byrjuðu breyting-
ar 1 þessu efnL 1 Þýzkalandi
hefir ísfisksala verið torvelduð
með háum tollum, og á árinu
1932 takmörkuðu Englendingar
með viðskiptasamningi inn-
flutning á fiski. Má ekltí flytja
inn héðan til Bretlands nema
um 13000 tonn af nýjum fiski
á ári og um 5300 tonn af
óverkuðum, saltfiski. Er hér
um mjög mikla takmörkun að
ræða á saltfiskinnflutningnum,
því cð á árunum 1927—1930
var flutt til Bretlands um 10
—18 þús. tonn af saltfiski á
ári.
En alvarlegasti atburðurinn í
þessU efni skeði á yfirstand-
anda ári, þegar Spánverjar tak_
mörkuðu innflutning á fiski
héðan. Innflutningurinn héðan
til Spánar var, 3 síðustu árin,
sem verzlunarskýrslur ná til
um 81500 tonn á ári að meðal-
tali af allskonar fiski. En eftir
samningunum, sem gerðir voru
við Spánverja í vor, er heimilt
að flytja þangað 16600 tonn á
ári, svo lengi sem samningur-
inn stendur eða aðeins rúman
helming af áðumefndum meðal.
innflutningi. Þótt þessi inn-
flutningur hafi í reyndinni orð-
ið nokkru meiri á þessu ári, þá
er samt óvarlegt að treysta
því, að svo verði áfram.
Markað vantar fyrlr 15—20
þús. tonn.
Aðalmarkaðslönd íslendinga
fyrir fisk, að undanteknum
Spáni og Stóra-Bretlandi, eru
Portugal og Ítalía. Þar hafa að
vísu enn ekki verið lagðar
hömlur á innflutninginn og í
lengstu lög verður að vona, að
til þess komi ekki. En það er
með öllu ólíklegt, að um nokkra
verulega aukning á innflutningi
til þessara landa geti orðið að
ræða í bráðina.
Niðurstaða þessara athugana
verður því sú, að okkur vant-
ar markað fyrir sem svarar 15
—20 þúsund tonrnun af verk-
uðum fiski, miðað við fram-
leiðslu undanfarinna ára, ef
Spánarsamningnum er strang-
lega framfylgt og engin ný
markaðsúrræði finnast.
Frv. ÓL Thors um FiskiráS.
Að því var vikið í upphafi
þessa máls, að ekki hafi komið
fram opinberlega neinar tillög-
ur um úrræði, til umbóta á
fiskverzluninni, frá þeim mönn-
um, sem mest hafa um hana
fjallað.
Hér skal þó ekki gengið
fram hjá tillögum ölafs Thors,
sem birtast í frv. til laga um
fiskiráð, sem hann fyrir nokkr-
um dögum hefir látið birta í
Mbl., útbýta á Alþingi og lesa
upp í útvarpið, ásamt geisi-
langri „greinargerð" í 11 köfl-
um. Má um þetta innlegg segja
hið fomkveðna, að „umbúð-
imar eru vætt, innihaldið lóð“.
Þótt leitað sé með logandi
ljósi um alla þessa ritsmíð Ö.
Th. fyrirfinnst eltítí ein ein-
ast frumleg hugsun eða tillaga
um fiskveiðar lslendinga eða
fiskverzlun. Þar er hraflað
saman nokkmm staðreyndum,
seml hverjum manni eru kunn-
ar, máske að nokkrum tölum'
undanteknum, án þess að af
þeim séu, dregnar nokkrar
ályktanir. Aðalkjami þess máls
er sjálfsagt stofnun fiskiráðs-
ins, sem frv. fjallar um. 1
þessu ráði eiga að vera sjö
menn. Verkefnum, þeirra er
lýst í 2. gr. frv„ sem hljóðar
svo:
„Verkefni fiskiráðs er að
rannsaka og gera tillögur um
breyttar og nýjar aðferðir um
framleiðslu og sölu sjávar-
afurða, útvegun nýrra markaða
og annað, sem lýtur að vexti
og viðgangi sjávarútvegsins“.
Ekkert vald.
Ráðið hefir ekkert vald, að
því er séð verður. Það á að
safna skýrslum og senda þær
atvinnumálaráðherra, og ef það
gerir tillögur, þá „á það að
gera það sem í þess valdi
stendur" til að fá útgerðarmenn
til að framkvæma tillögumar.
Þegar á það er litið, að nefndin
hefir ekkert vald, verður erfitt
að sjá, með hvaða móti hún á
að fá útgerðarmenn til að gera
það, sem henni kann að detta í
hug að stinga upp á. Þá er og
ekki heldur, að því er séð verð- ;
ur, gert ráð fyrir að ráðið !
hafi ráð á neinu fé nema til að ;
borga sjálfu sér kaup, en það
á að greiðast úr verðjöfnunar- j
sjóði fiskútflytjenda. Skipun
ráðsins er líka ákaflega fárán- j
leg. Af þeim sex aðilum, sem
auk ráðherra eiga að tilnefna
menn í ráðið, eru Sölusamband
ísl. fiskframleiðenda, og Sam- j
lag ísl. matésfldarframleiðenda,
aðeins bráðabirgðastofnanir, er !
enginn getur sagt, hvort verða j
til eftir næstkomandi áramót
Þá er og Félag ísl. atvinnurek-
enda einn aðilinn. Félag þetta
er annaðhvort alveg nýstofnað
eða í fæðingunni. A. m. k. hefir
ekki orðið vart við, að það væri
starfandi hingað til. Væri hér
um stofnanir að ræða, sem
störfuðu á öruggum gmnd-
velli, þá væri á engan hátt at-
hugavert, að þær tilnefndu
mennina. En það er eftir öðm
í þessu frv., að ó. Th. hefir
notað tækifærið til að sparka
í samvinnufélög landsins, þótt
óbeint sé, með því að ætla
þeim ekki að eiga neinn þátt í
tilnefningunni, eins og áður
hefir verið vítt hér I blaðinu.
Samvinnufélögin hafa imdan-
farin ár haft a. m. k. 10—15%
af öllum fiskútflutningi lands-
manna.
Játnlng Ólals Thon.
ó. Th. segir sjálfur umj þessa
nefndarskipun, að hún „þurfi
ekki að reynast óhagnýt“.
(sbr. bls. 4 í greinargerðinni).
Hann virðist eftir þessu vera
þeirrar skoðunar, að það fié
ekki alveg víst, að nefndin
verði vita gagnslaus(I) en út
yfir það virðist trú hana ekki
ná, og er þá mikið haft fyrir
litlu.
Það er ölluni landsmönnum!
kimnugt, að viðskiptamálin, og
þá ekki sízt Bala framleiðslu-
varanna, en aðal viðfangsefni
okkar nú á tímum, Það er þvl
gremjulegt að sjá formann
stærsta stjómmálaflokksins í
landinu vera að hafa þessi mál
að fíflskaparmálum til að leiða
athygUna frá þeirri aðkaUandi
nauðsyn að reyna að ráða
fram úr fisksölumálunum af
skynsemd og stillingu og á
þann hátt, að það beri árangur
strax.
ólafi má þó vixða það til
vorkunnar, að þessi gagnslausa
uppástunga hans er að sjálf-
sögðu sprottin af þvl, að hann
hefir fundið, að eitthvað þurfti
að gera, en hefir skort til þess
manndóm og hugsun að bera
fram; tillögur, semi einhvers
væru nýtar. En þetta er þvl
átakanlegra sem ólafur er sá
maður i Sj álfstæðisflokknum,
sem allra manna mest ætti að
hafa fengizt við fiskverzlun
og ætti því að vera fær um að
leggja eitthvað gagnlegt tU
þeirra mála.
HvaS er framxmdan?
Það er ekki tilgangur þess-
arar greinar að bera fram fuU-
gerðar tillögur um úrlausn
þeirra vandamála, sem hér
hafa verið gerð að umtalsefni.
En þó skal bent 6 nokkur við-
fangsefni, eem bíða bráðrar úr-
lausnar.
1. Verndun þeirra fiskmark-
aöa, sem við nú höfum.
2. öflun nýrra markaGa fyr-
ir saltfisk.
8. Aukning framleiðslu og
sölu á freðfiski.
4. Skipulagning á sölu ís-
fiakjar og fiskveiðunum í sam-
bandi við þá sölu.
5. Aðrar þekktar aðferðir tU
fiskverkunar, sem kynnu að
gefa nýja möguleika.
TU þess aö vernda þann
fiskmarkað, sem við nú höfum,
virðist sjálfsagt að leita sam-
vinnu við þær nágrannaþjóðir,
sem eru okkur vinveittar og
sem sjálfar gætui haft gagn af
vinsamlegri samvinnu I þessum
efmun. Má þar fyrst og fremst
tilnefna Norðurlandaþjóðimar.
Er þetta atriði mjög aðkallandi
Fyrir öflun nýrra markaða
fyrir saltfisk eru vitanlega
nokkrir möguleikar. En á því
eru þeir annmarkar, að sala á
fiski tU Suður-Ameríku og ann-
ara þeirra landa, sem helzt
kæmu hér tU greina, er áhættu-
söm og ekki líkleg tU að gefa
jafngóða raun og sala tU þeirra
markaðsstaða, sem við nú
þekkjum mest. Þess er þvl ekki
að vænta, að sérstakir fram-
leiðendur gætu tekið á sig þá
áhættu, sem þessu er samfara,
enda myndi flesta þeirra skorta
aðstöðu tU þess að hafa þessar
framkvæmdir á hendi.
Um íramleiðslu og sölu| á
frosnum fiski er nokkuð það
sama að segja. Einstakir fram-
leiðendur myndu ekki hafa bol-
magn ná aðstöðu tU þess að
gera nægUega stórar og varan-
legar tilraunir.
Sala og framleiðsla ísfiskjar
hefir œtið verið ékaflega
skipulagslaus. Mestur hluti ís-
fiskjar, sem út hefir verið
fluttur, hefir verið veiddur á
togara og engin tök verið á þvl
að afla þess fiskjar, sem út-
gengilegastur hefir verið á
hverjum tíma. Á þessu hefir
þó orðið nokkur breyting upp.
á síðkastið með því aö Islenzk-
ir og erlendir togarar hafa
keypt fisk af bátum, en fúlt
hefir þetta verið gersamlega
skipulagslaust 1 sömu veiði-
stöðina koma oft miklu fleiri
togarar á sama tlma en unnt
er að geti fengið sig afgreidda.
Svo geta liðið langir timar svo
að engir togarar koma, svo að
bátamir verða að veiða I salt
Menn þora ekki að leggja í
þann kostnað, semj af því leiðir
að veiða sérstaklega verðmik-
inn fisk, svo semj kola og smá-
lúðu, af þvl að aUt er I óvissu
um söluna. Hinn takmarkaði
markaður í Bretlandi er því
fyUtur af verðUtlum fiski, þó
vitanlegt sé, að hér mætti bera
margfalt meira verðmæti úr
býtum en nú er gert, ef fiski-
veiðunum væri skynsamlega
hagað. Er þetta á hvers manns
vitorði, sem fiskiveiðar stunda,
og kynni hafa af þeim' málum.
Frnmh á 2. tlÖU.
Allmikið er nú fram komið af frumvörp-
um og tillögum, auk stjónxarfrumvarpanna,
•sem áður hefir verið minnst hér í blaðinu.
Eru flest þessi mál flutt af einstökum þing-
möimum, en nokkur þó af nefndum eða
meirilriutum nefnda, eftir beiðni stjómar-
innar. En það er venja um mál, sem ekki
eru svo fljótt undirbúin, að hægt sé'að fá
á þeim konungsstaðfestingu sem stjóraar-
írumvörpum fyrir þingbyrjun. Þingskjölin
voru í gær orðin 180 að tölu.
Frá skipulagsnefnd atvinnumála eru kom-
in fjögur mál inn í þingið. Eru tvö þeirra
ilutt af alisherjarnefnd nd. og tvö af sam-
göngumálaneínd nd., að tilhlutun atvinnu-
málaráðherra. Þessi mál eru:
1. Frumv. um skipulag fólksflutninga á
iandi. Er þar lagt til, að sérleyfi ríkisstjóra-
arinnar þurfi til að reka fólksflutninga í
bifreiðum, sem rúma fleiri en 6 farþega.
Tilgangurinn er að koma í veg fyrir, að
allt of margar bifreiðar séu í förum og að
færa niður fargjöld fyrir almenning.
2. Frumv. um að sameina embætti land-
símastjóra og póstmálastjóra.
3. Frumv. um ferðamannaskrifstofu rík-
isins. Er þar farið fram á, að ríkið táki í
sínar hendur, að útbreiða þekkingu ó land-
inu erlendis, og greiða fyrir ferðalögum er-
lendra manna hingað, en jafnframt sjá svo
um, að ekki só haft í frammi okur gagnvart
erlendum ferðamönnum, þjóðinni til tjóns
og ófrægðar. Hingað hafa komið á þessu
ári um 8000 erlendir ferðamenn, og hafa
landsmenn haft af því ekki óverulegar tekj-
ur í erlendum gjaldeyri, þótt lítið seiU ekk-
ert hafi verið gert til að laða útlendinga
iiingað allt fram að þessu — og stundum
þvert á móti.
4. Frumv. um eftirlit með opínberujn
rokstri.
Fjárhagsnefnd efri deildar (meirihlutinn)
flytur frv. um einkasölu á bifreiðum, mótor-
vélum, rafmagnsvélum, rafmagnsáhöldum
og efni til raflagna. Þessar vörur voru flutt-
ar inn árið 1933 fyrir 2 milj. 400 þús. kr.
Er gert ráð fyrir verzlunarhagnaði fyrir
ríkissjóð, og ennfremur, að haft sé betra
eftirlit með gæðum þessara vara og hóf um
fjölda tegunda. S. 1. ár voru t. d. 48 véla-
tegundir í mótorbátum og skipum hér é
landi og rúmlega 100 tegundir bifreiða.
Samkvæmt áskorun frá aukaþinginu 1933
liefir nú verið lagt fram frv. til nýrra
ófengislaga, þar sem leyfður sé innflutning-
ur sterkra drykkja. Gerir frv. ráð fyrir
sömu útsölum og nú eru, en annarsstaðar
má eigi stofna útsölur nema 3/6 atkvæðis-
bærra manna samþykki. Nýtt hegningai--
ákvæði er í þessu frv., sem er það, að skip-
stjóri eða annar skipsmaður, sem uppvís
verður að áfengissmyglun skuli missa starf
sitt og ekki hafa rétt til starfs á skipi
næstu sex mánuði eða lepgur — jafnvel æfi-
langt — ef um mikið eða ítrekað brot er að
ræða.
Meirihl. allsherjamefndar í nd. flytur frv.
um útvarpsrekstur ríkisins. Eru það ýmsar
endurbætur og breytingar á núgildandi út-
varpslögum, miðaðar við þá reynslu, sem
fengin er. M. a. er í frv. ákveðið, að í stað
utvarpsráðs komi dagskrárstjóra skipuð 7
mönnum. Séu þrír þeirra kosnir hlutfalls-
kosningu í sameinuðu Alþingi, þrír kosnir
af útvarpsnotendum um land allt og einn
skipaður af rfldsstjóra. Þá er og gert ráð
fyrir, að útvarpið heyri undir kennsluíriála-
ráðuneytið framvegis, en ekki atvinnumála-
ráðuneytið eins og hingað til.
Ingvar Pálmason og Gísli Guðmundsson
flytja tillögu um að skora á ríkisstjómina
að láta rannsaka, á hvem veg verði bezt
fyrir komið vátryggingum á fiskibátum og
leggja frumvarp um það fýrir næsta Al-
þingi.
Gísli Guðmundsson flytur frv. uiri heim-
ild fyrir ríkisstjómina til að kaupa og starf-
rækja síldarverksmiðjuna á Raufarhöfn.
Jónas Jónsson og Jón Baldvinsson flytja