Tíminn - 23.10.1934, Qupperneq 1

Tíminn - 23.10.1934, Qupperneq 1
©jaíbbagi tlatalns «c I. |&at. ■Árflangutinn Cofltac IO Cs> JRfgtcibsla »9 tnngclmta i £angaocg 10. 6lad 2353 - Pó.tfeílJ ðöl 47. blaS. Reykjavík, 23. október 1934. XVm. árg. Fiskveiðar og fiskverzlun íslendinga Alþingi l 6.-22. okt. Flestir munu hafa búizt við, að þeir menn, semj tekið hafa að sér forystu í útgerðarmálum þjóðarixmar, myndu gera ein- hverjar víðtækar tillögur um vandamál þessa atvinnuvegar á yfirstandandi alvörutímum. — Síðan samningurinn var gerður við Spánverja eru liðnir marg- ir mánuðir, en ekkert hefir ból- að á neinumi slíkum tillögum. FramleíSsla 4 síðustu ára. Islendingar hafa fram að þessu getað selt alla fiskfram- leiðslu sína, þótt illt verzlunar- árferði og sleifarlag á fisk- verzluninni hafi oft gert það torvelt. Siðastliðin fjögur ár hefir saltfiskframleiðsla landsins til útflutnings verið sem næst því, er hér segir, miðað við verkað- an fisk: 1930 ca. 70 þús. tonn. 1931 — 65 — — 1932 — 70 — — 1933 — 69 — — Þessi sömu ár hefir verið fluttur úr ísfiskur sem! hér segir: ÁriO tonn krónur 1930 11240 fyrir 3,841 milj. 1931 18738 — 6,295 — 1932 23045 — 4,735 — 1933 12843 — 8,171 — Á sömtí árum hefir verið fluttur út freðfiskur sem hér segir: ÁriO tonn krónur 1930 1273 fyrir 191.732,00 1931 69 — 24.075,00 1932 269 — 68.973,00 1933 432 — 85.580,00 Innflutningstakmarkanir i Oðrum lðndom. Allt til skamms tíma voru engar hömlur lagðar á innflutn. ing íslenzks fiskjar erlendis. En árið 1932 byrjuðu breyting- ar 1 þessu efnL 1 Þýzkalandi hefir ísfisksala verið torvelduð með háum tollum, og á árinu 1932 takmörkuðu Englendingar með viðskiptasamningi inn- flutning á fiski. Má ekltí flytja inn héðan til Bretlands nema um 13000 tonn af nýjum fiski á ári og um 5300 tonn af óverkuðum, saltfiski. Er hér um mjög mikla takmörkun að ræða á saltfiskinnflutningnum, því cð á árunum 1927—1930 var flutt til Bretlands um 10 —18 þús. tonn af saltfiski á ári. En alvarlegasti atburðurinn í þessU efni skeði á yfirstand- anda ári, þegar Spánverjar tak_ mörkuðu innflutning á fiski héðan. Innflutningurinn héðan til Spánar var, 3 síðustu árin, sem verzlunarskýrslur ná til um 81500 tonn á ári að meðal- tali af allskonar fiski. En eftir samningunum, sem gerðir voru við Spánverja í vor, er heimilt að flytja þangað 16600 tonn á ári, svo lengi sem samningur- inn stendur eða aðeins rúman helming af áðumefndum meðal. innflutningi. Þótt þessi inn- flutningur hafi í reyndinni orð- ið nokkru meiri á þessu ári, þá er samt óvarlegt að treysta því, að svo verði áfram. Markað vantar fyrlr 15—20 þús. tonn. Aðalmarkaðslönd íslendinga fyrir fisk, að undanteknum Spáni og Stóra-Bretlandi, eru Portugal og Ítalía. Þar hafa að vísu enn ekki verið lagðar hömlur á innflutninginn og í lengstu lög verður að vona, að til þess komi ekki. En það er með öllu ólíklegt, að um nokkra verulega aukning á innflutningi til þessara landa geti orðið að ræða í bráðina. Niðurstaða þessara athugana verður því sú, að okkur vant- ar markað fyrir sem svarar 15 —20 þúsund tonrnun af verk- uðum fiski, miðað við fram- leiðslu undanfarinna ára, ef Spánarsamningnum er strang- lega framfylgt og engin ný markaðsúrræði finnast. Frv. ÓL Thors um FiskiráS. Að því var vikið í upphafi þessa máls, að ekki hafi komið fram opinberlega neinar tillög- ur um úrræði, til umbóta á fiskverzluninni, frá þeim mönn- um, sem mest hafa um hana fjallað. Hér skal þó ekki gengið fram hjá tillögum ölafs Thors, sem birtast í frv. til laga um fiskiráð, sem hann fyrir nokkr- um dögum hefir látið birta í Mbl., útbýta á Alþingi og lesa upp í útvarpið, ásamt geisi- langri „greinargerð" í 11 köfl- um. Má um þetta innlegg segja hið fomkveðna, að „umbúð- imar eru vætt, innihaldið lóð“. Þótt leitað sé með logandi ljósi um alla þessa ritsmíð Ö. Th. fyrirfinnst eltítí ein ein- ast frumleg hugsun eða tillaga um fiskveiðar lslendinga eða fiskverzlun. Þar er hraflað saman nokkmm staðreyndum, seml hverjum manni eru kunn- ar, máske að nokkrum tölum' undanteknum, án þess að af þeim séu, dregnar nokkrar ályktanir. Aðalkjami þess máls er sjálfsagt stofnun fiskiráðs- ins, sem frv. fjallar um. 1 þessu ráði eiga að vera sjö menn. Verkefnum, þeirra er lýst í 2. gr. frv„ sem hljóðar svo: „Verkefni fiskiráðs er að rannsaka og gera tillögur um breyttar og nýjar aðferðir um framleiðslu og sölu sjávar- afurða, útvegun nýrra markaða og annað, sem lýtur að vexti og viðgangi sjávarútvegsins“. Ekkert vald. Ráðið hefir ekkert vald, að því er séð verður. Það á að safna skýrslum og senda þær atvinnumálaráðherra, og ef það gerir tillögur, þá „á það að gera það sem í þess valdi stendur" til að fá útgerðarmenn til að framkvæma tillögumar. Þegar á það er litið, að nefndin hefir ekkert vald, verður erfitt að sjá, með hvaða móti hún á að fá útgerðarmenn til að gera það, sem henni kann að detta í hug að stinga upp á. Þá er og ekki heldur, að því er séð verð- ; ur, gert ráð fyrir að ráðið ! hafi ráð á neinu fé nema til að ; borga sjálfu sér kaup, en það á að greiðast úr verðjöfnunar- j sjóði fiskútflytjenda. Skipun ráðsins er líka ákaflega fárán- j leg. Af þeim sex aðilum, sem auk ráðherra eiga að tilnefna menn í ráðið, eru Sölusamband ísl. fiskframleiðenda, og Sam- j lag ísl. matésfldarframleiðenda, aðeins bráðabirgðastofnanir, er ! enginn getur sagt, hvort verða j til eftir næstkomandi áramót Þá er og Félag ísl. atvinnurek- enda einn aðilinn. Félag þetta er annaðhvort alveg nýstofnað eða í fæðingunni. A. m. k. hefir ekki orðið vart við, að það væri starfandi hingað til. Væri hér um stofnanir að ræða, sem störfuðu á öruggum gmnd- velli, þá væri á engan hátt at- hugavert, að þær tilnefndu mennina. En það er eftir öðm í þessu frv., að ó. Th. hefir notað tækifærið til að sparka í samvinnufélög landsins, þótt óbeint sé, með því að ætla þeim ekki að eiga neinn þátt í tilnefningunni, eins og áður hefir verið vítt hér I blaðinu. Samvinnufélögin hafa imdan- farin ár haft a. m. k. 10—15% af öllum fiskútflutningi lands- manna. Játnlng Ólals Thon. ó. Th. segir sjálfur umj þessa nefndarskipun, að hún „þurfi ekki að reynast óhagnýt“. (sbr. bls. 4 í greinargerðinni). Hann virðist eftir þessu vera þeirrar skoðunar, að það fié ekki alveg víst, að nefndin verði vita gagnslaus(I) en út yfir það virðist trú hana ekki ná, og er þá mikið haft fyrir litlu. Það er ölluni landsmönnum! kimnugt, að viðskiptamálin, og þá ekki sízt Bala framleiðslu- varanna, en aðal viðfangsefni okkar nú á tímum, Það er þvl gremjulegt að sjá formann stærsta stjómmálaflokksins í landinu vera að hafa þessi mál að fíflskaparmálum til að leiða athygUna frá þeirri aðkaUandi nauðsyn að reyna að ráða fram úr fisksölumálunum af skynsemd og stillingu og á þann hátt, að það beri árangur strax. ólafi má þó vixða það til vorkunnar, að þessi gagnslausa uppástunga hans er að sjálf- sögðu sprottin af þvl, að hann hefir fundið, að eitthvað þurfti að gera, en hefir skort til þess manndóm og hugsun að bera fram; tillögur, semi einhvers væru nýtar. En þetta er þvl átakanlegra sem ólafur er sá maður i Sj álfstæðisflokknum, sem allra manna mest ætti að hafa fengizt við fiskverzlun og ætti því að vera fær um að leggja eitthvað gagnlegt tU þeirra mála. HvaS er framxmdan? Það er ekki tilgangur þess- arar greinar að bera fram fuU- gerðar tillögur um úrlausn þeirra vandamála, sem hér hafa verið gerð að umtalsefni. En þó skal bent 6 nokkur við- fangsefni, eem bíða bráðrar úr- lausnar. 1. Verndun þeirra fiskmark- aöa, sem við nú höfum. 2. öflun nýrra markaGa fyr- ir saltfisk. 8. Aukning framleiðslu og sölu á freðfiski. 4. Skipulagning á sölu ís- fiakjar og fiskveiðunum í sam- bandi við þá sölu. 5. Aðrar þekktar aðferðir tU fiskverkunar, sem kynnu að gefa nýja möguleika. TU þess aö vernda þann fiskmarkað, sem við nú höfum, virðist sjálfsagt að leita sam- vinnu við þær nágrannaþjóðir, sem eru okkur vinveittar og sem sjálfar gætui haft gagn af vinsamlegri samvinnu I þessum efmun. Má þar fyrst og fremst tilnefna Norðurlandaþjóðimar. Er þetta atriði mjög aðkallandi Fyrir öflun nýrra markaða fyrir saltfisk eru vitanlega nokkrir möguleikar. En á því eru þeir annmarkar, að sala á fiski tU Suður-Ameríku og ann- ara þeirra landa, sem helzt kæmu hér tU greina, er áhættu- söm og ekki líkleg tU að gefa jafngóða raun og sala tU þeirra markaðsstaða, sem við nú þekkjum mest. Þess er þvl ekki að vænta, að sérstakir fram- leiðendur gætu tekið á sig þá áhættu, sem þessu er samfara, enda myndi flesta þeirra skorta aðstöðu tU þess að hafa þessar framkvæmdir á hendi. Um íramleiðslu og sölu| á frosnum fiski er nokkuð það sama að segja. Einstakir fram- leiðendur myndu ekki hafa bol- magn ná aðstöðu tU þess að gera nægUega stórar og varan- legar tilraunir. Sala og framleiðsla ísfiskjar hefir œtið verið ékaflega skipulagslaus. Mestur hluti ís- fiskjar, sem út hefir verið fluttur, hefir verið veiddur á togara og engin tök verið á þvl að afla þess fiskjar, sem út- gengilegastur hefir verið á hverjum tíma. Á þessu hefir þó orðið nokkur breyting upp. á síðkastið með því aö Islenzk- ir og erlendir togarar hafa keypt fisk af bátum, en fúlt hefir þetta verið gersamlega skipulagslaust 1 sömu veiði- stöðina koma oft miklu fleiri togarar á sama tlma en unnt er að geti fengið sig afgreidda. Svo geta liðið langir timar svo að engir togarar koma, svo að bátamir verða að veiða I salt Menn þora ekki að leggja í þann kostnað, semj af því leiðir að veiða sérstaklega verðmik- inn fisk, svo semj kola og smá- lúðu, af þvl að aUt er I óvissu um söluna. Hinn takmarkaði markaður í Bretlandi er því fyUtur af verðUtlum fiski, þó vitanlegt sé, að hér mætti bera margfalt meira verðmæti úr býtum en nú er gert, ef fiski- veiðunum væri skynsamlega hagað. Er þetta á hvers manns vitorði, sem fiskiveiðar stunda, og kynni hafa af þeim' málum. Frnmh á 2. tlÖU. Allmikið er nú fram komið af frumvörp- um og tillögum, auk stjónxarfrumvarpanna, •sem áður hefir verið minnst hér í blaðinu. Eru flest þessi mál flutt af einstökum þing- möimum, en nokkur þó af nefndum eða meirilriutum nefnda, eftir beiðni stjómar- innar. En það er venja um mál, sem ekki eru svo fljótt undirbúin, að hægt sé'að fá á þeim konungsstaðfestingu sem stjóraar- írumvörpum fyrir þingbyrjun. Þingskjölin voru í gær orðin 180 að tölu. Frá skipulagsnefnd atvinnumála eru kom- in fjögur mál inn í þingið. Eru tvö þeirra ilutt af alisherjarnefnd nd. og tvö af sam- göngumálaneínd nd., að tilhlutun atvinnu- málaráðherra. Þessi mál eru: 1. Frumv. um skipulag fólksflutninga á iandi. Er þar lagt til, að sérleyfi ríkisstjóra- arinnar þurfi til að reka fólksflutninga í bifreiðum, sem rúma fleiri en 6 farþega. Tilgangurinn er að koma í veg fyrir, að allt of margar bifreiðar séu í förum og að færa niður fargjöld fyrir almenning. 2. Frumv. um að sameina embætti land- símastjóra og póstmálastjóra. 3. Frumv. um ferðamannaskrifstofu rík- isins. Er þar farið fram á, að ríkið táki í sínar hendur, að útbreiða þekkingu ó land- inu erlendis, og greiða fyrir ferðalögum er- lendra manna hingað, en jafnframt sjá svo um, að ekki só haft í frammi okur gagnvart erlendum ferðamönnum, þjóðinni til tjóns og ófrægðar. Hingað hafa komið á þessu ári um 8000 erlendir ferðamenn, og hafa landsmenn haft af því ekki óverulegar tekj- ur í erlendum gjaldeyri, þótt lítið seiU ekk- ert hafi verið gert til að laða útlendinga iiingað allt fram að þessu — og stundum þvert á móti. 4. Frumv. um eftirlit með opínberujn rokstri. Fjárhagsnefnd efri deildar (meirihlutinn) flytur frv. um einkasölu á bifreiðum, mótor- vélum, rafmagnsvélum, rafmagnsáhöldum og efni til raflagna. Þessar vörur voru flutt- ar inn árið 1933 fyrir 2 milj. 400 þús. kr. Er gert ráð fyrir verzlunarhagnaði fyrir ríkissjóð, og ennfremur, að haft sé betra eftirlit með gæðum þessara vara og hóf um fjölda tegunda. S. 1. ár voru t. d. 48 véla- tegundir í mótorbátum og skipum hér é landi og rúmlega 100 tegundir bifreiða. Samkvæmt áskorun frá aukaþinginu 1933 liefir nú verið lagt fram frv. til nýrra ófengislaga, þar sem leyfður sé innflutning- ur sterkra drykkja. Gerir frv. ráð fyrir sömu útsölum og nú eru, en annarsstaðar má eigi stofna útsölur nema 3/6 atkvæðis- bærra manna samþykki. Nýtt hegningai-- ákvæði er í þessu frv., sem er það, að skip- stjóri eða annar skipsmaður, sem uppvís verður að áfengissmyglun skuli missa starf sitt og ekki hafa rétt til starfs á skipi næstu sex mánuði eða lepgur — jafnvel æfi- langt — ef um mikið eða ítrekað brot er að ræða. Meirihl. allsherjamefndar í nd. flytur frv. um útvarpsrekstur ríkisins. Eru það ýmsar endurbætur og breytingar á núgildandi út- varpslögum, miðaðar við þá reynslu, sem fengin er. M. a. er í frv. ákveðið, að í stað utvarpsráðs komi dagskrárstjóra skipuð 7 mönnum. Séu þrír þeirra kosnir hlutfalls- kosningu í sameinuðu Alþingi, þrír kosnir af útvarpsnotendum um land allt og einn skipaður af rfldsstjóra. Þá er og gert ráð fyrir, að útvarpið heyri undir kennsluíriála- ráðuneytið framvegis, en ekki atvinnumála- ráðuneytið eins og hingað til. Ingvar Pálmason og Gísli Guðmundsson flytja tillögu um að skora á ríkisstjómina að láta rannsaka, á hvem veg verði bezt fyrir komið vátryggingum á fiskibátum og leggja frumvarp um það fýrir næsta Al- þingi. Gísli Guðmundsson flytur frv. uiri heim- ild fyrir ríkisstjómina til að kaupa og starf- rækja síldarverksmiðjuna á Raufarhöfn. Jónas Jónsson og Jón Baldvinsson flytja

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.