Tíminn - 20.11.1934, Blaðsíða 4
202
T I M I N N
hefjumst handa um umbætur í þessu efni,
þá eig-um við það á hættu, að réttur okkar
verði einskisvirtur og að okkur verði, von
bráðar, fyrii’munað gersamlega að reka út-
varp í landinu, nema fyrir einhvem mjög
takmarkaðan hluta lndsins.
4. Ráðstöfun þessi myndi á hinn bóginn
hafa í för með sér ýmislegar umbætur, sem
gerðu það fært, að standast kostnaðinn,
sem af þessum fyrirhuguðu ráðstöfunum
myndi leiða, og skal drepið á nokkrar
þeirra.
a. Móttaka útvarps um allt land yrði
auðveldari, sérstaklega yrði bót ráðin á
vandkvæðum þeim, sem íbúar í Austfirð-
ingafjórðungi eiga við að búa.
Á truflanasvæðinu, frá Breiðamerkur- j
sandi og að Öxarfjarðarheiði voru, sam- I
kvæmt síðustu skýrslum, um 400 útvarps-
notendur, og er það fátt á svo stóru svæði. j
Ég geri fastlega ráð fyrir verulegri fjölg- í
un útvarpsnotenda í Austfirðingafjórðungi
beinlínis vegna þessarar fyrirhuguðu uui-
hótar, ef hún næði fram að ganga.
b. Móttaka útvarps um allt land yrði
ekki einungis auðveldari eins og nú var
l'ram tekið, heldur og kostnaðarminni. Því
meiri sem er sendiorka stöðvar, því minni
og ódýrari tæki er hægt að nota til mót-
lökunnar, kostnaðarminni loftnet og síðast
en ekki sízt hefir slíkt í för með sér minni
cyðslu rafmagns. Allt þetta myndi að mínu
áliti stuðla að því, að auka útvarpsnotin í
landinu til stórra muna, svo að gera mætti
ráð fyrir að um 1000—1500 útvarpsnotend-
ur bættust við beinlínis vegna hinna bættu
skilyrða. En við fjölgun myndi tekjur út-
varpsins vaxa“.
I bréfinu telur útvarpsstjóri, að ríkisút-
varpið muni áður en langt um líður geta
borið sig fjárhagslega, og að tekjur Við-
tækjaverzlunar ættu þá að ganga til hinna
óhjákvæmilegu endurbóta.
Nettótekjur Viðtækjaverzlunar hafa orð-
ið síðan hún byrjaði 1930, til ársloka 1933,
428 þús. kr.
Á yfirstandandi ári er útlit fyrir, að
tekjuafgangur hennar verði 125 þús. kr.
Útvarpsnotendum hefir fjölgað mjög mik-
ið seinustu árin. T. d. bættust við 2376 út-
varpsnotendur á síðari hluta árs 1933.
Fyrri hluta yfirstandandi árs bættust við
778 nýir útvarpsnotendur. I júnílok sl. voru
alls 9150 útvarpsnotendur á landinu.
Háskólinn.
Menntamálanefnd efri deildar flytur, að
tilhlutun kennslumálaráðherra, frv. um
breyting á háskólalögunum, þar sem' m. a.
er gert ráð fyrir, að háskólakennsla hefjist
hálfum mánuði fyr að haustinu en verið
hefir og hætti hálfum mánuði fyr að vor-
inu, og ennfremur -frv. um stofnun atvinnu-
deildar við háskólann. Er þar gert ráð fyrir
prófessorum í fiskifræði, efnafræði og líf-
fræði og á aðalstarf þeirra að vera að
framkvæma vísindalegar rannsóknir í þágu
atvinnuveganna.
Ávísanaskattur.
Meiri hluti fjárhagsnefndar í neðri deild
flytur, að tilhlutun fjármálaráðherra, frv.
um sérstakt stimpilgjald á ávísanir og kvitt-
anir. Er gert ráð fyrir, að gjald þetta verði
5—50 aurar á hverja ávísun eða kvittun,
eftir upphæð, og renni í ríkissjóð. Þessi
tekjuöflunarleið er rnikið notuð erlendis.
Er ávísanaskattur svipaður og sá er hér um
ræðir, lögleiddur í Bretlandi, Frakklandi,
Hollandi, Belgíu, Italíu, Spáni, Portúgal,
Austurríki og Ungverjalandi.
Matsstjórafrumvarpið.
Meirihluti sjávarútvegsnefndar efri deild-
ar er nú að laga matsstjórafrumvarp Ólfs
Thors á þann veg, að ekki þurfi aðverðaáð
því mikill aukakostnaður fyrir ríkið. Leggja
nefndarmennirnir til, að hægt sé að fela
fiskifulltrúanum á Spáni þetta starf, enda
komi hann árlega hingað til lands til að
gefa matsmönnum leiðbeiningar um kröfur
neytenda fiskjarins. Samkv. frv. ólafs eins
og það slamþaðist gegnum neðri deild, átti
matsstjórinn að vera sérstakur embættis-
maður á 8 þús. kr. launum. Var tillaga frá
Sigfúsi Jónssyni og Gísla Guðmundssyni um
að lækka launin úr 8 þús. kr. niður í 6 þús.
kr. drepin og greiddu m. a. „spamaðarpost-
ulai-nir" Pétur Ottesen, Jón á Reynistað og
Jón á Akri atkvæði á móti þessari launa-
lækkun, hafa víst talið sig gera það í um-
boði bænda!
Ritstjóri: Gísli Guðmundsson.
Prentsmiðjan Acta 1934
]É llSH S Cl. II
Swaníield Flonr Mills
Iieith, Edinhurg 6
Eftirtaldar vörur vorar eru alþekktar á Islandi:
gg | HVEITI HEKLA,
HVEITI MORNING STAR,
MAÍSMJÖL FlNMALAÐ,
MAlSFLÖGUR SOÐNAR,
ásamt fleiri kom- og fóðurvörum. — Sendið pantanir yðar tfl
Sambands ísl. samvinnufélaga
Gement Marketing Gomp. Ltd
L O N D O N.
L FLOKKS ENSKT PORTLAND CEMENT,
PANTANIR ANNAST
Samband isl. samvinnufélaga
REYKJAVlK
P. W. Jacobsen & Son
Timburverzlun
Símneíni: Graníuru. Stofnað 1824.
Carl Lundsgade Köbenhavn.
Afgreiðum frá Kaupmaimahðín bæði stórar og litlar pantanir og
heila skipsfarma frá SvíþjóO. — Sís og umboðssalar annast pantanir.
:: :: :: :: EEK OG EFNI í ÞILFAR TIL SKIPA. :: :: :: ::
SJÓVÁTRYGGINGAR.
BRUN ATRY GGIN GAR.
REKSTURSSTÖÐVUNARVÁTRYGGINGAR.
HÚ SALEIGU VÁTRY GGINGAR.
Tryggið aðeins hjá alíslenzku félagi.
Sjóváfpyggingarfélag (slands hf.
Eimskipafélagshúsinu, Reykjavík.
AriO 1904 var
1 fynta alnn
þeklagt 1 Dan-
mörku úr
ICOP AL.
Bezta og ódýrasta efni í þök. Tíu ára ábyrgð A þökunum.
Þurfa ekkert viðhald þann tíma.
Létt. ------- Þétt. ------ Hlýtt.
Betra en bárujóm og málmar. Endist eins vel og sklfuþök.
Fæst alstaðar á Islandi.
Jens Vílladsens Fabriker.
Kalvebodbrygge 2. Köbenhavn V.
Biðjið um verðskrá vora og sýnishom.
BEZTU CIGARETTURNAR í 20 stk.
PÖKKUM, SEM KOSTA
kr. 1.20
— ERU
COMMIIIIDiR
WESTM3N STER.
VIRGINIA.
CIGÁEETTUR
Þessi ágæta cigarettutegund fæst ávalt
í heildsölu hjá
TÓBAKSEINKASÖLU RlKISINS
Búnar til af
Westminster Tobacco Gompany Ltd.
LONDON.
REYKID
J. GRUNO’S
ágæta hollenzka reyktóbak
VERÐ:
AROMATISCHER SHAG kostar kr. 0,90 V20 kg-
FEINRIECHENDER SHAG — — 0,95---
Bæst í öllum verzlunum