Tíminn - 29.01.1935, Qupperneq 3
' T í M I N N
15
Fréttir
Smásöluverð
á rjóltóbaki og munntðbaki
má ekki vera hærra en hér segir:
Rjól B. B,
Mellemakraa B. B.
Smalskraa „ „
Mellemskraa Obel
Skipperskraa „
Smalskraa „
Mellemskraa Augustinus
Smalskraa „
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má smásöluverðið
vera 3°|0 hærra vegna flutningskostnaðar.
V, kg, bitinn kr. 11,20
Vgo — pakkinn — 1,20
Vso — — — 1,35
v20 — _■ — 1,20
‘/W — — — 1,28
'Uo — — — 1,35
'Uo — _ — 1,21
V*o — — — 1,37
Tóbakseinkasala rikisins
í Gerðahreppi í Grullbringusýslu er
laus til ábúðar frá næstu fardögum
að telja.
Umsóknir um ábúð á jörðinni skulu
komnar á skrifstofu sýslunnar fyrir
20. febrúar n. k.
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósársýslu 20. jan. 1935
Ragnar Jónsson,
settur.
Tvö Kaupmannahafnarblöð liafa
hirt viðtöl við Hermann Jónasson
lorsætisráðherra, samkv. skeytum
sem hingað hafa borizt þessa dag-
ana. M. a. hafa þau lagt fyrir
hann spumingar viðvíkjandi skrif-
un> um ísland í enskum blöðum,
Sambandslögunum og samvinnu
við önnur Norðurlönd. Ráðherr-
anh leggur aí' stað heimleiðis 8.
íehr.
Samningar tókust í gær í kaup-
deilunni milli útgerðarmanna og
sjómaiuia um kaup á togurum,
seiri flytja fisk mili landa. Kjör
sjómanna verða samkvæmt samn-
ingunum svipuð því, sem stungið
var upp á i miðlunartillögu sátta-
semjata, En sú tillaga var eins og
kunnugt er, felld af útgerðar-
inönnum en samþykkt af sjó-
mönnum.
Hæstaréttardómur í hinu svo-
kallaða „kollumáli“ eða l.iúgvitna-
máli, sem íhaldið lf-t höiða gegn
Hermanni Jónassvm forsætisráð-
herra upp úr bæjarstjórnarkosn-
ingunum í fyrravptur, var kveðinn
upp í .jgær. Var Hermann Jónas-
son, svo scm sjáh'sngt var, alger-
legfl sýknaður, on Arnljótur Jóns-
son 'rannsóknan.lnmaii M. C. í
þessu máli, 0. tur fyrir óhæíilega
niálsmeðferð. Allur kostnaður viö
málavafstur þecta, á sámkv. dórnn-
tim, að greiöast 'ir ríkissjóði, og
mun hann vera talsverður.
Ouðmundur Ásbjiitnssoii fulltrtii
bæjarstjórnar Reykjavíkur í
Mjólkursölunefnd hefir sagt sig úr
nefndinni. í stað hans hefir í-
iiaidið kosið Jakob Möller i nQfnd-
ina, manninn, sem sumarið i931
vildi láta Reykjavik segja sig úr
lögum við sv.eitirnar og stofna
sjálfstætt riki!
Mannskaði. Brezkur togari fórst
með allri áhöfn í aftaka veðri við
Látrabjarg síðastl. þriðjudagskv.
22. þ. m. Sendi skipstjórinn neyð-
ar^k’eyti til nálægra skipa, en
engri hjálp varð við komið.
í Bandaríkjunum hafa undan-
farna daga verið grimmdarfrost
og einn daginn var 17 þumlunga
enjór á götum New York borgar. Á
Bretlandseyjum hafa verið ofsa-
stormar.
Mannfjöldi í Reykjavík. Samkv.
bráðabirgðaskýrslu um niðurstöð-
ur manntalsins í Reykjavík voru
í lok síðasta árs um 32.900 íbúar í
bBenum. Bæjarbúum hefir því
fjölgað á seinasta ári um 1400 og
er megnið af fjölguninni aðflutt
fólk.
Blökkumennska. Framkorna Mli).
gagnvart Jónasi þorbergssyni á
fimmtugsafmæli hans núna ný-
skeð mun vera fordæmalaus and-
styggð í íslenzkri blaðamennsku.
þó að baráttan í opinberum mál-
um hafi oft verið hörð hér á landi,
tiai’a menn hingað til haft smekk-
vísi og skapstillingu til þess að
nota ekki slík tækifæri til að ráð-
ast á andstæðing sinn með per-
sónulegum þrælabrögðum. En vel
fer á því, að það eru ekki merki-
legri menn en ritstjórar Mbl., sem
orðið hafa sér til skammar á
þennan hátt.
Maður verður úti. þorsteinn
Gislason að Geitalandi varð úti á
Miðfjarðarhálsi 22. þ. m. Vai- hans
saknað þá um daginn og fóru um
60 manns að leita hans daginn
eftir. Fannst hann þá á bersvæði
og snéri andlitinu i veðrið. Er
iialdið að hann hafi orðið bráð-
bráðkvaddur.
Héðinn Valdimarsson hefir verið
kosinn formaður Fiskimálanefnd-
ar. I nefndinni eru: Pálmi Lofts-
son framkvæmdastjóri, Jón A.
Pétursson hafnsögumaður, Júlíus
Guðmundsson stórkaupm., Helgi
Guðmundsson bankastjóri, Krist-
ján Bergsson form. Fiskifélagsins,
Guðm. Asbjörnsson kaupmaður og
II. V.
Ólafur Briem, sem verið hefir
skrifstofustjóri Fisksölusamlagsins,
hefir verið ráðinn skrifstofustjóri
Fiskimálanefndar.
Skriðuhlaup. í síðustu viku
fóll skriða úr fjallinu fyrir ofan
Sólbakka í Önundarfirði. Ónýtti
hún töluvert af túnum Flateyrar-
búa. þá kom hlaup úr tveim
giljum nálægt vei-ksmiðju á Sól-
bakka og. ollu þau allmiklum
skemmdum á verksmiðjunni. A
miðvikudaginn féll skriða úr fjall-
Reykjavík, 28. janúar 1935
inu fyrir ofan Villingadal á In-
gjaldssandi og eyðilagði hún meg-
inið af túninu. Skriðan var um 2
in. á þykkt í sporðinn.
Símasamband er nú við annan-
livorn bæ i Mosfellssveit. Bæimir
eru alls um 40 og er sími á 20
þeirra. A næstu árum verður unn-
ið að því að koma síma á alla
bæina. — Kjalnesingar hafa einnig
í hyggju að koma upp sveitar-
síma hjá sér og mun undirbúning-
ur þegar hafinn.
Úr Loðmundarfirði. í bréfi dags.
27. des. s. 1. úr Loðmundarfirði
segir m. a. sem dæmi um veður-
blíðuna þar: „í blómgarðinum
Kolaverzlun
SIOUR3AR ÓLAFSSONAR
Simn.: KOL. Raykjavík. Simi 1933
lifna bellísar, kongaljós, gullfíflar
og sóleyjar. Ein sóley hefir sprung-
ið út þar og önnur í túninu".
Dánardægur. Nýlátnar eru í
Vesturheimi, Ragnheiður Eiríks-
dóttir 76 ára gömul, ættuð úr Eiða-
þinghá i Suðuimúlasýslu og Sig-
ríður Jónsdóttir, 84 ára gömul,
ættuð af Langanesi, Ragnheiður fór
til Ameríku 1907, en Sigríður 1890.
(Eftir Lögbergi).
að fyrir nokkrumi árum hafði
komist upp, að ráðunautur
Jensens hellti vatni í mjólkina
til að drýgja vöruna fyrir hús-
bónda sinn. Thor Jensen var
að vísu stærsti bóndi landsins,
en íhaldið fami sárt til að eng-
inn smábóndi hafði orðið fyrir
því óhappi að vatn værj látið
renna í mjólk hans eða mjólk-
in í of litlum flöskum.
Hér mætti bylgja bylgju.
/Esing íhaldskvennanna gekk
yfir bæinn eins og skrítin en
hálfþægileg hitabylgja. OgVís-
ir og Mbl., sem daglega fluttu
langar greinar um söluskipulag.
ið vx>ru eins og olía sem helt
er í eld. En nú reis önnur halda
móti hinni. Það var alda óbeit-
ar og vantrúar á allan þennan
gauragang. Ráðsettir menn
vildu ekki koma nærri málstað
Mbl. Þeini fannst Korpúlfs-
stáðamjólkin ekki það álitlegri
að öllu samantöldu, heldur en
mjólkin fi'á venjulegum bænd-
um, að þeir vildu leggja út í
pólitískt áhættuspil fyrir gler-
ið eða innihaldið.
Þegar sr. Sveinbirni var boð-
ið á hinn fyrri æsingafuhd
kvennanna, stakk hann strax
upp á við Guðrúnu Lárusdótt-
ru að þeim fundi yrði útvarp-
að, en frúin tók því hið versta.
Hún fann með kvenlegri til-
finningu, fremur en skynsemi,
að málstaður hennar átti betur
heima í kaffisamsætum' vel-
klæddra en andlega volaðra
kvenna í kvikmyndasölumi höf-
uðstaðarins, heldur en í bað-
stofum sveitakvenna, sem
vinna frá morgni til kvölds að
því að framleiða mjólk fyrir
12—14 aura lítrann.
En miðstjórn Framsóknar-
flokksins og Alþýðuflokksins
voru sammála sr. Sveinbirai
um að þetta mál skyldi vera
rætt í heyranda hljóði. Þær
buðu hinum flokkunum hólm-
göngu tvö kvöld í útvarpinu.
Andstæðingarnir urðu þá að
mæta. Ólafur Thors sendi full-
trúa fyrir sinn flokk. Og
bandamenn hans, Jón í Stóra-
dal og Einar Olgeirsson, létu
ekki standa á sér.
Hálf þjóðin hefir nú hlustað
á þessa þrenningu standa hlið
við hlið móti Framsóknarmönn-
um' og Alþýðuflokknum í því
skyni einu að spilla fyrir þessu
máli bjargráði bændastéttar-
innar. Qg nú byrjaði undan-
hald íhaldsins. í blöðum flokka-
ins og á kvennafundum hafði
allt eðli og framkvæmd mjólk-
urlaganna verið fordæmt skil-
yrðislaust. En nú varð að tala
við þjóðina alla. Pétur Hall-
dórsson hafði á kvennafundin-
um _ skorað á konur að byrja
mjólkurverkfall til að skaða
bændur og knýja fram mjólk-
urlækkun. Og hann hafði bein-
línis kent konunum að þær
skyldu svíkja mjólkina ofan í
böm sín, með því að blanda
mjólkina með volgu vatni, til
að óvitamir skyldu síður verða
varir við svikin. Að þessu
leyti stóð P. H. alveg við hlið
Einars Olgeirssonar, sem
heimtar mjólkurverkfall til að
kúga bændur. En P. H. var ekki
sendur í útvarpið, heldur annar
Pétur, sem annars greiðir eins
atkvæði í þinginu í flestum
málum. Og þessi Pétur sem tal-
aði við sveitafólkið sagði að
mjólkurlögin væru góð, sjálf-
sögð og nauðsynleg. Hann bað
Reykvíkinga að kaupa mikla
mjólk af bændunum. Eftir því
sem á leið umræðurnar varð
fleira og fleira ágætt, nema
helzt brauðin. Það var sú
aauðásynd, að mjólkursamsal-
an er búin að lækka brauðin
fyrir íhaldsmönnum um 20%.
Einmitt þetta er nú mesta
sorgarefni bæði bakaranna
og annar í sama flokki, sem
selja of dýrt.
Daginn eftir umræðumar
var grátur og gnístran tanna
í liði hinna æstu kvenna og hjá
ritstjórum íhaldsblaðanna. Leið-
togar íhaldsins höfðú eggjað
blaðamenn sína og konur til
óhæfilegra árása á bændur, at-
vinnu þeirra og atvinnubætur.
Og svo höfðu þessir sömu menn
í útvarpinu frammi fyrir þjóð-
inni raunverulega afneitað blöð-
um sínum! og konum. Nú var
ekkert eftir nema flóttinn.
Hann verður rekinn að vísu, en
með mildi og mannúð. Þeir
sem velja sér sterkan málstað
og sigra hafa efni á að sýna
mannúð andstæðingum, sem
hafa tekið að sér vonlausan
málstað, barizt með grimmd,
tapað og flúið. J. J.
Ritstjóri:
Gísli Guðmundsson.
Prentsm. Acta.
Jónas Þorbergsson
fimmtugur
Jónas Þorbergsson útvarps-
stjóri v$rð fímnitugur 22. þ.
m. og þann dag minntust
nokkrir vinir hans úr Reykja-
vík og nágrenninu þess með
samsæti að Hótel Borg.
Jónas Þorbergsson er fæddur
og uppalinn í Suður-Þingeyjar-
sýslu. Faðir hans var efnaiírill
smábóndi. Hann missti konu
sína frá þrem ungum drengjum
og gekk þeim, eftir því sem
framast var unnt, í stað bæði
föður og móður. Allir þessir
bræður hafa mannast vel og
eru þjóðkunnir menn. Tveir
hinir eldri, Hallgrímur fjár-
ræktarfræðingur og Jón bóndi
á Laxamýri, hafa lagt meiri
stund á að nema fræðilega um
fjárrækt, heldur en aðrir bænd-
ur á sama tíma. Yngsti bróðir-
inn fór aðra leið. Þrátt fyrir
mikla fátækt og heilsuleysi á
æskuárunum, brauzt hann
gegnum skólanám í skólanum á
Akureyri, þar sem mannast
hafa margir af helztu forgöngu
mönnum samvinnu- og lýðræð-
ishreyfinganna hér á landi. Það-
an fór hann til Ameríku og var
þar sex ár í hinum erfiða
skóla harðrar lífsbaráttu. Að
þeim tíma kom Jónas heim og
var í næstu 10 árin ritstjóri að
blöðum samvinnumanna, Degi,
á Akureyri og Tímanum í
Rvík. Um áramótin 1930 tók
hann við forstöðu útvarpsins og
hefir gegnt henni síðan.
Þegar Jónas Þorbergsson
kom frá Ameríku og tók við
ritstjórn Dags, var hann ó-
venjulega fær til að stunda
blaðamennsku. Hann hafði að
eðlisfari mikla hneigð til rit-
starfa, var létt um að rita,
hafði margháttuð áhugamál,
bæði um efnislega og and-
lega hluti. Hann hafði þá þeg-
ar fjölbreytta lífsreynzlu og
hafði þroskast í hinum harða
skóla þess, sem verður fyrst. og
fremst að treysta á mátt og
megin og ryðja sér og áhuga-
málum sínum braut með eigin
orku og ástundun.
Jónas Þorbergsson varð
strax áhrifamikill blaðamaður,
svo að hann þótti þá og síðar
í allra fremstu röð þeirra, er
það starf hafa stundað hér á
landi. Hann var hugkvæmur um
áhugamál, djarfur og markviss
í sókn, en varfærinn og gætinn
í vöm. Var Dagur lesinn með
mikilli eftirtekt af áhugasöm-
um mönnum um allt land. Með-
an Jónas var ritstjóri Dags á
Akureyri átti hann meginþátt í
að hrinda af stað og í fram-
kvæmd með mörgum öðrum
ágætum mönnum hinu mikla
verki, að koma upp berkla-
spítala fyrir Norðurland að
Kristnesi.
Þau tíu ár, sem Jónas Þor-
bergsson var ritstjóri að blöð-
um samvinnumanna, óx flokkn-
um mjög fylgi um allt land og
mun enginn neita því, að hann
átti mikinn þátt í sigrum
flokksins og vaxandi gengi.
Sjálfur var hann í framboði
1931 og var þá kosinn þing-
maður fyrir Dalasýslu. Hefir
mörg-um Framsóknarmönnum
orðið að harma það, að atvikin
hafa hagað því svo, að hann
starfar nú að alþjóðlegu en
ekki flokkslegu málefni.
Tvennt einkenndi mjög starf
J. Þ. meðan hann var blaða-
maður. Annað voru meðfæddir
hæfileikar hans til að taka með
mikilli skarpskygni lögfræðis-
lega á málum, og hitt var
hæfileiki hans til góðrar fjár-
stjómar á fyrirtækjum þeim
er hann stýrði.
Á Norðurlandi voru lengi í
minni höfð viðskipti hans við
íhaldsmenn á Sauðárkróki.
Nokkrir forsprakkar andstæð-
inga hans þar höfðu fengið all-
marga menn til að undirrita
einskonar ávarp til ritstjóra
Dags, og var það birt í öðru
blaði á Akureyri. Var J. Þ. þar
borinn sökum um óviðeigandi
rithátt. En þeir, sem ávarpið
sömdu, höfðu ekki gætt betur
en svo orðalags í þessari
„áminningu“, að í því voru hin
frekustu meiðyrði og vörðuðu
við lög. En J. Þ. brá við skjótt
og stefndi í einu 32 mönnum,
er undir ávarpið höfðu ritað,
og á meðal þeirra var sýslu-
maður og dómari Skagfirðinga.
Vann J. Þ. málið, svo sem viia
mátti, og þótti þessi stefnu-
för eigi lítil tíðindi í Skaga-
firði. — Á Akureyri hlaut J.
Þ. líka mikla æfingu í rekstri
mála. Mætti hann oft 1 rétti
fyrir Böðvar Bjarkan, sem
vandaði þó jafnan mjög til mál-
færslu sinnar.
Það kom og vel fram hér
syðra, eftir að J. Þ. tók við
ritstjóm Tímans, hversu töm
honum var gagnrýni í slíkum
efnum. Má á það drepa t. d.,
hversu mikla vinnu hann lagði
í að leggja Hnífsdalsmálið,
Stokkseyrarmálið, Shellmálið og
Bolungarvíkurmálið ljóst fyrir
almenning og hversu glöggar
voru greinar hans um þau mál.
Vildu sumir ekki trúa, að ólög-
fróður maður hefði skrifað.
Fjármálamennska J. Þ. kom
glöggt fram, bæði meðan hann
starfaði við Tímann og Dag og
síðar við útvarpið. Hann var
allra manna duglegastur að
afla blöðum þeim er hann
stýrði tekna með auglýsingum
og góðu skipulagi á innheimtu.
Verður sérstaklega vikið að
þessu efni í sambandi við út-
varpið.
Þegar J. Þ. hætti blaða-
mennsku eftir 10 ára starf,
naut hann almennrar viður-
kenningar fyrir mikla hæfi-
leika til þeirra starfa. Flestir
þekktu skarpskygni hans og
vígfimi í sókn og vöm mála.
En þeir, sem nær stóðu þekktu!
hagsýni hans og áhuga fyrir
því að gera fyrirtæki þau er
hann stýrði fjárhagslega sjálf-
stæð.
Með áramótunum 1930 byrj
ar nýr þáttur í starfsemi hans.
Hann hættir að vera blaða-
maður og byrjar að byggja upp
með nýju og heilbrigðu skipu-
lagi eitt stærsta og að mörgu
leyti mesta menningartæki
þjóðarinnar, útvarpið. Það varð
að skipta um vinnuaðferð. 1
stað þess að vinna sigra á and-
stæðingunum með því að beita
allri vígfimi til að vera sem!
markvissastur í sókninni, þá
var nú megináherzlan lögð á
hið fullkomnasta hlutleysi, að
vera þjónn allrar þjóðarinnar
og hvergi andstæðingur.
Sumir þeir, sem átt höfðu í
höggi við J. Þ. meðan hann -
var blaðamaður og þótt hann
oft höggva stórt og vera bein-
skeyttur í meira lagi, þóttust
ekki vilja trúa því, að hann
gæti gætt nægilegs hlutleysis í
útvarpinu. Hófu andstæðingar
hans að honum sókn, bæði
leynt og opinberlega, og með
álíka smásmygli eins og þegar