Tíminn - 29.01.1935, Side 4
16
T í M I N N
sönnuð þótti sjóðþurð á Skúla
Thoroddsen sem sýslumann af
því að í tveggja ára endurskoð-
un fannst skekkja sem munaði
1 krónu og 65 aurum. Eðli
þessa áróðurs sást bezt á því,
að um leið og útvarpsstjórinn
hætti að vera þingmaður, félla
ásakanir andstæðinga hans nið-
ur með öllu.
tJtvarpið var nýmæli á ís-
landi. Aðeins ein tilraun hafði
verið gerð áður og misheppn-
aðist svo sem mest mátti
verða. Jónas Þorbergsson varð
að byrja hér algerða nýsköpun
og hann gat ekki nema að
nokkru stutt sig við erlenda
reynslu, af því að skilyrði hér
voru alveg sérkennileg. Tak-
mark hins nýja útvarpsstjóra
var að gera útvarpið íslenzka
sem allra bezt úr garði, og að
leggja þegar í byrjun trausta
undirstöðu. Skipulagsbreyting
sú, sem gerð var með lögunum
1930, var samkvæmt hans til-
lögum, þar sem meðal annars
var tekin upp einkasala við-
tækja. Var honum falið að
stofnsetja verzlunina árið 1930.
— Þá lagði hann hina mestu
stund á að fá heppilegt starfs-
fólk. Kom honum þar að góðu
halda meðfædd skarpskygni og
fjölbreytt lífsreynsla. Tókst
honum að velja að útvarpinu
hvem starfsmanninn öðrum
nýtari, jafn konur sem karla.
Sjálfur telur hann sig hafa
notið ómetanlegrar aðstoðar í
skipulagssstarfinu af samstarf-
inu við verkfræðing útvarpsins.
En þar fannst líka laginn mað-
ur, Gunnlaugur Briem, sonur
Sigurðar Briem póstmálastjóra,
íjölmenntaður um verkfræðileg
efni og ágætur starfsmaður.
Þegar fengin voru góð áhöld,
heppilegur húsakostur og ágætt
starfsfólk var lagður undirbún-
ingur að gagnlegu starfi.
Vegna rúmleysis verður sú
saga ekki sögð nema í stuttu
máli hér. Útvarpsstjóri hefir
með höndum umsjá með skrif-
stofuhaldi, fjárreiðum, inn-
heimtu afnotagjalda og alit
eftirlit ■ með daglegum fram-
kvæmdum. Um dagskrá ræður
hann ekki, en stjórnar dagleg-
um fréttaflutningi. Hefir hon-
um tekizt að vanda svo áreið-
anleik fréttanna, að allir trúa
útvarpinu. Allar tilraunir fyni
andstæðinga J. Þ. í þá átt að
sanna hlutdrægni á útvarpið,
hafa fallið um sig sjálfar og
orðið að engu.
Og í fjármálunum getur út-
varpsstj órinn líka hrósað sigri.
Hann hefir gert útvarpið að
vel sjálfstæðu fyrirtæki fjár-
hagslega. Á fjórum árum er
gróðinn af verzluninni með út-
varpstæki 500 þús. kr. og þó
eru tækin seld V3—V4 ódýrari
en í næstu löndum. Gróðinn
af auglýsingum er orðinn um
25 þús. kr. á ári og af frétta-
stofu og ýmsum aukastörfum
um 15 þús. kr. Hlustendum
hefir fjölgað svo, þrátt fyrir
kreppuna, að eigendur tækja
eru nú yfir 10 þús. og óhætt að
fullyrða, að 50 þús. af þjóðinni
hlusti stöðugt á útvarp og oft
fleiri. í stað þess að menn
bjuggust við að útvarpið á ís-
landi hlyti að verða byrði á
skattþegnunum í svo stóru og
strjálbyggðu landi, þá er nú
svo komið að • útvarpið getur
með sínum eigin tekjum staðið
undir afborgunum af dýrri
stöð og húsi, greitt kostnað við
skemmti- og fræðslustarfsemi
sína og þó átt skilding til að
koma upp hleðslustöðvum fyrir
fólk í dreifbýlinu, og til að
bæta stöðina sjálfa, ef þess
þarf með til að forðast erlenda
samkeppni um öldulengdir.
Jónas Þorbergsson hefir
komið á þremur nýmælum,,
sem hvergi eru þekkt við út-
varpsrekstur nema hér á landi,
en eru til samans undirstaða
að gengi útvarpsins. Fyrst er
einkasala á viðtækjum. Hún
tryggir notendum hin beztú
tæki með lægra verði eins og
áður er sagt, heldur en þekk-
ist í næstu löndum, þar sem
einstakir menn annast söluna.
Og samt græðir ríkið á annað
iiundrað þúsund krónur árlega
á heildsölunni og hefir þaðan
meginstuðning við daglegan
rekstur fyrirtækisins. 1 öðru
lagi er viðgerðarstofan. Verk-
efni hennar eru almennar
viðgerðir og breytingar á tækj-
um, miklar ókeypis leiðbein-
ingar um meðferð og viðgerðir.
Viðgerðarstofan hefir námskeið
fyrir viðgerðarmenn utan af
landi og menn í förum út um
land til viðgerða 0g eftirlits.
Loks hefir útvarpið í sambandi
vig viðgerðarstofuna styrkt á
einu ári 30 hleðslustöðvar, til
að létta fyrir þeim, sem eklci
hafa rafmagn og verður þeirri
starfsemi vafalaust haldið
áfram. 1 .þriðja lagi er frétta-
stofa útvai-psins algerlega ný
og frumleg stofnun hér á landi.
Fréttastofan hefir fréttamenn
út um allt land, í hverju hér-
aði, kaupstað og á skipaflot-
anum. Samhliða þessu tekur
fréttastofan fregnir frá mörg-
um útvarpsstöðvum í öðrum
löndum handa hlustendum sín-
um og heimilar síðan dagblöð-
unum til birtingar eftir samn-
ingi.
Það mun hafa verið von
sumra gamalla andstæðinga
Jónasar Þorbergssonar, að þeim
gæti tekizt með pólitískri
rangsleitni að flæma hann frá
útvarpinu og hindra hann frá
atvinnu. Það myndi síðarmeir
hafa þótt lítið frægðarverk að
svifta útvarpið þeim húsbónda,
sem á fáum árum hefir megn-
að að gera hag þessarar stofn-
unar miklu meiri 0g traustari,
heldur en nokkur gat búizt við
að hægt yrði að gera á svo
skömmum tíma. En jafnvel þó
að siíkt óhappaverk hefði mátt
vinna á útvarpinu, þá gætt’Ji
andstæðingar hans ekki að því,
að J. Þ. er einn hinn mesti
blaðamaður af núlifandi ís-
lendingum, og að jafnan er
mikil eftirspurn eftir vinnu
slíkra manna. En að líkindum
hafa þessir menn ennþá síður
haft vitneskju um það að út-
varpsstj órinn gæti allt í einu
verið orðinn heppilegur hús-
bóndi fyrir samvinnufyrirtæki,
sem þyrfti að fá glöggan og
útsjónarsaman forráðamann.
Saga útvarpsstjórans er
táknmynd um það, sem gerist
hvarvetna á Islandi og hvar-
vetna í næstu löndum heims-
ins. Úr fátækum heimkynnum
sveitanna koma hinir ötulustu
og afkastamestu forráðamenn.
I hörðum skóla lífsbaráttunn-
ar temja þeir krafta sína, sýna
í verki mátt sinn og verða eft-
irsóttir af því mannfélagi, sem
aldrei hefir nógu marga dugn-
aðarmenn til vandasamra
starfa.
Þannig er sagan um munað-
arlausa drenginn úr Þingeyjar-
sýslu, sem hafði lítið annað en
góðar gáfur og menningu átt-
haga sinna í veganesti út í
lífsbaráttuna, en er nú búinn
að sýna í vandasömum störf-
um hve miklu þvílíkir menn
geta áorkað áður en þeir verða
50 ára gamlir.
Vinir og sam'verkamenn út-
varpsstjórans geta á þessum
eftinninnilegu tímamótum ekki
óskað honum betri óska en að
hann haldi inn á leiðir kom-
andi ára sömu óhvikulu stefnu
og hingað til. J. J.
Reykjavík. — Sími 1249.
Niðursuðuverksmiðja
Reykhús
Símnefni Slátui’félag.
Bjúgnagerð
Frystihús
Pramleiðir og selur í heildsölu og smásölu: NiðursoðiS
kjöt- og íiskmeti, fjölhreytt úrval. Bjúgu og allsk. áskurð
á brauð, mest og bezt úrval á landinu.
Hangikjöt, ávalt nýreykt, viðurkennt fyrir gæöi.
Frosið kjöt allskonar, fryst og geymt í vélfrystihúsi eftir
fyllstu nútíma kröfum.
Ostar og smjör frá Mjólkurbúi Fióamanna.
Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar um
allt land.
Prjónavólar
Husqvarna-
prjóuavélar
ern viðurkenndar
fyrir gæði
Þó er verðið
ótrulega lágt
Samband ísl. samvinnufélaga
Fóðurbætir
Bezti foðurbætirinn er
S.I.S. - FódnrManda.
Samband ísl. samvinnufélaga
I
Nýiu
Rósarsápa, Möndlusápa. Baðsápa, Pálma-
sápa, jafnast fyllilega á við beztu erlend-
ar sápur. Biðjið um Sjafnar handsápur.
1
Vetrarföt oé
vetrarfrafikar
Nýkomið úrvai af smekklegum fata- og frakkaefnum,
Rynnið yður vöru og verð,
GEFJUIV
Laugaveg 10 Simi 2838.
Jörðin Elliðakot
í Mosfellssveit
fæst til kaups og ábúðar í næstu fardögum. .
Á jörðinni er járnvarið, stórt íbúðarhús, ásamt
geymslu og fénaðarhúsum.
G-irðingar og nýrækt mikil, og ótakmörkuð rækt-
unarskilyrði út frá túninu á grjótlausu landi.
Kúa- og sauðfjárjörð ágæt.
Jörðin liggur ca. 15 km. frá Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar gefur:
Einar Ig. Einarsson
Lághoiti, Reykjavík.
Jörð til söíu
Hálf jörðin Úthlíð í Biskupstungum er laus til ábúðar
og leigu, frá næstu fardögum að telja. Upplýsingar gefur
MAGNÚS V. MAGNÚSSON,
Ingólfsstræti -9. — Sími 8124.
Gula bandið bezt
og ódýrast, aðeias krónur 1.30 kílóið.